Flestir þeirra þingmanna sem voru kjörnir í síðustu kosningum, það er vorið 2009, eru ekki sáttir um hvernig störfum á þingi er hagað. Vonbrigðin þeirra er mikil.
Ásmundur Einar Daðason upplýsti, á Sprengisandi á Bylgjunni í gær, að nýir þingmenn eru að tala sig saman um að mynda félagsskap, þvert á flokka, til að freista þess að fá þá eldri til að láta af þrætuáráttunni og gamaldags vinnubrögðum.
Mynda einhverskonar andóf innan þings vegna þeirra vinnubragða sem þar hafa tíðkast, og eru enn ráðandi.
30.6.2010 | 20:38
Í dag.
Ég á eftir að setja inn nokkrar skemmtilegar myndir frá heimsókn litla Arnars Milosar og pabba hans og mömmu, og fleiri myndir, en ég byrja á nýjustu myndunum.
Hér er hann litla skottið með afa.
Hér var svo amerísk skúta í nokkra daga, það hefur fjölgað skútum hingað, ef til vill vegna nýrrar aðstöðu fyrir skútufólk hér.
Því hér er ágætis bæði skútu og kajakmenning.
Þeir eru nú farnir og líka bretar sem voru hér í tæpa viku.
ég var að tala um um daginn að fyrirtæki aðkomin væru að trana sér hér fram, til að ná í meiri sölu. En hér eru nokkrar túristabúðir, hér er ein ísfirskar handmyndakonur hafa komið sér upp verslun. Málið er að fyrir nokkrum árum var hér ráðin kona til að auka atvinnurekstur kvenna. Elsa heitir sú ágæta kona sem mest og best vann hér þá, fyrir utan að við sameinuðumst um að koma hér upp saltfiskvinnslu unglinga, þá átti hún sinn þátt í að sameina konur í handverki, bæði hér á Ísafirði, Dýrafirði, Önungarfirði og Súgandafirði, á öllum þessum stöðum er nú hægt að kaupa fallegt handverk kvenna á staðnum og ekki bara prjón og hekl heldur mikið úrval af allskonar fallegum munum. Við erum hér komin í Karitas, á Ísafirði.
Úrvalið er frábært og fallegt.
eins og sjá má er hér mikið úrval af allskonar fallegum hlutum sem unnir eru hér í heimabyggð.
Konurnar vinna hér alfarið sjálfar og sitja gjarnan með prjónana sína eða hekluverk og afgreiða fallega hluti, allt svo vinalegt.
Og alltaf gaman að skoða fallegt handverk.
Ég er rosalega stolt af þessum konum, og öllum í hinum stöðunum líka.
Er eiginlega ákveðin í að kaupa mér eina ullarpeysu fyrir veturinn hjá þessum frábæru konum.
Börn og kúlan, þessir krakkar eru ættaðir í móðurættfrá Mexico og frá Mazátlan, þar sem mágkona mín býr, já heimurinn er lítill, afi og amma þeirra eru vinir mákonu minnar.
Og börn og kúlan eiga einstaklega vil við.
Og það var gaman að hitta þetta yndæla fólk frá Mexico.
Hér er auðvitað allt til alls fyrir börnin.
Þau voru reyndar að bíða eftir að komast að í Tjöruhúsinu hjá Magga Hauks og Rönku, en það er rómað víða um veröld.
Og tjörnin hefur alltaf sinn sjarma fyrir öll börn.
Heyja Dona Kristína hér eru vinir þínir í góðum höndum Og báru mér kveðju frá þér.
Tekin í morgun ásamt þeim myndum sem á eftir fara, himnagalleríið opið.
Um klukkan sjö í morgun og orð geta ekki lýst þessu, en reynið að hugsa um fulgasöng og þar fyrir utan algjöra kyrrð.
Morgun eftir morgun, dag eftir dag núna nær í tvo mánuði, Ísafjörður með þeirri reisn sem hann á til sem bestan. Hér þarf ekki orð, bara andakt og fuglasöng og algjöra kyrrð þar fyrir utan. Eigið gott kvöld elskuleg mín, ég er svo þakklát fyrir að loksins sjá ljós og tilgang, þó sorgin sé þarna fyrir innan og söknuður yfir sonarmissir. Þá læknar flest sár svona yndislegur staður og náttúran sem ég veit að elskar mig eins og ég er, sættir sig við mig eins og ég er, og jafnvel veitir mér alla sína ást, bara eins og ég er. Málið er bara að hafa þroska til að taka á móti öllu því sem að mér er rétt, og það geri ég.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
30.6.2010 | 11:43
Mér líður vel.
Ertu hætt að blogga spurði elskuleg vinkona mín í gær þegar hún hringdi í mig. Nei elskurnar ég er ekki hætt að blogga, og ég er alveg að komast upp úr öldudal í bili allavega. Líður vel og er jákvæð, en ég hef bara svo rosalega mikið að gera þessa dagana. Er að reyna að vinna upp margra mánaða störf heima hjá mér, og svo er það bærinn. Hann þarf að líta vel út og vera stolt okkar Ísfirðinga eins og hingað til. Þetta tekur allan minn tíma eins og er.
En ég er með heilmikið af skemmtilegum myndum sem ég er ákvðin í að sýna ykkur þegar ég má vera að. Og ég hugsa mikið til ykkar sem hér komið inn og heimsækið mig. Og ég er ykkur þakklát fyrir stuðningin gegnum tíðina. Það er ómetanlegt þegar maður lendir í krýsum og sorg að finna alla þá hlýju og samhug sem bæðí þið og samborgarar mínir hafa sýnt mér. Ég er svo heppin kona að eiga svona marga góða að.
Loksins rigndi smávegis í gær, en það er búið að vera sól og hlýja a.m.k. í tvo mánuði eða lengur. Jörðin er farin að þrá vökvun.
Á næstu helgi og þarnæstu verða svo ættarmót hjá mínum fjölskyldum, frá mömmu og svo frá pabba. Ég ætla að fara á bæði og hitta ættingja mína.
En eigið góðan dag mín kæru og mér líður vel í moldinni og útiverunni. Það er móðir jörð sem hefur fóstrað mig undanfarnar vikur og gefið mér ró.
Hanna Sól og Ásthildur Cesil við Dóná. Þeim finnst gaman að synda í ánni, og leika sér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.6.2010 | 20:24
Ekki skessulegt raus, heldur nornalestur.
Loksins í dag fann ég að orkan mín er að koma til baka. Loksins þarf ég ekki að leggja mig um leið og ég get, og loksins get ég gert ýmislegt af því sem þarf að gera hjá sjálfri mér.
Ég er búin að vera svo orkulaus að það er ekki allt í lagi. Garðplöntustöðin mín hefur setið á hakanum og garðurinn minn er orðin algjör villigarður. Ég hef notað þá litlu orku sem ég átti til að sinna starfinu í bænum. Svo í dag loksins hafði ég orku til að fara og aktiualli gera eitthvað af viti í garðplöntustöðinni minni. Málið er að Blómaval er að gera sitt til að reyna að drepa mig niður. Þeir hafa tekið yfir blómabúðina og stúlkuna sem þar var við völd. Og núna eru þeir með allskonar tré og runna fyrir utan blómin. Ég á auðvitað fasta kúnna sem þekkja mig og segja mér að plönturnar mínar lifi betur og séu sterkari en þeir hafa auðvitað tekið sinn toll, því flottu blómin niður í miðbæ glepja. Ég segi nú bara ágætu ísfirðingar þið hafið auðvitað val.
Ef þið viljið hafa þessa garðplöntustöð áfram, þá þurfið þið að hugsa aðeins út fyrir rammann. Ég stofnaði þessa garðplöntustöð vegna hvatningar frá fólki sem vildi geta keypt plöntur í heimabyggð. Ef hinsvegar þið lítið svo á að það sé betra að versla við Blómaval, þá er það allt í lagi mín vegna. Þá er bara að loka hér og fara að njóta lífsins, gera það sem ég vil og eignast líf fyrir utan garðyrkjuna. Það er allt til í þessu. Það er ykkar val elskurnar. Ég hef ekki séð eftir einum einasta tíma sem farið hefur í þá vinnu sem hér hefur verið framkvæmd af okkur Ella mínum. En ef þið kjósið að beina ykkar verslun til Blómavals þá verður það bara svo.
Málið er að það er að það hefur alltaf verið svona. Stóru fyrirtækin hafa dregið til sín kúnnana frá þeim smærri. Hér í denn fóru menn vikulega suður til að versla í Bónus, eða þangað til Bónus sá sér fært að opna búð hér. Ég verð að viðurkenna að það var búbót fyrir okkur hér að fá þá verslun hingað. Hins vegar voru hér margir smákaupmenn sem hurfu við þá breytingu.
Og nú sé ég að akureyringur hefur opnað hér gjafaverslun fyrir skemmtiferðskipinn, málið er að skipin koma fyrst hingað og menn þarna fyrir norðan sáu auðvitað að það gat ekki gengið að ísfirðingar sætu að gjafavörunni einir. Þá þurfti auðvitað að koma hér og ná því sem hægt var að ná. Klóa í smágróða, svo stendur á þessari túristabúð; Akureyri Reykjavík. Ísafjörður hvað!
Ekki nóg með það, heldur var ákveðið að leggja niður svæðisútvörpin á landsbyggðinni, og allt flutt til Akureyrar, nema nú er bara Akureyri og nágrenni sem sendar eru fréttir um. Og það í hádeginu þegar allir eru að gera eitthvað allt annað. Og þess vegna ákvað ég að hætta að auglýsa mína þjónustu á rúv.
Hér er hún Guðrún okkar, flott kona, vann á Rúvvest og stóð sig mjög vel. Og ég veit að margir hér fyrir vestan auglýstu á Rúv meðan það var hér. Nú hefur það snarlækkað hlutfallið. Við erum ekki að auglýsa í útvarpi Akureyrar.
Hér hefur verið skíðavika með smáhléum frá 1935. Akureyringar hafa öfundað okkur af þessari uppákomu lengi, svo fengu þeir því framgengt að vetrarsportið var staðsett á Akureyri, þeim hefur samt sem áður ekki tekið að drepa Skíðavikna niður, en ríkisstyrktir eru þeir.
Að endalaust gína yfir því sem aðrir eru að gera, og reyna að gleypa það finnst mér frekar ómerkilegt. Og það er alveg sama batteríið og útrásin. Græðgin í fyrirrúmi, reyna að ná til sín því sem aðrir eru að gera, í stað þess að gera bara eitthvað allt annað.
Nú hljóta þeir þarna fyrir norðan að fara að setja upp aldrei fór ég suður dæmi, því það er auðvitað óþolandi að ísfirðingar eigi eitthvað svo stórkostlegt sem það.
Nei ég segi svona. Við eigum að hlú að því sem er næst okkur, og ríkið á ekki að grípa inn í og hygla einum á kostnað annars. Frjáls samkeppni hlýtur að vera markmiðið.
Þetta er svona raus í kerlingu sem er fjarskalega óánægð með hvernig málin hafa skapast á landinu okkar fagra. Núna síðast hafa stjórnvöld verið rassskellt svo um munar og ættu með sanni að segja af sér og hunskast til að biðja fólk afsökunar á aðgerðaleysi sínu meðan fólk var rænt inn að skyrtu jafnvel svipt lífið sínu, og öllum sparnaði og eigum.
Megi allar góða vættir vaka yfir okkur og vernda og losa okkur við óhæft fólk sem reynir að hanga á roðinu eins og hundar, og ekki sleppa þó meirihluti þjóðarinna vilji þau sem lengst í burtu.
Segi og meina.
og að lokum Össur, þú sagðir í fréttum að ráðamenn í Hollandi og Bretlandi væru að taka sirkusinn á þetta... eða þannig. Fyrir mér og mörgum öðrum ert bæði þú og þitt fólk að trúðast og algjörlega án trausts svo margra að ykkur ber að íhuga ykkar stöðu og helst víkja og fara fram á utanþingsstjórn, ekki þjóðstjórn Össur minn. Utanþingsstjórn, vegna þess að meirihluti fólks einfaldlega treystir ykkur ekki lengur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
21.6.2010 | 10:40
El Salvador - ógnaröld og nokkur orð um Fjallkonuna.
Ég var bæði sorgmædd og glöð í morgun að heyra fréttirnar frá San Salvador. Þetta eru hræðilegir tímar, ég er glöð vegna fólksins míns sem er hér úr allri hættu, en sorgmædd yfir þessum hryllilegu slátrunum og svo leið vegna þess að hluti fjölskyldunnar er þarna ennþá og kemst ekki burtu. Ekki hingað m.a. vegna þess að landinu okkar er lokað öllum nema Evrópubúum, og ekki allra Evrópubúa því í Serbíu er líka fólk sem gjarnan vill komast hingað til að sameinast fjölskyldu sinni, en fær ekki að koma vegna duttlunga stjórnvalda.
En hér er linkur á þessar slæmu fréttir frá El Salvador. http://www.elsalvador.com/mwedh/
Ég vil svo biðja ykkur lesendur mína og vini afsökunar á hve lítið ég er hér við núna, en bæði hef ég allof mikið að gera og svo er ég haldinn einhverri fælni sem ég losna ekki við. En er að vinna í málunum. Útiveran hjálpar mér mikið.
Ég er annars með fullt af skemmtilegumf myndurm sem ég ætla að setja inn fljótlega.
En út af 17. júní. Mér finnst að fjallkonan eigi að vera þroskuð kona með fullri virðingu fyrir ungum fallegum stúlkum. Fjallkonan er móðir, kona, meyja. Enginn tvítug stúlka getur komið fram með þeirri reisn og reynslu sem fimmtug kona getur gert. Kona á miðjum aldri getur bæði borið glæsileik meyjunnar, kærleika móðurinnar og reynslu konunnar.
Við erum ekki komin lengra á þroskabrautinni en það að fá gjarnan ungar stúlkur oft tæplega tvítugar til að fara með þetta stórkostlega hlutverk. Sem er gróíð í hjarta okkar og sál. Hún er þarna fulltrúi lands og þjóðar. Á að hafa reynsluna, glæsileikann og jafnvel þann hrikaleik sem landið okkar er. Því vil ég sjá á næsta ári, ef við verðum þá ennþá til sem þjóð; fjallkonur landsins allar eldri en fertugar. Mega þess vegna vera ýturvaxnar og stöðugar, en fyrst og fremst sterkar.
Fjallkonan er ímynd landsins okkar fagra. Þess vegna finnst mér við hæfi að benda á þetta og biðja um að bætt verði úr. Þetta er nefnilega ekki fegurðarsamkeppni, né hæfileikakeppni eða leiklistarkunnátta. Hún er tákn alls þess sem í landi okkar er fólgið. Sverð okkar sómi og skjöldur.
Eigið góðan dag mín kæru og fyrirgefið mér að hafa ekki farið blogghringinn allof lengi. En það kemur að því fljótlega.
Set hér inn til gamans fjallkonuna árið 1994. Þegar lýðveldið var 50 ára. Þá var ég fengin til að fara með þetta einstaka hlutverk, þá ræddi ég um huldar vættir og landvættir og endaði á Í faðmi fjalla blárra eftir okkar ísfirska skáld Jónas Tómasson, þar var enginn Einar Ben, og sumir tóku víst andköf. En okkur hættir til að fara niður í öll þau hjólför sem hægt er að finna til þess eins að komast ekki upp úr þeim, nema einstaka skrýtnar nornir og sérkennilegir kvistar. Svoleiðis er það bara.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
17.6.2010 | 14:45
Til hamingju með 17. júní.
17. júní er runninn upp, og ESB sendi okkur tónin, þið megið vera mem!!! ég verð að segja að ég kann Frú Jóhönnu Sigurðar litlar þakkir fyrir það svarta ský sem hún og fleiri hafa leitt yfir okkar stolta litla land. Megi aldrei verða að við verðum hneppt í þetta apparat sem ESB er.
En það er stemning í bænum mínum. Prúðbúið fólk niður á Eyrartúni að skemmta sér og spjalla við náungan. Fjalldrottningin stígur niður og les okkur ljóð.
Set inn fleiri myndir seinna.
Himnagalleríið var opið í gær.
Ljós og skuggar.
svona er mannlífið líka, þar skiptast á skyn og skúrir ljós og skuggar.
Og svo koma skipinn sífellt stærri og stærri, einhverntíman ná þau upp fyrir fjöllinn, þetta skip tekur 3500 manns fyrir utan áhöfn og skipsrottur.
en ég er farin út í sólina. Eigið góðan hátíðardag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
16.6.2010 | 16:46
Hvaða rugl er þetta?
Ég er alveg gáttuð á því að Alþingismenn og ríkisstjórn skuli voga sér að sitja heilu næturnar og þrefa um landsins gagn og nauðsynjar. Gera þau sér ekki grein fyrir því að ef þau klúðra málum vansvefta og þreytt, þá geta orðið ansi miklar hættur því samfara? Að voga sér að sitja næturlangt og þrasa til að ná niðurstöðum, segir mér bara eitt; ÞAÐ ER VERIÐ AÐ PLOTTA PÓLITÍSKT UM MÁLEFNIN. TIL AÐ HALDA SÍNU FYRIR SIG OG SÍNA.
Ég bara þoli þetta ekki. Ef þetta fólk væri að hugsa um almannaheill, þá væru ekki þessar umræður í reykfylltum herbergjum. Þá myndu þau ekki vinna svona, eins á áhugamannaleikhús fyrir frumsýningu. Þau hefðu fyrir löngu tekið pólinn á hvað væri nauðsynlegt fyrir almenning í landinu, sem ÞAU HAFA LÁTIÐ KJÓSA SIG ÚT Á!!!
Við getum svo sem kennt okkur sjálfum um að hluta til, því við höfum verið alltof kærulaus um atkvæðin okkar. Og treyst fagurgala og fyrirheitum, og sitjum þess vegna uppi með fólk sem árum saman hefur hlunnfarið okkur eftir kosningar, og haldið sínu til streitu eftir að hafa logið að okkur hátt og í hljóði. Einmitt þess vegna vona ég að tvennt sé að gerast, í fyrsta lagi að yngra fólk geri meiri kröfur um heiðarleika og upplýsta umræðu, og að þeim sem hafa látið þetta yfir sig ganga árum saman sé að fækka ár frá ári, svona rétt eins og áskrifendum Moggans.
Allt tekur sinn tíma, líka réttlætið, þó margir séu orðnir óþreyjufullir eftir því að það komi. En mín ágætu það kemur verið viss. Ég heyri allstaðar í kring um mig fólk sem er gjörsamlega búið að fá nóg af ástandinu, er farið að sjá í gegnum lygavefi og málskrúð ráðamanna bæði í stjórn og stjórnarandstöðu. Þetta er eiginlega orðið pínlegt að mínu mati. Og þeir sem sitja svo huggulega við kjötkatlana, bæði fyrir innan og utan sjá ekki eða heyra nokkurn skapaðan hlut. Þau bara orna sér eins og allt fari bara á besta veg og lygin sé orðin sannleikur og sannleikurinn lygi.
Og að lokum, ef til vill eigum við von, hún kemur frá stjórnarliðum á Alþingi, sem setja stjórnvöldum loksins stólinn fyrir dyrnar. Fólk sem vill ekki afhenda auðlindir okkar til útlendinga. Fólk sem hefur gert sér grein fyrir því að við erum það sem við erum, og að við eigum svo margt sem við þurfum að gæta að. Það verður að segjast eins og er að ef einhver heldur að Evrópusambandið sé í einhverjum góðgerningarleik við að vilja fá okkur inn, þá er það misskilningur. Þeir horfa beinhart á hvað þeir geta fengið út á þetta litla land í úthafinu, vel staðsett bæði hvað varðar stríðsrekstur og opnum norðurheimskautssvæðisins, og ekki síst allar okkar náttúruauðlindir sem við vissulega erum rík af í síþverrandi orkulindum heimsins. Ef við bara tökum vatnið, það er næsta heimsvandamál að fólk fái sæmilega hreint vatn til að framfleyta sér. Að halda að ráðamenn þjóða hafi þetta ekki í huga er hreinn barnaskapur og trúmennska sem á ekki að líða af okkur fólkinu í landinu. Það er komið nóg.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.6.2010 | 17:07
Ef til vill eigum við von!!!
Las þetta á blogginu hans Sigurjóns M. Egilssonar;
VONLAUS STAÐA
10. júní 2010
Ég hef heyrt í og hitt óvenju margt fólk undanfarna viku sem er að gefast upp. Sumt af því hefur ennþá nógu mikinn baráttuvilja til að pakka saman sínu hafurtaski og yfirgefa landið... en aðrir bara hreinlega að gefast upp. Vonleysið algjört.
Það er ótrúlega sárt að horfa upp á vini sína og kunningja missa glampann úr augunum og verða hokið og sviplaust. Þetta sama fólk var í miklum baráttuhug fyrir hálfu ári síðan.
Þetta er fjölskyldufólk sem sér ekki fram úr því að fæða og klæða börnin sín. Fólk sem fær kvíðakast ef barni/börnum er boðið í afmæli.
Ætlum við bara að sitja hjá og horfa upp á þetta?
Von að spurt sé!!!
Ég heyrði í gær brot úr viðtali hjá Sirrý á rás2, þar var kona (sem ég því miður missti af nafninu) að hún hefði verið komin á leiðarenda, en þá datt henni í hug að fara að skrifa niður bænir og gefa út bók um þær. Þessum bókum hennar var vel tekið, og hún fékk nýja von. Hún sagði eitthvað á þá leið; Ég var alltaf að hugsa um kærleikan og viljan til að vera góð og gera vel. Þegar ég var að skrifa þessar hugleiðingar, ræddi ég við prest, og hann sagði við mig, kærleikurinn er vissulega góður, en ræddu líka um vonina, hún skiptir svo miklu máli.
Þegar ég svo kom úr enn einni meðferðinni sagði þessi ágæta kona, fann ég að í hjarta mínu hafði kviknað ljós. Og ég vissi að það var ljós vonarinnar. Og mér leið svo vel.
Þetta ljós kæru stjórnmálamenn eruð þið að drepa niður í þjóðinni ykkar, þessari sem þið lofðuðu að vinna allt það besta.
Með hverju rifrildi, brígslyrðum og lygum á Alþingi drepið þið niður fleiri vonir meðal fólksins í landinu. Þið hafið sýnt okkur þvílíka óvirðingu, og meðan fólk býður óttaslegið eftir úrræðum, SEM DUGA nótabene en ekki sýna ykkur í hetjuljósi, þá standið þið eins og hanar á priki í þingsölum og rífist eins og hundar og kettir. Og sýnið okkur löngutöng. Því hugur ykkar er ekki hjá þeim sem þurfa á hjálp ykkar að halda, hugur ykkar er í EIGIN PYNGJU OG YKKAR EIGIN RASSGATI, svo og vina og vandamanna.
Mikið megið þið skammast ykkar. Ég get sagt ykkur að þolinmæði okkar er á þrotum, og við hvert óhappaverkið sem þið drýgið og reynið að fela eða ljúga ykkur út úr, dofnar vonin meira og meira.
Ég á bara þetta að segja við ykkur; SKAMMIST ÞIÐ YKKAR OG ANNAÐ HVORT LJÚKIÐ ÞVÍ SEM GERA ÞARF OKKUR TIL HAGSBÓTA, FYRIR ÞINGLOK, EÐA HUNSKIST HEIM TIL YKKAR OG LÁTIÐ OKKUR EKKI SJÁ YKKUR MEIR, HVERT OG EITT YKKAR ER OKKUR HINUM TIL SKAMMAR, OG ÁSTANDIÐ ORÐIÐ ÓÞOLANDI FYRIR OKKUR, ÞIÐ AFTUR Á MÓTI ERUÐ Í VINNU HJÁ OKKUR VIÐ AÐ OTA YKKAR EIGIN TOTA OG REYNA AÐ GRÆÐA SEM MEST Á STANDINU.
Ég heimta utanþingsstjórn og að þið stjórnmálatrúðar komið ykkur þangað sem við þurfum ekki að hvorki horfa upp á ykkur eða heyra í að minnsta kosti 2 ár.
VONANDI SJÁIÐ ÞIÐ AÐ YKKUR, ANNAR STENDUR ÞAÐ UPP Á OKKUR FÓLKIÐ Í LANDINU AÐ SÝNA YKKUR AÐ VIÐ ERUM BÚIN AÐ FÁ NÓG!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
13.6.2010 | 16:03
Nokkrar myndir úr kúlunni.
Hér var ekki sól í morgun smá rigningarúði en algjört Ísafjarðarlogn, og um 15 °hiti. Svo hér er virkilega gróðrartíð. Ég hef verið umvafinn yndislegum krökkum alla helgina og það er notalegt.
Amma megum við baka pönnukökur sögðu stúlkurnar í gærmorgun.
Og svo var tínt til það sem þarf í svona pönsur, pelin var notaður sem mælitæki.
Deigið hrært og svo steiktar pönnsur á pönnu.
Svo var borðað, nammi namm þær voru virkilega góðar.
Sumir voru þó bara í letistuði.
Are you talking to me!!!
Afakarl kom líka í heimsókn.
Svo er ýmislegt sem þarf að laga og þá er gott að eiga laghenta mömmu að leita til.
Falleg birta í gær, það var bæði sól og rigning og nykurrósirnar mínar nutu sín vel.
Svo var grillað, Daníel er ansi seigur og Sigurjón fylgist með.
Stelpurnar dást að gróðrinum.
Svona þetta verður bráðum tilbúið segir Daníel.
Þá þarf að setja pylsurnar á og passa upp á þær.
Jamm þetta gengur bara vel. Sumir eru þó meira í að leika sér.
Eins og sést, þetta er krabbinn...
Amma taktu mynd!
Svo er að fá sér jarðarber sem ræktuð eru af ömmu.
Nesti og nýjir skór til að fara út að leika.
Ojojoj afi grimmur karl...
Já maður er nú flottur.
Og svo að lokum rabbabarinn þetta er hans tími núna.
Eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
12.6.2010 | 11:28
Nokkrar kúlumyndir, og svo fyrirspurnir til sérfræðinga í plöntufræðum og meindýrum.
Ég hef ekki skrifað núna nokkurn tíma. Ég er í einhverri verkfælni sem ég skil ekkert í sjálf, en finn að ég kem mér ekki eða illa að nokkru, nema ég verði að gera það.
En hér koma nokkrar myndir til að gleðja ykkur elskuleg.
Glaður stubbur með dótið hans stórabróður Tai Kwon Do hlífar.
Og honum finnst spennandi að taka myndir, hér er ein af afa.
Og ömmu, mér brá eiginlega þegar ég sé sorgina sem ennþá er í augum mínum. Verð að reyna að gera eitthvað í þessu.
Sigurjón er mikill afakarl, hér vill hann aðstoða afa við að kveikja upp í grillinu.
Passa putana og vera varkár.
Ó Ó þetta er hættulegt.
Tjörnin skoðuð.
Svo er bara að bíða eftirmatnum.
Afaknús.
Ferðamannastraumurinn byrjaður. Einhvernveginn skreppa húsin í bænum heilmikið saman, þegar svona stórt skip kemur inn. Í þessu skipi eru um 2500 farþegar, það þýðir að um borð eru jafnmargar manneskjur og í öllum Ísafjarðarbæ.
Næstu helgi er von á ennþá stærra skipi eða með um 3500 farþega, það liggur við að sé jafnmikið með þernum og starfsfólki um borð slagi upp í alla sem búa á Vestfjörðum.
Það er ekki nóg að húsin skreppi saman, heldur verða fjöllinn undra smá í samanburði við þennan risadall.
Og bærinn fyllist af fólki, og það labbar bara um göturnar eins og rollur í smábæ. Það er eins og þeim finnist að bílarnir eigi að víkja fyrir þeim. Skrýtinn hugsunarháttur að mínu mati.
Við áhaldahús bæjarins er aðstaða fyrir ferðalanga að taka vatn og losa sig við skolp. Mér er sagt að þessi aðstaða okkar sé með þeim bestu á landinu.
Nokkrar blómamyndir.
Pernilla mín.
Og blómin í kúlunni.
Þessi ilmar dásamlega.
En það er ekki bara hægt að nýta sér kúluna innan, heldur líka utanhúss, margnota hús.
Það er nefnilega líka gaman að renna sér niður.
Og þá er mikið hlegið og skemmt sér.
Já það er ýmislegt hægt að skemmta sér við þegar maður er ungur.
Og hvað er betra fyrir sálina en að heyra glaðværan hlátur heilbrigðra unglinga sem leika sér í góðu veðri eins og þau börn sem þau eiga að fá að vera sem lengst.
Erum við ef til vill stödd í norskum firði? Nei í kúlunni.
Ömmubörn.
Að njóta sín.
Beðið eftir grilli pulsum og hamborgurum.
Daníel og Úlfur eru bestu vinir....... oftast nær.
Og fyrir ísfirðingana mína nær og fjær sést hvernig snjórinn hopar og úthaginn grænkar eftir eina góða rigningardembu. En við þurfum fleiri.
Að lokum þarf ég að spyrja einhverja sérfræðinga sem ef til vill kíkja hér við hvað er þetta eiginlegaL
ég bað krakkana að týna fyrir mig fífla út túninu og þau komu með marga svona, þetta er mjög einkennilegt, eins og þeir væru hvor innan í öðrum. Hvað getur orsakað svona?
Getur þetta verið einskonar mengun?
ég hef aldrei séð þetta áður, stönglarnir voru líka allir aflagaðir.
er ástæða til að rannsaka þetta betur?
ég hef satt að segja dálitlar áhyggjur út af þessu.
Stönglarnir eru líka svona aflagaðir.
Svo er annað sem ég hef líka áhyggjur af en það er skordýr sem ég hef ekki séð áður.
Líkist helst kóngulóm mjög smáum, sitja í hnapp og vefa sér vef utan um plöntuna. Er þetta stökkbreyttur spunamaur eða hvað?
eins og er hef ég bara fundið þetta á tveimur plöntum, en ef þetta breiðist út, verð ég að gera eitthvað róttækt. Hvað er þetta og hvernig er best að eyða þessu.
ef einhver veit svarið, vinsamlega segið mér hvað þetta er og hvernig best sé að fyrirbyggja að það breiðist út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
6.6.2010 | 16:57
Túlípanabærinn Ísafjörður og ýmislegt fleira.
Enn einn sólardagurinn. Mig er farið að vanta rigningu. Getur einhver sent mér regn?
Ég er ákaflega stolt að bænum mínum. Starfsmenn Garðheima (Guðbjörg) hafa sagt mér að nú sé bærinn kallaður Túlípanabærinn. Við höfum plantað undanfarin 12 ár eða svo túlípönum meðfram Pollgötunni, bænum til mikillar prýði.
Málið er að þessar túlípanabreiður gera það að verkum að það er hægt að slaka á blómaniðursetningu, vegna þess að túlípanarnir eru fallegir og standa vel, alveg fram að eða yfir 17 júní.
Þá er hægt að vinna að öðrum og meira aðkallandi verkefnum.
Já þessar elskur brosa við Ísfirðingum allt vorið og vekja gleði.
svona er það bara.
Mín er ánægjan, líka að fá hrós frá bæjarbúum, sem kunna að meta þetta.
Það er bara þannig að við þurfum öll á því að halda að aðrir segi okkur frá ánægju sinni.
Fyrir ykkur gömlu ísfirðingana set ég inn þessa mynd af gamla apótekinu það hefur heldur betur fengið andlitslyftingu. Er orðið svo flott og skemmtilegt. Nú eru þarna fjórara íbúðir og komnar flottar svalir.
Bróðir minn og mágkona buðu okkur í mat í gær. Þau komu með þetta líka fína læri og krydduðu það með gróðri beint frá garðinum mínum. Rosalega gott.
Mágkona mín tíndi allskonar plöntur úr garðinum, njóla, fílfla og margt fleira, hafa skal það sem hendi er næst en hugsa ekki um það sem ekki fæst. Og ljómandi gott bæði krydd og salad.
Maturinn var yndæll og bragðið eftir því.
Og öllu var gerð góð skil.
Mágkona mín er líka með þessa skemmtilegu hugmynd, hún er með nornabúð, þar sem fæst allskonar skemmtilegir hlutir. Og þetta er nýjasta framlagið, rúnir á sjávarsteinum, frábær hugmynd.
Í morgun var þessi þoka svo komin.
Ótrúlegt að sjá svona hér.
Kúlan samt ekki í þoku.
En hér er þokan í öllu sínu veldi.
Já þetta er eitthvað sem við erum ekki vön að sjá.
En það var komin tími til að hreinsa tjörnina. Þá þarf að veiða alla fiskana uppúr og koma þeim í bala.
Þeir vilja helst ekki láta fanga sig, en það þarf svo sannarlega til að geta þrifið tjörnina.
Eins gott að allir hjálpist að.
Strákarnir voru svo duglegir að hjálpa.
Fallegir bræður, synir Júlla míns.
Flottastir.
Vatnsberinn líka nauðsynlegur.
Daníel hjálpaði líka mikið til
Nei amma ekki taka mynd.
Fiskarnir njóta þess að vera í hreinu vatni.
Og þokan farinn.
Og blómin nutu góðs af gamla vatninu úr tjörninni.
Það hefur örugglega verið gott áburðarvatn.
Enda allt í blóma núna.
Perur og kirsuber byrjuð að myndast.
Smárósir blíðar blómstra á ný.
Að lokum til hamingju með daginn sjómenn nær og fjær. Hetjur hafsins!
Eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 2023322
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar