Mömmó og meira,

Ég fór á fund í kvöld, stubburinn er að fara á Taikwando mót á næstu helgi í Keflavík.   Hann ávann sér rétt til að taka þátt með því að standast prófið um daginn.  Og nú er litla fjölskyldan á fullu að undirbúa förina suður.  Amma ætlar með stubbnum sínum, það væri nú annað hvort.  Það var sem sagt fundur í kvöld með foreldrum, og ég fór og minn elskulegi sá um börnin á meðan.  Ekki fyrir mig, það var þá þegar mín voru lítil.  Nei nú er þetta sameiginlegt.  Hér áður og fyrr, þá gætti hann barnanna fyrir mig hehehehe svona getur tíðarandinn breyst líka meðal okkar sem eldri erum, og guð láti gott á vita. 

En ég tók nokkrar myndir í dag, Veðrið var náttúrulega unaðslegt, og við hjónin ákváðum að fara í sund á Suðureyri, þegar við sæktum þær á leikskólann, sem við og gerðum.  Sú litla er alveg að ná þessu, og nýtur þess að fara í sund í dag.  Hætt að vera hrædd við vatnið.

IMG_5498

Gat ekki stillt mig í morgun að munda myndavélina, þetta er eitthvað svo saklaust og yndislegt í ömmuholu. Heart

IMG_5499

Og stubbur á leið í skólann smellir kossi á litlu "systur"

IMG_5501

Afar bregða líka á leik stundum á morgnanna.  Það er bara fjör. LoL

IMG_5505

Sagði ykkur það, veðrið er unaðslegt.

IMG_5506

Skólalóðin á besta leikskóla í heimi að koma undan snjónum. 

IMG_5507

Þetta þýðir að þessar tvær eru eftir á leikskólanum, hinir allir farnir.

IMG_5508

Ef þetta er ekki alþjóðavæðing þá veit ég ekki hvað Heart

IMG_5510

Nýkomnar úr sundi.  Hanna Sól varð eftir með Júlla frænda sínum og Sigurjóni Dag og Ólöf Dagmar, en þau ætluðu einmitt að taka stelpurnar eftir leikskóla í dag.  Þessi fór samt heim með ömmu og afa.

IMG_5512

Jamm. það er ýmislegt borið upp í munnin á sér, á þessum síðustu og verstu.

IMG_5513

Og rússurnar smakkast alltaf vel, það finnst risaeðlum líka.

IMG_5515

Flísteppið er líka algjört must hér.

IMG_5518

Svo rabbar maður í símann við mömmu sína og alles.

IMG_5520

Kvöldið er fagurt sól er sest og sefur fugl á grein.  Og klukkan að verða átta.

IMG_5522

Ísafjarðarlognið í algleymingi.  En þannig er þetta bara.  Knús á ykkur öll inn í nóttina.  Og ég segi bara góða nótt, sofið rótt, og knús. Heart


Vor í kúlu, mömmublogg og sitthvað fleira.

Ég lofaði vormyndum úr kúlunni.  Hér koma nokkrar þannig:

IMG_5379

Zakúran í fullum blóma.

IMG_5385

IMG_5386

Kirsuberin verða mörg í ár.

IMG_5416

Flott ekki satt.

IMG_5417

Ef til vill fæ ég líka perur.

IMG_5376

Veðrið á laugardaginn var hreint glæsilegt, við fórum með stelpurnar í sund á Suðureyri, Ásthildur er öll að koma til í barnalauginni.  Farin að sleppa ömmu sinni og labba um sjálf.  Svo komst hún upp á lag með að fara uppúr og til afa í stóru lauginni, og fara ofan í hana.  Það var mikið sport.  Su stóra er eins og fiskur í vatni. 

IMG_5373

Það er rosalegt fjör hjá mínum stundum.

IMG_5375

Og maður vill líka hafa blóm í hárinu.  Matta klippti þær báðar reyndar eftir þetta, þær fóru í pössun til Möttu og Inga, þau tóku þær yfir nótt, og það var bara mjög notalegt. 

IMG_5387

Veðrið var ekkert síðra á sunnudeginum. 

IMG_5388

Hænurnar eru líka ánægðar að fá að fara út.

IMG_5389

Æ pabbi snjórinn er svo kaldur.

IMG_5393

Aha þetta er betra.

IMG_5394

Yess amma hehehehe...

IMG_5396

Þá er best að fara út að hjóla... og sona.

IMG_5400

Eða leika við Ásthildi.

IMG_5405

Sumir verða stundum fúlir, ef það er eitthvað sem ekki má. 

IMG_5406

Og auðvitað þarf litla dýrið að vita hvað er að.  Þessi blái litur í hárinu er maskari sem stóra systir fann í snyrtitöskunni hennar ömmu. InLove Áreiðanlega betur komin þarna. 

IMG_5408

en ólundin stendur stutt yfir, það er nefnilega allt svo skemmtlegt.

IMG_5413

Það finnst Ásthildi líka. LoL Ævintýrin, Nemo litli, trunt trunt og tröllin í fjöllunum, og englablues.

 IMG_5419

Börn, vatn og blóm eiga sérlega vel saman.

IMG_5420

Felumynd af lítilli stúlku.

IMG_5431

Nýklippt með blóm í hári.  Svo fín.

IMG_5435

Maður þarf nú líka að passa litlu systur stundum.

IMG_5438

Það var svo hlýtt úti í gærdag.  Eins og sjá má.

IMG_5440

Hún ætlar að standa undir nafni, sú stutta, hér er örugglega verið að umpotta plöntum.

IMG_5454

Og meðan stóru börnin fóru í pottinn.....

IMG_5451

Fannst minni bara betra að fara í balann inni í garðskála.

IMG_5459

Reyndar þótti fleirum gott að fara ofan í balann LoL

Hér má sjá að stelpurnar halda báðar á dúkkum en drengurinn með bíl ? hér er ekki verið að innprenta neitt, þetta bara er svona. Eða hvað ? það skyldi þó aldrei vera að við gerðum það ósjálfrátt að halda bílum að drengjum og dúkkum að stúlkum. 

IMG_5472

mmm hvað þetta er notalegt.

IMG_5475

Og Hanna Sól ræðir við Hjördísi sína í símann.  En Hjördís var aupair út í Vín og gætti telpnanna.

IMG_5484

Flottar pæjur alveg eins þær skáfrænkurnar í nýjum fötum.

IMG_5486

Og afi í mat eins og venjulega á sunnudögum. Og blessuð börnin.

IMG_5488

Hér er ein flott mynd af þeim Sigurjóni Dag og Hönnu Sól, en þau eru svoooo góðir vinir.

IMG_5490

Og svo er þessi blómlega mynd líka, rósamandlan mín í forgrunni.

En við erum sennilega búin að fá óperu, hún er að vísu karlkyns, og kemur frá Litháen.  En við sjáum til með hvernig það gengur.  Stórir strákar gráta ekki.... eða hvað ?

IMG_5378

Svo er hér komin gula röndin á beltið.  Næst ætla ég að reyna við appelsínugula beltið segir snáðinn minn.

IMG_5384

Þeir karlmennirnir á heimilinu ræða um landsins gagn og nauðsynjar eins og gengur LoL

Eigið góðan dag öll sömul.Heart


Héraðsdýralæknum fækkað um helming eða meira - hvar eru mótmælin ?

Ég er dálítið hissa hvað lítið heyrist í dýralæknum og bændum í sambandi við fyrirhugað frumvarp svokallaðs sjávar- og landbúnaðarráðherra, þá á ég við þann hluta að kútta héraðsdýralæknum úr 16 niður í 6, eða var það 8 ?  Allavega niður um helming eða meira.  Á sama tíma og hann er að boða innflutning á hráu hormónakjöti erlendis frá, þá fækkar hann eftirlitsaðilum.  Eða maður hefði haldið að dýralæknar væru best til þess fallnir að fylgjast með heilbrigði kjötsins.

 Það heyrist ekkert í Vestfirðingum, en eftir því sem ég hef heyrt, þá á að leggja niður embætti dýralæknis á Vestfjörðum, hann verður sum sé staðsettur í Borgarnesi.  Mjög svo viturleg ákvörðun eða þannig. 

Það veruð gaman fyrir bónda á Tröð í Önundarfirði, þegar kind verður í erfiðleikum með burð.  Hann hringir náttúrlega til Borgarness; geturðu komið og aðstoðað mig ? Ég er með kind sem á í erfiðleikum að bera. 

Nei ég get ekki komið, segir Dýralæknirinn, enda er það ekki mitt verk, ég á bara að vera yfir svæðinu.

Nú segir bóndinn, hvert á ég þá að leita ?

Nú ég held að það sé kona þarna fyrir vestan sem er dýralæknir, hún var þarna allavega.

Já en hún flutti auðvitað í burtu, þegar embætti hennar var lagt niður.

Nú hverslags er þetta eiginlega, gat hún ekki bara verið kyrr, og praktiserað ?

Praktiserað ? spyr bóndinn dolfallinn, heldur þú virkilega að hér séu svo mörg gæludýr að það sé viðurværi fyrir dýralækni ?  Nei hér er enginn á svæðinu til að aðstoða okkur.

Þú verður bara að lóga kindinni segir dýralæknirinn.

 

Hverslags bölvar rugl er þetta eiginlega.  Það er ekki nóg með að þessi mannvera hafi átt sinn stóra þátt í að rústa landsbyggðinni með því að skera niður þoskveiðiheimildir, heldur ætlar hann núna að ganga á milli bols og höfuðs á bændum líka. 

Mér er spurn, ætla bændur á Vestfjörðum að láta þetta yfir sig ganga mótþróalaust.  Er virkilega búið að draga allar tennur úr Vestfirðingum, svo þeir geta ekki hreyft sig meir ?

Maður var að vona að átakið frá Haga til maga, eða eins og sagt var frá Hafi og Haga til Maga, myndi skjóta styrkari stoðum undir bændur í strjálbýli og einnig auka vægi dýralækna.  En nei, það á að drepa það allt saman niður líka.  Landráðamaður er sá sem þannig hagar sér, að hann neyðir fólk til að flosna upp og fara.  Vei þeim sem veldur slíku.  Hann á ekki að fá leyfi til að fara með þau völd sem hann hefur.  Svona menn á að refsa grimmilega ef ekki fyrr þá í kosningum. 

Bændur það er ykkar að standa með dýralæknum í þessari baráttu, og láta ekki fara svona með landnúnaðinn.  Þetta frumvarp á að fá að deyja drottni sínum. 

Eða það er líka hægt að taka upp vopnin og berjast með okkur fyrir frjálsum Vestfjörðum.  Loka okkur af frá Íslandi og vera sjálfstæð.  Það er líka möguleiki.  Og sennilega sá raunhæfasti miðað við hvernig stjórnvöld fara með fjórðunginn.  Eða ætla menn endalaust að kyssa á vöndinn og láta taka sig ósmurt ?

IMG_8992

Enginn aðstoð meira við kúabændur, þeir verða bara að lóga kúnni, því ekki kemur dýri alla leið frá Borgarnesi, enda hefur hann þá í nógu að snúast.  Eða ætla menn virkilega að ráða aðstoðardýralækna á fámennari staðina ?  Eða jafnvel bara einhvern bóndann í sveitinni, sem þykir liðtækur að hjálpa, þegar enginn lærður dýralæknir vill vinna í hjáverkum við að aðstoða. 

IMG_8999

Eða hafa ráðamenn ef til vill EKKERT HUGSAÐ UM ÞAÐ HVERNIG ÞETTA ER Í PRAXIS, kæmi mér ekkert á óvart miðað við stjórnarhættina sem þeir viðhafa núna.   Svei því bara. 


Vor í Vín.

Fékk þessar myndir sendar frá Báru dóttur minni, vorið er svo sannarlega komið í Vín, en það er líka komið í Kúlunni, þið fáið að sjá þær myndir seinna í dag, eða í kvöld.

En hér er sýnishorn frá Vín.

IMG_9053

IMG_9188

IMG_9210

IMG_9221

Ég held að þetta sé örugglega Zakúra eins og mitt. Sem einmitt er líka í blóma.

mail

Þetta er bara svín, en þau dýralæknanemendurnir hafa lifandi dýr til að vinna með, og læra á sjúkdómana.  Dýralæknaskólinn er dýragarður í leiðinni lítið þorp, eða ekki lítið um 100.000 manna þorp hehehe.. þar sem eru skurðstofur fyrir stórgripi og smádýr og allt þar á milli rannsóknar stofur, röntgen myndastaðir fyrir mismunandi stærð dýra.  og bara að nefna það, þarna eru margar tekundir hestakyns, írskur póný, þýskir og austurrískir hestar íslenski hesturinn áramt arabagæðinum.  Og margar fleiri. Bára mín er í sérhæfri deild fyrir hesta. 

En sumsé mér sýnist vorið í Vín vera um það bil það sama og vorið í Kúlusúk.... eða þannig. 


Að sigra.

Stubburinn kom heim með spjald í dag sem stóð á;

Þórður Alexander Úlfur Júlíusson Thomassen Kristján, (nafn sem hann hefur örugglega gefið upp, og notar við hátíðleg tækifæri ) hefur staðist próf fyrir 10.geup.  SSANGYONFTAEKWON.  Undirritað af meistara og kennara.  Hann er komin með gula rönd á beltið.  Var að vonast eftir gulu belti, en ég tek það bara næst segir, hann eða jafnvel appelsínugula beltið.  Mikið er ég stolt af stubbnum mínum. 

 

IMG_5274

Til lukku elsku stubburinn minn.  Þú ert flottastur.


Vor vor og vor, og yndæl stund með fjölskyldunni.

Dagurinn í dag var dýrðardagur, ekki bara veðrið sem var hreint dásamlegt, heldur var mikið líf og fjör í kúlunni. 

Vorið er komið, hér suðuðu minnst fjórar bíflugnadrottningar, nú kemur sá tími að ég þarf að fara að veiða þær upp úr tjörninni, þær vilja hrata niður í tjörnina blessaðar, og ekki vil ég að þær drukkni.  En þær eru sem sagt komnar í garðskálann minn.

Í morgun hringdi í mig kollegi minn,  hann Samson; Ásthildur, hvar ert þú, ég er staddur hér upp í garðplöntustöðinni þinni, er hér á Ísafirði og langar að hitta þig. 

Ég kem bara sagði ég.

Það er gaman að hitta fólk úr garðyrkjunni.  Við drukkum saman kaffi, og spjölluðum, hann sagði mér að hann væri með teikningu af Austurvelli, sem er systurgarður Hallargarðsins Reykvíska, einnig teiknaður af Jóni H. Björnssyni, hann var með eintak sem hann hafði litað og prentað út.  Hann vildi líka gefa bæjaryfirvöldum eintak.  Ég hringdi í Halldor Halldórsson bæjarstjóra, og hann bauð okkur að koma og tala við sig rétt fyrir hádegið.  Við áttum gott spjall saman öll þrjú, og Halldór fullyrti við okkur að það væri ljóst að Austurvöllur yrði áfram skrúðgarður.  Enda eru þessir fjórir garðar sem eru hér á þessu svæði, þ.e. Skrúður, Simsonsgarður, Jónsgarður og Austurvöllur, einstakir hér á landi.  Að eiga fjóra skrúðgarða, gerist ekki betra. 

IMG_5172

En eins óg sjá má, var veðrið dýrðin ein.

IMG_5174

Og fegurðin eftir því.

IMG_5175

Já vorið er komið, ekki satt ?

IMG_5178

Jólarósin mín svolítið á eftir að blómstra, en það gerir ekkert til, hún er dásamlega flott.

IMG_5180

Og trén byrjuð að bruma.

IMG_5183

allt á fullu í gróðurhúsinu, við Júlli prilkuðum um 1400 silfurkamba og 1100 skrautnálar í dag, auk þess um 300 flauelisblóm.  Allt þarf þetta að vera klárt fyrir söluna í vor.

IMG_5186

Ég er búin að fá tvo pólverja í vinnu við að gera við gróðurhúsin sem skemmdust í vetur.

IMG_5197

Og hænurnar fengu að fara út, svona aðeins.

IMG_5198

af mold ertu komin og að moldu skaltu aftur verða hehehehe.

IMG_5201

Og stubbur hjálpar líka til.

IMG_5203

Rósamandlan mín er rosalega flott.

Stubburinn fer í beltapróf á morgun í ThaiKvan Do, ef hann stenst, þá fer hann í keppnisferð til Keflavíkur i enda mánaðarins.  Hann er rosalega duglegur, hér er hann að æfa sig.

 

IMG_5206

IMG_5208

Jamm flottur.

IMG_5217

Börn hafa mjög gott af svona sjálfsvarnaríþróttum.

IMG_5219

Bæði upp á sjálfsöryggið

IMG_5222

En líka upp á ögunina

IMG_5223

Og að skilja sjálfan sig.

IMG_5236

Sigrast á vanmætti.

IMG_5247

Standa keikur og hress.

IMG_5274

Sem betur fer er stubburinn með frábæran kennara, og svo hefur hann bara svo mikinn áhuga á þessu.  Vonandi gengur honum vel á morgun.

IMG_5292

En það gerðist dálítið sem var bara surning um ekki hvort heldur hvenær, Ásthildur datt í tjörnina.

IMG_5294

Júlli var rosalega snöggur að hlaupa  til og kippa henni upp úr.  Flest hafa þau dottið í tjörnina, má segja að það sé einskonar kúluvíxla hehehehe....

IMG_5295

Aðrir voru bara í skaftaslag.

IMG_5298

Og aðrið létu sé fátt um finnast.

IMG_5301

Það var nóg af stubbum í kúlunni í dag, vegna þess að við ákáðum að grilla saman fjölskyldan.

IMG_5303

 

Jamm það er vissara bara að leika sér á stéttinni.

IMG_5304

En það var nóg um að vera.  Eins og vanalega.

IMG_5309

Stubbar eru og verða stubbar, þessir ætluðu í smáferðalag.

IMG_5310

Hér má sjá yfirgrillarann Júlíus.  Stóð sig rosalega vel.

IMG_5319

Jamm það entist ekki lengi varkárnin við tjörnina.

IMG_5323

Maturinn var góður.

IMG_5325

Nei hún datt ekki, hún er að vera fyndin LoL

IMG_5327

en það eru fleiri, þetta er hann Trausti.

IMG_5334

Ójá, sumir héldu sig til hlés

IMG_5339

Og hvað er betra en stubbaknús.

IMG_5346

Nema er vera skyldi Tjarnarblúes hehehe

IMG_5348

Sumir eru þó bara prinsessur. 

IMG_5350

Jamm sullumbull og bullum sull.

IMG_5354

Aðrir eru einfaldlega í Rambóleik.

IMG_5357

Kúlulíf, daglegt brauð.. eða þannig.

Hanna Sól fékk fullt af fallegum fötum frá Tinnu frænku sinni.

IMG_5362

Amma í kúlu, nú er komið að þér að setja inn mynd sko!!!

IMG_5369

Þetta gæti verið felumynd af krökkum.  Ég hef ekki tölu á hvað hér voru margir í dag, enda skiptir það ekki máli.  Þau eru yndæl öll sömul.

IMG_5372

Álfur og Huldumaður................................. eða þannig.

Þetta er svona maraþon myndakvöld.  en það bara gerðist svo margt skemmtilegt í dag. Svoleiðis er það stundum.

En á morgun er laugardagur, og þá getur maður slakað á aðeins, á sig sjálfur eða þannig.  Eða ef til vill á maður sig aldrei sjálfur, sérstaklega þegar lítil börn eru annars vegar, þau krefja mann um allan þann tíma sem maður hefur og svo miklu meira í ofanálag, en þau gefa manni það líka tífalt til baka. 


Til hamingju með afmælið Bjössi minn.

Skásonur minn hann Arnbjörn Elvar á merkisafmæli í dag.  Innilega til hamingju með daginn elsku Bjössi minn.  Vona að þið litla fjölskyldan eigið góðan dag saman.  Með bestu kveðjum  knúsi og krami frá skámömmu. Wizard

 

Allt er fertugum fært

fátt þeir eiga ólært.

 Gakktu með glans út í daginn.

og Gangi þér allt best í haginn. 

Knús Heart

 


Smá mömmublogg og krúttfærsla, og svo hið daglega veður.

Þá koma hinar daglegu myndir. 

IMG_5103

Maður fær sér morgunmat, fyrir leikskólann.

IMG_5106

Hanna Sólin búin að borra og má ég aðeins fara í tölvuna þína amma ?

IMG_5108

Morgunin lofar góðu.

IMG_5109

Hæ amma mín.

IMG_5111

Þá er það vinnan sem kallar.

IMG_5115

Uhu amma, ég vil fara aftur heim !

IMG_5116

Jey! Hanna Sól er komin.

IMG_5117

Kubbinn alltaf glæsilegur.

IMG_5118

en eins og sést er snjórinn farinn úr miðbænum, enda var sól og heilmikill hiti í dag.

IMG_5120

Og páskaliljurnar að stinga sér upp úr moldinni.

IMG_5121

MMM mér finnst tómatar góðir.

IMG_5122

Ingi frændi er nú flottur.

IMG_5124

Og Zakúrakirsuberin flott.

IMG_5126

Það eru þessir jeppagaurar, þeir eru óforbetranlegir.

IMG_5127

Hér eru bræðurnir - rauðhausarnir - nýkomnir úr fjöruferð með pabba sínum.

IMG_5128

Já það vantar ekki ungviðið hér á þessari kúlu.

IMG_5129

Evíta litla.

IMG_5130

Og Ásthildur ansi vígalegar báðar tvær.

IMG_5133

Aron Máni vill nú hjálpa til.

IMG_5137

Maður verður nú að sulla smá.....

IMG_5147

Og svo er aðalatriðið að vera vel skóaður LoL

IMG_5150

Evíta getur nú sullað líka, svo sem.

IMG_5161

Þessi tvö eru vatnakettir algjörir, ég get svarið það.

IMG_5164

ég leita reglulega að sundfitum á þessari pæju. 

IMG_5168

Amma mín ég fann álf !!!

Og ég segi bara góða nótt. Heart


Af hverju hið daglega veður.

Jamm, hér hefur verið í gegnum tíðina unnin hryðjuverk á fréttum af veðri á Vestfjörðum, vonandi af hugsunarleysi en ekki vitandi vits.  Það er alltaf tíundað ef veðrið er vont, en þagað um þegar hér er hlýjast.

Ég hef oft ergt mig á þessu.  Einu sinni var tekið veður hér af lögreglumönnum inn í bænum, líkt og mér skilst að sé gert á Akureyri,  þá voru hitatölur oft hærri hér en á Akureyri og Egilstöðum.  En bæjarstjóri sem hér sat,´sá ofsjónum yfir greiðslu sem lögreglan fékk, þeir notuðu þann pening í sjóð sem þeir höfðu sameiginlegan, ég held að þetta hafi verið um 120 þús. kr. á mánuði. Svo þetta var aflagt, og hætt að tíunda hitastigið hér, en sagt frá hitastigi í Bolungarvík í staðin, sem er nyrst og við opið haf, og oft munar einni til tveimur gráðum á hitastigi. 

Muna einhverjir eftir því að sagt var gjarnan að Austfirðingar og Akureyringar ættu góða veðrið.  Og það var vendilega þagað um það þegar veðrið var betra hér en annarsstaðar.

Til dæmis var í þætti hjá Jóhönnu Harðardóttur einhverju sinni tíundað hitastigið á Akureyri hitabylgja um man ekki hvað eitthvað um 20 ° en hér var tveimur stigum hærri tala, ég hringdi og vildi láta segja frá að hér væri hærra hitastig. það kom aldrei fram.  Þetta er bara eitt einstakt dæmi.  Annað dæmi sem ég upplifði var þegar hafði verið svarta þoka daginn áður, og þegar ég fer í vinnuna morguninn eftir, heyri ég í útvarpinu að það er sagt ófært að fljúga á Ísafjörð og Vestmannaeyjar vegna þoku.  Ég hringi í fréttastofuna og segi að mér finnist þetta undarlegt, þar sem hér sé ekki skýhnoðri á himni og blankalogn. 

Við höfum þessar upplýsingar sagði sá sem svaraði.

Ég skil það nú ekki alveg sagði ég, því ég horfi hér upp í heiðbláan himininn og það hreyfist ekki hár á höfði. Hvaðan koma þessar upplýsingar ?

Nú úr símsvaranum á flugstöðinni, var svarið.

Já en þetta eru skilaboð frá því í gær, hlýtur að vera svaraði ég.

Getur þú staðfest að það sé hægt að fljúga, spurði röddinn óþolinmóðlega.

Nei sagði ég, ég er bara kerling út í bæ, en eitt get ég sagt þér, að það væri stórfrétt ef ekki er flogið í svona veðri, eða veðurleysi.

En ég hef tekið eftir því að þið reynið alltaf að segja veðrið hér verra en það er, og nú tekur steininn úr, sagði ég.

Þú heldur kannski að við sitjum hér á kaffistofunni og ákveðum að tala illa um veðrið á Ísafirði, sagði maðurinn með þjósti.

Já svei mér þá, sagði ég, ég held að það sé einmitt það sem þið gerið.

Það kom reyndar á manninn við þetta svar.

Ég vil bara að þið segið frá því að hér sé glampandi sól og logn, en ekki ófært vegna þoku, næst þegar til segið frá veðrinu í fréttunum.

Svo hringdi ég inn á flugvöll og tilkynnti þeim hvaða hremmingum ég hefði lent í. sagði þeim að þeir yrðu að leiðrétta þessa frétt.

Í tíu fréttum kom svo sama rullan um að ófært væri að fljúga á Ísafjörð og Vestmannaeyjar vegna þoku.

Svona hefur þetta ævinlega verið, og fólk var farið að tala um að hér væri ekki byggilegt vegna slæms veðurs, sem er hið mesta rugl.  Meira að segja neituðu sumir foreldrar að senda börnin sín hingað að spila fótbolta eitt árið, af því að þau voru hrædd við snjóflóð..... í miðjan JÚNÍ.

Svo ég ákvað þegar ég byrjaði að blogga að reyna að slá á þessa mítu um vonda veðrið á Ísafirði og Vestfjörðum.  Ég hef núna því sem næst daglega sett inn veðrið og sett inn myndir sem hafa verið teknar samdægurs.  Eins og þið hafið séð, þá er veðrið langt í frá eins slæmt og var búið að telja fólki trú um. 

Þess vegna er HIÐ DAGLEGA VEÐUR Á ÍSAFIRÐI.  Myndir ljúga nefnilega ekki. IMG_5741


Hið daglega veður, vor og vorboðar.

Jamm þá er best að ræða aðeins um veðrið.

IMG_5082

Hér er Súgandafjörður með sólbrá á sjó.

IMG_5084

Kubbinn sterki og fallegi líka.

IMG_5085

Já birtan er falleg.

IMG_5092

Sól að morgni.

IMG_5093

Vildi að ég gæti sett fuglasönginn hér inn með myndinni, þá væri þessi morgun fullkomin sem hann reyndar var.

IMG_5094

Og þessi birta sem er svo einstök.

IMG_5098

Þegar vorið kemur fara stubbar á kreik, sjónvarpið gleymt, en náttúran heillar.

IMG_5099

Jamm það  ER komið vor.

IMG_5089

Það segir Kameliufrúin undirleit...

IMG_5088

Og brosir svo sínu bliðasta.

IMG_5086

Og kirsuberin blómstra líka til samlætis.

IMG_5101

Og lítil stúlka slakar á eftir daginn í nýjum sokkabuxum frá Tinnu frænku.

Góða nótt Heart


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2008
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30      

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband