Ný og spennandi könnun.

Siggi Þórðar bloggvinur minn er með nýja spennandi könnun á síðunni sinni, endilega takið þátt í henni hér; http://siggith.blog.is/blog/ginseng/   Allir að vera með. Smile   

Skúbb.

Ég hef það eftir áreiðanlegum heimildum að Mugison hafi samið fallegt kórlag fyrir Karlakórinn Erni, hér á Ísafirði.  Og að lagið verði frumflutt í fluttningi kórsins á hátíðinni Aldrei fór ég suður, einni stærstu tónlistarhátíð á Íslandi.  En kórinn fer til Ungverjalands í sumar.  Og þá verður lagið örugglega á dagskránni. 

Áfram Mugison og áfram Karlakórinn Ernir.

Einhyrningur


Hið daglega veður, og fyrsta sólarglætan á Suðureyri.

Nokkrar myndir frá Ísafirði og Suðureyri.

IMG_3111

Birtan einhvernvegin svo bleik þennan morguninn.

IMG_3114

Bleik og blá eiginlega.

IMG_3116

Þegar litla prinsessan kom á leikskólan í morgunn, þá sátu börnin og sungu Sól Sól skín á mig, ský ský burt með þig, gott er í sólinni að gleðia sig, sól sól skín á mig.  Ég hef alltaf haft mikla trú á krafti þessa lags, og viti menn meðan börnin sungu, gægðist sólin fram á Suðureyri í fyrsta skiptið þetta árið.  Og allir urðu svo glaðir.  Það var ákveðið að baka vöfflur í tilefni þessa. 

Til hamingju með sólina Súgfirðingar.

IMG_3117

Sól skín á fjöllin, og alveg niður í þorpið.

IMG_3120

Og Gölturinn tignarlegur baðaður sól.

IMG_3123

Leikur að ljósi og skugga.

IMG_3125

Fallegur Súgandafjörðurinn, svona fannhvítur.

IMG_3128

Og bak við öll fjöllin kúrir lítið þorp, svo fullt af lífi og gleði.  Og Gullkista hafsins rétt við túnfótinn.

IMG_3130

Og sólin er að gægjast fram líka á Ísafirði. 


Tónlistarhátíð æskunnar.

Ég fór á tónleika hjá Tónlistarskóla Ísafjarðar, í Hömrum í dag, stubburinn var að spila, og var rosalega flottur.  Hann var settur síðastur fyrir hlé, sem segir ákveðna sögu að mínu mati.

Hvað er að gerast, það vantar allar myndirnar inn.

IMG_3050

Vil ekki fara á tónleika.

IMG_3052

Þú átt að sitja svona fyrir, þegar amma tekur mynd.

IMG_3057

Komin á tónleika best að huga að skránni.

IMG_3058

Sigríður Ragnar tónlistaskólastjóri setur skemmtunina.  Hún hefur verið í forsvari fyrir Tónlistaskóla Ísafjarðar af miklum myndarskap í mörg ár.  Og í hennar tíð hefur skólinn orðið nútímalegri og lagað sig að nemendum.  Enda skólinn afskaplega vinsæll, meðal þeirra.

IMG_3059

Skólalúðrasveitinn opnaði Tónleikana með Eye of the tiger, og I Want to hold your hand eftir Lennon.

IMG_3063

Þeir eru ekki allir háir í loftinu nemendurnir sem koma fram á tónleikum T.Í.

IMG_3069

Hér er Sóley Ebba mín með Sorgleg saga op 2.nr.  eftir D. Kabalevsky.

IMG_3071

Það voru töluvert margir sem léku fjórhent á píanó, og það var skemmtilegt.

IMG_3072

Þessir léku fiðlurokk.

IMG_3073

Harmonikkan gleymdist ekki.

IMG_3081

Þeir voru frábærir með spæskt þjóðlag. Boleras Sevillamas

IMG_3084

Sú stutta komin upp á loft með snudduna.

IMG_3086

Hver segir að stelpur spili ekki á trommur.

IMG_3090

Úlfur trommar, síðsatur fyrir hlé.  Flottur var hann. Fönky, ég held að hann hafi samið þetta sjálfur.

IMG_3092

Í hléi var boðið upp á kökur og kaffi, flott bakkelsi.

IMG_3095

Strengasveit tónlistarskólans, með Arkansas Trawellwer og The yellow rose og Texas, ef til vill í tilefni Hilary og Obama hver veit.

IMG_3097

Þessar voru líka flottar, Tammy,  Livingston Evans.

IMG_3104

Þessi voru sæt saman.

IMG_3108

Kammersveit... nei þrjú systkini og vinkona.  Þau voru flott og enduðu þessa frábæru tónleika.  Mars - tríó etir Carl María von Weber. 

En ég fór alsæl heim, eftir skemmtilega tónleika.  Krakkarnir stóðu sig öll með prýði og mikið lagt í tónlistarfluttning.  Því miður komu myndirnar ekki inn strax, veit ekki af hverju, en hér eru þær sem sagt. 

 


Snjór meiri snjór.

Snjór snjór snjór.

Svona var þetta hjá okkur 1995. 

Snjór95

Eins gott að hurðin opnast inn ekki satt.

Snjór95.

Um að gera að vera frár á fæti og geta klifrað, og öslað snjó upp að mitti.

minnkuð

Já þau eru víða göngin, þetta er tekið fyrir norðan á ströndum við bæinn Ós.

Páskasveinar

Ein svona til gleði, þetta eru páskasveinar, sem við fundum upp í sambandi við skíðavikuna.  Þeir ærsluðust við börnin á föstudaginn langa upp á dag, þegar fjölskyldudagurinn var.  En það er árviss atburður með sælgætisregni og páskaeggjakeppnum. 


Vinir mínir í Vestmannaeyjum

Fá góðar kveðjur frá mér.

IMG_3046

Það hefur lagast hér veðrið, og öll él styttir upp um síðir.

IMG_3048

Líka í Vestmannaeyjum. Heart


mbl.is Innisnjóaðir Vestmannaeyingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gamlar myndir og nýjar.

Ég var að fá sendar nýjar myndir af henni nöfnu minni frá Vín.  En ég ætla líka að setja inn gamlar myndir, fyrst myndina sem Rannveig var að biðja mig um að setja inn af henni, Steinunni og Snorra.  Hún er sett inn fyrir Dísu vinkonu.

Rannveig, Steinunn og Snorri

Svo sendi Dísa vinkona mín mér þessa  mynd, ætli ég sé ekki svona 12 ára.

Íja

Hér eru svo nýjar myndir af litlu Ásthildi Cesil.

CIMG1334

Greinilega komið vor í vín.

CIMG1345

Lítil ömmustelpa.

CIMG1380

Maður er nú aldeilis flott.

CIMG1389

Dugleg við þvottinn líka.

CIMG1415

Gott að fara í Oberla sundlaugina, hún er upphituð, eða reyndar eru þetta margar laugar, bæði úti og inni, svipað og hér heima. 

CIMG1445

Gott að vera hjá Romínu.

CIMG1483

Mamma er þó best.  Þær koma sennilega um páskana.  Það verður fjör í kúlunni, því Bjössi sonur Ella kemur að öllum líkindum líka með litla stubbinn sinn.  Það verður æðislegt.

En í gær komu Sigurjón Dagur og Ólöf Dagmar í heimsókn með mömmu sinni og Julla syni mínum.  Við pöntuðum okkur pizzu og áttum skemmtilegt kvöld.

IMG_3041

Það var spilað og svona.

IMG_3043

Pizzunum voru gerðar góð skil líka.

IMG_3038

Það er ágætis veður í dag.  Búið að birta aðeins og hætt að snjóa, og svo er logn.

 


Okkar maður.

Ég vil benda fólki á þessa tilnefningu.  Elvar Logi á heiður skilinn fyrir dugnað og atorku við að hlú að leiklist í bæjarfélagi okkar.  Við getum sýnt honum þakklæti okkar með því að velja hann til sigurs.  Sendi þetta inn hér með.   

Til fróðleiks ( og helst eftirbreytni): Eins og sést í neðanskráðri frétt er Elvar Logi Hannesson tilnefndur til menningarverðlauna DV fyrir einleikjahátíðina Act Alone.Það yrði mikil lyftistöng fyrir leiklist á landsbyggðinni ef hann yrði valinn í flokki leiklistar. Þeir sem vildu leggja honum (og leiklist á landsbyggðinni) lið í þessari baráttu geta gert það með því að smella á þessa slóð:  http://www.dv.is/menning/sida/42  og merkja þar við hann.Það eitt að vera tilnefndur er mjög gott en hitt væri enn betra.  Ath aðeins má merkja við eina grein.Ekki væri verra ef athygli fleiri yrði vakin á þessuMeð bestu kveðjum,

XXXXXX

 
Elfar Logi Hannesson.
untitled bb.is | 28.02.2008 | 10:24Elfar Logi tilnefndur til menningarverðlauna DVElfar Logi Hannesson, leikari á Ísafirði hefur verið tilnefndur til menningarverðlauna DV. Tilnefninguna hlýtur hann fyrir einleikjahátíðina Act Alone. Í tilnefningunni segir: „Einleikjahátíðin Act Alone, sem er eina reglubundna leiklistarhátíðin á Íslandi, hefur verið haldin á Ísafirði síðan 2004 og er að langmestu leyti framtak eins manns, Elfars Loga Hannessonar. Þar hefur komið fram fjöldi einleikara, bæði innlendra og erlendra, með verk af mjög ólíku tagi. Hátíðin hefur aukið á fjölbreytni íslensks leiklistarlandslags og er einnig mikilsvert framlag til menningarlífs á Vestfjörðum.“ Þrjátíu ár eru síðan Menningarverðlaunum DV var komið á fót en þau voru fyrst afhent árið 1978.

Þann 5. mars verða þau afhent í tuttugasta og níunda sinn en afhending þeirra féll niður í fyrsta sinn á síðasta ári í kjölfar eigendaskipta á DV skömmu fyrir þar síðustu áramót. Verðlaun eru veitt í sjö flokkum - bókmenntum, byggingarlist, hönnun, kvikmyndalist, leiklist, myndlist og tónlist - fyrir framúrskarandi árangur á listasviðinu á síðasta ári.
 

Enn af ófærð og snjó.

Það er ljóst að stubburinn spilar ekki fyrr en á morgun.  Kennarinn hans er veðurtepptur á Flateyri, búið að loka veginum vegna snjóflóðahættu.  Ég er eiginlega hálf feginn því ófærðin er mikil og erfitt að vera á litlum bíl. Elli er ennþá í Bolungarvík, og hefði ekki komist heldur.  Þetta er nú meiri ófærðin, barnsmóðir sonar míns hefur beðið síðan í gær að fljúga suður, en nú er vegurinn tepptur af snjóflóði.  Allt upp á eina bókina lært.

http://www.bb.is/Pages/26?NewsID=112776

 Að vísu ekki alveg svona mikið ennþá hehehe...

snjórá kúlu

En hver veit, hvort það verður svona mikið. 

 


1. mars hið daglega veður.

En fyrst til hamingju með með bjórdaginn. 

IMG_3040

Hehehehehe...

En veðrið er frekar muggulegt, og nú þarf ég að ösla snjóinn upp í mið læri.

IMG_3038

Svona lítur það úr.

IMG_3039

Jamm snjórinn er raunverulegur.

IMG_3037

Og litla gullið mitt heimt úr helju í gær.  Hún átti að vera með eitthvað gult, og það eina sem við fundum var blaðran hérna. 

En nú er stubburinn að fara á æfingu, það eru tónleikar hjá honum í kvöld.  Trommur og bassi, það verður spennandi.

Þá þarf að klæða sig og ösla snjóinn niður að bílnum og vona að okkar menn hafi mokað helstu strætóleiðir,  enda er ég viss um að það hafa þeir gert.  Hvergi eru götur og gangstéttar jafn vel mokaðar og hér. 


« Fyrri síða

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Mars 2008
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2023310

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband