27.4.2009 | 12:59
Nýtt barn og fjöruferð.
Ég vil byrja á því að þakka öllum þeim sem stóðu með Frjálslyndaflokknum, veittu honum atkvæði sitt og þeim sem stóðu vaktina hjálpuðu til á allan hátt. Það er notalegt að finna að fólk er tilbúið til að hjálpa til. Vissulega er þetta áfall, en tíminn mun leiða í ljós hvað verður. Ef til vill kemur eitthvað gott út úr þessu öllu saman. En ég er auðvitað dauðsvekkt fyrir mína hönd og félaga minna. Tel að það verði bið á lýðræðinu meðan við höfum ekki réttlátari umfjöllun um þá sem bjóða sig fram og misvitra svokallaða stjórnmálafræðinga með áróður endalaust meira að segja á kosningardaginn. Þeir ættu að skammast sín fyrir sinn þátt í úrslitunum. Það á ekki að ræða við þrælpólitískt fólk sem kallar sig stjórnmálafræðinga og heldur svo heilu kosningarræðurnar fyrir ákveðna stjórnmálaflokka, eins og ákveðin kona gerði bæði í sjónvarpsþætti og útvarpinu á kjördag. Það verður að fara að gæta meðalhófs í umfjöllunum ef lýðræðið á að fá að þróast, og fólk geti á hlutlausan hátt valið þá stefnu sem það vill fylgja. Annað er bara óþolandi. Að fjölmiðlar skuli vísvetandi reyna að hafa áhrif á hvernig fólk í landinu kýs, bæði með áróðri og þöggun.
En ég dvel ekki lengi við þetta mál. Það mun koma í ljós hvað verður um minn góða flokk. Ég sendi bara bestu kveðjur til þeirra allra sem þar eru innanbúðar.
Litlar skottur létu sér úrslitin í léttu rúmi liggja. Þær fóru út að leika í snjónum.
ég held að hún sé að lýsa yfir stuðningi við Ástþór og Lýðræðisframboðið hans. Hún vill örugglega meira og virkara lýðræði þegar hún vex úr grasi. Enda eru þær báðar tvær kjarnakonur.
Að moka moka snjó.
Eitthvað hugsandi á svipin báðar.
Nammi namm.
Prinsessa að pússla.
Og önnur sem málar.
Ísafjörður er ennþá til og jafn fallegur.
Og lífið heldur áfram.
Einhverntíman kemur svo réttlætið.
Kamelíufrúin mín upp á sitt fegursta þessa dagana.
Kirsuberin og perurnar líka.
Við ákváðum að skella okkur í fjöruferð í gær.
Hér er svo spjallað.
Fegurðin býr í ýmsum myndum.
Og það er gaman í fjöruferðum. Þegar okkar krakkar voru litlir fórum við oft í fjöruferðir.
Þar er líka hægt að sulla.
Og auðvitað týna skeljar.
Og fegurð.
Gullmethafi í snjólistaverki, þ.e.a.s. Kúlumetið
Svo má sulla í tjörninni.
Ég hafði tækifæri til að gleðjast í gær því þá bættist drengur við barnabarnaflóruna, hann er sá 19. Var tekin með keisara kl. 11 í gærdag. Vildi ekki bíða lengur með að koma. mikið fallegur drengur 51 cm og þrjú kíló. Fullkominn segir hinn hreykni faðir.
Já hann er bara alveg eins og pabbi sinn þessi elska.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (33)
25.4.2009 | 00:25
Á morgun kjósum við.
En í dag var hátíð hjá okkur nágrönnunum í Kosningarstræti á Ísafirði, sem heppnaðist mjög vel.
Veðrið var ekki til að hrópa húrra fyrir... eða þannig, en fólk lét það samt ekki aftra sér frá því að taka þátt með okkur í dag.
Feðgarnir elda fiskisúpuna, sem allir voru rosalega ánægðir með. Enda algjörlega frábær súpa.
Úlfur uppvartaði súpuna upp úr gömlum mjólkurbrúsa og stóð sig rosalega vel.
Já fólki fannst notalegt að koma inn og fá sér heita ljúffenga fiskisúpu í boði Frjálslyndra.
Og listaglugginn er endalaus uppspretta aðdáunar fólksins.
Og allir lögðust á eitt við að fá gesti til að koma inn
Hér eru vinstri grænir glaðværir og í góðum fíling.
Og Samfylkingarfólk grillaði ofan í svanga maga.
Frú Ólína leggur svo línurnar inn á þeirra kosningaskrifstofu.
Já fólk þáði pylsur Samfylkingarinnar með þökkum rétt eins og fiskisúpuna okkar.
Hér eru allir í stuði inn á kosningarskrifstofu Flistans.
Ekki var síðra músik atriði Vinstri grænna.
Og greinilegt að fólki líkaði sá flutningur vel.
En það er gott að spila svona saman. Við fundum öll hve gott er í raun og veru að leggjast á eitt við að gera gott. Það verður líka vonandi gott innlegg inn í næstu bæjarstjórnarkosningar, því ég vona að Ílistinn verði aftur í framboði og val fyrir Ísafjarðarbæ.
En á morgun göngum við til kosninga, það er val hvers og eins hvað hann gerir í kjörklefanum. Það eru leynilegar kosningar, og hver og einn gerir það upp við sig hvað hann gerir. Stundum taka menn ákvörðun sína í kjörklefanum, og menn eiga þennan rétt. Dagurinn á morgun er okkar dagur, dagur hins venjulega alþýðumanns. Og vissulega höfum við áhrif nákvæmlega þennan dag, þau áhrif verða ekki aftur tekin næstu fjögur ár eða svo. Þess vegna er sú ákvörðun vandasöm. En ég treysti fólkinu í landinu til að taka rétta ákvörðun, ákvörðun sem þið getið verið stolt af. Ákvörðun sem getur haft áhrif á líf þjóðarinnar næstu misserin og jafnvel árin. Því ber að vanda valið, og ekki kasta til þess höndum eða hlýta loforðum eða smjaðri.
Nei nú er alvaran sjálf á morgun og sennilega aldrei verið alvarlegri en einmitt nú.
En ég er að fara að halla mér, ég er stolt af Júlla mínum og Úlfi sem stóðu sig eins og hetjur í dag. Líka ánægð með hve vel fólk tók flokknum og bara dagurinn var frábær. það eru sennilega ríkari bönd milli þessara þriggja flokka hér einmitt vegna Ílistans og sýnir að þessir flokkar geta svo vel staðið saman og gert góða hluti.
En ég segi bara góða nótt og hjartanlega takk fyrir mig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
24.4.2009 | 12:56
Ísafjörður - Silfurtorg kl. 16.00 fjögur í dag. Komið og þiggið veitingar og skemmtun.
Það er komin hiti í mannskapinn hér á blogginu. Menn hamast eins og aldrei fyrr. Mynda meirihluta og keppast um að segja hverjir komist á þing og hverjir detti út. Jamm og jæja. Málið er að ekkert liggur ljóst fyrir fyrr en talið hefur verið upp úr kjörkössunum. Og nóta bena eftirlitsaðiljar hafa farið gegnum kosningarnar og skoðað hvort möguleikar hafi verið á svindli. Það kæmi mér ekkert á óvart miðað við sögurnar.
Skondnast er að hlusta á sjálfstæðismenn vara við vinstri slysum og óskapast hver allt verði nú hræðilegt ef það sem þeir kalla vinstristjórn kemst að eftir kosningar. Þeir bókstaflega geta ekki á heilum sér tekið. Hverjir voru það aftur sem stuðluðu að þeim hörmungum sem við erum í í dag? Eru það mennirnir sem ætla nú að bjarga landinu og telja sig vera þá einu þess umkomna?
Eru menn ekki alveg með öllum mjalla þar á bænum?
Það er reynt að ljúga, ég hef heyrt allskonar sögurburð hér, þeir tala við unga fólkið og lýsa því hvaða hræðilegu hlutir gerast ef þeir ná ekki völdum aftur. En unga fólkið kemur til okkar og spyr er þetta satt. Ungt fólk í dag er nefnilega ekki kjánar eins og sumir virðast halda. Ungt fólk í dag vill heyra sannleikann. Það vill heyra uppbyggilegar umræður um hvernig forystumenn flokkanna vilja vinna og hvað þurfi að gera til að laga ástandið.
Ég held að það sitji ennþá í sumum þeim eldri lygarnar sem voru bornar á borð fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar hér. Ég ætla ekki að ræða þær, þess þarf ekki. Þær eru vitað mál og ekki til sóma þeim sem þar sátu og hringdu út til að sverta og rakka niður sameiginlegt framboð Vinstri grænna, Samfylkingar og Frjálslynda flokksins. Þegar skoðanakannanir sýndu að þeir myndu ná meirihluta.
Nei lygar og fals eru ekki bara óheiðarleg vinnubrögð, heldur líka afskaplega siðlaus eins og þessi flokkur virðist vera alveg í gegn. Þó marg gott fólk sé þar innanborðs þá er eins og þeir smitist af vitleysunni og láti spila með sig fram og til baka.
En það kemur að því að fólkið fær nóg. Vonandi er sá tími upprunninn núna. Sjálfstæðismenn hefðu bara gott af að hvíla sig í áratug eða svo, fara í almennilega naflaskoðun, ekki bara kattarþvott, og gera upp við fortíðina og Davíðstímabilið, græðgina, óheiðarleikann og potið.
Taktu ekki níðróginn nærri þér.Það næsta gömul er saga,að lakasti gróðurinn ekki það ersem ormar helst vilja naga.Þessa vísu fékk ég hjá bloggvini mínum Jakobi Fal. Hún segir meira en þúsund orð.
En í dag kl. 4 ætlum við hjá Frjálslynda flokknum, Vinstri Grænum og Samfylkingu að halda sameiginlega veislu á Silfurtorgi. Við ætlum að bjóða ykkur bæjarbúar góðir upp á fiskisúpu, í gær gáfum við fólki fisk í soðið. Núna er Júlli minn að elda þessa líka dýrindis fiskisúpu, sem verður í okkar boði. Samfylkingin og Vg ætla svo að koma með atriði líka.
Þetta er svona til að sýna að flokkar geta vel unnið saman, ef fólkið í þeim er þroskað og vill virkilega vinna af heilindum að velferð kjósenda. Það er minnsta málið af öllu að gera hlutina saman.
Hátíð í Kosningastræti
Nágrannarnir í Aðalstræti á Ísafirði taka höndum saman og bjóða til hátíðar föstudaginn 24. apríl frá kl. 16 18 fyrir utan kosningamiðstöðvarnar. Lifandi tónlistGrillaðar pylsur og fiskisúpaLíf og fjör og óvæntar uppákomur
Hér áttu merkin þrjú að koma en því miður þá gat ég ekki sett þau hér inn.
Á morgun verður kosið til Alþingis. Það er mikið í húfi að vel takist til. Best væri ef sem flest sjónarmið og framboð kæmu manni inn. Það mun auka breiddina á umræðum og úrlausnum. Margt gott fólk býður sig fram og vill vinna að því að bæta skaðan sem orðið hefur. Það er samt ljóst að þeir sem mestan þátt eiga í því að allt fór eins og það fór, er ekki fólkið sem líklegt er til að endurreisa það sem tapast hefur, fyrst og fremst traust og virðingu þjóðarinnar sem heildar. Það traust getur ekki vaknað nema við sýnum og sönnum að við þorum að skipta út spillingunni og treysta þeim sem ekki hafa komið að henni fyrir lífsegginu okkar. Það krefst bæði kjarks og ákveðni. En er það ekki allt í lagi. Lýðræðið virkar ekki nema við sjálf getum komið að því að refsa og umbuna. Ef við bara kjósum alltaf það sama á hverju sem gengur, þá uppskerum við þá spillingu sem við höfum horft upp á núna. Þess vegna er mikilvægt að hlusta ekki á fagurgala eða hræðsluáróður, heldur hlusta á hvað fólk hefur að segja, og hvernig það vill leysa málin. Og ekki síst hvað það hefur haft fram að færa áður. Loforð og vinsældargjörðir korteri fyrir kosningar er ekki trúverðugt og er einmitt sami gamli leikurinn sem komið hefur okkur í þá stöðu sem við erum í í dag. Þess vegna þarf að vanda valið, og kjósa rétt. Það er réttur okkar að kjósa samkvæmt sannfæringu okkar, en ekki fyrir atbeina einhvers eða bónar. Við eigum fyrst og fremst að velja það fólk sem hefur sýnt að það er traustsins vert. Ef það er haft í huga, þá óttast ég ekki niðurstöður þessara kosninga. Eigið góðan dag og endilega komið fáið ykkur heita fiskisúpu, grillaðar pylsur og hlustið á músik í boði þriggja flokka á Silfurtorgi kl. 4 í dag.Megi heiðarleiki, vinnusemi og traust vera þeir eiginleikar sem fólkið velur á morgun.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.4.2009 | 20:24
Sumardagurinn fyrsti. Varúð fyrir viðkvæma.
Sumardagurinn fyrsti bjartur og fagur hér eins og sjá má!!!
Við erum bara heima börnin og ég. Elli minn fór í kórferðalag til Borgarness. Svo við höfum það bara huggó. Gat ekki farið niður á torg til að gefa fisk í soðið, en þar var örtröð af fólki sem fékk sér glænýjan fisk í soðið. Verði ykkur að góðu elskurnar.
En þó það sé kalt úti, þá er litríkt og hlýtt inni.
Vorblómin mín vaxa og dafna, og bráðum bætar tvö glæný í hópinn.
Þetta gæti verið sónarmynd hehehehe
Sagði ekki einhver einhverntíman að maður ætti að uppfylla jörðina, og hvað er heppilegri tími en einmitt núna þegar útlit er fyrir að fólk flýji af hómi hundruðum saman, sem vonandi verður ekki. En allur er varinn góður.
Ég ætla allavega að gera mitt til að þessi krýli eigi góða ævi hér á okkar fallega gjöfula landi, og helst án þess að setja okkur í slaverí í Evrópusambandinu, þar sem auðlindirnar okkar verða nýttar í þágu heildarinnar en ekki þjóðarinnar.
Þess vegna mun minn kjörseðil líta svona út. En ég kom ekki nálægt þessu, get svarið það. Tók ekki einu sinni myndina En samt sem áður tel ég mér og mínum best borgið með því að leggja þessu afli lið. Það hefur sýnt mér s.l. tíu ár að þar fara heiðarlegt raunsætt fólk sem virkilega vill gera vel. Það er sjaldgæft á þessum síðustu og verstu tímum.
Já þetta sést betur svona
XF fyrir framtíðina, fjölskylduna, frumkraft æskunnar og Frumkvöðla landsins.
Æ meiddi sig!!!
Litli málarinn minn.
En ég segi gleðilegt sumar og megi þetta sumar verða okkur þrátt fyrir allt gjöfult og gott. Heitt notalegt og hamingjuríkt. Og umfram allt ÁN SKRIÐNINGU INN Í EVRÓPUSAMBANDIÐ. þAR EIGUM VIÐ EKKERT ERINDI INN.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
23.4.2009 | 13:33
Myndir úr kúlunni.
Það er frekar vetrarlegt um að litast í dag. En veðrið er að lagast. Eins gott því við ætlum að gefa ísfirðingum fisk í soðið í dag Frjálslyndi flokkurinn, eins og við höfum alltaf gert fyrir kosningar.
Á morgun ætlum við svo að skemmta okkur og bæjarbúum ásamt Vinstri grænum og Samfylkingu. Við ætlum að elda fiskisúpu og Vinstri grænir eru með músikatriði og svo ætlar Samfylkingin að grilla. Auðvitað eiga menn að standa saman um að skemmta sér og öðrum. Það getum við ágætlega.
En hér koma nokkrar myndir síðan í gær og fyrradag.
Leikskólinn bíður.
Það er orðið ansi vorlegt, þó hretið komi á morgun. (í dag).
Þá er sólin ekki langt undan.
Vorverkin auðvitað hafin
Stóri "Bróðir" lítur eftir þeim litlu. Hann er stundum mjög duglegur.
Já það er margt sem þarf að moldast svona á vorin.
Miður geðslegar, en vorboðar engu að síður. Ég er að fá ránmaura í dag, sem munu eiga veislu framundan.
Sigurjón mættur á svæðið.
Og alltaf er það tjörnin sem heillar.
Já þetta er ljúft líf.
Svo er hægt að renna sér á þotu.
Já sulla sulla sulla!!!
ÚBBS!!! þetta var ekki meiningi.
Æ Æ Æ
Já lognið er mjög oft hér fyrir vestan.
Og svo er það leikskólinn.
Og svona til að hnykkja á því að vorið er á sama tíma í kúlu og í Vín. Þá er þetta zakúrakirstuberjatré hjá mér.
Og hér á sama tíma út í Vín.
Hvað svo með smáreiðtúr. Ef til vill á kjörstað.
Eigið góðan dag elskurnar mínar. Öll hvað sem þið ætlið að kjósa á laugardaginn. Sem betur fer ríkir frelsi einstaklingsins til athafna í orði allavega, þó stundum skorti á að það sé á borði. En vonandi lagast það eftir þennan hrunadans.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
22.4.2009 | 09:41
Má bjóða ykkur í smágönguferð í skógum Austurríkis?
Jæja nú er sumarið á næsta leyti .... eða þannig. Á morgun er sumardagurinn fyrsti, og litla Hanna Sól er voða spennt, segir að nú komi sumarið á morgun. Þá ætlar hún að gera ýmislegt, það er nefnilega hlýtt og notalegt á sumrin. En mér datt í hug að bjóða ykkur aðeins til Austurríkis fékk sendar nokkrar fallegar myndir frá Vín og svo smábæ rétt utan við Vín, þar sem vinir hennar búa, þau Samúel og Heidi. Man ekki hvað þorpið heitir, en nafnið þýðir þar sem heilög jómfrú gekk á land, minnir að það heiti ELLEND. En þar er fallegar gönguleiðir í skógi og við ár og vötn. Og þar er vorið greinilega komið.
Þetta er Trölli, hann er í raun og veru íslendingur, en fluttist út með fjölskyldu sinni. Hann er voða vinsæll meðal Vínarbúa. Það er svo merkilegt við það ágæta fólk að það heilsar ekki horfir ekki á mann, foragtar mann algjörlega, nema maður sé með hund í bandi, þá er viðhorfið allt annað, þau klapa hundinum, og brosa til manns. Þetta er ekki svona í smábæjunum fyrir utan. Þar eru allir glaðlegir og brosandi. Sennilega er þetta svona allstaðar í stórborgum, fólk á varðbergi gagnvart ókunnugum. En Trölli er megakrútt.
Þetta er Mirjam, dóttir vina Báru minnar og vinkona Hönnu Sólar.
Hér er verið að skreyta hana með skjaldfléttu, sem vex villt allstaðar í skógum í evrópu.
Eins og sést er allt orðið grænt í Austurrík.
Þetta er sennilega vorsóley, stærri en okkar reyndar að öðru leyti eins.
Þetta er þægilegur og friðsamur göngutúr. Það er mikið um skemmtilega göngu og hjólreiðastíga bæði inn í borginni og utan.
Hér ættuð þið að heyra fuglasöng og tíst, kvak í öndum.
Fallega stelpan mín og þetta er sennilega samleigjandi hennar sem er með henni í heimsókn hjá Samúel og Heidi.
Hér eru Tröllo og vinkona hans Goldie, hún á heima hjá Mirjam. Trölli er þar líka oftast, því honum líður betur í sveitinni.
Þið sjáið að hér er Jasminin að blómstra.
Hér er kirkja sem er tileinkum hinni heilögu jómfrú. Fagurlega skreytt.
Þessi mynd er skemmtilega tekinn.
Hér er svo Dóná sjálf.
En þetta var nú svona friðsamlegur göngutúr í sveitinni í rólegheitum út í Austurríki, svona rétt til að slaka svolítið á mitt í öllu stressinu hjá okkur. Það er gott að geta aðeins farið um stund og lyft huganum upp fyrir allt argaþras.
Eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Hversu lengi ætlum við að skella skollaeyrum við blóðtökunni sem fiskveiðistjórnunin er á landinu. Hversu djúpt þurfum við að sökkva áður en við förum að sýna samábyrgð í nýtingu náttúruauðlinda hér sjávarauðlindinni. Hversu svangir og févana þurfa íslendingar að verða áður en þeir fara að hlusta á tíu ára rödd Frjálslynda flokksins um skynsamlega stjórn og nýtingu fiskveiða? Hér er afskaplega merkilegt blogg frá bloggvini mínum Kristni Péturssyni http://kristinnp.blog.is/blog/kristinnp/ um óréttlætið og vansann sem viðgengst hjá okkur, sóunina sem við látum sem við sjáum ekki, þó allt sé að brenna ofan af okkur lóðbeint til andskotans.
Hér er verið að gefa nokkrum stórútgerðarmönnum alræðisvald yfir helstu auðlind okkar, í stað þess að þjóðin sjálf við fólkið í landinu fáum að njóta hennar.
Hve lengi ætlum við að daufheyrast og leyfa stjórnvöldum að hantera þessi mál af þeirri léttúð og þjónkun við auðvaldið?
Það er ekkert annað en synd og skömm að verða vitni að svona deyfð og kæruleysi.
Þetta eru peningarnir okkar, auðlindin okkar, lifibrauðið okkar sem nokkrir menn eru að leika sér með. Eruð þið virkilega ánægð með það ágæta þjóð?
Ég er það ekki. Og ég vil benda á að eini flokkurinn sem alltaf hefur haldið sjávarútvegsumræðunni til haga, reynt að vekja þjóðina upp með hvað er að gerast er Frjálslyndi flokkurinn. Sú rödd má ekki þagna. Því Frjálslyndi flokkurinn er sá eini sem kemur til með að tala um þessi mál eftir kosningar. Það er nokkuð á hreinu að allir hinir flokkarnir "gleyma" þessu þjóðfélagslega réttlætismáli eftir kosningar, það hafa þeir nefnilega gert hingað til, en draga það svo upp korteri fyrir kosningar.
Hér erum við í Frjálslynda flokknum að gefa fólki í soðið. Þetta gerum við fyrir hverjar kosningar, og svo verður einnig núna í ár. Á sumardaginn fyrsta munum við vera niður á Silfurtorgi og gefa fólki glænýjan fisk.
En við segjum Kvótan til fólksins. Það er réttur hvers einasta manns að fá að bjarga sér, það er óþolandi að meðan sjórinn er fullur af fiski, skuli ungir athafnamenn ekki mega bleyta öngul í sjó vegna þess að nokkrum einstaklingum hefur verið færður fiskurinn á silfurfati. Meðan þjóðin pínist og sveltur, þá fá þeir einir að ráða för og hafa fiskinn í sjónum sem sína prívat og einkaeign. Sættir þú þig við það ágæti kjósandi? Ef þú gerir það ekki, þá ættir þú að hugleiða hvort þínu atkvæði væri ef til vill betur varið með því að setja X við F.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.4.2009 | 13:26
Veður og ferð í Bolungarvík.
Bolungarvíkin í gær í góðu veðri. Við fórum í sund út í Bolungarvík. þar er nefnilega rennibraut svo þau eru spennt fyrir því að fara þangað krakkarnir.
Bátur í aðgerð, vonandi sést fuglagerið kring um bátinn, að gæða sér á slógi og öðru góðmeti sem dettur útbyrðis.
Krúttlegur viti við Bolungarvík.
ekkert skrýtið við Bolvíkingar séu harðduglegt fólk með þessi hrikalegu fjöll fyrir augunum daglega.
En flott eru þau.
Rakst á þessa myndarlegu stráka upp á þaki á Sundlauginni, þeir eru í meistaradeild BÍ og Bolungarvíkur, voru þarna að afla sér peninga með vinnu sinni. Gott hjá þeim.
Nóg vinna þarna sýnist mér.
Og það var tekið til hendinni.
Sama góða veðrið hér alltaf.
Og börnin í frumskóginum.
Gaman að leika.
Í morgun morgunsólin.
Að gera sig klára fyrir leikskólann.
Veðrið.
Himnagalleríið.
nýju göngin í fullum gangi.
Arnarnesið og himininn.
Eigið góðan dag elskurnar mínar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
19.4.2009 | 10:22
Veður - vor- og börn í kúlunni.
Jæja þá er komin tími á nýjar myndir. Ég hef satt að segja verið rosalega upptekiin við plönturnar mínar, ég er að dreyfplanta og litlu stýrin vaxa og vaxa og ættu að vera komnar í sína potta, ég hef ekki getað ráðið nema eina manneskju út af ástandinu, svo ég verð að standa í þessu að miklu leyti sjálf. Svona er nú lífið.
En vorið er komið á fullt í kúlunni.
Kamelíufrúin mín skartar sínum fallegu eldrauðu blómum.
Kirsuberin opinn upp á gátt.
Hvítasunnuliljurnar farnar að blómstra.
Japanski dverghlynurinn allur að opna sig.
Og Zakúrakirsuberin á svipuðum tíma og í Vín.
Veðrið er líka fallegt og milt.
Reyndar ekki mikil sól en samt bjart í augun.
Jafnvel ævintýraleg.
Börnin glöð og kát.
Afi ertu ekki að koma !!!
Og svo dundar maður sér í garðskálanum.
Þar þarf margt að ræða og sulla líka.
Hér er samt aðalsullukollan hún er stórtækust í sulleríinu.
Allt undir kontról.
Já þetta er besti tíminn í garðskálanum.
Amma ég ætla að leika maur.
En það er stutt í snjóinn.
Þá er gott að vera með hanska Þegar maður þarf að ná sér í snjó.
Svona gerir maður.
Hér er Hanna Sól.
Og svo er gaman að mála.
Svo þarf að bæta smá vatni í snjóinn.
krakkafelumynd.
Svo fengu þau að fara með Júlla í fjöruferð.
Hér er hann að klæða þær fyrir ferðina. Það er gaman að fara með honum og safna steinum sem svo verða að listaverkum.
En eigið góðan dag elskurnar mínar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
17.4.2009 | 12:58
Bloggfærslan er alfarið á ábyrgð skrifanda en endurspeglar ekki á neinn hátt skoðanir eða afstöðu mbl.is, og Morgunblaðsins.
Nákvæmlega er þetta mín sannfæring líka. Loksins sýna þeir sitt rétta eðli og hvar baráttan liggur. Við vorum allmörg sem vissum þetta fyrir, en nú hljóta jafnvel sauðtryggir sjálfstæðismenn, þ.e. hinn almenni maður ekki þeir sem eru í klíkunni og borga í kosningasjóðina, að opna augun og ákveða að gefa þessum flokki frí í næstu kosningum. Þeir þurfa ekki að segja sig úr flokknum, aðeins að refsa sínum mönnum svo þeir sjái svart á hvítu að þetta er ekki það sem almenningur í landinu vill. Og að þeir voru ekki að BJARGA stjórnarskránni, heldur að traðka á þjóðinni.
Þetta með að skaffa sjálfum sér neitunarvald er í hæsta máta hlægilegt. Og sýnir að þeir eru ennþá í huganum við stjórnvölin. Skútan hátt upp í fjöru eftir þeirra siglingu, og þeir í veruleikafirringu um að þeir einir geti bjargað áhöfninni og skipinu af strandstað.
Nei má ég þá biðja um að þjóðin mín gefi þeim langt frí, meðan gott fólk í Sjálfstæðisflokknum setur forvígismenn sína í gagngjöra endurhæfingu. Og kennir þeim virðingu, réttlæti og heiðarleika.
Að lokum svo flottur Jónas!
![]() |
17.04.2009 |
![]() |
Ofbeldi og skemmdarverk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 4
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 2023310
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar