Göngutúr umBelgrad.

Við erum komin heim á hótelið eftir þrigga stunda gönguferð um miðborgina í yfir 30 gráðu hita og sól.

En fyrst þetta.  Vinir mínir hér í Évrópu héðan og þaðan segja við mig. þið eigið ekki að festa ykkur í neti Evrópusambandsins. Það er á öruggri leið lóðbeint niður eins og þið.  En þið eruð farin á botnin Evrópa er á sömu leið en bara hægar.Þá fyrst eruð þið í vondum málum ef þið bindið ykkur samanvið Evrópu og farið aðra dýfu.

Þetta fólk segir við mig Alls ekki fara inn í Evrópusambandið, því þið hafið allt sem þið þurfið sem þjóð. Og þið eruð ef til vill eina þjóðin í heiminum sem getið verið algjörlega sjálfstæð.  Þið getið ef til vill bjargað heiminum með því að byrja frá grunni og sýna alheiminum að það er virkilega hægt. Því allar stjórnir óttast einmitt hrunið og ljúga að almenningi að allt sé í lagi,alveg eins og ykkar ríkisstjórn gerði.  Nema ykkar hrun er afstaðið okkar er rétt að byrja. Látið ekki plata ykkur inn í þessa vitleysu. Stjórnvöld sem segja ykkur að enginn önnur leið sé fær er annað hvort vitlaus eða hafa fengið borgað undir borðið til að selja ykkur fyrir fé.   

Ég átti til dæmis einhverja smáaura í þýskum banka.  Ég fékk bréf fráþeim í sumar um að af því að þeir hefðu sameinast öðrum banka myndi fyrirkomulag okkar breytast 1. ágúst þannig að frá þeim tíma myndu þeir krefja mig um 8.90 euro mánaðarlega fyrir að geyma peningana fyrir mig, nema það kæmi greiðsla um 1200 evrur mánaðarlega inn á reikninginn. Þar sem það var algjörlega óásættanlegt og ekki hægt.  Tók ég peningana mína út og lokaði reikningnum.  Ég ætla ekki að borga 100 evrur á ári til þeirra fyrir að geyma peningana mína og ávaxta þá sjálfum sér í hag.

En snúum okkur að Belgrad.

Belgrad.15.7.09 006

Ég þarf að kaupa mér föt fyrir giftinguna og fór inn í búð fyrir stórar stelpur til að leita að blússu, fékk þetta fína pils í mollinu í gær.

Belgrad.15.7.09 016

Við röltum niður í miðbæ hér erum við á veitingahúsi að skoða leiðina heim aftur. En hér er smá saga.  Þarna komu inn spilarar þeir litu í kring um sig, byrjuðu svo að spila voða lágt, fólk við næsta borð gaf þeim auga, og einn karlinn dró upp þúsund dínara, ca 2000 ísl. spilararnir sáu þetta alveg um leið og voru þar með komnir að borðinu eins og dýr að leita að mat.Þeir byrjuðu svo að spila fyrir fólkið af miklum móð þegar karlinn setti peningin aftur í vasann.  Loks tókst  þeim að fá einn af körlunum til að syngja með, og þar með var björninn unninn, að lokum tókst þeim að fá bæði aurin frá þúsundkarlinum og líka svipað frá þeim sem byrjaði að syngja með. Þess vegna er þetta einskonar veiðisaga.

Belgrad.15.7.09 021

Hér eru þeir komnir á fullt að spila, bassi, harmonikka, klarinett og gítar.

Belgrad.15.7.09 028

Gott að fá sér ís þegar maður er svangur.

Belgrad.15.7.09 030

Á lýðveldistorginu.

Belgrad.15.7.09 039

Aþingishúsið sennilega ekkert Icesave vandamál hér.  Bara reiði út í Nato og vestræna forystumenn.

Nú erum við komin niður á hótel og slökum á eftir heitan dag og mikið labb.  Bið að heilsa héðan frá Belgrad.  Heart

  

     


Smá kveðja.

Jæja mín kæru ég er á lífi og skemmti mér vel. Búið að vera mikið að gera og fara,´tið munuð fá ferðasogu þegar ég kem heim, ég er með nýja tolfu og hef ekki lært almennilega á hana ennþá en það kemur allt saman.

Sit hér á góðu hóteli í Belgrad búin að heimsækja 7 lönd og fara gegnum a.m.k. þrjú önnur. Ætla að gera tilraun með að senda nokkrar myndir og sjá hvernig það gengur.

strasburg09 015  

Hér er Þýskaland.

strasburg09 028

Týpisk þýsk bygging og öll þorp byggð við ár.

strasburg09 058 

Þessi er tekinn út um glugga á rútu á ferð um Ungverjaland.

strasburg09 070

Við skruppum líka til Salzburg Frá Þýskalandi en meira um þetta allt síðar.

strasburg09 075

Sennilega Alpafjöllin tekinn æi Austurríki.

strasburg09 106

Sólarupprás í Serbíu.

strasburg09 122

Landamærastöðin milli Serbíu og Ungverjalands.

strasburg09 141

Hálf illa farin sum hús hér. En uppbygging á fullu.

strasburg09 173

Stoppinn á leiðinni.

strasburg09 188

Dóná.

strasburg09 199

Belgrad.

Tallinogfer'6.juli 420

Dans Í Tallinn heilmikið meira um Tallinn síðar.

Tallinogfer'6.juli 460

Konsert í Tallinn

Tyskaland2009 132

Kveðja frá okkur hér.  Ég hef upplifað svo margt skemmtilegt sem ég ætla að segja ykkur frá þegar ég kem heim. Kann svo illa á þessa skessu.  En ég hef skrifað ferðalagið niður til  að leyfa ykkur að njóta þess með mér.  Núna er ég að fara að skoða Beograd ´´i a.m.k. 35 gráðu hita. En hér er margt fróðlegt að sjá.  Kveðja frá Serbíu og flakkaranum.  


Kvedja fra Eistlandi.

Er buin ad taka fullt af myndum og sja margt skemmtilegt.  Lifi eins og blom i eggi, og erum borin a hondum.  Forum a rosaflotta strond i fyrradag og ut i eyju i gaer.  Hiiumaa tar hittum vid eista sem byr mestan hluta arsins vid Myvatn.  En tid faid ferdasoguna seinna med myndum.  Vildi bara senda ykkur kvedju.  Heart

« Fyrri síða

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júlí 2009
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband