Nýja Ísland - er það ennþá inn í myndinni?

Lýðræðið er fallvalt og auðvelt að skekkja það og afnema ef fólk stendur ekki vörð um það.  Því miður bendir margt til þess að Íslendingar séu ekki mjög lýðræðislega sinnaðir, heldur ríkir það meira þýlyndi og foringjadýrkun en góðu hófi gegnir að mínu mati.

Það er margt sem styður þessa ályktun mína.  Skýrasta og nýjasta dæmið er klappið og hláturinn í Sjálfstæðismönnum á landsþingi sínu síðastliðin laugardag.  Ég hlustaði á hluta af ræðu Davíðs og hvernig fólkið hló að ósmekklegum aðdróttunum hans um mann og annan.  Þetta sýndi ekki frjálst fólk eða hugsandi um velferð þjóðar.  Þetta sýndi hirð um foringja, eða trúarsamkomu, þar kom klapp og hlátur í staðinn fyrir Halelúja og Amen. 

En ég ætlaði ekki að tala um trúfélagið Sjálfstæðisflokk.  Ég var að hugsa um nýju framboðin, og svo flokkinn minn.  Þeir sem vilja gera eitthvað annað en að raða sér niður í þá fjóra flokka sem fyrir eru, og hafa endalaust verið til staðar, ef maður getur samsamað Vinstri græna við Alþýðubandalagið gamla og Samfylkinguna við Alþýðuflokkinn, og ég er ekki að meina þetta niðrandi alls ekki,  sést vel að íslendingar eru algjörir þvergirðingar.  Þeir vilja bara það sama aftur og aftur.  Þeir geta flykkst út á götur og torg og heimgað endurnýjun, burt með spillinguna, burt með þetta og burt með hitti, en ætla svo ekkert að láta koma í staðinn.

Ég skil þetta ekki alveg.  Frjálslyndi flokkurinn ætti að geta verið val fyrir fólk, ef það kynnir sér málefnasamning hans og það sem þingmenn hans hafa lagt fram gegnum tíðina, þá er hægt að sjá þar hafa mörg þjóðþrifamál verið lögð fram á þingi, mörg þörf mál meira að segja sem aðrir flokkar þykjast nú ætla að gera en hafa ekki samþykkt þegar Frjálslyndir lögðu það fram.   Sennilega af því að það kom ekki frá þeim sjálfum.

Í raun og veru ætti flokkurinn að mælast með 10% eða meira.  Að vísu hefur verið allskonar vandræði í flokknum undanfarið.  Þar sem menn hafa verið ósáttir og látið allt flakka í fjölmiðlum, menn farið með hvelli og svo framvegis.   En það hafa líka fjölmargir gengið til liðs við flokkinn.   Það hefur verið gert grín að orðum Guðjóns Arnars þegar hann sagði að mönnum hafi verið mútað.  Það getur vel verið að hann hafi notað vitlaust orð, en ég hef grun um að okkar menn hafi fengið allskonar gylliboð til að flytja sig yfir í aðra flokka.  Ég veit líka að fólk sem hefur ætlað að taka sæti á listum flokksins hefur sætt hótunum um atvinnumissi.   Ég veit að það eru þónokkrir sem þora ekki að gefa upp afstöðu sína af ótta við bannfæringu afla í þjóðfélaginu.  Þar eru atvinnurekendur sem ekki vilja að flokkurinn nái fótfestu, og þá aðallega í sjávarútvegi. 

Steíngrímur vék líka með ósmekklegum hætti að flokknum í útvarpinu í morgun, þó hann nefndi enginn nöfn, en sagði að þessi ríkisstjórn ætlaði ekki að kollvarpa neinu í sjávarútvegi, eins og sumir sem í raun væru bestu vinir L.Í.Ú með málflutningi sínum um afnám kvótakerfisins.  Þar held ég að Steingrímur tali gegn betri vitund.  Okkar  áætlanir eru vel röstuddar, vel útfærður og vel framkvæmanlegar.  Og það hefur aldrei staðið til að kollvarpa neinu.  Heldur vinna að því smátt og smátt að færa aflaheimildirnar til ríkisins þar sem þær eiga að vera.  Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með Steingrím að heyra hans málflutning. 

En svo eru það nýju framboðin.  Því miður virðist svo að þau eigi erfitt uppdráttar, sem er í raun og veru óskiljanlegt þegar haft er í huga sú alda óánægju og væntingar um breytingar sem reis nú eftir áramótin.  Hvar er allt það fólk sem kallaði eftir breytingum.  Núna þegar gott fólk hefur lagt á sig ómælda vinnu við að setja saman stefnuskrá, hefur farið að einu og öllu eftir þeirri forskrift sem lagt var upp með á Austurvelli.  Virkilega hugsjónafólk sem vill landinu sínu það besta.

En nei, það hentar ekki fjórflokkunum að hleypa þeim lengra. Það var í lagi að spila með, meðan þetta voru bara mótmælendur, en þegar þau komu saman listum og ætla að bjóða fram, þá var ekki lengur gaman.  Það er reynt að þaga þau í hel eins og Frjálslynda flokkinn, og eins og gert var við Íslandshreyfinguna.   Og ég er viss um að um leið og nýju framboðin komast yfir 5% markið verður byrjað að naggast í þeim, það er reyndar byrjað nú þegar.  Það verður byrjað á að hamast í fólkinu sem leiðir listana.  Nú er það Þráin Bertelsson, hann er samkvæmt nýjustu bloggsíðum lýðskrumari, tækifærissinni og lúser.  Óalandi og óferjandi.  Svona verður haldið áfram með það fólk sem verður í leiðtogasætum. 

Nei íslendingar eru þvergirðingar og þrælar hugarfarsins.  Þeir vilja lýðræði í orði en ekki á borði.  Þeir vilja bara hjakka í sama farinu, berja sér á brjóst og tala um spillingu, stjórnlyndi og drottnunargirni þeirra sem fara með völdin.  En að breyta neinu er ekki inn í myndinni.  Það kostar of mikið ómak.  Það er miklu betra að sitja hundóánægðir í eldhúskróknum og tala um hve allt sé að fara til fjandans,  en að gera eitthvað róttækt í málunum.  Ég þekki fólk sem nýtur þess að vera fórnarlömb, þetta fólk er aldrei ánægt nema að það sé óánægt, geti kennt einhverjum um ófarir sínar og látið vorkenna sér yfir því hve heimurinn er vondur við það.  Svona sé ég þjóðina mína fyrir mér. 

Hvað getum við gert til að vekja þessa þjóð, er spurning sem ég hef heyrt oft núna þetta misserið, af manneskjum sem vilja virkilega breyta þjóðfélaginu, hafa lagt sig allar fram um að vekja þjóðina.  En vill hún vakna?  Ég er farin að efast.  Það er bent á þennan eða hinn, ég get ekki kosið þessa af því að þessi er þar, eða ég get nú ekki farið að kjósa hinn af því að þessi sagði þetta.  Hvurslagt lýðræði er þetta eiginlega?

Hér á ekki að hugsa um einstaka menn, sem eru að gefa sig út fyrir að leggja sitt af mörkum.  Það á að hlusta á hvað þeir hafa fram að færa, fylgja því svo eftir að þeir geri nákvæmlega það, og vera svo menn til að refsa þeim geri þeir það ekki.

Það sem viðgengst í þjóðfélaginu í dag, getur ekki skrifast á neinn  nema okkur sjálf.  Við höfum komið þjóðfélaginu í það horf sem það er, með kæruleysi, kjánaskap eða fullkominni sjálfseyðingarhvöt.  Hvenær höfum við refsað flokki eða einstaka manni í kosningum ef okkur hefur ekki líkað það sem þeir gerðu?  Nei með því að kóa endalaust með mínum manni&flokki, sama hvað hann gerir, "Af því að hinir eru sko ekkert betri"  getur aldrei virkað í samfélaginu.  Það er eins gott að fólk átti sig á því. 

Þið hafið val sem eruð þarna úti, þið sem stóðuð á Austurvelli og kröfðust lýðræðis og Nýs Íslands.  Þið getið kosið nýju framboðin eða Frjálslynda flokkinn, og sýnt að þið viljið nýtt Ísland, eða þið getið farið í sama gamla farið og kosið fjórflokkinn og ekkert breytist.   Ég verð þó að segja að þessi ríkisstjórn hefur gert margt gott.  En ég er líka viss um að það er vegna þess að þau vita að augu landsmanna eru á þeim.  Þau hafa ekki gleymt Austuvelli og fólkinu þar.  En það skuluð þið vita að um leið og fennir yfir þau spor, þá fer allt í sama gamla farið.  Þið eruð ef til vill búin að gleyma því nú þegar, en fólkið sem þarna er í forsvari eða með töglin hefur meira og minna verið við völd í íslensku samfélagi síðan sautján hundruð og súrkál.  Og það hentar þeim einfaldlega ekki að breyta því.  Það er ekkert skemmtileg tilhugsun að einhverjir aðrir komist í þá aðstöðu að blaka við flokkakerfinu.  Þeim finnst nóg að berjast hvort við annað um völdin og semja svo um framhaldið.  Þau þekkja hvort annað og meðan ekkert breytist þá gengur allt sinn vanagang.

Ég hélt satt að segja að það væri eitthvað að marka þessa lýðræðisbyltingu sem fór óneitanlega vel af stað.  En hvar er hún nú?  Til dæmis stuðningurinn við Borgarahreyfinguna, sem er bókstaflega stofnuð utan um þau gildi sem sett voru á Austurvelli.  Fólk segir með illgirni að þar sé ekki að finna það fólk sem þar stóð fremst í flokki, og þess vegna sé eitthvað defekt við það.  Ég blæs á svona kjaftagang.  Þeir sem þarna standa í forsvari, er fólkið sem stóð vaktina, barði eldhúsáhöldum og mótmælti. 

Gefum litlum flokkum og nýjum flokkum sjens á að lifa og vinna fyrir þjóð sína.  Höfum þor til að breyta til.  Afsakanir á siflurfati korteri fyrir kosningar virka ekki mjög sannfærandi á mig allavega. 

Ef vil viljum breytingar, þá er það í okkar valdi að breyta.  Það gerum við með því að veita lýðræðisöflunum brautargengi í kosningum eftir tæpan mánuð.  Mitt val er Frjálslyndi flokkurinn, það er vegna sjávarútvegsstefnu hans og tilrauna til að opna nýliðun inn í greinina.  Það gerir enginn nema Frjálslyndir fái þeir til þess umboð.   En þeir sem ekki vilja ljá okkur sitt atkvæði, en vilja breytingar, ættu að huga vel að málefasamningum nýju flokkanna, og skoða hvort ekki sé hægt að styðja þá og hvetja til dáða. 

Lýðræði kostar.  Það kostar að við séum vakandi og veljum rétt með opnum huga.  Lýðræði þrýfst aldrei þar sem fólk vill ekki hugsa sjálft, vill sterkan leiðtoga og vill græða á daginn og grilla á kvöldin.  Það er miklu líkara einræði, þar sem sumir eru jafnari en aðrir.  Og þeir sterku vinna og hinir tapa.  Það er frumskógarlögmálið í allri sinni græðgi. 


Vetrarmyndir. Öll él birtir upp um síðir.

Nokkrar myndir svona undir svefninn.  Teknar í dag eftir óveðrið.  Því öll él birtir upp um síðir.

IMG_7006

Komin heim af bókasafninu með fullt af góðum bókum og hressar og kátar.

IMG_7007

En síðan var komið hið besta veður hér á Ísafirði, og ég ákvað að ösla snjóinn upp á lóð og smella af nokkrum vetrarmyndum fyrir ykkur sem fenguð bara eins og þrjú snjókorn LoL

IMG_7009

Já ég þurfti sumstaðar að ösla snjóinn alveg upp í mitti.  Það tekur á.

IMG_7010

Birtan á þessum tíma er alveg einstök.

IMG_7011

Úbbs og hér liggur smáskrímsli í leynum, með starandi augu upp í hlíðina hehehehe.

IMG_7013

Þetta er örugglega hús jólasveinsins.

IMG_7014

Já þau eru líka falleg á veturna trén og runnarnir.

IMG_7018

Og allskonar kynjamyndir skapast.

IMG_7019

Þó það sjáist ekki hér, mátti sjá rjúpnaspor í snjónum við runnana.

IMG_7021

Og hér er skúrin mín.

IMG_7022

Talandi um ólíka heima.

IMG_7023

Móðurplönturnar mínar dafna flestar vel.

IMG_7026

Fallegar ekki satt?

IMG_7027

Og svo nýgræðingurinn sem bíður eftir að vera priklaður í stærri potta.

IMG_7028

Svo leggjum við í hann aftur niður í kúluna.

IMG_7030

Þetta snjóalag er gott fyrir gróðurinn.

IMG_7036

Hann hlífir gróðrinum ótrúlega mikið.

IMG_7039

Úbbs hehehe ekki láta sér bregða, hún er dauð blessunin. 

IMG_7041

Mothers little helper.

IMG_7042

Liðtæk við að hjálpa ömmu að sjóða kjötsúpu.

IMG_7044

Þær fengu svo pakka frá ömmu á Hellu, og þar voru sundbolir sem þær vildu endilega prófa strax.

IMG_7045

Og amma á Hellu, hún var mjög hrifin af bolnum þó hann væri blár.  Svo hér er hann.

IMG_7046

Það er ákveðin ungur maður hér að verki.

IMG_7048

Þau eru nefnilega að líma inn límmiða í bókina hennar Hönnu Sólar.

IMG_7049

Stóru krakkarnir voru svo að ærslast í snjónum. 

En ég segi bara góða nótt.  Heart


Veðrið í dag.... myndir og fleira skemmtilegt.

Hér ríkir nú vetrarveður allt ófært enginn skóli og ekki fóru litlu prinsessurnar mínar í leikskólann í morgun.  Meira að segja bankinn var lokaður, það stóð á hurðinni: því miður er lokað í dag vegna vorhátíðar starfsfólks eru allir starfsmenn veðurtepptir í Reykjavík. Heart Auðvitað engin blöð en sem betur fer er rafmagn, þá erum við ánægð.  

1111

Á svona dögum þarf að hugsa vel til smáfuglanna, þeir eru svangir blessaðir.

IMG_6974

Snjórinn hrannast upp eins og sjá má.

IMG_6975

Og það er gaman að gefa fuglunum því þeir eru svo þakklátir.

IMG_6976

Nammi namm.

IMG_6977

Búin fær ég ekki meira???

IMG_6978

Litlu innifuglarnir þurfa líka smámola sem detta á gólfið og sona!

IMG_6981

Og blómin fyllast af snjó.

IMG_6983

Það vantaði líka ýmislegt eins og mjólk og brauð, svo amma þurfti að ráðast í safaríferð.

IMG_6988

Úff þetta var erfitt.

IMG_6991

Svo er ágætt að leika sér í garðskálanum.

IMG_6992

Jafnvel á snjóþotu LoL

IMG_6996

Og heitt kakó getur farið víðar en í munninn.

IMG_6998

Þetta er að vísu ekki Titanic......

IMG_7001

Kallast bara fikt, en jafn skemmtilegt fyrir því.

IMG_7002

Svo datt þeim í hug að fá afa til að fara með sér út, og þau fóru á bókasafnið.  Þar er svo gaman að skoða bækur og leika sér.

IMG_7004

Búbbsí lagt af stað út í sortann.

IMG_7005

Svona er nú veðrið og stemningin hjá okkur í dag.  Heart

Ó gleymdi einni mynd, svona í öllum þessum snó...

IMG_6980

Það er örugglega þess vegna sem við höfum stofublóm.  Skátengdadóttir mín gaf mér þessa ensku pelargoníu hún nýtur sín vel núna. 


Undir svefninn.

Jæja nokkrar myndir svona út fyrir pólitíkina.

IMG_6965

Eins og sést af þessari mynd i dag er komin töluverður snjór hér á Ísó.

IMG_6966

Veðrið ekki  til að hrópa húrra fyrir. Og viðvarandi í gangi.  En þetta er bara Ísland.

IMG_6969

Það er nú líka eins gott að hafa góðan snjómokara til að moka okkur út LoL

IMG_6955

Prinsessur eru líka til sko!!

IMG_6958

Þau kunna að skemmta sér börnin.

IMG_6960

Svona líta ekta prinsessur út.

IMG_6961

Nei þetta er ekki kolkrabbi, alls ekki þessi sem hrjáir Sjálfstæðisflokkinn, þessir er algjörlega meinlaus.

IMG_6963

Og sú stóra mín.

IMG_6970

Þetta er maurastúlkan, vonandi sjáið þið fálmarana....

IMG_6971

Hér er verið að spjalla við ömmu á Hellu.  Kom Gunna Sigga í heimsókn í dag? og svoleiðis hún kann þetta mjög vel þessi elska.  Og svo eiga þær von á pakka frá ömmu á morgun. Heart


Viðbrögðin við ræðu Davíðs.

Viðbrögðin við ræðunni hans Davíðs eru ýmist upp í himninum eða niður í svarta Hel.  Það er með ólíkindum að einn maður geti komið slíku róti á fólk. Svo sennilega hefur hann eitthvað við sig sem tekið er eftir.  Fyrir mér er hann bara venjulegur maður, sem hefur náð að sópa að sér völdum og safna kring um sig hirð fólks sem sér ekkert eða heyrir annað en það sem hann lætur út úr sér, trúir öllu sem hann segir og engu sem aðrir reyna að benda á.  Sennilega er ekki hægt að tala um venjulegan mann í því samhengi, nema að þessi virðist vera annað hvort algjörlega veruleikafirrtur eða samviskulaus, nema hvort tveggja sé.

Því miður hef ég ekki komist í að lesa ræðuna hans, en ég hef séð glefsur hér og þar, en það eru viðbrögðin sem ég vil ræða.

Það sem stendur upp úr fyrir mér eru þessi orð Davíðs;

 "Arftaka sinn í embætti kallaði hann “lausamann úr norska Verkamannaflokknum” og sagði að enginn hefði áður heyrt þennan mann áður nefndan, ekki einu sinni Google, sem marga þekkti. Þannig hefði enginn þroskuð þjóð áður hagað sér."

 Ég veit ekki af hverju Davíð heldur að íslenska þjóðin sé þroskuð þjóð.  Ef hún væri það almennt, þá hefði Davíð og Sjálfstæðisflokkurinn ekki setið að völdum óslitið í 18 ár.  Þroskuð þjóð hefði fyrir löngu síðan hent þeim út á hafsauga. 

Þroskuð þjóð hefði ekki sett gamla pólitíkusa í æðstu stöður landsins eftir áratuga þaulsetu við stjórn landsins. 

Þroskuð þjóð mun ekki veita Sjálfstæðisflokknum brautargengi í næstu kosningum.  Ef þjóðin væri þroskaðir sjálfstæðir einstaklingar myndi Flokkurinn ekki koma manni að í næstu kosningum. 

Viðbrögðin við þessu skítkasti eru brandari út af fyrir sig.  Það hefur verið rækilega sannað fyrir mér að Sjálfstæðisflokkurinn er ekki pólitískt afl, heldur trúfélag.  Eins og Hannes Hólmsteinn orðaði það svo ágætlega.  Sjálfstæðismenn er fólk sem vill hafa sterkan leiðtoga sem hugsar fyrir þá.  (mann ekki orðrétt)  Þeir vilja græða á daginn og grilla á kvöldin. 

Þetta er Sjálfstæðisflokkurinn í hnotskurn.  Þeir vilja sterkan leiðtoga, þess vegna gráta þeir Davíð nú.  Þeir vilja græða á daginn, og gerðu svikalaust svo að öll þjóðin er lömuð,  grillið verður svo að bíða aðeins, meðan þeir einbeita sér að því að fá fólk til að veita þeim áframhaldandi brautargengi við kjötkatlana svo þeir geti byrjað að gefa vinum og vandamönnum aftur banka og önnur verðmæti. 

Ég hef aldrei verið hrifin af Vilhjálmi Egilssyni, hann er dæmigerður spenapólitíkus sem notið hefur þess að vera sogfastur á spenanum.  En ég held samt að hann hafi ekki átt skilið þær trakteringar sem foringinn veitti honum i lok ræðu sinnar. 

Ósmekklegheitin voru víðar; Seðlabankastjórinn nýji fékk sína sendingu, Jóhanna Sigurðardóttir og margi fleiri.  Og fólkið gapir yfir snilldinnin hjá foringja sínum.  Það var dramatísk þögn eftir að hann lauk máli sínu og svo var klappað kannski ekki í klukkutíma eins og vera bar í Rússlandi, en örugglega alveg heillengi. 

Það má sjá á bloggsíðum andsvörum og spjallrásum að sjálfstæðismenn halds ekki vatni yfir snilldinni.  Setningar eins og þarna jarðarði Davíð Samfylkinguna, eða niðurlæging Baugsliðsins algjör og svo framvegis.  Tek samt eftir að það er ekki orðað neitt um Vinstri Græna.  Það er sennilega verið að halda einhverjum dyrum opnum um að komast í sæng með þeim eftir kosningar.

Ég veit fyrir víst að á fundinum voru öryrkjar, gamalt fólk og verkamenn og aðrir sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur sparkað í gegnum tíðina.  Samt fer þetta fólk hnarreist á fundi og dásamar forystuna.  Ef það er ekki að kyssa á vöndinn þá veit ég ekki hvað.  Mér líður eiginlega hálf illa við að hugsa til þessa fólks, vil ekki kalla það kjána, en ég á eiginlega ekkert annað orð yfir það.  Hugsunin er enginn, það er ekki lagt saman tveir og tveir og fengið út fjórir.  Heldur hanga menn í þessari gloríu og flottu fólki og finnst mikið til koma að fá að vera með í þessum glæsilega hópi.  En gerir sér enga grein fyrir að þau eru þarna eingöngu sem atkvæði til að halda fína fólkiniu við völdin.  Sorrý þið, en þetta er bara mín meining.

En það gerðist samt dálítið gleðilegt; það gengu nokkrir út undir ræðunni.   Nokkrir fengu nóg, það nægir þeim ef til vill ekki til að fara úr flokknum, því flestir skila sauðirnir sér heim til slátrunar, en það sýnir samt að einhverjir þarna eru hugsandi fólk, sem ofbýður og þorir að sýna það. 

Sumum finnst ef til vill að ég sé hörð í dómum mínum hér.  En ég er alveg gáttuð á því að það sé til fólk sem ennþá treystir ráðamönnum Sjálfstæðisflokksins fyrir fjöreggi sínu fjölskyldunni og lífinu.  Stendur á brunarústunum með eldspýturnar og olíuna tilbúna til að rétta þeim, svo þeir geti haldið bálinu áfram.  Og að það skuli enn þora að segja það upphátt, heldur er þar á ofan stolt yfir því.  Hvað gerist í hausnum á slíku fólki?  Ég bara spyr.  Ég skil þá sem eru með silfurskeiðar í munninum, og réttbornir í stöðurnar sem bjóðast.  En þeir sem náðarsamlegast fá að koma til að greiða atkvæði sitt, hafa lítið til að vera stoltir yfir. 

Mig langar til að höfð til skynsemi fólks sem er farið að hugsa lengra en það að Davíð sé Jesú Kristur og hinir postularnir.  Kjósið eitthvað annað en þessa spillingu.  Hvað sem er.  Vinstri græn og Samfylkingin hafa sýnt góða takta nú við stjörnvölin.  Þó mér finnist að þar megi koma inn rödd Frjálslynda flokksins, til dæmis í Sjávarútvegsmálum, og ég tel að stjórnin yrði sterkari með okkur innanborðs.  Borgaraflokkurinn er líka góð lausn fyrir fólk sem vill breytingar, margt gott og heiðarlegt fólk þar.  En fyrst og fremst lesið ykkur til um stefnumál flokkanna, en ekki bara það heldur skoðið hvað þeir hafa haft fram að færa, það er til dæmis fróðlegt að skoða frumvörp frá stjórnarandstöðunni sem ekki hafa fengið brautargengi á þinginu, eins og frumvarp Frjálslynda flokksins um afnám verðtryggingar, sem Sjálfstæðismenn þykjast nú ætla að framkvæma, en gerðu ekki meðan þeir gátu það.

Við höfum ekki efni á að láta reka á reiðanum.  Við verðum að velja að natni og heiðarleika það fólk sem við teljum að geti bjargað þjóðinni frá glötun.  Og ég vil að við gerum það sjálf.  Það fólk sem heimtar að við förum inn í ESB er að mínu mati landráðafólk, hvorki meira né minna.  'Eg get skilið að það sé ríkulegur áhugi á að fá okkur inn, því þeir geta ekki beðið með að koma höndum yfir auðlindir okkar, fiskinn, heitavatnið og ekki síst okkar hreina ómengaða vatn.  Það er hreinn og klár barnaskapur að halda að útlendingar vilji okkur inn af einhverri góðsemi.  Hún er því miður sjaldgæfari en hvítur hrafn.  Látum ekki landið okkar í hendur annara baráttulaust.  Og látum ekki Sjálfstæðisflokknum takast að plata okkur eina ferðina enn með að koma þeim til valda. 

Svo óska ég ykkur öllum góðs þennan dag, sem er frekar hryssingslegur. 


Myndir undir svefninn.

Færsla undir svefninn.  Það er föstudagskvöld og allt í rólegheitum.  Ég get samt ekki sofið út af nokkrum ástæðum hehehe... ég á tvær yndislegar vekjaraklukkur sem eru komnar á full upp úr sjö.  Og svo ætla ég að mæta á námskeiðið í fyrramálið og vonast til að hitta þar sem flesta námfúsa vestfirðinga sem vilja læra klippingar.

IMG_6909

Veðrið var fallegt í dag eins og sjá má.

IMG_6910

Grænahlíðin er hvít núna.

IMG_6911

Þarna inn milli fjalla er Arnardalurinn. 

IMG_6914

Það létti til um hádegið eins og sjá má.

IMG_6915

Eins og Þói segir endalaust fallegt skýjafarið.

IMG_6919

Óshlíðargöngin eru í fullum sving.

IMG_6922

Og það má sjá vegagerðina fyrir neðan meðfram fjörunni.  ég verð alltaf dálitið sorgmædd við að sjá það, vegna þýsku vina minna sem eiga sumarbústað þarna niður við sjóinn.  Þau eru frá Svartaskógi langt frá sjó, þess vegna kusu þau þennan stað.  Stefan stóð gjarnan í fjöruborðinu og veiddi fisk í soðið.  Stundum veiddi hann meira að segja bleikju.

IMG_6912

Vinnufélögum mínum er margt til lista lagt, hér hefur einn þeirra Guðni Borgars smíðað þetta líkan af Gunnari Friðrikssyni, gamla björgunarbátnum okkar og hefur gert það listavel.

IMG_6918

Jamm best að máta sig við að skipta um dekk, ef á þyrfti að halda LoL

IMG_6923

Hún komst loks í leikskólann í dag.

IMG_6924

Já þau eru eins og farfuglarnir blessuð, fara að koma á vorin.

IMG_6928

Þeim finnst þetta góður djús.

IMG_6932

Það fer að verða hlýlegra í garðskálanum eftir því sem vorar meira.

IMG_6939

Og stubbur sýndi okkur nýtt Pons sem hann var að æfa í kvöld.

IMG_6943

Eins gott að æfa sig fyrir beltaprófið.

IMG_6944

Þetta er bara nokkuð gott.

IMG_6948

Hann er með fallegar hreyfingar strákurinn. Hnitmiðaður það er mitt mat allavega. Og amma náttlega stolt af sínum strák. Heart

En ég segi góða nótt á ykkur öll. Heart

 


Ísafjörður og nágenni.

Námskeið í trjáklippingum.  Okkur stendur til boða að fara á námskeið í trjá og runnaklippingum sem haldið verður í Fræðslumiðstöð Vestfjarða á morgun laugardag kl. 9.00 til 15.00 Garðyrkjufræðingurinn Kristinn H. Þorsteinsson mun vera með þetta námskeið, sem er fyrir byrjendur. Kjörið tækifæri fyrir garðeigendur að fá svona fræðslu nákvæmlega núna þegar þið þurfið að fara að klippa. 

Þetta námskeið er á vegum Garðyrkjufélags Íslands, og er verið að vekja Ísafjarðardeildina upp aftur.  Námskeiðið kostar 5000 kr. fyrir félaga í Garðyrkjufélaginu en 7000.- fyrir aðra, og þá er bara að skrá sig í félagið. 

Þið getið haft samband við mig í síma 861 1444, eða asthildurcesil@gmail.com til að skrá ykkur.  Eða bara mæta hress og kát.  Betra samt að láta vita af sér svona fyrirfram. 

 


Austurríki og Ísafjörður.

Hún dóttir mín sendir mér stundum myndir frá skólanum sínum og svo göngutúrum með hundana. 

P3264128[1]

Eins og fram hefur komið áður þá býr hún í gastanki þeir eru fjórir hlið við hlið sem hafa verið gerðir að íbúðarhúsum, skemmtilegir gamlir tankar en sannarlega bæjarprýði.

P3264129[1]

Austurríkismenn eru ekkert feimnir við að prjóna nýtísku viðbyggingum við gamlar fallegar byggingra, spurning hvort það virki.  Þessi viðbygging sem er íbúðarblokk er kölluð skelin.

P3264105[1]

Hér er hún í skólanum, og það er greinilegt að þau eru að fara í aðgerð.

P3264095[1]

Ójá hvutti litli þarf meðhöndlun.

P3253964[1]

Það snjóaði líka í Austurríki um daginn.  Þetta er Trölli, ég var með hann í fóstri nokkra mánuði, en svo fór hann til Austurríkis og er þar núna þessi elska.

P3253986[1]

Hér er kærastan hans hún Goldie.  Þau eru rosalega góðir vinir og búa saman eins og er.  Því honum líður betur í sveitinni hjá vinum okkar þeim Samúel og Heidi.

P3253977[1]

Þetta er sannkallað hundalíf. LoL

P3264133[1]

Svo er gengið niður að á. 

P3264150[1]

Það getur líka verið skemmtileg birta í Austurríki.

P3264156[1]

Skuggar og skin.  Það er virkilega gaman að ganga þarna um í skóginum og fylgjast með lífinu í ánni.

IMG_6905

Það er náttúrulega ekkert á við snjóinn hér heima, og þessi var tekin í dag.

IMG_6906

Veðrið er fínt.

IMG_6907

Krílin nýkomin úr baði og nú eru þau sofnuð.  Heart

Og ég segi líka góða nótt. Heart 

 

 


Taekwon do og vorbörn.

Litli grallarinn minn var veikur í dag.  Ég tók eftir því í nótt að hún var orðin óvenjulega heit á höndum og fótum, og það reyndist vera svo að hún var með hita í morgun.  Svo hún fór ekki á leikskólann.  Satt að segja var hún frekar pirruð í dag þessi elska, svo amma þurfti að sitja og standa eins og hún vildi Blush Það er svo sem allt í lagi svona endrum og eins.  En það þýðir að orkan mín er farin út í buskan eins og er. 

IMG_6851

Börnunum finnst gaman að leika í garðskálanum.

IMG_6853

Þessar myndir voru teknar í gær.

IMG_6854

Litla grjónið hennar ömmu.

IMG_6856

Hún var sem sagt dálítið pirruð í dag, samt átti amma að setja í hana teyju eins og stóru systur.

IMG_6859

Amma viltu setja gosbrunn? 

IMG_6861

En amma þetta er ekki gosbrunnur þetta er foss!!!LoL

IMG_6865

Halló ég þarf að komast á klóið!!!

IMG_6866

Amma seta teyju!!!

IMG_6867

Úbbs það er enginn gosbrunnur ekki heldur foss, heldur lítill nabbi sem þarna næst LoL

IMG_6868

Sjávu!!!

IMG_6871

Svo var hún lögð af stað í leikskólann.

IMG_6874

En svo var bara notalegra að vera heima hjá ömmu með; teppið mitt og koddann minn. Heart

IMG_6875

En svona er veðrið hér núna.

IMG_6876

Ég fór á taekvon do æfingu hjá stubbnum í kvöld til að taka myndir.  Það verður bráðum afmælishátíð HSV og þá verður gefið út blað með þeim íþróttum sem stundaðar eru hér, og ég lofaði að taka nokkrar myndir fyrir það tilefni.  Hér er verið að bíða eftir að æfing byrji.

IMG_6879

Hér er æfingin byrjuð.  Og ég get sagt ykkur að þetta er gamli íþróttasalurinn þar sem ég var í leikfimi frá 6 ára aldri, og það er sama gólfið, sömu veggirnir, grindurnar og sama lyktin, ég get svarið það.

IMG_6881

Sumt hreinlega breytist ekkert.

IMG_6883

Þeir sem mæta of seint verða að gera armbeyjur.

IMG_6884

6 apríl þá verður beltapróf, og mikil tilhlökkun og kvíði út af því.  En þetta er skemmtileg íþrótt og vonandi verða fleiri næsta ár. 

IMG_6888

Börn og fullorðnir hafa gott af að spreyta sig á þessari sjálfstjórnaríþrótt.

IMG_6891

Þeir skemmtu sér líka vel strákarnir.  Það eru líka stelpur í Taekwondo, en einhverra hluta vegna er enginn þar núna.

IMG_6893

Stubburinn.

IMG_6894

Þeir voru nú líka dálítið að gera sig til við myndavélina drengirnir LoL

IMG_6898

Flottir.

IMG_6902

En ég held að ég hafi ekki orku í meira en að skríða upp í rúm og leggja mig eftir daginn.  Ég ætla að fara blogghringin á morgun.  Segi bara góða nótt elskurnar og megi allir góðir vættir vaka með ykkur öllum og vernda.  Sérstaklega þeim sem eru veikir og þurfa stuðning og knús. Heart


Myndir undir svefninn.

Jæja tími á smávegis léttara hjal, myndirnar sem áttu að fara inn í hádeginu.  En sjokkið var svo mikið að ég gat ekki gert neitt.

IMG_6798

Við fórum í sund á Suðureyri í gær, og hér er verið að gefa öndunum.

IMG_6800

Það er hægt að gefa öndum hér og líka þorskum... já það eru þorskar í lóninu sem nánast éta úr lófa manns og það er jafnvel hægt að klappa þeim.

IMG_6801

En prinsessur sitja bara inn í bíl á meðan hehehe...

IMG_6804

Obb obb obb, þegar maður er búin að fá súkkulaðiís og nýkomin úr sundi er upplagt að fá sér smálúr.

IMG_6805

Svo er gott að eiga stóran "bróður" sem ber mann á háhesti heim að dyrum.

IMG_6806

Afar eru líka til þess brúklegir.

IMG_6807

Veðrið er fallegt, þessi er síðan í gær.

IMG_6808

Og þessi líka.

IMG_6813

Það færist líka fjör í garðskálann.

IMG_6814

Enda er vorið komið þar.

IMG_6816

en úti þarf að moka, og þá er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. 

IMG_6824

Og auðvitað þurfa allir að moka.

IMG_6828

Eða fá sér sólhlíf.  Það er allavega sól.

IMG_6829

Já vorið er komið í kúluna, hér eru Zakúrakirsuberin mín byrjuð að springa út.

IMG_6830

Og börnin bedrífa ýmislegt.

IMG_6835

Og þessi litla snúlla er alltaf til í mat, kjöt og fisk meðan sú stóra vill frekar jógúrt og ávexti.

IMG_6836

Og það kvöldar á Ísafirði.

IMG_6839

Himnagallerið fer að opna bráðlega.

IMG_6840

Svona er þetta bara hér.

IMG_6841

Morgunsólin í morgun áleiðis til Hnífsdals. 

IMG_6843

Það er líka komið vor í gróðurhúsinu mínu.  Hér eru sumarblómin að komast á legg.

IMG_6847

Þá fjölgar líka krökkunum í kúlunni.

IMG_6848

Eins og kálfar út á vorin.

IMG_6849

Að ýmsu þarf að hyggja.

IMG_6850

Já það er fjör. 

En hver tími hefur sína tilfinningu, og maður á aldrei að dvelja við það neikvæða og leiðinlega.  Það dregur mann bara niður.  Það á að líta á björtu hliðarnar og gleðjast yfir því fagra og góða.  Gefa frá sér leiðindinn, þau eiga ekki að fá að dvelja innra með manni.  Og best er að reyna að skilja ástæðurnar og fyrirgefa eða að minnsta kosti gleyma þeim bara alveg.  Lífið heldur áfram, ef eitt sund lokast opnast annað og örugglega meira spennandi.  Þá er líka best að biðja almættið um leiðsögn og aðstoð við að gera besta úr öllum hlutum.  Af því að þannig virkar lögmálið. 

Knús á ykkur öll elsku bloggvinir mínir og ég segi bara góða nótt. Heart


Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Mars 2009
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2023308

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband