Borgarafundur á Ísafirði.

Var að horfa á borgarafundinn frá Ísafirði rétt núna áðan.  Spyrlarnir stóðu sig fantavel að mínu mati.  Og flestir frambjóðendur voru bara góðir.  Bestir voru reyndar Gunnar Sigurðsson, Sigurjón minn maður og svo Jón Bjarnason.   Vorkenndi reyndar dálítið þessum Ása frá Rifi sem reyndi allt hvað hann mátti að koma skilaboðunum til skila frá sjöllum, sem reyndar höfðu plantað sér á fremsta bekk eins og þeirra er siður, svona klappilið Halelúja sátu þar skælbrosandi í beinni, flott fólk reyndar en með vondan málstað.

IMG_7284

Veðrið er fallegt á Ísafirði eins og reyndar alltaf.

IMG_7285

Allt klárt hjá sjónvarpinu. Reyndar lentu þau í erfiðleikum því það þurfti afréttingu á bílnum ( eins gott að það var ekki hjá starfsfólkinu hehehe) svo mínir menn þurftu að bregðast við og rétta þá af, svo halli væri ekki á útsendingunni, nóg er nú samt LoL Bílstjórinn þurfti reyndar að leita okkar ásjár með að þrífa bílinn og fékk að þvo hann inn í áhaldahúsi og kom svo í kaffi og spjall.

IMG_7290

Hér eru svo mínir menn fyrir fundinn með flottustu málefnaskrána, og Guðjón Arnar las fyrir okkur upp úr loforðalistanum fyrir síðustu kosningar.  það hefði bara þurft að skipta um mynd, því allt hitt stóð hreint og klárt.  Við erum flottust í prinsippinu.

IMG_7286

Flokkurinn minn mun blómstra against all odds segi og skrifa. 

IMG_7287

Þetta er náttúrulega bara forsmekkurinn.  En ég get alveg lofað ykkur mín kæru að eins og ég er, þá stendur málefnaskrá Frjálslynda flokksins algjörlega á traustum grunni.  Og mínir menn hafa hvergi kvikað frá málefnasáttmálanum, af því er ég hreykin og vil að komi fram hér. Ef þið eruð í efasemdum um hvað skal kjósa og viljið ekki veita okkur atkvæði ykkar, langar mig til að biðja ykkur um að skoða Borgarahreyfinguna.  Þau hafa mjög svo sömu sjónarmið og við. Og eru í raun og veru framhald af okkar skoðunum.  Þess vegna vil ég biðja um að þið virkilega skoðið hvað þessir tveir flokkar hafi fram að færa svo svo Vinstri græn.  Mér finnst svolítið skorta á tiltrú á Samfylkinguna, þó mér þyki vænt um fullt af fólki þar.  Þá finnst mér eins og það sé ekki alveg hægt að treysta á þau, vegna þess að í prinsippinu eru þau dálítið laus í rásinni og hafi skoðanakannanir of mikið til hliðsjónar, en þar er líka frábært fólk innanborðs.  Nema ef til vill það frábæra fólk hefur ekki tögl og haldir..... eða þannig.


Hvenær er málið mútur og hvenær ekki mútur?

Ég fann ekki fréttina um sáttmálan sem gerður var milli Anders Fogs Rasmussens og tyrkja með milligöngu Berlusconis.  En ég hef verið dálítið hugsandi yfir því.  Rasmussen vildi verða framkvæmdastjóri Atlandshafsbandalagsins en tyrkir voru reiðir og vildu hann ekki.  Og hvað gerist svo?  Jú einn spilltasti stjórnmálamaður allra tíma ítalski forsætisráðherrann fer í málið og það er sjatlað, með því að Tyrkir fái sæti hér og þar, og að karlinn biðjist afsökunar á teiknimyndunum frægu af Múhamed.

Þá hugsaði ég hvenær er um mútur að ræða og hvenær ekki?  Hvað er það annað en mútur að fá sæti hér og þar í skiptum fyrir að samþykkja og gangast undir að maður sem þeir telja vera óæskilegan kost fái jobbið? Eða hefðu þetta bara verið mútur ef tyrkirnir hefðu fengið peninga?

Er einhver munur á þessu eða annari spillingu?  Nú verður þessi ágæti Rasmussen að búa við það að hafa keypt sér framkvæmdastjórastólinn.  Að vísu var hann einn í framboði, en af hverju þá þessi læti?

Sennilega er heimurinn allur eitt spillingabæli, og mönnum finnst bara hreint ekkert að þessu.  Svona gerast kaupin bara á eyrinni.  Ég borga þér feita upphæð í kosningasjóðinn og þú færir mér kvóta í staðinn, eða ég læt þig hafa formenn í þessum og þessum nefndum og þú mótmælir ekki að ég fái stöðuna sem ég þrái. 

Svona til gamans þá væri fróðlegt að vita hvaða múlsíma er verið að tala um í fréttinni, : að þurfi jafnvægi á milli sjónarmiða múlsíma og Vesturlandabúa.

Reyndar önnur stafsetningarvilla í enda fréttarinnar; Síðar í ræðunni varaði hann við ritskoðun og sagði hana ógn við skilning á illi menningarheima.

 

 

Anders Fogh Rasmussen, fyrrum forsætisráðherra Danmerkur,... Anders Fogh Rasmussen, fyrrum forsætisráðherra Danmerkur og verðandi framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, sagði á ráðstefnu um alþjóðasamskipti í Istanbul í Tyrklandi í dag, að þurfi jafnvægi á milli sjónarmiða múlsíma og Vesturlandabúa. Þetta kemur fram á fréttavef Jyllands-Posten.


mbl.is Fogh: Þurfum að finna jafnvægi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

smá mömmó undir svefninn.

jamm nokkrar myndir fyrir mömmurnar mínar.

IMG_7223

Garðskálinn er óðum að breytast í vorparadís.

IMG_7224

Þessi mynd er fyrir vin minn Jóhann Elísasson af Brandi þeim eina og sanna.

IMG_7228

maður þarf nú stundum að vera ballerína.

IMG_7230

nú eða standa sig heheh3eLoL

IMG_7233

svo þarf að klifra í trjám.

IMG_7238

Auðvitað þurfa Allir að prófa sko!!!

IMG_7243

Og það þarf ekki snjó tll að hafa gaman af snjóþotum.

IMG_7250

Það má allt eins bara vera inni í garðskála hjá ömmu sín.

IMG_7253

Maður getur alveg verið hæstánægð með það.

IMG_7258

Og maður er manns gaman ekki satt?

IMG_7266

Svo er hægt að hafa þetta á mismunandi vegu!

IMG_7276 

Sopinn er líka góður

IMG_7279

Svo maður tali nú ekki um gott að borða.  Ég vona að þessi litla stúlka fyrirgefi ömmu sín fyrir að birta þessa mynd.  Ásthildur Cesil júníor er bara svo lík ömmu sinni, það er allt eða ekkert.  Og þannig er það bara.  Við stöndum fyrir því sem við erum og ég og hún örugglega þegar hún hefur vit til gerir það sama, stoltar af því að vera manneskjur sem bara erum það sem við erum, með kostum og göllum.  En viðurkennum að gallar eru til að lagfæra og skilja til að læra.

En elskurnar ég segi bara góða nótt.


Þorvaldur Gylfason - Gylfi Magnúson og sannleikurinn.

Það er oft sagt að sjaldan sé góð vísa of oft kveðin.  Og þó ég sé Þorvaldi Gylfasyni algjörlega ósammála honum í því að ganga í Evrópusambandið og líti nánast á fólk sem ekkert sér framundan annað en inngöngu þangað sem landráðamenn, þá hefur þessi grein hans setið í mér í fleiri daga.  Það sem hann segir hér og vitnar í Gylfa Magnússon nýjan viðskiptaráðherra er svo ómengaður sannleikur að mér finnst alveg við hæfi að endursegja þetta hér.   Vona að mér fyrirgefist það að taka þetta svona í heild sinni.  En þessi grein birtist í Fréttablaðinu þann 26. mars sl.  Verð að hnykkja á því að blaðið er hætt að berast hingað vestur, vegna þess að forráðamönnum þar á bæ fannst Vestfirðir vera svo mikið krummaskuð að þeir hefðu ekkert að gera með að lesa blaðið.  Svo ég er hætt að lesa það þar með.  En ég hafði klippt út þessa ágætu grein Þorvaldar og vil birta hana hér með.  Versgú!!
Framar á flestum sviðum?

Gylfi Magnússon, nú viðskiptaráðherra, flutti eftirminnilega ræðu á Austurvelli laugardaginn 17. janúar sl. Þar sagði hann meðal annars: "Sú hugmyndafræði sem kom okkur í núverandi stöðu er andlega gjaldþrota. Þeir sem fóru fyrir henni þurfa að víkja strax af sviðinu og láta öðrum eftir uppbygginguna. Hvort sem þeir eru í stjórnmálum, stjórnkerfinu, fyrirtækjarekstri, fara fyrir hagsmunasamtökum eða voru bara í klappliðinu. Fyrsta skrefið til fyrirgefningar er að þetta fólk rétti fram sáttahönd og axli ábyrgð með því að víkja. Því miður hefur lítið sést til þeirrar sáttahandar enn þá. Það glittir bara í löngutöng. Allt þetta fólk má auðvitað starfa að uppbyggingunni en það má ekki og getur ekki stjórnað henni. Þeir sem strönduðu þjóðarskútunni eiga ekki að stýra henni af strandstað. Þeir geta ekki hvatt landa sína til dáða. Það hefur enginn trú á þeirra lausnum. Þeir mega hins vegar leggjast á árarnar með öllum hinum. Á almennu farrými." Viku síðar sagði Magnús Björn Ólafsson blaðamaður undir lok ræðu sinnar á sama stað og vitnaði óbeint í Nietzsche: "Stund hinnar miklu fyrirlitningar er upp runnin!" Að loknum ræðuhöldum söng Þjóðkórinn ættjarðarlög á tröppum Alþingishússins. Taflinu var lokið. Tveim dögum síðar sagði ríkisstjórnin af sér.

Nokkrum dögum síðar tók ný ríkisstjórn við völdum og boðaði til alþingiskosninga. Nýja stjórnin hefur gengið að ýmsum helztu kröfum mótmælenda. Bankastjórn Seðlabankans var vikið frá með nýjum lögum um bankann og einnig stjórn og forstjóra Fjármálaeftirlitsins. Enn sem komið er hefur enginn þeirra, sem bera þyngsta ábyrgð á bankahruninu, beðizt afsökunar, en ýmsir þeirra þurftu þó loksins að víkja fyrir nýju fólki. Stöldrum nú sem snöggvast við einn hóp: eigendur og stjórnendur stórfyrirtækja. Eigendur og stjórnendur bankanna eru efni í aðra grein.

Sjálftökumenn

Í skýrslu Viðskiptaráðs hálfu ári fyrir hrun segir svo: "Viðskiptaráð leggur til að Ísland hætti að bera sig saman við Norðurlöndin enda stöndum við þeim framar á flestum sviðum." Þessi orð ráðsmanna vitna hvorki um auðmýkt né næman skilning á, að hagkerfið var á fleygiferð fram af bjargbrúninni. Þau vitna jafnframt um skeytingarleysi um þá staðreynd, að Ísland sagði sig einmitt úr lögum við önnur Norðurlönd með því að lögleiða mjög aukna misskiptingu ráðstöfunartekna heimilanna, svo sem upplýsingar ríkisskattstjóra og annarra sýna ljóslega. Gamla stjórnin þrætti fyrir þessa þróun. En ríkisskattstjóraembættið herðir nú enn á boðskapnum í tímariti embættisins, Tíund, en þar segja ríkisskattstjóri og vararíkisskattstjóri í forustugrein: "Í fjölmiðlaumræðu er því haldið fram að Íslands sjálftökumenn hafi getað leikið lausum hala utan laga og réttar og haft í frammi ótrúlega athafnasemi í þágu eigin velsældar. Því miður bendir margt til að svo kunni að hafa verið og að afleiðingar þeirra gjörninga verði upplifun landsmanna um ókomin ár." Hafi einhver efazt í alvöru um aukna misskiptingu á Íslandi fyrir hrun, ættu augu þeirra nú að hafa opnazt upp á gátt.

Auðmýkt

Í bandarískum fyrirtækjum hefur hlutfall forstjóralauna og launa óbreyttra starfsmanna á heildina litið hækkað úr 30 árið 1970 í næstum 300 nú. Sambærilegar tölur um Ísland eru ekki til, en leitnin virðist hafa verið svipuð. Tökum dæmi til að lýsa ástandinu. Viðskiptaráð birti 2006 stutta skýrslu þess efnis, að bankarnir og viðskiptalífið væru á grænni grein, og greiddi öðrum tveggja höfunda skýrslunnar 135 þúsund Bandaríkjadollara (15 milljónir króna) fyrir ómakið samkvæmt frásögn Wall Street Journal. Ætla má, að aðrar þóknanir Viðskiptaráðs fyrir ámóta viðvik hafi verið svipaðar. Fjárhagskröggur fyrirtækjanna í landinu þarf að skoða í þessu ljósi. Ekki virðast stjórnendur Viðskiptaráðs eða einstakra fyrirtækja innan vébanda þess þó hafa séð ástæðu til að axla ábyrgð á óráðsíunni með því að víkja fyrir nýju fólki svo sem Gylfi Magnússon lýsti eftir á Austurvelli. Myndi krafa fyrirtækjanna um lægri vexti ekki hljóma betur, ef stjórnendur þeirra fengjust til að viðurkenna, að ofurlaun þeirra, kaupréttir, starfslokasamningar og önnur sjálftaka voru mistök? Mörg fyrirtæki þurfa að skipta um bæði eigendur og stjórnendur, sum að undangengnu gjaldþroti. Mörgum öðrum fyrirtækjum dugir að ráða nýja stjórnendur með nýtt viðhorf og hugarfar. Hæfileg auðmýkt meðal forustumanna atvinnulífsins myndi greiða fyrir sáttfýsi fólksins í landinu og flýta fyrir nauðsynlegri endurheimt trausts innan lands og út á við.


Myndir fyrir svefninn.

Yndislegt veður í dag hér á Ísafirði.  Við höfðum það gott.  Gátum farið smástund upp í gróðurhús að fjölga og vinna og svo var haldið í sund með ungviðið okkar.

IMG_7167

Þessi reyndar tekinn í gær.

IMG_7168

Og þessi.  Fékk sendingu frá mömmu sinni og ömmu.  Nú er verið að undirbúa karíokikeppni meðal kúlubarna LoL

IMG_7169

Sumir þurfa að gera allt í einu ....

IMG_7172

og pils geta flækst ótrúlega mikið fyrir.

IMG_7178

Veðrið í dag var unaðslegt.

IMG_7179

Segi og skrifa

IMG_7181

svo þurfti náttúrulega að máta sig við snjóinn.  Ef þið saknið Hönnu Sólar á þessum myndum, þá var hún í heimsókn hjá uppáhaldsfrænku sinni henni Tinnu gisti þar í nótt.

IMG_7183

Jamm það var farið í sund á Suðureyri.

IMG_7186

Hér er þessa helgi unglingalandsmót á skíðum.  Aldeilis flott veður sem þau fá.

IMG_7191

enda þó ekki sjáist fólkið, þá sést að bílarnir eru margir.  Enda er svæðið stórt.

IMG_7194

Yndislegur Súgandafjöður blasir við.

IMG_7196

Og sundlaugin á Suðureyri, flottust.

IMG_7197

Það er nefnilega ekki stærðin eða tækifærin sem skipta máli, heldur elskulegt starfsfólk og skemmtilegir gestir.  Og það eru einmitt svoleiðis hér.

IMG_7201

Það sem gildir núna hjá prakkaranum mínum er; Ég áedda og Hann tókedda af mér, og Ég meiddi sig.... Hún er farin að tala þvílíkt þetta litla skott.

IMG_7206

Súgfirðingar ætla greinilega að vera fittastir á vestfjörðum í vor....

IMG_7209

Og blómin halda áfram að poppa upp hvert af öðru hér í kúlunni.

IMG_7210

Og svo auðvitað fjölæringarnir mínir

IMG_7217

Þessi er á matseðlinum hjá Hrönn LoL

IMG_7218

Jamm það gerist ýmislegt skemmtilegt í kúlu.

IMG_7219

Ásthildur mín ekki gera þetta!!!

IMG_7221

EKKI GERA ÞETTA!!!

IMG_7222

ÁSTHILDUR!!!  VILTU AÐ AMMA VERÐI REIÐ LoLDevil Hún er ekki kölluð skrýmslið fyrir ekki neitt þessi stúlka, en hún hefur sjálfstæðan vilja og þvílíkt stríðnisskap, mér er sagt af kunnugum að faðir hennar hafi verið og sé svona reyndar ennþá LoL Þetta leynist svo líka í ættinni hennar ömmu sinnar svo ekki er von á góðu. 

En þetta er svona undir nóttina elskurnar mínar. Góða nótt Heart


Frambjóðendur Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi.

Hér er listi yfir frambjóðendur í Norðvesturkjördæmi fyrir Frjálslynda flokkinn.

 

1 Guðjón Arnar Kristjánsson alþingismaður Ísafirði.

 

2 Sigurjón Þórðarson heilbrigðisfulltrúi Sauðárkróki.

 

3 Ragnheiður Ólafsdóttir listamaður Akranesi.

 

4 Sigurður Hallgrímsson sjómaður Skagaströnd.

 

5 Jónína Eyja Þórðardóttir bóndi Þórustöðum Önundarfirði.

 

6 Guðmundur Björn Hagalínsson bóndi og formaður eldriborgara Önundarfirði.

 

7 Dóróthea Guðrún Sigvaldadóttir verslunarrekandi Skriðulandi Búðadal.

 

8 Gunnlaugur Guðmundsson bóndi Söndum Miðfirði Húnaþingi Vestra.

 

9 Rannveig Bjarnadóttir Stuðningsfulltrúi Akranesi.

 

10 Þorsteinn Árnason Vélfræðingur Andakílsvirkjun Árnesi Borgarfirði.

 

11 Hafdís Elfa Ingimarsdóttir Sauðárkróki.

 

12 Helgi Helgason bóndi Þursstöðum III Borgarfirði.

 

13 Elísabet Pétursdóttir bóndi Sæóli 11 Ingjaldssandi.

 

14 Sæmundur Halldórsson verkamaður Akranesi.

 

15 Margrét S. Hannesdóttir verkakona Bolungarvík.

 

16 Þorstein Sigurjónsson bóndi Reykjum 2 Hunaþingi Vestra

 

17 Þórunn Arndís Eggertsdóttir bóndi Vaðli Vesturbyggð.

 

18 Sophaporn Sandra Arnórsson húsmóðir Ísafirði.

 

 


Árshátíð Grunnskólans á Ísafirði, sundnámskeið og fleira skemmtilegt.

Það var nóg að gera hjá mér í dag ja fyrir utan vinnuna.  Í morgun var árshátíð grunnskólans, það er alltaf hin besta skemmtun og gott fyrir sálina að sjá hvað þessar elskur eru að gera.  Og hvað þau eru dugleg og hvað mikil vinna er lögð í atriðin, bæði að semja þau, jafnvel ljóð og lög, búninga og leikin atriði.  Og mér finnst þetta alltaf fara batnandi með hverju árinu.  Hafið þökk fyrir þetta kennarar, ég er stolt af því góða uppeldisverki sem þarna fer fram.   En themað í ár er hafið og sjómennirnir okkar, hafsins hetjur það er vel til fundið núna á þessum erfiðu tímum að benda á mikilvægi þeirra og þess sem þeir draga úr sjó. 

IMG_7060

Allir hjálpast að, sumir selja miðana og aðrir eru dyraverðir, svo eru ljósamenn, hljóðmenn og hljóðfæraleikarar.  Þau eru frábær.

IMG_7061

Þessar dömur voru kynnar dagsins.

IMG_7063

Fyrsta atriðið kynnt.  1. bekkur sem er að koma fram í fyrsta skiptið núna.

IMG_7065

Þau gengu inn salinn, lítil krýli sum að koma fram í fyrsta sinn, aðrir sennilega vanari ef þeir eru í tónlistarskólanum.  Sum voru feimin og undirleit, önnur stikuðu bara eins og þau ættu heiminn.   Þessir hressu krakkar kynntu svo atriðið sitt.

IMG_7066

Þau fóru með þulur um fiskana og nöfnin á hafinu, og aðra um þau nöfn sem fólk ber en er frá hafinu.  Þetta var samið af einum kennaranum, og virkilega flott hjá henni Boggu, ég þarf að fá það þetta hjá henni og eiga.  Mjög skemmtilegt og þau kunnu þetta allt utanað.

IMG_7068

ég átti kríli í hverjum árgangi get ég sagt ykkur. Heart Og sumstaðar tvö og þrjú.

IMG_7071

Þau voru ekki neitt mikið feiminn við áhorfendur og sungu fallega og fóru með.

IMG_7073

Kynnarnir komnir í nýja búninga.

IMG_7074

Annars bekkingar voru á smábátum og þeirra atriði var líka mjög fínt, eins og reyndar allra.

IMG_7079

Það var skemmtileg lausn að útbúa fiska á höfuðin á krökkunum kom vel út.

IMG_7082

Þau fóru líka með skemmtilegar þulur og söng.

IMG_7089

Þriðju bekkingar lentu líka í ævintýrum á siglingum.

IMG_7090

Þessir ungu herramenn spiluðu undir sönginn hjá þeim á píanó og fiðlu.

IMG_7093

Í fjórða bekk fékk stelpan að fara í veiðiferð með pabba sinum.  Mamma hennar ætlaði svo að elda fiskinn en hún vildi þá ekki borða hann sem er synd því fiskur er hollur og góður matur.

IMG_7095

Þar var lika spilað undir, nema ég held að þær hafi ekki spilað, en taktarnir sýna að þær kunna að halda á fiðlum.

IMG_7098

Hvaða fiskur er þú eiginlega ?  Ég er plokkfiskur LoL

IMG_7100

Fimmti bekkur minntist Jörundar Hundadagakonungs.  Lopapeysurnar versus breskir sjóarar.

IMG_7103

Og íslendingarnir létu ekki bjóða sér neitt múður, þeir hröktu bretana á brott með réttlætið að vopni.

IMG_7105

Þó endaði allt í góðu.  Við viljum auðvitað halda friðin.  Það er alltaf best, en við látum ekki traðka á okkur.

IMG_7107

Hér var líka live músikk.  við búum svo vel að hafa tvo tónlistarskóla, og flest börn læra á hljóðfæri.  Það gerir þau fjölhæfari á þessu sviði.  Og eykur hróður skólanna allra. Ingibjörg tónlistarkennari þarna með þeim.

IMG_7108

Sjöttu bekkingar voru að fiska niður á bryggju þegar þau villtust upp í skemmtiferðaskip og fóru óvart í siglingu.

IMG_7113

Í Hudson Bay hittu þau ísbjörn. 

IMG_7122

Í New York sáu þau nýjustu dansana. Og loks varð þeim bjargað af björgunarsveitinni svo allt fór vel. 

IMG_7127

Sjöundu bekkingar fóru að sigla á fleka og hittu allskonar kvikendi fyrir á sjónum m.a. Svamp Sveinsson.

En í heildina var þetta hin besta skemmtun og ég skemmti mér vel.  Leikgleðin og ánægjan skein úr hverju andliti.  Kennararnir fylgdust vel með og hafa lagt mikinn tíma og vinnu í að gera allt sem best úr garði, það hefur greinilega verið föndrað, saumað, málað og límt undanfarna daga.   Hafið þökk fyrir þessa uppbyggilegu skemmtun.  Þetta skilar sér örugglega í betra sambandi nemenda og samstöðu bæði milli þeirra og svo ekki síst kennara.  Hjartans þakkir fyrir mig.

IMG_7144

Seinnipartinn var svo sundnámskeiðið hjá Hönnu Sól.

IMG_7148

Þetta er síðasti tíminn, svo er sýning næsta þriðjudag og svo leiktími eftir páska.  Þau hafa náð gífurlegum framförum þessi kríli og það er virkilega gaman að sjá hve góðum árangri kennararnir hafa náð þær Margrét og Guðrún.

IMG_7152

Hanna Sól er ánægð með sundbolin sem amma á Hellu gaf henni þó hann sé blár en ekki bleikur.

IMG_7154

Nú er að læra að stinga sér.

IMG_7155

Þau eru eldklár þessir krakkar.

IMG_7157

Reyndar eru strákarnir bara tveir.

IMG_7158

Að búa sig undir stökkið.

IMG_7163

Svo er endað á heita pottinum, það er erfitt fyrir okkur mömmurnar og ömmurnar að ná þeim uppúr pottinum til að fara heim.

IMG_7166

Og stubbur búin að láta klippa sig.  Sunna frænka hans klippti hann.  Þetta varð að gerast fyrir beltaprófið í Tai Kwon do, því þá verða menn að vera snyrtilegir.  Í kvöld byrjaði hann svo í júdó.  En Sjálfur Bjarni Friðriksson er hér til að starta júdókennslu. 

IMG_7051

Þetta er náttúrulega að byrja á öfugum enda, en nú er farið í leikskólann.

IMG_7053

Allt klárt í bílinn.

IMG_7058

Þessi kastali er á leikskólanum hennar Ásthildar

IMG_7055

Veðrið var ágætt í dag, en það var dálítið farið að rjúka upp seinnipartinn.

IMG_7056

Og hér er svo vegagerðin í Hnífsdal. 

IMG_7130

Þessi fallega kona hefur samþykkt að taka heiðurssætið á lista Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi.  Ég fékk að ráða í þetta skipti, og ég vildi breyta til með þetta ritual að setja einhvern gamlan skarf eða nafntogað fólk í heiðurssætið.  'Eg vildi fá eina af þessum ljúfu tailensku konum sem hafa auðgað samfélag okkar svo lengi, hafa samlagast lífinu hér.  En gefið því meiri lit og ljúfmennsku.  Mig langar líka til að vekja athygli á því hve erfitt er fyrir þær að fá ættingja sína i heimsókn frá heimalandinu.  Það tekur fleiri mánuði ef þeir þá fá að koma í heimsókn.  En þær eiga alla mína virðingu.  Mér er því mikil ánægja að segja frá þessu.  Auðvitað hefði þetta aldrei gengið upp ef mínir menn í kjördæmaráðinu hefðu ekki tekið afskaplega vel í þetta og ljúfmannlega.  En svona er nú lífið í hnotskurn.   Vona að ykkur finnist þetta ekki vera of langt og of mikið.  En þetta var svona dagsverkið mitt fyrir utan að sinna vinnunni á skrifstofunni og svo tókst mér að sá svolítið og fjölga hengiljónsmunna og margarítu á hlaupum.  En eigið gott kvöld mín kæru. Heart

 


« Fyrri síða

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2009
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband