Illugi Jökuls þolir ekki gagnrýni..... Eða þannig.

ÓÓ einu sinni var Illugi Jökulson idolið mitt, eða þannig.  ég vaknaði á morgnana til að hlusta á pistlana hans meðan hann var í útvarpinu, og mér fannst hann æði.

Svo einhverntímann á leiðinni þegar ég hafði bundið trúss mitt við Frjálslyndaflokkinn, þá skrifaði hann rætna grein um Guðjón Arnar fermingarbróður minn og skólabróður sem ég þekki vel frá barnæsku, og veit hverslags öðlingur hann er.  Ósanngjarna grein og lygaþvælu um að Addi væri rasisti og ég veit ekki hvað.  Hann sem er kvæntur pólskri konu og hefur ekki bara tekið að sér sem sín eigin börn hennar og alla hennar ættingja og vini.  Addi er ekki fyrir fimm aura að gera upp á milli þjóða.  Hann gerir aftur á móti upp á milli góðs og slæms.

Nú, sem sagt ég las pistil Illuga um úttekt á kosningunum.

Af þessum skrifum veit ég vel að Illugi myndi aldrei kjósa Frjálslynda flokkinn, þar sem greinilegt er að sá flokkur fer rosalega í taugarnar á honum.  Um okkar forystukonu í Reykjavík þá vönduðu og góðu konu Helgu Þórðardóttur hafði hann þetta að segja í skrifum sínum um hugleiðinar hvað hann ætti nú að kjósa.

http://www.dv.is/blogg/tresmidja/?sida=2

 

Jamm þetta hafði hann að segja um flokkinn og hana. 

Hvað Helgu Þórðardóttur frá Frjálslynda flokknum, þá efast
ég ekki um að þetta er vel meinandi kona. En ekki gat ég hugsað mér að velja
hana eftir Kastljós kvöldsins.

Ég sagði eitthvað á þá leið að einhvern tímann myndi lygin springa framan í hann.  Og viti menn, allt í einu er lokað fyrir komment. Eða þannig, nú stendur þarna.......

ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

Í fyrirsögn bloggs hans stendur:

Trésmiðja

Illuga Jökulssonar

Þetta er bloggsíða, ekki fréttasíða.
Þetta er safn hugleiðinga um hvaðeina milli himins og jarðar, ekki dagbók.
Þetta er trésmiðja, ekki aftökupallur.

Svo virðist sem ég hafi tekið karlinn af lífi, því hann virðist ekki þola að fólk andmæli honum.  Þannig að elsku karlinn eina ráðið sem hann kann er að loka fyrir óæskilegar athugasemdir.

það er oft svo að þeir sem eru beittastir í gagnrýni sinni, þola alls ekki gagnrýni sjálfir.  Leitt að vita.  Því að mörgu leiti er Illugi góður penni og flottur í skrifum.  Þ.e. þegar hann ekki dettur niður í fordóma og lætur leiða sig út í hatursáróður um flokka og fólk, án þess að kynna sér málefnin og hvað viðkomandi standa fyrir.

Illugi það er vond pólitík að hoppa svona ódýrt á niðurstöður.  Ég legg til að þú lesir þér til um málefnasamning Frjálslynda flokksins og skiljir hvað við erum að fara.  En ekki bara dæma út frá einhverju sem þú grípur upp af götunni.  Ég ætlaði þér meira en það svei mér þá.


Bara svona beint frá hjartanu.

Jæja hér er ég aftur.  Hera Björk var frábær í Júróvísion.  Ég er samt alveg sátt við sigur þjóðverja.  Stúlkan sú var líka frábær.  En ég er hugsandi yfir öllum hnjákollu og mjaðmaskjálftagellunum sem dansa í minipilsum eða þaðan af minna, til að undirstrika karlsöngvara sem láta ljósið skína.  Hvenær ætlum við virkilega að sjá að þetta er bara eitthvað 2007.  Hera Björk var okkar fjallkona og þær voru allar yndislegar og flottar, öruggar og heilbrigðar sterkar konur.  Allof margar söngkonur féllu í þessa gryfju að sýna líkama sinn og iða sér og rugga.  Sorrý ég er búin að fá nóg af þessu.  Ef röddin er ekki nóg þá á að vinna þetta upp með sexapeal. 

Kosningarnar voru líka vonbrigði fyrir mig.  Ég er orðin þreytt á stöðnuninni í mínu samfélagi.  En ég verð að virða vilja kjósenda.  Þeirra var valið og þetta var útkoman, verði þeim að góðu.  Það þýðir ekkert að koma til mín og röfla um eitt né neitt.  Ég mun láta fólk vita að ég hafi misst trú á heilbrigðri skynsemi fólks.  Þannig er það bara.

Það var líka skondið að hlusta á fjórflokkinn keppast um að ræða að þau hafi unnið stóran sigur.  Það varð einhvernveginn svo hjáróma og einmitt að sem fólk var að reyna að segja þeim að þau væru úti á túni.  Nákvæmlega það sem þau eru.  Jón Gnarr líka úti á túni og svei mér ef hann veit hvað snýr upp eða niður á sjálfum sér eða hvað eigi að gera næst.  Hanna Birna skælbrosandi fölsku brosi, ég get svarið það að fýlusvipurinn hentar henni betur en þetta bros.  Jóhanna veit að þetta eru skilaboð, en ekki til hennar.... óney hún ætlar sér að halda áfram.  Og auðvitað vilja þau ekki kosningar til alþingis á næstunni, segir sig sjálft.  Hvað þarf annars margar undirskriftir til að krefjast annað hvort kosninga eða utanþingsstjórnar?

Sóley Tómasdóttir hversu heilsteypt sem hún er og heiðarlega að mati formannsins, þá einfaldlega hefur hún ekki það vægi sem þarf til að vera í fronti í framboði.  Menn verða bara að viðurkenna það.  Hún er eins og viðkvæmt blóm sem segir hluti sem fæla menn frá.  Hún er hinn endinn á Hönnu Birnu. 

Enginn veit hvað gerðist í raun og veru.  Þegar þokan fer og menn fara að sjá það sem gerðist, er ég ansi hrædd um að kaldur og napur raunveruleiki blasi við pólitíkusum.  Þeir hafa ekki náð skilaboðunum alveg.  En það mun renna upp fyrir þeim smátt og smátt, því þetta er bara byrjunin alveg eins og Þórhildur Þorleifsdóttir sagði. Nú er skriðan komin af stað, og almenningur hefur fengið tána inn fyrir hurðargatið.  Þá verður ekki hægt að skella hurðinni á okkur. 

Smám saman holast steinninn og fólk getur farið að fara upp úr hjólfarinu sem það hefur verið í allof lengi og sjá allt sem er að gerast.  Allt falsið, lygarnar, leikaraskapinn og samtrygginguna sem þetta fólk hefur skapað kring um sig með fúslegu leyfi fjölmiðlamanna og embættismanna, því þar er samtryggingin ennþá algjör.

Ja fussum svei mannaþefur í helli mínum!!!


Meiri pælingar um pólitík og allt þar á milli.

Ég vil nú eiginlega byrja á að biðja ykkur bloggfélaga fyrirgefningar á hver lítinn tíma ég hef núna fyrir blogg.  Ég er á kafi í vinnu, bæði hjá bæjarfélaginu mínu og svo að opna garðplöntustöðina.  En svo er ég líka í smá sálarkrýsu, þarf að berjast við ælu á morgnanna og sef illa á næturna.  Vakna yfirleitt um hálf fjögur og þarf að fara í vinnu kl. sjö.  Það er samt önnur saga.  Sennilega taugarnar... eða þannig. Devil Það er margt sem mæðir á.

En áfram með tilfinningar.   Mér finnst stundum eins og það sé alltaf verið að plata okkur almenning, annað hvort með því að leyna okkur því sem er að gerast; lesist hrunið og því sem þar fylgdi, þöggunina og alles.  Síðan mottóið hennar Jóhönnu um að menn ættu ekki að gagnrýna opinberlega samstarfsmenn sína.  Allt á að vera leyndó.. til gagns hverjum? ekki almenningi allavega. 

Það rifjaðist upp fyrir mér í dag, nákvæmlega daginn fyrir kosningar síðast, þ.e. sveitastjórnarkosningar fyrir fjórum árum, að Í-listanum sem er samtök þriggja flokka, Frjálslynda flokksins, Vinstri grænna og Samfylkingar, var spáð sigri í kosningunum.  Það greip um sig einhver örvænting hjá Sjálfstæðismönnum, og það sem mér þótti hvað verst var að upplifa að nokkrar konur þaðan, flottar skeleggar konur, sem ég leit upp til og treysti, og þar af allavega ein vinkona mín létu einhvernvegin hafa sig í að setjast niður á Langa Manga kaffihúsi og hringja út til fólksins á svæðinu, ef Í-listinn kemst að þá verður Langa Manga lokað, ef Ílistinn kemst að verður ekki malbikað meira á Hlíðarveginum só and só.  Þegar ég heyrði um þessar upphringingar eftir kosningar, þar sem Ílistinn fékk ekki það sem spáð var, heldur hélt meirihlutinn sínu, þá varð ég döpur.  Einhvernveginn held ég að ég myndi ekki gera svona.  Og ég hef oft hugsað um það síðan, af hverju lætur fólk hafa sig út í svona hluti?  Gott fólk og vel þenkjandi, sem einhvernveginn sogast inn í hringiðu stjórnmálanna og lætur hafa sig í svona svikamyllu?  Af hverju getum við ekki bara treyst á málefnastöðu okkar og leyft fólki að vega og meta verkin sem gerð hafa verið?  Getur verið að verkin hafi ekki sagt alla söguna?

Verkin sýna merkin segir einhversstaðar.  Og ef fólk hefur staðið vel við sín kosningaloforð og gert það besta fyrir bæinn sinn, þá þarf einfaldlega ekki að beita svona bolabrögðum.  Og það er lítillækkandi fyrir viðkomandi í þessu tilfelli góðar manneskjur sem létu hafa sig út í svona leirslag.

Í svona litlu samfélagi þá fréttist hvort sem er allt.  Meira að segja þegar einn af forystusauðum í einum flokki, mætir á sellufund hjá öðrum.  Þá kjamsa þorpararnir á því.   Enginn spyr opinberlega, og því fær viðkomandi ekki að tjá sig um hvað hann var að gera á neyðarfundi annars flokks?

Ég er svona að fabúlera um þetta, því mér finnst stundum eins og oft sé verið að fela sannleikann fyrir okkur almenningi.  Leika eitthvað númer, reyna að hafa andstæðinginn undir og koma að allskonar sögum sem erfitt er að átta sig á.  Þetta sést greinilega í Borginni, þar sem fjórflokkurinn reynir allt hvað hann getur að kasta rýrð á Besta flokkinn, af því að hann ógnar fjórflokknum. Ég hef séð í DV af því ég kaupi blaðið reglulega að þeir hvað eftir annað koma sér hjá því að nefna Frjálslynda flokkinn á nafn, af hverju Reynir minn?

Hanna Birna er eins og hún sé ein í framboði fyrir eitthvað allt annað en Sjálfstæðisflokkinn, því félagar hennar eru meira eða minna í krísu út af mútufé.  Hún sjálf er á kafi í allskonar plottum.

Á Ísafirði er nýtt framboð sem kallar sig Kommonista.  Þetta er ungt fólk sem gefið hefur kost á sér til bæjarstjórnar.  Það hefur ekki farið leynt undanfarið sögusagnir um að litil frændi minn Gunnar Atli sé potturinn og pannan í þessum lista.  Það var svo birt opinberlega í DV, ekki bara frétt heldur tilvísun í bréfaskriftir milli hans og annara í þessum nýja lista.  Ég get vel skilið að ungt fólk geri skyssur, reynslulítið fólk sem vill koma sínum málum á framfæri, hugsar ekki alltaf rökrétt, það er réttur unga fólksins okkar. 

Málið er að þessi flotti frændi minn er jafnframt formaður í Félagi ungra sjálfstæðismanna, svo málið er heldur pínlegt.  Nú get ég alveg skilið að honum hafi dottið þettað í hug, og jafnvel farið að stað með það.  En þá átti hann bara strax að segja að þetta hefði verið hugmynd sem hann hefði fengið, en síðan hætt við.  Um leið og fólk fer að reyna að skrökva sig út úr hlutunum fer tortryggnin af stað. Og sérstaklega á þessum tímum, þegar stuðningur við pólitíska flokka er í sögulegu lágmarki, sérstaklega fjórflokksins.

Þessi frétt kom í DV, og var svo birt í Skutli, blaði Samfylkingarinnar á Ísafirði.  Þegar fólk fer svo að væna Í-listann um sorahátt, þá segi ég;  Það er ekkert rangt við það að segja frá svona frétt, þar sem vitnað er í umræður viðkomandi.  Þetta gerðist þegar Jónína Ben var að plotta með Styrmi, og þetta er líka víða í rannsóknarskýrslunni. Stundum þarf að vitna í gögn, ef talið er að þarna sé eitthvað sem verið er að reyna að fela.

Nú getur vel verið að það sé satt sem Kommonistar segja að þeir standi fyrir sínu og Gunnar Atli sé bara vinur þeirra.  En þá hefði verið nær að segja strax frá því að hann hafi staðið fyrir þessu í upphafi og síðan hætt við. Það er nefnilega svo að sannleikurinn er alltaf sagna bestur.  Og ég þekki strákinn ágætlega og veit að hann er góður drengur.  Unggæðisháttur getur leitt alla af réttri leið, en það er alltaf þessi leið út að viðurkenna strax hvernig liggur í málunum.  En ekki bara að ráðast á og skjóta sendisveininn. Sérstaklega er þetta viðkvæmt í litlu samfélagi þar sem allir þekkja alla, og þar sem fréttirnar berast fljótt og vel, það er alltaf einhver sem uppgötvar og segir frá.  Það er eiginlega kosturinn við lítil samfélög að það er erfitt að leyna sannleikanum.

Svo við ég bara segja að ég óska öllum hins besta á morgun, ég mun ljá Í- listanum mitt atkvæði, ég hef starfað mikið með Frjálslyndaflokknum og veit að þar fer heiðarlegt og gott fólk, og ég hef líka kynnst flestum sem eru á listanum af góðu einu.  Fólk sem hefur réttlætið að leiðarljósi.  Ég held í raun og veru að flestir vilji það, en einhvernveginn dragast menn inn í eitthvert drullusvað sem þeir ráða ekki við sjálfir.  Það er sorglegt, þegar eiginhagsmunir eða hagsmunir flokksins fara að taka yfir heilbrigða skynsemi. Því ég hef trú á því að innst inni vilji allir vel.

IMG_2314

Hér eru Framsóknarmenn að grilla. 

IMG_2316

Á Silfurtorgi var margt um manninn, enda var Ílistinn að grilla, og kosningaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins er þarna rétt hjá, og margir þeirra sátu á torginu og nutu veitinga og að spjalla við fólk.

IMG_2321

Og eins og alltaf í kosningum gefur Frjálslyndi flokkurinn fisk í soðið.  Hér er Gauji stóri þessi elska að fá steinbít.

IMG_2322

Mummi og Gylfi og fleiri í Samfylkingu og vinstri grænum að grilla pylsur.

IMG_2325

Hér eru svo Frjálslyndir; synir Adda Kitta Gau að gefa fisk, ýsu, þorsk og steinbít.  Bæjarbúar kunna vel að meta þetta í kosningum.

IMG_2326

Jóna Ben og Arna Lára VG og S að gefa fólki pylsur.  Já svona er þetta fyrir kosningar.  Megi sá besti vinna, og ég meina það.  Ég hef trú á mínu fólki en ég er auðvitað hlutdræg. InLove

IMG_2318

Gluggarnir hjá Ílistanum eru svona eins og frambjóðendurnir og fólkið í kring um þau, glaðlegir og yndælir.

IMG_2319

Fullir af bjartsýni og vori, eins og sjá má.

IMG_2254

Þetta er auðvitað svona algjör hanaslagur!!!

IMG_2260

Hver kíkir niður af sínum haug og svona!!

IMG_2261

En lífið er ekki eintóm sæla, það eru úlfar á ferli.

IMG_2264

Maður þarf auðvitað alltaf að vera á verði fyrir rándýrum.

IMG_2269

Ef maður ofmetnast ekki, heldur er varkár og heiðarlegur er ekkert að óttast.

IMG_2281

En stundum hoppum við of hátt, og dramb er falli næst.  Auðmýkt gefst alltaf betur þegar til lengri tíma er litið.

IMG_2285

Og við vitum aldrei hvað hættan liggur í leyni. Sérstaklega ekki í pólitík.

IMG_2297

En það er samt alltaf einhver sem passar upp á okkur ekki satt?

IMG_2288

Ég vona að vinkona mín og hennar vinir sitji ekki á Langa Manga við að hringja út og segja... Ef Ílistin kemst að.... það er bara einhvernveginn fyrir neðan þeirra virðingu að mínu mati.  Því þetta eru flottar konur og skörungar.

IMG_2299

Elskuleg vinkona mín Þórunn Matthíasdóttir gaf sér tíma í vikunni til að taka sér frí frá pólitíkinni og koma í heimsókn, við áttum góðar stundir saman í kúlu.

IMG_2300

Og svo er ég búin að opna Garðplöntusöluna, og hér er vorið.  Salan er opin frá kl. 9 á morgnanna til 6 virka daga og 2 - 4 á laugardögum.  Á sunnudögum þarf ég að eiga frí.  Kissing

IMG_2304

Verð að segja það að við ákváðum í vor hjónin út af efnahagsástandinu að ráða ekki starfsfólk í priklun eða umönnun, heldur gerðum við þetta allt sjálf í aukavinnu eftir aðalvinnuna.  það hefur verið mikið álag en skemmtilegt.

IMG_2310

Við erum líka með mikið úrval af kryddjurtum og grænmeti.

IMG_2312

Auðvitað þurftum við að minnka magnið af plöntum líka út af efnahagsástandinu, svona er þetta bara.

IMG_2311

Og þetta er Ástrún sem ætlar að vera hjá mér í sumar og selja fólki blómin.  Hún er dugleg stúlka.

IMG_2308

Get ekki stillt mig um að sýna ykkur drottningar blómaskálans þetta er Nína.

IMG_2309

Pernille í fullum blóma.

Útlendingarnir farnir að koma og fá að mynda húsið og fá að fara inn í garðskálann og mynda.  Þetta er bara það sem er venjan hér á þessum bænum. 

Eigið góða helgin elskuleg, og munið að atkvæði ykkar skipta máli, ekki bara kjósa eitthvað af því að þið og ykkar ættbálkur hafið alltaf kosið það sama og alls ekki sitja heima, skilið frekar auðu.  Þorið að takast á við nýja tíma og nýtt fólk.  Ég get lofað ykkur að þau ellefu ár sem ég hef unnið náið með Frjálslynda flokknum þá hefur hann alltaf reynst verður sinna stefnumála og á mjög góða stefnuskrá. Heiðarlegt og gott fólk sem þar er innanbúðar, þó við höfum vissulega reynt eins og mörg ný framboð að fá til okkar fólk sem var beinlínis að hugsa um sinn eigin frama.  Þá bjargaði góða stefnuskráin okkar okkur út úr þeim vandræðum, svo nú er friður á okkar vígstöðvum. 

við Frjálslynd í Ísafjarðabæ höfum bundið trúss okkar við Vinstri Græna og Samfylkingu í bæjarfélagianu í þessum kosningum, höfum starfað með þeim í fjögur ár og það fólk sem hér bíður fram í nafni Ílistans er fólk sem hægt er að treysta fyrir málefnum bæjarins.

Megi það afl sem best er að því komið sigra á morgun.  Ég óska samt öllum heilla og segi bara ég mun setja mitt atkvæði á Í fyrir Ísafjörð.

Eigið góða helgi mín kæru.

 


Að takast á við sjálfa(n) sig og tilfinningar.

Jamm, ég sat úti í sólinni og þá  kom þessi tilfinning yfir mig og ég varð að segja ykkur frá, þetta skiptir máli sagði ég við sjálfa mig.

Málið er að við erum eitt tilfinningabúnt. 

Ef þú hittir manneskju sem þú veist að á við vandræði að etja, þá er gott að geta brosað hlýlega til hennar þegar þú hittir hana í matvörubúðinni.  Það bros getur gert henni lífið bærilegar það sem eftir er dagsins.

Þegar þú mætir manneskju sem hefur nýlega misst fjölskyldumeðlim, ekki bara brosa og segja; samhryggist: Taktu hlýlega utan um hana/ hann og láttu, hann finna að þú virkilega finnir til líka.

Ef þú veist að manneskja er í sálarkrýsu út af peningavandræðum eða örðu slíku, þá skaltu ekki fara undan í flæmingi, heldur styrkja hana í því að þetta geti hent alla, og það sé svona og svona, ekki verra að geta bent á dæmi um svipað.

Ef þú sérð prestinn og lögregluna koma að húsinu og veist að nú hefur eitthvað gerst, sem þú hefur óttast lengi, þá er allt í lagi að brjálast, stappa niður fótum og segja þeim að fara norður og niður, þeir eru viðbúnir öllu þegar þeir koma til að tilkynna það sem enginn vill vita, og kunna að taka viðbrögðunum.

Ef þið komið að slysi, þar sem fólk er illa farið, munið að  það síðasta sem fer er heyrnin.  Segið eitthvað falleg við fórnarlambið, og hringið síðan á 112 og tilkynnið slysið.  Síðan er bara að segja eitthvað jákvætt og uppbyggjandi við hina slösuðu meðan er beðið er eftir að hjálpin berist.

Við erum stundum of kurteis og lokum á tilfinningar okkar þegar við stöndum frammi fyrir dauðanum, það á ekki að vera þannig, heldur eigum við að taka því sem hverjum öðrum hlut í okkar lífi, hversu sár sem hann er. 

Ég er svo heppin að vera alin upp í þeirri trú( þökk sé afa mínum) að til sé annað tilverusvið, þangað sem við förum þegar þessari tilvist lýkur. Þannig að þó sé sárt að missa, þá veit maður að viðkomandi hefur aðeins flutt sig um set, og við munum hitta okkar ástvini að loknu þessu jarðlífi.

Elskulegust mér fannst að ég þyrfti að koma þessu frá mér, þar sem ég sat í sólinni, með söknuð yfir syni mínum og ótta um pabba minn.  Að það er bara þannig að við verðum að taka því sem kemur, og verður ekki breytt, með æðruleysi og vitneskju um að ekkert er endanlegt.  Heldur er málið að við eigum eftir að hitta ástvini okkar aftur hinumeginn.  Dauðinn er alls ekki endanlegur heldur upphaf að nýju lífi. Heart

Gleymdi að segja, ef þið hafið einhverja lífsreynslu sem gæti komið öðrum til góða, þá endilega setjið það hér inn. Við verðum að fá upplýsingar um hvernig á að bregðast við aðstæðum.  Þó ég trú því að ekki verði feigum forðað né ófeigum í hel komið.  Þá skiptir það máli fyrir fólkið sem kemur þar að, að þau hafi brugðist rétt við aðstæðum, og geti lifað áfram með þá vissu að þau hafi gert allt sem skipti máli til að allt færi á besta veg.  Vegna þess að það er mín einlæga trú að það fólk sem kemur að ýmsum aðstæðum, sé endalaust að spyrja sig að; gerði ég rétt, eða gerði ég eitthvað rangt.  Og þegar fólk verður vitni að hræðilegum atburðum, er mikilvægt fyrir það að vita að þau gerðu í það minnsta allt sem hægt var til að bjarga. Heart

 


Leyfið börnunum að koma til mín................................ og fara líka.

Árlega fær ég börn í heimsókn frá skólanum,  oftast koma þau á vorin, en stundum á haustin.  Alltaf er einhver í hópnum sem þekkir til og er búin að skapa væntingu meðal hinna fyrir blómunum, hænsnunum, köttunum eða fiskunum.  Og svo fyllist allt af glaðværum yndislegum krökkum, sem reyna að vera stillt, það er bara stundum svo erfitt. 

IMG_2197

Áhuginn leynir sér ekki.

IMG_2205

ég bað þau að stilla sér upp fyrir hópmynd, og hér má sjá þessa eldhressu krakka.

IMG_2177

Það er búið að vera sól og gott veður undanfarna daga.  Her er Faktorshúsið, hér hefur verið opnuð kaffistofa, reyndar er líka búið að opna veitingastað í Langa Manga, undir sama nafni, sem er frábært, set inn myndir af því seinna.

IMG_2182

Ísfirðingar eru duglegir við að nýta sér það sem er í boði.  Enda er veðrið þessa dagana heiskýrt og gott.

IMG_2178

Þetta er hæstakaupstaðarhúsið, þeir sem hafa verið lengi í burtu muna eftir rörabúðinni hann Þórólfs hér, og líkkistusmíði Kristinn L. Í hinum endanum, síðan var þarna vídeóleiga og nú hefur staðurinn fengið nýtt hlutverk og við hæfi, því hér er skrifstofa Rúnars Óla frænda míns og félaga hans, með sjósport, aðallega skútuna Regnbogan, sem þeir nota til að ferðast með túrista um landið og miðin.  Virkilega flott og gaman.

IMG_2179

Ég kíkti aðeins inn á strákinn og eins og þið sjáið er hann flottur, líkur pabba sínum, en það er hann Kalli Geir í BG.  Þessi kann líka að spila á gítar og syngja. Ef til vill tekur hann gítarinn með sér á sjóinn og tekur lagið fyrir túrhestana.

IMG_2180

Allt gert smekklega og upprunalegu bitarnir hafa fengið að njóta sín.

IMG_2199

Gullsóparnir mínir eru virkilega flottir.

IMG_2200

Eins og sjá má.

IMG_2207

Eru þau ekki flottust?  Sólveig Hulda með hattinn hans frænda síns þar sem hann geymir áritanir frá hetjum í Aldrei fór ég suður.

IMG_2208

Þau eru svo flott.

IMG_2210

Hvernig snýr köttur eiginlega?  ekkert að fela, því baunirnar eru farnar.  Það var nauðsynlegt því hann var farin að strjúka að heima, náttúran var farin að kalla óþægilega mikið.  FootinMouth

IMG_2214

Já tjörnin kallar á athygli.

IMG_2220

Síðasti dagurinn hennar í ömmukúlu um einhvern tíma, því nú er þessi elska farin suður og þaðan til Noregsi.

IMG_2223

Hún er nú þegar lögð af stað skríðandi.

IMG_2224

en það er dálítið vont að skríða yfir steinana.

IMG_2227

Úbbs hvað maður er lítill í hinum stóra heimi!!!

IMG_2230

Nei amma leyfði mér ekki að fara alla leið út á götu, svo nú er best að hringja í mömmu eða pabba.

IMG_2232

Halló! Halló!

IMG_2237

Sýgur bein eins og amma sín.

IMG_2238

Ekki bara amma þetta er í ættinni, Atli frændi er gerfilimasmiður.

IMG_2228

Alveg satt, tíu fingur upp til guðs.

IMG_2241

Og svo er stóri bróðir komin.

IMG_2243

Og hann er sko obboðslega fyndinn LoL

IMG_2246

Og mamma líka, best að tékka á bollunum, hvort þar er eitthvað að fá. InLove

IMG_2251

Hér kem ég pabbi minn.  eina ánægjan sem ég fær út úr brotthvarfi barnanna  og tengdadótturinnar er að þá sameinast fjölskyldan á ný, því pabbi getur ekki beðið eftir að fá fjölskyldylduna sína til Noregs.  Við mömmurnar erum þannig að ef börnin okkar eru ánægð, þá er málið það besta, þó við þurfum að sætta okkur við tregann og tárin.

Eigið góðan dag elskurnar. Heart Og fyrirgefið mér hvað ég hef verið léleg að koma í heimsókn.  Bæði hef ég lítinn tíma, og svo er ég einhvernveginn ekki alveg í góðu jafnvægi.

 


Kosningar.

Kosningar nálgast, mér sýnist sáralítill áhugi sé á þeim hér í kring um mig.  Reiðin kraumar í fólki og það er ráðvillt, hætt að treysta neinum, og þegar traustið er horfið þá er lítið eftir.

Til að endurvinna það traust sem þarf að vera á forystumönnum í pólitík, þurfa þeir að koma fram af heiðarleika og hafa sannleikan að leiðarljósi.  Sá sem fer bak við ljósið og lýgur sig inn á fólkið í landinu á fölskum forsendum ætti að hugsa sinn gang afskaplega vel.  Því það er enginn þolinmæði lengur fyrir slíku.  Pólitíkusar þurfa að hafa það í huga þegar þeir lofa öllu fögru, eða rotta sig og plotta að það er ekki lengur 2007, heldur 2010.  Almenningur stórlega brenndur á falsi, lygum og allskonar svívirðingum, fyrir utan að þurfa að draga upp pyngjuna og borga allt heila klabberíið.

Þess vegna er mikilvægt að hver og einn kynni sér það sem framboðin hafa fram að færa, og hvernig þau hafa staðið sig sem hafa haft til þess meirihluta.  Fólk verður líka að kynna sér litlu framboðin og nýliðana sem berjast við að ná athyglinni en vandlega er séð til að kæfa þær raddir niður, enda kærir fjórflokkurinn sig lítið um að ný andlit og ný sjónarmið komi fram, sem þeir hafa ekki kontról á.

Ég heyri mikið í umræðunni að Fólki finnst ekkert annað í boði en fjórflokkurinn og Jón Gnarr, en það eru vissulega fleiri þarna úti.  Ég vil benda á Frjálslynda flokkinn þar sem hann býður fram.  Ef fólk vill rauðverulegt lýðræði, þá fer það milli kosningaskrifstofa kynnir sér stefnumálin og ræða við fólkið sem þar er, spyr það út úr og skoðar hvort ekki leynist þar góður málstaður sem hægt er að veita brautargengi.  Við verðum að fara að hugsa öðruvísi en hingað til, þ.e. ef við viljum ekki endalaust sullast í sömu hjólförum og hingað til, með spillinguna lafandi út um allar trissur, samtryggingu þeirra sem ráðið hafa hingað til.

Á Ísafirði býður sig fram Í listinn.  Hann samanstendur af Samfylkingu, Vinstri grænum, Frjálslyndaflokknum og óháðum.  En í raun og veru er þetta ekki framboð þessara flokka, því það fólk sem þarna er, setur málefni bæjarins fremst og þau vinna saman sem einn maður.  Það sýnir að bæjarmálin eru ekki það saman og landsmálin, hér eru menn nálægari grasrótinni.

Ég er líka afskaplega ánægð með að heyra að Sigurður Pétursson er bæjarstjóraefni Í listans.  Sigurður er ekki bara einstaklega ljúfur maður og vel gefinn, heldur getur hann líka sýnt hörku ef þarf.  Hann sýndi það í vetur þegar ég þurfti að leita til hans og Magnúsar Reynis, vegna prívat mála minna.  Það var leyst úr því vel og snöfurmannlega.   Ég treysti því Sigurði Péturssyni afar vel til að standa sterkur og fastur fyrir í þeim málum sem bæjarfélagið þarf að takast á við.

Ég var líka afskaplega ánægð að sjá að þau hafa haft samráð við alla bæjarkjarnana um þeirra viðhorf til mála.  Ég veit nefnilega að fólkinu í jaðarbyggðunum hefur fundist að þau væru sett til hliðar í ýmsum málum. 

Ég vil óska öllum framboðum velgengni, og megi heiðarlegasta fólkið bera sigur úr býtum.  Því ekkert skiptir meira máli einmitt í dag en hreinskipti heiðarleiki og allt uppi á borðum.

Eigið góðan fallegan dag.

284007_258_preview

Við skulum muna að við stöndum í hreingerningum til að endurheimta traust. 

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981


Til hamingju með daginn elsku Sólveig Hulda.

Litla ljúfan mín er eins árs í dag, Sólveig Hulda. 

IMG_8599

Séra Valdimar pabbi Möttu minnar skýrði hana, og Júlíana Lind stóra systir heldur henni undir skírn.

IMG_8582

Fjölskyldan saman þarna.

22454_286187634773_547209773_3210366_352700_n

Pabbastelpa, svo lík honum þegar hann var á þessum aldri.

IMG_1354

Hjá ömmu sinni í Kúlu.

IMG_2174

Vakti líka svaka lukku þegar hún fór að horfa á stóra bróður dansa, því hún dansaði manna mest.

IMG_2184

Í afmælisveislunni í dag, með pakka frá ömmu.

IMG_2186

Aha eitthvað mjúkt dýr.  Heart

IMG_2191

Með stóru frænku sinni Veru og frænda honum Hermanni sem er rosasætur strákur á sama aldri.

IMG_8619

Til hamingju með daginn ljúfust mín. Heart

IMG_2164

En stóri bróðir var að dansa í morgun.

IMG_2166

Og þau voru að dansa Thrillerinn hans Michael Jacksons.

IMG_2171

Með danskennararnum sínum henni Evu.

Já blessuð börnin eru framtíðin okkar og þau sem erfa munu landið.  Þess vegna verðum við að stoppa misvitra stjórnmálamenn í því að taka einhliða ákvarðanir um skammtímagróða við að selja auðlindir þjóðarinnar. 

IMG_2161

En nú er komið vor og við þurfum að njóta sumarsins okkar.  Eigið góða nótt Heart


Erum við ekki á leið afturábak til 2007?

Lílfið á Hrunlandinu Íslandi kemur sífellt á óvart.  Alltaf þegar maður heldur að botninum hafi verið náð, dúkka upp ný mál svo maður sýpur kveljur.  Hér er eitt dæmi.  Fjármálaráðherrann fer mikinn í kastljósi og segir það mjög alvarlegt að erlendur aðili hefur fengið leyfi til að kaupa hitaveitu suðurnesja, en þau gátu auðvitað ekkert gert í því ríkisstjórnin, hún hafði bara eitt ár til að setja lög sem kæmu í veg fyrir að útlendingar eignuðust náttúruauðlindir okkar eða afnotaréttinn, vatnið undir Snæfellsjökli var ekki nægileg viðvörun. 

En á sama tíma og blessaði saklausi fjármálaráðherrann er að blaðra þetta veifandi öllum öngum í hneykslan, eru þessi útlendingur sem við færum auðlindina á silfurfati AÐ FÁ LÁN FYRIR KAUPUNUM HJÁ ORKUVEITUNNI? http://eyjan.is/blog/2010/05/19/magma-faer-147-milljarda-ad-lani-fra-opinberum-adilum-or-lanadi-70-kaupverds/

Magma Energy fær samtals 14,7 milljarða króna að láni frá opinberum aðilum vegna kaupa á 98,53% hlutafjár í HS Orku. Þetta kemur fram í samantekt

Góðir Íslendingar hvenær erum við búin að fá nóg af þessum skrípaleik.  Menn eru núna mest uppteknir af svokölluðu grínframboði Jóns Gnarr, þeir fá alla athygli reyndar fjölmiðlanna, enda örugglega bestu vinir og vandamenn sem tengjast fjölmiðlum.  En ég er farin að halda að Besti flokkurinn, sé eini flokkurinn sem ekki er með grín.  Þá undanskil ég auðvitað hin litlu framboðin sem rembast við að vekja á sér athygli eins og minn flokkur Frjálslyndi flokkurinn, með öll sín góðu stefnumál. 

Þarna er að verki sama gamla klíkan, fjórflokkurinn, sem samþykkir þessa gjörð.  Þeir eru allir á kafi í þessu, Sjálfstæðismenn, Samfylking og Vinstri grænir, og örugglega koppar í búri Framsóknar.  Ég verð að segja að það er enginn veggur svo hár að ASNI KLYFJAÐUR GULLI KOMIST EKKI YFIR HANN.

Og nú hefst dansinn fyrir alvöru.  Þetta er rétt að byrja, þetta skúffufyrirtæki er bara rétt að byrja að gauka að réttu aðilunum, til að fá það sem hann vill. 

Íslendingar eru andskotann ekkert betri en þriðjaríkislöndin þar sem múturnar og spillingin er daglegt brauð.

Ég er virkilega farin að skammast mín fyrir hvernig fólk hagar sér hér.  Er ekki komið nóg.  Og þessum spillingaröflum öllum saman ætlum við að gefa lungan af atkvæðum okkar, þegar okkur gefst færi á að kjósa.

Málið er að okkur er ekki treystandi til að ganga til kosninga.  Þess vegna ráðlegg ég að farin verði sú leið sem Guðmundur Ólafsson benti á í viðtali í morgun.  Að forsetinn rjúfi þessa ríkisstjórn og sett verði á utanþingsstjórn með fagfólki og fólki sem kann til verka.

 Ég styð þ að einlæglega og vil að við skorum á forsetan að rjúfa þennan vítahring, sendi algjörlega ónýta ríkisstjórn frá og ráði fólk til að stjórna sem kann til verka og eru íslendingar en ekki einhverjar rassasleikjur og mútuþegar.  

Eigið svo góðan dag, ég er reið og sár og svekkt.  Ég vissi að Sjálfstæðismenn og Framsókn væru gjörspillt jöfl, en að Vinstri græn væru ekkert skárri stingur mig beint í hjartað.  

Burtu með spillinguna og landsöluna, inn með utanþingsstjórn eða neyðarstjórn sem getur tekið á málum og fært okkur til framtíðar en ekki aftur til 2007. 

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981


Væri það ekki alveg frábært ef við þyrftum að fara að halda söngvakeppnina svona mitt í kreppunni?

Vitiði nú hvað.  Ég held að við vinnum söngvakeppnina í ár.  Ekki út af laginu, heldur söngkonunni sem við sendum út.  Hera Björk er mögnuð kona.  Hún er Fjallkonan og nornin.   Hún er Eyjafjallajökull og Hekla.  Hún er stórbrotin og einstök.  Ég hef verið að hugsa þetta nokkurn tíma, og hún fer út sem fulltrúi þess óbeislaða, djarfa og stórbrotna náttúruafls sem við eigum og verðum að fara að sjá að við verðum að vernda með öllum ráðum.

Hera1

Áfram Hera Björk frá einni norn til annarar. 


Má ég bjóða ykkur á tónleika?

Ég ætla að bjóða ykkur á tónleika í kvöld.  En fyrst ætla ég að segja að ég horfði á kastljósið þar sem Brynja nokkur átti viðtöl við forstjóra Magma og svo Ögmund Jónasson.  Og ég verð að segja að ég var kjaftstopp.  Forstjórinn erlendi fékk að tala eins og hann vildi frá sínu brjósti, en öðru máli gegndi um Ögmund, hann þurfti að gera grein fyrir öllu sem hann var að segja.  Ég er ekki bara kjaftstopp heldur helvíti reið yfir þessu.  Fjandans útlendingagæla og sleikja sem þarna kom í ljós.  Pésinn fékk að fabúlera um hve hann væri góður og hvað hann ætlaði sér að gera góða hluti til bjargar íslandi og okkur öllum, en Ögmunur var spurður í þaula.

Sjónvarp allra landamanna HA!!! er það!!! ónei, sleikjusjónvarp fyrir jámenn og klappstýrur, það er það sem þið eruð og ekkert annað. Ömurleg að mínu mati allavega.  Thank you very much for this programm.  Sleikjur eiga ekki upp á mitt pallborð, en ég er náttúrulega bara kerling út í bæ.  En meira að segja kerlingar út í bæ geta lagt sitt af mörkum, ef þær verða nógu reiðar.  Verði ykkur að góðu ef þetta er það sem koma skal.  Vonandi fær maður að eiga val um það einhverntíman að þurfa ekki að hafa ríkisstjónvarp eða ekkert sjónvarp.  Það er nánast glæpur að þurfa að borga ykkur pening fyrir að láta heilaþvo okkur og sæta því að þið miskunnarlaust gerið stykkin ykkar í bólið okkar sem ekki erum með leppa fyrir augum og eyrum, en viljum sannleikan og heiðarleikan beint í æð.

 

Sorry varð bara svo reið yfir þessu kastljósi og öllu þessu fjandans falsi og lygum sem bornar eru á borð fyrir okkur allstaðar af fólki sem stjórnar því sem sagt er og gert, í formi "frétta" og þagað um það sem kemur ykkar skoðanabræðrum illa og allir spila með.

En ég lofaði að bjóða ykkur á tónleika.  Þetta eru tónleikar númer þrjú í Tónlistaskóla Ísafjarðar, í vor, börnin okkar, þessi sem eru hrein og tær og hafa ekki spillingu og lygi á bakinu.  Hrein og tær gleði yfir því sem þau eru að gera, skila sínu vel og það sést í hverju andliti gleðin og hreyknin yfir vel heppnuðu atriði, hvert eitt þeirra stóð sig rosalega vel, og allir höguðu sér með sóma.  Eitthvað annað en sirkusinn við Austurvöll. 

Versgú!!!

IMG_2127

Þau voru ekki öll há í loftinu blessuð börnin sem porformeruðu fyrir okkur í dag.

IMG_2128

Hér er beðið eftir að fólk komi sér fyrir í salnum, og tíminn komi til að spila lagið sitt.

IMG_2129

Sjáiði einlægnina og gleðina.  Þuríður Kristín Þorsteinsdóttir J.S. Bastien: dans. Þið heyrið ekki spilið, en helmingurinn af gleðinni er gleðin sem þau sýna ykkur.

IMG_2130

Lilja Ósk Ragnarsdóttir.  T. Arbeau: Bjöllur og trommur.

IMG_2131

Júlíana Lind Jóhannsdóttir.  Neuvonen/Múkkulainen.  Froskurinn, Uglan, músin og fiðrildið.

IMG_2132

Eva Marín Jónsdóttir. Neuvonen/Múkkulainen; Gylti refurinn.

IMG_2133

Rakel María Björnsdóttir.  Ísraelskt þjóðlag.  Artza Alina.

IMG_2134

Sigríður Erla Magnúsdóttir.  J.S. Bastien. Dans.

IMG_2135

Snjólaug Ásta Björnsdóttir.  J.S. Bastien:  Galdranornirnar.

IMG_2136

Kolfinna Íris Rúnarsdóttir. J. Thompson:  Spiladósin.

IMG_2137

Kjartan Óli Kristinsson.  Tom Hapke: Sóló2 - Pop Rock.

IMG_2138

Baldur Björnsson.  Balli mag mix: Osama punk, ég held að hann hafi samið þetta sjálfur.

IMG_2139

Jón Hjörtur Jóhannesson.  Weiss og fl.  Can´t Help Falling in Love.

IMG_2140

Arndís Þórðardóttir.  Gísli Helgason; Kvöldsigling.

IMG_2141

Albert Jónsson.  Elton Johhn; Cant You Feel the Love Tonight.

IMG_2142

Tekla Þorláksdóttir.  Þjóðlag: Ooga Booga Boogie.

IMG_2143

Doróthea Magnúsdóttir.  J.S. Bach; Menúett í g-moll.

IMG_2144

Sumir voru svo sem ekkert að fylgjast mjög náið með, en voru samt stilltir og góðir að dunda sér við ýmislegt.

IMG_2145

Aðalbjörn Jóhannsson.  M. Eckstein: Draugarnir.

IMG_2146

Sigríður Salvarsdóttir.  J.S. Bach: Menúettt í G-dúr.

IMG_2147

Þórður Alexander Úlfur Júlíus Thomassen Kristján eins og hann kallar sig, töffari. CCR: Down on the Corner.

IMG_2148

Stolt sinnar ömmu auðvitað.

IMG_2149

Og kennarinn hans Önundur, sem hefur eitthvað heilmikið með Fjallabræður að gera skal ég segja ykkur og stúdíó í gömlum lýsistank.  Kjuðana fékk hann af Dikta, áritaða af rtommaranum og fleiri. Hann passar þá eins og gull.

IMG_2150

Hermann Freyr Guðmundsson.  Santana: Black Magic Woman.

IMG_2151

Anton Sigurður Halldórsson.  Bellman: Träd Fram Du nattens Gud.

IMG_2152

Lára Margrét Gísladóttir.  Jón Múli Árnason: Ágústkvöld.

IMG_2153

Fjóla Aðalsteinsdóttir.  W.Gillock: Fiesta.

IMG_2154

María Birna Veigarsdóttir Olsen. D. Kabalevsky: Hægur vals.

IMG_2155

Regína Siv Rúnarsdóttir.  L.V. Beethoven: Geirþrúðarvalsinn.

IMG_2156

Hálfdán Jónsson.  F. Carulli: Cals op. 121 nr 1.

IMG_2157

Snorri Sigbjörn Jónsson.  Visée/Calderrábano: Menuett/sónata.

IMG_2159

Davíð Sighvatson.  Elton John: Goodbye Yellow Brick Road.

IMG_2160

Og komið að lokum.  Skólinn þakkar nemendum fyrir frábæra frammistöðu.  Við vonum að þið hafið notið tónleikanna.  Þó hljóminn vanti, þá er hægt að lesa svo margt út úr börnunum.  Gleði og ábyrgð.  Eitthvað sem vantar svo mikið í samfélagið í dag.  Við þurfum stundum að taka okkur börnin til fyrirmyndar.  Bæði hvað varðar sakleysi, ábyrgð og ánægju.  Þess vegna þykir mér vænt um að hafa boðið ykkur á þessa frábæru tónleika.  Þetta er líka grunnur að því sem Ísafjörður er í dag. Tónlistarskóli Ísafjarðar og einnig þó hann sé ekki hér Listaskóli Rögnvaldar. 

Ef þið takið eftir lagavalinu, þá sjáið þið að það er breytt og komið víða við.  Það skiptir líka máli.  Og þökk sé skólastjóranum Sigríði H. Ragnar.  Sem hefur leitt skólann frá því að faðir hennar og móðir féllu frá.  'Eg man þá tíð þegar Ragnar H. var skólastjóri.  Hann var strangur og hann hefði aldrei sætt sig við það lagaval sem við sjáum hér, enda af gamla skólanum.  En tíminn stendur ekki í stað. Og Sigríður hefur fylgst með tímanum og í dag er skólinn skóli dagsins í dag.  Hann er fyrir nemendurna og þeirra áhugasvið. 

Ég segi bara hjartans þökk fyrir mig.  Og vona að þið hafið líka notið tónleikanna.  Því þeir voru svo sannarlega frábærir. 

P.S. og Sigríður mín, þú mátt taka allar myndirnar og setja þær inn hjá þér. Heart Mín er ánægjan.

 


Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2010
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 2023321

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband