Hið daglega veður, gróðrarvinna og allt hitt.

Dagurinn í dag var fallegur, en frekar kaldur miðað við undanfarna daga. En hann var góður til útivinnu.  Ég fór hamförum í dag með casoron, round up og klippur, já og járnkarl hehehe... ég set nefnilega niður græðlinga með járnkarlsaðferðinni.  Snemma á vorin, áður er rakinn fer úr jörðinni, er nefnilega upplagt að taka græðlinga af plöntum sem eru duglegar að róta sig og setja þær niður þar sem nóg pláss er fyrir þær með járnkarli.  Það þarf bara að gæta þess að þjappa nægilega vel niður jarðveginn við þær.   Ég hef komið til mörgum svona plöntum á opnum svæðum í bænum, þar sem þær prýða nú landslagið, í stað þess að vera fleygt eins og einhverju rusli. Ætli ég hafi ekki sett niður svona um 70 stykki í dag.  Svo er bara að vona að þær lifi sem flestar.  Mér er nefnilega meinilla við að henda plöntum.  Sérstaklega þegar það gengur svo vel að koma þeim til, með þessari aðferð á þessum tíma.

Járnkarlinn var rosalega þungur, svo nú er ég alveg búínn á því.  Fór í vel heitt bað, með róandi  baðsalti.  En þá vildu þær litlu endilega koma með ömmu ofan í baðið.  Hehehehe... ég gat ekki neitað þeim, svo við lágum allar í marineringu eftir vinnuna. 

Jorga mín fór sjálf og sótti stelpurnar.  Ég hef farið með henni, hún hefur fengið að aka bílinn undanfarið, ég hef bara setið með sem aukahlutur, til öryggis fyrir hana.  Í fyrramálið fer hún alveg sjálf með þær. 

IMG_6171

Nú er ég klædd og komin á ról, Jorga búin að greiða mér líka.

IMG_6172

Svona ósköp sætt systraknús.

IMG_6173

Og sú stutta lítur mikið upp til stóru systur.

IMG_6175

Hún fær sér Veetabix með sykri, þ.e. grófum sykri.

IMG_6179

Meðan skottið reynir að taka um dollu af afaskyri, eins og þessi tegund er köllluð á þessu heimili af öllum barnabörnunum.

IMG_6180

Aron Máni og Hanna Sól, að hrossast.

IMG_6176

eins og ég sagði var veðrið afar gott, en dálítið kaldara en í gær. 

IMG_6177

Það hafði verið smárigningarúði í nótt, en hafði stytt upp í morgun,  það komu samt dropar síðdegis aftur, vonandi ekkert til að slá á Round upið.

IMG_6181

Og ein kvöldmynd.

Það er bara gott gróðrarveður, þegar svona viðrar. 

Ég segi bara góða nótt elskurnar, vonandi hafið þið það öll gott knús á ykkur inn í nóttina. Ég ætla mér að fara blogghringinn á morgun.  Hlakka til að lesa það sem þið eruð að pæla í dag. Heart


Dagurinn í dag.

Jamm hér er veðrið gott, vonandi kólnar ekki mikið.

IMG_6157

Ahuginn leynir sér ekki, þau eru að skoða einn fiskinn hennar ömmu, hann dó í dag blessaður.

IMG_6159

Á meðan læddi þessi sér út á sokkaleistunum.

IMG_6160

Sniglarnir eru sko ekki einu töffararnir á Íslandi.

IMG_6162

Svo er gott að horfa aðeins á sjónvarpið.

IMG_6163

Meðan fröken fix fær sér smá spaghetti.

IMG_6165

Svona áður en hún leggur sig.

IMG_6167

Þetta er hitamóða, þegar heitt loftið kemur yfir kalda jörðina.  Það var bara mjög hlýtt í dag.

IMG_6168

Páskarósin mín komin alveg upp úr snjónum og brosir við mér.

IMG_6169

Og vorlaukarnir lífga svo sannarlega upp á garðinn svona áður en nokkuð annað.

IMG_6170

Aldrei má köttur slappa af, án þess að þú sért komin til að taka mynd LoL

 

Eigið gott kvöld og knús á ykkur öll inn í nóttina. Heart

 

 

 


Kúlan og allt sem henni fylgir.

Jamm hér er allt að vorast og verða yndislegra og betra, sumarið við næsta horn.

Snjórinn fer fljótt og vel, skíðasvæðið að verða snjólaust, og allursnjór farin úr byggð.

IMG_6119

Þessi litla stubba er ótrúlega skapstór, og lætur ekki sinn hlut.  Vill til að Jorga er þolinmóð.

IMG_6122

Fallegur morgun ekki satt.

IMG_6124

Hanna Sól komin á leikskólann, annars má ég víst ekki birta svona myndir að ungunum á leikskólanum, nema með leyfi foreldra.  Þau eru bara svo flott þessar elskur.

IMG_6125

Bak vil luktar dyr... eru skólasystkin Ásthildar.

IMG_6127

Þessi er tileinkuð Sigrúnu bloggvinkonu, aðalgatan á Suðureyri með elskaðan Göltinn i baksýn. Suðureyri böðuð sól.

IMG_6128

Þar sem við höfðum skilað af okkur börnunum á leikskólan heyrðum við lögreglusýrenur í þorpinu, þar kom löggubíll á rosalegri ferð og sjúkrabíll á eftir, ég mundaði náttúrulega myndavélina.

IMG_61281

Út stökk löggumann með tækið góða, hjartahnoðtækið, sem bjargað hefur nokkrum mannslífum núna bara á stuttum tíma.

IMG_6129

en allt fór vel, það var bara gamall sjómaður sem hafði dottið í sjóinn.  Hann var fluttur á sjúkrahúsið til aðhlynningar og ég frétti svo að hann væri komin heim, annars hefðu þessar myndir ekki birst hér.  Ég myndi aldrei setja inn myndir af slystað þar sem dauðaslys hefði átt sér stað, nógur er sársaukin samt hjá aðstandendum, þó ekki bætist við fréttaþyrstir blaðamenn og ljósmyndarar.

IMG_6132

Börn að leik á skólalóðinni.  Halló amma glumdi þar líka, ég er vel þekkt hehehehehe.

IMG_6133

Ég fór að láta skipta um dekk á bílnum mínum, nú eru engir naglar lengur. 

Við fórum í sund á Suðureyri stelpurnar og Jorga, þegar hún áttaði sig á því að þetta var útilaug, varð hún angistarfull, það er allof kallt sagði hún, ætlarðu virkilega í útisundlaut ?

Já hún er heit, sagði ég.  Hún horfði á mig í forundran, ókey, sagði hún svo, ég ætla að prófa.

Svo varð hún aldeilis hissa á hve heitt vatnið var.

Og; mikið er sjórinn hreinn við ströndina, sagði hún.  Já glöggt er gests augað.

IMG_6134

Þetta eru vorboðar.

IMG_6135

Og grasið farið að grænka.

IMG_6136

Svo var náttúrulega grillað.

IMG_6141

Hún er eins og amma sín, sagði afi, vill endilega naga beinin. hehehe

IMG_6146

Jóhanni bloggvini fannst haninn flottur, Úlfu datt í hug að setja upp prik fyrir hann, við kjallaradyrnar.  Skepnan byrjar að gala kl. 4 á morgnana, og svo galast þeir á, hanarnir þessi stóri upp á lóð, og þessi litli í garðskálanum.  Ég keypti eyrnatappa í dag fyrir alla fjölskyldunaBlush

IMG_6149

Það kom í ljós að Jorga okkar er hárgreiðsludama, hún fléttaði Hönnu Sól í dag.

IMG_6150

Sæt saman.

IMG_6152

Líka sætar saman.

IMG_6153

Kvöldfegurð, fjallið himininn skýin mynda orku sem maður tekur inn og nýtir sér endalaust.

IMG_6154

Afi og Sólin gantast.

IMG_6156

Hér sést fléttan hennar Jorgu. 

En ég segi bara knús á ykkur öll inn í nóttina.  Það fer að verða meira að gera hjá mér í vorverkum, en ég vil ekki missa af ykkur, og ætla mér því að reyna að vera dugleg að heimsækja ykkur og senda inn myndirnar mínar.  Þið eruð öll svo yndæl.  Knús á ykkur inn í nóttina. Heart

 


Tíminn og ég framhald. (smá mömmó)

Tíminn og ég er svo sannarlega réttnefni.  Hafði bókstaflega engann í gær, hvað þá orku.  Þetta stendur samt allt til bóta, því Peran mín er heillasending, ljúf og hlý og dugleg, hún kemur stelpunum vel að sér, og kann tökinn, enda móðir sjálf.

'Eg ætla að svara ykkur í kvöld, og fara blogghringinn.  En núna langar mig að setja inn myndirnar frá því í gær, sem ég hafði ekki orku til að setja inn þá.  Knús á ykkur öll inn í daginn, og svörin ykkar gleðja mig mikið, þó ég hafi ekki haft tíma til að svara þeim. Heart

IMG_6078

Veðrið var fallegt í gær, og er ennþá fallegra í dag, með sól og hlýju.

IMG_6079

Speglunin segir bara eitt   LOGN.

IMG_6080

Stúlkurnar tilbúnar í leikskólann.

IMG_6081

Prinsessan opnar sínar dyr sjálf.

IMG_6083

Sú stutta fær ókeypis burð.

IMG_6086

Mér finnst öll störf jafn þýðingarmikill, og auðvitað á að kynna börnunum sem flest störf, hér er starfskynning í ruslasöfnun. Smile

IMG_6087

Og auðvitað glumdi við Halló amma!, því allstaðar á ég hauka í horni.

IMG_6088

Já veðrið er hið fegursta hér á hjara veraldar.

IMG_6090

Það má segja að þetta sé alþjóðlegur vinnustaður, Pólland, Ísland og Litháen. Svo bætist við kona frá Portúgal í vikunni. Smile Þessi þrjú eru harðdugleg í prikluninni.

IMG_6092

Afi minn er múrari, þess vegna tékka ég á hvort hellurnar eru fastar fyrir.

IMG_6094

Maður þarf að fá sér fisk í matinn.

IMG_6095

en við borðum samt úti í garðskála.

IMG_6097

Svo þarf maður aðeins að sulla, það tilheyrir þessum aldursflokki.

IMG_6098

Og spjalla við afa, djúbbi djúbbi, dí.

IMG_6101

Leikræn tjáning, þessar eru fyrir Lilju bloggvinkonu mína og Elvar Loga, hefurðu séð dramatískara leikrit ?  Act alone? Elvar Logi, hún er örugglega liðtæk á Act alone vikuna hjá þér ekki satt ?

IMG_6102

Hærra til þín !

IMG_6103

Með hádramatískum endi LoL Sem betur fer var myndavélin við hliðina á mér.  Því þetta var alveg dásamlega flott móment.

IMG_6105

Jorga nær henni mjög vel að sér, sem er þýðinarmikið, því yfirleitt tekur það viku að ná henni á sitt band.

IMG_6111

Prinsessurnar mínar vilja klifra upp á allt, hvar sem er.  Jafnvel upp á matarborð.

IMG_6113

Hér er rómantísk tjarnamynd, hér er verið að skoða fiskana.  Prakkarann og fleiri. Þeir eru vaknaðir til lífsins, eftir svefn vetursins.

IMG_6116

Og enn ein falleg kvöldmynd. ég hugsa til ykkar, og bæði fer blogghring og les svörin ykkar í kvöld.  Knús á ykur öll. 


Tíminn og ég...... eða þannig.

Hér er ennþá verið að fljúga í þessum rituðu orðum, en það var ekki flogið í dag, austanátt og þvert á brautina.  En hér var risamót um helgina, Blakmót, og svo Fossavatnsgangann, og bara á blakmótinu voru um 700 manns, og eitthvað hefur nú komið af skíðagöngufólki, allstaðar að úr heiminum í Fossavatnsgönguna.  Svo það voru áætlaðar 11 flugvélar hingað í dag.  En eins og allir sem þekkja til vita, þá kemur yfirleitt logn á kvöldin, og núna er orðið svo bjart frameftir, að það var hægt að fljúga í kvöld.  Vonandi hafa allir náð til síns heima. 

IMG_6039

Hér er peran mín, ég er viss um að okkur mun líka vel við hana, og vonandi líkar henni vel við okkur.  Hún lofar allavega góðu, ljúf og dugleg.  En það mun koma í ljós.

IMG_6041

Töffarinn og prakkarinn Ásthildur Cesil á leið í afmæli til Isaacs Loga.  Hanna Sól, og Úlfur fóru í sund með pabba Úlfs, og fjölskyldu.

IMG_6042

Jamm það var dálítið hráslagalegt í Hnífsdal í dag.

IMG_6043

En inni var auðvitað notalegt og gaman.

IMG_6045

Ömmustrákur á tryllitæki sem hann fékk frá mömmu og pabba.  En það kom í ljós að drengurinn er karlremba, því hann vildi ekki að Ásthildur æki gröfunni, en lánaði góðfúslega öðrum strák græjuna LoLHeart

IMG_6054

Isobel ömmuprinsessa.

IMG_6050

Litlu systkinin. 

IMG_6055

Þessi er fullur...................................................................... af sælgæti og bíður þess að vera laminn i spað.  En við þurftum að fara, því ég var búin að bjóða hluta af fjölskyldunni minni að borða með okkur, þau voru að flytja í dag og í gær.

IMG_6057

Það er gaman að leika sér í góðu tómi.

IMG_6058

Þessi er sett inn fyrir Hnífsdölsku vinina mína, skólinn og kapellan.

IMG_6059

Hott hott á hesti !!!

IMG_6061

Sigurjón Dagur með mömmu sinni.

IMG_6065

Sóley Ebba spilar á píanóið.

IMG_6067

Hanna Sól inn í ömmuskáp.

IMG_6070

Og Ásthildur líka inn í ömmuskáp.

IMG_6072

Þessi glæsilegi hani er nýjasta gæludýrið..... eða þannig, hann er dverghænsni, og það voru engar hænur eftir hjá honum í hænsnakofanum, og stóri haninn lagði hann í einelti, svo við ákváðum að taka hann niður í garðskála, þar unir hann vel hag sínum, galar að vísu hátt ef Brandur er einhversstaðar nálægt, og svo galar hann hátt og snjallt á morgnanna, svo ekki þarf lengur á vekjaraklukku að halda.  Mætti seinka honum aðeins, hann byrjar kl. fimm Blush

en ef einhver þekkir til og veit af dverghænum einhversstaðar, sem þurfa nýtt heimili og glæsilegan hana, þá endilega hafið samband. 

IMG_6075

Kamelíufrúin mér sýnir á sér flottustu hliðina ever.  Glæsileg og flott.

IMG_6077

Og svo borðuðum við saman angi af fjölskyldunni minni.  Auðvitað læri með tilheyrandi.  En ég vona að nú fari aðeins að slakna á í kring um mig.  Mér lýst allavega vel á þessa ungu konu sem er komin hingað langa leið til að hjálpa mér, og ég er þakklát fyrir það. 

Og ég segi bara góða nótt mínir elskulegu bloggvinir og aðrir lesendur sem hingað koma inn.  Knús á ykkur öll. Heart


Óspillt víðerni og náttúra, það er framtíðin, en gengur illa að koma fólki í skilning um það.

Mig langar til að vekja athygli á þessari færslu Láru Hönnu, ég hef oft lesið pistlana hennar, og hún er skelegg baráttukona fyrir friðun landsins.  Ég einhvernveginn er dálítið hrædd um að við séum að fara fram úr okkur sjálfum í virkjanamálum.  Það sem verður verðmætast eftir bara nokkur ár, og er eftil vill nú þegar orðið mikilvægast, er einmitt óspillt náttúra og víðerni.  Við eigum að staldra við aðeins og hugsa okkar ráð.  Það fólk sem stendur í forsvari fyrir landið okkar, er því miður með einhverja allt aðra sýn á þetta.  Þau eru að velta sér upp úr gærdeginum, meðan við þurfum að huga að morgundeginum, börnunum okkar og framtíðinni.

http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/528709/#comments

Með bestu kveðjum. 


Smábörn og dýr.

Ég er búin að fá óperuna mín, hún er 28 ára gömul og virðist vera mjög yndæl.  Jorga, er hún kölluð, veit ekki hvort það er rétt skrifað.  Hún á 7 ára gamla dóttur, sem við höfum þegar boðið henni að koma hingað.  Hún er í skóla eins og er. 

En ég hef verið svona á síðustus orkudropunum, í gær svoleiðis að ég hef ekki farið blogghringinn minn, og vona að mér fyrirgefist það.  Stundum er maður bara úrvinda svona andlega. 

En ég er viss um að þetta gengur vel hjá okkur, Jorga er vinkona Áru, svo hún þekkir strax nokkuð til heimilisins.

IMG_6008

Ég var að passa þessar tvær í gær, þær eru flottar saman, þessar elskur.

IMG_6009

Knúsíknús.

IMG_6011

Gott að borða rússur hjá ömmu.

IMG_6014

Gott að vera hjá afa.

IMG_6016

Gaman saman.

IMG_6019

Þær eru tvær en samt þrjár.  hehehehe.

IMG_6020

Bras með barnið.

IMG_6022

Ætlar að ganga ekki alveg nógu vel.

IMG_6025

Svo er að máta sokka.

IMG_6034

Hæ sæta, ég er flottastur.

IMG_6035

Smá um þolinmæði, þetta er hann Zorró.

IMG_6036

Æ þessi börn, endalaust að djöflast í manni.

IMG_6037

Maður verður víst að þola þetta, svona fyrir húsbóndann.

IMG_6038

Nú fer þessu sennilega að ljúka Tounge

Eigiði góðan dag elskurnar.


Mömmó, og ýmislegt á laugardegi.

Smá fjölskyldumyndir að hætti hússins.

IMG_5978

Köttur,blóm og barn.

IMG_5979

Litli götulistamaðurinn.

IMG_5982

Blandaður kokkteill.  Fallegt fólk.

IMG_5984

Í matarboði hjá fjölskyldunni okkar frá El Salvador.

IMG_5987

Hérna afi minn.

IMG_5988

Best að hringja í mömmu... eða einhvern.

IMG_5990

Alejandra frænka getur hjálpað mér.

IMG_5994

Og svo auðvitað að dansa við Pablo frænda.

Hanna Sól var fjarri góðu gamni, því hún fór með Júlla, Sigurjóni, Úlfi, Sóley Ebbu, og Birtu í sund.

IMG_5998

Svona var veðrið í gær, en núna er allt orðið hvítt, ég ger svo svarið það.  Það byrjaði að snjóa í gærkvöldi.

IMG_6000

En páskarósin mín hefur það svo ljómandi gott undir skaflinum.  Blómstrar sem aldrei fyrr. 

IMG_6001

Og manngerða snjófjallið stendur enn, og hefur lítið látið á sjá.

IMG_6002

Júllí bauð okkur upp á þennan fína kjúkling í gærkveldi, eins gott því ég var að hamast við að prikla fram að kvöldmat.

IMG_6006

Börnin búin að fara í bað og tilbúin í svefninn.  Prinsessan og prinsinn.

IMG_6005

Það er á meðan öskubuska mátar skóna.  LoL

En ég frétti í gær að ég fæ sennilega eina peru í kvöld eða á morgun,  hún er frá Litháen, svo er að vita hvort hún tollir eitthvað.  Smile Það verður tíminn að leiða í ljós. 

Eigið góðan dag elskurnar!Heart

Smá laugardagsgrín.

Wife: 'What are you doing?'
Husband : Nothing.
Wife : 'Nothing...? You've been reading our
marriage certificate for an hour.'
Husband : 'I was looking for the expiration date.'
 

Wife : 'Do you want dinner?'

Husband : 'Sure! What are my choices?'
Wife : 'Yes and no.'
 
 
Wife: 'You always carry my photo in your wallet. Why?'
 Hubby: 'When there is a problem, no matter how
 impossible, I look at your picture and the
 problem disappears.'
 Wife: 'You see how incredible I am for you?'
 Hubby: 'Yes! I see your picture and ask myself
 what other problem can there be greater
 than this one?'
 
 
Stress Reliever

Girl: 'When we get married, I want to share all
your worries, troubles and lighten your burden.'
Boy: 'It's very kind of you, darling, but I don't
have any worries or troubles.'
Girl: 'Well that's because we aren't married yet.'

Son: 'Mom, when I was on the bus with Dad this

morning, he told me to give up my seat
to a lady.'
Mom: 'Well, you have done the right thing.'
Son: 'But mom, I was sitting on daddy's lap.'
 
 
A newly married man asked his wife,

'Would you have married me if my father
hadn't left me a fortune?'
'Honey,' the woman replied sweetly,
'I'd have married you,
NO MATTER WHO LEFT YOU A FORTUNE!'
 
  
 
Father to son after exam:

'Let me see your report card.'
Son: 'My friend just borrowed it.
He wants to scare his parents.'
  
 
Girl to her boyfriend:

One kiss and I'll be yours forever.
The guy replies:
'Thanks for the early warning.'
 
 
A wife asked her husband:

'What do you like most in me,
my pretty face or my sexy body?'
He looked at her from head to toe and replied:
'I like your sense of humor.'


Mig langar að spyrja ykkur að dálitlu!

Það er svoleiðis að fólki mitt frá El Salvador sótti um ríkisborgararétt í nóvember s.l. þau greiddu svo 10.000.- krónur fyrir hvern mann, hjónin og barn sem sagt 30.000.- og munar marga um minna.  Þau báðu mig svo að hringja og spyrjast fyrir um hvað þyrfti til að sækja um aftur og hvort þau þyrftu að greiða aftur fyrir þetta.  Einnig var orð sem hvorki þau né ég skildum, en það er "framfærsluvottorð".

Nú ég hringdi svo í morgun og spurðist fyrir, ég fékk svör um hvað þetta framfærsluvottorð þýddi, en svo var mér sagt að þau yrðu að greiða aftur 10.000.- krónur hvert  fyrir nýja umsókn.  Ég kváði við, sagði að ég væri með í höndunum kvittanir fyrir að þau væru búin að greiða þetta gjald.  Já, sagði stúlkan, en við erum búin að loka málinu, og þau verða bara að greiða aftur.  Ég var frekar vantrúuð á þetta, og spurði af hverju?

Jú þetta er bara vinnuregla hjá okkur.

Þau hefðu getað dregið að greiða þangað til þau sóttu um aftur, hélt hún áfram. 

En sagði ég, þeim var aldrei tilkynnt að það væri hægt að hafa það svoleiðis.

Svona er þetta bara sagði hún, þetta er vinnuregla hjá okkur.

Nú langar mig til að spyrja ef einhver getur svarað mér.  Ég náði ekki í neytendasamtökin í morgun.  Er þetta hægt, að Dóms- og kirkjumálaráðuneytið hafi þær vinnureglur að hafa fé af fólki með þessum hætti.  Af því að þau borguðu á tilteknum tíma, þá brann féð inni.  Af hverju var þeim ekki gert það skiljanlegt að þau þyrftu ekki að borga strax, og af hverju var þeim þá ekki sendur peningurinn til baka ?  Og það sem meira er, þau eiga ekki að þurfa að greiða fyrir barnið.  Sem sagt það átti aldrei að borga meira en 20.000.-

Ég tek það fram að þau hafa ekki hugmynd um þetta brölt í mér.  Og munu aldrei rugga þessum báti sjálf.  En ég er satt að segja alveg gapandi, er nema von að siðferðið sé ekki betra í landinu, þegar dóms- og kirkjumálaráðuneytið viðhefur þessa vinnureglu ?

Er þetta hægt Matthías ? Spyr sú sem ekki veit.


Knúsídúllur og 1. maí.

1. maí 2008.  Dagur verkalýðsins, og einnig uppstigningardagur sem tilheyrir kirkjunni.  En hefur sennilega tilheyrt fornum trúarbrögðum, þar sem kirkjan tók yfir flesta helgidaga heiðinna manna, meðan þeir voru að ná fótfestu.  Nóg um það.  Þetta er allavega fallegur dagur.  Elli minn er bæði að spila í lúðrasveitinni og syngja með Karlakórnum, en ég kemst ekki til að hlusta, þar sem ég er nú þriggja barna móðir og kemst ekki fet Tounge En það er furðulegt hvað maður er fljótur að gleyma öllu svona stússi, þegar börnin stækka og fara að heiman.  En það rifjast svo allt upp aftur, þegar maður kemst í sömu spor aftur.  En eins og Elli minn segir, ætli þetta sé nú ekki enn eitt yngingarmeðalið.  Heldur manni allavega á tánum.

Ég var nú bara að spá í hvort ég ætti ekki að fara út í dyr og berja pottana mína með sleif, til að mótmæla þessu háa matvælaverði.  Eins og konurnar gerðu í Chile á sínum tíma.  Ætli það væri ekki áhrifaríkara en allar göngur og mómæli, ef við tækjum okkur saman húsmæður og herrar og sameinuðums um að slá taktinn með pottum og pönnum hver við sínar útidyr.

IMG_5942

Svona var veðrið í gærmorgunn, dálítið hráslagalegt svona snemma morguns, en birti til, þegar á daginn leið.

IMG_5943

Sólin gægist á kubbann.

IMG_5939

Systurnar bjuggu sig á leikskólann, og þetta er systraknús.

IMG_5941

 

IMG_5944

Skáparnir hennar ömmu eru mjög áhugaverðir, og þetta gula teppi er ómissandi hjá Ásthildi litlu.

IMG_5948

Hún druslast með það um allt hús, og getur ekki farið að sofa án þess að knúsa það.

IMG_5951

Haha amma BUUU!

IMG_5957

Þessi skápur er alveg mátulegur fyrir mig.

IMG_5970

Og svo er hann fullur matar líka.

IMG_5961

Og Hanna Sól hjálpar ömmu að leggja á borðið.

IMG_5963

Svo er það hann Brandur.  Hann týndist í viku, og það kom í ljós að hann hafði lokast inn í gámi sem við geymum ýmislegt í.  Hann hafði þvælst þangað inn þegar Elli var að ná í eitthvað, forvitnin drap köttinn, samt ekki Brand, því hann hefur sennilega lifað á músum í þessa viku.  Hann var vel haldinn kattarkvikindið, en mikið var hann samt feginn að komast heim aftur Smile Þó hann þurfi að þola heilmikið knús.

IMG_5965

Kvöldið er fagurt.  Það var flogið langt fram eftir kvöldi í gær, hér er að fara fram blakmót öldunga, hingað koma um 700 manns hef ég heyrt, svo nóg er um að vera.  Svo hér er margt um manninn. 

IMG_5971

Hanna Sól er komin í 1. maí fötin sín, og stillir sér upp fyrir ömmu að taka mynd.

IMG_5974

Sú stutta er líka búin að klæða sig upp á, eins og hennar er von og vísa LoL

IMG_5975

Júlli og Sigurjón Dagur eru í heimsókn, og Sóley Ebba gisti í nótt.  Þau hafa það bara notalegt.

IMG_5976

Prinsessan mín.


« Fyrri síða

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2008
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband