Dans Ófelíu, sjómennska og daglegt veður.

Dagarnir æða áfram bókstaflega.

IMG_9118

Veðrið er ágætt, en mætti vera hlýrra.

IMG_9117

Það er sama dagskipunin hér á bænum, vakna borða fara í skólann vinna og koma heim fá sér í gogginn, svo í sturtu og lesa og syngja smá og svo sofa aftur. LoL

IMG_9119

Það þarf stundum að flýta sér smá á morgnana, en það er allt í lagi, eins og Hanna Sól myndi segja.

IMG_9321

Og Hanna Sól hefur eignast alvöru vinkonu sem býr í næst næsta húsi.  Þær eru glaðar saman og heimsækja hvor aðra.  Hanna Sól getur meira að segja farið alveg sjálf og bankað upp á hjá henni Snæfríði vinkonu sinni. En hér er verið að horfa á barnaefnið í sjónvarpinu.

IMG_9322

Og það er komið kvöld.  Sólin rétt nær að senda sína síðustu geisla inn á flugvöll áður en hún fer að sofa.

 

Hér kemur dans Ófelíu.

IMG_9324

Hanna Sól í aðalhlutverkinu.

IMG_9325

Ég held að hún verði góður dansari þessi stúlka.

IMG_9326

Ófelía hvílir sig undir átökin framundan.

IMG_9327

Og svo listrænt Adjö! Heart

 

Á sjó.

IMG_9328

En Hafskip siglir um höfin blá fullhlaðið gámum.

IMG_9330

Og svei mér þá ef það er ekki nýtt þorskastríð í uppsiglingu.

IMG_9331

Bátarnir eru allavega að fiska vel.

IMG_9336

Og sjómenn fagna.

IMG_9337

Þeirra er framtíðin í hinu Nýja Íslandi frelsisins.

IMG_9338

enda vinna menn hörðum höndum við að koma silfri hafsins í land og til vinnslu til að kaupa gjaldeyririnn sem við þörfnumst svo mjög.  Þannig og eingöngu þannig snýst gæfan okkur í hag, að nýta það sem við höfum, en ekki hlaupa eins og hérar undir pilsfald Evrópudrottingarfólkins og drottnaranna.

Íslands stolta þjóð á betra skilið. 

IMG_9334

Reyndar eru þessar myndir teknar við pollinn á Flateyri, við Einars bryggju, sem væntanlega heitir eftir kempunni góðu Einari Oddi.  En þessi skemmtilegu skip eru smíðuð af ýmsum aðiljum hér fyrir vestan, og eru allt listasmíð.  Og ég verð að segja algjörlega frábær hugmynd, við erum nefnilega svo frjó í hugsun og sjálfbjarga, búandi hér á orkusvæðinu Vestfjörðum. 

Það breytir þó ekki því sem ég sagði áðan um dugnað sjómannanna okkar og björgina sem þeir munu veita okkur. 

Eigið góðan dag elskurnar.


Daglegt kúlulíf.

Lífið gengur sinn vanagang hér í kúlunni. 

IMG_9069

Sumir eru að verða sjálfstæðari, ég gedidda sjál.  Ekki hjápa mé.

IMG_9073

Og svo er puðast við, þangað til þetta er komið.  Gedidda.

IMG_9070

Ekki hjápa.

IMG_9071

Afi hjápa mé.

IMG_9076

Svo gerum við sona og sona....... Heart

IMG_9077

Sú stóra fór í ballett kjól í gærmorgun.

IMG_9081

Þetta er örugglega lítill búálfur LoL

IMG_9083

Krían í varpi á Suðureyri. 

IMG_9087

Veðrið á sjómannadaginn.

IMG_9092

Afi matar ungana LoL

IMG_9094

Svo notar maður bara það sem hendi er næst sem leikföng.

IMG_9098

Svo hjálpar maður ömmu að vökva.

IMG_9099

Það er ábyrgðarmikið starf eins og sést á ákveðninni í svipnum.

IMG_9103

Stóra systir fékk líka að prófa aðeins.... en bara aðeins.

IMG_9105

Úbbs hehehe smá hryllingsmynd.  En ekkert plat samt.

IMG_9102

veðrið í gær var líka ágætt.

IMG_9106

ár og dagur síðan það hafa verið svona margir togarar í höfninni í einu.

IMG_9107

ég fékk fjórðubekkinga í Grunnskólanum í heimsókn um daginn.  Eitt barnabarnið er þar í bekknum og þau hafa verið að lesa söguna sem ég samdi fyrir krakkana mína í bekknum þeirra í vetur Ævintýrið um Loðfílana.  Einn kennarinn spurði þau hvort þau vissu úr hvaða dýri þetta bein væri.  Það stóð ekki á svarinu.  Þetta er loðfíll  LoL Og það er nokkuð öruggt ekki satt?

IMG_9108

svona var veðrið fyrst í morgun, en nú hefur létt til.  Þó er ekkert sérlega hlýtt.

IMG_9113

Tilbúnar í leikskólann í morgun.  Aðlögunin búin og hún voða dugleg á Sólborg.

IMG_9114

Og minn á námskeiði í sumarháskóla unga fólksins.  Var að læra creative writing í gær og myndmennt í dag.  Þetta er spennandi og skemmtilegt fyrir krakka.  Þau eru allavega ánægð Sóley Ebba og Úlfur.

En þetta er skammturinn í dag af myndum.  Eigið góðan dag Heart


Hugsað upphátt.

Sökum þess hve mikið er að gera hjá mér þessa dagana hlusta ég lítið á fréttir, kastljós eða aðra fréttatengda þætti.  Ef til vill sem betur fer.  En það er líka til þess að ég er orðin alveg rugluð í ríminu.  Það bylja á okkur skrifin og hasarinn um Icesave og ESB.  Þetta virðist samtengt og ekki hægt að skilja hvað frá öðru.  Mönnum er heitt í hamsi og margir ofsareiðir.

Ég hef ekki vit á Icesave, hvort skynsamlegra sé að ganga að þessum nauðasamningum, eða reyna að klóra sig á annan hátt út úr vandanum.  Held helst að Guðjón Arnar og Frjálslyndi flokkurinn hafi verið með réttu lausnirnar strax í upphafi, að bjóða bretum að fyrst þeir settu á okkur hryðjuverkalög og settu okkur í þær að stæður að frysta allar eignir bankanna úti, þá áttu þeir þann eina kost að taka á sig eignirnar, og þurfa sjálfir að koma þeim í verð, en við værum frjáls af þessum nauðaböndum.

Ég get ekki séð að ég og fólk í minni aðstöðu sem hvergi kom nálægt þessu sukki, skulum bundinn á skuldaklafann, en útrásarliðið ennþá að skemmta sér með fræga fólkinu í útlöndum á sínum skemmtibátum, penthouseíbúðum á bestu stöðum í London og New York, meðan meðaljónin er borinn út úr sínu húsi. 

Ég bara skil ekki þessa linkind í stjórnvöldum, og hvað varð eiginlega um; allt upp á borðið?  Og hvar er Jóhanna.  Er álagið orðið of mikið fyrir hana.  Eða er hún sár yfir að vera ekki lengur vinsælasti stjórnmálamaðurinn á Íslandi?

Ég verð að viðurkenna að ég hef misst allt álit á konunni.  Hélt að þar færi heiðarleg kona sem stæði undir því að vera kvenhetja.  En snerist hugur þegar hún fór að endurtaka sig í sífellu um að eina leiðin væri að fara í ESB.  Mér fannst hún hreinlega vera umskiptingur.  En svo bregðast krosstré sem önnur, og þetta krosstré hefur ekki bara brugðist, heldur kvarnast í smá agnir.  Samfylkingin var aldrei trúverðug meðan Ingibjörg var þar við völdin, maður sá það svona smátt og smátt, loftbóla sem ekki er treystandi því miður, því þar innanborðs er margt gott og gegnheilt fólk með hugsjónir.  En þau mega vita að þær hugsjónir eru fótum troðnar af stjórnvöldum sem virðast eingöngu hugsa um eigið skinn og upphefð. 

Ég var svo að vona að Vinstri grænir myndu standa í lappirnar, en er að sjá betur og betur að þar á bæ er alveg sami tvískinnungurinn og í Samfylkingunni.  Þeir ætla að springa á öllu sem þeir voru búnir að segja fyrir kosningar.  Þeir eru allt í einu farnir að tala tungum tveim og draga í land með andstöðu sína við Evrópusambandið og Icesavereikningana.  Eitthvað hlýtur að hanga þar á spýtunni. 

Þó ég sé algjörlega úti á túni með Icesavedæmið, þá er það alveg hreinar línur að ég lít á umsókn að Evrópusambandinu og daður við það apparat nánast sem landráð.  Ég er alfarið á móti því að fara þar inn.  Og mér sýnist allt benda til þess að það eigi að plata okkur þar inn af stjórnvöldum, hvort sem við viljum eða ekki.  Allt tal um að það sé ekki vitað hvaða díl við fáum er einfaldlega ekki rétt, það hefur marg oft komið fram bæði frá háttsettum mönnum innan ESB og íslenskum sérfræðingum og norskum að það er ekkert um það að ræða að fá neinar undanþágur, nema tímabundnar. 

Og nú hefur verið breytt um kúrs, nú er ekki lengur talað um að láta reyna á undanþágur í sjávarútvegi, nú er sagt að sjávarútvegurinn sé hvort sem er takmörkuð auðlind, sem endist hvort sem er ekki lengi, og við verðum að fara inn í Evrópusambandið til að lifa það af.

Þið sem endilega viljið gefa allt til að vera í ESB, af hverju flytjið þið ekki bara héðan og setjist í sæluna sem ríkir auðvitað allstaðar í ESBlöndunum, þar sem drýpur smjör af hverju strái.  Eða er það ekki þannig?   Er sama vandamál í flestum þeim löndum sem þar eru innanborðs?  Hvað er aftur atvinnuleysið á Spáni mörg prósent? Eða vandræðin á Írlandi, mér hefur skilist að finnskir bændur séu ekkert allof hressir, og því sem þeim var lofað ekki efnt.  Heyrst hefur að æ fleiri bretar vilji út úr sambandinu, en það er ekki hægt að ganga þaðan út, sé maður á annað borð kominn inn. 

Andstaðan við sambandið eykst sífellt, enda kemur æ meira í ljós að það eru maðkar í mysu.  Ákvarðanir teknar af fáum, og oft fólki sem hefur enga yfirsýn á þarfir aðildarríkjanna.  Græðgin verður sífellt meiri í auðlindir þjóðanna og yfirráð yfir þeim. 

Ég vil ekki þurfa að vera með áhyggjur af þessu, ofan á áhyggjur af ástandinu hér á landi.  Ég vil fá frið frá ESBóðum stjórnendum til að byggja mig upp og takast á við kreppuna.   Vinsamlegast setjið þetta ESB mál ofan í glatkistu og læsið það þar, þangað til við höfum unnið okkur út úr kreppunni.  En látið okkur ekki hafa það á tilfinningunni að þið séuð að plotta með ástandið til þess að þrýsta okkur nauðugum inn í aðstæður sem við viljum ekki, og getum síðan ekki komist út úr. 

Já ég er orðin reið við þessa ríkisstjórn, sem er ekkert opnari en sú fyrri, eða sú þar áður.  Ekkert nema leyndarmál og pukur bak við tjöldin.  Við eigum þetta ekki skilið.  Ég er líka dauðpirruð út í sjálfstæðismenn sem hamast og láta eins og tapsárir krakkar í sandkassa.  Vildi að þeir hreinlega gæfu okkur smáfrí frá þrasinu í þeim og ólundinni.  

Ég er að vona að fólkið rísi upp aftur og fylki sér út á götur og torg og segi hingað og ekki lengra.  Nú viljum við fá þjóðstjórn og við viljum fá að ráða hverir sitja í henni, og það verða ekki pólitíkusar heldur fagfólk sem kann, þekkir og veit.  Og þarf ekki að hugsa fyrst og fremst um sjálfa sig og sína aðstöðu og hvernig á að fela sem mest til að geta fengið kosningu aftur.  Því það er fyrst og fremst hugsunin virðist vera.  Tapa ekki andlitinu og fá ekki atkvæði. 

Það er komið nóg.  Og við almenningur í landinu verðum að taka af skarið og hreinlega segja yfirmönnunum upp.  Fá nýtt fólk sem ræður betur við ástandið, og EINBEITIR SÉR AÐ ÁSTANDINU Í LANDINU, FÓLKINU OG HEIMILUNUM, en ekki einhverju fólki í útlöndum fyrst og fremst.  Stjórn sem ER EKKI HRÆDD VIÐ ÚTRÁSARVÍKINGANA OG "EIGNIRNAR" SEM ÞEIR HAFA KOMIÐ UNDAN. 

 

Sem betur fer höfum við raddir fólksins inn á þingi, fólk sem segir okkur skilmerkilega frá því fánýti og innihaldslausu umræðum sem tíðkast þarna inni í leikhúsinu við Austurvöll.  Fólk sem er ennþá óspillt af þeim farsa og trúðsleik sem virðist tíðkast og menn geta hreinlega ekki látið af.  Ekki einu sinni í verstu nauðungartímum sem við höfum upplifað síðan móðurharðindinn.  Og það er meira að segja ennþá verið að fela ástandið.  Eða eins og Guðjón Arnar sagði við mig " ætliði að segja mér að fólkið sem er með mesta þingreynslu hér á landi hafi ekki gert sér grein fyrir ástandinu fyrir löngu? Að þau geti nú komið af fjöllum og haldið því fram að þau hafi ekki vitað hve alvarlegt ástandið var?  Þau vildu ekki hlusta á það í kosningabaráttunni þegar ég sagði að það yrði aldrei stoppað í fjárlagagatið með skattahækkunum og niðurskurði". 

 

 


Til hamingju með daginn sjómenn og fjölskyldur!

Já til hamingju með þennan dag sem er tileinkaður ykkur hetjum hafsins sem sækja björg í bú.  Þó lífið sé orðið bærilegra um borð í dag en það var fyrir nokkrum árum, þá eru ennþá nokkrar kempur sem ennþá eru á sjó og muna vel þá tíð. 

En í gær var farið í siglingu hér á Ísafirði eins og svo mörgum öðrum stöðum.

IMG_8991

Og bæjarbúar þyrpast niður á höfn til að fá að fara með.

IMG_8992

Kunnugleg andlit úr kúlunni líka.  Og auðvitað fóru afi og krakkarnir héðan líka.

IMG_8993

Og það var haldið um borð í Júlíus Geirmundsson.

myndirblanda%C3%B0%20010[1]

Vinkona mín Þórunn Matthíasdóttir tók myndirnar um borð, hún fór nefnilega með í siglingu.

myndirblanda%C3%B0%20015[1]

Þarna var margt að skoða, furðufiskar sem þau hafa aldrei séð.

IMG_8998

Hér er svo siglt út fjörðinn með fjölda af bæði ungum og eldri bæjarbúum.

IMG_8999

En meðan á siglingunni stóð dansaði Evíta Cesil á eldhúsgólfinu heima hjá sér.  Ég fór nefnilega til að hitta skírnarbarnið, en hann var þá sofandi. En pabbi hans ætlar að senda mér myndir af athöfninni.

IMG_9000

Hér er svo Rauðhetta litla.

En dagurinn var líka notalegur í kúlunni.

IMG_8981

Púslað og dundað.

IMG_8983

Mátaðir skór og sona LoL

IMG_8984

Allir að dunda eitthvað og gera saman.

IMG_8985

Give me five!

IMG_8986

Flott.

IMG_8989

Þegar vinir koma í heimsókn, þá fara þeir bara í sama farveginn og heimilisfólkiðLoL

IMG_8990

Brandur er ekki í vandræðum með að fá sér að drekka.

 

En svo var gróðursetningartíminn.

IMG_9002

Hér er lagt af stað upp á lóð að segja niður kartöflur og grænmeti.

IMG_9003

Öll fjölskyldan er með.

IMG_9004

Og þröstur þrastar fylgist vel með.

IMG_9005

Hér er Hanna Sól búin að velja sér jarðaberjaplöntu en hún elskar jarðaber.

IMG_9009

Hér eru settar niður kartöflur. Allir hjálpast að.

IMG_9011

Svo er að velja grænmetið.  Úlfur er þar aðalmaðurinn, því hann kann þetta allt.

IMG_9014

Ásthildur er aftur á móti meira fyrir blómin.

IMG_9015

Svo er að gróðursetja grænmetið.

IMG_9018

Rabbabarinn er auðvitað orðin stór og fínn.

IMG_9024

Júlli minn tók þessa mynd af krökkunum.

IMG_9032

Þessa tók afi.

IMG_9037

Og þessa.  Dansandi krakkar bera við himin.

IMG_9031

En Ásthildur gerir allt vel sem hún gerir, og gerir það af ástríðu.

IMG_9043

Í góðra vina hópi. Guðjón Arnar og Þórunn hafa verið að fara um Vestfirði og vesturland með Gullkistuna blaðið okkar og heimsækja okkar fólk um landið.  Það var virkilega vel heppnuð ferð og þau voru ánægð.  Addi lítur líka vel út hvíldur og afslappaður.

IMG_9047

Svo eldaði Úlfur þessa líka fínu mexócósku súpu, sem allir átu með bestu lyst.

IMG_9054

Ekki var síðra að einmitt þegar við lukum við að borða, klíngdi í ísbílnum, og það var hægt að splæsa á sig ís.

myndirblanda%C3%B0%20001[1]

Þórunn tók svo þessa mynd af okkur Hönnu Sól.  Takk fyrir komuna Þórunn mín, það var virkilega gaman að hafa þig hér hjá okkur þó stoppið væri stutt.

IMG_9068

Þessi hefði auðvitað átt að koma fyrst, því er er búin að hitta svo marga sem segja mér að þeir kíki hér við til að sjá veðrið og fjöllinn.  Auðvitað eru hér brottfluttir ísfirðingar, þeir fá allir mínar bestu kveðjur og svo þið öll mín elskuleg sem komið hér reglulega og dveljið smátíma. Knús á ykkur öll og eigið góðan sjómannadag.  Heart

 


Nokkrar kúlumyndir.

Samviska mín er sótsvört í dag.  Að vísu afrekaði ég heilmikið vinnulega séð, en á móti missti ég af skírn næst yngsta barnsins míns hans Símons Dags.  Son frumburðar míns.  En ég ætla að fara á morgun og hitta hann og taka myndir jafnvel fá að klæða hann í skírnarfötin og taka myndir.  Það er bara svona, ég er ekki bara að neglekta ykkur mín kæru, heldur líka þá sem mér þykir vænst um, börnin mín og barnabörnin, og þá er spurningin er maður ekki bara að fara að taka hlutina í réttu ljósi. Alla vega er ég ósátt við sjálfa mig að mæta ekki á þeirri stundu, ekki hans vegna, heldur foreldranna, sem að væntu mín við þessa athöfn.  En sem betur fer þá er fjölskyldan mín umburðarlynd í meira lagi.  Og ég er þakkláta fyrir það.  Elsku Matta og Ingi þór innilega til hamingju með skírnina.  Og það munu koma myndir á morgun af litla Símoni Degi, sem ég er þess nokkur megnug, og vonandi tekst mér að fá foreldrana til að klæða hann í skírnarkjólinn, sem ég veit að er rosalega flottur, og fá að taka myndir til að setja hér inn.  Heart Og svo megið þið bara skamma mig af öllum lífs og sálarkröftum, því ég á það skilið.  Það er samt ekki af því að ég elski þetta barn ekki út af lífinu, eða foreldrana. Því það geri ég svo sannarlega.Blush

IMG_8940

Þessi er fyrir fjallafólkið mitt sem kíkir hér við daglega til að skoða fjöllin og veðrið.  Ég er sífellt að hitta fleiri og fleiri sem það gera, og ég er þakklát fyrir að geta gefið ykkur þetta að þið getið séð fjöllin okkar og veðrið, það er það minnsta sem hægt er að gera fyrir brottflutta ísfirðingaHeart 

IMG_8942

Amma Hanna Sól tók afmér.....

IMG_8944

Hvað tók hún af þér?  Orm W00t

IMG_8943

Jamm hér er ormurinn, ég tók bara einn!!!

IMG_8945

Þessi stelpa er bara svo flott, hvernig sem á hana er litið Heart

IMG_8953

Týpisk kúlusamvera um kvöldmatarleytið.

IMG_8956

Og það er púslað.

IMG_8957

Smá blues svona í tilefni kvöldsins.

IMG_8959

Hér er lifra segir Hanna Sól, ókey þið sjáið hana ekki, því hún er samlit Koresíu, en þar lifði hún, þangað til við tókum eftir henni, og Ásthildur Cesil fékk hana frá afa.  En málið er að Ásthildur Cesil, étur flugur og lirfur og önnur slík dýr og segir að þau séu góð.  LoL Litla systir mín Halldóra þegar hún var á aldri við Ásthildi sat í glugganum hjá ömmu og veiddi flugur sér til matar, ég get svarið það hún veiddi stórar maðkaflugur og át með góðri lyst.  Halldóra mín ef þú lest þetta, hehehehhe þá er það bara þannig, þú ert örugglega búin að gleyma þessu, en svona var það bara. LoL 

IMG_8967

Þetta er svona skrípó við vorum svolítið að ærslast.

IMG_8970

Svona smádjók.

IMG_8965

Það er nefnilega gaman að fíflast. LoL

IMG_8973

Eða þannigLoL

IMG_8978

Svo ákváðum við Hanna Sól að setja fléttur í hárið.

IMG_8980

Hún fékk fléttur og ég fékk nudd á bakið, hún er snillingur að nudda bakið á ömmu, og reyndar er Úlfur það líka. 

Og ég segi bara góða nótt og sofið rótt.

 


Áhugaverð tillaga frá Lilju Guðrúnu og pistill Sverris Jakobssonar, skyldulesning okkar sem eigum að bera allann pakkann.

Lilja Guðrún bloggvinkona mín ritar pistil á bloggið sitt og er með áhugaverða hugmynd um að allir þiggi sömu laun meðan við erum að ná okkur út úr kreppunni.  Sjá hér; http://lillagud.blog.is/blog/lillagud/entry/889789/#comment2445340.  Ýmsir hafa talið þetta vera hið mesta feigðarflan að hugsa svona og tala um að það gangi aldrei upp að allir hafi sömu laun. 

Ég er því ósammála.  Ég hef alltaf talið að laun skipti minnstu máli í sambandi við vinnuna.  Það sem skiptir mestu máli að mínu mati er að manni líði vel í vinnunni, og að maður hafi nóg til að lifa sínu lífi og sjá fyrir fjölskyldunni.  Það skiptir líka máli að starfið vekji áhuga manns og það sé gaman að vinna.  Þannig hef ég til dæmis hagað mínu vinnulífi.  Ég er að vinna að uppgræðslu gróðurs, og núna eftir nær 30 ára starf, get ég gengið um og glaðst yfir trjálundum og gróðri hér og þar og  veit að það voru hendurnar mínar sem stungu þessu niður, sumu rótarlausu öðru sem smáplöntum, og líka sumt sem ég fékk íbúana í lið með mér að gróðursetja, eins og limgerðið neðan Sætúns, þar sem við fengum greni úr skóginum og allir íbúarnir lögðust á eitt að koma trjánum niður.  Þetta er orðin hin fínasta hljóðmön fyrir íbúana gegn SKutulsfjarðarbrautinni sem er aðal vegurinn inn í bæinn.

En hvað með það.  Allof margir telja að menn fái besta starfskraftinn með því að borga nógu vel fyrir.  Ég tel og þá reikna ég út frá sjálfri mér og mörgum sem ég hef haft í vinnu, að það sé alls ekki það sem skipti máli, heldur afstaða einstaklingsins til vinnunnar og sjálfs sín.  Þegar þú hefur gaman af vinnunni og líkar vel við atvinnurekandann, ertu miklu tilbúnari að leggja ýmislegt á þig aukalega til að allt gangi upp.  Þá skiptir ekki máli krónufjöldinn í umslaginu.  Þetta þurfa menn að hafa í huga og ryfja upp.  Því það er búið að segja fólk svo oft að góð laun skapi góðan starfskraft.  Að fólk er farið að taka því eins og sjálfsögðum hlut.  Það er hins vegar al rangt, eins og menn geta séð ef þeir skoða útrásarvíkingana og ofurlaunakálfana sem hafa dúkkað upp allstaðar í þjóðfélaginu og eru svo sannarlega ekki verðir launanna.

Þess vegna vil ég líka benda á bloggið hennar Hönnu Láru í dag, þar sem hún birtir grein eftir Sverrir Jakobsson sem heitir Kreppan og endurmat.  Svo sannarlega skulum við líta til baka og skoða málin frá öðru sjónarhorni en við höfum hingað til látið mata okkur á. http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/890365/#comment2445339

fbl 090602 sverrir jakobs endurmat.jpg

Núna er tíminn til að fara til baka til upphafsins, til að gera ekki sömu mistökin aftur.  Og við eigum ekki bara að hlusta á það sem að okkur er rétt. Heldur verðum við að fara að láta í okkur heyra og gera okkar til að breyta því ástandi sem ríkir.  Við almenningur í landinu erum ekki bara þátttakendur í samfélaginu heldur fórnarlömbin sem eiga að axla mestu ábyrgðirnar fyrir því sem við höfum aldrei verið spurð að, né gefið samþykki okkar til. 

Það er komið nóg.  Þeir sem hafa breiðu bökin og mesta peningana eiga að reiða fram sinn hluta, og þar eru bankar og fjármálastofnanir ríkisins og aðrir ekki undanskilinn.  Og hana nú.

Eigið góðan dag.

 

 


Nokkrar myndir.

Ég er bókstaflega á haus þessa dagana.  Get svo svarið það.  En svo hægist um þegar líða tekur á júní.  Núna þarf ég eiginlega að gera allt í einu og vera allstaðar.  En svona er lífið.

Ég er sár vegna Júlla míns, pabbi hans þurfti að fjarlægja hluti sem hann átti upp á lóð, þegar við opnuðum garðplöntustöðina.  Hann fór með þetta niður að Ásel steypustöðinn.  Og þar hafa óprúttnir aðilar eyðilagt og skemmt mikið fyrir honum.  Einnig hafa horfið fiskar frá honum.  Hann er að vonum sár og eyðilagður.  Strákgreyið, sem er að reyna að bjarga sér bæði upp úr fyrra lífi og svo fjárhagslega.

IMG_8881

Hér er eitt blómið hans mölbrotið og búið að rjóða rauðri málningu yfir steinana.

IMG_8883

Hellur sem hann keypti til að smíða plattfiska úr, hér með rauðri málningu og margir brotnir.

IMG_8884

Það hefur þurft virkilega ákveðni til að brjóta sporðinn af þessum fiski.  Hvað gengur fólki til að gera svona lagað?

Hann saknar líka nokkurra stórra fiska, ég á einhversstaðar myndir hef bara ekki tíma til að setja þær inn núna.  Það væri ágætt ef einhver veit hver hefur verið hér að verki, eða jafnvel tekið eitthvað af verkunum hans.

IMG_8879

en að heldur glaðlegi hlutum, hér er enn ein drottningin Koresia heitir hún.  Í dag bjargaði ég líka litlum þrastarunga frá Brandi.  Og lét hann í hendurnar á Hjörvari, dreng sem vinnur hjá mér upp í garðplöntustöð hann tók að sér einn unga um daginn og sá er orðin aldeilis pattaralegur, vona að þessi nái sér, hann var dálítið særður eftir kattarfjandann.

IMG_8886

En hér koma ferðalangarnir heim aftur, hressar og kátar.

IMG_8887

Jamm það er notalegt að vera komin heim.

IMG_8890

Alltaf sami dugnaður í Hönnu Sól.  Hér er hún að renna til borðinu, því þau eru að fara að borða skyr.

Í kvöld sagði hún við afa sinn, að hún yrði að drekka vatn til að líkaminn þornaði ekki upp, og það ætti ekki að drekka kalt vatn og ekki heit, og millistigið þar væri volgt vatn. 

Hún var líka dálítið einmana, sagði hún við afa, svo hann varð að leggjast hjá henni smástund, amma var að reyna að svæfa hitt litla dýrið, sem var aldeilis ekkert á því að fara að sofa.  Hún söng og söng, m.a. þrír litlir apar sitja upp í tré, þeir eru að stríða krókódíl, þú nærð ekki mér, þá kom hann herra krókódíll svo hægt og rólega og AMM.....  Svo byrjaði hún að syngja Ó pabbi gef mér rós í hárið á mér, því tveir litlir strákar eru skotnir í mér.  LoL ég hélt að ég yrði ekki eldri.

IMG_8891

En það var sumsé við að borða skyr.

IMG_8895

En ég skrapp líka aðeins út í gærkveldi, við hittumst nokkur skólasystkin, og fermingar.  Lára Oddsdóttir sem býr fyrir austan og Elínóra sem býr í Borgarnesi voru staddar í bænum, svo okkur datt í hug að hittast og spjalla.  Það var gaman að rifja upp ýmislegt skemmtilegt frá skólaárunum.  Þessar eru reyndar settar inn fyrir hana Dísu mína.

IMG_8899

Já við hlógum mikið og spjölluðum.  Þau voru reyndar í kaffi og vatni en moi fékk mér rauðvín.

IMG_8901

Held svei mér þá að ég hafi kippt aðeins, því ég var svo þreytt. LoL en við verðum alltaf einhvern veginn nánari eftir því sem tíminn líður.  Við vorum rosalega ósamstæður hópur í skólanum, en með hverjum hitting verðum við meiri vinir og meiri væntumþykja, það er notalegt.

En ég sá myndasýningu þarna á Edinborg.  Ágúst Atlason er með ljósmyndasýningu, myndir þrykktar á striga sýndist mér.  Þetta eru gífurlega flottar myndir, hann er snillingur.

IMG_8892

Datt í hug að setja hér inn tvær myndir eftir hann til að sýna ykkur.  Þeir sem vilja sjá fleiri verða að skoða þær niður í Edinborg.

IMG_8893

Þetta er reyndar gamalkunnugt myndefni ekki satt!! LoL Hvet fólk til að fara og skoða.

IMG_8906

En í dag var stóri dagurinn hjá Ásthildi Cesil, hún var að fara í fyrsta sinn á Sólborg, og amma fór með.

IMG_8909

Það þarf náttúrulega að máta töskuna og svona.

IMG_8910

Hér eru þær komnar í leikskólann.  Amma fékk leyfi til að taka nokkrar myndir af þeim til að sýna.

IMG_8912

Hér er allt nýtt fyrir manni, og sú stutta dálítið varfærin.

IMG_8914

Hún fékk að púsla hún elskar púsluspil.  Hér er verið að leggja lokahönd á hehehe..

IMG_8915

Í útiverunni kom stóra systir strax til aðstoðar.

IMG_8917

Hún er svo hjálpleg við litlu systur sína

IMG_8919

Það er nú munur að eiga slíka stóru systur.

IMG_8920

Svo má auðvitað hafa gaman af þessu líka.LoL

IMG_8922

Leika leika leika.

IMG_8925

Þetta er bara skemmtilegur leikskóli.

IMG_8935

Svona er inngangurinn, það er til að fá smá ævintýrablæ á allt þegar þau koma inn, þau koma inn í ævintýraveröld.  Mér finnst það mjög skemmtileg hugsun.

IMG_8936

ein algjörlega búin eftir heimkomuna úr aðlögun.  Heart

Svo eru nokkrar myndir sem pabbi þeirra tók í Þórsmörk.  Læt nokkrar fljóta með.

IMG_7944[1]

Hanna Sól er vön hestum, og sú litla var orðin ansi kræf svona í lokin.

IMG_7966[1]

Það er gaman að klappa hestunum.

IMG_8157[1]

Og vera á baki. 

En ég segi bara góða nótt elskurnar, og vona að þið hafið þolinmæði með mér, ég lofa að vera miklu duglegri að kíkja við hjá ykkur, þegar þessari törn líkur.  Góða nótt og sofið rótt.  megi allir góðir vættir vaka með ykkur öllum og vernda. 

 

 


Stelpur á leið heim.

Ég er bókstaflega á kafi, núna er aðlögun fyrir Ásthildi litlu á Sólborg.  Ég ætla að setja inn nokkrar myndir í kvöld. 

En Þói vinur minn sendi mér þessa mynd af stelpunum að koma heim, með pabba sínum á flugvellinum.  En þær eru rosalega ánægðar með að vera komnar heim aftur. Það gekk vel með Ásthildi í aðlögun í dag, svo vonandi slepp ég fyrr, nóg er að gera.

%C3%81%20lei%C3%B0inni%20heim[1]

Pabbi greinilega dálítið stressaður, en það þurfti að greiða og gera sig fínar fyrir ömmu í kúlu. 

Takk fyrir myndina Þói minn. Heart


Daglegt kúlulíf.

Það er gott veður núna upp á hvern dag.  Ég á kafi í að vinna í garðinum og upp á garðplöntustöðinni.  Það er gott að róta í moldinni, bara ef bakið á mér væri ekki orðið svona ónýtt og hnén erfið.  Kemst tæplega niður á hækjur mér.  En svona er þetta bara. 

En fólkið mitt kíkti við í gær.

IMG_8833

Úlfur setur plástur á afa.  Hann fékk líkþorn undir tábergið og það er ekki notalegt.

IMG_8836

Og Sigurjón reynir að brjóta spýtu eins og stóri bróðir. 

IMG_8837

Skal takast hehehe...

IMG_8840

Úlfurinn tálgar...

IMG_8842

Símon litli Dagur og fjölskyldan kom í heimsókn. 

IMG_8847

Það var voða notalegt.

IMG_8856

Evíta Cesil voða stollt með litla bróður sinn.

IMG_8857

En það er líka gott að vera hjá afa.

IMG_8868

Og ömmu líka.

IMG_8872

Og þeim stutta þykir ekkert amarlegt að kúra á brjóstunum á ömmu sín. Heart

IMG_8874

En svo þurfti hann náttúrulega að fá sér að drekka.

IMG_8876

Og Evítu fannst komin tími á að gefa hinum smá kaffisopa LoL Hún er svo mikil búkona í sér. 

IMG_8877

En góða veðrið býður mín þarna úti.  eigið góðan dag elskurnar. Heart

 


« Fyrri síða

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Júní 2009
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband