Nokkrar kúlumyndir.

Nú er skíðavikan okkar byrjuð og veðrið er yndælt. 

Ég mun örugglega setja hér inn einhverjar myndir af þeim atburðum. 

Hér eru samt nokkrar myndir úr kúlunni.

IMG_1638

Pabbi kom í mat s.l. sunnudag, við borðuðum saman fjölskyldan og það var yndælt.

IMG_1639

Það er alltaf gaman þegar fólkið mitt kemur.

IMG_1640

Það er bara ljúft.

IMG_1641

Gelgjurnar mínar Heart Sváfu hér nokkur stykki. 

IMG_1643

Nýkomin úr Gamla bakaríinu að kaupa allskonar meðlæti.

IMG_1645

Eins og sjá má er komin dálítill snjór, nógu mikill til að opna lyfturnar það er gott svona í páskaviku.

IMG_1646

Hér brosir kamilla mín fyrsta brosinu sínu í vor.

IMG_1648

Í dag var fegursta veður sól og blíða.

IMG_1649

Örugglega fleiri myndir á morgun.  Heart

Eigið gleðilega páska elskurnar.


Nei nú fórstu alveg með það Ásthildur.

Ég er nú farin að óttast að okkar æðstu ráðamenn skilji ekki útlensku, eða kunni ekki á erlenda ráðamenn. 

Ef til vill eru þeir eins og börnin innan um fullorðna fólkið kunna ekki leikinn.

 

Til dæmis þegar Svavar fór út og kom með þennan líka glæsilega samning heim úr þeirri för, sem kom svo á daginn að var mesta hörmung sem hægt var að bjóða okkur upp á.

 

Eða þegar Jóhanna sagði okkur að bara það eitt að sækja um aðild að ESB myndi færa okkur allskonar bjargræði og vináttu.  Ekkert hefur borið á slíku ennþá a.m.k.

 

Það er líka dálítið nöturlegt að um leið og utanríkisráðherra BNA skammar Kandamenn fyrir að leyfa íslendingum ekki að taka þátt í ráðstefnu um sjávarútvegsmál NorðurAtlandshafsins, skammar Össur forstöðumann bandaríska sendiráðsins í Reykjavík fyrir að leka trúnaðarskýrslum um sjálfan sig og aðra.

 

Og það má benda á að það er enginn sendiherra frá Bandaríkjunum á Íslandi, vegna þess að m.a. Össur klúðraði þar málum, ásamt forsetanum, svo ekki hefur gróið um heilt.  Og menn virðast ekki hafa neinar áhyggjur af því.

  

Ég óttast að það fólk sem við höfum ráðið tímabundið til að sjá um okkar hag í þessu landi, ráði ekki við verkefnin.  Þau virðast ekki skilja hvernig svona hlutir fara fram, og verða því sífell sjálfum sér og okkur til minnkunnar.

 

 

Á meðan landið brennur, eru ráðamenn að leika sér með allt önnur málefni en þau sem brenna mest á þjóðinni.  Mjög margir hafa bent á þessa, meira að segja í gær Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambands Íslands, þar áður Samtök Atvinnulífsins, þó segja megi að þeim gangi ekkert gott til og vinni fyrir L.Í.Ú fyrst og fremst.  Þá eru þetta samt sem áður aðfinnslur sem taka ber alvarlega.  Það hafa margir bent á að við erum á röngu róli við uppbyggingu atvinnulífsins.  Í stað þess að ýta undir atvinnurekstur, smáiðnað og virkja almenning, eru settir á skattar og skyldur sem gera fólki nánast ókleyft að hreyfa sig, þó það hafi góðar hugmyndir og vilja.  Allt er lamað niður og njörvað, svo enginn getur hreyft sig.

 

Það var alltaf talað um að vinstri menn væru einmitt svona, en ég hallaðist að því að trúa ekki slíkum sögum, svo reynist hvert orð vera satt.

 

Í stað þess að leggja sig í líma við að ýta hjólum atvinnulífsins í gang, sitja þau og rífast um ketti, Kassöndrur og keisara. Svo er ráðist í að byggja hátæknisjúkrahús, meðan verið er að loka sjúkradeildum og segja upp fólki, byggja tónlistahöll og auka styrki til listamanna, um leið og kvikmyndagerð er skorin niður við trog. 

 

Almenningur er ekki vitlaus.  Við bíðum eftir lausnum, við tókum af skarið með þennan arfavitlausa Icesavesamning, og nú bíðum við eftir að ráðamenn komi með lausnir sem gagnast okkur í endurreisn.  Eitthvað haldfast sem hægt er að taka á og byrja að byggja upp ánýtt.

 

 

En fólkið bíður ekki lengi enn, áttið ykkur á því.  Þið eruð að brenna út á tíma.  Það eina sem núverandi ríkisstjórn hengir sig á í dag er að fólki vill ennþá síður þá sem bíða fyrir utan og vilja endilega sprengja ríkisstjórnina til að komast sjálfir að.

 

 

Þið ráðið ekki neitt við neitt, viðurkennið það bara og farið bónferð til Bessastaðabóndans, biðjið hann um að skipa utanþingsstjórn til að stjórna landinu meðan þið endurskipuleggið ykkur og veitið nýju fólki aðganginn, stigið sjálf til hliðar og sýnið okkur þá kurteisi að fara frá. 

Ef eitthvað væri verra en Sjálfstæðisflokkur og Framsókn þá er það Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn.  Málið er að við vitum alveg hvað Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir, þ.e. sá hluti hans sem er í meirihluta(frjálshyggjuarmurinn), en Samfylkingin er sundurlaus höfuðlaus her sem ekki er hægt að treysta fram fyrir næsta horn. 

Ég held að ef allt væri tekið saman, þá bæri, það sem nú kallast órólega deildin í Vinstri Grænum mesta traust fólksins í landinu. 

Við viljum sjá aðgerðir en ekki endalausar upphrópanir um að þetta sé svo gott og flott og nú sé þetta að koma.  Bíðandi eftir úrlausnum frá AGS og helst ESB.  Það er bara þannig að það hleypur enginn upp til handa og fóta að bjarga okkur, nema við sjálf. 

 

Ég heyrði talað um að á næsta ári myndi skella yfir önnur heimskreppa verri en sú síðasta.  Ef svo er, þá verð ég að segja að af flestum þeim löndum sem ég þekki til, þá myndum við komast best af úr slíku.

 

Við höfum nefnilega allt sem til þarf, ef við álpumst ekki til að afhenda erlendum auðkýfingum og ríkjum auðlindirnar okkar.

Við eigum fisk sem er bæði okkur sjálfum nægur og til útflutnings, við eigum matarkistu sem eru þau húsdýr og villt dýr sem við getum í okkur látið.  Við eigum ávext eins og krækiber, bláber og aðalbláber, hrútaber og jarðaber. Við eigum allskonar jurtir til átu og lækninga,Við eigum jarðhita og getum sennilega framleitt alla ávexti sem við þurfum á að halda og grænmeti.  Við eigum hreint kalt vatn.  Og nægilega vatnsorku til rafmagnsframleiðslu, m.a. bráðlega orku sem unninn verður úr hafstraumum.  Auðævi sem felast í fólkinu sem hér býr og þekkingunni sem er til staðar.

Svona mætti lengi telja, því má segja að ef við verðum einangruð frá umheiminum, getum við lifað af með því sem við höfum.  Ég segi við gætum lifað af, því við höfum allt til alls.  Það er miklu meira en aðrar þjóðir geta sagt.

 

 

Ef til vill verður framtíðin þannig að hver verði sjálfum sér næstur.  Þeir sem lifa nægjusamlegu lífi komast á endanum betur af en hinir sem bruðla með allt. 

Það sést sennilega best á því að við hér á Vestfjörðum erum nú hvað best stödd, minnsta atvinnuleysi, minnst fækkun og svo framvegis, af því að við höfum þurft að ganga þennan kreppuveg síðastliðin 20 ár, eða frá því að fiskurinn auðlindin sem Vestfirðir byggðust upp á, var tekin frá okkur og við höfum þurft að aðlaga okkur að breyttum aðstæðum.  Ég er líka viss um að þegar þeirri auðlind verður skilað til baka, sem verður fljótlega hef ég grun um, þá mun þetta svæði blómstra á ný. 

Þeir sem hræðast einangrun ættu að heimsækja sveitabæi sem eru langt frá öðrum byggðum.  Þar er hreinlega tekið á því að komast ekki frá bæ langa harða óveðursdaga. 

Ef til vill erum við að fara til baka til fortíðar, það þarf alls ekki að vera slæmt, það er hvernig við tökum á lífinu sem skiptir máli en ekki hvað við missum.

 

noname6

 

Sumum köttum þarf ekki að smala, þeir einfaldlega njóta félagsskaparins í ríkum mæli.

 

images

 

Ef ég ætti að velja um að vera í þessu hrikalega ástandi og hringekju um útrásarvíkinga, útburði og misrétti þá má ég frekar biðja um að lifa af því sem landið gefur og vera frjáls.


Myndir og vor í kúlu.

Jæja þá er komið að myndabloggi.  Ég hef sem betur fer haft nokkra af ungunum mínum í heimsókn þessa helgi, og reyndar ætlum við að borða saman í kvöld, ég var svo heppinn að finna þetta líka risalæri 2.8 k.  sem ætti að duga fyrir okkur öll.  En nóg um það.  Her koma myndirnar.

IMG_1578

Eldþyrnirunninn minn er flottur allan veturinn, nú fara bráðum að koma hvít blóm, og þá verður hann glæsilegur á að líta.

IMG_1579

Kamilla drottning er að koma út með ný blóm.  Hún er einkar glæsileg, reyndar opnaðist eitt blómið í morgun.

IMG_1580

Páskarósin er yndislegt blóm, hún getur lifað úti og blómstrar gjarnan upp úr snjóbreiðunni.  Þarna má líka sjá stóru grafmyrtuna.  Þau lífga upp á vorið í kúlunni þessar elskur.

IMG_1582

Perutréð er líka alveg að springa út.  Samkvæmt dóttur minni, þá er þetta svipað komið áleiðis og í Vína.  Ef til vill aðeins fyrr þar, enda meiri sól.

IMG_1583

Fyrir brottfluttu ísfirðingana mína má sjá að ekki er mikill snjór í fjöllum núna í endaðan mars. Samt er nægur snjór uppi á Seljalandsdal fyrir gönguskiðafólk. 

IMG_1585

Við Svanfríður vinkona fjölskyldunnar fórum saman með pabba í bíltúr í gær, við fórum í hesthúsin, niður á höfn og komum svo við í Kúlunni.  Hann var glaður með félagsskapinn, hann kemur í mat til okkar á eftir.

IMG_1586

Smábarnið á heimilinu með uppáhaldsdótið sitt Heart

IMG_1587

Hann þvælist um með tuskudýrið sem Hanna Sól á reyndar, um allt húsið og er glaður með það.

IMG_1589

Flott saman Snúður og Sigrún Hulda.  Heart

IMG_1591

Hagaðu þér vel Snúður, segir Sólveig Hulda á barnamáli, hún er ekki farin að tala svo samkvæmt Mary Poppins skilur hún dýramál.

IMG_1593

Skafti minn með dóttur sína, sem er eins og snýtt úr úr nösinni á honum, þegar hann var á hennar aldrei, og svo Sigurjón Dagur.

IMG_1596

Ólöf Dagmar dugleg og flott ömmustelpa.

IMG_1597

tvær sætar saman.

IMG_1600

Grallararnir mínir komu líka í heimsókn.  Þeir fengu að gista í nótt.  Alltaf gaman í kúlu.

IMG_1608

Það er nefnilega málið að kistan góða heillar, með öllum fötunum og ævintýrunum sem hún geymir.

IMG_1609

Ef þið haldið að þarna sé eitthvað aldurstakmark, get ég frætt ykkur á því að meira að segja tengdadæturnar eiga það til að fá að fara í kistuna til að finna föt LoL

IMG_1610

Mamma ég þarf að fara í spidermann gallann geturðu hjálpað mér?

IMG_1615

Já þetta verður í lagi.

IMG_1612

Svo  var sett upp leikrit og leikið fyrir okkur líka.

IMG_1613

Sumir eru bara ALLTAF svalir!!!LoL

IMG_1616

Meðan aðrir fara á kaf í leikinn.

IMG_1618

Þessi leikgleði og skemmturn barna er hrein og ómenguð orka ef við leyfum þeim að gefa okkur gleðina og kátínuna sem þau eiga og gefa frá sér.

IMG_1620

Sköpunargleðina og allt það sem þau eiga til.

IMG_1627

Þetta er bara skemmtilegt.

IMG_1628

Og myndi sóma sér í hvaða leikhúsi sem væri.  Heart

IMG_15771

En þessi ungi maður var reyndar á Broadway í Grunnskólanum þetta kvöld.  New York New York.

Ég sendi ykkur öllum kærar kveðjur og knús.Heart


Hugleiðing.

Ég er svona að pæla í ýmsum hlutum, fyrir utan að vera með ritstíflu, þá er hugurinn á fullu.

 

Ég verð að viðurkenna að stjórnmálin eru skrýtin í dag, og mér virðist ég ekki vera eina manneskjan um það að vera rugluð í rýminu.

 

 

Var til dæmis að sjá skoðanakönnun um flokkana í Reykjavík þar sem Sjálfstæðisflokkurinn er langstærstur, og sá sem kemur sáir og sigrar er Jón Gnarr.  Hann er sjálfsagt hinn vænsti maður og þau sem standa með honum að framboði.  En er fólk virkilega ekki komið lengra en svo að það ætli að kalla yfir sig aðra búsáhaldabyltingu, með fullri virðingu fyrir því ágæta fólki.  Því þetta er ekkert annað en slíkt í öðru formi.  Það er hlaupið á næsta hest út í miðri á.

 

 

Í fyrra tilfellinu er fólk sem gjörsamlega skilur ekki hvað er í gangi að ætla að kjósa yfir sig aftur og aftur sama spillta liðið sem hefur tröllriðið landinu undanfarin 20 ár eða svo, og svo hinir sem hlaupa á fyrsta flekan sem býðst. 

Það tekur nefnilega tíma að byggja upp stjórnmálaafl.  Það vitum við í Frjálslynda flokknum.  Það hefur tekið okkur um að bil 12 ár í umbrotum og auðmýkingum, liðhlaupum, höfnun, lygum og rætni.  Það sem vildi okkur til er að við höfum þessa góðu málefnaskrá, sem hefur alltaf staðið óhögguð. 

Og fólk hefði betur hlustað á það sem forystumenn flokksins sögðu, þ.e. þeir sem hafa verið flokksmenn, en ekki þeir sem hlupu inn til að reyna að sveigja af leið.  En það er einmitt það sem gerist við svona ný framboð, það er fullt af fólki sem hleypur á pallinn til þess að trana sjálfum sér fram, en ekki til að vera með í liðsheildinni. Það tekur tímann sinn.

 

Þess vegna er undarlegt að fólk skuli ekki velja það sem fyrir er, til dæmis Frjálslynda flokkinn, Borgarahreyfinguna eða Hreyfinguna, en stökkva beint á þann boltan sem rúllar framhjá skrautlegur og skær.

 

Ef við ætlum að byggja hér upp nýtt Ísland, þurfum við einmitt að bera ábyrgð á atkvæði okkar og skoða vel hvað er í boði.  Hvað fólk hefur að segja og fram að færa.  Stefnumálin númer eitt tvö og þrjú.

 

 

Ég var virkilega undrandi að heyra það eftir viðskiptaráðherranum að hann furðaði sig á því hve lítil áhrif hrunið hefur haft á ástandið í landinu. Þá skildi ég loksins fyrir fullt að “þetta fólk” þ.e. ráðamenn landsins eru ekki í neinum tengslum við almenning í landinu.  Þau lifa og hrærast örugg með sínar tekjur og afkomu, innan um alla hina sem eru með fastar tekjur og afkomu, samráðherra, fólkið í ráðuneytum, bankastjórnendur sem eru að taka allt sem hægt er að taka af almenningi og svo útrásarvíkingana sem þeir eru að vernda fyrst og fremst.

 

Almenningur stendur úti í kuldanum og horfir inn um hélaðar rúðurnar, eins og litla stúlkan með eldspýturnar. 

Ég get sagt Gylfa Magnússyni það að þessi fjandans kreppa hefur gjörsamlega umbylt mínu lífi, hrakið mig úr öryggi út í kuldan, börnin mín öll farin eða að yfirgefa landið vegna ástandsins.  Þetta virðist ekki valda neinum áhyggjum hjá því fólki sem lofaði að slá skjaldborg um heimilin og fólkið í landinu.

 

Steingrímur hefði til dæmis gott af að lesa gömlu ræðurnar sínar upp á nýtt, þessar sem hann flutti í stjórnarandstöðu, þau hann og Jóhanna ættu að leggjast yfir að lesa og LÆRA utan að kosningaloforðin sem nú liggja gleymd og grafin í glatkistunni.

Þau þurfa reyndar ekki annað en að lesa DV til að sjá að daglega er verið að bera fólk út úr húsum sínum, einstæðar mæður, ekkjur og bara venjulegt fólk, sem bankarnir láta bera út, þeir eru að eigna sér allt það sem almenningur í þessu landi á, og gera það meðan ríkisstjórnin horfir á með blinda auganu, algjörlega áhugalaus, og undrast hve lítil áhrif kreppan hefur haft í landinu.

 

 

En verst af öllu er að hugsa til þess að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn nái þeim tilgangi sínum að hrekja þessa duglausu ríkisstjórn frá. Því þá fyrst frysi í Helvíti.

 

Þeir eru núna grímulausir í afstöðu sinni til sægreifanna og sýna svart á hvítu að þeirra hjarta hrærist fyrst og fremst með peningaöflunum.  Það er þeirra upphaf og endir.  Við sáum þetta greinilega í Kastljósinu í gær þegar þær áttu saman Vigdís Hauksdóttir og Ólína Þorvarðardóttir.  Frekjan og yfirgangurinn í framsóknarkomunni var yfirgengilegur og svo greinilegt að hún vissi ekkert hvað hún var að tala um.  Ég var ánægð með Ólínu bæði í þættinum og svo það sem ég las um fundinn og fundafundinn í Edinborgarhúsinu.

 

Ólína þekkir miklu betur ástandið úti á landi, hefur kjark til að brjóta það til mergjar og segja frá.  Kjark sem eiginlega enginn hefur haft hingað til nema Frjálslyndiflokkurinn og forystumenn hans.  Enda hefur það brunnið þar vel á.

 

Ég hef sagt það áður og segi það enn, lýðræðið kostar, það er ekkert sjálfgefið að við höfum það.  Við sjáum það núna eftir áratuga kæruleysi og heimóttarskap í kjörklefanum hve við getum alið af okkur spillingaröfl og komið á nánast einræði Mammons.  Við höfum látið það átölulaust að vera hlunnfarin, svipt eignum okkar og ættingjum og kosið sömu spillinguna yfir okkur aftur og aftur. 

Hér þarf að vera breyting á.  Nú þurfa menn að taka upp nýja háttu.  Ég get bent þeim á sem hafa kosið undir hótunum L.Í.Ú manna um brottfluttning atvinnulífsins ef menn kjósa ekki rétt, að það veit enginn hvað maður gerir í kjörklefanum, þess vegna eru kosningar leynilegar.  Til að fyrirbyggja að einræðisherrar misnoti fólk á þann hátt.

 

Við hljótum að þurfa að taka okkar ábyrgð á því hvernig málum er háttað í dag. 

Okkur ber að veita aðhald og eina aðhaldið sem við eigum til er að kjósa ekki fólkið sem bregst okkur.  Það er eina ráðið sem dugar, eina sem pólitíkusarnir hræðast.  Það er vopnið okkar, en ef við bara kjósum til að kjósa, hugsunarlaust og með einhverjar glansmyndir í hausnum, þá verður vopnið bitlaust og við þurfum að híma fyrir utan hrímaðar rúður, skjálfandi og reið og horfa á dýrðina fyrir innan; eða eins og fjármálaráðherrann okkar fyrrverandi sagði þegar Frjálslyndi flokkurinn var á þingi og hafði áhyggjur af hvert stefndi; hvað er þetta drengir, sjáiði ekki veisluna!!!

 

Árshátíð Grunnskólans á Ísafirði 2010.

Fór á árshátíð Grunnskólans á Ísafirði í morgun.  Það var virkilega skemmtilegt að sjá alla þessa kátu krakka gera svo fína hluti.  Þarna voru flottir búningar og skemmtilegar sýningar.  Kennarar skólans og krakkarnir eiga þakkir skildar fyrir þessa frábæru sýningu.

IMG_1496

Hér eru aðalkynnarnir.

IMG_1498

Fyrsti bekkur söng skemmtilega á mörgum tungumálum.  Ótrúlega flott.

IMG_1500

Þau sungu á íslensku, kínversku, ensku og eitthverju afríkutungumáli.

IMG_1502

Hver bekkur kynnti svo sína sýningu.  Hér eru annars bekkingar.  Þau byrjuðu með Palla einum í heiminum, og ræddu um að það væri betra að deila öllu með vinum sínum, heldur en að vera einn.

IMG_1503

Hér er hann Palli með allt dótið og sælgætið, en hann er bara einn. Eins og útrásarvíkingur.

IMG_1504 

Þá er nú betra að deila með vinum.

IMG_1505

Og muna að við erum öll á sama báti í heiminum.

IMG_1507

Og syngjum öll sama söngin í kór.

IMG_1509

Þriðjubekkingar spáðu í hvað aðrar þjóðir geri á sínum árshátiðum, hér syngja grænlendingar.

IMG_1511

Í USU dansa þeir auðvitað línudans.

IMG_1513

Í Afríku dansa þeir tryllta dansa.

IMG_1515

Kína er kurteisin uppmáluð.

IMG_1518

Og á Spáni dansa þeir flamengo í skrautlegum kjólum. Ætli einhverjar mömmu hafi ekki setið við að sauma?

IMG_1520

Í frace kyrja menn svo aluette.

IMG_1524

 Fjórðubekkingar fóru með okkur í víking til Ameríku.

IMG_1528

Þar brugðu þeir á leik.

IMG_1531

Hér er Auður Djúpugða, sem var svo vitur að hún vissi að einn og tveir voru þrír LoL

IMG_1534

Finmtubekkingar tróðu upp með brandara og sögur, hér erum við í bíó.

IMG_1536

Flottir kynnar, eins og þau voru reyndar öll.

IMG_1537

Sjöttubekkingar buðu okkur í ævintýraferði um norðurlönd, þar heimsóttu þau Hálsaskóg, Kardimommubæ, Kattholt og fleiri góða staði.

IMG_1538

Ræningjarnir ákveða að ræna Soffíu frænku til að taka til.

IMG_1542

Soffía frænka þarna og bakararnir og fleiri góðkunningjar norrænna ævintýra.

IMG_1545

Sjöundi bekkur fór með okkur á tímaflakk á vegum indíjána til að reyna að losna við mafíósa.  Hér er New York New York.  Úlfurinn þarna fyrir miðju.

 

IMG_1548

FLottur er hann.

IMG_1549

Sjá drenginn minn, að dansa.

IMG_1557

Hér eru mafíósarnir og Indíjánarnir.

IMG_1563

Já þau voru flott og mikið gaman að þessu innilega takk fyrir mig.

það hefur ekki verið neitt smáverkefni að finna alla þessa flottu búninga, og aga alla þessa fjörugu krakka og koma þeim svona vel á sviðið, þar var hvergi neinn bilbugur eða tafs, allt gekk ótrúlega smurt og vel. Ég ráðlegg foreldrum og aðstandendum að fara og sjá þessa flottu sýningu í fyrramálið kl. 9.  Að vísu sá ég svo ekki eldri bekkingana, þeir sýna í kvöld.  En vel þess virði að fara og sjá.

IMG_1567

Hreykin með mömmu eftir sýninguna Óðinn Freyr. Heart

IMG_1576

Og litla ömmuskottið Sólveig Hulda. Heart

Eigið góðan dag elskurnar. Heart


Frjálslyndir á landsþingi.

Eins og ég sagði áður brá ég mér af bæ og fór á landsþing Frálslynda flokksins sem haldið var á Hótel Cabin á helginni.

IMG_1421

Færðin var eins og best á kosið, Hesturinn alltaf jafn glæsilegur.

IMG_1428

Þó við eigum ekki eldgos hér vestanlands, þá eigum við nokkuð sem jafnast alveg á við eitt slíkt.

IMG_1429

Ótrúlega tilkomumikið og ekki þarf að hætta flugi, eða rýma hús og loka vegum.

IMG_1431

Röðull glaður rennur,

og rökkrið nálgast senn.

IMG_1432

Ekki öskugjóska bara sól og ský.

IMG_1433

Og hvítir fannatindar.  Þvílíkt land sem við eigum Íslendingar.  Og hve suma langar að selja það eða gefa útlendingum, til að vera stórir karlar í útlöndum.

IMG_1444

Þetta er hann Grétar Mar æringi og prakkari.  Við áttum góðar stundir saman Frjálslynd föstudag og laugardag.  Ég tók nokkrar myndir en fyrst ætla ég að setja inn stjórnmálaályktunina sem var samþykkt á fundinum.

Stjórnmálayfirlýsing Frjálslynda flokksins

 

Mynd_0460945

Því verður ekki á móti mælt að ef stefna Frjálslynda flokksins hefði orðið ofan á við stjórn landsins á síðasta áratug, þá stæði þjóðin nú í allt öðrum og miklu betri sporum.  Frjálslyndi flokkurinn barðist gegn einkavinavæðingunni, verðtryggingunni, skuldsetningu þjóðfélagsins og illræmdu kvótakerfi sem brýtur í bága við mannréttindi.

 

Eina leiðin fyrir Íslendinga út úr þröngri stöðu er að auka framleiðslu og gjaldeyrisöflun en alls ekki að fara leið AGS og Fjórflokksins um stóraukna skuldsetningu, niðurskurð og hækkun skatta.  Við endurskoðun

efnahagsáætlunar AGS verði tekið mið af íslenskum raunveruleika. Beinasta leiðin við öflun aukins gjaldeyris er að gera betur í þeim atvinnugreinum sem þjóðin gerir vel í s.s. sjávarútvegi, landbúnaði og ferðaþjónustu.

 

  

 

 

 

 Frjálslyndi flokkurinn hefur ítrekað rökstutt að hægt sé að ná miklu mun meiri verðmætum í sjávarútvegi án aukins kostnaðar með því að fiskur fari á frjálsan markað, taka í burt hvata til brottkasts, veiðiheimildir verði auknar verulega og bæta nýtingu.  Möguleikar ferðaþjónustunnar eru ótæmandi enda er landið fagurt og gott en almennt glímir atvinnugreinin líkt og aðrar við gríðar háa vexti sem verður að lækka. Nauðsynlegt er að samningar um stóriðju verði gagnsæir og tryggi úrvinnslu afurða. Ýta á  undir almenna nýsköpun í smáu sem stóru í;  líftækni, tækni, landbúnaði og þjónustu. Horfa skal til skynsamlegra lausna óháð kreddum,  við eflingu atvinnulífs s.s. að tryggja iðnaði og garðyrkjubændum rafmagn á hagstæðu verði.

 

Kreppa er staðreynd á Íslandi en hún er skilgetið afkvæmi sambúðar spilltrar stjórnmálastéttrar og fjárglæframanna.  Frjálslyndi flokkurinn hafnar því að afleiðingarnar af henni lendi með fullum þunga á þeim sem síst skyldi og eiga enga sök. Fjármagnseigendum var bættur strax skaðinn en skuldugur almenningur látinn blæða og blæðir enn.

 Allir eiga rétt á mannréttindum og viðunandi lífskjörum til verndar heilsu og vellíðan.  Stöðva verður að fólk sé hrakið út af heimilum sínum sökum; kreppunnar, verð- og gengistryggðra lána. Tryggja verður sanngjarna lausn, lágmarksframfærslu og að sérstök áhersla verði lögð á aðbúnað þeirra sem erfa munu landið.  Endurskoða þarf samspil álagningar skatta og beitingu skerðingarreglna hjá Tryggingarstofnun svo tryggja megi eldri borgurum, öryrkjum og atvinnulausum viðunandi lágmarks laun.    

Staða mála í íslensku samfélagi kallar á endurmat á skipulagi samfélagsins  og á það jafnt við um stjórnskipan  og samkrull hagsmunasamtaka.  Frjálslyndi flokkurinn hvetur fólk til virkari þátttöku í kjarabaráttu en verkalýðsforystan er orðin verulega höll undir Fjórflokkinn og  á í óskiljanlegu samkrulli við Samtök atvinnulífsins.  Minni atvinnurekendur og nýliðar í rekstri eiga lítið skjól í SA sem virðast telja það heilaga skyldu að viðhalda óbreyttu kerfi sérhagsmuna. 

 

Frjálslyndi flokkurinn hefur frá stofnun lagt áherslu á að landið verði eitt kjördæmi.   Ráðherrar skulu víkja af þingi til þess að skerpa á þrískiptingu valdsins.

 

Frjálslyndi flokkurinn lýsir yfir stuðningi við þá ákvörðun Ólafs Ragnars Grímssonar forseta, að vísa þeirri ákvörðun til þjóðarinnar, hvort að þjóðin eigi að greiða skuldir óreiðumanna. Frjálslyndi flokkurinn er fylgjandi beinu lýðræði. Þjóðaratkvæðagreiðslur færa valdið til þjóðarinnar  frá stjórnmálastétt sem bundin er á klafa þröngra sérhagsmuna. 

 

Tryggja skal rétt minnihluta þingsins til  þess að vísa málum til þjóðarinnar en það leiðir til þess að leiðtogar stjórnarflokka sem ráða sínu þingliði verði ekki einráðir við lagasetningu

 

Sömuleiðis er það krafa að 10% atkvæðisbærra  manna geti með undirskrift hjá opinberu embætti, s.s. sýslumanni eða ráðhúsi, látið fara fram þjóðaratkvæðagreiðslur um einstök mál.  Sömuleiðis skal halda í málskotsrétt forseta Íslands.

 

Festa skal í sessi að stjórnlagaþing verði kallað saman á 25 ára fresti til þess að  tryggja að grundvallarlög lýðveldisins verði tekin til endurskoðunar fjórum sinnum á öld.

 

Við hrunið hafa mikilvægustu stofnanir landsins misst trúverðugleika sinn og fer Hæstiréttur ekki varhluta af því. Grundvöllur þess að bæta þar úr er að það ríki almenn sátt í samfélaginu um skipan dómara að tilnefning dómsmálaráðherra þurfi samþykki aukins meiriluta Alþingis.

 

Bæta þarf vinnubrögð Alþingis m.a. svo að fundir þingnefnda verði í  heyranda hljóði en það tryggir opin og lýðræðisleg vinnubrögð.

 

Standa skal vörð um að háskólar og fjölmiðlar ræki hlutverk sitt sem miðstöð og miðlun gagnrýnar hugsunar en mikið hefur skort þar á.  Frjálslyndi flokkurinn leggur til að Háskóli Íslands þiggi ekki stöður eða styrki til einstakra embætta, heldur verði styrkjum veitt í einn pott sem úthlutað verði til rannsókna.  Það yrði til þess að sérhagsmunaöfl, s.s. LÍÚ, geti ekki búið áróður í fræðilegan búning og gengisfellt  háskólastarf.  Tímabært er að taka aðferðir Hafró til gagngerrar endurskoðunar. Uppbygging fiskistofnanna  síðustu áratugina hefur ekki gengið eftir, enda stangast aðferðir Hafró á við viðtekna vistfræði.

 

Frjálslyndi flokkurinn mun setja sér siða- og umgengnisreglur sem fela m.a. í sér að frambjóðendur undirriti drengskaparheit um að láta af trúnaðarstörfum fyrir flokkinn ef viðkomandi verður viðskila við hann.

 

Nú í niðursveiflunni,  er talsverður vandi að afla fjár í gegnum skattkerfið til þess að halda uppi samfélagslegum gæðum  á borð við; menntun, heilbrigðisþjónustu, löggæslu, trygga lágmarksframfærslu o.s.f. Hætt er við að aukin skattheimta skrúfi efnahagslífið í enn frekari niðursveiflu og því mikilvægt að fara varlega í skattahækkanir. 

 

Ísland ætti í ljósi biturrar reynslu  vafasamra fjármagnsflutninga að verða leiðandi á alþjóðavettvangi um upptöku Tóbínskatts á fjármagnsflutninga á milli landa. 

 

Ekki verður séð að Ísland eigi nokkuð erindi inn í ESB, en sambandið er hvorki vont né gott í eðli sínu heldur stórt hagsmunatengt stjórnkerfi. Sérstaklega í ljósi fiskveiðistefnu sambandsins og harðneskjulegrar afstöðu í garð Íslendinga í kjölfar bankahrunsins.

 

Íslenska þjóðin getur átt bjarta framtíð en þá verður hún að þora að losa sig úr viðjum séhagsmunabandalaga og vinna sameinuð að aukinni verðmætasköpun og atvinnu í landinu.

Svo mörg voru þau orð. 

En sem sagt þetta var gott þing og umræður miklar, og ekki allir á sama máli með alla hluti frekar en er þegar margir koma saman.  En málin voru rædd og komist að niðurstöðu sem allir gátu sætt sig við.

IMG_1446

Unnið í málefnavinnu.

IMG_1447

Það mæddi mikið á þessum tveimur dömum, sem voru ritarar fundarins.

IMG_1448

Það var svo tekið matarhlé, maturinn á Hótel Cabin er bæði ódýr og góður.

IMG_1449

Hér voru fleiri ísfirðingar, þau voru í keppnisferðalagi í íþróttafélaginu Ívari.  Stóðu sig vel sumir komust í undanúrslit. 

IMG_1451

Hér er Rannveig mín og Sela Pétur sem er kallaður svo strandamaður, þau voru að vinna í málefnahópi.

IMG_1453

Svo var komið að kosningum, hér talar annar frambjóðandinn um varaformann, Ásta Hafberg fyrir sínum áhugamálum.

IMG_1457

Ábyrgðarfullur formaður, Sigurjón var einn í kjöri, og ég óska honum velfarnaðar í nýju en erfiðu starfi, hér er mikið verk óunnið, en þau þrjú Ásta hann og Grétar Mar standa ekki ein, því hér eru margir tilbúnir til að bretta um ermar og hjálpa til.

IMG_1458

Það voru margir á fundinum, og mörg gömul traustvekjandi andlit, þeirra sem hafa verið með frá upphafi, líka ný andlit tilbúin til að leggja sitt á vogaraflið, og svo þeir sem voru að koma aftur eftir hlé, vegna leiðinda.  Það var einkar ánægjulegt.

IMG_1461

Menn klöppuðu fyrir nýkjörnum formanni.

IMG_1475

Tveir þungavigtarmenn í Frjálslyndaflokknum, töffararnir Guðjón Arnar og Grétar Mar.

IMG_1478

Það var slegið á létta strengi um kvöldið og þá er Pétur Bjarnason alveg nauðsynlegur með nikkuna.

IMG_1480

Vinur minn Jens Guð hér fremstur meðal jafningja.

IMG_1482

Sæt saman formaðurinn og frúin.

IMG_1485

Helga Þórðar sú sem skipulagði þingið er hér að bjóða upp útrásarvíkinga.

IMG_1489

Frú Barbara Kristjánsson hafði líka heklað flottar húfur sem menn gátu keypt.

IMG_1491

Hér er vinur minn Guðsteinn Haukur, sem ég hef aldrei séð, en þekki samt vel.

IMG_1492

Georg fá Vestmannaeyjum kom og sá og sigraði inn í miðsstjórn.

Takk öll fyrir frábæran fund og skemmtileg heit.  Ég er vongóð um að við náum vopnum okkar og komumst aftur á ról.


Draumur - eða skilaboð að handan?

Ég brá mér örstutt af bæ og fór á landsþing Frjálslyndaflokksins.  Það var virkilega ánægjulegur tími, og gott andrúmsloft.  Loksins er sami gamli friðurinn og var í árdaga flokksins, sömu gömlu tryggu andlitin og hlýjan og væntumþykjan sem var, en einnig ný andlit og fersk, og svo gömlu félagarnir sem höfðu flúið lætin og erjurnar sem voru orðin nánast óþolandi sem eru að týnast inn aftur. 

Skemmtilegast var að heyra að eftir meira en áratug, stendur málefnasamningurinn eins og klettur.  Svo vel var staðið að gerð hans fyrstu árin.  Sumt hefur áunnist, þ.e. aðrir flokkar hafa tekið að hluta til undir þau sjónarmið sem koma þar fram, önnur bíða.  Það hefði betur verið hlustað á okkur í meira mæli.  Guðjón Arnar sagði líka í sinni lokaræðu að hann væri fastur fyrir, og ef menn kæmu nýjir inn í flokkinn og vildu svo fara að breyta um kúrs, yrðu þeir að yfirgefa flokkinn.  Stefnan og málefnin héldu.  Málefnasamningur sem grasrótin hefur unnið og skrifað upp á blívur.  Auðvitað þarf alltaf að vera að skoða og bæta inn í eða breyta smávegis, þar sem tímarnir breytast, en svo sannarlega stendur megin kjarni okkar föstum fótum.  En því verður ekki breytt nema á landsþingi með meirihluta atkvæða.  hægt er að skoða hann á xf.is

Ég á eftir að koma hér með myndir og upplýsingar um fundinn okkar, en það verður ekki í dag. 

merki

Við hittumst þrjár dömur á Kaffi Hressó á sunnudaginn og ræddum landsins gagn og nauðsynjar.  Við vorum fulltrúar Samfylkingarinnar, Frjálslyndaflokksins og Borgarahreyfingarinnar.  Eftir þær umræður er ég komin á þá skoðun að við konurnar, þessa venjulegu og svo mjúku mennirnir eigi að fá stjórnvölin í hendur og fá að leysa úr málum landsmanna.  Við höfum réttu sýnina og kunnum að tala saman og vinna saman.  En það er bara alltaf þessi eiginhagsmunastefna og pot sem er að fara með allt til fjandans.

c_documents_and_settings_skrufa_my_documents_my_music_my_pictures_akureyri_906461_907385

Þess vegna ber ég von í brjósti um aþingi götunnar, það er bara fólk eins og ég og fleiri sem þar eru að vinna þarft og gott starf.

 

En ég ætla að segja ykkur núna dálítið sem bar fyrir mig, þessa helgi, og mér þykir afar merkilegt.

Ég skrifaði þetta upp, svo ég gleymdi ekki smáatriðunum. 

 

Aðfararnótt laugardagsins 20. mars dreymir mig draum sem var svo erfiður að ég vaknaði upp og fann hvernig það hríslaðist óttatilfinning um mig alla.  Var ekki svefnsamt eftir það.

 

En mig dreymir að ég send fyrir ofan og innan æskuheimili mitt Vinaminni.  Það var snjór yfir, snjófjúk og dimmt.  Þá sé ég flugvél koma út úr kófinu, og fer sína vanalegu leið inn fjörðinn.   Ég hugsa samt og veit að það er ekki kveikt á ljósabúnaðinum á vellinum.  Svo flugvélin fer aftur. 

 

Skömmu síðar birtist hún aftur, en nú er líka við hlið hennar önnur flugvél, þyrla.  Ég horfi á þessar tvær flugvélar fljúga yfir mig og inn fjörðinn, en ég sé að þetta muni ekki enda vel, þær eru of nálægt hvor annarri loks fer svo að litla vélin (þyrlan) rekst utan í þá stærri og þeytist upp í fjallshlíðina og það kemur heilmikið bál.   Ég missti sjónar af hinni flugvélinni, en veit samt að hún hefur flogið áfram, frussað öllu bensíninu úr og yfir bæ sem stendur þarna Hafrafell.  Ég hugsa með mér að það þurfi að aðvara fólkið, því ef einhver neisti verði, þá muni húsið standa í björtu báli vegna bensínsins.  Ég vissi ekki símanúmer fjölskyldunnar, en hringi í 112 og bið um að fólkið sé vakið. 

 

Ég vakna þarna upp og líður ansi illa.

 

Ég sagði fólki þennan draum á laugardagsmorguninn, og ein þeirra spyr mig hvort ég sé berdreymin.  Ég segi að mig dreymi stundum fyrir ýmsu, en það sé yfirleitt tákn sem ég skilji.  Segi þeim frá fiskabúrunum sem mig dreymir oftast undan atburðum, og fer eftir ástandi fiskana og búrsins hvort hann er fyrir góðu eða slæmu. 

 

Um kvöldmatarleytið er svo hringt í mig, það var vinkona tengdadóttur minnar sem býr í Noregi.  Hún segir mér að yngsta barnið þeirra sonar míns hafi brennst illa og hafi verið fluttur með þyrlu á sjúkrahús og sé haldið sofandi.   Það sé ekki vitað hvort hér sé um að ræða tveggja eða þriggja stigs bruna.   Fannst mér sem þarna væri einhver vísbending.   Ég náði svo í son minn um kvöldið í síma, og fékk þetta staðfest.  Ég spurði hann hvort hann hefði brennst eitthvað líka, þar sem hann sat með barnið þegar þetta gerðist.  Nei sagði hann ég brenndist ekkert. 

 

En það var svo aðfararnótt sunnudagsins sem ég fékk samhengi í málið.  Það var einhvern veginn komið til mín, ýtt inn í huga minn atburði sem ég var búin að gleyma.  En  sem sýndi mér svart á hvítu að hér var verið að koma til mín skilaboðum.

 

En það gerðist fyrir nokkrum árum að við fjölskyldan voru stödd í Fljótavík, þangað sem við förum oftast einu sinni á ári.  Júlíus sonur minn var þarna líka, og eitt kvöldið þá var kveiktur varðeldur, og hann ætlaði að sprella, tók upp í sig flugvélabensín og ætlaði að frussa því út úr sér, og leika eldgleypi.  Það vildi ekki betur til en svo að það kviknaði í bensíninu í andlitið á honum og hann skaðbrenndist.  Það vildi  honum til að þarna var stödd stúlka, sem var gift lækni á Akureyri.   Það er sími á einum  bæ þarna, sem var óvenjulegt á þeim tíma, en hún gat hringt í manninn sinn norður og fengið upplýst hvað bæri að gera gegnum símann.  Hún og móðir hennar vöktu svo alla nóttina yfir syni mínum og kældu andlit hans.  Það kom svo flugvél morguninn eftir  og sótti hann og hann fór á sjúkrahúsið.  Þar fékk hann að vita að andlit hans væri tveggja til þriggja stigs bruna, og hann mætti búast við að fá ör.  En hann og yngsti bróðir hans Skafti, fóru heim og ég átti stóra aloe vera plöntu, sem þeir skáru niður og suðu úr mjöð.   Þetta bar hann svo á andlit sitt stanslaust.  Eftir viku, þegar hann fór í eftirlit á sjúkrahúsið var andlit hans gróið, og ekkert ör að sjá.

 

Þegar þetta rifjaðist upp fyrir mér, skildi ég drauminn.  Þarna voru allar vísbendingarnar komnar.

 

Stóra og litla flugvélin, eldurinn, meira að segja frussið með flugvélabensínið, síminn og fyrst og síðast, plantan sem læknaði hann svo vel.

 

Það eina sem ég var hugsi yfir var að mig dreymir þetta aðfararnótt laugardagsins, en barnið brennist ekki fyrr en á hádegi daginn eftir.  Það er eins og þetta hafi verið vitað fyrirfram og gerðar ráðstafanir til að koma skilaboðunum áfram til mín.  Ég þykist sjálf sjá puttaför sonar míns á þessu.  Og er viss um að hann var þarna að senda skilaboð.  Og þegar ég kveikti ekki á perunni, gerði hann aðra tilraun.  Með því að koma atvikinu inn í huga minn í svefni. 

Ég er sannfærð um að ef eldri sonur minn fer eftir þessum ráðum, mun barninu batna fyrr og vera öralaus. 

angel

 

Eigið góðan dag elskurnar.  Og það er gott að vera komin heim aftur.  Tíminn flýgur frá manni þegar svona er.  Og enginn tími gefst til neins.  Það er bara vinna og útréttingar.  Heart


Smákúlublogg.

Það er greinilega komið vor í bæði mannskap og dýr hér fyrir vestan.  Lóan er komin líka. 

IMG_1377

Það eru líka falleg bros sem ylja.

IMG_1379

Og framtíðin fríð.

IMG_1380

Snúðar og snældur.

IMG_1383

Ungviði sem leikur sér.

IMG_1384

Hvar er hún/hann???

IMG_1385

Amma ég er hrædd við kisu, svona í návígi.

IMG_1400

Snúður er mjög gáfaður köttur, hann er búinn að læra að ef hann situr svona stilltur og rólegur og skyggir ekki á skjáinn fær hann að vera í friði.  Það er bara svo skemmtilegt að eltast við músina á skjánum að hann gleymir sér, og þá er hann settur niður á gólf. LoL

IMG_1402

Og pabbi er farin að geta komið í kaffi, það er líka vorboði.

IMG_1405

Honum finnst gaman að hitta barnabarnabörnin sín.

IMG_1407

Þetta litla skott er fiktrass, hún er fljót að fara í stigan.  Þá þarf að kenna henni bæði að fara upp og niður, svona eins og gengur.

IMG_1410

Skemmtilegt að sjá fjöllin í dag, með svona hvíta rönd um sig miðja.

IMG_1411

Það er engu líkara en skapanornirnar hafi brugðið á leik með hvítan tússlit.

IMG_1413

Ótrúlegt en satt.  Og þetta er 17. marz 2010.

IMG_1414

Knús og notalegheit elskurnar.  Svona á að hafa það.  Heart


Samfélagið okkar litla og viðkvæma er ein ormagryfja.

Dv mun ef til vill heyra sögunni til, ef fer sem horfir.  Nema Reyni Trausta takist að fá með sér fólk af götunni til að halda úti blaðinu.  Hrægammarnir liggja allstaðar í leyni að því að sagt er, Vilja komast yfir blaðið, annað hvort til að halda úti sínum áróðri eða leggja það niður.

 

 

En DV hefur tekið á ýmsum þörfum málum undanfarið og örugglega komið við mörg kaun.  Þeir sem reyna að þagga raddir eins og DV ættu að gera sér grein fyrir að þeir geta ekki þaggað niður umræðurnar. Þær færast bara inn á blogginn og spjallþræðina.  Æran er ekki lengur fyrir hendi, svo það er ekki hægt að falla dýpra, það er einungis hversu langt menn hafa gengið í óþokkaskap en ekki hvort þeir séu óþokkar og glæpamenn.  Það er vitað nú þegar.

 

 

En ég var að fletta síðasta Helgarblaðinu, og það sést svo vel hvernig þjóðfélagið er samansett við lestur þess að mann setur hljóðan.

 

 

Sævar gjaldþrota... en hann skrifaði allt á konuna, og svo kemur frétt um að þau séu að byggja sér 500 m2 höll á stað sem heitir Mosprýði.

 

Í sömu opnu er fyrirsögn, ekkjan skal borga.  Kona nýorðin ekkja með þrjú börn fær ekki fyrirgreiðslu, sem hún var þó búin að reikna vel út og taldi sig geta staðið við. Nei það var ekki hægt, hún skyldi punga út eða vera borin út.

 

 

Sólón fékk 200 milljónir fyrir að hætta.  Hvað innibert slíkt?

 

 

Þúsundir þiggja mat, og þá er verið að tala um þúsund fjölskyldur, og fer sífellt stækkandi hópurinn sá.

 

 

Fékk hundrað milljónir frá FL group, Jón Sigurðsson.  Ætli þeim peningum hafi ekki verið betur varið í eitthvað annað?

 

 

Tryggingastofnun aðstoðar ekki við fermingu einhverfs drengs, pabbi hans er dáinn svo stofnunin neitar að greiða.  Vá ég hélt að þetta væri jafaðarmanna flokkar og velferðarstjórn.

 

 

Björgúlfur situr heima í sínu húsi, og hugsar sig um, meðan verið er að vinna í hans málum. Hvað ætli mikið af fénu sé á Tortola? Ég er nokkuð viss um að “fátækt” hans felst fyrst og fremst í því að geta ekki gengið um eins og kóngur og spreðað með peninga. Hann hefur vel fyrir sig og sína.

 

 

En þegar við lesum svona, þá hlýtur hugurinn að reika um íslenskt samfélag og hvernig það er samansett.

 

Við hljótum að sjá að í rúmlega 300.000 manna samfélagi þá er þetta enganveginn hvorki réttlátt né líðandi.

 

 

Féð sem verið er að bruðla svona með eru peningar sem íslenskur almenningur vann í sveita síns andlitis, og treysti svo öðrum fyrir þeim til ávöxtunar. 

 

Þeir sem eru að eyða peningunum hafa ekki unnið fyrir þeim, heldur eignast þá með klækjum.  Og það versta við þetta allt saman, er að ríkisstjórnin segist ekkert geta né vilja gera til að taka þetta föstum tökum og skila illa fengnu fé til fólksins aftur. 

Þau frekar vilja borga meira, og taka endanlega á okkar bök skuldbindingar sem þessir glæpamenn lögðu á okkur börnin okkar og barnabörn.  Þeir vilja endilega samþykkja að við borgum allt upp í topp.  Og sagt er vegna þess að innganga í ESB er svo spennandi kostur fyrir Samfylkinguna.

 

 

Jæja ég get sagt þeim sem þar eru að meiri hluti íslendinga vilja ekki fara þar inn. 

 

Við viljum frekar sjá ykkur fara að taka á spillingunni, reisa skjaldborgina og koma á réttlætinu, öllu þessu var okkur lofað fyrir kosningarnar.  Það þýðir ekki lengur að koma og segja að þið séuð á kafi í að vinna að málunum.  Þegar ekkert kemur út úr þeirri vinnu sem sjáanlegt er. 

 

Það vill ykkur til að við erum svo barnaleg íslendingar að við sitjum hér í ormagryfjunni hvar þið hafið kastað til okkar dúsum og rífumst um hverjum þetta sé mest að kenna, og að við viljum ekki að þessi fari því þá komi hinn. 

Svona er hægt að halda okkur nokkurnveginn passlega niðri til að þið getið haldið áfram að gera ekki neitt, og láta alla spillinguna og viðbjóðinn blómstra áfram.  Því það var alltaf meiningin ekki satt. Þið sitjið nefnilega öll í spillingarsúpunni við kjötkatlan og gulltryggið hvort annað. Og það væri algjör bjánagangur að fara að rokka þeim báti.  Peningarnir eru og verða þar sem þeir eru, og þið njótið góðs af því.

 

 

En það gæti farið svo að það syði upp úr.  Það eru nefnilega nokkrir aðilar sem hafa markvisst reynt að opna augu fólksins fyrir því að þetta er ekki að gera sig, og hér er enginn björgunarleiðangur í augsýn frá Alþingi. 

Allir bíða í ofvæni eftir skýrslunni sem er á leiðinni.  Og það er alveg morgunljóst að ef hún verður eitthvert húmbúkk og yfirklór þá verður allt brjálað.  Ég veit það með sjálfa mig ég er orðin ansi reið, og ég heimta réttlæti. Ég heimta að því sé skilað sem af okkur var tekið og að þjófarnir verði settir inn. 

 

Ég vil nýtt fólk og nýtt blóð í forystu á Íslandi.  Burt með spillinguna, valdníðsluna og asnaganginn.  Þetta er komið nóg.

Ætli okkur takist nokkurntíman að hrinda af okkur þessu oki óréttlætisins og byggt upp Nýtt Ísland?  Allavega ekki með því að vera pikkföst hvert í sínu hjólfari og trúa öllu sem minn maður segir og allt hitt er bara bull.  Það er spilað á okkur eins og hljóðfæri, þess gætt að við séum nógu ómstríð til að við finnum ekki samhljóminn, því hann er öllum þeim afar hættulegur sem er einungis að hugsa um sig og sitt, á kostnað okkar hinna.

Við höfum nefnilega í örfáum tilvikum fundið hann og þá hefur eitthvað gerst sem styrkir almenning í landinu og færir hann saman.


Se la vive

Það er alveg eins og vorið sé komið, það er komið vor í fuglana, og líka manneskurnar, það er vor í lofti segja menn og líta í kring um sig, heldurðu nokkuð að veturinn komi, segir fólk og horfir á mig og bíður eftir að ég segi eitthvað sem skyggir á gleðina.  Þau muna nefnilega ennþá eftir því þegar ég sá um skíðavikuna í nokkur ár hér um árið, og var í viðtali í útvarpinu og spyrillinn segir við mig; og hvernig ætlarðu svo að halda skíðaviku Ásthildur, hér er allt marautt og enginn snjór og páskarnir eru eftir tvo daga.  Ég drjúg með mig svaraði, snjórinn kemur. Um leið og ég geng út úr húsinu, er byrjað að snjóa, og það snjóaði stanslaust í fleiri daga, það kom þvílíkur snjór að menn höfðu varla séð annað eins lengi.  Og svo fór fólk að biðja mig um að láta hætta að snjóaLoL Í nokkur ár á eftir spurði fólk, ætlarðu nokkuð að láta snjóa svona mikið núna Ásthildur Tounge En að öllu gamni slepptu, þá er vorið einfaldlega komið í hjörtum og huga okkar hér.

IMG_1368

Maðurinn minn á góðri siglingu um sundinn blá og kollan líka.

IMG_1369

Brandur á vaktinni, hann er að kenna litla dýrinu reglurnar.

IMG_1370

ég bauð minni elskulegu fjölskyldu í mat á sunnudaginn, bráðum missi ég þau líka til Noregsi. En sem betur fer verður Sigga mín og Sigurjón og Ólöf eftir hér í bili að minnsta kosti.  Svona er það bara.

IMG_1373

Nýjasta línan í húfum er hér að líta.  Töffara en allt sem er töff.

IMG_1375

Zorró og Snúður, flottir báðir tveir.

IMG_1376

Rétt missti af tækifærinu, snúður svaf í feldinum á Zorró.

Svo er hér nýjasta auglýsingin, svona í tilefni auglýsinga sem hafa dunið á okkur undanfarið:

Þú hefur fengið lán í bankanum þínum til að gera við leka á þaki hússins.  Bankastjórinn á þrjú börn, elsti sem er drengur er auðvitað búinn að fá gott  vel launað starf í bankanum, telpurnar tvær eru í dýru námi erlendis.  Hann þarf því að krefja þig um að borga lánið með vöxtum og verðbótum og vaxtavöxtum. Um leið og þú skríður á síðustu metrunum til mæðrastyrksnefndar geturðu glatt þig með því að þú “átt þinn þátt í hagvexti landsins” Stöndum saman!Smile

Eigið góða nótt elskurnar.  Heart


Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Mars 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband