16.7.2008 | 20:08
Móðirin mikla og dulúðuga.
Það var rosalega flott birtan í morgun, og draumórum líkust.
Þessi sérkennilegi blámi, sem þýddi að sólin var um það bil að bræða af sér þokuna.
En hún lá inn með firðinum, eins og draumórar.
Það var eins og lýsti af fjöllunum.
Og allt var hljótt, nema fuglarnir sungu sinn morgunsöng.
Þetta er eins og maður sé milli svefns og vöku og sé horfinn inn í drauminn, sem mann dreymdi um nóttina. Maður heyrir grasið vaxa, ánamaðkana skríða milli hola, og blómin springa út. Söngur móður jarðar.
Þetta er vonandi ekki mengun frá skipinu Nei reyndar ekki, en reykurinn frá strompnum stendur beint upp í loftið í þessu venjulega Ísafjarðar logni.
Svo fer að rofa til, maður byrjar að heyra í bílum, og umferðin vaknar til lífsins, maður er ekki lengur einn í draumaheimi, heldur hefur bæst annað fólk í hópinn.
Og bærinn fullur af ferðalöngum, sem hafa borgað stórfé fyrir að fá að koma og heimsækja okkur sveitavargana.
Já skýin gerast viltari, og gallerí himin opnast upp á gátt í allri sinni fegurð.
Hér er gyðjan góða að snúa skýjunum í kring um fjallið sitt, hún er sennilega að auka kraft sinn, sogar til sín orkuna, nýtir hana sjálf og gefur svo okkur ástvinum sínum stóran hluta af henni.
Ekki veitir af, því margir eru tilkallaðir.
Og það er ekki bara kajaknámskeið, goflnámskeið hér er líka gerfigrasvöllurinn nýttur í leikjanámskeið. Bærin iðar af börnum í leik og starfi, og frábæru ungu fólki, sem stendur fyrir allskonar kennslu og þjálfun á ungviðinu.
en ég faðma mitt gullregn og fer svo að horfa á Frost. Góða nótt elskurnar, friður sé með ykkur öllum, og ég sendi ykkur orkuna frá Gyðjunni í Kubbanum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
15.7.2008 | 17:12
Kajak og sól.
Já þá er stubburinn farin aftur á kajaknámskeið. Það er mjög gott að geta komið börnunum á slík námskeið, þar sem þau læra að umgangast sjóinn og fjöruna.
Aðstaðan er líka alveg prýðileg, náttúrleg fjara beint niður af Sæfarahúsinu.
Hér er hann á tali við leiðbeinendurna. Hann var mjög ánægður með daginn, þó hann vildi ekki alveg samþykkja að fara í fyrstunni.
Þau hafa bara svo gott af þessu börnin.
Svo hnerraði Guð og það komu nákvæmlega tvær vindhviður, það þýddi náttúrulega ekkert að segja við aðal Guð hjálpi þér, því þetta var örugglega hann sjálfur.
Svo voru bátarnir bara reistir við aftur, og áfram var lognið.
Hér er hún Dísa vinkona mín, að koma í heimsókn til mín. Æskuvinkona mín og fermingarsystir. Við sátum lengi yfir kaffi og höfðum margt að spjalla. Það er hún sem stundum svarar hér á blogginu mínu.
Það sem gerðist þegar Guð hnerraði, var að öll rigningarskýin fóru burtu, og eftir var bara sól og blíða hehehehe... Gott mál.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
14.7.2008 | 20:40
Túristar og viðmið, hversu pottþétt eru þau ?
Það fer ekkert á milli mála að ferðamanna straumurinn er í algleymingi. Hér á hjara veraldar hefur aukist til mikilla muna koma skemmtiferðaskipa. Allt í einu eru bærinn fullur af röltandi túrhestum, fer eftir þjóðerni hvort þeir eru vinalegir og brosandi, eða kuldalegir með fjarrænan glampa í augum. En samt er það svo að þegar þeir eru komnir hingað inn að kúlunni, þá eru margir sem koma við og vilja annað hvort taka myndir eða kíkja aðeins inn í garðskálann og garðinn að þá verður brosið ofaná.
Sum þessara skipa eru enginn smásmíði, og furðulegt að þessir stóru dasar geti lagt við bryggju hér hjá okkur.
Hér sést svo auðvitað lognið sem er svo algengt hér. Það var að vísu rigning í dag, en hún var lóðrétt, og hlýtt í veðri.
Stóru húsin á höfninni verða einhvernveginn svo ósköp lítil miðað við, og sjáiði litla gula bátinn fyrir miðju, hann er reyndar ekkert svo lítill. Þetta vekur manni nefnilega hugsun um það sem er afstætt. Hvernig allt samhengi breytist þegar kemur annað viðmið. Þetta er mikið notað á okkur sálrænt í vinsældarkapphlaupi stjórnmálanna. Þegar eitthvað verður óþægilegt fyrir segjum stjórnvöld, þá er kastað fram einhverju öðru, til að augu okkar beinist í aðra átt. Þá breytist viðmiðið, og við verðum ráðvilt, og erum ekki viss lengur um það sem verið var að gagnrýna. Eins og núna til dæmis er verið að innprennta okkur að það hafi verið Sjálfstæðisflokkurinn sem alla tíð hafi verið í forystu fyrir því að taka upp evruna. Og við auðvitað trúum því og hugsum, hvað framsýnn flokkurinn sé, og hve vitrir forystumenn hans séu. Sannleikurinn er gjörsamlega endurskapaður frá grunni, og við fáum ný viðmið. Allt í einu er Björn Bjarnason og Geir H. Haarde frumkvöðlar í Evrópumálum. Og við gleymum því snarlega að Það var ekki til umræðu að taka upp Evru fyrir tveimur árum, þegar Björn Bjarnason sagði að engum dytti slík fyrra í hug nema Valgerði Sverrisdóttur. Og Geir spilaði því út fyrir nokkru að mun betur lægi við að taka upp dollara. Nei við gleypum við þessu öllu eins og mér hefur alltaf fundist húsin á höfninni vera risastór, en svo eru þau bara pínulítill, þegar smjörklípa í formi skemmtiferðaskips leggst við kantinn og smækkar allt sem þar er fyrir.
Já það breytast öll viðmið, þegar eitthvað allt annað kemur upp.
Svona erum við bara, og ekkert við því að gera, nema ef okkur ber gæfa til að skilja kjarnan frá hisminu, og vita að þegar skipið er farið, verða húsin aftur stór.
Fyrir þá sem hafa verið eitthvað í burtu, þá er þetta nýji barnaskólinn, glæsibygging, sem eykur örugglega og bætir aðstöðu kennaranna í bænum. Verst er að lóðin minnkar, og þess vegna reyna stjórnvöld að troða sér inn á Austurvöll, á sviknum forsendum. Þar breytist viðmiðið líka, því þeir hafa skilgreint aðalskrúðgarð bæjarins sem leiksvæði, en segja samt að þar verði áfram skrúðgarður. Hann er teiknaður af Jóni H. Björnssyni einum mest metna og elsta skrúðgarðaarkitekt okkar, þetta er systurgarður Hallargarðsins, og nú stendur til að breyta það öllu, koma upp leiktækjum í jaðrinum á honum, og þrengja hann þannig. Breyta garði sem er orðin yfir 50 ára gamall, og hefur unnið sér hefð og er einn af fjórum hönnuðum skrúðgörðum í Ísafjarðar bæ, sem er einstakt í sögu Íslands, þar eru, Austurvöllur, Jónsgarður, Simsonsgarður og SKrúður.
Hér er Austurvegurinn, það er verið að helluleggja hann og gera fínan, ég vona að menn fari svo nærfærnum höndum um Austurvöllinn, og detti ekki í þá gryfju að fara að breyta honum, bara til að ná í leiksvæði fyrir börnin, þar ætti að vera hægt að finna aðra lausn.
Ég skrapp á Flateyri í morgun, og auðvitað tók ég mynd af bautasteininum hans Einars Odds. Ég hygg að Einar Oddur hafi verið vel að þessum virðingarvotti kominn. Þó ég væri ekki sammála stefnu hans í þjóðmálum, og þeir vinir og samherjar Einar Kristinn og Einar Oddur segðu stundum eitt og gerðu annað eftir kosningar. Þá verð ég að segja að mér líkaði alltaf vel við Einar, það var ef til vill garðyrkjumaðurinn í honum sem mér þótti vænt um. Hvað áttu nýtt og spennandi núna Ásthildur mín, sagði hann. Ég hitti hann bara nokkrum dögum áður en hann dó. Þá röltum við um garðinn hans, og hann sýndi mér stoltur öll uppáhaldstrén sín, hann mundi alveg hvenær hann hafði gróðursett þau, og hvar keypt. Þennan hlyn keypti ég hjá þér, sagði hann, og hann er stolt mitt í garðinum. Hann er farin að dafna svo vel.
Ætli hann hefi ekki bara fengið betri bautastein hér á síðasta ári þann 19. júní, þegar feministar ákváðu að gefa honum bleikan stein. Já mér þótti vænt um karlinn, Þó ég væri ekki sátt við hvernig þeir fóru með sjávarútveginn. En öllum getur orðið á, og grein sem hann skrifaði stuttu áður en hann kvaddi þennan heim, í viðtali í BB, segir mér, að hann hafi verið farinn að átta sig á því að stefnan var ekki alveg samkvæmt kompás. Blessuð sé minning þín minn kæri. Þú varst held ég fyrst og fremst ræktunarmaður, og flateyringur. Þó pólitíkinn hafi glapið þig á refilstigu kvótakerfisins. Þá varstu samt hlý manneskja og þið hjónin miklir mannvinir og menningarvitar. Enda ertu örugglega einhversstaðar í aldin garðinum Eden að gróðursetja hlyn og blágreni.
Hér er Flateyri, margt hefur dunið á þorpinu, en dugnaður og þrautsegja einkenna fólkið. Þau hafa rifið sig upp úr sorginni og aukið sínu fólki trú á framtíðina, með allskonar góðum hlutum. Einmitt núna eru þar veraldarvinir, sem hafa komið til að leggja sitt af mörkum, líkt og í fyrra. 'Eg ætla einmitt að stjórna þeim í viku, frá 17 til 22 júlí. Það er nóg að gera við minningargarðinn, sem þau hafa reist af miklum myndarskap. En ég segi örugglega meira frá því seinna, og set inn myndir af þessu unga ævintýrafólki sem er frá mörgum þjóðlöndum.
Læt ég þessu rausi svo lokið um viðmið. Þau eru hvort sem er ekki raunveruleg að því leyti, að þau blinda mann oft og leiða mann afvega. Því er best að hafa sinn bautastein á hreinu, og vita hvar maður stendur í baráttunni. Ef maður gerir það, þá getur ekkert falskt viðmið haggað manni af réttri braut. Knús á ykkur elskulegust.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
13.7.2008 | 23:26
Sæluhelgi, og annað á döfinni hér vestra.
Já þau komu í heimsókn, Sigurjón Dagur, Ólöf Dagmar og mamma þeirra. Það var fjör í krökkunum, eins og gengur.
Hann var fljótur að bleyta sig, og svo endaði þetta allt með að Ólöf Dagmar datt í tjörnina hehehehe
Hér eru svo bæjarstjórahjónin að sækja plönturnar sínar, til að fara með þær inn í Djúp til gróðursetningar, og ég sé ekki betur en kajakarnir séu með í för.
Og tími fyrir smáspjall um landsins gagn og nauðsynjar.
Jamm smá systkinametingur eins og gengur, ég er með meira en þú.
Já tjörnin gerir sitt.
Það var svo skömmu síðar sem stóra stúlkan okkar datt í tjörnina
en það hafði verið ákveðið að fara á Sæluvikuna á Suðureyri í dag, og við stóðum við það.
Súgandafjörðurinn langur, hlykkjóttur og fagur.
Þar var auðvitað elskuleg bloggvinkona mín Sigrún ásamt vinkonu sinni, sem búsett er í svíþjóð.
Flottar saman.
Ég er nokkuð viss um að hér voru ekki undir þúsund manns í dag þegar mest var, rosalega vel sótt.
Og sumir klæddu sig upp á í tilefni dagsins.
Og sumir einfaldlega vildu frekar leika sér á róló heldur en í hoppiköstulum.
Sem auðvitað stóðu öllum til boða.
Hér er mitt fólk á ferð.
Ömmu í kúlustrákar í leik.
Hér voru líka ýmsir aðrir, sem ekki eru algeng sjón hér.
Það var hægt að fá góðan Tailenskan mat.
En svo reyndar líka pylsur, harðfisk og annað góðgæti.
Bikarar fyrir sigurvegara voru þarna til staðar.
Börnin máluð fagurlega.
Ungir sem aldnir skemmtu sér konunglega. Súgfirðingar hafa alltaf verið skemmtilegt fólk sem hefur gaman að að koma saman og skemmta sér. Ég man hér í den, þegar ég var í hljómsveitarbransanum, og eins í leiklistinni, að það var alltaf gaman að koma á Suðureyri bæði til að halda böll og svo með leikrit. En, málið var að það þýddi ekkert að byrja giggið fyrr en um miðnættið, bæði vegna þess að þeir unnu svo lengi fram eftir, og svo að þeir fóru einfaldlega ekki út á lífið fyrr en eftri miðnætti. Það voru partý í heimahúsum, og þeim var ekki rótað fyrr. Stunum voru böllin frá eitt til sex um morguninn, því þegar þeir loksins komu á böllin, vildu þeir einfaldlega ekki hætta fyrr en í fulla hnefana. Súgfirðingar eru dásamlegt fólk.
Þessi unga stúlka er að syngja sæluvikulagið í ár.
Gríðarlega margt fólk var hér samankomið, bæði súgfirðingar, fólk af fjörðunum í kring, og svo brottfluttir og aðrir gestir.
Stemningin lá í loftinu, og veðrið var dýrðlegt.
Þessi unga snót opnaði svo söngvarakeppnina, hún var dálitið feimin, enda erfitt að byrja, og frábært hve margir tóku þátt í keppninni.
Þessi ungi maður tók Stál og hnífur með stæl.
Hér er verið að keppa um bronsbarka, silfurbarka og gullbarkabikara hvorki meira né minna.
Það var ellefumanna dómnefnd og áhorfendur fylgdust spenntir með.
Mér fannst þessi góð, sviðsframkoman hennar var frábær.
ég held að við séum að horfa á framtíðar performans.
Ömmur fylgjast vel með afkvæmunum, þegar þau eru að koma fram.
Sól sól skín á mig, söng þessi litla stúlka, og svei mér þá sólin kom fram í smástund.
Glæsileg ekki satt ?
Litla Evíta hafði líka gífurlega áhuga á söngvakeppninni ætli hún verði ekki með eftir nokkur ár ?
Hann er bara þriggja ára, og hann söng Bahama öll erindin, og ég er ekki að ljúga FYndið að heyra þetta litla skott syngja um veistu hve mörgum konum hann hefur sofið hjá
ég er enn að brosa.
Þessar skottur sungu saman.
Þessi á undan voru Bronsbarkarnir frá 0 upp í tíu, svo komu silfurbarkarnir, frá 11 upp í 15 minnir mig, hér er Sóley Ebba komin, margfaldur sigurvegari, ég held að hún eigi þrjá bikara nú þegar.
Stubburinn minn tók þátt, hann söng This is my live, og gerði það bara rosalega vel.
Svo voru það gullbarkarnir,, þessi var flottur á því og tók Queen.
en þessi unga kona, var aldeilis frábær, þarna stóð hún ólétt eins og ég veit ekki hvað, og söng! Sister, svo frábærlega að ég fékk gæsahúð. Mikið rosalega var hún flott.
Það var þröngt setin bekkurin á Suðureyri í dag svomikið er víst.
Það var keppt í fótbolta, brottfluttar og heimakonur, sleggjukasti kvenna og karla, snúðabökun og ég veit ekki hvað og hvað, gefinn verðlaun fyrir flottasta garðinn og snyrtilegustu eignina.
Og stráksi sem söng stál og hníf, varð bronsbarkinn í ár.
Og Sóley Ebba fékk sinn fjórða bikar, enda flott.
Gullbarkinn Syster hampaði sínum bikar.
Þessi unga kona var kjörin bjartasta voninn, og fékk farandbikar; Rabbabikarinn í minnigu Rafns Jónssonar, það er ekkjan hans hér lengst til vinstri sem afhenti hann.
Hér er enn og aftur mitt fólk, ég á tvær tengdadætur héðan frá Suðureyri. Svo fyrir utan góðar minningar fá Suðureyir i denn, kátt er í Kongó og svoleiðis, þá hefur hún öðlast öðruvísi stað í mínu hjarta fyrir utan leikskólann og skotturnar mínar tvær sem þar eru.
Síðast á dagskránni var að vígja minnismerki súgfiskra sjómannskvenna.
Eins og hér kemur fram er það hugmynd frá Lilju Rafney. Frábært framtak, það vill oft gleymast þeir aðiljar sem ekki eru í sviðsljósinu, en taka allan þátt í ævintýrinu. Vonir ótti, sorgir og tár. Það vill svo oft gleymast, það sem þykir sjálfsagt, en er það bara alls ekki.
Hér stendur hún og horfir til hafs, bíður eftir bónda sínum og fyrirvinnu, kemur hann heim í kvöld?
Hún horfir til hafs bíður og vonar að hann komi heill heim.
Hér er verið að undirbúa vígsluna, en ég varð að fara heim, til að setja steikina í ofninn, því faðir minn elskurlegur kemur í mat á sunnudögum, og það þarf tíma til að elda læri eins og allar konur vita.
Lífið gengur sinn vanagang, og þýsku veiðimennirnir koma af hafi, glaðir með feng sinn, en alls utan við gleði og hátíð þorpsbúanna. Ég vil þakka ykkur kæru Súgfirðingar fyrir frábæran dag, og góða skemmtun. Það er nauðsynlegt hverju samélagi að eiga svona helgi þar sem allir leggjast á eitt við að gera sér dagamun. Þið eigið líka gott að eiga ykkur sterka, bæði andlega og fjárhagslega einstaklinga, sem elska samfélagið sitt og leggja sitt af mörkum til að gera þessa Sæluviku svona frábæra eins og hún er. Það myndi aldrei ganga öðruvísi. Því segi ég, ekki gleyma að klappa þeim á bakið sem svo mikið lögðu á sig til að gera þessa hátíð svo glæsilega. Það þarf ekki að nefna nein nöfn, það vita allir við hverja er átt. Hafið hjartans þökk fyrir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
13.7.2008 | 11:37
Sunnudagsmorgun í kúlu.
Yndislegur kyrrlátur fallegur sunnudagsmorgun. Hreinn og tær eftir rigningu gærdagsins og næturinnar.
Ég en í kotinu, því afi skutlaði Úlfinum til Suðureyrar á æfingu, nú á að taka þátt í söngvarakeppninni, hann er búin að vera að æfa sig og æfa sig í allan gær og fyrradag. Vonandi gengur honum vel.
Það er auðvitað logn. Og ég er viss um að sólin brýst fram um hádegið.
Vitiði nú hvað. Mér finnst það algjör forréttindi að hafa pollinn svona dag eftir dag, eins og eitt stórt málverk. Hugsið ykkur, það er engin myndlistarsýning sem toppar þetta.
Það sést líka vel hve úthaginn hefur grænkað í úrkomunni undanfarið. Allt svo hreint og fallegt, og mikill friður.
Alveg einstakt að mínu mati. Ég er reyndar búinn að fara upp á lóð og taka upp plöntur fyrir bæjarstjórann. Hann er að fara að planta út í dag blessaður með sinni konu. Það er ekkert uppbyggilegra fyrir samlíf en einmitt það.
Hér sést vel hve allt hefur grænkað, og sennilega verður mikil berjatekja í ár.
Hehehe ég stend á sama blettinum og sný mér bara í ýmsar áttir.
Á svona morgni er svo gott að vera til. Allt hjálpast að að setja frið í sálina, fuglasöngurinn, kyrrðin og maður heyrir plönturnar stynja af vellíðan vegna rakans. Fjrðurinn glitrar af spegilmynd fjallanna.
Hélurifsið brosir við manni.
Fjólurnar hafa greinilega stundað stóðlíf hehehehe.
Vestmanneyjabaldusbráin skartar sínu fegursta. Mér þykir vænt um hana, eins og alla vini mína hér frá eyjunni grænu.
Én í þessu heyri ég að krúttmolinn minn Sigurjón Dagur, Ólöf Dagmar og mamma þeirra eru að koma inn úr dyrunum. Það þarf að gefa kaffi, og jafnvel einhvern morgunmat. Sé ykkur. Eigið góðan dag, og vonandi jafn fallegan og yndælan og þessi sem hér er.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
12.7.2008 | 12:28
Rólegheit hjá kúlubúum.
Dagurinn í dag hefur verið rólegur hjá mér. Algjör afslöppun, ósköp notalegt. kl. eitt þarf ég að fara upp á lóð, ef einvher skyldi líta inn til að kaupa sér plöntur.
Loksins kom rigninginn. Það var þungbúið í gær, en hún lét á sér standa. Nú vökvast alt og það eykur á mína vellíðan.
Sigurjón Dagur og Ólöf Dagmar litu við hjá ömmu í gær. Það gengur vel með sýninguna hans Júlla, hún stendur til 4 ágúst. Og hann er að betrumbæta aðstöðu sína tól og tæki, fyrir næstu sýningu. Þetta er bara gott mál.
Hann Sigurjón var náttúrulega búin að bleyta sig, með því að vaða í sjónum.
Ömmurúsína, ef hann hverfur þá byrja ég að leita að honum hjá Hrönn
Vinir, saman í haga.
Og þungbúin Ísafjörður. Samt alltaf jafn magnaður.
Alejandra og Eva Rut eru svo í heimsókn hjá Úlfinum núna. Jamm, rólegheit, afslöppun alveg eftir bókinni eins og þið sögðuð mér að gera Hlaða batteríin, og bara vera það er líka gott.
Eigið góðan laugardag öll sömul.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
11.7.2008 | 12:48
Kraftakarlar.
Það er auðséð að brátt verður keppt í kraftakeppni hér vestra.
Ég tók nokkrar skemmtilegar myndir af kraftakörlum sem eru að undirbúa keppnina.
Jæja hann er að verða kominn upp úr, steinninn.
Ekkert hald í þessu, hvernig eigum við að koma honum upp á kerruna ?
Best að ég kippi honum bara yfir....
Púff hann er helvíti þungur.
AHH kominn á sinn stað.
Og ekki nema 148 kíló.
Já þetta voru glaðlegir og kátir strákar.
Það verða örugglega margir sem fylgjast með köppunum. Ég segi bara gott gengi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
10.7.2008 | 23:02
Daglegt veður á Ísó og ýmislegt.
Sólin braust fram í dag, en í morgun var þokan niður undir jörðina.
Samt svolíltið rómó.
Og gömlu bátarnir kúrðu svo friðsælir í logninu í höfninni.
Þetta er svona sjokkaðvörun fyrir þá sem koma heim í sumar, og vita ekki neitt, en hér er risinn glæsibygging við hliðina á gömlu Björnsbúð, sem núna er dótabúð.
Og til að glöggva sig ennbetur, þá sést hér í gamla barnaskólann, heheheh.
En pápi minn elskulegur verður níræður í byrjun ágúst, og ég á að sjá um skemmtiatriðin, svo mér datt í hug að heimsækja nýja hafnarstjórann í Bolungarvík til að vita hvort hann væri til í smá gig, en svei mér þá, verslunarmannahelginn er eina helgin sem þessi piltur ætlar sér að vera burtu, nánar til tekið á Austfjörðum, svo það gekk ekki upp. En þetta er sum sé nýji hafnarstjórinn í Bolungarvík.
Sjáið bara hrikalega fegurð Bolungarvíkur.
en þar sem ég ók inn Seljalandsveginn, þá byrjaði að rofa til, þessi mynd sýnir birtuna vel.
Og loks hafði sólin betur í baráttunni við mistrið, og skein á rangláta og réttláta, eins og hún hefði aldrei gert neitt annað.
Ef þið viljið blóm, sem er bæði harðgert og duglegt, getur bæði verið í bleytu og þurrki, þá er þetta plantan sem þið viljið. Apablómið stórkostlega, sem breiðir sig út yfir heilu skurðina, en getur alveg eins staðið og blómstrað, norðanundir vegg, í þurrki, þá hafði þið það hér minulus frábær harðgerð planta sem þolir nánast hvað sem er, og svo er hún líka svo dómdags falleg.
Og ísafjarðarbörnin á kajaknámskeiði. Það skortir ekki verkefni fyrir börnin okkar hér, það er öruggt mál.
Þessi fallega sýrena, sem líklega er fagursýrena Bogarsýrena, blómstarði og brosti við mér niður í Kínahverfi, sem svo er kallað hér.
Þau eru búnir að vera þvílíkir vinir í fleiri daga, Sóley Ebba og Úlfur hér í kúlu, en í kvöld fengu þau að sofa í tjaldi hjá Ólöf Dagmar.
En í kvöld átum við Hrefnuket. Ég get alveg sagt ykkur það, að réttmeöhöndlað hrefnuket er BETRA en nautakjöt. Ég keypti marinerað hrefnuket í Samkaup, og steikti það samkvæmt ráðleggingum Magga Hauks, súperkokks, steikt í smjöri, það verður ekki gefið upp nánar hér, nema eftir sé leitað, og soðnar kartöflur, með sultu. Algjört sælgæti. Allir tóku vel til matarins, og hrefnan var uppétin á nóinu. Reynið sjálf, passið bara að steikja hana ekki lengur en 2-3 mín. á velheitri pönnu, og hún bráðnar upp í ykkur..... nammi namm.
Meiri háttar steik.
Hér er kvöldmynd, þar sem sólin hefur unnið sigur á mistrinu. Æ það er bara yndælt.
Og börnin að fara að heiman Til að sofa í tjaldi, með allar sínar græjur í kerrunni hennar Ásthildar. Svo við erum ein í kotinu. Það er auðvitað bara notalegt, en samtvantar eitthvað. Ég segi bara góða nótt elskurnar mínar og takk fyrir öll fallegu komentinn ykkar. Ég nýt þeirra í botn, nota mér þau mér til sáluhjálpar, og geymi þau í hjartanu, og læt þau ylja mér endalaust gegnum daginn og kvöldið. Ég held að þið áttið ykkur ekki einu sinni á hve gefandi þið eruð, með svörum ykkar. Það er bara þannig. Knús á ykkur. Og Sigrún mín, það var rosalega gaman að hitta þig í dag, og ég vona að þú gefir þér tíma til að koma við, og þiggja kaffi eða eitthvað. Knús á þig mín kæra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
9.7.2008 | 20:57
Dagar vonar.
Ég var að lesa í dagbókinni 2008, en það eru málshættir neðst á hverri síðu. Dagurinn í gær var dálítið táknrænn því þar stóð;
Leitaðu ekki hættunnar, svo að þú farist ekki í henni, en gakk hugaður á móti henni, þegar þú getur ekki flúið hana. þetta er frábær tilvísun í Júlla minn.
Og í dag er þessi frasi; Móðir er barni best.
En það hefur verið þoka í dag og fremur kalt. En mér sýnist vera að létta til. Samt var svo sem ágætt fyrir mig að hafa ekki of mikla sól í dag, ég var allan daginn að burðast með vatnsslöngur, til að gefa blómunum að drekka. Og er því töluvert þreytt, eins og venjulega á þessum tíma reyndar.
En hér eru smá krúttmyndir, það fór aldrei svo að ég fengi ekki litla skottu i heimsókn, reyndar er Sóley Ebba og Úlfur búin að vera hér í tvo daga, eða Sóley að leika við Úlfinn. En Evíta litla kom í dag, og það var notalegt að heyra ungbarnahjal. Reyndar sakna ég telpnanna mikið.
Halló amma ég er að koma!!!
Ég þarf reyndar ennþá að skríða upp tröppur og stiga.
Jæja þá getur maður aðeins stoppað og pósað fyrir ömmu.
Úbbs, dálítið völt
Best að fara bara að vökva.
Hjartanlega takk fyrir mig og Júlla minn, það hefur svo sannarlega yljað mér fallegu hlýju orðin ykkar og góður hugur. Það skilar sér áfram til hans. Bestu kveðjur og knús inn í nóttina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
8.7.2008 | 21:42
Dagurinn í dag.
Var einkar gleðilegur fyrir mig, fyrir margra hluta sakir. Fyrir nákvæmlega í dag fyrir 38 árum fæddist mér sonur númer tvö. Hann var baldinn í skóla, þurfti mikla athygli og átti oft í erfiðleikum vegna þess að hann var álitinn svo óþekkur. Ég hygg að í dag væri hann talinn með athyglisbrest og hefði örugglega verið settur á rítalín. Skólastjórinn og flestir kennararnir stóðust ekki prófið um að hlú að nemenda sínum. En aldrei klagaði minn drengur þá fyrir illa meðferð. Það var ekki fyrr en foreldrar annara barna fóru að segja mér frá því hvernig hann væri meöhöndlaður í skólanum, af skólastjóra og ýmsum öðrum kennurum, þegar öðrum börnum var farið að ofbjóða, að mér varð ljóst að sonur minn átti við erfiðleika að etja. Enda lauk hans skólavist í Gagnfræðaskólanum á Ísafirði með brottrekstri, sem í raun og veru átti ekki að vera hægt. Ég sendi hann svo í skóla á Klúku í Bjarnarfirði, þar sem hann átti skemmtilega og góða daga í grunnskólanum þar. Það sama var uppi á tengingnum í Gagnfræðaskólanum. Það endaði á því að hann fór í Laugaskóla, þar sem hann hreinlega blómstraði. Hann hefur átt í allskonar erfiðleikum þessi drengur minn. Og m.a. orðið fyrir allskonar niðurlægingu af mörgum, alls ekki öllum. En sér í lagi sýslumanni sem hér var, og þegar ég dey, ætla ég að biðja þennan gráhærða skeggjaða þarna uppi um að gera mér þann greiða að koma því svoleiðis fyrir að slík fyrirbæri komist aldrei í aðstöðu til að deila og drottna yfir brotnu fólki. Þó er þetta freak enn að, bara annarsstaðar sem betur fer. Ég get sagt ykkur það, að á tímabili var ég eina manneskjan í heiminum, sem trúði á þennan dreng. Og fékk skammir frá mörgum, m.a. mér nánum, fyrir að gera sjálfri mér það að halda í vonina um að hann næði einhverntíman áttum.
Ég er ekki að segja þetta fólkinu til lasts, það meinti vel. Ég er að segja þetta fyrir þá sem eru í sömu sporum og ég var þá. Það er ENGINN VONLAUS, og það er alltaf til von um bata, ef kærleikur er til staðar.
Þess vegna er þessi dagur svo mikilvægur bæði fyrir hann og mig. Dagurinn hans. 'Eg er ennþá meö kökkin í hálsinum af þakklæti, til þeirra sem stuðluðu að þessari sýningu, og svo vegna hans sjálfs, sem hefur sýnt hve frábær hann er, og líka systur minnar sem gaf honum tæki og tól til að skapa það sem hann hefur gert.
Komið að þessu minnsta galleríi á Íslandi, og þótt víðar væri leitað. Reyndar sagði eigandinn að hún gæti ekki kallað þetta gallerí, en ég geri það samt.
Og rosalega vel við hæfi að það skyldu einmitt vera fiskar hér á annari sýningu þessa gallerís.
Hér er hann að bæta einum fiski við, hval sem trónir yfir fiskunum.
Hér eru svona hitaplattar fyrir potta og pönnur á borði. Sannarlega flott gjöf.
Hér getur hver panta sinn fisk.
Galleríis eigandinn Lisbet.
Pabbastubbur var auðvitað með til að halda upp á daginn með pabba sínum.
Júlli minn með drengina sína báða.
Þetta er hápólitísk sýning sagði safnvörðurinn, þegar hann afhenti þeim báðum blómvendi. Fyrsta sýning Fiskabúrsins var með lifandi fiskum, sem dóu einn af öðrum, og svo var komið að einungis lifðu steinfiskar, sem þó eru ef til vill meira lifandi en venjulegir fiskar. Þetta er kvótakerfið í hnotskurn.
Listamaðurinn og galleríeigandinn með blómvendina sína. Þau eru tvær hæfileikaríkar manneskjur sem eru ekki sporgöngufólk, heldur halda ótrauð á ótroðnar slóðir. Tvær yndælar manneskjur, sem við hin mættum læra mikið af.
Innilega til hamingju bæði tvö, með það sem þið eruð að byrja með. Megi gæfan fylgja ykkur báðum, og lyfta ykkur þangað sem þið eigið skilið.
Bræður í léttum leik.
Ég er stolt af öllum mínum börnum. Og ég hef reynt að innprenta þeim kurteisi, kærleika og að umgangast allt með virðingu, bæði menn, dýr og plöntur. Í dag var einn áfangasigur á þeirri braut, með ungann minn, sem ég hef þurft að leggja hvað mesta vinnu í. Og ég er full af þakklæti, til hans, og til þeirra sem komu í dag til að heiðra hann, og allra þeirra sem gerðu þennan dag mögulegan. Vini hans, sem hafa hjálpað honum gegnum svo margt. Þarf ekki að nefna nein nöfn, þeir vita við hverja ég á. Hvar værum við stödd í lífinu, ef við ættum ekki góða vini, sem væru til gegnum súrt og sætt, og ættingja sem alltaf eru tilbúnir til að fyrirgefa og hlú að. Og samfélag sem er tilbúið að gleyma gömlum syndum, og gefa nýtt tækifæri. En fyrst og fremst, er það vegna þess að viðkomandi einstaklingur er svo mikill ljúflingur og svo saklaus sál, þrátt fyrir allt, að þess vegna standa vegir opnir.
Takk fyrir þennan dag, takk fyrir mig, og takk fyrir elskulega drenginn minn. Ég er alveg viss um að hér hafa orðið vatnaskil.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 1
- Sl. sólarhring: 9
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023302
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar