Krúttfærsla og daglegt veður.

Jæja loksins smá break, börnin sofnuð og ég í tómarúmi.  Sú litla var með meiri hita í dag en í gær, en hún svaf vel eftir kartöflumjölsbaðið, en hún dormaði langt fram eftir morgninum, en ég mátti ekki víkja frá henni samt sem áður.  Sárlasin litla skinnið.  Sú stóra fór í leikskólann í galadressi hehehe.... og við skiptumst á börnum svona yfir daginn við sonur minn Ingi Þór.  Ég stakk upp á því við hann að hann stofnaði svona vöggustofu á hjólum, með rútu fulla af barnastólum tæki þessi litlu börn og rúntaði með þau í svona þrjá tíma þau virðast sofa svo vel í akstri.  annað eins hefur nú verið fundið upp.  Mæli með þessu. 

En hér er hið daglega veður, ekkert meira um það að segja, myndin talar sínu máli.

IMG_4880

Ekki satt.

IMG_4861

Jamm hún fékk galadress frá Sóley Ebbu, og hún elskar þennan kjól, og hún er líka svo flott, var einhver að tala um stjörnur ?

IMG_4862

Nú eða fyrirsætur ?

IMG_4864

Verið að búa sig undir rauð teppið LoL Flott sú stóra mín.

IMG_4866

Ef þið haldið að það sé ekki menning á þessu heimili þá er það röng ályktun, hér er verið að spila; I just called to say I love you, stórsveitaræfing, svo er lúðrarsveitaræfing og svo karlakóraæfinar.

IMG_4884

Sóley Ebba semur lög og spilar, hún þarf bara að heyra lag einu sinni og þá spilar hún það, með hljómum og alles ótrúlega tónelsk þessi stelpa.

IMG_4867

En það er líka alvara lífsins, hér er tekist á um landafræði.

IMG_4869

Meira að segja prinsessur þurfa að bursta tennurnar sínar.

IMG_4870

Hrmm hún fór í leikskólann í galadressinu, það var ekkert um annað að ræða, hér er ráðsmaðurinn að hjálpa prinsessunni í skóna Heart Vill til að þær eru frábærar fóstrurnar á leikskólanum í Tjarnarborg.

IMG_4871

Bless amma mín Tounge

IMG_4874

En það eru fleiri fyrirsætur í fjölskyldunni, sumar eru bara aðeins öðruvísi LoL Hafa ekki sama smekk eða þannig.

IMG_4878

en kunna engu síða að pósa.

IMG_4875

Jamm stóra systir var bara nokkuð hrifinn og líka pabbi.

IMG_4881

Aðrir létu sér bara nægja teppið eins og í smáfólkinu.  Hún var ósköp lítil í dag þessi elska, en hún fékk kartöflumjölsbað undir svefninn núna áðan, svo vonandi svíar það aðeins á kláðan í fjand... bólunum.

IMG_4883

en prinsessur þurfa líka að skipta á bleyjum.

IMG_4885

Því bangsar þurfa líka aðstoð.

IMG_4887

Taktu líka mynd af mér, sagði þessi stubbur.

IMG_4888

Amma þessi þarf líka bleyju, sagði Aron.

IMG_4890

Að lokum ein lítil subbinn ömmustúlka, sem segir Góða nótt. Heart


Góð grein í Fréttablaðinu og list frá Kína.

Langar að benda á góða grein sem Jóhannes Bjarni Guðmundsson formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna skrifaði í Fréttablaðið þann 7. apríl s.l.

Flugvöllur og fólk Umræðan Skipulagsmál Það er fagnaðarefni að núverandi stjórnvöld, bæði borgarstjórn og ríkisstjórn, vilji festa Reykjavíkurflugvöll í sessi.UmræðanSkipulagsmálÞað er fagnaðarefni að núverandi stjórnvöld, bæði borgarstjórn og ríkisstjórn, vilji festa Reykjavíkurflugvöll í sessi. Nauðsynlegt er að eyða þeirri skipulagslegu óvissu sem hefur ríkt og losa þá starfsemi sem er við völlinn úr þeirri spennitreyju sem hún hefur verið í til þessa. Áætlanir yfirvalda um að hefja loks byggingu samgöngumiðstöðvar er skref í þessa átt og sérstaklega ánægjulegt.Flugvöllur í Vatnsmýrinni er samgöngumiðstöð þjóðarinnar, sem tryggir þjóðinni gott og öruggt aðgengi að höfuðborginni þar sem er að finna þungamiðju stjórnsýslu, viðskipta og heilbrigðisþjónustu. Allt of lengi hefur hávær minnihluti (sbr. nýlegar skoðanakannanir) haft sig í frammi og talað um að flugvöllurinn og starfsemi sem honum tengist eigi að víkja fyrir öðru mikilvægara, að þeirra mati. Vatnsmýrin er sögð svo dýrmæt sem byggingarland að "þjóðhagsleg hagkvæmni" kalli á að þarna rísi íbúðabyggð. Þegar menn setja upp slík reikningsdæmi og fá út "þjóðhagslega hagkvæmni", leyfi ég mér að stórefast um þær fjölmörgu forsendur sem liggja til grundvallar slíkum útreikningum. Það vakti t.a.m. óskipta athygli að allar verðlaunatillögur í samkeppni um framtíðarskipulag í Vatnsmýri nýverið, gerðu ráð fyrir lágreistri byggð, keimlíkri þeirri sem fyrir er í miðborginni. Er slíkt í samræmi við forsendur sem heyrst hafa um tuttugu þúsund manna byggð?Meira en mannvirkiReykjavíkurflugvöllur er annað og meira en þarft mannvirki í höfuðborginni. Á Reykjavíkurflugvelli starfa ekki færri en um 500 manns við störf sem tengjast beint þeirri flugstarfsemi sem þar fer fram; farþegaflugi, kennsluflugi, sjúkraflugi og útsýnis- og leiguflugi. Fjölmörg fjárfest verulega í aðstöðu á vellinum, ekki hvað síst á allra síðustu árum, enda hefur staðsetningin verulegt gildi fyrir reksturinn. Þetta á sérstaklega við þegar litið er til þess hagræðis í tíma og kostnaði fyrir sveitarfélög, stofnanir og fyrirtæki sem ferðast til og frá borginni. Þetta hefur verið staðfest m.a. með síaukinni umferð um flugvöllinn á síðustu árum.Flugvöllurinn í Vatnsmýrinni er afar vel staðsettur með tilliti til veðurfars og atvinnuflugmenn þekkja vel hversu mikilvægt hlutverk vallarins er sem varaflugvöllur. Í því sambandi styðja Reykjavíkur- og Keflavíkurflugvöllur hvor annan sérlega vel, en standa mjög höllum fæti einir og sér. Þetta hefur verið staðfest oft í vetur, þegar reynt hefur á varaflugvöll í slæmum veðrum - hvort sem er fyrir innanlandsflug eða millilandaflug. Væru ekki tveir nothæfir flugvellir á suðvesturhorni landsins, þýddi það skert öryggi og verulegan aukinn kostnað flugrekendur. Þá liggur fyrir að með tilliti til almannavarna, er ekki boðlegt að hafa einungis einn flugvöll þar sem mikill meirihluti landsmanna býr.Fleiri flugvelliÞað væri þjóðráð að bæta við flugvelli í nágrenni borgarinnar OG halda Reykjavíkurflugvelli. Það liggur fyrir vilji til að búa til flugbraut í nágrenni Reykjavíkur til að nota í æfinga- og kennsluflugi. Slíkt er þarfaþing og um leið ætti að gera þá braut þannig úr garði að hún gæti nýst t.d. sem varabraut í útsynningi fyrir innanlandsflugið. Öryggisnefnd FÍA hefur ítrekað bent á nauðsyn þess að hafa til reiðu braut á suðvesturhorninu sem liggur suðvestur/norðaustur og ekki hvað síst þar sem samsvarandi braut hefur verið lokað í Keflavík! Það er eðlileg krafa flugmanna að slík braut sé til reiðu á svæðinu - öryggisins vegna. Slík braut kæmi þá í stað sambærilegrar brautar á Reykjavíkurflugvelli og losaði þá um leið byggingarland í Vatnsmýrinni.Á undanförnum vikum og mánuðum hefur mikið verið spáð og spekúlerað um mögulegan flutning Reykjavíkurflugvallar. Persónulega tel ég að það að ætla sér að færa starfsemi Reykjavíkurflugvallar upp á Hólmsheiði eða til Keflavíkur yrði mikil afturför; óásættanlegt fyrir fyrirtækin á vellinum og illgerlegt. En það vantar veðurfarsupplýsingar og fleiri gögn til að taka upplýsta afstöðu um önnur möguleg flugvallarstæði. Ekki síst í ljósi þess, eigum við að virða tilveru Reykjavíkurflugvallar og þau fyrirtæki og það fólk sem þar starfar, með því að tala ekki um að völlurinn sé það ómerkilegur að hann skuli víkja. Þvert á móti eigum við að hlúa að flugvellinum og virða atvinnustarfsemina sem þar er. Hún er ekki síður mikilvæg en arkitektúr og kaffihúsamenning í miðborginni.

Höfundur er flugmaður og formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA).fyrirtæki hafa

Svo svona til gaman þá er hér frétt í sama blaði: 

Naktar gínur ollu hjartaáfalli Kína Kínverski listamaðurinn Liu Jin náði heldur betur að vekja athygli með listagjörningi sínum í Shanghai um helgina.Kína Kínverski listamaðurinn Liu Jin náði heldur betur að vekja athygli með listagjörningi sínum í Shanghai um helgina. Hann átti hins vegar ekki beinlínis von á að áhorfendur fengju hjartaáfall við að líta verkið augum.Verkið kallaðist Særðir englar og samanstóð af nokkrum gínum í fullri stærð sem héngu utan á skýjakljúfum með vængi á bakinu.Vegfarendur rak í rogastans þegar þeir urðu varir við gínurnar enda töldu flestir að hér væru á ferðinni menn af holdi og blóði sem ætluðu sér að stökkva til jarðar.Lögreglu bárust fjölmargar ábendingar frá skelfingu lostnum borgarbúum og slökkviliðið var kallað á staðinn til að bjarga fólkinu sem reyndist þegar betur var að gáð ekki mennskt.Líklega tók þó enginn verkið jafn nærri sér og öldruð kona sem fékk hjartaáfall þegar hún sá gínurnar. Hún var flutt í snarhasti á sjúkrahús til aðhlynningar. - þoHér er myndin. GínurÞetta minnir mig á annan kínverskan listamann sem er að sýna í Vín.Ferð í miðborg Vínar 5.2.08 062Hér er mynd af hans skúlptúr.Ferð í miðborg Vínar 5.2.08 061Ætli einhver hafi fengið hjartaslag af þessari innrás LoL 


Kúlulíf

Já lífið heldur áfram eða þannig.  Ég segi við ungar mömmur, núna man ég þetta allt saman, hvernig það er að vera ungamamma, með lítil börn í pilsfaldinum, geta ekki hreyft sig spönn frá rassi af því að þessar litlu manneskjur vilja bara hafa mömmu/ömmu hjá sér, og helst vera í fanginu á henni.  Líka mest af því að litla fólkið er með hita og lasið.  Við settum litlu dömuna í kartöflumjöls bað í kvöld áður en við settum hana í rúmið, ég á von á að það svíi á kláðann.  Hún var grafkyrr meðan við veltum henni upp úr kartöflumjöli, og smurðum því allstaðar.  Hún er sofnuð núna, en Úlfi og Hönnu Sól var boðið í pizzur heima hjá Inga Þór.  Ég er svo heppin að eiga svo góða að, Júlli og Sigga fóru yfir húsið, og þrifu, þar sem allt var komið úr skorðum Blush Svona er maður heppinn að eiga góða að.

IMG_4837

Þau fengu að fara í heitapottinn, reyndar fór Hana Sól með afa í sund á Suðureyri, kríjaði það út úr honum á leiðinni til Suðureyrar, af því að hann gleymdi snuddunni heima hehehehe LoL Sú stutta, snýr afa alveg 180° ef því er að skipta. 

IMG_4839

Reyndar tók Ingi Þór þessar heitupotta myndir, hann er listrænn í sér. Og hefur fengið viðurkenningar fyrir myndirnar sínar.

IMG_4842

Hér er ein, en svo vinnur hann með þær á listrænan hátt eins og Maddý vinkona mín. 

IMG_4849

Hér eru Kristján Logi og Hanna Sól í góðum fíling.

IMG_4851

Meðan amma og Ásthildur elda matinn ef ykkur finnst amma sjúskuð, þá er það náttúrulega út af því að vera mikið vakandi í nótt plús að vakna kl. hálf sex í morgunn með litlu skvísunni.  Við fylgjumst að í þessum veikindum sko LoL

IMG_4854

Bólur og spekulasjónir, hún segir ýmislegt, í dag þegar Úlfur var á klóinu bankaði hún á dyrnar og sagði skiljanlega; afastelpa.  Hún segir nefnilega ýmislegt meira en bojda bodja sjibju sjibbju sem ég held að sé rússneska, hún segir til dæmis takk fyrir, og ýmislegt annað ef maður leggur sig eftir því. 

IMG_4856

Manni myndi ekki líða vel með svona bólur út um allt, en þessi litla hetja reynir að vera sterk. 

Knús á ykkur öll og góða nótt Heart Reyni að fara blogghringinn seinna í kvöld ef ég orka W00t


Daglegt veður og lífið í kúlunni.

Jæja smábreak, Úlfur er komin heim og getur aðeins haft auga með þeirri stuttu.  Svo er Ingi að droppa iinn milli ferða á rútunni. Tounge

En við áttum góða stund frammi í garðskála í gærdag, það er alveg að koma besti tíminn þar, knúpparnir alveg að springa út.

IMG_4815

Þó eru börnin fallegustu knúpparnir mínir.

IMG_4816 

Evíta og pabbi.

IMG_4817

töffarinn Ásthildur Cesil.

IMG_4818

Mamma sko!!! segir Sigurjón Dagurábúðarmikill.

IMG_4819

Ég get alveg sagt ykkur að samverustundum fjölskyldunnar í garðskálanum fer að fjölga upp úr þessu, svoleiðis er það bara.  Hér er komið suðurEvrópskt vor.

 

IMG_4821

Ofurhetjan Kristján Logi Spiderman.

IMG_4823

Prinsessan Hanna Sól og allir sem eru í ævintýrinu hér núna.  Ævintýrin gerast þar sem við viljum láta þau gerast.  Það er eðli þeirra, og það er enginn hætta á að börnin taki ekki undir með okkur Heart

Þessi var tekinn í morgun, Hanna Sól tilbúin og er að bíða eftir afa sínum.

IMG_4825

IMG_4826

Ásthildur færir henni skóna.

IMG_4827

Takk litla mín segir Hanna Sól fullorðinslega.  Ekki fá flog mamma, hún fékk þessa skó gefins og finnst gott að vera í þeim hehehehe....

IMG_4828

Og svo þarf að hjálpa stóru systur í skóna, svo hún verði alveg til þegar afi kemur.

IMG_4829

Mín er aðeins farin að festa augu á barnaefni í sjónvarpinu.

IMG_4830

Og Úlfur og Dr. Spock eru ekki þeir einu sem hafa gaman af gulum hönskum LoL Hún er á leið út í vagn, en hún sofnaði ekki.  Ekki fyrr en Ingi Þór tók hana um borð í rútuna og setti hana í barnastólinn þá sofnaði hún eins og skot. Hún vaknaði samt fyrir hálf sex í morgun, og vakti mikið í nótt, þar sem hana klæjaði svo mikið. Ég bar á hana krem, og létti henni eitthvað við það.  En svo vildi hún helst sofa ofan á mér, eða hálf yfir magan á mér hehehe... svo það var frekar lítið um svefn.  En þetta kemur allt saman.  Henni batnar fljótt, og þá fer hún á leikskólann og amman verður aðeins frjálsari.

IMG_4832

Veðrið er ágætt, dálítið kallt, en sólin brýst fram öðru hverju.

IMG_4833

Svona er nú búið að vera hér.  Knús á ykkur og takk fyrir að líta við, þó svo ég sé svona þrælupptekinn.  Heart 


Mömmublogg og hið daglega veður.

Sólin hefur brotist fram hér og skín eins og henni sé borgað fyrir það. 

IMG_4808

Já sólin er að komast í gegn.

IMG_4812

Yndislegt veður hér í dag, eins og sjá má.

En við vöknuðum í morgun og litla Ásthildur varð að vera heima, því hún er með hlaupabóluna, svo afi þurfti að fara með stóru stelpuna okkar á leikskólann.

IMG_4778

Þær léku sér samt svolitið saman í morgun og voru svo góðar.

IMG_4780

Amma komdu að sjá hvað Ásthildur er góð við mig.

IMG_4782

Knúsí knús.

IMG_4783

Og koss Heart

IMG_4785

Svolítið að dröslast líka.

IMG_4794

Og dansa. 

IMG_4790

Svo þarf maður aðeins að velta sér og prófa nýja hluti.

IMG_4796

Já Hanna Sól að verða alveg tilbúin á leikskólann.

IMG_4799

Ásthildur grallarast við afa við morgunverðarborðið.

IMG_4802

Svona gerir maður þegar maður er ógislega fyndinn og allir hlæja að manni hehehe.

IMG_4784

Svo kíkti Evíta litla við með pabba sínum í morgun.

IMG_4786

Fóstran hennar var veik í dag, svo hún þurfti að fara með pabba í vinnuna, en hún er svo dugleg.

IMG_4804

Þær léku sér aðeins við kisu hann Brand.

IMG_4809

Svo þarf maður aðeins að kíkja í spegil.

IMG_4811

Það eru svona stelpur þar nefnilega, sem eru áhugaverðar.

IMG_4810

Jafnvel fleiri en ein.

En í gær kom Ingi Þór með stelpurnar um kl. 6 um kvöldið, svo ég fékk gott frí.  Ég bauð honum í mat, og svo pabba gamla eins og venjulega.  Það var líf og fjör hjá okkur. 

IMG_4758

Tílskudaman þarf náttúrulega að hafa húfuna öðruvísi, hún er jú tískudama.

IMG_4761

Afi og langafi.

IMG_4762

Hér er Aron Máni, komin úr sveitinni.

IMG_4763

Og það var náttúrulega farið í fjársjóðskistuna góðu, og klætt sig upp á LoL

IMG_4765

Kristján Logi stórglæsilegur hershöfðingi.

IMG_4767

Rótað í kistunni.

IMG_4768

Einhverra hluta vegna eru gulir hanskar allt í einu orðnir töff Tounge

IMG_4769

en Birta situr bara stillt og prúð.

IMG_4770

Sóley Ebba með húfuna sem hún saumaði sjálf.  Þau gera öll svona og svo púða.  Stubburinn kom hróðugur heim með húfu og púða núna áðan. 

IMG_4775

Hér er svo kjúklingurinn, öll skræpótt í framan.  En hún vaknaði kl. hálf sex í morgun og neitaði að sofna aftur.  Uns Ingi Þór tók hana með sér í bílinn og þá sofnaði hún eins og skot.  Þess vegna hef ég komist í tölvuna.  Því ég kemst ekki spönn frá rassi með þessa litlu dúllu.  Heart 

Þess vegna kemst ég ekki blogghringinn strax allavega, og vona að mér fyrirgefist það.  Vonandi eigið þið góðan og blessaðan dag.  Heart


Smá pæling um miðborg Reykjavíkur, Vatnsmýrina og Hannes.

Ég hef verið að spá í hlutina svona innra með mér.  Það eru þrjú málefni sem ég hef tekið eftir að eru efst á baugi, svona burt frá einkaþotubusiness þeirra Ingibjargar og Geirs.  Það er flugvallarmálin í Vatnsmýrinni, miðborgin og svo Hannes Hólmsteinn.

 

Ég ætti svo sem ekki að vera að skipta mér að þessum málum, því þau káfa ekki upp á mig, nema flugvöllurinn, og þó mjög takmarkað því ég flýg helst ekki.  Ég ek suður ef ég þarf að fara þangað. 


En það er ljóst að öll þessi mál eru einhvernveginn á röngu róli.  Meðan til dæmis ráðamenn í borginni eru að spá í flugvallarsvæðið með húsbyggingar í huga, og láta fara fram hugmyndasamkeppni um það svæði, þá er ekkert gert í miðborginni, og hún bara látinn drabbast niður.

Þar virðast byggingarverktakar geta hagað sér eins og svívirðingar, keypt hús, látið þau drabbast niður til að geta rifið þau, og jafnvel hrekja fólk úr húsum sínum, með því að leigja misindisfólki og veikum einstaklingum íbúðir og hús, og hóta fólki að húsin þeirra og íbúðarhúsnæði lækki í verði, svo betra sé að selja þeim strax.  Þetta hefur að því að mér virðist verið látið átölulaust, og ekkert gert til að koma í veg fyrir það.

Skrýtið, því í öllum höfuðborgum reyna menn að vernda miðbæinn, þann hluta sem hefur mesta sögu og nauðsynlegt að hafa einhverja yfirsýn yfir hvernig líti út.  Til dæmis í París, þar má ekki hrófla við neinu í miðborginni.  Ekkert rífa og engu breyta.  Ef nauðsyn ber til að breyta, þá er skilyrði að framhlið hússins haldi sér, svo myndin sé hin sama. 

Hvar er metnaður borgarfulltrúa Reykjavíkur gagnvart miðborginni ?  Og þá er sama hver er í forsvari, því ekkert hefur breyst, þó borgarfulltrúar séu eins og jójó úti eða inni. 

Svo er rifist um keisarans skegg, hvort þetta hús eigi að fara, eða hitt húsið, og hvort rétt hafi verið að kaupa þetta húsið eða hitt. Hvort eigi að skikka menn til að mála og halda við húsum, sem er bara kúkur á priki miðað við það sem raunverulega þarf að fara fram.

 

Þarna hefði fyrir löngu átt að vera búið að gera skipulag um hvaða götumynd fólk vill sjá í miðborginni, og hvað má missa sig.  Fara í hugmyndasamkeppni  um skipulag þar frekar en í Vatnsmýrinni, um hvernig á að standa að uppbyggingunni.  Því miður virðist þetta hafa verið bara happa og glappa, og byggingarverktakar bara byggt ljót háhýsi af ódýrustu gerð, til að hámarka gróða sinn og út úr korti við öll hús í nágrenninu.  Þar kemst engin fagurfræði að, eða umhyggja fyrir því sem fyrir er.  Af hverju þarf þetta að vera svona.  Ætli það geti verið að við séum ennþá með annan fótinn í moldarkofanum, og höfum aldrei almennilega yfirgefið hann ? Það er meiri reisn yfir Súðavík en miðborg höfuðstaðar okkar. 

 

Svo er Hannes.  Ég veit ekki hvort ég á að hlæja eða gráta.  Þetta er svo týpiskt fyrir íslenska þjóðarsál.  Nú finnst fólki hann hafa komið svo vel út úr viðtölum í sjónvarpi og blöðum, nýr Hannes, auðmjúkur og góður.  Hversu mikil flón getur fólk verið ?

Getur fólk ekki séð mun á falsi og fláleika og svo almennilegri iðrun ?

Nú segist hann vera bara eins og venjulegur verkamaður með 500 þúsund á mánuði, og spyr hvernig hann eigi að komast fram úr því.  Hannes Hólmsteinn hefur aldrei verið venjulegur verkamaður, hann hefur alla tíð verið í faðmi Sjálfstæðisflokksins eins og bómullar ungi.  Það er líka hans akkilesarhæll, því hann hélt að hann kæmist upp með hvað sem var.  Og sennilega kemst hann upp með það á endanum, því Sjálfstæðiflokkurinn sér um sína, sama hvað á dynur.

Allur málflutningur hans segir mér að hann er að klóra í bakkann, hann er auðvitað í vandræðum, sem hann hefur sjálfur komið sér í, einn og óstuddur.  Og þegar herðir að og buddann orðin tóm, þá eiga aðrir að koma að og bjarga honum.  Er ekki komin tími á að maðurinn bjargi sér sjálfur.  Hann er orðin nógu gamall til að vita að ef maður gerir eitthvað af sér, þá þarf maður að standa fyrir því.  Ég sá enga iðrun, ég horfði mann sem sá fram á alvöru lífsins, og vill nú láta bjarga sér úr snörunni.  Meðulin eru sýnileg öllum sem vilja sjá.  Nei sorrý ég held að Hannes blessaður hafi bara gott af því að standa skil á því sem hann hefur gert.  Standa frammi fyrir sjálfum sér og standa fyrir málum sínum.  Hann yrði maður að meiri í mínum huga.  Það eru svo margir á undan honum sem ég myndi leggja lið til dæmis.  Ég er sannfærð um að það mun þroska hann mikið sem manneskju að þurfa einu sinni að klóra sig út úr sínum eigin gjörðum.   En þetta er nú bara svona pæling dreyfbýlistúttu.  En ég held að fólkið sem kallað er í daglegu tali 101liðið eða eitthvað álíka, mætti aðeins fara að hugsa sinn gang.  Við segjum að ameríkanar viti ekkert lengra en í sínum eigin nafla, þeir sjái ekkert utan síns heimabæjar.  Þetta er svo sannarlega að heimfærast upp á það fólk sem hrærist hvað mest í miðborg Reykjavíkur og heldur að landsbyggðin taki við upp við Elliðaár. Smile


Smáfrí á barnapössun og gróður beint í æð.

Elsti sonur minn Ingi Þór hringdi í mig í gær og sagði að hann skyldi taka stelpurnar í pössun í gær, og jafnvel í nótt líka.  Ég varð auðvitað mjög glöð yfir hugsunarsemi hans.  Hann er pabbi hennar Evítu litlu, og er grasekkjumaður eins og er.  Honum fannst ekkert mál að taka þær litlu líka, og þær eru þar ennþá.  Við vorum sem sagt ein í kotinu í gær, Úlfur hafði boðið frænku sinni Sóley Ebbu út að borða í afmælisgjöf, grand á því drengurinn, og gisti svo hjá annari frænku, Evu Rut. 

Það var ljúft að vera bara tvö svona smátíma.  En Ingi Þór hringdi svo í morgun og spurði mig hvort ég hefði vitað að Ásthildur væri komin með hlaupabóluna ? Nei sagði ég, ég var samt að spá í það í gær, vegna þess að ég sá eina bólu á hálsinum á henni í gær morgunn.  Jamm hún er öll útsteypt núna sagði hann. 

En ég notaði tækifærið og fór að prikla í morgun upp í gróðurhúsi. 

IMG_4753

Þau eru mörg orðin myndarleg blómin mín.

IMG_4754

eins og sjá má.

IMG_4755

IMG_4756

Það er samt heilmikil vinna eftir, við vorum óheppin og fengum svepp í sáninguna, svo við urðum að endursá eiginlega öllum plöntunum.  Við höfum grun um að moldin sem við fengum, hafi verið ónýt.  En það er bara að byrja aftur og gera enn betur.  Svo fauk plastið af stóra húsinu, svo við verðum í vandræðum með pláss, en vonandi verður fljótlega hægt að setja plast á aftur, og fara að nota húsið. 

En veðrið er ágætt núna, það er hlýtt og bjart, þó sólin nái ekki fram ennþá.

IMG_4752

En ég segi nú bara takk elsku Ingi Þór minn, fyrir að vera svona hugsunarsamur við hana mömmu þína.  Knús á þig Heart

Og knús á ykkur öll inn í daginn.  Heart


Vor á höfninni.

Þessar myndir áttu að fara inn í gær, en ég var alveg búin á því LoL

IMG_4683

Smárúntur á Ísafirði, þetta er menningarhúsið okkar Edinborg.

IMG_4684

Það var vorlegt við höfnina.

IMG_4687

Sumir voru að þrífa og laga til.

IMG_4708

Aðrir að ditta að eignum sínum.

IMG_4689

Aðrir voru að sjósetja bátana sína.

IMG_4692

Þarna lyftist hann upp.

IMG_4693

Fljúgandi bátur hehehe

IMG_4697

Í sjóinn með hann.

IMG_4701

Ekki málið.

IMG_4705

Gengur eins og í sögu.

IMG_4707

Kominn á sinn stað.

IMG_4709

Svo ákvað ég að fá mér harðfisk, hjá honum Finnboga.

IMG_4710

Þarna er hann karlinn hress og kátur, með besta harðfiskinn.

IMG_4713

Við héldum svo á Suðureyri til að sækja stelpurnar, og gefa öndunum brauð.  Þær eru eins og jésú labba á vatninu hehehehe.

IMG_4714

Þær áttu nú í dálitlum vandræðum að fóta sig á ísnum, en hvað gerir maður ekki fyrir brauð.

IMG_4717

Þær ætluðu eiginlega bara að koma með okkur.

IMG_4720

en við vorum á leiðinni aðeins lengar út fyrir Súgandafjörð, í Staðardal held ég að hann heiti.

IMG_4721

Þar er ennþá kuldalegra um að litast.

IMG_4722

Þar er þessi fallega gamla kirkja.

IMG_4727

Hundarnir á bænum létu sitt ekki eftir liggja og fylgdu okkur úr hlaði LoL

IMG_4729

Gölturinn glæsilegur héðan.

IMG_4730

en þá var bara að koma sér í vorið inn í kúlunni.

IMG_4733

Athuga tjörnina og svona.

IMG_4739

Svo þarf að skola af sér sandinn á eftir.

IMG_4743

Við ákváðum að grilla af því að veðrið var svo gott.

IMG_4745

Það er líka ágætt að sitja upp á borði, það þarf alltaf að klifra upp á hæsta punkt.

IMG_4748

Þá er maður komin í hrein föt.

IMG_4750

Þessi að verða tilbúinn í svefninn.

IMG_4751

Hanna Sól með blóm í hári og í náttafötunum.

Já þessi dagur í gær var yndæll.  Og það er svipað veður í dag. 


Hið daglega veður og mömmublogg.

Jæja þá eru það myndir sem ég tók í morgun.

IMG_4656

Já morgunin lofaði góðu.

IMG_4657

Og við komnar út í bíl, tilbúnar í vinnuna.

IMG_4658

Glaðar og kátar.

IMG_4659

Skíðasvæðið baðað sól, nú ættu allir að fara á skíði í dag hér koma svo ísfirðingar !

IMG_4660

Úbbs ég hljóp svo hratt, að ég hrasaði og datt .....

IMG_4661

en maður lætur nú ekki svoleiðis smámuni aftra sér frá því að halda áfram.

IMG_4663

Inn vil ek.

IMG_4664

Þú skalt ekkert hafa áhyggjur af hárinu mamma, við ætlum í sund á Suðureyri eftir vinnuna hehehehe..

IMG_4665

Knock knock who´s there?

IMG_4666

Búin að ná sér í tuskudýr.

IMG_4667

Mín alveg orðin heimavön á leikskólanum sínum.

IMG_4668

Þetta er Monika, þær eiga örugglega eftir að verða góða saman.

IMG_4670

Samverustundin að byrja, þeir sem ekki er treystandi til að sitja kyrrum eru settir í stóla.

IMG_4672

Mín stutta er ein af þeim hehehe

IMG_4671

Það er auðséð að þau hlakka til þessara samverustunda, og hafa gaman af.

IMG_4674

Það er alltaf einn sem er umsjónarmaður, hann er með spjöldin sem eru sett upp á vegg, um hvaða dagur er, og svoleiðis.  Þessi ungi maður er umsjónarmaður í dag.  Hann sækir svo líka ávextina í ávaxtartímanum.

IMG_46741

Mér finnst þetta frábært, hvetur þau áfram til sjálfstæðis.

IMG_4675

Þau eru bara svo flott.

IMG_4676

Og auðvitað er báturinn aðalleiktækið í svona útgerðarþorpi eins og Suðureyri.

IMG_4677

en veðrið er fallegt eins og sjá má, og fannhvítir jöklanna tindar.

IMG_4680

Og ætli það séu ekki fjöllinn sem gefa okkur allan þennan kraft og orku ? Ég held það.  Þess vegna hef ég trú á Vestfjörðum.  Eigið góðan dag.


Góðan og blessaðan dag.

Ég veit ekki með ykkur, sen stundum vaknar maður og finnst vera á toppi heimsins, finnst allt gott og jákvætt, það er einhver gleði og eftirvænting, þó það sé bara venjulegur dagur, og ekkert sérstakt að gerast.  Þetta er bara svona tifinning sem nærir sálina og gefur manni mikið.

Svona var morguninn í morgun, við vöknuðum öll áður en klukkan hrindi, og höfðum tíma til að vakna í rólegheitum, vorum öll einhvernveginn í rósemd og gleði.  Ekkert mál að borða morgunverð, ekkert mál að klæða sig, stubburinn þurfti að útbúa sig sjálfur og smyrja nestið, sem hann gerði með glöðu geði og reisn.  Kom sér sjálfur í skólann.

Gaman á leiðinni í leikskólann, að vísu ropaði drekinn þegar við fórum út um munninn á honum, allavega heyrði Hanna Sól að hann ropaði og ég trúi henni alveg, því hún heyrir betur en ég. 

En mig langað bara að deila þessari gleði og eftirvæntingu, ætli það sé tilfellið að vorið sé á næsta leiti? Af því að ég held að þið eigið ykkar þátt í þessu, með fallegu kommentunum ykkar og kærleikanum sem maður finnur gegnum þau.  Heart

Vor.

Nú lifnar allt og grasið grær

gleymist vetrartími.

Allt það grimmt sem var í gær

ég gref í hugans rými.

 

Eftirvænting ást og þor

eykst á þessum tíma.

Víst er komið langþráð vor

vafið ástarbríma.

 

Skýjaglenna við oss skín

Skokkar lamb í haga.

Sálin blessuð, sértu mín

um sumarlanga daga.

Ásthildur 2005

Það verða myndir í hádeginu.  Gleðilegan dag mín kæru hvar sem þið eruð á hnettinum.  Kissing

c_documents_and_settings_owner_my_documents_my_pictures_cesil_img_3810_293710


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2008
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband