Kúlan, lífið og tilveran.

Enn einn dýrðardagurinn, ég er alveg að verða búinn á því, það er svo rosalega mikið að gera, bæði í vinnunni og svo að reyna að koma garðplöntustöðinni í lag fyrir sölu.  Ég ætla að reyna að opna á sunnudaginn næsta, en á föstudag, þarf ég að fara suður á miðstjórnarfund hjá Frjálslyndum, svo ætla ég að aka heim á laugardaginn.  En þá þarf allt að vera klárt og kvitt fyrir opnun á garðplöntustöðinni, fólk er farið að verða óþreyjufullt eftir að kaupa sér plöntur, og margir koma og kíkja og forvitnast.  

Það ríkti reyndar sorg á þessu heimili í dag, því að lítill drengur aðeins tveggja ára í fjölskyldu Jorgu dó í nótt.  Það er hræðilegt þegar lítil börn deyja, áður en þau fá tækifæri til að verða almennilega til.  En svona er lífið, sumir ætla sér ekki langa vist á jörðinni.  Þessum lífsins táradal, við bara getum ekki séð það sjálf, því verðum við sorgmædd og grátum.  Vissuð þið að það er efni í tárum sem lækna ?  þess vegna er gott að gráta.  Það er eiginlega alveg hræðilegt að frjósa og geta ekki grátið, þegar sorgin ber að dyrum. 

Almættið leiði þessa litlu sál til himna, og verndi hana og blessi. 

IMG_6530

Þetta kallast fötuspilið LoL Nei reyndar er þetta fatan sem er svo spennandi að kíkja í, þar er allskonar smádót sem safnast fyrir í eldhúsinu.  Og svo er svo rosalega spennandi að vera upp á borði.

IMG_6533

Hér er hið daglega veður, ekki amalegt. Og bara svo hlýtt líka.

IMG_6534

Aumingja Hanna Sólin mín, í gær stakk hana bífluga, og í dag beit litla systir hana, en sem betur fer var amma búin að kaupa prinsessuplástra, það er mikil notkun á plástrum þessa dagana, skal ég segja ykkur.  LoL Sokkarnir eru frá Sigurjóni dag, en amma lofaði að kaupa bleika sollu stirðu sokka við tækifæri, og sollustirðu kjól og sollustirðu.... þá eiginlega hætti amma að hlusta og sagði bara já já, svo kemur í ljós hvað við báðar munum af þessum díl.

IMG_6535

Þessi mynd gæti heitið, sitt í hvorum heimi. 

IMG_6536

Og litla skottið prakkarast endalaust.

IMG_6537

Meðan sú stóra er voða settleg.

IMG_6538

Það er svolítið merkilegt að það skuli ekki vera hægt að kaupa svona boxerbuxur á stelpur, allar buxur eru skálmalausar, eins og þetta er mikið hlýlegra, en ég hef ekki fengið Hönnu Sól í þessar buxur,  af því að hún veit að þetta eru strákabuxur.... stráka og stelpu hvað !!!, En allavega sættist hún að að fara í þessar "stuttbuxur" LoL

IMG_6539

Svo þarf að passa upp á afaskyrið, að skæruliðinn taki það ekki af manni, og jafnvel helli því yfir hausin á sér... annað eins hefur nú gerst. 

IMG_6542

Hvað ætli þetta sé ?W00t

Nei ekkert eins og þið haldið hehehehehe

IMG_6541

Hún fór út í sandinn fyrir utan, og var ekkert nema sandur út úr og innúr, þessi pæja.

Annars fóru þau á leikskólanum í sveitina að skoða lömbin í morgun, það var aldeilis gaman. 

En nú eru allir farnir að sofa, og best að fara að halla sér líka, það eru erfiðir dagar framundan, ef mér á að takast að fara til Ungverjalands 2 júní, er eins gott að halda vel á spöðunum og skipuleggja hlutina vel og vendilega.  En karlakórinn er að fara þangað í tíu daga ferð ásamt mökum, og ég hlakka mikið til.  Jorga mín ætlar að sjá um krakkana, með hjálp barnanna minna. 

En ég segi bara góða nótt. Heart


Kúlulíf og daglegt veður.

IMG_6493Hið daglega veður og smá líf úr kúlúsúk.

IMG_6490

Tjörnin hefur alltaf sama aðdráttaraflið.

IMG_6503

Einhvernveginn hef ég á tilfinningunni að litla dýrið eigi eftir að fá sér óumbeðin sundsprett aftur LoL

IMG_6507

en það er nú öryggi að hafa stóra frænda við hliðina á sér.

IMG_6505

Afi er náttúrulega bestur.

IMG_6512

Alltaf þessir krakkar hugsar Brandur hehehe.

IMG_6514

Svo borðar maður afaskyr.

IMG_6515

Og fær sér tesopa með Jorgu.

IMG_6526

Strákar og kettir eiga ýmislegt sameiginlegt.

en svo er hið daglega veður.

Það var reglulega hlýtt í dag.

IMG_6496

Þessi er tekin í morgun, og þarna sést Ísafjarðarlognið mjög vel.

IMG_6518

Síðdegis gerði úrhellisrigningu.

IMG_6519

en það var líka sól, svo það myndaðist regnbogi.

IMG_6521

Lóðrétt rigning, eins og sjá má.

IMG_6528

En svo augnabliki seinna stytti upp.  Þannig er veðrið á Ísafirði.  Alltaf gott,, stundum aðeins betra, og svo bara allra best.

Eigið góða nótt elskurnar. Heart

 


Er þetta ekki hið besta mál ?

Smá sigur í öllu þessu virkjunarfargani.  Er ekki komin tími til að náttúran fái að njóta vafans.  Það sem eyðilagt er í svoleiðis framkvæmdum verður ekki aftur tekið.  Og alltaf minnkar ósnortið land í heiminum. 

Ég óska náttúruverndarfólki til hamingju með þennan sigur.  Þetta er áfangi, orusta sem vannst, en stríðið stendur enn. 

Mér finnst stundum eins og allt of margir vilji bara stundargróða, en sjái ekki þvílík auðævi geymast í náttúrunni og hinum ósnortnu víðernum.  Ég tók líka eftir að það var skipulagsstofnun sem sagði pass, meðan umhverfisstofnun gaf leyfi.   Fagra Ísland hvað ?

En ókey ég ætla ekki að vera með leiðindi.  Bara segja að ég er ánægð með þessa niðurstöðu, þó mér komi málið ekkert við annað en að vera íslendingur og þykja vænt um landið mitt, og trúa því að þegar fram í sækir, verði ósnortin náttúra meira virði en álver, og stóriðjur. 


mbl.is Bitruvirkjun út af borðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er að hlusta...

Á tvær bloggvinkonur mínar á Útvarpi Sögu.  Ákvað að taka matartímann aðeins seinna til að hlusta á Katrínu og Huld.  Það er gaman að heyra raddirnar. Flott viðtal.  Heart

Ef afi hefði ekki skrifað bréfið.......

Ég sagði ykkur frá mynd sem ég hef í fórum mínum, frá henni Guðríði Þorsteinsdóttur.  Þar sem hún gefur afa mínum mynd af sér.  Falleg ung kona.

Guðríður

Þessi mynd hefur svo svifið fyrir augnskotsjónum mínum síðan, og smátt og smátt hefur það runnið upp fyrir mér, að þarna hefur ef til vill ekki munað svo miklu að ég yrði ekki til.  Hvað þá öll þessi dásamlegu barnabörn mín.

Þarna stendur nefnilega skrifað;

Þessa mynd á Hjalti C. Jónsson með rjéttu gefin af Guðríði Þorsteinsdóttur 1921.

Málið er að það hefur örugglega ekki verið neitt svona algengt að ungar konur gæfu ungum mönnum mynd af sér upp úr þurru, og heldur ekki áritaðar.  En af hverju amma geymdi hana, veit ég ekki.  Málið er að mamma mín fæddist ekki fyrr en í október 1922, svo afi hefur þess vegna getað verið á lausu þegar myndin var gefinn.  Eða jafnvel að þau hafi átt í ástarsambandi áður en amma klóaði í hann. 

Ef síðan þetta er rétt hjá mér, þá hefur nú ekki munað miklu að mamma mín hefði ekki fæðst, og síðan ef hún hefði ekki fæðst, þá hefði hún örugglega ekki hitt pabba minn á þessari pláhnetu á þessum tíma, og fætt mig, eller hur ?

Þannig að þessa mynd ber að geyma og sýna tilhlýðilega virðingu.  Ef til vill hefur amma geymt hana sem einskonar trófý hehehehe.... yfir sigruðum keppinaut.  En svona má auðvitað ekki tala um nafngreint fólk.  Ég er líka með aðra mynd af henni þar sem hún er orðin virðuleg frú með börn, svo það hefur greinilega verið vinskapur milli þessa fólks.

Konur úr djúpinu2

Aftan á henni stendur Frú Guðríður Þorsteinsdóttir Flateyri.  talan 40 og 2. kort.  Gaman ef einhver þekkir hana og börnin á myndinni.

 

Ég segi þetta nú bara til gamans, svona á góðum sunnudegi, þegar veðrið er fallegt, lóðréttur rigningarúði, svona vorkoma eins og hún best getur orðið.

Eigið góðan sunnudag mín elskuleg. Heart


Smá.... nei megakrúttfærsla.

Já þetta er svona smá krúttfærsla.  Þessi dagur er búinn að vera góður, við Elli gátum unnið heilmikið upp í garðplöntustöð.  Jorga og Hanna Sól fóru í sund, en Úlfur gætti að Ásthildi sem svaf sinn dagsblund, þó hún ætlaði aldrei að sofna, þó vaknaði hún kl. hálf sjö í morgunn, og sofnaði ekki eftir það fyrr en um tvö leitið.

17.maí.08b 032

Þetta er ef til vill svona týpiskur laugardagur í kúlunni.

17.maí.08b 033

Hver að dútla við sitt og svona.

17.maí.08b 034

Og við hjálpumst að við að bjarga býflugunum upp úr tjörninni, og núna líka geitungadrottningunum.

17.maí.08b 035

Já þær eru svo vinalegar og mikil krútt.

17.maí.08b 042

eins og sjá má.  svolítið blautar eftir volkið í tjörninni, en svo glaðar að vera bjargað og komast á þurrt.

17.maí.08b 039

Amma ég bjarga þessari ég kann það alveg.

17.maí.08b 046

Svo tekur Úlfur smá sving með golfkylfurnar og kennir litlu frænku sinni hvernig á að bera sig að.

17.maí.08b 047

Meðan litli götulistamaðurinn fremur sínar gjörningar af miklum áhuga.

17.maí.08b 050

Það má ekki á milli sjá hvort þeirra er flottara, ég get svo svarið það.LoL

17.maí.08b 051

Þau eru bara flottust.

17.maí.08b 055

Svo þarf að telja flétturnar hennar Jorgu.

17.maí.08b 057

Og Úlfur leggur síðustu hönd á plóginn með súpuna, þ.e. hvítlauksbrauðið.  Þetta sá hann algjörlega um sjálfur, og þvílíkt góð sjávarréttasúpa hjá honum.

17.maí.08b 058

Amma, Ásthildur er búin að setja á gólfið svona hvítt duft.

Ha, segir amma, á kafi að horfa á inspecktor Barnaby.

Já hún er búin að setja það á gólfið... Ég gerri ekki neitt !

Ókey, amma enn að horfa á Barnaby.

Já en hún er búin að setja það út um allt.

ÚBBS !

Það var kartöflumjöl... jamms út um allt... En ókey, Barnaby varð að leysa gátuna og ekki gat ég svikið hann og hlaupist á brott. LoL

17.maí.08b 061

Það lá við að ég dæi úr hlátri, þegar ég sá hvers kyns var.  Og litla stýrið útötuð í kartöflmjöli, frá toppi til táar. 

Vonandi fáið þið líka smá gleðihlátur yfir þessum yndislegu myndum.  Ég allavega skemmti mér svo vel yfir þessum elskum mínum öllum. Heart


Tónleikar og annað tilheyrandi kúlusúk.

Það voru tónleikar í gær hjá stubbnum.  Ég komst ekki, en Elli minn tók nokkrar myndir.

17.maí.08 006

Þetta mun vera Tónlistarhópur í 4. G.Í. 

17.maí.08 008

Upprennandi saxófónleikari. og hann er frændi Balda Geirmundssonar, svo hann á ekki langt að sækja hæfileikana.  Afi hans Kalli Geirmundsson, sem spilaði alla tíð á gítar í B.G.

17.maí.08 010

Hér er svo Úlfurinn stubburinn minn á trommurnar.

Því miður missti ég af þessum vortónleikum, en það er alltaf svo frábært að fara og hlusta á börnin spila. 

17.maí.08 012

Hér eru svo nokkrar myndir út garðinum mínum.

17.maí.08 015

Þessi situr og fylgist með gestakomum.

17.maí.08 017

Þessi synti einu sinni um sjóinn, nú liggur hann bara við bæjarlækinn, svona breytast tímarnir.

17.maí.08 018

Fossinn minn.

17.maí.08 020

Og páskaliljurnar.

17.maí.08 021

Það er nú ekki tekið út með sældinni að passa upp á tvo skæruliða þegar maður er elstur.

17.maí.08 023

Þetta er skæruliði númer eitt, þarna að fá sér rauðvín.

17.maí.08 024

Hanna Sól að fá sér rúgbrauðsneið.

17.maí.08 026

En Úlfur bauð í fiskisúpu í kvöld, hann byrjaði reynda að elda í gær, þessar myndir eru frá þeim tíma.

17.maí.08 027

Hann bar sig fel að við eldamennskuna, og gerði þetta alveg sjálfur.

17.maí.08 028

Laxinn settur í pottinn. 

Við borðuðum súpuna í kvöld og var hún hið mesta hnossgæti. 

17.maí.08 029

Hér er Úlfur að blása sápukúlur.

17.maí.08 030

Hanna Sól er greidd svona flott.  Þær fóru í sund í dag. Ætluðu í gær en þá var laugin lokuð.  Hanna Sól og Jorga ræða saman á ensku og þýsku.  Should we go swimming now ? segir Jorga

Yes segir Hana Sól.  En svo ræða þær líka saman á þýsku.  Þær geta alveg gert út um öll mál. 

17.maí.08 031

Þessi getur líka gert sig skiljanlega með fettum og brettum og líka með andlitinu LoL

En lífið er miklu einfaldara, síðan Jorga kom. Heart


Ömmurnar úr djúpinu og fleiri gamlar myndir.

Ég hitti marga daglega sem segjast lesa bloggið mitt, og sérstaklega skoða myndirnar.  Ömmumyndin sló í gegn, þar sem margir hafa spáð í hvaða konur þetta eru.  Ég lofaði einnii konu sem ég hitti á tónleikunum að stækka hverja og eina þannig að andlit þeirra kæmu betur í ljós.

Hér kemur svo árangurinn af því.

Ég kalla þær konur út Djúpinu.

Ömmur fyrr og nú2

Ömmur fyrr og nú3

Ömmur fyrr og nú4

Ömmur fyrr og nú5

Ömmur fyrr og nú6

Ömmur fyrr og nú7

Ömmur fyrr og nú8

Vona að einhver þekki þær betur núna, ég fékk nokkur nöfn í gestabókina, en þið megið alveg svara ef þið þekkið þessar flottu konur.

 

Hér eru svo fleiri.

Hjörtur 21 árs, Gauja19 ára

Þessi eru með nöfn og kennitölu.

Hjörtur 21 árs

og Gauja 19 ára.

Kona ur djúpinu2

Hef ekki nafnið á þessari fallegu konu.

Konur úr djúpinu3

Ekki heldur þessari, en platan hlytur að vera geymd.

Konur úr djúpinu4

Hér sést hún aðeins betur.

Konur úr djúpinu9

Enn ein nafnlaus.

Konur úr djúpinu10

Þetta gæti verið hún Lilla frá Laugalandi.  Heiðrós Þórðardóttir.

En ég læt Simsonkenninguna fylgja, vegna þess að sá maður var snillingur, bæði mikill listamaður, akropatik, skógrækarmaður og ljósmyndari.

Njótið mín ágætu.


Dagurinn í dag.

Ég ætla að svara mínum elskulegu bloggvinum á morgun við þeirra svörum.  En ætla að koma að smámyndum af hversdagsleikanum hér í kúlunni á blað með myndum.

IMG_6393

Svona byrjar morguninn i Kúlunni þessa dagana.

IMG_6397

Svo seinnipartinn þá er kvöldmatur í gær var Lasanja og Ásthildi fannst það rosalega gott.

IMG_6404

Þið sem reykið, það er ýmislegt að varast þegar smáfólkið á í hlut.  Svona stubbar geta drepið lítil börn. Sem betur fer var haft gott auga með Ásthildi í þessu tilliti, af sinni ömmu.

IMG_6407

Hér kemur garðyrkumaðurinn upp í henni. Alleg eins og amma sín.

IMG_6411

Tvær flottar saman, önnur étur tómat, hin gerir sér bolta að góðu LoL

IMG_6419

Geturðu lánað mér smá pening spurði óperan mín í dag.  Ég hef verið hér í hálfan mánuð og ekkert farið út að versla.

Já sagði ég, hvað þarftu mikið ?

Mig langar bara til að versla smá fyrir stelpurnar, sagði þessi yndislega stúlka.  Er þessi Bónus eitthvað svoleiðis,

Já sagði ég, og svo er auðvitað Samkaup hér lika.

Og þær fóru allar þrjár saman að versla.

IMG_6423

Allt var rosaflott og skrautlegt.

IMG_6424

Hér má sjá flotta hluti sem eru augnakonfekt fyrir litlar stúlkur.

IMG_6427

Ýmislegt brallað hjá þessum þremur.

IMG_6423

Afi líka áhugasamur um dýrðina.

IMG_6428

Sumir eru einfaldlega bara flottar prinsessur, sama hvað á dynur.

IMG_6421

svo eru aðrir ákveðnir einstaklingar, sem ætla sér stóra hluti í lífinu, og eru ekki sáttir ef það tekst ekki.

IMG_6422

Jamm maður skal sko lyfta þessu flykki, þó það verði manns síðasta LoL

IMG_6394

Hér brosir svo Mansjúríu rósin mín við okkur öllum og minnir okkur á hörmungarnar í Kína.

IMG_6395

svona flott var veðrið í gær, og svo hlýtt líka.

IMG_6417

Svona var það aftur á móti í dag, en líka hlýtt veður.  Hér sjáið þið hve snjórinn hefur hopað.

En nú er komin tími á mig í holuna mína. Það sem er frábærast í þessu öllu er að stúlkurnar mínar þær litlu og sú stóra ná saman, þrátt fyrir tungumálaerfiðleika. Eða þær tala ekki sama tungumál.  AÐ vísu tók ég eftir í dag, að Jorga og Hanna Sól ná aðeins saman á þýskunni.  En í fyrradag, þá komust þær að samkomulagi um að fara saman í sund daginn eftir.... EF Hanna Sól yrði stillt og góð.  Það stóðst svo.  Þannig að þær geta alveg náð saman um hluti, þó tungumálið sé ef til vill ekki alveg upp á það besta.  Sú litla talar auðvitað ekki neitt, en þar blívur táknmálið og líkamstjáninginn.  Aðal málið er að þær ná svo vel saman allar þrjár.  Og ég má til að segja það.... þó ég ætti ef til vill ekki að gera það. En mín elskulega ópera komst að því í dag að hún á von á barni.... það blómstrar nefnilega allt hér í kúlunni.  Heart

Ég segi nú bara góða nótt.


Stórhljómsveitin í Edinborgarhúsinu.

Já ég fór á tónleika með Írisi Kramer og stórsveitinni hennar í gær.  Það var virkilega gaman, ég kom út betri manneskja með gleði í sinni, eftir þessa músikveislu.

IMG_6341

Upphitun, þau voru smeyk um að ekki myndu koma margir, því það var ekki vel auglýst.  En meðan þau voru að koma sér fyrir, fylltist salurinn af fólki, og það þurfti að bæta við helling af stólum.  Sannarlega gleðileg óvænt ánægja.

IMG_6346

Fyrst kom fram jazzband Írisar, Smári, Valdimar og Halldór, á trommurnar var Tumi, þeir voru allir frábærir.  Ég hef fylgst með þessum strákum gegnum tíðina, Halldór og Valdimar hafa spilað mikið saman, og eru hreinlega frábærir músikantar, Smára hefur farið gífurlega fram á saxofóninn, hann brilleraði í gær í inproviseringum.  Sannarlega talent þar á ferð, eins og hinir.  Tumi er líka flottur á trommurnar.

IMG_6347

Smári slær í gegn á saxofóninn.

IMG_6349

Halldór á flygilinn einn af mínum uppáhalds. Sama hvort það er klassik, jazz eða rokk.

IMG_6348

Þarna sjást líka Valdimar á bassann, líka á kontrabassa og Tumi trommari.

IMG_6357

Ingunn Ósk Sturludóttir söngkona tók svo 2 lög með þeim, All of me og Cry me a river, bæði mín uppáhaldslög.

IMG_6359

Íris Kramer ekkert smáflott á trompetinn. 

IMG_6364

Ylfa Mist tók tvö lög með stórsveitinni, Over the rainbow, og Fly me to the moon.  Hún var frábær líka, söngurinn lá mjög lágt, svo það hefur ekki verið auðvelt að ná krafti í sönginn, en henni tókst það svo sannarlega.

IMG_6369

Mín með tilþrifum.

IMG_6384

Afi og amma ekkert smástolt.  Villi Valli hefur aldeilis verið liðtækur á Saxofón, harmonikku og píanó, og bara hvaða hljóðfæri sem er.  Hann er hættur að spila, en er að gefa út hljómdisk.  Ég hlakka til að kaupa hann.  Ég á fyrri diskinn hans og hann er aldeilis frábær.

IMG_6344

Hér er ein frábær söngkona líka Guðrún Jónsdóttir sópran, ég spurði hana hvort hún væri hætt að syngja, nei nei, en núna syng ég aðallega fyrir börnin mín, sagði hún. 

IMG_6345

Salurinn var fullur af fólki, og þurfti að bæta við stólum. 

IMG_6373

Frábær aldilis.  Ekki oft sem maður fær að njóta svona tónleika hér.  Og þvílíkt gott að eiga þessa frábæru tónlisamenn hér.  Ég vona að strákarnir okkar komi aftur heim, eftir skóla fyrir sunnan.  Við megum ekki missa þá í burtu alveg.

Ég segi bara takk fyrir mig.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Maí 2008
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband