Kvótamál- Jón Kristjánsson og Kristinn Pétursson.

Nákvæmlega núna þegar fiskveiðistjórnunarkerfið er það sem mestu máli skiptir, og 101 elítan er að segja sína meiningu og láta ljósið sitt skína, og blessaður bóndinn Jón er að reyna að semja eitthvað samkrull til að gera breytingar, þá vil ég endilega benda á þær tvær persónur sem mest og best hafa rætt um þessi mál, báðir þekkja vel til og báðir hafa mikið til síns máls.  Og það er MEÐ ÓLÍKINDUM AÐ RÍKISSTJÓRNIN Í ÞESSARI KREPPU SKULI EKKI EINU SINNI HLUSTA Á ÞESSA TVO, fyrir utan fleiri sem hafa þekkingu á eins og Guðjón Arnar og Sigurjón Þórðarson.

Þetta eru mennirnir Jón Kristjánsson sem stýrði fiskveiði stjórnun Færeyinga til betra horfs, og svo viðvaranir og útskýringar mannsins sem gjörþekkir sjávarútveginn frá innsta kjarna Kristinn Pétursson.

 

 

http://kristinnp.blog.is/blog/kristinnp/

 

 

http://fiski.blog.is/blog/fiski/entry/1170647/

Ráðamenn verða að hlusta á raddir þeirra sem vita og kunna og hlusta á það sem þeir hafa að segja.

Ég get bara ekki skilið af hverju þessir ráðamenn veltast svona í vöngum yfir því sem hægt er að gera, nema þeir séu svo blindir að hlusta bara á hagsmunaseggina í L.Í.Ú  Og þora einfaldlega ekki að setja þá til hliðar og hlusta á önnur rök. 

Þetta er að verða óþolandi ástand, og virkilega þörf á að við þjóðin tökum af skarið og heimtum að þetta arfavitlausa kerfi verið sett til  hliðar, og nýtt og manneskjulegt, þjóðhagslegt kerfi sjái dagisins ljós. 

Samkvæmt þessu þveim herramönnum og svo mörgum fleiri, sérstaklega forystumönnum Frjálslyndaflokksins þá er þetta raunar voða einfalt og þarf ekki miklar breytingar það sem þarf er kjarkur og þor til að takast á við háværar frekjudósir sem eru eingöngu að hugsa um sig og sína og að missa ekki spón úr sínum aski.  Þetta sama fólk gefur stjórnmálalmönnum milljónir í það sem ég kalla mútur til að eiga inni goodwill hjá þeim stjórnvöldum sem eru við völd hverju sinni.  En mest og best styrkja þessir aðilar Sjálfstæðisflokkinn og Framsókn, þó aðilar innan Samfylkingar og Vinstri Grænna eigi líka hagsmuna að gæta.

Nú er tækifærið að sýna þessu liði puttan og ákveða að gjörbylta þessu handónýta kerfi.

Viljum við í alvöru sem þjóð vinna að því að við tökum þessi mál í okkar hendur og taka þau út úr stjórnmálaelítunni?  Er ekki komin tími til?  'Eg spyr?


Dagurinn í dag var dálítið sérstakur hjá mér.

Undanfarnar vikur hefur verið unnið að því að leysa úr málefnum Alejöndru litlu.  Tíu ára barátta fyrir því að hún fengi ríkisborgararétt eða dvalarleyfi.  Þessu hefur nú lyktað með því að hún verður vistuð hjá mér uns hún verður 18 ára, og fær dvalarleyfi í þann tíma, síðan mun hún fá íslenskan ríkisborgararétt og getur eftir það ákveðið sjálf hvað hún vill gera.  Við höfum átt í tilfinningalegu ástandi þennan tíma.  því þetta þurfti að fara í ákveðið ferli.  Niðurstaðan kom svo í dag, hún fær að vera hjá okkur ömmu sinni og afa, þann tíma sem þarf þ.e. þrjú ár.  Þetta er mikil fórn fyrir pabba hennar og mömmu sem nú eru flutt aftur til El Salvador, en þau völdu betri framtíð fyrir barnið sitt fram yfir sínar eigin langanir, þetta kallast kærleikur. Heart Þau ákváðu sem sagt að treysta mér fyrir barninu sínu og fyrir það er ég afskaplega þakklát.  Því svo sannarlega vil ég bara það sem henni er fyrir bestu og glöð yfir að við Elli getum lagt okkar af mörkum til að hún fái þann rétt sem hún þarf. 

Síðan höfðu yfirmenn mínir fyrrverandi boðað mig á fund upp í áhaldahúsi, og færðu mér kveðjugjafir og þakkarorð fyrir störf mín sem eru nú orðin 30 ár alls, en með hléum frá september 1966.  Ég er afskaplega sátt við að geta loksins sinnt sjálfri mér og mínum málum.  En vil senda öllum bæjarbúum góðar kveðjur og þakklæti fyrir hve allir hafa verið mér góðir og hve fólk hefur gegnum þessi ár hvatt mig áfram, þ.e. bæjarbúar, og verið mér mikil hvatning til góðra hluta.  Ég get líka stolt hætt og veit að bærinn minn hefur notið góðs af því sem ég gat gert fyrir hann og bæjarbúa.  Það er gott að geta litið stolt yfir og séð að ég hef skilið vel við, nú tekur við að hlú að sjálfri mér og mínu, bæði gróðri og börnum.

IMG_1570

Fiskarnir eru ánægðir í fínu tjörninni sinni.

IMG_1571

Ég hef samt grun um að ég sé ánægðari að geta séð þá en þeir að vera til í sólinni og birtunni.

IMG_1572

Strákarnir hafa unnið undanfarna daga í að laga heitapottinn sem var orðin eitthvað lúinn.  Veit samt ekki hvort það tekst, en ég get svarið það að það er svo miklu heilbrigðara fyrir svona flotta stráka að dunda sér við svona viðgerðir en að hanga inni í tölvuleikjum.

IMG_1573

Hressir krakkar.

IMG_1574

En mér var færð góð gjöf frá mínum yfirmönnum, bókina Jörðin. 

IMG_1575

Já ég bjóst reyndar ekki við þessu, svo það kom ánægjulega á óvart.

IMG_1576

Og svo gjöf frá starfsmannafélaginu líka.  Takk elskurnar fyrir að muna eftir mér.

IMG_1579

Þessi dagur var því fullur að kærleika og umhyggju og gleði.

IMG_1580

En ALejandra mín sagði við mig í gær; ef allt fer eins og ég vil, þá langar mig að halda veislu.

IMG_1581

Þau fengu að baka köku ef þau tækju til í eldhúsinu. 

IMG_1582

Svo voru þau bara að fagna og gera sér glaðan dag.

IMG_1584

Stubburinn vildi endilega sulla í tjörninni.

IMG_1586

Síðan grillaði Úlfur pylsur, meðan stelpurnar skreyttu kökuna.

IMG_1589

Gaman gaman.

IMG_1590

Kakan fína.  Betty Crooker eða þannig, stendur fyrir sínu.

IMG_1591

Sjá ljúfeng er hún.

IMG_1592

Og veislan í fullum sving.

IMG_1593

Ég er innilega þakklát þeim sem unnu að þessu máli og gerðu það kleyft að mál Alejöndru fengju farsæla útkomu.  Þar komu margir að sem ber að þakka.

IMG_1595

Og nú vil ég bara óska þess að þeir sem ekki vildu sjá þessa niðurstöðu sætti sig við hana og við getum öll haldið áfram á braut kærleika og fyrirgefningar.  Og verið áfram fjölskylda.  Það þarf að brúa bil og líma brot.  Það tekur tíma en ég vona að kærleikurinn lækni öll þau sár.

IMG_1596

Stundum þarf að lyfta grettistaki.

IMG_1597

Til að draumarnir rætist.

IMG_1598

Því við þurfum alltaf að fylgja hjartanu okkar.Heart

IMG_1600

Þá fer allt vel.  Stelpurnar í hláturskasti, sennilega vegna spennulosunar.  Heart

Innilega takk fyrir mig og okkur öll.  Megi gæfan fylgja okkur öllum.


Vorverkin - tjarnarþvottur.

Hin árlegu tjarnarþrif eru búin.  Krakkarnir bíða með eftirvæntingu eftir því.  Fyrst þarf að veiða alla fiskana upp úr og setja þá í önnur ílát, síðan veiða nykurrósirnar upp úr og svo að tæma tjörnina og hreinsa hana.

IMG_1529

Ólöf Dagmar og Sigurjón mætt á svæðið.

IMG_1530

Þetta verður spennandi.

IMG_1531

Fyrst þarf að láta renna mesta vatnið úr tjörninni, svo auðveldara sé að veiða fiskinn.

IMG_1535

Úti var leiðinda veður þennan dag, og ég gaf fuglunum korn, þeir komu í stórum hópum, sýnist þetta vera maríuerlur.

IMG_1538

Þær eru bara svo svakalega varar um sig að það var erfitt að ná mynd.

IMG_1539

En nú er farið að færast fjör í leikinn við tjarnarþvottinn og veiðiskapinn.

IMG_1541

Bræðurnir veiða og veiða.

IMG_1543

Og svo eru sumir sem bara horfa á.

IMG_1546

Upp úr með blómin.

IMG_1547

Gulli gullfiskur komin í höfn.

IMG_1549

Stelpurnar orðnar spenntar líka.

IMG_1550

Óbbs missi af einum.

IMG_1551

Og allir fengu að veiða allavega einn fisk, líka Sigurjón Dagur.

IMG_1552

Spennan í hámarki, skyldum við ná þeim öllum ??

IMG_1553

Jú þetta er alveg að hafast.

IMG_1554

Já þetta eru dugleg börn.

IMG_1555

Þetta er aldeilis fjör.

IMG_1556

Það er einn eftir, hann er bara svo fimur og fljótur.

IMG_1559

Hérna er hann og vill ekki láta ná sér. Enda stökk hann upp úr balanum og ofan í tjörnina þegar búið var að hreinsa hana og byrjað að láta renna í hana vatn.  Ótrúlegur alveg.

IMG_1562

Syndir um í drullunni.

IMG_1564

Loksins náðu þau honum og hann fór í balan, sem hann svo stökk upp úr sem betur fer ekki fyrr ein eitthvað vatn var komið í hana.

IMG_1565

Jejj! allir komnir uppúr.

IMG_1569

Þá var ekkert annað eftir en að borða þessa fínu sunnudagssteik. 

Og nú er tjörnin kristaltær og fín, smátíma allavega. Smile


Þrír kórar - besta skemmtun.

Já kvennakór Reykjavíkur kom hingað í heimsókn síðasta laugardag.  Þær héldu tónleika í kirkjunni með kvennakór Ísafjarðar og karlakórnum Erni.

Stjórnandi kvennakórsins er Agata Jo, systir Beötu Jo sem stýrir karlakórnum Erni styrkri hendi.

IMG_1402

Kvennakór Ísafjarðar byrjuðu á hugljúfum nótum Angel, Þér við hlið og Ég skal syngja um allt.

IMG_1403

Ingibjörg Bjarney stjórnar kórnum, og er ísfirðingur borin og barnfæddur, sem fór í nám og kom aftur sem betur fer, músikantara eiga nefnilega svo vel heima  einmitt hér.

IMG_1405

Formaður kvennakórs Reykjavíkur hélt smátölu og sagði að þær hefðu hlakkað mikið til að koma, þetta var svona safariferð, því þær sátu fleiri klukkutíma upp á Steingrímsfjarðarheiði, og komust ekki fyrr en kl. 3 aðfararnótt laugardagsins.  Eldhressar konur á öllum aldri.

IMG_1406

Með þeim spiluðu tónlistarmenn úr tónlistarskóla Ísafjarðar á fiðlur, Jón Sigurpálsson listamaður spilaði á kontrabassa, og svo eiginmaður Agötu Vilbert Viggósson borin og barnfæddur ísfirðingur.

IMG_1409

Þær tóku róleg lög í byrjun Though Philomela Lost her love, kvöldið er fagurt og glæsilegt verk samið sérstaklega fyrir kvennakórinn af Báru Grímsdóttur sem heitið Ís-köld ljóð.

IMG_1409

Þær sungu svo með kvennakór Ísafjarðar nokkur skemmtileg ljóð Vorvísa og Úr Hulduljóðim, og Elijah Rock.

IMG_1415

Eftir hlé kom svo karlakórinn Ernir, með Selju litlu, Fuglinn í fjörunni og það er löng leið frá Tipparrary.

IMG_1416

Í Seljulaginu sem er útsett af Vilberg Viggóssyni blístra þeir eitt ljóðið, og þeim er sumum meinilla við þetta blístur, svo ég gerði af skömmum mínum að taka örlitla nærmynd af þeim í blístrinu LoL Reyndar er útsetningin algjör perla.

IMG_1420

Eftir hléið komu þær eins og fermingarstúlkur inn og viðhöfðu suðræna tóna. 

IMG_1428

De Colores/litirnir. Bésame Mucho, A Mexican Lullaby, Flamencno Flamingos og Sway.

IMG_1434

Þær dilluðu sér og klöppuðu og það fór allur salurinn á ið.

 

IMG_1435

Svo gengu þær syngjandi fram, þær voru klappaðar upp nokkrum sinnum.

IMG_1438

En kirkjuvörðurinn sat bara og prjónaði peysu, hefur örugglega gengið miklu betur með söngnum.

IMG_1439

Hún er allavega mjög ánægð á svipin.

IMG_1441

Síðan sungu allir kórarnir saman nokkur lög.

IMG_1451

Ride thr Chariot, Rauði Riddarinn og Hest Jói, hér er svo framklapp eftir nokkur aukalög og söngfólk, hljóðfæraleikarar og stjórnendur fengu rós og vestfirskan harðfisk. 

Algörlega frábær skemmtun innilega takk fyrir mig.

En það var ekki allt búið, því við fórum síðan út að borða saman um kvöldið í Edinborgarhúsinu.

IMG_1455

Fyrstu gestirnir koma og gjaldkerin Andrés tekur við aðgangseyrir.

IMG_1456

Tveir flottir og í baksýn eru kórfélagar að blanda cocktail fyrir gestina.

IMG_1460

Hér er hún Sigrún mín sæt og fín.

IMG_1461

Konungurinn okkar Kristján tíunda þessi með stafinn. 

IMG_1465

formenn kóranna skiptast á gjöfum eins og alltaf er gert við svona tækifæri.

IMG_1467

Svo upphófust skemmtiatriði sem ekki voru af verri endanum, hér kemur upp kvennakór Ísafjarðar og söng frumsamið lag og ljóð eftir einn kórfélagan.

IMG_1468

Flottar þessar stelpur.

IMG_1470

Síðan skaut kvennakór Reykjavíkur Hesta Jóa í spað með frumsömdum texta við það ágæta lag BG.LoL

IMG_1473

Þeir ætla að taka hér söng sem heitir Ítalskt salad.  Salad d'Italia LoL

IMG_1476

Tekið var fram að kórinn sem slíkur bæri enga ábyrgð á einsöngvurum eða því sem þarna myndi gerast.

IMG_1477

Stundum geta þessir strákar alveg drepið mann LoL allt frá háæruverðugum yfirlækni til framkvæmdastjóra og milljónamæringa og öryrkja þeir eru allir eins glaðir og hafa gaman af að skemmta sér og öðrum. 

IMG_1478

Ég get alveg sagt ykkur að þetta er það skemmtilegasta ítalska salad sem ég hef meðtekið.  LoL Ef þið lendið á konsert hjá þeim, og fáið að biðja um lag þá endilega biðja um Ítalskt salad eða......

IMG_1479

Þeir eru búnir að koma kórsöng upp í aðrar víddir, þar sem leiklistin og óperan ná saman, en ég veit að þetta er stjórnandinn hún Beata sem kemur þeim til að leika sér svona, allavega leyfir þeim að gera svona sem betur fer.  Ég sé það sama eða svipað gerast í kórnum hennar Agötu.

IMG_1480

Sjáið svipinn á dýrunum. LoL

IMG_1481

Hver öðrum meiri grallari.

IMG_1488

Já Ítalskt salad.. það er málið.

IMG_1492

En ekki allt búið enn. 

Hér skammst grallarinn Viðar út í stjórnandann Beötu og sagði að hún skildi ekki að það þyrfti að syngja lög eins og VivaToote með tilfinningu og með karlmannlegan hugsunargang í huga. og ef þið eigið annað óskalag þá bendi ég á þetta.....

IMG_1495

Þeir sömdu textan sjálfir Viðar gruna ég helst, og þetta er ótrúlega fyndið.  Veifa túttum vilta Rósa.

IMG_1496

Ég get alveg sagt ykkur að salurinn lá í hláturskasti.

IMG_1499

Jamm klár í að stjórna Rósu.'

IMG_1500

Já það gengur á ýmsu, en rosalega er þetta góð skemmtun.

IMG_1502

Og það er stjórnað með tilþrifum.

IMG_1507

Maturinn var ekki af verri endanum eldaður í Tjöruhúsinu af meistarakokknum Magga Hauks og félögum, fiskur af öllu sortum.   Þeir eru snillingar.

IMG_1512

Sigrún stolt með soninn sinn sem svo sannarlega sver sig í ættina.

IMG_1513

Músikkantarnir Jón Sigurpálsson og Vilberg Viggósson.

IMG_1523

Kokkarnir og uppvartararnir á myndina vantar Magga Hauks.  En takk drengir mínir fyrir yndislegan mat.  Og innilega takk fyrir mig og þessa frábæru skemmtun Karlakórinn Ernir, kvennakór Ísafjarðar, og kvennakór Reykjavíkur. Heart


Kastljósið í gær, baráttan mín og áhugaleysi kerfisins við að lagfæra mestu mannréttindabrot á Íslandi.

Ég horfði á kastljósþáttinn í gær, og fann hvernig öll mín barátta rifjaðist upp.  'Eg tek innilega undir hvert einasta orð sem Jóhannes Kr. Kristjánsson sagði í þættinum.  Ég ráðlegg fólki sem missti af þættinum að horfa á hann hér:

http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4545105/2011/05/20/0/

 Árið 1998 þann 5. janúar skrifaði ég öllum alþingismönnum bréf og sendi með allskonar trúnaðarskjöl sem ég hafði aflað mér um einstakling sem er mér kær.  Bréfið hljóðar svo:

 

Ísafirði 5. janúar 1998.

 

 

 

Ágæti þingmaður íslenska ríkisins.

 

Er það ekki rétt hjá mér að þú sitjir á Alþingi til að gæta allra þegna kjördæmis þíns? Ég vil benda þér sérstaklega á hópi ungs fólks sem full þörf er á að kannað sé með sérstökum hætti, hvernig hægt sé að koma til hjálpar. Málið þolir enga bið.

 

Þetta eru fíkniefnaneytendur.

 

Ég er að tala um þá sem svo djúpt eru sokknir að þeir eru komnir í lögbrot. Ég er ekki að tala um unglinga heldur ungt fólk, alveg upp úr skalanum.

 

Í þjóðfélagi okkar er í dag litið á þetta fólk sem glæpamenn, en ekki sjúklinga – og þeir meðhöndlaðir samkvæmt því í okkar réttarkerfi.

 

Ég álít að það þurfi að fara í saumana á dóms – og réttarkerfi Íslands í dag, og færa þar hlutina til nútímalegra horfs.

 

 

Ef við ætlum að stefna að fíkniefnalausu landi árið 2002 þá er þetta einn af veigameiri þáttum sem þarf að lagfæra.

 

 

Það gengur ekki lengur að þessu fólki sé stungið inn í fangelsi án tillits til hvar og hvernig það er statt í lífinu, það brotið niður og síðan sent út á götu aftur án neinnar raunverulegrar aðstoðar. Fangelsi á Íslandi eru heldur ekki í stakk búin að taka við þessu fólki, þar sem aðeins mun vera einn sálfræðingur starfandi við stofnunina, engir læknar né félagsfræðingar. Ekkert fagfólk sem meðhöndlar”sjúklingana”.

 

Hér þarf líka að taka tillit til hvort fólkið sé að bæta sig og komið í nýtt líf, áður en það er rifið upp og sett í fangelsi fyrir brot sem það framdi í annarlegu ástandi löngu áður. Og hver er þá tilgangurinn með innilokuninni?

 

Til að sýna fram á fáránleika framkvæmda í málum þessa unga fólks ætla ég að senda hér með einstakt mál sem er mér tengt – ég vil taka fram að þetta einstaka mál verður að meðhöndla sem trúnaðarmál, því meiningin er auðvitað að þessi mál verði skoðuð í heild sinni og fundin mannsæmandi lausn fyrir “sjúklingana” okkar.

 

Stúlka mér tengd var komin ansi langt niður í fíkniefnaneyslu hún var búi að komast oft í kast við lögin. Hún átti nokkur börn sem höfðu verið tekin af henni að vísu til vandamanna hennar.

 

Þessi stúlka var búin að taka sig á, ástfangin, búin að gifta sig og komin með barn. Maður hennar var búin að vera fíkill lengi, reikandi og festi ekki tilfinningabönd við nokurn mann. Þessi tvö voru semsagt búin að finna hvort annað og farin að feta veginn þrönga og mjóa saman. En yfir hvíldi einn skugi, stúlkan átti yfir höfði sér 15 mánaða fangelsi. Hún var kölluð inn í ágúst s.l.

 

Ég gerði allt sem ég gat til að forða því að hún yrði sett inn, ég var hrædd um að þetta áfall yrði framtíð þeira svo þungt högg, að allt það sem áunnist hefði í þeirra lífi væri í hættu. Ég fékk vottorð fráheimilislækni þeirra, vottorð frá sálfræðingi sem ræddi við þau í nokrum samtölum og vottorð frá félgasfræðingi. Ekkert tillit var tekið til umsagnar alls þessa fagfólks. Og ég segi hefði ekki verið heppilegra í þessu dæmi að breyta dómnum í skilorðibundið fangelsi, og sjá hvort unga fólkið stæði sig ekki til langframa, heldur en að rífa litlu fjölskylduna í sundur og senda hana sitt í hvora áttina og taka áhægu á að þau færu aftur í sama horfið og litla barnið færi til annara. Og ég segi aftur og enn hver er eiginlega tilgangur fangelsisvistunar á Íslandi í dag.

 

Á hinum Norðurlöndunum eru allstaðar til lokaðar meðferðarstofnanir. Það er lífsnauðsyn

að koma slíkum á hér, þá er hægt að dæma fólkið í meðferð allt frá þrem mánuðum til árs eða svo.

 

Fangelsismálastofnun virðist starfa eftir mjög þröngt afmörkuðum reglum og ekkert svigrúm virðist gefið til mannúaðr á þeim bæ. Þessu verður að breyta.

 

Ágæti þingmaður ! Ég bið þig að lesa þetta bréf og meðfylgjandi plögg vandlega, og vita hvort þér finnst ekki ástæða til að skoða nánar aðstöðu og aðbúnað óhamingjusams fólks, sem vegna veikleika og kjánaskapar en ekki glæpaeðlis hefur lent milli steins og sleggju og er hjálparlaust og vonlaust í okkar velferðarríki.

 

Ég þekki nógu marga af þessu óhamingjusama fólki til að geta sagt að oftast er þetta yndislegt fólk, en veikgeðja og hefur þess vegna látið glepjast þangað til ekki varð aftursnúið. Við höfum réttindi og skyldur gagnvart þessufólki, við höfum ekki heldur efni á að missa það í dauðann, en þar enda allof margir ef ekkert verður að gert, annað hvort úr sjúkdómum eða fyrir eigin hendi. Það er margt sundurtætt foreldri úti í þjóðfélaginu sem hefur engin ráða til bjargar.

 

Opin meðferðarstofnun hefur ekkert að segja því að flestir þessa hóps eru komnir of langt til að vistast þar sem það getur gengið út daginn eftir. Ég segi þetta vegna þess að ég hef upplifað þetta sjálf og ég vil engum svo illt að ætla honum að ganga í gegnumslíkt helvíti, þar sem allt blandast saman ástin á afkvæminu, sjálfsblekkingin, lygin og vonleysið, reiðin út í eiturlyfjasalana og ekki síst reiðin út í kerfi sem frekar slær á hverja veika tilraun til sjálfsbjargar er að vera til hjálpar reiðubúið.

 

Virðingarfyllst ÁCÞ

 

 

Ég fékk svar frá tveimur þingmönnum en mér vitanlega hefur ekkert eða lítið gerst í þessum málum frá þeim tíma.  Þarna var þá þingmaður núverandi yfirmaður Litla Hrauns, sem að mér skilst er að gera ágætis hluti, en það er ekki aðalvandamálið.  Heldur algjört áhugaleysi kerfisins á málefnum unga fólksins okkar sem á í erfiðleikum. 

Takið eftir hvað Jóhannes segir um undirheimana.  Þetta er nákvæmlega það sem ég hef verið að benda á.  Takið líka eftir hvað hann segir um meðferðarstofnun, hann kallar það ekki beint lokaða meðferðarstofnun, heldur sérstaka og meinar auðvitað það sama og ég. 

Minn drengur er dáinn það hefði ekki þurft að gerast ef stjórvöld hefðu gripið inn í og komið af stað ferli til að laga þetta ómennska bákn sem fangelsismálin eru, læknarnir og stofnanir margar á vegum ríkisins KERFIÐ í heild.

Núna bara á þessum síðust dögum eru komin tvö morð framin af fólki í neyslu, örugglega án þess að ætla sér slíkt, en við þær aðstæður sem það var í missti stjórn á sér.  Einn maður liggur á gjörgæslu meðvitundarlítill eftir árás frá syni sínum, sem framdi þann verknað í vímu.  Allir þessir einstaklingar sem hafa nú um sárt að binda og skömmin sem mun hrjá þá héðan í frá er skelfilegri refsing en fangelsisvist.

Ég ætla að birta tvö bréf frá syni mínum hér til að sýna að bak við fíkla eru manneskjur með væntumþykju, kærleika og von um betri tíð.  Þetta er ekki bara númer á blaði, eða eins og Jóhannes segir í viðtalinu; þegar ég skoðaði skýrslurnar sá ég stimpilinn, það var ekki stimpill í eiginlegri merkingu heldur var hann þarna til staðar FÍKILL.

 

 

3.10.2002.

 

Elsku frænka mér finnst þú vera frábær. Trygg góð sterk svo ástbúin frænka. Ég upplifði furðulega og mjög góða tilfinningu í fyrsta skiptið, pældu, á ævinni, verur sem ég er búin að vera mikið umkringdur yfir ævina, rýfur burt vonleysi þunglyndi eymd og volæði. Hvað fimm fallegar ilmandi rósir og skilaboð um vináttu; ég vona að þú móðgist ekki en þegar ég þurfti að yfirgefa þennan ljóta langa ganga, stal ég þessu frá þér. Ég gat fundið fimm stráka sem ég kunni vel við og gaf þeim öllum (mána líka) rós með þessum orðum “gult er fyrir virðingu”. Ljóti langi gangurinn ljómaði hreint út sagt (kannski bara fyrir mig)en furðulegt. Jæja ég get ekki sofið klukkan er að verða fimm þennan þriðjudagsmorgun svo ég ætla að reyna og reyna og ... ég veit vel að þú hefur í óvenjulegu samstarfi, allt sem þitt vald megnar mér til handa og ég er rosalega þakklátur og ánægður fyrir. Mér finnst ekki væmið að segja að ég elska þig og snáðana þín líka innilega þar með talinn þennan stóra. Hafðu það sem best. Júlli.

 

 

2.10.2002.

 

Elsku mamma mín, sterkasta kona í heimi mig langaði til þess að tala aðeins við þig í gegnum pennan. Ég gæti aldrei fundið nógu stóra afsökun fyrir þig gagnvart því sem ég hef reynst þér.

Ég virðist vera að versna það hefur kannski farið í hausinn á mér.

 

Þú getur ekki hafa fundi neina reiði eða eitthvað í þá veru frá mér vegna þessa sviptingarmáls, því það skil ég ósköp vel.

 

 

Það er erfitt að eiga lítin gosa þessa dagana því ég get ekki annað en hræðst það að hann gæti

líkst foreldrum sínum þ.e.a.s. slæmu hliðunum. En hann hefur þó forvörnina og vel veit ég að bæði ég og Jóhanna höfum margt til að bera það þarf bara að leiðbeina honum vel, ég gæti aldrei sagt (ég vildi að ég ætti ekki barn)því hann er hjarta mitt og að sem ég lifi fyrir, því ég veit að hann er búin að bjarga mér oft frá því er ég veit að ég á ekki að gera.

 

Læknirinn sem kom í gær var vægast sagt óhepppilegur ég hafði einu sinni farið á stofuna til hans, sem endaði með rifrildi og ljótum orðum. Ég man ekki nafnið á honum en er hann sat hér í klefanum með lögregluþjón í gættinni (engin trúnaður eða slíkt) að þetta var ekki leiðinlegt fyrir hann að segja mér að ég væri ekki í lífshættu, svo hann ætlaði ekki að gera neitt mér til hjálpar. Ég gæti bara byrjað meðferðina strax, eitthvað tiltal fékk hann þó, því ég fékk 30 mg af líberíum í staðinn fyrir 150 sem ég var á niður á Skólavörðustíg og þar er annar svipaður læknir ögn skárri þó.

Jæja þetta var ekki ætlum mín að kvarta og kveina. ******* hringir í mig á eftir því hitt var eingöngu fyrir 1 dag. Mig langaði bara að þakka þér þína óbilandi þolinmæði líka styrk og segja þér að éger stoltur af kjarnamömmu.

 

Gott finnst mér líka að þið krosstrjáasystur standið og vinnið saman á við fimm fótboltalið þegar þið teljið nauðsyn. Eitt er vont, gott hjá mér því ég má ekki sjá tré né hellulögn því þá huga ég um að þarna gæti ég ásamt fjölskyldunni verið við vinnu(áhugi) Mér finnst pabbi vera einstakurmaður því sennilega voru þeir er hefðu unnið jafn hart og lengi orðin eitt hrúgals, ég vildi bara að hann væri blóðfaðir minn líka.

 

Nú er ég orðin orðlaus enn og aftur þúsund þakkir og þúsund kossar Júlli.

 

P.S. Kyssið og knúsið litla manninn frá mér. Bless bless.

 OOOOOOOO

Málið er að kerfið hefur stimplað þennan hóp sem glæpamenn og aumingja sem eiga ekki neinn rétt á neinni aðstoð frá þeim sem þykjast vera meiri og betri en þau.  Og þessi læknir hringdi aldrei og þottist ekki vera við, svo við urðum að hafa samband við þá á skólavörðustígnum og kvörtuðum til landslæknis sem sendi kvörtunina beint hingað heim til þeirra sem kvartað var undanDevil Þar með gat hann fríað sjálfan sig. 

 

 

Hér að lokum er svo endir á bréfi til Kerfisins frá árinu 2003.

 

 

Endir á bréfi til yfirvalda.

 

 

Reynsla mín af því að eiga afkvæmi með fíkniefnavanda hefru í raun sannfært mig um eftirfarandi:

 

1a Fangelsisvist sérstaklega í upphafi neyslu hefur meiri skaðleg áhrif heldur en bætandi.

1b Leiðir það að auki af sér meira tjón hjá fyrirtækjum og hinum almenna borgara með fjölgun

innbrota.

2 Óviðunandi er að sá biðtími sem er frá því að menn eru handteknir fyrir afbrot og þangað

einhverskonar úrræði finnst (fangelsi) Á þessum tíma eru neytendur komnir í mikla neyslu

sem þeir þurfa stöðugt að fjármagna.

3 Fangelsi er ekki viðeigandi úrræði fyrir fíkniefnaneytendur. Vegna þess að þau vinna frekar að því að taka þá út úr venjulegu lífi(einangrun frá samfélaginu) og skerðir frekar hæfni

til að takast á við lífið.

  1. Í dag er enginn stofnun sem tekur viðmjög langt leiddum neytendum í afvötnun ogmeðferð. Því er vonlaust fyrir aðstandendur að koma þeim í meðferð með þeirra samþykki og viljastyrk nákvæmlega á sama tíma og þetta er ekki fyrir hendi.

Meira að segja Geðdeild L.H. Deild 33a hleypir sjúklingum út þrátt fyrir áhyggjur aðstand-

enda og vissu um að hann ræður ekki viðneyslu.

Það mun borga sig að takast á viðfíkniefndavandann með því að bygja upp traust úrræði, því sparast mjög mikið fjármagn fyrir utan að mannslíf er ekki hægt að ameta til fjár.

 

 

Það má benda á eftirfarandi kostnaðarliði.

 

Kostnað við heilsugæsluog lyfjagjöf.

“ við löggæslu, handtökur og dvöl í fangelsum.

“ vegna félagsþjónustus vegna styrkja og fjárhagsaðstoðar.

“ tryggingarfélaga vegnablóta.

“ hins almenna borgara vegna þess að eigur hafa stundum persónulegt gildi.

“ tilfinningalegan kostnað aðstandenda sem þurfa að horfa hjálparlaus upp á neyð ástvinar.

“ mikil fíkniefnaneysla gerir fólk óvinnufært og þar tapast mannauður.

“ við allar meðferðarstofnanir sem eruopnar og hafa ekki nægilegt aðhald fyrir illa farna neytendur.

 

 

Verðurg væri að athuga hversulangur tími líður frá handtöku til fangelsunnar og hversumiklu tjóni fíklar valda á því tímabili og hversu margir brjóta af sér eftir að afplánun lýkur. Er félgasvist lausn á vanda fíkniefnaneytendaárið 2003?

Jæja ég vona að þeir sem hafi áhuga á þessum málum hlusti á viðtalið við Jóhannes og lesi þetta langa mál sem ég hef að segja. Ég hef geymt öll bréf vottorð og slíkt og einhverntíman mun þetta allt koma fram á prenti.  Ég hvet því KERFIÐ til að fara að standa í lappirnar og laga þessi mál, svo þau standi ekki eins og steintröll þegar umræðan kemur öll upp á yfirborðið og umsagnir um meðferð Kerfisins á þessum öðruvísi börnum okkar. Það verður erfitt að horfast í augu við. 


Afmæli Sólveigu Huldu, veður á Ísó og opnun listgallerís.

Litla Sólveig Hulda á afmæli í dag.  Yndislega káta litla hnátan okkar allra.

IMG_5180

Með stóru systur og stóra bróður Daníel vantar á myndina.

IMG_1568

Þessi stelpa er alveg ákveðin ung dama.  Hún býr núna í Noregsi og amma saknar hennar rosalegal mikið.  Innilega til hamingju með daginn elsku dúllan mín Heart

IMG_1382

Það er kuldalegt um að litast.

IMG_1383

En inni brosið Pernilla hamingjusöm yfir að vera inni.

IMG_1384

Og líka Nína Weibull. 

En ég fór á opnun á nýju galleríi í dag sem er í Rammagerð Ísafjarðar, þar hafa nokkrar ungar konur tekið sig saman og opnað gallerí með allskonar listmunum sem þær hafa sjálfar skapað. Virkilega skemmtilegt og fróðlegt.

IMG_1386

Verk þeirra eru margvísleg allt frá glerlistaverkum í lopaþæfingu og allskonar myndum og allt þar á milli.

IMG_1387

Smá hluti af listverkum kvennanna.

IMG_1388

Hálsmen og eyrnalokkar líka.

IMG_1389

Smásýnishorn af hinum mismunandi verkum.

IMG_1391

Hér er margt að skoða og margar hugmyndir af góðum gjöfum.

IMG_1390

Og gestirnir létu sig ekki vanta, hér eru Sigrún og Kristján Viggósbörn.

IMG_1392

Spjallað og spekulerað.

IMG_1393

Og Billa sér um að gestirnir fái eitthvað gott í gogginn.

IMG_1394

Frábært framtak hjá stelpunum.

IMG_1396

Þjóðleg listaverk í gömlu og þjóðlegu húsi.

IMG_1397

Þegar ég var að alast upp þá var hér benzínstöð mig minnir að afgreiðslumaðurinn hafi heitir Rögnvaldur, hann bjó á eftir hæðinni en verslunin var hér niðri og ennþá haldið í gömlu innréttingarnar.

IMG_1400

Hér eru svo þessi flottu listamenn.

IMG_1401

Ég hvet fólk til að kíkja við hjá stelpunum, hér er margt að skoða og kaupa.

Innilega til hamingju stelpur mínar með framtakið og gangi ykkur vel. Wizard


Tvær góðarfréttir í dag.

Þessi frétt snerti streng í mínu hjarta.  Ég er svo ánægð með að heyra um fólk sem ann náttúrinni og ber ábyrgð á sínu nærumhverfi. Það mætti vera miklu meira um svona góðar fréttir.  Mér þykir líka vænt um tjaldinn, hann kemur hér í fjöruna á hverju ári, sömu hjóninn á sömu stöðunum, nema þeir tjalda ekki við sjóinn heldur í stæðum í brekku fyrir ofan aðalveginn inn í bæinn.   En stutt í fjöruna. 

 

Hin góða fréttin var þessi:

Ég var spurð að því hvort ég myndi styðja hreyfingu sem leggði áherslu á Fjölskyldumál og hagsmuni heimilanna, ég var ánægð með þessa spurningu en gat ekki svarað henni á annan hátt en þennan.

 

 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir Takk fyrir spurninguna . Ég get ekki flokkað svar mitt með þessum þremur spurningum. Ég vil að þessi fjölskylduhreyfing innihaldi fleiri til dæmis Frjálslynda flokkinn sem ég er flokksbundin í, Hreyfinguna og þau í vinstri grænum sem kallast villikettir. Þá myndi ég kjós þann flokk afar glöð. Annars mun ég sjá til. Ég held að það sé komin tími til að við grípum inn í flokkadrættina og spillinguna með samstilltu átaki. Allir þeir sem standa utan þessara flokka, að við náum að leiða saman hesta okkar og samstilla átakið, og sýna að við getum unnið saman til betra lífs fyrir íslenska alþýðu. Ef þetta er ekki hægt, þá munum við áfram vera einhver lítil flokksbrot og ekki hafa nein áhrif. Þetta er því mælikvarðin að mínu mati um hvort okkur tekst að brjótast út úr þessu helsi sem við erum í. Með vinsemd og virðingu.
c_documents_and_settings_jon_steinar_desktop_hvitur_fani2
Ég held að við sem ekki viljum halda áfram þessu vonlausa basli við óhæf stjórnvöld og óhæfa stjórnarandstöðu verðum að fara að taka okkur saman og sýna viljannyrir verkið og tala okkur saman, þeir litlu flokkar sem eru innan og utan þings.  Við sem viljum hag almennings sem allra bestan.  Ef þessi flokksbrot og einstaklingar geta ekki komið sér saman um sameiginlegt framboð, þá er engin von til þess að við náum neinum árangri.  Við þurfum nefnilega að sýna í verki að við virkilega viljum setja okkar eigin hagsmuni til hliðar og sameinast um að vinna þjóðinni sem mest gagn.  Það þarf að velja vel. Ég hef mikla trú á Hreyfingunni og þeim úr Vinstri grænum sem hafa verið hraktir burt úr þingflokknum vegna þess að þau voru trú sinni sannfæringu.   Og ég hef trú á Frjálslyndaflokknum og mörgum einstaklingum utan flokka eða sem láta flokkshagsmuni lönd og leið og hafa sýnt það með skrifum sínum og framkomu að þeir vilja hag okkar allra sem bestan.
Núna er  tækifærið til að sameina þessi öfl og fara að tala saman um það sem gerir okkur að traustsins verðum einstaklingum og félagasamtökum og sýna fram á það við getum unnið saman og að við virkilega viljum bretta upp ermar og breyta goggunarröðinni, senda klíkuskapinn til síns heima og uppræta landlæga spillingu.
Það væri gott að byrja á að halda einhverskonar fund með þeim einstaklingum sem vinna að þessu nýja framboði og talsmönnum þeirra sem ég hef talið upp, og jafnvel fleiri einstaklinga.  En það tekst ekki að sameina þessa aðila, þá getum við bara gleymt þessu. 
c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981[1]

mbl.is Gerði flotbryggju fyrir tjaldinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tónlistabærinn Ísafjörður.

Einir af hinum árlegu tónleikum Tónlistarskólans voru í Hömrum í gærkvöldi, í vor hafa verið hvorki meira né minna er 9  tónleikar á vegum skólans. 

Úlfur var að spila í gærkvöldi, ég mætti að vísu of seint fyrir misskilning.  En það er alltaf jafn gaman að fara og hlusta á krakkana spila, sérstaklega þessi yngstu sem varla standa út úr hnefa.  En allavega ég mætti áður en Úlfurinn minn átti að spila.

IMG_1365

Hann spilaði trommusóló og það var afar vel gert.

IMG_1366

Flottur Heart

IMG_1369

Þetta er Laufey Hulda hún spilaði eigin útsetningu á River Flows in you.

IMG_1370

Aron Ottó.  P.Groisman:  Lento.

IMG_1371

Sigríður Salvarsdóttir, F. Chopin: Prelúdía í A dúr.

IMG_1372

Hilmar Adam. J. Brahms: Ungverskur dans nr. 5. 

IMG_1373

Þetta er hún Perla.

IMG_1374

Söng eigið lag og texta.  What Do I Gotta Do.

IMG_1375

Aron Guðmundsson.  Colin Downs: I Spy.

IMG_1376

Elvar Ari. F. Chopin: Vals í H-moll op 69 nr. 2.

IMG_1377

Snorri S.  H.Villa Lobos: Prelúdía nr. 4.

IMG_1378

Hanna Lára.  F. Chopin: Nocturne í Cís-moll.

IMG_1379

Kristín Harpa.  F. Chopin: Vals í Cís-moll.

Eins og ég sagði þá missti ég af öllum fyrri hluta tónleikanna því miður.  Krakkarnir stóðu sig afar vel og yndislegt að hlusta.  Við eigum svo marga góða tónlistarmenn og kennararnir eru frábærir, það heyrist á svona tónleikum.  Bæði færni og falleg framkoma ramma svo inn þessa frábæru skemmtun.  Innilega takk fyrir mig.

IMG_1363

Úti var ekki eins unaðslegt.  En samt fallegt.

IMG_1380

En eftir þessa viku ætti þetta að vera búið og sumarið getur haldið innreið sína í líf okkar.

IMG_1381

Það er notalegt að þurfa ekki að vera að brasa úti í beðum á svona dögum. 

Eigið góðan dag. Heart


Sextugsafmæli, heimsókn erlendis frá og börnin í kúlu.

Ég fór í sextugsafmæli í gær hjá Doktor Þorsteini Jóhannessyni, þetta var feiknalega flott veisla og ekkert til sparað í mat drykk og skemmtiatriðum. 

En hér hefur undanfarið verið mikið um ungt fólk ég er ánægð með að þau sækjast fremur í að vera hér, tjalda upp í hlíð og leika sér í tölvum hér heima en að þau séu einhversstaðar að flækjast í bænum.

IMG_1278

En mér líður vel að sjá alla þessa togara aftur við höfnina.  Minnir á gamla daga.

IMG_1281

Þetta ágæta fólk kemur frá Þýskalandi, er að kynna sér orkumál og vistvæn hús og svoleiðis á vegurm Háskólaseturs.  Við vorum beðin um að sýna þeim okkar hús, sem var alveg sjálfsagt, þetta er ekki í fyrsta sinn sem hópur kemur hingað til mín á vegum háskólasetursins.  Þau spurðu mikils og dáðust að húsinu og garðinum.  Plönturnar hér eru á sama stigi og í Berlín sagði einn þeirra.  Og hér er vínberjaræktun og kamilla og allar þessar plöntur.  Já svona er þetta bara, við lengjum sumarið um allavega 3 til 4 mánuði sem er ekki svo lítið.

IMG_1283

Amma okkur Úlf langar svo í súkkulaði köku sagði Alejandra, og svo bökuðu þau auðvitað súkkulaði kökuSmile

IMG_1285

Kvöldstund með þessu fræga Ísafjarðarlogni.

IMG_1287

Himnagalleríið opið líka.

IMG_1288

Strákarnir búnir að koma sér vel fyrir í kjallaranum.  Ekki með hljóðfæri í þetta sinn heldur tölvuleiki.

IMG_1290

Litli stubburinn okkar.

IMG_1291

Stelpurnar ákváðu svo að tjalda upp á lóð.

IMG_1292

Afi þurfti að hjálpa þeim að setja upp tjaldið.

IMG_1293

Enn aftur fallegt kvöld.

IMG_1294

Og máni gamli nánast fullur.

IMG_1296

Þær eru örugglega á facebook stelpurnar. LoL 

En svo er það afmælið hans doktor Þorsteins.  Ég ætla að birta nokkrar myndir af því, og þá er ég líka með í huga ykkur elskurnar sem eru brottflutt, þarna eru mörg andlit sem þið hafið ef til vill ekki séð lengi.

IMG_1298

Hér heilsar afmælisbarnið veislugestum sínum.

IMG_1297

Og veisluföngin eru ekki af verri endanum. 

IMG_1300

Hér er hún Svana Sörensen, ég birti þessa mynd fyrir strákana hennar sem voru heimagangar hjá mér hér í den.

IMG_1301

Við erum að missa þessi tvö til Noregs, vegna ástandsins.  Sorglegt en satt.

IMG_1302

Afmælisbarnið hélt góða ræðu, og var beinskeyttur um sjálfan sig og þakkaði öllum fyrir samveruna.

IMG_1304

Svana og Anna Lóa alveg eins og þær voru í den.

IMG_1316

Hún söng uppáhaldslagið hans pabba síns af innilfun.

IMG_1317

Afmælisbarnið og fjölskyldan.

IMG_1318

Kórinn komin upp á svið, og kalla afmælisbarnið upp.

IMG_1321

Þeir sungu svo fyrir hann Selja Litla í nýju útsetningunni og svo frumsamið ljóð eftir einn úr kórnum.

IMG_1323

Veislan fór fram í veitingahúsinu Vesturslóð í Edinborgarhúsinu, öðru af menningarhúsum bæjarins.

IMG_1325

Ég þekki ekki til þessara, en myndir er svo skemmtileg.

IMG_1326

Og svo var hljómsveit auðvitað.

IMG_1327

Karlakórinn Ernir, þeir eru frábærir.

IMG_1329

Og kórfélaginn söng með af tilfinningu.

IMG_1333

Börnin spiluðu svo fyrir pabba sinn. 

IMG_1337

Ég og Laufey þessi elska.  Hún var að vinna hjá mér allavega eitt sumar í garðyrkjunni, og mér hefur alltaf þótt vænt um hana síðan.

IMG_1338

Tvær glæsidömur, ég held að frú Geirþrúður Charlesdóttir verði alltaf glæsilegri með hverju  ári.

IMG_1339

Tónskáldið okkar Jónas Tómasson, mágur Hjálmars H. Ragnars.

IMG_1340

Skvísur og þarna má sjá Lenu Sigurðardóttur líka.

IMG_1341

Aflaklóin Sigurður Hjartarson (Stapa) 

IMG_1342

Allir virtust skemmta sér mjög vel þarna.

IMG_1344

IMG_1345

Addí frænka mín.

IMG_1346

Þetta var eins og í gamla daga, þegar stólum var raðað meðfram veggjunum á böllunum og svo var dansgólfið frítt, þó var ekki dansað þarna bara rölt um með glösin og serviettur með góðgæti.

IMG_1348

Sigríður Ragnar skólastjóri Tónlistarskólans á Ísafirði og Gunnar Jónsson einn af mestu heiðursmönnum sem ég þekki.

IMG_1350

Tvær flottar.

IMG_1355

Þrír feðgar.

IMG_1357

Það er tveir bræður og pabbi þeirra.

IMG_1360

Svo var komið að vinnufélögunum á sjúkrahúsinu að færa sína gjöf, sem var auðvitað á heilbrigðum nótum hlaupaskór og græjur.

Þetta er nú meiri upptalningin, en ég hef svo lítinn tíma þessa dagana til að setjast og skrifa, því vorið bíður eftir mér.  Núna er sólin búin að hita upp, og ég þarf að fara að sinna blómunum.

Eigið góðan dag Heart

 


Jóróvisjón, vinir Sjonna og fjölskylda.

Það var frábært að við skyldum komast upp úr forkeppninni.  Það var út af einlægninni og reyndar sögunni um listamanninn sem lést í miðjum draumi.  Sumir hafa sagt að það sé vegna samúðar sem þetta lag fór út.  Það getur svo sem vel verið, ég hafði kosið annað lag, þetta með Jóhönnu Guðrúnu, einkar fallegt og vel sungið.  En ég sætti mig alveg við að einmitt þetta lag var valið.  Samúð er falleg hugsun, og hún á alveg jafnmikinn rétt á sér og annað fegurðarskin.  Það er því ekkert niðurlægjandi við að lagið hafi komist áfram út af samúð. 

Það er einmitt það sem vantar svo oft í mannleg samskipti það er samúð og kærleikur.  Hér var hún í sinni tærustu mynd, bæði að heiðra látinn eiginmann og vin, með því að bera áfram hans hjartans ósk um að fá að fara og keppa í júróvisjón. 

Fyrir suma kann þetta að virðast hjómið eitt.   En svo eru aðrir sem skilja að það er gott að sjá drauma sína rætast.   Og ekki síður að ef maður getur ekki sjálfur látið drauminn rætast að bestu vinir og ástvinir beri drauminn áfram og slái í gegn.  Það er frábært. 

eurovision_png_455x350_sharpen_q95

Það er einmitt þessi einlægni og væntumþykja sem mér finnst svo falleg.  Og þau eru ekki að vænta neins frekar en bara að hafa fengið tækifæri til að komast í aðalkeppnina.

Ég ætla að hlusta á morgun, og ég ætla svo sannarlega að fylgjast með á laugardaginn og krossa fingur og tær fyrir okkar fólk.  Og ef þau vinna á einlægninni og kærleikanum þá er það viss sigur fyrir okkur sem viljum betri heim.

Ég hélt satt að segja þegar bara eitt land var eftir að Noregur myndi vinna, þó hugsaði ég með mér að þau lönd sem höfðu þegar komist í undanúrslit eins og finnska lagið og ballaðan frá man ekki hvaða landi, að þá væri líka von fyrir okkar fólk, og svo fór. 

Ég var stödd í Osló þegar keppnin fór fram þar.  Við höfðum öll á tilfinningunni að lagið hefði þegar verið valið.  En þarna voru að minnsta kosti tvö lög sem mér fannst miklu betri.  Ungir krakkar frá norður Noregi Samar, og flott söngkona með yndislega ballöðu.  Svona eftir á að hyggja tel ég að bæði þau lög hefðu átt meiri frama von en lagið hennar Stellu.

Því eru sennilega vonbrigði norðmanna því meiri ef þeir hafa glapist á að koma þessari skutlu að á kostnað annara. 

Ég er farin að hafa smá von um að almenningur sé farin að skynja það hreina, einlæga og góða.  Og taka það fram yfir sjófið og gellustæla og strákastæla.  Þetta einlæga og fallega er sem betur fer farið að skila sér betur, og það er tákn um betri tíma og þroska fólks, segi og skrifa. 

Vinir Sjonna og fjölskylda ég ætla að vona að þið komist sem lengst á laugardaginn.  Þarna er falleg hugsun á ferð sem á algjörlega rétt á sér.  Gangi ykkur vel og ég mun hvetja ykkur í huganum fyrir framan sjónvarpið.  Heart


Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2011
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband