9.6.2011 | 21:43
Stubbar út um allt.
Elskulegu Ísfirðingar, sérstaklega þið sem reykið og sérstaklega þið sem reykið og vinnið í stjórnsýsluhúsinu, ykkur finnst eflaust ekkert tiltökumál að fara út að reykja, og sennilega hugsið þið með ykkur að einn sigarettustubbur skipti ekki svo miklu máli að læða í blómakerin fyrir utan húsið. Málið er elskurnar að þessi eina sigaretta er ekki bara ein, heldur kemur sú næsta og næsta og svo framvegis. Og auðvitað haldið þið að þetta skipti ekki nokkru máli. Það er nefnilega þess vegna sem ég set þetta á blað. Í morgun þegar ég bað húsvörðin að setja út kerin svo ég gæti plantað í þau blómum fyrir hvítasunnuna, tjáði hann mér að hann ætlaði ekki að setja kerin út í sumar, ég hváði við. Hann sagði, þessi ker eru bara notuð öskubakkar. 'Eg sagði hva!! það getur nú ekki verið svo slæmt..........
Þangað til ég fór að hreinsa beðið fyrir utan Vís, sem hafði verið sett út, þetta er úr einu keri sem er ekki mjög stórt. Og ég get sagt ykkur að þetta er svo sannarlega ógeðfelt. Stubbar eyðast nefnilega ekki, og syndirnar koma svo í ljós á vorin þegar farið verður í að hreinsa og laga kerin fyrir sumarið til að setja niður sumarblómm, ÞIÐ VITÐ ÞESSI SEM EIGA AÐ GLEÐJA AUGU OKKAR YFIR SUMARIÐ.
Húsvörðurinn ákvað samt að setja kerin út, og nú vil ég biðja ykkur einlæglega að setja ekki stubbana í blómakerin, þau eru nefnilega fyrir blómin. Meira að segja eru svona stubbahylki beggja vegna við inngang stjórnsýsluhússins.
Versta kerið er samt þetta fyrir utan hamraborg. Þar virðast menn bara nota þetta ker sem á að vera til prýði til þess að drepa í.....
Það verður sennilega fært annað ef þessu linnir ekki.
En eigum við nú ekki heldur að reyna að halda þessum stubbum þar sem þeir eiga heima í stubbahólkunum, eða bara í ruslinu en ekki í blómakerjum bæjarins.
Með bestu kveðjum og ósk um gleðilegt sumar.
Ásthildur Cesil.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
7.6.2011 | 00:23
Sjálfstæði þjóðar.... hvernig virkjum við almenning?
Það er verið að fjalla um fiskveiðistjórnunarkerfið og tillögur Jóns Bjarnasonar. Það eru heitar umræður og ekki bara það heldur eru stórútgerðarmenn með ofsafengnar auglýsingar um hvað allt fari til fjandans ef við höldum okkur ekki við sama kerfi og nú er. Minnir mig reyndar rosalega mikið á Icesave og Kúpu norðursins og hve allt myndi fara til fjandans ef við samþykktum ekki Icesave eitt tvo og þrjú. Við vitum öll hverju sá hræðsluáróður skilaði.
Ég vil ráðleggja L.Í.Ú. að spara peningana sína og hætta þessum hræðsluauglýsingum, þær falla algjörlega um sjálfar sig í hinum dreyfðu byggðum landsin, þó ef til vill einhver 101 íslendingur sem hefur ekki komið nærri sjó en að fara niður á Reykjavíkurhöfn á sjómannadag eða jafnvel fara á lúxustónleika í Hörpunni kunni að trúa þeim.
Elskurnar haldið virkilega að við úti á landi sem erum komin yfir fimmtugt séum búin að gleyma því sem gerðist þegar frjálsa framsalið var leyft? Haldið virkilega að við séum búin að gleyma því að það hrundi samfélagið í flestum sjávarbyggðum, og margir misstu vinnuna húsin urðu verðlaus og margir hrökkluðust burt, þeir sem komust hjá því að fara máttu una því að helfrost varð á verði íbúða, þjónustuaðilar voru farnir Og alt í kalda koli. Og haldiði að við höfum ekki haldið þessu á lofti við niðja okkar?
Það er því hlægilegt í því ljósi að þið reynið að telja okkur trú um að ef þið fáið ekki að blóðmjólka þjóðina áfram með gjafakvóta sem ykkur var færður fari allt til helvítis og jafnvel lengra. Eins og sjósókn leggist af ef þið fáið ekki vilja ykkar framgegnt. Hlægilegt.
Þið hafið gegnum allan þennan tíma nú um 30 ár haft sem gefins þjóðareign og notað hana sem ykkar eigin. Blóðmólkað smáútgerðina og drepið niður fjöldan allan af smábátaútgerðarmönnum, haldið kvótaverði í háum hæðum, og sumir ykkar aldrei migið í saltan sjó, en eigið kvóta til að LEIGJA þeim sem virkilega vilja gera út og hafa sitt lifibrauð af sjómennsku. Þið hafið meira að segja selt hvorum öðrum til að halda kvótaverðinu uppi, þetta minnir á þrælahald og leigubændur í den, nema að allt þetta er í skjóli stjórnvalda sem þykjast ekki geta snúið þessu við.
Ykkur væri nær að spara þessar ömurlegu auglýsingar ykkar og reyna að snúa niður yfir 500 milljarða skuld sem þið eigið því fé hefur endalaust verið tekið frá útgerðinni og sett í eitthvað allt annað, mér kemur í hug stórhýsi í Reykjavík klætt með dökku gleri, glæsihöll bogabyggð sem stendur sem vitnisburður um bruðl útgerðar norðan heiða. Hefði nú ekki verið nær að byggja nýrri skip eða reyna að nota peninginn í að endurnýja græjur og útbúnað skipa en að byggja hallir?
Þið eruð það sem kallast aumkunarverðir í tilraunum ykkar til að hræða almenning til að snúa sér að því að hjálpa ykkur að viðhalda þessu kerfi sem eftir því sem ég kemst næst er um 80% þjóðarinnar mótfallinn.
Þó svo að sjálfstæðismönnum og framsóknarmönnum takist að drekkja þessu frumvarpi Jóns Bjarnasonar bæði því stóra og smáa, þá hafa þeir núna grímulaust sýnt þjóðinni hvaða hagsmuna þeir hafa að gæta. Og sem betur fer vona ég að fljótlega þegar þessi ríkisstjórn hrökklast frá, þá hafi menn þá visku til að bera að gefa L.Í.Ú Framsókn og Sjálfstæðisflokknum frí. Það er nefnilega komin tími til að gefa þessum ömurlega fjórflokki frí. Og virkilega fara að huga að öðrum stjórnmálaöflum, sem koma til með að bjóða fram í næstu kosningum. Brjóta upp klíkuskapinn og virkilega gefa öðrum tækifæri. Það er alveg komin tími á það.
'Eg og miklu fleiri erum orðin hundþreytt á svikum, lygum, samhyggð fjórflokksins, og hvernig þeir reyna að setja saman leikfléttur til að smala sínum köttum eins og vinkona forsætisráðherrans sagði einhverntíman í vetur.
En til þess að svo megi verða þurfa þeir sem hugsanlega hafa hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi að styrkja stöðu sína með því að standa saman og berjast fyrir þjóðina. Hagsmunir hennar liggja ekki í ESB né L.Í.Ú. Þeir liggja hjá þjóðinni sjálfri og dugnaði hennar og þrautseigju við að takast á við þá erfiðleika sem við okkur blasa. Það er bara komið að því að við getum ekki lengur kastað atkvæði okkar á glæ með að kjósa þenna gjörspillta fjórflokk.
Á 200 ára afmæli frelsishetjunnar frá Hrafnseyri skulum við almenningur á Íslandi vera menn til að snúa þessu við og segja eins og hann forðum; VÉR MÓTMÆLUM ALLIR.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
5.6.2011 | 14:49
Til hamingju með daginn sjómenn.
Sjómannadagurinn er sérstakur dagur til heiðurs sjómönnum. Þeir eru hetjur hafsins og hafa fært okkur landkröbbum lífsgæði og björg í bú gegnum árin. Sem betur fer er aðbúnaður þeirra betri í dag en hann var hér á árum áður, og margur sjómaðurinn hefur ekki komið aftur heim úr róðri. Það hefur verið söknuður tregi og tár á mörgum heimilum gegnum tíðina. Sem betur fer gerist það æ sjaldnar með betur útbúnum og stærri bátum.
Samt er það svo að þeir hafa verið sviptir frumrétti sínum til að draga fisk úr sjó, þar sem óprúttnir kvótagreifar hafa hrifsað til sín auðlindina með undirferli og með því að kaupa sér alþingismenn til að greiða fyrir því að þeir njóti arðsins sem þjóðin á öll. Hendur margra sjómanna hafa verið bundnar á bak aftur og þeim bannað að veiða fiskinn í sjónum. Óréttlætið er himinhrópandi og ótrúleglur seinagangur og úrtölur við að laga þessi sjálfsögðu mannréttindi. Sem er meira að segja í fyrsta kafla stjórnarskrárinnar að ekki megi skerða.
Við erum sennilega öll samsek með því að verðlauna þessa spillingargemsa á alþingi og gefa þeim endalaust færi á að hygla þeim sem gefa þeim fúlgur í vasa.
En ég ætla svona í tilefni af þessum sjómannadegi að segja litla sögu sem Eiríkur Finnur Greipsson sagði í afmælinu hennar systur minnar. Hann sagði hana svo skemmtilega að salurinn lá hreinlega í hlátri. Ekki ætla ég mér að gera það, en ætla að tipla á því sem hún fjallaði um.
Hér er Eiríkur að segja söguna með aðstoð Magga Helga sem var með í ævintýrinu.
en það var svoleiðis að þeir ákváðu að útbúa sér bát sem færi hratt, svo þeir kæmust fljótt til Fljótavíkur, þaðan sem þeir eru báðir ættaðir. Til liðs við sig fengu þeir bróður Sævars sem er Kjarnorkueðlisfræðingur, og hannaði hann tryllitækið.
Þetta sýnist frekar vera eldflaug en bátur, enda kjarnorkueðlisfræðingur sem hannar.
Svona lítur þetta út, þeir prófuðu það víst fyrst inn í bílskúr, þar sem þeir sprengdu hljóðmúrinn og fyrirbærið skaust út með tilheyrandi hávaða og allar rúður í 100 m. fjarlægð hristust svo fólk hélt að það væri komin jarðskjálfti eða eitthvað álíka.
Lagt af stað í prufutúr.
Svo var gefið í....
OG sett á fullt, þar með sprengdu þeir líka hraðamúrinn og hljóðmúrinn, svo fólk vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið. En þeir eru sem betur fer lifandi ennþá þessir prakkarar, og meira að segja er báturinn ennþá til. En eitthvað hefur kjarnorkueðlisfræðingurinn misreiknað kraftinn.
Þetta er næsti bær við, einn frændinn hann er flugmaður, og hefur smíðað svoleiðis tryllitæki sjálfur.
Gaman er á góðri stund gleði lífs að njóta.
Hér er hann svo kjarneðlisfræðingurinn Björgvin og Elli Skafta í góðum fíling.
Hrikalega montin amma
Tvær sætar og fyrrverandi nágrannar Lóa og Munda.
Vá hér er sannarlega sungið af tilfinningu
Þessi litli ófleygi þrastarungi hefur dottið úr hreiðrinu og kom sér í skjól í kúlunni auðvitað. Við settum hann fyrst í kassa, en svo ákváðum við að leyfa honum bara að leika sér í garðskálanum, og strax var komin þrastarmamma til að mata hann. Þetta er svo sem ekki í fyrsta skipti, ég fann einu sinni ófleygan unga í einum skrúðgarðinum, og tók hann heim fann yfirgefið hreiður og setti hann upp í eitt tréð í garðskálanum, um leið voru komin þrastarhjón sem fæddu hann þar til hann koms sjálfur á strik. Eftir það í mörg ár komu þau af og til inn um bréfalúguna til að ná sér í hitt og þessa, ber og slíkt þau voru aufúsugestir hjá mér.
Þessi mynd var tekin nú rétt áðan.
Svo og þessi.
En innilega til hamingju með daginn sjómenn og fjölskyldur
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
3.6.2011 | 12:01
Margur verður að aurum api.

![]() |
Glæpaapar handsamaðir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2.6.2011 | 17:18
Fimmtugsafmæli og brúðkaupsafmæli.
Þið haldið ef til vill mínir ágætu vinir að ég sé farin til Langbortistan, flúin og farin. En svo er ekki, ég einfaldlega er að drukkna í vinnu við að koma Garðplöntustöðinni minni í gang, ætla að opna á morgun kl. 13.00 kl. eitt. Það er margt sem þarf að gera og skipuleggja, áður en komist er í gang. Fólk er orðið dálítið óþolinmótt og vill fara að kaupa plönturnar sínar, sérstaklega nú þegar sjómannadagurinn er á næstu grösum.
En þetta er allt að koma, Alejandra mín hefur verið afar dugleg að hjálpa mér, en ég ætla að hafa hana í vinnu, þangað til hún kemst í vinnuskólann. Hún er bæði rosalega dugleg og samviskusöm, hefur hlotið fyrirmyndar uppeldi.
En ég fór í rosalega skemmtilegt afmæli síðasta laugardag, mágur minn Sævar varð fimmtugur og svo áttu þau systir mín brúðkaupsafmæli. ( okkur var tjáð af veislustjóra að hann hefði verið svo framsýnn að halda giftinguna á afmælisdaginn sinn, svo hann myndi ekki gleyma honum Þetta var veisla aldarinnar fyrir mér, ég skemmti mér konunglega, og mér skilst á fólki sem ég hef rætt við að allir séu sama sinnis.
Því miður gleymdi ég myndavélinni er stalst í myndavél sessunautar míns hennar Jónu, og svo ætlaði Lóa Kristjáns að senda mér myndir, ég set þær hér inn þegar þær berast. Og Davíð minn sendu mér svo myndirnar af tryllitækinu, ég ætla að slíta söguna út úr Eiríki Finni svo fleiri megi njóta en gestir afmælisins. Óborganleg saga.
Dóra systir mín með æskuvinkonu sinni henni Mundu, þær tvær eru jafnvel tengdari en systur.
Það var farið í spurningaleik þar sem svara þurfti nokkrum spurningum um þau hjónin, ég var fyrir öðru liðinu á móti kjarnorkueðlisfræðingnum Björgvini Hjörvarssyni frænda mínum
Eiríkur Finnur er einn sá mesti brandarakarl sem ég hef heyrt í. Og hann segir sögurnar svo að maður kafnar úr hlátri, hér er hann með dómarana í spurningaleiknum þau Sævar og Dóru sem áttu auðvitað að vita öll svörin, þar sem spurningarnar voru einmitt um þau tvö.
Og ég get sagt ykkur svona í trúnaði að það voru ekki þessi frábæru hjón ein sem tóku bakföll af hlátri, því salurinn lá bókstaflega.
Við Björgvin máttum velja með okkur fjórar manneskjur og hér eru liðinn í startholunum að hringja bjöllu, sá sem tapaði átti að drekka einn bjór.
Það var fullsetinn bekkurinn og allir skemmtu sér hið besta.
Og hér færa frændur Sævars honum smíðagræjur, hann er nefnilega smíðameistari og ætlar að byggja sér sumarhús í Fljótavík, svo honum veitir ekki af réttu græjunum.
Full klæddur og Vernharð frændi hans les honum pistilinn.
Flott systkin, Sævar og Selma.
Hér eru þau Sævar og Dóra, ásamt bestu vinkonum Dóru, Jónu og Mundu.
Veislan fór fram í Arndardal þar sem Úlfur Ágústsson og konan hans hafa komið sér upp þessum frábæra veitinga og skemmtistað í gömlum fjárhúsum og hlöðu, afskaplega vinsæll staður, þar hafa líka verið leiksýningar á vegum L.L. og Elvars Loga, og allskonar uppákomur, afmæli og skemmtanir.
Og ræður voru haldnar, hér er frænka okkar Thelma Elísabet að heiðra Dóru frænku sína, og gerði það afar skemmtilega.
Og hér er svo dóttir Dóru Sunneva allt múligmanneskja, sem hélt þrumandi bráðskemmtilega ræðu.
Það voru auðvitað fullt af karlmönnum sem héldu ræður, en það var tekið á myndavél Lóu, sem ég vonast til að sendi mér sínar myndir..... Elsku Lóa mín.
Stubbaknús í fjölskyldunni
Sunneva Dóru dóttir, Sævar, Dóra og Davíð sonur Sævars.
Frænkur og vinir sem gott er að eiga að.
Vinkonurnar þrjár, de tre musketera, prakkarar af Guðs náð allar.
Maturinn var æðislegur, svínastein svo lungamjúk að hún bráðnaði upp í manni, maturinn var frá Vesturslóð, og eiga þau þakkir skilið fyrir æðislega góðan mat. En seinna voru bornar fram hnallþórur Dóru, systir mín er orðin fræg fyrir sínar frábærlega góðu brauðtertur sem gerð voru góð skil, því nóg var að drekka eins og hver vildi, og þá er gott að borða eitthvað saðsamt og gott þegar á líður.
Skemmtilegt hljóðfærasafn er þarna hjá þeim Siggu og Úlfi. Og umhverfið notalegt.
Svo var þessi frábæra hljómsveit, þeir komu saman fyrir þetta afmæli og gigguðu, og það var algjört dúndur.
Flottir og kunnu svo sannarlega að gigga.
Gestrirnir skemmtu sér hið besta.
Og að lokum dönsuðu gestgjafarnir þessar elskur.
Sjáið bara hvað þau eru innilega ástfangin. Elsku Dóra og Sævar innilega takk fyrir mig. Ég ætla líka að biðja Lóu að senda mér sínar myndir, og Davíð myndirnar af "apparatinu" og Eirík Finn að reyna að festa á blað söguna sem hann sagði um það allt, þegar veislugestir næstum dóu úr hlátri, mig langar að endursegja hana hér. Annars takk öll fyrir frábært kvöld. Það sló svo sannarlega í gegn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 3
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 2023337
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar