30.4.2010 | 22:46
Svona hitt og þetta aðallega þetta.
égh geng bara á einum þriðja eða fjórða þessa dagana. Bæði er annríki í vinnunni og í garðplöntustöðinni og svo er elsku pabbi minn komin á spítala og á erfitt með að aðlagast því að vera ekki frjáls ferða sinna, eins og þröstur í búri. Það tekur á að horfa upp á þessa elsku svona. En þetta er auðvitað bara lífið eins og það gengur.
Hér eru nokkrar myndir.
Sigurjón Dagur og stóra systir gistu hjá okkur nokkra daga um daginn, hér er hann með egg sem hann týndi sjálfur upp í hænsnahúsi og vildi auðvitað borða strax.
Stóri bróðir og litli bróðir, langafi segir við Úlf að hann þurfi að minna litla bróður á það sem þeir feðgar áttu saman, þar sem hann var svo lítill þegar hann missti pabba sinn. Og þar er af nógu að taka, því Júlli var svo sannarlega barnavinur og gerði svo margt með börnunum bæði sínum og þeim öllum.
Svo er náttúrlega komin sumardagurinn fyrsti og þá er komið sumar ekki satt!
Já hann verður sama náttúrubarnið og pabbi hans og reyndar flestir krakkarnir í kúlu.
Páskarósin mín í fullum blóma núna úti.
Afgarnir að klippa Bodöhlyn, og stubbur fylgist vel með.
Svo má aðeins klifra í trjánum hjá ömmu.
Og gott að fá að halda aðeins í hendina á afa.
Fyrstu vorboðarnir fyrir utan páskarósina eru krókusarnir.
Þeir lífga upp á vorið.
Syprisinn minn sem er orðin sterkur og stór.
Ekki síður tújan, og þetta hér fremst er grænkál sem hefur haft veturinn af og smakkast alveg rosalega vel.
Ólöf Dagmar var rosalega dugleg að hjálpa til við að passa litla bróður sinn.
Solveig Hulda afi og Sigurjón með bókina sem afi las fyrir hann meðan hann var hér, Elsa María og pabbarnir. Hann elskaði þessa sögu.
Það vantar ekki mikið upp á að hún fari að ganga þessi litla stúlka.
Og Ólöf Dagmar kom heim með vinkonur sínar, og auðvitað var upplagt að fara í snú snú Allt hægt í kúlunni.
Sólveig Hulda og afi segja hvort öðru brandara.
ég giska á að hún verði góð í handbolta, því við vorum að leika okkur og hún greip boltan í hvert skipti.
Og svo var leikið líka við mömmu.
Fyrir þremur dögum síðan sagði ég við Ella minn, ég hef ekki heyrt eða séð eina hunangsflugu þetta vorið. Daginn eftir voru komnar tvær, og núna hef ég bjargað fimm stykkjum upp úr tjörninni, það er rútína á vorin. Þessi elska nýkomin úr baði.
Ísköld og blaut að þurrka sig í sólinni.
Áður en hún þandi sína ótrúlega smáu vængi og flaug af stað út í lífið.
en áður en ég hætti, langar mig að segja; heyrði ég rétt að ríkisstjórn velferðar hefur það á dagskrá sinni núna að hækka tryggingar á innvöxtum frá 20 þús evrum upp í 50 þúsund? er það forgangsmál núna þegar við erum að fara í samningaviðræður um Icesave? og svo að leiðrétta myntkörfubílalán? hvað með íbúðarlán?
Ég geri mér grein fyrir að þessi ríkisstjórn er gunga og drusla, en að þau skuli ganga svona undir kröfum peningaaflanna er alveg fyrir neðan allt sem ég hélt að þau myndu gera. Og ég segi nú bara ef þetta eru forgangsmálin hjá þeim, þá vil ég nú bara að þau fari frá sem fyrst, eða að við landslýðurinn þessi sem erum að axla alla ábyrgðina segjum hingað og ekki lengra. Förum að standa upp og koma þessu fólki burt, sem allra lengst og sjálfstæðisflokknum og framsókn með. Þegar ég sem er svona frekar friðarsinnuð og legg á mig að bjarga hunangsflugum upp úr tjörninni minn(set reyndar mörkin við hunangsflugur og geitunga) en ekki húsaflugur, er farin að alvarlega íhuga að grípa til allra meðala til að losna við pakkið sem sífellt sendir okkur löngutöngina, þá mega þau fara að biðja fyrir sér. Þá er stutt í að þetta verði ekki þolað öllu lengur.
Svona er þetta bara. Menn láta bjóða sér ýmislegt og sumir ansi langt, en svo kemur að stundinni þegar ofbeldið er orðið þannig að fólk sættir sig ekki við það lengur, og því miður eru þessi stjórnvöld alveg heillum horfinn í valdagræðgi og sovétskipunargreipum að þeim er ekki viðbjargandi. Það er mín skoðun.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
28.4.2010 | 18:06
Til hamingju með daginn Kristján Logi.
Hann Kristján Logi á afmæli í dag níu ára snáði. Hann er einn sá duglegasti of flottasti strákur sem til er. Það liggur allt svo létt fyrir honum.
Það var oft fjör í pottinum hjá ömmu.
Hér er hann í Fljótavík, að vaska upp eins og ekkert sé.
Hann er líka mesti fjörkálfur og alls óhræddur við hvað sem er.
Og hér er hann að borða í kúlunni.
Elsku Kristján Logi innilega til hamingju með öll níu árin. Amma í kúlu er stolt af þér eins og öllum hinum barnabörnunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
28.4.2010 | 09:38
Snilldarblogg. Prinsar og dramadrottningar.
Ég var að lesa magnaðan pistil frá Rakel Sig. http://raksig.blog.is/blog/raksig/#entry-1048303 Eins og talað út úr mínu hjarta.
Ég hef verið að velta fyrir mér hvað alþingismenn og ráðherrar séu að hugsa. Hvort þau séu virkilega í sambandi við fólkið í landinu. Mér virðist þau vera í einhverjum allt öðrum heimi. Eins og þegar Gylfi Viðskiptaráðherra lýsir því yfir að lengra verði ekki gengið í að bjarga heimilunum í landinu, saurugur upp yfir axlir að afskrifa skuldir auðmanna.
Menntamálaréðherrann er á bólakafi að reisa snobbhöll í miðbænum, en sker niður allt fé til kvikmyndagerðar. Og ég man eftir gamla Sovét þar sem fimmára áætlanir ríkisstjórnarinnar settar fram til að fara eftir þeim, í list sköpun sem öðru. Það varð til þess að bestu listamenn landsins hröktust burtu, því þeir gátu ekki unnið að listsköpun sinni unnir pressu frá stjórnvöldum. Og nú ætlar þessi snoppufríða stelpa að fara að setja fram fjölmiðlalög sem mér virðist vera þannig að gömlu fjölmiðlalögin voru eins og biblían í samanburði.
Heilbrigðisráðherra er farin af stað með að reisa nýtt sjúkrahús, þegar ljóst er að það þarf að loka fleiri deildum á þeim sjúkrahúsum sem eru starfandi, vegna peningaleysis.
Jóhanna lýsir því yfir að Steinunn Valdís hafi ekki gert neitt rangt.
Bjarni Benediktsson segir að alþingismenn verði að eiga það við sína samvisku hvort þeir telji sig geta setið áfram.
Málið er kæru alþingismenn og ráðherrar, almenningur er ekki sáttur, og hvort sem ykkur finnst þið hafa gert eitthvað rétt og eruð ánægð með ykkar samvisku, þá er sú samviska svo brengluð miðað við okkar, að þið eruð þess vegna vanhæf til að sitja á Alþingi. Þið dragið niður standard þeirrar stofnunnar og eruð rúin trausti.
Listinn frá Rakel.
Nafn | Kaupþing | Landsbanki | Samtals |
Steinunn Valdís Óskarsdóttir | 3.500.000 | 3.500.000 | |
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir | 1.500.000 | 2.500.000 | 3.000.000 |
Guðlaugur Þór Þórðarson | 1.000.000 | 1.500.000 | 2.500.000 |
Kristján L. Möller | 1.000.000 | 1.500.000 | 2.500.000 |
Össur Skarphéðinsson | 1.500.000 | 1.500.000 | |
Björgvin G. Sigurðsson | 100.000 | 1.000.000 | 1.100.000 |
Guðbjartur Hannesson | 1.000.000 | 1.000.000 | |
Helgi Hjörvar | 400.000 | 400.000 | 800.000 |
Sigurður Kári Kristjánsson | 750.000 | 750.000 | |
Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir | 250.000 | 300.000 | 550.000 |
Ragnheiður Elín Árnadóttir | 250.000 | 300.000 | 550.000 |
Árni Páll Árnason | 300.000 | 300.000 | |
Jóhanna Sigurðardóttir | 200.000 | 200.000 | |
Katrín Júlíusdóttir | 200.000 | 200.000 | |
Valgerður Bjarnadóttir | 200.000 | 200.000 |
Síðan þessar athugasemdir hér.
Hinn almenni borgari þarf að virða hin almennu lög. Stjórnarskrár hafa hins vegar þann tilgang að ákvarða stjórn landsins og setja valdhöfunum skorður. Og hvers vegna skyldu nú mannréttindin vera tryggð í stjórnarskrá frekar en með almennum lögum? Jú vegna þess að það er valdhafana að virða mannréttindin.
Það er ekki bara dapurlegt að horfa upp á grunaða þingmenn haga sér eins og óstöðuga unglinga sem eru svo sjálflægir að þeir verjast allri gagnrýni með yfirgangi og misbeitingu tungumálsins. Það er skuggalegt að hugsa til þess að örlög okkar séu undir þeim komið sem hafa ekki nægilegan siðgæðisþroska til að viðurkenna mistök sín og horfast í augu við afleiðingar þeirra.
Það er ekki nóg að segjast hafa samvisku og vilja vel. Í heimi þeirra sem hafa þroskast upp úr rokgjarnri dramatík gelgjuáranna þá eru það fyrst og fremst verkin sem dæma menn. Það getur vissulega verið virkilega gaman að unglingum. Maður getur m.a.s. hlegið að dramaþáttunum sem þeir setja upp við óútreiknanlegar aðstæður. Stundum a.m.k. En það er ekkert fyndið við það þegar fullorðið fólk notar þessa stjórnunartaktík. Síst af öllu þegar viðkomandi er meðal æðstu stjórnenda landsins.Það er reyndar stórhættulegt!
Við verðum að hætta þessari meðvirkni og losa þjóðfélagið úr þeirri gíslingu sem dramadrottningarnar og -prinsarnir halda samfélaginu í. Þau ógna trúverðugleika Alþingis okkar Íslendinga með því að neita að víkja sæti á meðan mál þeirra sem koma fram í Rannsóknarskýrslunni eru rannsökuð til hlítar.
Tek hundarð prósent undir þetta og hvet ykkur til að lesa færsluna hennar Rakelar og tilvísanirnar líka.
Oft hefur verið þörf á að rísa upp og sýna vilja okkar í verki. En nú er nauðsynlegt að standa upp og kalla eftir utanþingsstjórn eða neyðarstjórn. Þetta er orðið skammarlegt og óþolandi samfélag.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
26.4.2010 | 22:00
Konuhelgi í Reykjanesi og kvennakór Borgarfjarðar.
Ég skrapp inn í Reykjanes á helginni. Þetta var konuferð, með tveimur systrum mínum og þrem vinkonum fjölskyldunnar allrar. Þetta var dásamleg ferð og ég fékk heilmikið út úr henni andlega, í góðum og skemmtilegum félagsskap, lauginn, fékk góðan mat og skemmtiatriði meira að segja.
Fyrst er hér lítil ömmustelpa, sem er kjötæta eins og amma og Ásthildur Cesil.
Úlfur að hjálpa afa í gróðurhúsinu.
Hér eru svo gellurnar, hver annari flottari og skemmtilegri. Laugin í Reykjanesi er algjörlega frábær og mikil heilsulind, við vorum fleiri klukkutíma ofan í henni. Fengum sól allan tíman en dálítin blástur, en það er bara oft þarna, skiptir bara ekki máli.
Á laugardagskvöldinu fengum við okkur kvöldverð, sem var ríkulegur og góður, ekta íslenskt lambakjöt og þjónustan góð.
Hérna voru líka fleiri, til dæmis jeppagaurar, og svo Susan og Einar. Ég sagðist myndi senda kveðju frá þeim í Tónlistarskóla Ísafjarðar og geri það hér með. En Susan er kórstjóri kvennakórs Borgarfjarðar og þær tók lagið fyrir okkur.
Þetta er virkilega skemmtilegur kór og raddirnar tandurhreinar, það er svo sem auðvitað með snillingin Súsan við stjórnvölin.
Við fengum svo líka kattardúettin, frá þessum tveimur, og það var virkilega gaman.
Og Borgfirskir bændur og búalið skemmti sér konunglega yfir skemmtuninni.
Hér kemur svo grand finale. Þau voru í óvissuferð og gaman að þau skyldu koma í Reykjanesið meðan við vorum þar. Takk fyrir okkur kvennakór Borgarfjarðar.
Þær enduðu svo á finnska söngnum Kalli Olla kukkulalle, veit að þetta er ekki rétt skrifað.
Þessi litli gaur er einmitt hjá afa og ömmu núna með systir sinni, Ólöf Dagmar.
Köttur og barn.
Eigið gott kvöld elskurnar og takk fyrir mig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
26.4.2010 | 13:07
Til hamingju með daginn Símon Dagur.
Lítill maður er eins árs í dag.
Litli Símon Dagur búin að eiga óslöp bágt undanfarnar vikur. En er nú allur að verða betri sem betur fer. Elsku litli karlinn.
Hann vildi vera með í giftingunni hjá pabba og mömmu.
Tilbúin í hvað sem er.
Gott að vera hjá ömmu líka en......
Þarna er eitthvað rosalega forvitnilegt á ferðinni.
Með pabba að taka fyrstu skrefin.
Elsku karlinn minn. Innilega til hamingju með eins árs afmælið þitt. Það verður örugglega voða fín veisla, því þú átt svo myndarlega mömmu, sem bakar svo flottar og góðar kökur og pizzur, og svo er pabbi svo rosalega duglegur líka, og reyndar allir krakkarnir, Sóley Ebba, Kristján Logi og Aron Máni og prinsessan Evíta Cesil stórasystir.
Til hamingju ömm með frábæran lítinn mann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
22.4.2010 | 21:20
Skýrslan.
Ég hef ekki lesið skýrsluna, en ég hef fylgst ágætlega með viðbrögðum um hana. Það er sífellt að koma betur í ljós hve vel hefur verið til hennar vandað, og hve djúp áhrif hún hefur á þjóðarsálina. Sem betur fer. Annars hefði verið betur heima setið en af stað farið.
Ég skynja breytingar á áherslum, umræðunni og stefnunni sem málin eru að taka. Og það sem mestu skiptir að umræðan er farin að skila sér inn á Alþingi. Í dag heyrði ég umræður bæði stjórnaliða og stjórnarandstæðinga sem eru farin að heimta betri vinnubrögð og ásakanir á hendur yfirvöldum um að ekki hafi verið gert neitt í að breyta um kúrs, eins og lofað hefur verið. Í fyrsta skipti tala menn tæpitungulaust um það sem að er innan sinna eigin flokka, og það er vel. Annað gengur bara ekki.
Líka þessi áhersla almennings á að þeir sem þegið hafa mútur og staðið með hrunöflum víki. Það er mótmælt utan við heimili manna, og þykir sumum of langt gengið. En ég segi bara, eru sum heimili heilög og önnur ekki?
Viðskiptaráðherra nýbúin að lýsa því yfir að lengra verði ekki gengið til móts við almenning í landinu, en nú er. Maðurinn greinilega ekki í sama heimi og fólkið sem allt í einu stendur frammi fyrir skuldum sem það ræðus ekki við og eru annara sök.
Forsætisráðherra og fjármálaráðherra enn á sömu spýtunni, og vita ekki í hvorn fótinn þau eiga að stíga. Rúin trausti meirihluta þjóðarinnar í jafn veigamiklu máli og Icesave til dæmis.
Krafan um að allt þetta fólk segi af sér verður æ háværari, og mun að lokum verða eins og alda sem skolar spillingunni burt, og skilur eftir hreina strönd. Að allir víki sem verið hafa við völd frá einkavæðingu bankanna finnst mér vera lágmarkskrafa. Og eins að það fólk sem þegið hefur fé af fyrirtækjum sjái sóma sinn í að víkja frá háborðinu. Þetta fólk hefur misboðið almenningi og mun aldrei njóta traust framar.
Það er verið að ræða um blaðaviðtöl útrásarvíkinga þar sem þeir gráta krókódílatárum og "iðrast". Menn vilja ekki taka þátt í svoleiðis, en fólk vill heldur ekki taka mark á sumarfríjum stjórnmálamanna, sem "víkja til hliðar" af tillitsemi við flokkinn sinn. Heldur ekki taka mark á þeim sem þykjast vera alsaklausir og neita að víkja þó þeir séu að mati almennings sekir um siðferðisbrest eða mútur.
Rannsóknarskýrslan segir það sem við "vissum" en lá í þagnargildi, og mátti ekki ræða um. Hún staðfesti nákvæmlega það sem spjallað hefur verið um í eldhúskrókum, börum og kaffihúsum, en mátti bara hvísla en ekki segja upphátt.
Þess vegna allt í einu brast stífla og enginn sér fyrir hvar flóðið endar, og það skýrist heldur ekki hvort einhverjir saklausir lendi í því flóði. Almenningur hafði fengið staðfestingu á því að verstu sögusagnirnar voru réttar. Því ríkir hálfgerð upplausn í landinu, en samt er nokkuð ljóst að með þessari skýrslu er fólk farið að hlusta hvort á annað. Menn eru farnir að tala saman, og mitt í afsökunum og vælukjóastandi, gera menn sér grein fyrir að mestu máli skiptir að við erum ein þjóð, sem þurfum að læra að fyrirgefa hvort öðru og hjálpa hvort öðru yfir þennan hjalla.
Þess vegna held ég að þessi rannsóknarskýrsla eigi eftir að hreinsa mikið til í Íslensku þjóðlífi og hafa miklu meiri áhrif en við gerum okkur grein fyrir í dag, og var ekki vanþörf á.
Ef okkur auðnast að standa saman, finna réttláta lausn og fyrirgefa hvort öðru er ég viss um að okkur líður betur sem þjóð. Til þess þarf eins og ég sagði áðan að það fólk sem hér hefur öllu ráðið til lengri tíma, annað hvort víki eða fari að iðrast og sýna betri vinnubrögð en hingað til. Batnandi mönnum er best að lifa og oft gerist það að menn læra af mistökum sínum og einbeita sér að því að gera betur. En ef ráðamenn sem nú tróna, svara ekki kalli alþingis um betri vinnubrögð og fara að taka mark á skýrslunni, þá bíður okkar ekkert annað en skipsbrot, annað hvort uppreisn eða hörmung. Þeirra er valið.
Svo að lokum GLEÐILEGT SUMAR OG MEGI ÁRIÐ 2010 VERA OKKUR GOTT. En þá þurfum við að læra ansi margt um samskipti, fyrirgefningu, sanna iðrun og viljan til að takast á við sameiginlegan vanda, og hann er ekki fólgin í ESB.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.4.2010 | 16:32
Kúluvor.
Mig langar til að senda ykkur smávor svona á síðasta degi vetrar.
Zakúrakirsuberin sýna sitt fegursta núna.
Það gerir rósamandlan líka.
Þetta er svona svipaður tími og miðEvrópa.
Perutréð á eftir að opna blómin sín.
En kirsuberin eru í fullum blóma.
Og stora grafmyrtan brosir.
Kamilla blessunin er öll að blómstra.
Þetta er ekki litla hryllingsplantan, heldur knúppurinn á Mandaríurósinni minni, þar er runnabóndarós frá Kína.
Hér gægist hvítasunnulilja hvít saklaus og falleg.
Nektarínurnar brosa líka.
Og japanski dvergreynirinn.
En úti er vetur konungur ennþá með klærnar. En á morgun kemur sumardagurinn fyrsti.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
19.4.2010 | 22:48
Íslandi allt.
Já hér hefur mikið verið fjallað um afsökunarbeiðnir tár og að stíga til hliðar.
Sumir halda ekki vatni fyrir þessu og telja að nú sé loksins siðferðið að koma til skila. Ég verð að segja að ég set spurningamerki við öll þessi hliðarskref, tár og afsakanir.
Miðað við það sem á undan er gengið og miðað við allt sem þetta fólk hefur á samviskunni í að plata almenning upp úr skónum, aldrei gert neitt til að koma til skila að það séu ský á himni, hvað þá reynt að afstýra því sem var að gerast. Þvert á móti reynt að taka til sín hluta af kökunni éta hana og vilja svo geyma hana líka. Þá set ég spurningarmerki við krókódílatár og hliðarskref.
Ef eitthvað af þessu fólki sem hefur nú náðarsamlegast stigið til hliðar, af því að það vill ekki raska rannsóknum, hefði stigið niður fyrr, sett fótinn niður og sagt hingað og ekki lengra, hefði ég trúað. En, takið nú eftir, ekkert þeirra gerði neitt eða sagði fyrr en rannsóknarskýrslan kom fram og sendi þeim skilaboð.
Það eru til dæmis ekki margir dagar síðan Þorgerður Katrín taldi sig ekki þurfa að víkja. Ingibjörg Sólrún hefur komið fram og ásakað aðra um allskonar mistök. Enginn hefur hingað til gengist við ábyrgð.
Nema núna þegar glæpurinn er orðin lýðnum ljós. Þá er gripið til þess að "iðrast" og "víkja". Ekki segja af sér, ónei, það væri alltof stórt skref. Þetta blessaða fólk lifir i allt öðrum heimi en við hin. Ef við tökum kjötlæri úr Bónus, kemur löggan og við verðum dæmt annað hvort í sekt eða fangelsi. En ef við værum uppvís að taka milljarð eða þar um bil að láni, með engu veði, sem við ætluðum aldrei að greiða, þá er nóg að koma fram og segja sorrý, gráta og allir vorkenna manni og segja Vá hvað hún/hann er saklaus og flottur, auðvitað viljum við hafa þau áfram, af því þau eru svo hreinskilin og góð. (Afsakið meðan ég æli).
Nei gott fólk ef við virkilega viljum nýtt Ísland, þá föllum við ekki fyrir svona leikþáttum. Þetta fólk hefur fyrirgert rétti sínum til að teljast trúverðugt og á að ganga alla leið og fara frá alveg.
Jóhanna og Steingrímur eru hluti af þessari spillingu líka, þau hafa alla tíð spilað með, þó Vinstri Græn hafi ekki beint verið í stjórn, þá vissu þau alveg um alla spillinguna sem viðgengst, og sögðu aldrei neitt, því það hefði kostað uppgjör sem þau vildu ekki taka þátt í, því von þeirra var að komast sjálf að kjötkötlunum. Enda sýnir sagan að um leið og þau komust til valda, var alveg sama sagan upp á teningnum, valdhroki, spilling og heimaráðningar á vinum og vandamönnum. ( Fyrirgefið aftur meðan ég æli).
Spilling fjórflokksins er svo djúpstæður og svo samtvinnaður að ef við virkilega viljum nýtt Ísland, þá gefum við þeim öllum frí í næstu kosningum. Þá munu vonandi verða fleiri framboð og nýtt fólk sem gefur kost á sér. Til dæmis veit ég að Frjálslyndi flokkurinn verður þar, sennilega Hreyfingin og Borgarahreyfingin, kristilegur flokkur og guð má vita hvað. En við verðum að lesa og kynna okkur hvað flokkarnir hafa fram að færa, muna hvað þeir sem hafa verið á þingi hafa lofað og hvað þeir hafa svikið, og hafa dug til að refsa þeim duglega sem ekki hafa staðið við sín kosningaloforð. Og svo þegar við höfum valið þá verðum við að fylgjast með því hvað flokkarnir sem komust að gerðu til að efna loforðin, og ef þeir hafa ekki staðið sig hafa festu og einurð til að refsa þeim næstu kosningar á eftir.
Það er nefnilega nákvæmlega við sem getum haldið utan um lýðræðið, með því að veita stjórnmálamönnum aðhald, alveg rétt eins og fjármálaeftirlitið gleymdi að veita útrásarvíkingunum aðhald, gleymdum við að veita stjórnmálamönnunum aðhald. Þeir hafa verið hingað til verið áskrifendur að atkvæðum sínum. Hafa ekki þurft að standa sig, eða standa fyrir sínu, heldur lofa og lofa og standa ekki við neitt, og ljúga svo ennbetur fyrir kosningar og fólk kokgleypt allt sem þeir hafa sagt. Hvernig getum við svo staðið hér og undrast í hvaða stöðu við erum?
Við sköpuðum þetta sjálf, eða þeir sem alltaf hafa kosið Sjálfstæðisflokkinn á hverju sem hefur gengið, og þeir sem kjósa Samfylkinguna nó matter What, framsóknarmennirnir sem aldrei hafa gert neitt annað en að setja x við B og Vinstri græn sem trúa því að Steingrímur og có séu svo saklaus dugleg og frábær.
Well ég get sagt ykkur að þau eru öll í sömu súpunni, samtryggingin, leikaraskapurinn og loforðin eru til þess gerð að plata okkur almúgan upp úr skónum, og láta okkur trúa því að við ráðum og getum valið. Það er bara ekki þannig.
Og núna þegar við erum orðin nógu reið og nógu örvæntingafull til að leita að sannleikanum, þá setja þau upp leikrit sem heitir; stígðu til hliðar, biddu fyrirgefningar og gráttu pínu pons, og lýðurinn fylgir þér allt til dauða. (Fyrirgefið en ég þarf að æla aftur).
Ágæta fólk ég spyr, viljið halda þessum leik áfram, eða hafið þið þor til að segja þessari fjórklíku að þið nennið ekki meiru? Ef þið virkilega viljið breyta, þá þurfið þið að hætta að vera svo barnaleg að trúa öllu sem að ykkur er rétt, og spyrja ykkur sjálf, hvað býr að baki þessum gráti, afsökun og sakleysisyfirlýsingum.
Til dæmis getur ekki verið að Þorgerður Katrín og Ingibjörg Sólrún hafi grátið af vorkunsemi yfir sjálfum sér að hafa þurft að standa í þessu svona tilneyddar. Getur ekki verið að Illugi og Björgvin hafið æft sig fyrir framan spegilin og talið að með þessu tilhliðardæmi gætu þeir haldið áfram að vera þingmenn eftir allt saman?
Svo má segna að Bjarni Ben þurfi sennilega að axla sína ábyrgð með afsögn, og margir fleiri. Það er okkar, ágæta alþýða að krefjast þess að þau einfaldlega víki, allt það fólk sem var með völd gegnum hrunið. Þau vissu en sögðu ekki neitt og vonuðust eftir að komast upp með það. Við þurfum að taka þau niður eitt og eitt og láta þau víkja. Vegna þess að það hefur komið í ljós undanfarið að við höfum vald, þegar við stöndum saman.
Við getum haft okkar áhrif, nýtum það og nýtum það vel til að byggja upp nýtt Ísland.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
18.4.2010 | 23:10
Afmæli, ferming og hitt og þetta.
Já 18 apríl er afmælisdagurinn hans Bjössa okkar. Hann er sonur Ella og skásonur minn. Við erum eiginlega bestu vinir ásamt konunni hans og barnabarninu honum Arnari Milos.
Hann kvæntist út í Belgrad í fyrra sumar þessi elska. Og þau voru svo sæt og fín.
Ísland Serbía, þannig það bara. Serbar eru mjög líkir okkur íslendingum sérlega skemmtilegt fólk og glaðsinna.
Til hamingju með afmælið Bjössi minn. Flottastur.
Svo fermdist bróðurdóttir mín í dag, Aðalheiður Bára, sem ber nafn móður minnar.
Flott og fín með mömmu sinni hér. Þetta var flott veisla, og haldinn í Arnardal sem er frábær staður sem ung hjón hafa keypt og unnið upp, allt svona frumlegt og gert skynsamlega, hér eru leiksýningar og afmæli, allskonar veislur og skemmtilegheit.
Þetta er fyrrverandi fjós, en gert mjög skemmtilega upp.
Hér er Matta mín, í óbeislaðri fegurð.
Litla skottið hennar ömmu sín, með mömmu. Hún vildi ekki víkja frá mömmu í dag.
Tilkomumikil vestfirsk fjöll.
Og Ísafjörður í sól og fegurð.
Ömmuskott með dótið hennar Hönnu Sólar.
Og kisa, þær umgangast hvor aðra með ákveðinni virðingu.
Fyrir fjallafólkið mitt, er svo hringurinn kring um mig.
Kamelíufrúin sýnir svo af sér alla þá fegurð sem hún getur.
Svona er lífið upp og niður, stundum dálítið niður, og þá fer orkan öll í að bara vera til. Það er samt gott að geta gruflað í moldinni og fundið plönturnar vaxa og dafna.
Ég vildi óska að íslenskt efnahagslíf blómstraði jafn vel, og það væri jafnmikil gróska þar. En því miður þá er það svo að spillinginn er eins og öskulag Eyjafjallajökuls, leggst yfir allt og drepur í dróma. Og pólitíkusarnir, og útrásarvíkingarnir skilja ekki að almenningur er búin að fá nóg, þeir eru ennþá að afsaka sig, fara í frí og dunda sér við að láta vorkenna sér, eða jafnvel fórna næsta peði til að lifa af sjálfir. Flestir eru búnir að sjá í gegnum þetta spil allt saman, en svo eru ennþá sauðir sem taka andköf af hrifningu yfir hverju krókódílatári sem fellur, og hverri afsökunarbeiðni sem nær ekki nema rétt inn fyrir skinnið og allt í plati til að líta vel út. Enda sagði Eva Joly að það væri einmitt það sem menn gerðu, reyndu fram í dauðann að afsaka sig og segjast vera saklausir.
Við verðum að halda vöku okkar og hætta að vorkenna eða trúa tárum og sakleysisyfirlýsingum. Ef við viljum hreinsun og uppgjör, verðum við að halda okkur við að krefjast hreinsunar og endurnýjunar.
Það er löngu búið að sýna okkur fingurinn og setja okkur í fjötra, þannig að við megum ekki gefa eftir og trúa því að þetta lið sé allt í einu að sjá eftir öllu, þegar búið er að upplýsa um óheiðarleika þeirra og leik að eldinum. Eins og einhver sagði, of lítið og of seint.
Það er þessi þrælslund sem ég óttast mest. Að fólk fari á sama básinn og kjósi aftur og aftur yfir sig sama liðið, af því að það hefur vælt og veinað yfir hlutskipti sínu. Það er komið nóg af óheiðarleika yfirdrepskap og falsi. Nú ríður á að endurnýja í flokkunum og helst gefa fjórflokkinn alveg upp á bátinn.
Það er til dæmis kómiskt að hlusta á Jóhönnu eins og hún hafi hvergi komið nálægt neinu, þó var hún ráðherra í svokallaðri hrunstjórn, og ef Ingibjörg Sólrún bar ábyrgð, þó það hafi ekki beint heyrt undir hennar svið, þá er Jóhanna jafnsek um skeytingarleysi. En hefur einhver heyrt hana biðjast afsökunnar á sinni þátttöku? Fyrir nú utan að vera algjörlega úti á túni og gera ekki neitt til bjargar almenningi í landinu.
Jæja elskurnar, ég er svolítið langt niðri þessa dagana, það er svo margt sem dregur mig niður. Þó ég viti mæta vel að þetta líður hjá. Þá einhvernveginn hef ég ekki þrótt og þrek til að heimsækja ykkur og vera mem. Mig tekur það sárt, því ég vil svo gjarnan vera í bandi. En ég er líka jafnviss um að þessu bráir af mér fljótlega. Það er bara svo andskoti ömurlegt að upplifa ástandið og geta ekki treyst fólkinu sem á að vera að bjarga okkur út úr vandanum, því það virðist ekkert vera að gerast til bjargar heimilunum í landinu, og svo að hlusta á alþingismenn sem við höfum valið til að gæta okkar hagsmuna reyna hver um annan þveran að sverja af sér ósóman, segjast hvergi hafa komið nálægt, þau þau hafi öll meira og minna vitað nákvæmlega hvað var að gerast. Þetta átti bara að reddast, aðallega þau sjálf auðvitað með samtryggingu og samspillingu. Ég geri mér grein fyrir að það er skelfilegt að horfast í augu við að út er komin skýrsla sem setur allt upp á yfirborðið sem átti að fara leynt. Þau héldu örugglega að þetta myndi aldrei koma upp á yfirborðið, en svo bara kemur þetta beint í andlitið á bæði okkur og þeim. Ef þau kynnu að skammast sín, myndu þau örugglega segja af sér og hverfa af vettvangi. En ónei, það er bara farið í tímabundið frí, eða reynt að láta lítið fyrir sér fara og vonast til að þetta "gleymist"
En við munum ekki gleyma, og ég hef þá trú að núna verði látið sverfa til stáls, og sökudólgarnir minntir á að þeir eigi að víkja.
Segi svo bara góða nótt, sofið rótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
15.4.2010 | 21:48
Svona hitt og þetta.
Já enn og aftur hef ég dottið ofan í svarthol.
En það er svo margt að gerast bæði hjá mannfólkinu og náttúrunni. Það er ef til vill komið að því að hreinsunin verði. Þessi langþráða hreinsun til réttlætis og uppreisnar og endurvakningar og virðingar. Ég vona það. Það er komið nóg af svikum, afsökunum og uppskafningshætti. Og eins og segir í skýrslunni allir benda hver á annan og enginn ber ábyrgð á neinu. Við skulum láta þau bera ábyrgð öll sem eitt, sem komu nálægt þessu hruni, og voru á alþingi meðan allt þetta gekk á. Steingrímur er þar ekki undanskilin, þó hann tali eins og sá sem saklaus er. Hann gleymir því að hann var þarna, og þó hann hafi maldað í móinn, þá hefði hann örugglega geta beitt sér betur en hann gerði.
Það var ömurlegt að hlusta á Valgerði Sverrisdóttur í kastljósinu. Það kom svo berlega í ljós vanhæfni stjórnmálamanna og hve þau eru gjörsamlega siðlaus og kærulaus með vald sitt. Við verðum að fara að bera meiri ábyrgð á því hvað við gerum í kjörklefanum. Því við skulum ekki gleyma að þetta er að hluta til okkur sjálfum að kenna. Að kjósa yfir sig aftur og aftur sama spillta liðið verður að lokum til þess að við sitjum uppi með svona handónýtt lið sem hefur engan metnað, enga tilfinningu fyrir fjólkinu í landinu og fyrr en við áttum okkur á þessu.... breytist nákvæmlega ekki neitt.
En nú vonumst við eftir betri tíð og blóm í haga, þó nákvæmlega núna líti ekki vel út á suðurlandi, sendi fólkinu þar mínar innilegustu samúðarkveðjur og vona svo innilega að allir leppi þar vel, bæði menn og dýr, tún og jurtir.
En ég ætlaði að setja inn nokkrar myndir svona til að gleðja ykkur og mig.
Alltaf gott lambaketið, og gaman að fá fjölskylduna í mat.
Sólveig Hulda ömmustelpa alveg ótrúlega flott
Og dugleg lika.
Svona fyrir fjallafólkið mitt má sjá hve mikið hefur farið af snjónum undanfarið.
Og nokkrar mynir frá Vín, Hanna Sól er orðin svo stór stúlka, hér að lita flotta mynd.
Ásthildur mín er líka orðin voða stór og farin að lita eftir strikunum lika.
Og vorið er komið í Vín.
Með mömmu á leið úr leikskólanum.
Með Dóná í baksýn. Veit ekki hvort þetta er kanallinn eða áin sjálf.
En glæsileg er hún.
Og hér má sjá páskaliljur og hvítasunnuliljur.
Já litla stúlkan mín er orðin stór.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 2
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 36
- Frá upphafi: 2023320
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar