Er nakin kvenlíkami klámfengin?

 

 

Nokkrar elskulega bloggvinkonur mínar hafa hneykslast á nektarsýningu sem hestamannafélag viðhafði á árshátíð hjá sér.  Þær eru reiðar og sárar, tala um að þetta sé niðurlægjandi fyrir konur. 

Ég held örugglega að ég hafi talað svona líka einhvertíman, og ef til vill ekki fyrir svo löngu síðan.

 

En málið er að eftir að klámumræðan kom upp í fyrra, þegar hópur fólks sem hafði klámmyndir að atvinnu, vildi halda árshátíð hér og allt varð vitlaust út af, hef ég farið að hugsa um þetta meira.  Og ég hef komist að því, að ég sé ekkert óeðlilegt við það að stelpur dansi nektardans, svo framarlega sem þetta þær standi fyrir þessu sjálfar, og í  opnum rýmum, þar sem enginn hætta er á misnotkun. 

Þá er ég ekki að tala um einkadans í lokuðu rými með tjald, eða karla sem fá fýsnum sínum svalað með slíku á súlustöðum, þar sem er jafnvel um að ræða mansal.

Mér finnst það bara allt önnur ella, en svona uppákoma.

Sumar stúlkur sitja naktar fyrir í blöðum til að fá pening.  Er það líka klám, er það líka til að æsa upp eiginmenn okkar.  Ég held ekki, það er himin og haf milli kynþokka og staðlaðrar kroppsfegurðar.

 

Mér finnst einhvernveginn eins og það sé ákveðin taugaveiklun í gangi, þar sem fólk sér skrattan með klaufir og hala út úr öllu sem viðkemur nekt. 

 

Það er ekkert niðurlægjandi fyrir mig sem konu þó einhverjar ungar konur með góða líkamsbyggingu, því það er alveg öruggt að aðrar fara ekki út í svona business, kjósi að drýgja tekjur sínar með því að fækka fötum á öruggum stöðum eins og á árshátíð hestamannafélags.  Þó það sé karlakvöld.  Ég veit ekki betur en það séu líka  konukvöld þar sem ungir fallegir drengir dansa naktir eða því sem næst fyrir sal fullan af konum.  Má þá álykta sem svo að þær komi hjólgraðar heim eftir slíkt kvöld.  Og ætli karlinn  hefði nokkuð á móti því að sinna kalli náttúrunnar ef svo ber undir.  Ætli þeir verði reiðir út í steggina sem kveiktu bálið ? 

 

En það er bara ekki þannig með obban af fólki, það þarf meira til að kveikja í en svona kroppasýning. 

Það eru margar gjörðir manna sem mér persónulega líkar illa við að sjá.  En ég virði rétt fólk til að ákveða það sjálft hvað það vill gera, og þó mér finnist eitthvað ekki sæmandi, þá eru aðrir sem finnst þetta bara allt hið besta mál.  Og hver er ég að dæma hvað sé viðeigandi og hvað ekki?

Um daginn var mikil umræða um konu sem vildi fara berbrjósta í sundlaug, sundlaugavörðurinn fékk flog og rak hana upp úr, margir hneyksluðust á honum fyrir vikið.  Hann virti ekki rétt hennar til að gera það sem henni fannst réttur sinn.  Þetta er sama forræðishyggjan. 

Við verðum að gæta okkar á því að skilja milli þess að einhver sé neyddur út í vændi eða súludans, eða hvort hér er um saklausan atburð að ræða.  Þetta er mál sem snýr ekki að mér til dæmis, og ég tel mig ekki koma mér neitt við.  Hvað þá að skammast yfir að það niðurlægi mig, eða æsi karlinn minn upp.

Meðan við dreyfum kröftunum, þá fer minni orka í að takast á við raunveruleg vandamál.  Mansal, nauðganir og þrælahald er  með öllu ólíðandi, þangað eigum við að beina kröftunum, en brosa að svona uppákomu eins og þessari.    

Vil hér með benda á þetta blogg sem ég uppgötvaði í morgun.

http://sleepless.blog.is/blog/sleepless/  Sannarlega umhugsunarvert.

old-man-bali-2002

Sexý ? W00t


Ég mótmæli.

Bloggvinur minn J. Einar Valur Bjarnason Maack vakti athygli mína á þessari frétt í Morgunblaðinu.  Ég vil láta í ljós andstyggð mína á þessari frétt, og svörum lögreglustjórans.  17. ára unglingur sem um ræðir kærir, og dregur svo kæruna til baka.  Það er ekki ljóst hvað átt hefur sér stað þarna, það var aldrei rannsakað en hún dæmd ósannindamannsekja af lögreglunni.  Ef í raun og veru samræði hefur átt sér stað án vilja stúlkunnar, þá er svar lögreglunnar nauðgun númer tvö.  Hvað er eiginlega að fólki að birta svona lagað.  Ætli barninu líði ekki nógu illa, þó landsmenn séu ekki að velta sér upp úr þessu.  Ég segi eins og Herbert í guðanna bænum a.m.k. minnkið skaðan með því að LOKA FYRIR BLOGGMÖGULEIKAN, hér er um að ræða barn eftir skilgreiningu laga.  Og munið að aðgát skal höfð í nærveru sálar.


mbl.is Ekki var brotið á stúlkunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamalt efni, en samt alveg á dagskrá.

Jamm ég var að taka til í tölvunni minni og rakst þar á þessa grein sem ég skrifarði fyrir nokkrum árum.  Hún á jafnvel við í dag og þá, svo ég ákvað að setja hana hér inn:

Þetta innlegg þýðir samt ekki það að ég ætli mér ekki að tala um stjórnmálamenn og vera óvægin, ég á ýmislegt eftir að láta í mér heyra um.  En það er ágætt að hafa þetta svona bak við eyrað.  Því þó ég segi sjálf frá, þá er þetta bara staðreynd sem blasir við.  Eigið svo góðan dag elskurnar, þetta er innlegg mitt inn í dásamlegan vordag. Heart

 

Íslendingar og lýðræðið.

Ég get stundum fengið alveg upp í kok af lýðræðisást íslendinga. Og ég er að meina það sem ég segi. Þetta sést vel, þegar maður byrjar að starfa í stjórmálum. Og enn betur sést það hér á Málefnunum. Á stjórnmálaþræðinum.

Hér getur að líta alla flóruna. Þá málefnalegu, sanngjörnu, og tilfinningasömu, en mest áberandi eru þeir sem eru uppfullir af illgirni og öfund.

Það er ömurlegt að lesa það sem sumir hér inni láta frá sér um menn.

Málið er, að stjórnmálin hér eru svona eins og þau eru, af því að við höfum sjálf þróað þau þannig. Ráðamenn voru ekkert vondir menn, sem vildu öllum illt. Heldur hafa þeir smám saman orðið svona, af því að við leyfum þeim að komast upp með hvað sem er. Þeir hafa ekkert aðhald. Alveg sama hvað þeir gera og segja, þeir eru kosnir, hvort sem er. Líti menn bara í eigin barm og skoði vel, hvort þeir myndu ekki sjálfir falla í slíka gryfju, ef það væru þeir, sem í áratugi, hefðu komist upp með hvað sem er.

Við erum nefnilega föst í mönnum, en ekki málefnum. Það fyrsta sem maður verður var við í íslensku samfélagi þegar maður fer að vinna að þessum málum er; ég get ekki kosið þennan flokk, af því að þessi maður er þar innanborðs. Eða, þessi maður er svo leiðinlegur að ég get ekki stutt flokkinn. Og svo framvegis.

Þetta er hreinlega að fara með lýðræðið á Íslandi. Og öfundin lýsir sér í allskonar yfirlýsingum á mönnum, þessi á kvóta, þá getur hann ekki stjórnað, þessi á svo ríkan pabba, að hann getur ekki verið þar sem hann er.

Málið er, að enginn einstaka maður ræður í raun einn yfir stjórnmálaflokki, í flestum tilvikum ekki allavega. Í öllum venjulegum stjórnmálaflokkum, eru málefnin rædd, og tekin sameiginleg afstaða um hvernig menn vilja sá málum háttað. Svo fylgja menn þeirri flokkslínu. Þar hefur farið fram umræða, og komist að sameiginlegri ásættanlegri afstöðu.

Lagðar línur og sett í stefnuskrá flokksins. Síðan fylgja menn þessari stefnu. Þá skiptir engu máli, hvort þeir eiga kvóta, eða eru synir einhvers, eða eru kvenmenn, eða ég veit ekki hvað og hvað.

Illgirninn er svo skrýtin að hún niðurlægir mest þann, sem sýnir hana. Og því meira, sem illgirnin er meiri. Og sama með öfundina.


Það sem er öllu alvarlegra, er að þetta er skaðlegt lýðræðinu. Því um leið og menn fara að setja stjórnmálaflokka í lið, eftir því hvort þessi eða hinn fer í taugarnar á þeim, af einhverjum orsökum, þá er hvatinn til að viðhalda lýðræðinu enginn.

Menn horfa á naflann á sér, og kjósa bara það sama yfir sig aftur og aftur, hvað sem hver segir, af því að hinir flokkarnir (menn þar innanborðs) eru ekki nógu góðir.

Ráðamenn þurfa ekki að hafa áhyggjur af neinu, þeir vita sem er að það gerist ekkert, alveg sama hvað þeir gera eða segja. Því menn hlaupa upp til handa og fóta, mótmæla og svo framvegis, en ganga svo hlýðnir og stiltir inn í kjörklefann og kjósa aftur, hvað sem tautar og raular.

Besta dæmið um svona, er eldri kona sem vék sér að mér í kosningabaráttu, Cesil mín, sagði hún, ég er alveg sammála stefnu ykkar í mörgum málum, og mér finnst þið vera að gera rétta hluti. En ég hef nú alltaf kosið þá sömu, og get ekki farið að breyta því.

Þetta vita stjórnmálamennirnir, þess vegna er málið að koma vel fyrir rétt fyrir kosningar, tala fagurlega, og auglýsa kosti sína vel og lengi. Og síðan er allt í góðu.

En lýðræðið smýgur út um gluggann. Því vitað er að vald spillir, og þegar hvatinn er enginn, til að standa sig, til hvers ættu menn þá að vera að svoleiðis ? Hið íslenska Bananalýðveldi, í boði íslendinga.

 

Í flestum öðrum löndum skirrast menn ekki við að refsa sínum mönnum, með afgerandi hætti í kosningum. Þess vegna er lýðræðið skilvirkara. Alþingismenn komast ekki upp með neitt múður, þeir þurfa að segja af sér, og eru jafnvel sakfelldir, ef þeir brjóta af sér, jafnvel fyrir minnstu yfirsjón. Það eru gerðar siðferðiskröfur til þeirra, um að misnota ekki aðstöðu sína. Þetta er mjög nauðsynlegt í öllum lýðræðisríkjum.

Hér vita menn, að þetta verður allt í lagi, einhverjir belgja sig út og hafa hátt smátíma, svo gleymist þetta bara. Hið íslenska gullfiskaminni.

Eina sem hefur svona svolítið velt þessu upp, er fjölmiðlafrumarpið í fyrra. Það kom róti á fólk, sérstaklega þegar forsetinn neitaði að skrifa undir lögin. En það var farið kring um þá neitun. Og menn komust upp með það. Síðan hafa svona smáværingar verið, og kannski er fólk aðeins að vakna, ég veit þó ekki. Og þegar ég les núna stjórnmálaþráðinn, þá verð ég….. ég veit ekki hvað ég á að kalla það, svolítið sorgmædd, því það er með ólíkindum hvað fólk finnur upp, til að níða, rægja, og niðurlægja það fólk, sem hefur tekist á hendur, að vinna að okkar málum. Og ég er ekki að ræða neinn sérstakan.

Ég hef sjálf gerst sek um þetta, svo ég er ekkert að tala meira um aðra en mig sjálfa. Svo það sé á hreinu. En í alvöru, þetta gengur bara ekki.

Förum að hugsa um málefnin, en gefum okkur að fólkið sem leiðir ætli sér að vinna af heilindum, þangað til þau sýna eitthvað annað. Og refsum þeim þá, og kjósum einhvern annann flokk.

Þá fyrst, þurfa menn að fara að gæta að hvað þeir segja og hað þeir gera. Ef dómurinn fellur á fjögurra ára fresti.

 

Vor.

Nú lifnar allt og grasið grær

gleymist vetrartími.

Allt það grimmt sem var í gær

ég gref í hugans rými.

 

Eftirvænting ást og þor

eykst á þessum tíma.

Víst er komið langþráð vor

vafið ástarbríma.

 

Skýjaglenna við oss skín

Skokkar lamb í haga.

Sálin blessuð sértu mín

um sumarlanga daga.

Ásthildur 2005


Prinsessur, myndlistasýning og hið daglega veður.

Vitiði hvað ég á heimsins bestu fjölskyldu.  Haldiði ekki að börnin mín hafi haldið fund og ákveðið að skipta sér niður á daga við að gæta stelpnanna eftir leikskólann.  Svo mamma gæti slakað svolítið á.  Þau Júlli og Sigga saman vaktina, Tinna og Skafti aðra og svo Ingi Þór og Matta.  Je minn eini hvað þau eru yndæl við mig.  Einhversstaðar hef ég gert eitthvað rétt. Heart

Takk elsku börnin mín öll sex.

Hér koma svo nokkrar myndir.

14.4.08 059

einhversstaðar þarna inn á milli svaf ég LoL Afi náttúrulega löngu flúin af hólmi.

14.4.08 061

En prinsessur þurfa sér fararmáta ekki satt, þær þurfa bæði burð og íburð Heart

14.4.08 062

Afar eru mjög góð burðardýr.

14.4.08 063

áður en haldið var af stað varð auðvitað að gefa smáfuglunum. 

14.4.08 064

Og kúlan í morgunbirtunni.

14.4.08 065

Leikskólinn, þessi er fyrir Sigrúnu svo hún sjái hve mikill snjór er eiginlega ennþá á Suðureyri.

14.4.08 066

Þessi er dálítið ýkt á litinn til að þið sjáið hvernig snjórinn hefur runnið til í fjallinu og myndað skemmtilega skúlptúra.

14.4.08 067

Súgandafjörðurinn er fallegur svona hreinhvítur.

14.4.08 069

Og Ísafjörður skartar sínu fegursta líka.

14.4.08 071

Og svanurinn er kominn.

14.4.08 078

Þessar gæsir sungu dúett.

14.4.08 077

Úbbs óttaleg sleipa er þetta, maður dettur bara á hausinn.

14.4.08 080

Hvað varst þú annars að vilja væna ?

14.4.08 081

Það fiskast vel á þennan ... eða þannig.

 

en svo fór ég á myndasýningu, og ég verð að segja að ég varð alveg heilluð, ég hef séð miklu slakari sýningar í galleríum sunnanlands, meira að segja í listasafninu.

 

14.4.08 082

Hér ríkir sköpunargleðin alveg á fullu, skal ég segja ykkur.

14.4.08 083

Hrosshár úr hesthúsinu hjá Þórunni Birnu, m.a. þeim Unaði, Skírni og Stúf stendur þarna.

14.4.08 084

Þetta er einhvernveginn svo myndrænt og fallegt.

14.4.08 085

Mér finnst eiginlega að það ætti að sýna þessar myndir opinberlega til dæmis í Edinborgarhúsinu, svo fólki gefist kostur á að skoða þær.

14.4.08 086

Það er mikið lagt í sumar myndirnar.

14.4.08 087

Og litagleðin er takmarkalaus.

14.4.08 088

Ekki satt ?

14.4.08 089

Hér er mynd eftir Hönnu Sól.

14.4.08 090

Þetta glerlistaverk er líka eftir hana.

14.4.08 091

Sumar myndirnar eru teknaðar með kerti og svo er blek sett eftir á, og þá koma myndirnar í ljós, því kertið hrindir frá sér. 

14.4.08 092

Sannarlega margar frábærar myndir eftir frábæra krakka.

14.4.08 093

Og þá er að koma sér heim.

14.4.08 095

Næsts ætlum við að reyna að muna að taka snudduna út úr munninum LoL

En vissuð þið að kettir á Ísafirði eru afburðargreindir ?  Þið getið spurt hana Matthildi Helga hún er sérstakur kattavinur, sérstaklega villikatta vinur.  En sem sagt þeir eru vel læsir eins og sést á þessu skilti.

14.4.08 068

LoLLoLLoL

Eigið annars gott kvöld og nótt. Heart


Mömmublogg, og svo alls kyns eitthvað annað.

Hér er smá mömmublogg.  Við áttum góðan og yndislegan dag í dag, fórum í sund á Suðureyri... nema hvað? sú stutta svaf í tvo tíma í vagninum í morgun, og sofnaði á leiðinni heim úr sundi og svaf í þrjá tíma, ekkert minna en það úti í bíl.  Afi og stubbur fengu svo það verkefni að svæfa dömurnar í kvöld um hálf tíu.  Þeim tókst það mjög vel, svo ég fékk smá frí frá svæfistússi. 

En nú skuluð þið halda ykkur, Ára hefur gefist upp á vistinni, nú þegar.  Hún er veik af heimþrá, og vill bara komast heim til sín þessi elska.  Ekkert út af okkur fjölskyldunni segir hún W00t Við erum yndisleg og frábær, EN... hún er haldinn þvílíkri heimþrá.  Svo hún fer heim á morgun og ég sit í súpunni, þessari ástarsúpu, sem er samt dálítið þung.  En ég er viss um að það reddast allt saman, ég fer með stelpurnar á leikskólann í fyrramálið og get svo farið í vinnuna mína.

Þetta tekur samt á, því hún kom svo vel fyrir fyrsta daginn.  Svo bara einhvernveginn hrundi þetta allt niður.  Svona er lífið bara.

En hér koma nokkrar krúttara myndir fyrir mömmuna og alla hina Heart

13.4.08i 002

Stúlka með blóm í hári, ef þetta er ekki megaömmupæja þá veit ég ekki hvað Heart

13.4.08i 003

Hér er svo stubburinn með mánaðarlaunin sem hann fær fyrir að vera duglegur strákur og standa sína plikt.

13.4.08i 004

Og það er gaman í garðskálanum .... alltaf.

13.4.08i 009

en við fórum í sund á Suðureyri, það var gaman, sú litla er öll að koma til, ég er næstum viss um að síðast náði hún ekki alveg niður, svo þetta skott er að stækka heldur betur, því nú stóð hún keik í barnalauginni.

13.4.08i 011

Hanna Sól er eins og syndandi fiskur í lauginni, hvort sem er barnalauginn eða sú stóra.

13.4.08i 013

Við erum náttúrlega flottastar... eða þannig.

13.4.08i 015

Jamm við stelpurnar.

13.4.08i 018

Líka voða notalegt að koma upp úr og þurrka sér.

13.4.08i 020

Amma mig langar að fá Ís hjá Jóa, sagði daman.

13.4.08i 021

Jamm og allir fengu ís.

13.4.08i 023

svo var afi að klippa garðskálann og Hanna Sól þurfti líka að klifra aðeins.

13.4.08i 024

Jamm og svo smá dans í kjölfarið.

13.4.08i 027

ef þið haldið að þessi stelpa sé ekki flott fyrirsæta þá verðið þið að taka það til baka.

13.4.08i 032

Hún kann þetta nefnilega alveg sko !LoL

13.4.08i 038

Svo kann hún líka að passa litlu systir.

13.4.08i 035

Sem reyndar finnst mest spennandi að skoða skápana hennar ömmu sinnar.

13.4.08i 043

Þessir skæruliðar komu líka aðeins í heimsókn.

13.4.08i 044

Og pabbi kom í mat eins og venjulega á sunnudögum, þessi karl er algjör töffari.

13.4.08i 047

Útsýnis staður Ásthildar.... og reyndar fleiri. Kaktusinn elskar hana, hann hefur langa brodda, en hann hefur aldrei stungið litlu stelpuna okkar, ekki frekar en kötturinn, sem malar þegar hún gruflar i honum, sumir eru einfaldlega fæddir plöntu og dýravinirHeart

13.4.08i 051

svo voru háðir bardagar í garðskálanum náttúrulega.

13.4.08i 052

Valkyrjur létu sitt ekki eftir liggja þar.

13.4.08i 054

Þessari mús var bjargað úr kjaftinum á Brandi.

13.4.08i 057

Svo fékk amma rosalega flott nudd og sleik InLove Mjög notalegt og ég er ekki að grínast.

13.4.08i 058

Hér er fröken funny face hehehe

13.4.08i 007

Hið daglega veður var hreint frábær sól og blíða.

13.4.08i 026

Og páskaliljur skarta sínu fegursta.

Góð nótt öll sömul. Heart


Trukkar, mótmæli og undirlægjuháttur.

Ég hef verið að hugsa um aðgerðir trukkabílstjóra og svo 4x4 jeppabíla eigenda og tilraunir þeirra til að fá stjórnvöld til að svara kalli þeirra.  Og allt í einu skil ég af hverju við erum svona aftarlega á merinni með alla verkalýðsbaráttu og samstöðu um kaup og kjör.

Málið er að um leið og einhver gerir frábæra hluti eins og að mótmæla svo  eftir er tekið, þá byrjar neikórinn, og um leið og mótmælin fara að reyna á hversdagshetjurnar, þá æpa þær og skrækja.

Hvenær hafa mótmæli sem skipta máli, eða verkföll skilað árangri ef þau hafa ekki komið við neinn ?  Það er nefnilega þungamiðjan í svona að gerðum að þrýstingur verði á stjórnvöld að kippa hlutunum í lag.  Og þrýstingurinn þarf að koma frá fólkinu, almenningi þér og mér.

En nei í stað þess að standa með frumkvöðlunum eða jafnvel ganga svo langt að taka þátt með þeim, þá er byrjað að rakka þá niður og skammast, kalla mennina öllum illum nöfnum.  Ótrúleg sveitamennska að mínu mati.

Svo hef ég líka grun um að heimavarnarlið sjálfstæðisflokksins kyndi undir.  Maður þekkir fingraförin hér og þar, forkólfar og flokkshestar fara að setja fram allskonar skít og rakka niður forsvarsmenn, koma með allskonar sögur af stað, eins og þeir fá endurgreiddan virðisaukaskattinn, og hinn almenni borgari greiði benzínið fyrir þá. 

Þetta gera þeir ef einhver er óþægur ljár í þúfu, þá byrjar söngurinn.  Ég held að þetta sé skipulagt og hannað til þess að hafa áhrif og drepa niður mótmæli.  En það er mín skoðun. Enda hefur þetta þau áhrif að sauðirnir sem við erum, hættum að hugsa um óréttlætið sem við öll erum beitt með alltof hárri álagningu ríkisins og förum að vinna gegn þeim sem eru í raun að vinna fyrir okkur, trukkabílstjóra sem vilja lækkun á olíu og benzín álagningu,

Ég hugsa að þetta sé einsdæmi, hvergi hefur maður séð almenning vinna svona gegn þeim sem standa í baráttu til heilla fyrir heildina. 

Ég heimsótti fyrir mörgum árum Florence á Ítalíu, þar voru sorphreinsunarmenn í verkfalli, höfðu verið það í nokkrar vikur, ruslið út um allt og pestin alla að drepa.  Fólkir var reitt við stjórnvöld, fyrir að gera ekkert í að málunum, en ekki við sorphreinsunarmennina sjálfa.

Ég held að við þurfum að fara að tileinka okkur annan hugsunarhátt, og hætta þessari valdsdýrkun, kyssa á vöndinn og smjaðra fyrir ráðamönnum.  Þeir eru ekkert merkilegri en við, og ber skylda til að ræða við almenning.  Málið er að þeim finnst sjálfum að þeir séu hafnir yfir pöpulinn.  Það er allavega að sjá og heyra í tilsvörum þeirra og áhugaleysi um málefnin hér heima, meðan þau flengjast heimsálfanna á milli í einkaþotum.

Nei nú ættum við að standa saman og láta þetta fólk finna að okkur er alvara, ástandið er óásættanlegt, og að við viljum breytingar.  Ekki endilega komast í öryggisráðið, heldur að þau bretti upp ermarnar og farið að hugsa um málin sem þeim var trúað fyrir hér heima, eins og kosningaloforðin til dæmis. 
En nú er hægt að komast fram hjá þeim líka, með því að segja að Það sé ekki hægt að ræða þau, eða að lagabókstafurinn leyfi þeim ekki að gera eins og þau vilja helst.  Þvílíkt og annað eins.

Fundið upp til að komast hjá því að tala við okkur, standa skil á sínu og stjórna landinu eins og þau voru kosin til.  Já maður er aldeilis orðin sár og svekktur yfir þessu ástandi, og hvar er liðið? jú Þau eru hér og þar um heiminn, eða rétt að fara eða rétt ókomin.  Er ekki komið nóg ?


Stundum er maður út úr korti.

Ég hef ekkert komist á netið í dag.  Það tekur tíma að setja fólk inn í málin skal ég segja ykkur, jafnvel þó manneskjan sé dugleg og drífandi.  Elli fór í morgun á æfingu hjá Karlakórnum Erni á Núp í Dýrafirði, þeir eru að æfa sig fyrir ferðina til Ungverjalands. 

En við fórum á afmælishátíð í Leikskólanum Tjarnabæ, ég var með myndavélina og tók fullt af flottum myndum af fólki og verkum barnanna, komst svo að því þegar ég kom heim, að það var ekkert kort í vélinni.  Það er farið að slá út í fyrir mér, þegar ég hef svona mikið að stússast, ég er grútsvekkt yfir þessu.  En ég er ákveðin í að taka myndir af því sem börnin hafa verið að vinna að, á mánudaginn, því þar var margt mjög gott og áhugavert. 

En það sem var merkilegast í þessu öllu var, að í dag í skólanum, í einu litlu herbergi voru manneskur frá 6 löndum, eða 7 eftir því hvernig talið er; þar var fólk frá Ástralíu, Íslandi, Póllandi, Slóveníu, Litháen og Thailandi, og svo er Ásthildur litla fædd í Austurríki. Allir í sátt og samlyndi og sem ein heild, allir sem einn.  Fólk hér hugsar öðruvísi finnst mér, þetta er meira norm en annað.  Og fólk veit og sér að allir eru eins inn við beinið, hvernig sem húðlitur og tungumálið er.

Ára er frá borg við sjóinn man ekki nafnið, og nenni ekki að gá núna, en í þessari borg sem er bara smáborg á þeirra mælikvarða, búa jafnmargir og á öllu Íslandi, eða 300.000 manns.  Nú í kvöld var hún orðin lasinn blessunin og hafði áhyggjur af því.  Annars er hún kát og glöð.  En leiðist frekar.  Gerir það bara fyrir mig að vera hér í hálfan mánuð að hjálpa til.  Vonandi verður hún orðin hress á morgun. 

En ég tók svo sem nokkrar myndir hér í kúlunni eftir að mistökin urðu ljós.  Jamm ég er frekar svekkt og leið yfir þessu, og orkulaus svo það sé bara eins og það er. 

IMG_4958

Sú litla sagði skýrt í kvöld Sigurjón Dagur.  Við Sigga mamma hans litum hvor á aðra og trúðum þessu varla, en jú, hún sagði þetta svona. 

IMG_4960

Hjalað við álfa og engla, þetta barn talar ýmsar tungur.... ef út í það er farið hehehe, svarar meira að segja á rússnesku, ef svo ber undir.

IMG_4963

Svo er það prinsessan, hún þarf hjálp við skotauið, eins og Öskubuska LoL

IMG_4964

Jamm það þarf að reima Happy

IMG_4967

Svo getur maður dansað á ballinu á eftir. 

IMG_4972

Enda er maður voða fín ... eða þannig sko !

IMG_4976

Meðan þeir sem jarðbundnari eru vökva, blómin... en fatan hún lekur elsku amma elsku amma.

IMG_4977

Og sumir horfa íbyggnir út í heiminn.

IMG_4984

Því misjafnt hafast mennirnir að.

IMG_4985

En allir hjálpast samt að í lokin, enda er það sem mestu máli skiptir.   


Mömmublogg og krúttfærsla.

Jæja þessi dagur hefur verið annasamur, en hann er að kveldi komin, og komin helgi, svo við getum stillt saman strengina fjölskyldan. 

Ára náði ágætlega til stelpnanna strax, Ásthildur er seinteknari, og ég sá að hún fylgdist með þessari nýju stúlku.  Litháenar tala rússnesku sem annað tungumál, svo ég sagði við Áru, svona hugdetta, vegna Rómínu hinnar rússnesku; Ára talaðu við Ásthildi á rússnesku.  Hún sagði nokkrar setningar og ég sá strax á barninu að hún varð áhugasöm.  Nokkru seinna, þegar meiri friður var komin á, bað ég hana að tala aftur við hana á rússnesku.  Hún spurði hana spurninga, og barnið svaraði með jái á rússnesku. Sem sagt hún skildi rússnesku, því Rómína hefur greinilega talað sitt eigið tungumál við hana, þegar þær voru tvær saman.  Og auðvitað er Ára komin mikið áleiðis að vinna Ásthildi, þegar þær mætast þarna í sama tungumáli.  En Ásthildur er reyndar farin að segja ýmislegt, til dæmis, hættuþessu, já, nei, bíddu, og mörg fleiri orð.  En eitt sinn þegar hún stóð við baðdyrnar og hélt að afi sinn væri þar inni, sagði hún; afastelpa, alveg greinilega, og í eins tóni og afi hennar segir til hennar. 

IMG_4927

Systurnar, ef þið haldið eitt augnablik að þær séu óbundnar í framsætinu hjá mér, þá er það rangt, við vorum einfaldlega að bíða eftir að afi kæmi á sínum bíl, því stólarnir þeirra voru í honum.  En við ætluðum saman í bæinn.

IMG_4928

Þær fengu sér snjó og svona.

IMG_4929

Amma má ég taka eina mynd, sagði Hanna Sól, ég vil taka mynd af kúlunni LoL Það var bara dálítið önnur kúla sem kom á myndina.

IMG_4930

Svo komi Sigurjón Dagur í heimsókn, og þau leika sér vel saman, þessi tvö.

IMG_4932

Jamm, það er ýmislegt brallað, hér er verið að horfa á sjónvarpið.

IMG_4933

Fullorðnafólkið við eldhúsborðið.

IMG_4934

Ásthildur vill helst vera uppi á borði.

IMG_4936

Þá er maður örugglega miðsvæðis LoL

IMG_4937

Þessi tvö eru alveg að sigla inn í unglingaveikina.  Ólöf Dagmar er að fara í útilegu hjá skátunum.

IMG_4940

en Ásthildur hjálpar afa við að skrúfa eitthvað saman.

IMG_4941

Við grilluðum reyndar, og þá var gaman að leika sér í garðskálanum.

IMG_4945

Nýjasta prinsessutískan heheheeh.

IMG_4947

Þetta er barnið sem fór í vaskinn. LoL

IMG_4952

Og svo upp á borð.

IMG_4955

Tilbúin undir kartöflumjölsbaðið sitt svona undir svefninn.

IMG_4956

Svo ein svona listræn í lokin.  Heart Litla skottið hennar ömmu, sem er sofnuð.


Kúlan og veðrið.

Aupairin er komin, og még líst mjög vel á hana.  Gefur af sér góðan þokka, og er ákveðin.  Ég fór inn á flugvöll og var spennt að sjá karakterinn sem kæmi.  En ég sá enga stúlku sem skar sig úr fjöldanum, fannst að ég hlyti að sjá einhverja hikandi eða óframfærna stúlku, sem þekkti engan.  En það kom enginn slík.  Svo ég beið róleg.  Loks sá ég unga stúlku sem ég hafði reyndar komið auga á þegar hún kom út úr vélinni, og hugað þetta gæti verið hún, en nei, þessi er örugglega kunnug, því hún gengur svo ákveðið.  En bíðið við, þegar ég sé að hún er að skima líka í kring um sig, banka ég í öxlina á henni, ertu íslendingur ?  No, are you from Litháen ? Yes. 

Reyndar er hún komin á kaf í að þrífa og laga til, bara svona strax, og það eru engin vetlingatök, þarna er vön manneskja á ferð get ég sagt ykkur.

Ég fór líka til læknis í morgun, vegna verks í vinstri armi, ég fékk ibufen og var að gefa loforð um að halda ekki svona mikið á smábörnum LoL En ég er orðin frekar slæm í hendinni, það lagast örugglega fljótlega núna.

Hún kemur inn til mín, lítur í kring um sig og dæsir;

Ég hér þarftu ekkert að gera, þetta er mitt herbergi og mitt rusl allt saman.

Hún horfir á mig örstutta stund og segir síðan, en gólfið ég verð að þrífa gólfið LoL

IMG_4903

Amma bakaði pizzur í gær, sá speltpizzubrauð í bónus og ákvað að prófa. Það var bara gott, alveg tilbúið bara að setja gumsið á og í ofninn.  Hér eru afi og Ásthildur að fá sér pizzu með skinku og pepperoni og mikið af osti.

IMG_4905

Hanna Sól fékk sér líka bita.

IMG_4907

Taktu líka mynd af mér sagði stubburinn stóri.

IMG_4909

Kartöflumjölsbaðið hennar Ásthildar, það heppnaðist bara mjög vel.

IMG_4910

Það var frí í leikskólanum í morgun, svo við vorum rólegar.  Vitabix með sykri það er málið.

Og Ásthildur alltaf með einhvern fatnað.

IMG_4913

Svona get ég verið, sagði Hanna Sól.

IMG_4916

Svona getur þetta verið stundum, en bara stutt í einu.

IMG_4915

Oftast er bara svo gaman.

IMG_4918

Og hér er prakkarasvipurinn hennar.  hehehe LoL

IMG_4924

En Árelía (Ára) var ekki lengi að byrja að taka til. 

IMG_4920

Veðrið er ágætt eins og sjá má.

IMG_4921

Eigið góðan dag mín kæru. 


Lítil pæja og vorboðar.

Já það er aðeins að lagast veðrið, Elli minn þarf að fara suður í augnskoðun, en það hefur ekki gefið að fljúga, en nú á vélin að koma hálf þrjú, þá kemur fyrsta aupairinn líka, hún er frá Litháen, og mun vera hér í hálfan mánuð, eða þar til önnur kemur sem er frá Þýskalandi. 

Sú litla er ennþá lasinn og er farin að verða pirruð á þessu öllu, er samt voða dugleg. Og sú stóra er ótrúlega góð og dugleg.

IMG_4893

Já hún er dálítið stúrinn núna blessunin.

IMG_4895

en það hýrnar yfir henni að fá rúsínur og cherios í skál.

IMG_4896

Svo er að máta húfuna, en hún er farin á runtinn með stóra frænda sínum, þar getur hún sofið.

IMG_4898

eins og sjá má miðað við  myndina í gær, þá hefur veðrið lagast, vonandi verður flogið.

IMG_4899

en í dag blómstraði Zakúrakirsuberjatréð mitt.

IMG_4900

Bráðum verður það allt þakið knúppum, flott ekki satt.

IMG_4901

Þessi elska brosir líka fallega við mér, þarna frammi.

IMG_4902

Og rósamandlan er alveg að fara að opna sig.  Svo kemur þetta eitt af öðru, þetta er fallegasti tíminn í garðskálanum mínum.

En nú kemur þessi Litháenska sem sagt í dag, og verður í hálfan mánuð.  Það léttir á mér vonandi.  En þið munuð nú heyra allt af því.  Knús á ykkur inn í daginn. Heart


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2008
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband