Ævintýrið mitt í ár.

Nú er næstum vika í Aldrei fór ég suður hátíðina.  Við höfum komið saman Eygló (gítar)  Bryndís (trommur) Og ég nokkrum sinnum, og það er búið að vera virkilega gaman.  Ég er mest hissa á hve fljótt allt rifjast upp þó 29 ár séu liðin.  Fyrst þegar ég sótti bassann niður í kjallara og hélt honum í fanginu, varð ég alveg í sjokki, ég mundi ekkert.  Hugsaði með mér hvern andskotan ertu nú búin að koma þér í Ásthildur. LoL en svo fórum við að hittast og æfa bæði saman og sitt í hvoru lagi.  Við erum bara þrjár hér, svo koma þær hver af annari fljótlega Oddý (gítar) Rannveig ( söngur) Ásdís (Söngur) og Björk (hljómborð). Svo höfum við fengið til liðs við okkur unga stúlku með saxofón hana Miriam Maeekalle.  Við munum syngja 4 lög tvö sem ég samdi og tvö frá Oddný. 

206326_10150261383938222_537208221_9336781_7998247_n

Þetta verður rosalega gaman.

215285_10150261384608222_537208221_9336790_7609265_n

Baldur Páll Hólmgeirsson tók þessar myndir.

Og sama og síðast við komnar í blöðin LoL 

http://www.bb.is/Pages/26?NewsID=162849

Facebooksíðu eigum við líka.  

http://www.facebook.com/pages/Sokkabandi%C3%B0/206229712738682?sk=wall

Mest er þó gaman að hitta allar stelpurnar aftur sem komast.  Mér skilst að Fjóla sé í Noregi, Ingunn kemst ekki því miður.  En við ætlum að hafa þær í huganum og Báru Elíasdóttur frænku mína en ekki dóttur. Bára mín söng samt með okkur frumsamið eigið lag um hann Fidda feita, þá um 10 ára gömul. Smile

 

http://www.aldrei.is/listamenn/ Hér er vefsíða Aldrei fór ég suður.

Við vorum líka fyrsta hljómsveitin til að stíga á stokk í Músiktilraunum árið 1982.

 

Það er skemmtileg staðreynd að fyrsta hljómsveit til að stíga á stokk í Músíktilraunum 1982, var kvennahljómsveitin Sokkabandið, en oft hefur verið fjallað um skort á þátttöku stúlkna í þessum tilraunum. Það hafa þó nokkuð oft verið stúlknasveitir sem hafa komist í úrslit, eða unnið, sbr.Dúkkulísurnar, Kolrassa Krókríðandi, Á Túr ,Mammút, Spelgur o.fl.


Og hér er svo tvö myndbönd síðan þá.

 

http://www.youtube.com/watch?v=SMMn-s6OwFg

 

http://www.youtube.com/watch?v=qHndptuFPJ0

 

Og mér finnst dálítið eins og ég sé að brjóta ís fyrir okkur kerlingarnar.  Að það er aldrei of seint að gera eitthvað skemmtilegt og öðruvísi. Aldurinn skiptir ekki máli heldur bara að þora að taka skrefin.  Það er nefnilega miklu skemmtilegra í minningunni að hafa tekið skrefið, en að sakna þess að hafa ekki þorað að taka átt.

En eigið góðan dag elskurnar. Heart


Af hverju ekki Frjáls Hreyfing Villikatta?

Ég fylgdist með umræðunum á Alþingi í gær með athygli.  Þegar forsætisráðherrann talaði varð ég alveg uppnuminn, hvar er þessi Útópía sem hún er að tala um, ætli við getum fengið inngöngu?  Ég vil komast í þetta dásemdar land með frábæra ríkisstjórn sem fyrst.  Ekki seinna en núna.

Ég vissi ekki til að það fyndust svona frábærir stjórnvitringar eins og forsætisráðherra og fjármálaráðherra Útópíu.  Það er nú eitthvað annað en hérna hjá okkur, þar sem allt er í kyrrstöðu og ekkert gerist, nema að gauka góðum stöðum að vinum og ættingum án auglýsingar, fyrsti kvenforsætisráðherra landsins brýtur jafnréttislög og ótal mörg önnur.  Bönkum er hyglað á kosnað alþýðunnar.  Ég veit að þau Steingrímur voru ekki að ræða um Ísland, en þau hefðu nú getað sagt okkur hvernig við eigum að komast í þessa dásamlegu Paradís sem þau voru að segja okkur frá. 

Ég beið spennt eftir því hvað Guðfríður Lilja myndi segja, nú er búið að sparka hressilega í hana af félögum sínum.  En þessi kona kom mér þægilega á óvart.  Hún er trú sinni hugsjón og telur sig geta varið það sem henni er mest um vert náttúru Íslands með því að sitja áfram.  Ég virði hana fyrir þessa ákvörðun og segi mættu fleiri vera svona.  Reyndar er ég þá ekki að tala um Ásmund Einar, Lilju Móses eða Atla, og ekki heldur Birgittu, Margréti og Þór.  Þetta fólk virðist allt vilja vinna með fólkinu, þjóðinni í landinu.

Það er einkennileg staða sem birtist þarna í gær, og í fyrsta sinni fékk ég svona smá von í brjóstið.  Því það er ekki bara stjórnin sem er glötuð og lost, heldur líka Sjálfstæðisflokkurinn.  Það heyrðist greinilega á umræðunni, og sennilega er það rétt að vantraustið hefði verið samþykkt í annað sinn held frá upphafi, ef framsóknarflokkurinn hefði lagt hana fram. 

Það kom líka fleira merkilegt fram þarna í umræðunni, maðurinn sem sagt er að vilji komast í formannsstólinn. Guðmundur Steingrímsson sat hjá, þar með tel ég að hann hafi gert út um að hann bæri  þann titil, hver vill formann sem vinglar og dinglar, situr hjá í mikilvægum málum?  Það var ekki atkvæði Guðfríðar Lilju sem bjargað ríkisstjórninni fyrir horn í þessu máli heldur hjáseta Guðmundar.  Ég held að honum verði ekkert þakkað það sérstaklega meðal framsóknarmanna,  hann ætti bara að fara aftur þaðan sem hann í Samfylkinguna.  Minnir að hann hafi yfirgefið hana einmitt vegna þessa að hann fékk ekki það brautargengi  sem hann telur sér bera í stjórnmálum, sennilega út af afa og pabba.  Sem betur fer er sú skoðun á undanhaldi meira að segja líka á Alþingi.

En það er ljóst að ríkisstjórnin er fallinn, hún getur lafað eitthvað áfram en mun ekki koma neinum málum fram nema þeim sem villikettir samþykkja, nema með að kaupa Siv og Guðmund, sem bæði virðast föl fyrir feit jobb og upphefð.  En þá kemur þar þröskuldur sem heitir Guðfríður Lilja sem sýndi þeim í gær að hún mun ekki veita neinum málum brautargengi sem hún telur að verði ekki þjóðinni og umhverfinu til hagsbóta. Og svo er líka Jón Bjarnason sem ekki gengur alltaf eftir línunni sem gefinn er. 

Þetta er pattstaða sem væri ágæt í sjáfu sér ef það þyrfti ekki að byggja landið upp og reisa það úr rústum, sem það hefur verið frá hruni.  Og verður greinilega ekkert gert í fyrr en þessi ríkisstjórn hrökklast frá völdum.  Það virðist vera eitthvað erfitt því þau eru svo sannfærð um að þau séu á réttri leið og þeim hafi tekist hið ótrúlega að gera landið byggilegt á ný.  Málið er bara að þessi fullyrðing þeirra stenst ekki raunveruleikann.  Ekki sýnist mér það allavega.  Meira að segja þeirra eigin flokksmenn hrista haus yfir stjórnvisku þeirra.

Lati Geir á lækjabakka

 lá þar til hann dó.

Ekki vildi hann vatnið smakka,

þyrstur var hann þó.

Segir vísan.  Ekki ætla ég að væna þau skötuhjú um leti, því svo sannarlega eru þau bæði harðdugleg og seig, en þau hafa bara ekki forganginn á hreinu, þau ættu ef til vill að lesa yfir kosningaloforðin og stjórnmálasáttmálann sem þau gerðu.   Þar er eitthvað minnst á Skjaldborg minnir mig, og hreinsun í stjórnkerfinu og þjóðfélaginu. 

En ég ætla að skamma þau fyrir seina gang í því að auka fiskveiðar til að bjarga sjávarplássum, gefa frjálsar handfæraveiðar og auka strandveiðar, þegar sjórinn er fullur af fiski.  Jóhann í Hafró ætti að vita að það er ekki hægt að geyma fiskinn í sjónum, þegar fer að skorta æti fer hann að éta ungviðið og hver annan.  Það væri gaman að heyra útreikningana um hvað við höfum tapað  á því að geyma fiskinn í sjónum fyrir L.Í.Úarana, og meina öðrum að bjarga sér, fyrir utan allt brottkastið sem viðgengst því mönnum er refsað fyrir að koma með fiskinn að landi.  Mér finnst þetta svo vitlaust að ég á ekki orð yfir heimskuna, svona Lati Geir á lækjarbakka dæmi.

En ég var að hugsa, það virðist vera að nær helmingur þjóðarinnar treysti ekki fjórflokknum lengur, það hefur komið fram bæði í skoðanakönnunum og umræðum á netinu og annarsstaðar. 

Þess vegna ætla ég að leggja til samtök sem munu örugglega þóknast mörgum.  Þau gætu heitið Frjáls Hreyfing Villikatta.  FHV. 

Þessi hreyfin stæði saman af Frjálslyndum, Hreyfingunni og Villiköttunum í Vg.  Þetta er allt saman fólk sem alþjóð þekkir af störfum sínum, bæði núverandi og fyrrverandi þingmenn.  Þau hafa öll sýnt að þau bera hag fólksins fyrrir brjósti, Sigurjón þótti afar skeleggur þingmaður. 

Frjálslyndi flokkurinn hefur alltaf átt sterkar rætur á landsbyggðinni og fólk veit að hann hefur góða yfirsýn yfir sjávarútvegsmálin.  Vinstri græn Þ.e. þau sem ekki hafa gleymt öllum sínum baráttumálum  eiga mikinn stuðning hjá bændum.  Og Hreyfinginn er með sterka stöðu í borginni. 

Þetta er að mínu mati óskastaða, að þessi þrjú flokksbrot tækju sig saman og mynduðu einhversskonar kosningabandalag.  'Eg er nokkuð viss um að þau myndu ná eyrum landsmanna. 

Ég treyti öllu þessu fólki til góðra verka og ég þekki líka baklandið í Frjálslynda flokknum veit m.a. að grasrótinn þar hefur unnið vel með grasrót Hreyfingarinnar.  Ég skora á þessa hópa til að hittast og fara yfir stjórnmálaskoðanir sínar, ég held að með öllu þessu fólki sé sterkur samhljómur um uppbyggingu landsins, fólk sem þorir veit og getur.  Það mun ekki bera mikið á milli, í mesta lagi hvort flugvöllurinn á að fara eða vera.  Í flestum stórum málum er þetta fólk í hjarta sínu sammála. 

Mikið vildi ég sjá þetta afl í næstu kosningum, sem nóta bene eru ekki svo langt undan.  Þessi ríkisstjórn er búin að vera, rúin trausti og lafir á stólum sínum, vegna þess að forystan veit að hún er búin að vera í pólitík, örfáir geta treyst þeim lengur, og þau hafa hrakið frá sér hæfasta fólkið, eða haldið því í gíslingu, alveg rétt eins og Davíð Oddsson gerði á sínum tíma og það má sjá á forystuleysi Sjálfstæðisflokksins, það má líka sjá í forystuleysi Samfylkingarinnar, og er að koma í ljós hjá Vinstri Grænum. 

Ég trúi á framtíð landsins, ég trúi á dugnað og þrautseigju íslendinga ef hendur þeirra eru ekki endalaust bundnar af reglum og óréttlátum kröfum stjórnvalda.  Ég trúi því að við munum ná okkur fljótt og vel upp úr þessari lægð með stjórnvöldum sem vinna með fólkinu, en ekki endalaust á móti.  Og ég trúi á frelsi einstaklingsins til að bjarga sér af því sem landið okkar gefur.   Við getum verið mörgum öðrum þjóðum fyrirmynd í að skapa okkur og niðjum gott líf og hamingju.

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981

 

Rís þú, unga Íslands merki,

upp með þúsund radda brag.


Tengdu í oss að einu verki


anda, kraft og hjartalag.

Rís þú, Íslands stóri, sterki

stofn með nýjan frægðardag.



- -

Skín þú, fáni, eynni yfir

eins og mjöll í fjallahlíð.

Fangamarkið fast þú skrifir

fólks í hjartað ár og síð.

Munist, hvar sem landinn lifir,

litir þínir alla tíð.


Einar Benediktsson.

Eigið annars góðan dag.  Heart


Sokkabandið á fullu.

Þriðjudagur, allt fram streymir endalaust.  21 apríl fermi í stóra strákinn minn.  Og það er margt að undirbúa undir svoleiðis.  Og ýmsar reddingar.

Svo eru sumarblómin mín komin að þvi að verða allof stór og ég á eftir að dreyfplanta heilum helling ennþá þó ég prikli eins og brjáluð allann seinnipart dagsins, og svo erum við stelpurnar að æfa á fullu.

IMG_0872

Sem betur fer höfum við snillinga okkur til aðstoðar við að ryfja upp 29 ára gamla framgöngu, ég hef ekki snert bassan í 29 ár, en það er ótrúlegt hvað þetta ryfjast upp.  Og ÞETTA ER ROSALEGA GAMAN.

IMG_0874-1

Hér erum við að skála fyrir Elli mínum hann og félagar hans tóku þátt í bjórkeppni Íslands, og urðu meistarar.   Þetta er bjórinn sem sigraði. Wizard Þetta er listgrein sem segir sex.

IMG_0875-1

Við höfum engu gleymt, þurfum bara smá hjálp við uppryfjun.

IMG_0876-1

Jamm ég er alveg að ná þessu, með aðstoð Gumma og Halla.

IMG_0877

Við ætlum okkur að standa undir væntingum, það er alveg á hreinu.

217737_10150261384358222_537208221_9336787_4250580_n

Tekin á æfingu í gær. 

http://www.youtube.com/watch?v=qHndptuFPJ0&feature=player_embedded

Vona að þetta skili sér líka. Þetta er tekið upp í Alþýðushúsinu fyrir um það bil 29 árum.

IMG_0878-1

Og veðrið leikur ennþá við okkur. Eigið góðan dag.


Herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti vor hefur fyllt mig bjartsýni.

Hlustaði á forsetann ræða um niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar. Var dálítið spennt fyrir því hvað hann myndi segja.  Og ég varð ekki fyrir vonbrigðum.  Forsetinn sýnir svo ekki verður um villst að hann er besti málsvari íslensku þjóðarinnar.  Ræðan hans var frábær og jákvæð og taldi kjark í þjóðina, öfugt við stjórnarherrana og frúrnar sem keppst hafa við að tala niður til þjóðarinnar og  sverta okkar málstað erlendis.

svo kom að spurningunum, og þvílík gremja og vonbrigði sem einkenndi þau.  En Ólafur Ragnar tók þau einfaldlega í nefið, þar sem hann vissi svo miklu betur um málin, hafði svörin á hreinu og hafði kynnt sér málin erlendis, meira en þessir heimaalningar hafa gert.  Það er eiginlega sárgrætilegt að við skulum hafa slíka apa sem eiga að heita fjórða valdið á kafi í því að reyna að sveigja vilja almennings að þeim sem þau þjóna.  Guði sé lof fyrir internetið.  Án þess hefðu stjórnvöld ásamt þessum svokölluðu blaðamönnum og fréttamönnum haft sigur, og komið lyginni á framfæri, og við hefðum aldrei getað ná vopnum okkar í því stríði.  Sýnir bara á kvaða plani margir fréttaskýrendur eru.

Ég hlustaði á Silfur Egils og ég var ánægð með framgöngu Jóhönnu og Steingríms í fyrstu, en svo runnu á mig tvær grímur þegar þau geymdu öllu þessu tali um sáttarvilja og létu Bjarna Ben af öllum mönnum æsa sig upp og voru farin að öskra gamla frasa og hóta.  Birgitta Jónsdóttir var sú sem bar af þarna í viðtalinu, sjálfri sér samkvæm og örugg í sínum málflutningi, setti ofan í þessa gömlu refi hvað eftir annað. 

En eftir þennan blaðamannafund Ólafs Ragnars, stendur upp úr bjartsýni og von um að við séum loksins á réttri braut.  Hann svaraði öllum spurningum og var málefnalegur og öruggur.  Og það besta er að hann hefur sent þessi skilaboð út í alþjóðasamfélagið, ætli það vegi nú ekki þyngra en tilkynningar forsætisráðherra um verstu mögulegu útkomu.  Sem ég skammast mín fyrir.

Nei Íslendingar góðir við þurfum ekki að kvíða neinu.  Þessi hræðsluáróður sem vekur ennþá skjálfta hjá Jásinnum er óþarfi.  Þetta var bara eftir allt saman hræðsluáróður, eins og við vissum mætavel.

Í dag skín sólin hjá mér, bæði úti og í hjartanu.  Við eigum betri framtíð í vændum, og það er af því að við og forsetinn tókum málin í okkar hendur.  Til hamingju Ísland.

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981[1]


9. apríl og það sem ég gerði daginn þann.

Byrjaði á að kjósa.  

Ég skil vel svekkelsið hjá þeim sem óttast allt það versta sem komið getur fyrir okkur við höfnun samningsins.  Ég trúði aldrei þessum áróðri öllum saman og grunar að þarna hafi legið eitthvað annað að baki en hagur þjóðarinnar.  Þar spilar margt inn í.  Til dæmis að fá höfnun eftir öll stóru orðin, og allan áróðurinn, líka hef ég grun um að hluti af dílnum hafi verið inngangann í ESB, að okkar fólk hafi fengið skýr tilmæli að Icesave héngi á ESB spýtunni.  En hvað um það þetta fór á þann veg sem ég vonaði.  Nú er bara að taka næstu skref.  Taka höndum saman og halda því hreinsunarstarfi áfram sem þarf.  Ríkisstjórnin verður að fara frá, hún er löskuð og hefur misst allan trúverðugleika, þau reyndu en höfðu ekki erindi sem erfiði, og verða því að víkja.  Þetta á líka við um forystu Sjálfstæðisflokksins. Þeim ber líka að víkja enda rúin trausti. 

Reyndar er útlitið ekki mjög bjart fyrir kosningar strax, því það þarf að gera ýmsar breytingar í flokkunum sjálfum, helst að koma á persónukjöri.  Þess vegna þurfum við að skora á forsetan að mynda utanþingsstjórn sérfræðinga, það má kalla hana neyðarstjórn ef einhver lög ríkja um utanþingsstjórn sem ekki hentar nýju Íslandi, þ.e. að einhverjir spillingargosar séu þar í forgrunni. 

En ég er alveg viss um að alþýða manna í Evrópu fagnar þessum úrslitum.  Og skilur að við látum ekki kúga okkur til hlýðni.

En þetta er bara fororð.  Ég gerði margt miklu skemmtilegra í gær en að kjósa.

Ég fór á tískusýningu fermingarbarna, þar var Úlfur minn að sýna. Ég tók fullt af myndum, ætla að setja nokkrar hér inn, og ef foreldrar vilja fá myndir af sínum börnum, geta þau bara sent mér email, og ég sendi þeim til baka myndir af börnunum.   Þið getið bent á mynd af ykkar afkvæmi hér og beðið um fleiri myndir af viðkomandi barni.

IMG_0732

Fyrst var að fara í klippingu og förðun, svo voru mátuð föt frá þeim fyrirtækum sem styrktu þessa sýningu.

IMG_0735

Frændkynin Úlfur og Sunna.

IMG_0736

Og sumir bíða eftir afgreiðslu.

IMG_0737

Ábyrgðarfull ungmenni.

IMG_0738

Og svo er ágætt að lesa smá.

IMG_0740

Eða jafnvel bara sökkva sér ofan í blöðin LoL

IMG_0739

Þau hafa gott af þessu, að læra að koma fram.

IMG_0746

Í móttökunni á Hótel Ísafirði þar sem sýningin fór fram.

IMG_0748

Pabbar, mömmur, afar, ömmur og systkini að koma sér fyrir.

IMG_0753

Spennan í algleymingi.

IMG_0756

Falleg börn og falleg föt.  Föt barnanna voru frá Jóni og Gunnu, Legg og Skel, Hafnarbúðinni og Konur og menn, þaðan voru aðallega snyrtivörur.  Hárkompaní greiddi þeim því miður náði ég ekki nafni förðunarmeistarans, síðan voru sýndar vörur frá Gullauga fleirum.  Ef einhver vill bæta við upplýsingarnar er þeim velkomið að setja það inn í athugasemdir hér á eftir.

IMG_0760

Fallegir skór líka.

IMG_0764

Strákurinn minn.

IMG_0765

Fallegur töffari eins og pabbi hans var.

IMG_0768

Þeir eru sko flottir strákarnir líka.

IMG_0770

Glæsilegt. Þeir eru allir vinir þessir strákar.

IMG_0773

Hárgareiðslan á stelpunum var líka afar flott, og þær eru allar með sítt hár, sem örugglega er gaman að greiða.

IMG_0775

Mér finnst sniðugt að hafa svona sýningar fyrir börnin, svo foreldrar getið rætt um málið við börnin um hvað hentar þeim best.

IMG_0777

Virkilega smart og flott föt.

IMG_0780

EInfalt en smart.

IMG_0782

Svo voru föt á systkin.

IMG_0784

Þægilegt og gott.

IMG_0787

Allir krakkarnir stóðu sig frábærlega vel og þau voru svo flott falleg og með fallega framkomu.

IMG_0789

Það voru líka sýnd föt fyrir pabba og mömmu.

IMG_0806

Líka hlýleg náttföt.

IMG_0819

Þessi litli stubbur var alveg ákveðin í að láta ekki snúa sér eitt eða neitt.

IMG_0823

Nebb enga snúninga hér takk LoL Og salurinn hafði mikið gaman af.

IMG_0840

Þau sýndu líka sportfatnað.  Ekki vera feimin við að biðja mig um myndir.

IMG_0855

Glæsilegri sýningu lokið.  Gestum var boðið upp á kaffi og allkonar flottar kökur, sem brögðuðust vel, það var veitingastaðurinn Við Pollinn sem er til húsa á Hótel Ísafirði.

IMG_0742

Á miðju hringtorginu vappaði Krummi um og hugsaði um lífið og tilveruna.

IMG_0743

Ef til vill var hann að fylgjast með umferðinni.

IMG_0744

Alla vega var hann ansi heimspekilegur þarna á miðri eyjunni.

IMG_0861

Svo hittumst við sokkabandskonur með hljóðfærin í fyrsta skipti, höfum hist á fundum, en nú fannst okkur tilvalið að skoða þetta í samhengi, að vísu sleit ég einn streng í bassanum þegar ég var að stilla hann LoL Sennlega vegna þess að ég hef ekki snert hann í 29 ár.  Eygló hjálpaði mér að setja nýja strengi í.

IMG_0863

Við ætlum að bæra saxofonleikara inn í bandið.  Þetta verður rosalega gaman.

IMG_0864

Eygló stillir gítarinn, hún er algjör töffari hún Eygló.

IMG_0867

Bryndís töff á trommunum, þær hafa engu gleymt þessar stelpur.

IMG_0870

En nú brýst sólin fram, svo ég þarf að fara að sinna plöntunum. 

IMG_0730

Nektarínan mín skartar nú sínu fegursta.

IMG_0731

Kamillan mín er líka að koma til og brosa framan í lífið.

Það ættum við líka að gera.  Ég er sannfærð um að kosningarnar fóru vel og niðurstaðan á eftir að verða okkur lyftistöng.  Við höldum allavega ærunni og höfum sýnt að erum þjóð sem lætur ekki hræðslu né kúganir kúga sig.  Af því er ég stolt og afar þakklát.

Nú er vor og allt að vakna og nýtt líf fæðist á hverjum degi.  Áfram kæra Ísland, okkar fósturjörð.

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981[1]

 


Á morgun, dagurinn sem minnst verður um langa tíð, hvernig sem fer.

Ég er farin að halla mér, búin að gera mitt til að fá fólk til að hugsa eins og ég vil Smile Það er bara ekki þannig, við verðum að virða hvers annars skoðanir og sætta okkur við það sem ekki verður að gert.  Ég hef dálítið gaman af að rökræða sérstaklega þegar ég hef sterkar skoðanir á málefninu. 

Þetta síðasta núna að telja fram hverjir ætli að segja nei og hverjir já, er dálitið á lágu plani að mínu mati, þó ég fagni því þegar sérfræðingar tjá sig um málin, sérstaklega útlendingar sem hafa engra hagsmuna að gæta.  ég tek mínar ákvarðanir út frá því sem mér finnst sjálfri en ekki af því að þessi eða hinn ætli að segja þetta eða hitt.  Og alls ekki eins og nú er verið að setja fram að eg sé í liði með einhverjum illa þóknanlegum hér á landi.  Þá er umræðan komin út um víðan völl, og öll rök þrotin og hræðslan ein tekin við.  Hvort sem það er hræðsla við hvað tekur við ef nei verður ofaná, eða hræðsla við að þeir sem segja Nei hafi haft rétt fyrir sér allan tímann.

Þetta verður bara tíminn að leiða í ljós.  En við erum auðvitað óttalegir þrasarar og barnslegar sálir, og svona frekar hégómagjörn og upptekin af því hvernig útlendingar hugsa um okkur.

Það hverfur þegar maður fer að ferðast og kynnast fólki erlendis.  Því þá sér maður að þau eru bara fólk eins og við, hugsa svipað, og margir hugsa fallega til okkar, og sjá í okkur baráttu sem þau gjarnan vildu sjá heima hjá sér.  Við erum fá og smá, en höfum þennan endalausta kraft til að standa upp, flest okkar, þegar okkur er misboðið. 

Það sem er greinilegt í þessu máli öllu saman er að forystumenn stjórnmálanna, flestir hverjir eru komnir langt út frá almenningi, þeir tala fallega á hátíðarstundum, en svo þegar þeir hafa virkilega tækifæri til að gera það sem þeir hjala um, þá er nú eitthvað annað uppi á teningnum.

Þess vegna verðum við sjálf að fara að læra að refsa þeim.  Láta þá finna fyrir því þegar þeir brjóta öll sín kosningaloforð, og gera okkar til að það fólk sem er algjörlega siðblint og vill ekkert nema sitja í jötunni, verði látið víkja.  Það þarf að hreinsa til og setja lög um hámarks setur fólks við stjórnvölin. 

Á morgun kemur í ljós þjóðarviljinn.   Þegar þar kemur verðum við að slíðra sverðin og taka höndum saman um að gera okkar til að rétta skútuna af. 

Ef neiið verður ofaná, þá er það ótrúlegt afrek neisinna, gegn öllum gengdarlausa áróðrinum sem flestir fjölmiðlar landsins lögðust á eitt við að framkvæma.  Og þeir hópar sem greinilega áttu næga peninga til að gera risastórar auglýsingar fyrir Jái, meðan neisinnar voru flestir að vinna af hugsjón og kærleika til lands og þjóðar.

Þar lögðu margir hönd á plóg, og ég vil þakka þeim öllum sem hafa verið með mér í baráttunni við að segja Elítunni og klíkuskapnum stríð á hendur. 

En á morgun mun þetta allt saman koma í ljós, og ég legg hér með mína vinnu í hendur almættisins, goða og gyðja og bið um að okkar málstaður verði ofan á. 

Hafið þökk fyrir öll sömul og góða nóttHeart

IMG_0546

Með kveðju frá Ísafirði.


Það vorar senn og grænkar grund. Gleður sólin okkar lund.

Í dag er föstudagur 8. mars, á morgun rennur kjördagurinn upp vonandi bjartur og fagur. En ég stend reyndar í fleiru þessa dagana, er á kafi í að dreyfplanta sumarblómunum mínum.  Í garðskálanum er líka allt komið á full.

IMG_0722

Nektarínan mín er alblómgvuð.

IMG_0724

Jólarósin mín ósköp feimin það er ef til vill vegna þess að hún blómstrar venjulega um jólaleytið, og er því orðin allof alltof sein.

IMG_0725

Kamelían mín er líka feimin og felur fallegu blómin sín milli laufanna.

IMG_0727

Og hér er allt að byrja að gróa. Plássið löngu sprungið.

En það er gott fyrir sálina að grufla í moldinni og hlakka til sumarsins. 

Svo get ég bara ekki still mig um að benda á tvær greinar frá erlendum vinum okkar, sem hveta okkur til að segja  NEi á morgun. 

En það eru þau Eva Joly og Michael Hudsson. 

 

http://www.mbl.is/frettir/innlent/2011/04/08/augu_umheimsins_a_islandi/

http://attac.is/greinar/will-iceland-vote-no-april-9-or-commit-financial-suicide

 Svo vona ég að þið eigið öll góðan og blessunarríkan dag.  Morgundagurinn mun skipta okkur öll miklu máli og ég bið allar góðar vættir að vaka með okkur og vernda.  Heart


Eigum við að fara í smá leynilögguleik.

Ég ætlaði ekki að tala meira um Icesave, en það er að brjótast um í mínum kolli ummæli Vilhjálms Egilssonar sem hann viðhafði í sjónvarpsviðtali.  Hann sagði eitthvað á þessa leið: "Við héldum að þetta yrði samþykkt."

Þessi ummæli slógu mig strax, en ég hugsaði svo ekki meira um það í bili.  En svo fór ég að hugsa svona eftir á:  Getur það verið að Jóhanna og Steingrímur hafi verið búin að lofa Gylfa og Vilhjálmi að Icesave yrði samþykkt.  Og hafi ekki munað eftir neitunarvaldi forsetans, eða talið að hann myndi ekki neita aftur.

Þetta getur útskýrt hvers vegna Gylfi og Vilhjálmur hafa gengið jafn langt í áróðri sínum í krafti þeirra félaga sem þeir gegna forystu í.  Þeim hefur þá fundist að þeir væru að framkvæma vilja stjórnvalda. 

Ég skil auðvitað ekki alveg samhengið.  En það hlýtur eitthvað að hanga þarna á spýtunni.  Báðir þessir forkólfar hafa gengið of langt í áróðri sínum.  Svo langt að venjulegt fólk stendur agndofa.

Þá kemur alltaf upp þessi spurning: Hvað gengur stjórnvöldum til að ganga svona langt í að neyða þessaru kröfu upp á þjóðina.  Þau hafa gengið afar langt í sínum áróðri og notað alla fjölmiðla og slagorð. 

Getur verið að þau hafi á sama hátt lofað bretum og hollendingum að þetta yrði samþykkt, og jafnvel lagt hausinn að veði?

Ég veit að Samfylkingin vill inn í ESB.  Og hluti af Vinstri Grænum.  Getur verið að það hafi verið loforð eða hótun að ef við samþykktum ekki kröfuna, þá myndu þeir beita sér gegn ESB aðild?

Á einhvern óskiljanlega hátt er þetta allt saman tengt einhverjum ósýnilegum böndum.   En áfram stendur spurningin.  Hvað meinti Vilhjálmur með þessari einlægu setningu eins og barn: Við héldum að þetta yrði samþykkt.

c_documents_and_settings_erna_hjaltested_my_documents_blog_isl_faninn_713981

 

Þú álfu vorrar yngsta land

  Þú álfu vorrar yngsta land,

vort eigið land, vort fósturland,

sem framgjarns unglings höfuð hátt

þín hefjst fjöll við öldu slátt

 Þótt þjaki böl með þungum hramm,

þrátt fyrir allt þú skalt, þú skalt,samt fram,

þú skalt samt fram,þú skalt samt fram. 

Hver tindur eygir upp og fram,

hver útnesskagi bendir fram,

þú vilt ei lengur dott né draum,

vilt dirfast fram í tímans straum.

Lát hleypidóma´ei hræða þig.

haltu fram beint á sönnum frelsis stig,

á frelsis stig, á frelsis stig.

 


Spaugstofan í beinni.

Fann þetta á blogginu hans Jóns Baldurs L'Orange.  ef þetta er ekki besti spaugstofuþátturinn þá veit ég ekki hvað. LoL   http://islandsfengur.blog.is/blog/islandsfengur/entry/1156846/#comment3133559

Írafár og ringulreið þjóðar er að komast í hæstu hæðir.

Mér finnst þjóðin vera eins og í suðupotti þessa dagana.  Brigsl, ásakanir, hótanir og áróður.  Já eða Nei.  Og ekki batnar þetta fyrir kosningarnar. 

En ég hef tekið eftir fleiru.  Ég tek eftir að það eru fleiri bílaóhöpp núna þessa fyrstu mánuði ársins, en áður, og það í síminnkandi umferð.  Gæti það verið af því að fólk hefur ekki ráð á að hafa bílana í góður standi.  'Eg hef líka tekið eftir því að óvenjulega mörg óhöpp hafa verið hjá bátum.  Ætli það sé angi af því sama, að fólk sé að spara við sig öryggið með atvinnutækið til að geta haldið sér og sínum gangandi.  Þetta er afar slæm þróum. 

Reiði og ringulreið ríkir í höfuðborginni vegna skólamála.  Og sýnist mér vera stutt í að borgarstjórinn gefist upp á ástandinu, þegar hann er farin að kvarta undan allskonar fólki.  Hann er ekki með þennan skráp sem hinn almenni pólitíkus hefur komið sér upp. 

Jóhanna og Steingrímur eru nánast ósýnileg nú þessa dagana.  Brugðu sér að vísu til Ísafjarðar til að sýna Vestfjörðum stuðning sem er svo sem gott mál, en ætla að setja fleiri hundruð milljónir í snjóflóðavarnargarða.  Sem mér finnst vera tímaskekkja og skilar litlu til bæjarfélagsins, hver segir að vestfirskir verktakar fái verkið, er ekki allt eins líklegt að lægsta tilboð komi frá Kína, eða Portúgal eða öðrum ríkjum? Nú eða bara frá Reykjavík, og hver er þá hagnaðurinn fyrir Vestfirðina?

Verð samt að segja að betri vegir og ódýrari samgöngur munu bæta hér heilmikið.  En ég hef ekki séð stafkrók um fiskveiði.  Hér er sjórinn allur fullur af fiski, sem menn mega ekki veiða, af því að nokkrum mönnum var afhentur hann á silfurfati.  Það er þó langfjótasta leiðin til að skjóta rótum undir efnahagslíf Vestfirðinga.

Svo er þetta með heiðarleikan og mannorðið.  Mér virðist sumir framámenn hafa hvorugt í heiðri.  Til dæmis Gylfi Arnbjörnsson leyfir sér að nýta almannasamtök launþega í sínum einka áróðri fyrir að borga Icesave skuldina.  Hvar er hans heiðarleiki gagnvart þeim sem hafa hann í vinnu? og hvar er mannorðið, hjá honum er það ekki mikils virði, eða falt fyrir 30 silfurpeninga. 

Vilhjálmur Egilsson tilkynnti í gær í sjónvarpi allra landsmanna, að ekki yrði samið um laun nema Icesave yrði samþykkt.  Í hvaða nafni talar hann?  Reyndar hélt ég að það væru fleiri fyrirtæki í Samtökum atvinnulífsins en bara L.Í.Ú.  Og ætli það séu öll fyrirtæki sátt við að þetta sé eina málið á dagskrá hjá honum, sem fitnar eins og púkinn á fjósbitanum, fær örugglega góðan "stuðning" frá stórútgerðarmönnum.  Ég tók sérstaklega eftir að hann sagði; við töldum víst að þetta yrði samþykkt. Hvað kom honum til til að halda það?  Var ef til vill búið að ákveða að smjúga þessu gegnum þingið, þegar Ólafur Ragnar neitaði þessu staðfestingar.  Gerði það ef til vill ófyrirséð strik í reikninginn?

Allskonar fræðimenn og doktorar tala svo hispurslaust um að við verðum að styðja Icesave, þó fullt af mótrökum komi frá öðrum aðilum með samskonar þekkingu og reynslu.  Og reyndar marg búið að sýna fram á að okkur ber ekki skylda til að gangast undir ólögvarðar kröfur af völdum íslenskra ríkisbubba, sem svo eru að því mér sýnist með ríkustu mönnum heims, og vilja nú að við tökum undir baggann með þeim, svo þeir losni við þetta leiðinda mál og geti snúið sér aftur að því að græða meiri peninga. 

Já potturinn sýður og bullar.  Ein bloggvinkona mín sagði við mig að Neiið væri skrifað í Skýin.  Ég þori varla að vona að svo verði, en mér finnst samt svo margt benda til þess.   Fólk er smátt og smátt að sjá í gegnum lygavefinn og sjá að það er bara alls ekki rétt að við berum ábyrgð á annara manna skuldum, og ekki bara það, heldur höfum við ekki leyfi til að leggja hana á herðar barna okkar og allra ófæddu barnanna næstu árin. 

Ég ætla samt ekki að hlusta á útvarpið næsta laugardag, eða þangað til úrslitin verða kunn.  Það er af því að í fyrsta lagi er ég hálfgerður heigull í þessu máli og svo vil ég ekki gera sálarlífinu mínu það, er að verða æst eins og allir hinir og það er ekki gott fyrir brothætta sál.  Svona miklu máli skiptir mig að við afneitum þessu, mér finnst það vera eina vonin til að endurheimta betri daga og hreinna Ísland.  Ég vona að rétt reynist sem einn samfylkingarmaður sagði á öðrum stað, neiið verður ofan á og forsetinn verður komin með utanþingsstjórn eftir næstu helgi.  Ef það bara reyndist rétt.

Mér er ekkert illa við Steingrím og Jóhönnu sem manneskjur, held að í upphafi hafi þau haldið að þau réðu við þetta.  En því miður er ráðslagið þannig að fyrirtæki eru að flýja landið hvert af öðru m.a. út af skattasetfnu og hringlandaháttar stjórnvalda. 

Svo hef ég lúmskan grum um að flestir séu búnir að gera upp hugsinn.  Þó þeir beri það ekki utan á sér, eða vilji láta það uppi.  Þetta á örugglega bæði við um Já, Nei og þá sem ætla ekki að fara á kjörstað, eða skila auðu Og það er þeirra réttur. 

Þess vegna ætla ég að minnka svona skrif til að leyfa fólki bara að hugsa sinn gang í friði.  Taka sína eigin ákvörðun, hér liggja fyrir allar ástæður fyrir neii og jái, svo þeir sem hafa áhuga á að kynna sér málin geta gert það með því að hlusta á fjölmiðla og netsamræður. 

Það verður sennilega langur göngutúr hjá mér á laugardaginn og svo bara ligg ég á netinu eða leigi mér mynd.  En svona er ég bara ég tek hluti allof mikið inn á mig, og í þessu máli finnst mér eiginlega að með jái séum við að missa af besta tækifæri i heimi, til að senda þau skilaboð út í samfélag jarðarinnar að við viljum ekki vera fórnarlömb klíkna, auðmagnsfíkla, spilltra stjórnmála og embættismanna, bankamafíu þessa heims. ´

Ég sé fyrir mér litla Ísland glóa á sorphaugum sögunnar, vegna þess að þessi fámenna þjóð stóð upp og sagði; Sjáiði Keisarinn er nakinn!!!

Þess vegna mun ég segja NEI!

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2011
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband