Á skíðum skemmti ég mér tra la la la!!!

Hér er dásemdar veður í dag.  Ég kíkti aðeins upp á skíðasvæðið í hádeginu og þá þegar voru margir komnir á skíði, þó eflaust flestir hafi verið að skemmta sér í gærkveldi.  Það var ýmislegt að gera meira en Aldrei fór ég suður, það var leiksýning í Edinborgarhúsinu, og uppákoma inn í Arnardal og Hjálmar léku í Krúsinni, eflaust hefur verið eitthvað skemmtilegt að gerast á Hótel Ísafirði.  Allur bærinn að skemmta sér.  Ég skrapp líka aðeins í ríkið í morgun og þar var talað tungum.  Þarna voru pólverjar, portugalar, frakkar eða allavega frönskumælandi hópur og örfáir íslendingar.   Þetta var á við utanlandsreisu svei mér þá.  En það er töluvert af erlendum gestum hér heyri ég.

IMG_1728

Þessum lætur sér samt fátt um finnast, leikur sér bara með dótið sitt.

IMG_1732

LoL

IMG_1722

Við áttum notalega stund í gærkveldi.

IMG_1723

Með Skafta mínum, hann er að fara til Noregst.  Hér er hann í flottri peysu sem Tinna konan hans prjónaði á hann. 

IMG_1725

Sætir saman. 

IMG_1733

Eins og úfnir hanar, hehehe þeir gistu hjá okkur í nótt þessir bræður, og eru nýbúnir að slást þessar elskur. LoL en svoleiðis gera bræður.

IMG_1734

Það var fallegt veðrið í morgun.

IMG_1735

Búið að flagga og allt til reiðu fyrir skíðafólkið.

IMG_1736

Dalirnir tveir upp á sitt besta, hér er þegar komið fullt af fólki og varla hádegi.

IMG_1737

Krakkarnir sennilega að æfa sig fyrir páskaeggjamótið.

IMG_1738

Heiður himin yfir skíðasvæðinu.

IMG_1740

Horft yfir Ísafjörð frá Tungudal.

IMG_1741

Fallegur dagur, og Ísafjörður iðar af mannlífi.  Eigið góðan dag elskurnar.  Ég er aftur á móti að fara að dreyfplanta, grufla svolítið í moldinni, það er gott líka, sérstaklega fyrir sálina. Heart


Aldrei fór ég suður.

Ég er að hlusta á Aldrei fór ég suður í tölvunni.  En brá mér aðeins á tónleikana áðan, nú eru Ingó og veðurguðirnir að syngja; erum að spila í kvöld á Ísafirði!!!

IMG_1716

Hér er hann og hann er að segja Halló Úlfur, svona bara fyrir mig. Wink Og Úlfinn, er að bíða eftir að koma fram.

IMG_1692

En ég er gift kóngulóarmanninum hehehehe

IMG_1693

Og þetta er auglýsing fyrir Murr kattarmat frá Súðavík, alíslensk framleiðsla.

IMG_1694

Það var algjörlega stappað við skemmuna hjá HNK í kvöld.

IMG_1695

Allt opið og svo vinalegt, ókeypis inn og þannig á það bara að vera.

IMG_1696

Stappa af fólki.

IMG_1697

Ótrúleg stemning.

IMG_1698

Dáni slikk sonur Laufeyjar og stjórinn hér.

IMG_1699

Hér er fólk á öllum aldri.

IMG_1701

Þetta er svona listræn mynd ehheh í þessum skrifuðu orðum er hljómsveitin Reykjavík að spila sem er að mestu ísfirsk.

IMG_1708

Hér erum við búin að pota okkur baksviðs, þar sem hljómlistamennirnir eru.

IMG_1709

Flottir.

IMG_1710

Mugipapa og fleiri

IMG_1711

Og hér eru þeir sem eru að bíða eftir að komast inn á sviðið.

IMG_1714

Þessi er algjört krútt!!

IMG_1716

Set þessa inn aftur því hér er ekki bara Ingó heldur líka Smári Karls frændi minn og Valdimar Jóhannsson sem er í mörgum hljómsveitum m.a. Reykjavík. Og rétt í þessu er verið að syngja afmælissöngin fyrir Smára því hann afmæli í dag til hamingju með daginn Smári minn!Wizard

IMG_1718

Og þegar ég fór heim, var enn að streyma að fólk úr öllum áttum.

IMG_1720

Ungir glaðir krakkar en sennilega fjölskyldufólkið að fara heim með börnin. 

Þetta er bara yndi.  Heart

 


Aldrei fór ég suður í beinni.

Það er hægt að hlusta á Aldrei fór ég suður í beinni hér á þessari slóð; http://snerpa.is/aldrei Annars er allt gott að frétta héðan, veðrið er aðeins að stríða okkur, en ég er viss um að það lagast á morgun. Stubburinn er farin á rokkhátíðina, enda bara hér rétt hjá okkur.  Smile

Hátíðarundirbúningur og svo hitt og þetta frá mér.

Ég hef ekki haft tíma til að fara blogghringinn minn elskuleg, er á kafi í að grufla í mold og bara sinna mínu andlega atgerfi, það reynist stundum heilmikil vinna get ég sagt ykkur. 

En hér eru nokkrar myndir frá því í dag.

IMG_1650

Horfast í augu grámyglur tvær, sú skal vera músin sem mærir, kötturinn sem sig hrærir , fíflið sem fyrr hlær og skrímslið sem skína lætur í tennurnar Nei ég er búin að gleyma þulunni. En flottir eru þeir.

IMG_1651

Áfram heldur þrautinn, þú skalt tapa flónið þitt.

IMG_1653

Sagði þér það, ég er stærri og sterkari.

IMG_1654

ég get sagt ykkur að hér er allt endurnýtt, gamlir snjóskaflar samanmokaðir verða fínustu rennibrautir.

IMG_1655

Hef grun um að þetta sé í boði annað hvort Sólborgar eða Eyrarskjóls leikskólanna og fóstrurnar hafi fundið þessa frábæru leið til að skemmta ungunum sínum.

IMG_1656

Og þau skemmta sér vel börnin.

IMG_1658

Hér er verið að flytja snjó niður í miðbæ, til að setja skíðahátíðina, en svo var líka fluttur snjór upp á skíðasvæði, þannig að snjórinn er nýttur og endurnýttur allt eftir behag, geri aðrir betur.

IMG_1659

Já hér skiptir allt um stöðu eftir því hvað þarf að nýta í það skiptið.  Hér er bara hugsað í lausnum, frábært að gjörnýta alla möguleika.  Bílarnir aka bara annarsstaðar.

IMG_1661

Hér getur að líta út um bæjarhlaðið hjá mér hvar Aldrei fór ég suður hátíðin verður.

IMG_1663

Fánarnir blakta við hún.

IMG_1664

Skíðavikufánin og hinn íslenski vísa veginn inn í Tungudal og Seljalandsdal, dalina tvo.

IMG_1666

Það er ekki mikill snjór en eins og sjá má, er nægur snjór í skíðabrautunum, bæði hefur verið ekið snjó úr miðbænum og svo framleiddur snjór og svo sendi Guð okkur smá líka svona yfirlag til að fullkomna verkiðTounge Málið er að þegar ég sá um skíðavikuna, þá galdraði ég bara snjóinn, þurfti ekki að keyra hann eitt eða neitt hann koma bara ofan af himinum.

IMG_1668

Séð yfir Ísafjörð ofan af Tungudal.

IMG_1669

Og hér er verið að undirbúa Aldrei fór ég suður, sjálfboðaliðar að reisa sviðið.

IMG_1671

Málið er að þetta risabatterí er að mestu unnið af sjálfboðaliðum, og allir gefa vinnuna sína, líka þeir sem koma fram, þetta byggist allt á samvinnu frá smæsta verkefni til þess stærsta. Einungis þannig getur þetta gengið.

IMG_1673

Eins og sjá má er það nauðsynlegasta komið líka þ.e. klósettinn LoL

IMG_1675

Hér er svo pókermót í fullum gangi.  Hér er keppt um Júllabikarinn til heiðurs syni mínum, sem var liðtækur pókerspilari.

IMG_1678

einhver þessara flottu stráka fara heim með bikarinn sem hér er í forgrunni.  En skyldu engar stelpur spila póker?

IMG_1679

Snæfjallaströndin hulin dulúð íslenskrar náttúru.

IMG_1681

Annar snjóhaugur, önnur börn. Hér er allt nýtt sér til skemmtunnar.

IMG_1682

Meira að segja bæjarbrekkan sett undir keppni.  Ég er svo ánægð með hugmynda auðgi okkar unga fólks sem sér um skíðavikuna.  Frábært aldeilis.

IMG_1683

Eins og sjá má hefur snjó verið komið fyrir í bæjarbrekkunni og þar fór fram brunkeppni held ég.

IMG_1684

Og allt þokast í rétta átt í Aldrei fór ég suður, það má skoða prógrammið á aldrei.is þar sem hægt er að sjá hverjir koma fram og hvenær, nema allt getur þetta skolast til, eftir því sem aðalgúrúinn segir Bjarki Slikk.  En vonandi gengur þetta allt upp.  Því mikil vinna liggur hér að baki.  Gamanið byrjar klukkan sex annað kvöld.

IMG_1685

Hér eru hetjurnar sem voru að vinna í dag á fulli við undirbúninginn.

IMG_1687

Og veðrið fallegt eins og sjá má.

IMG_1688

Vorglaðningur í kúlunni.

IMG_1689

Og með kvöldsólina í baksýn óska ég ykkur gleðilegra Páska.  Hér er allt tilbúið til að taka á móti gestum og gangandi, gleði ríkin og gömul andlit í sjónmáli.  Þetta er yndæll tími.  Ég vildi ekki missa af þessu.  Eigið góða páska. Heart


« Fyrri síða

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2010
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 35
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband