7.3.2008 | 20:30
Manngerð fjöll.
Snjórinn getur tekið á sig hinar ýmsu myndir, en það er líka hægt að gera ýmislegt fallegt úr snjónum, og hér getur að líta nokkur falleg manngerð snjófjöll.
Þessi glæsilegi fjallahnjúkur er í Prestabugtinni.
Þessi glæsilegi snjóhnjúkur er með kirkjuna í baksýn.
Jamm hér má sjá fjall stærra en Himmelbjerget fyrir neðan Túngötuna.
Þessi væni haugur er á Sjúkrahústúninu.
Sést betur hér.
Og stærðin sést betur hér.
Jamm þó við séum fræg fyrir reyksnjóhús, þá eru þetta bara skaflar.
Þessi rétt hjá einum leikskólanum eða Sólborg. En ætli væri hægt að flytja snjóinn út, eitthvert og koma honum í verð. Það er svo sem nóg af honum hér núna
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
7.3.2008 | 17:28
Í tilefni umræðna um sjálfstætt ríki Vestfjarða.
Það hringdi í mig blaðamaður frá 24 stundum til að ræða um sjálfstæða Vestfirði http://asthildurcesil.blog.is/blog/asthildurcesil/entry/465490/#comment1146385 ég sagði honum að mér væri fullkomin alvara, hann ræddi líka við Jakob Fal. Svo það gæti verið fjallað um þetta í 24 stundum á morgun.
En þetta er líka hér; http://bb.is/?PageID=26&NewsID=113101 Svo Þetta framlag Jakobs hefur vakið dálitla athygli.
En við skulum sjá hvert þetta leiðir okkur. Ég hef rætt um þessi mál í 40 ár, því ég skrifaði grein í Morgunblaðið þá, þá voru sunnanmenn einmitt að ergja sig yfir peningum sem færu í vegalagnir á Vestfjörðum, og ég skrifaði og benti á að allt fjármagn sem kæmi inn í samfélagið hér fyrir vestan færi suður. Allt fé sem færi inn í bankana, og allt fé sem kæmi inn fyrir rafmagn og allt fé sem færi í sameiginlega sjóði. Þá voru Vestfirðir ríkir og hér voru hæstu meðaltekjur. Þá voru mikil umsvif og fjársterkustu mennirnir voru hér. Allt þetta hefur verið frá okkur tekið og meira til. Nú er svo komið að margir eru að kikna undan álaginu af því hvernig þeim reiðir af. Við höfum verið arðrænd og niðurlægð á allan hátt. Og nú er enfaldlega komið nóg.
Þess vegna stend ég við það, að við eigum að huga að því að stofna sjálfstætt ríki. Sjá hvert það leiðir okkur, og hvernig við högum okkur í því.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
7.3.2008 | 10:12
Hið daglega veður.
Hér er yndælis veður í dag, í gær var mugga, og hefur bætt í snjóinn, fuglarnir eru svangir, og koma í stórum hópum þegar maður gefur þeim korn.
Ósköp kalsalegt, en þó er ekki kallt þegar maður kemur út.
Ef til vill gægist sólin fram seinna í dag, hver veit.
Hér er svo ein fyrir hitapúkana mín, þessi er tekin á ströndiinni í Mazatlán í Mexico, þar er heitt og notalegt. En ég held að ég vildi samt heldur bara vera hér heima í snjónum.
Sendi ykkur öllum knús inn í þennan föstudag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (25)
6.3.2008 | 17:33
Skilningstréð.
Það er margt sameiginlegt með manni og tré. Til dæmis hafa tré tvennskonar æðar, þær sem flytja steinefni og önnur tilvistarefni úr jörðinni upp í krónuna og svo æðar sem bera ljóstillífunina niður til rótanna. Við höfum svipað æðakerfi innra með okkur, þar sem eru ósæðar og bláæðar, sem gegna sitt hvoru hlutverki. Tré hafa græn blóðkorn en við rauð. En ég er ekki beint að tala um lífræðilegan mun, heldur frekar okkar andlega svið. Meðan tréð tekur næringu úr jörðinni, og síðan koltvísiring úr andrúmsloftinu og framleiðir súrefni, þá komumst við heldur ekki langt án þess að sækja okkar orku úr móður jörð, og að rækta anda okkar með hugsunum og andlegu ríkidæmi.
Trén nýta sér líka framlengingu í jörðinni, þau eiga í samvinnu við sveppi sem lifa neðanjarðar, þeir eru framlenging á rótum trésins, og fá í staðin súrefni frá krónu trésins.
Okkar framlenging er ef til vill fólgin í samvinnu og samstöðu með öðru fólki, eða jafnvel dýrum sem við tökum að okkur og gefa okkur ást og kærleika.
Í fyrstu eru tré örlítil, njóta ekki virðingar, né er eftir þeim tekið. Sama á við um mannfólkið, okkur hættir til að líta yfir smáfólkið og hlusta ekki á það. Þó finnst sannleikurinn í sinni tærustu mynd einmitt í hugum barnanna, réttlætið sterkast og sýnin á það sem er, skærastur.Þegar tré aftur á móti eru fullvaxta og standa glæsileg og bein á sinni rót, þá fyllast margir lotningu yfir fegurð þeirra, og jafnvel margir sem trúa á mátt þeirra og megin.
Við eldumst og þroskumst, og berum ávöxt. En aldurinn eykur okkur þroska. Það er ekki út af engu sem öldungarnir voru aðalráðgjafarnir í eldri samfélögum. Menn vissu að því eldri sem menn urðu, því vísari urðu þeir, og þroskaðir til að takast á við hið daglega líf, og miðla öðrum af visku sinni. Því er dálítið sorglegt að upplifa æskudýrkun mannsins í dag, það er þó að breytast smátt og smátt, þegar menn eru aftur að uppgötva fjársjóðin í fólki sem er reynslunni ríkari. Menn mættu stundum fara aftur til eldri tíma og skoða upphaf sitt.Það er líka svo með menntun. Nú er allt kapp lagt á að fólk mennti sig, nái sér í gráður og titla. Það er svo sem af hinu góða, svo lengi sem menn missa ekki sjónar á því sem skiptir raunverulega máli, en það er hæfni einstaklingsins sjálfs til að takast á við lifið og umhverfi sitt.
Menn geta haft allskonar próf og nafnbætur, en verið alveg jafn ófærir um að miðla því af sér. Ég þekki líka fjöldann allan af fólki sem rétt hefur gengið gegnum gagnfræðaskóla, en er sjálfmenntað í þessu eða hinu, ég hef hitt mann sem eru með bestu rafeindsvirkjum, af því að að áhuginn hans vaknaði á slíku. Og fleiri sem gengu aldrei í skóla, en eru sjálfmenntaðir, ég hef séð bifvélavirkja, tölvufræðinga og bara allkonar fólk sem hefur komist vel áfram á sínum eigin dugnaði og áhuga. Ekki að ég sé að vanmeta skólagöngu, hún ein og sér skilar bara ekki einstaklingi út í lífið, ef hann hefur ekki ræktað sjálfan sig til að takast á við það sem hann er að vinna við.
Það er stundum talað um menntasnobb og vissulega leggja margir upp úr því að vera titlaðir hitt og þetta. En skiptir það svo miklu máli þegar allt kemur til alls, ef þeir sömu standa ekki undir þeim væntingum sem til þeirra eru gerðir og hafa ekkert nema prófgráðuna til að sýna fram á getu sína ?Og skiptir það þá máli hvort þessi eða hinn hafi ekki skírteini upp á vasann um að hann hafi lært þetta eða hitt, ef hann getur sýnt fram á getu sína til að sinna því sem hann vill vinna við ?
Við erum oft föst í einhverju neti, þar sem hið raunverulega gildismat kemst aldrei að, af því að við erum uppfull af einhverju öðru en því sem er kjarninn í okkur. Hið andlega ríkidæmi, og ræturnar ofan í jörðinni. Sú festa sem ekki verður af okkur tekinn, en er samt svo einföld og sjálfsögð, bara ef við komum auga á hana. Viðurkennum hana og lifum samkvæmt því.
Mér finnst stundum eins og við lifum í gerfiveröld, þar sem við höfum búið til önnur gildi og gerfiþarfir sem þjóna í raun og veru ekki okkar andlegu verund. Er það þess vegna sem við erum svona ráðvillt og veruleika firrt ? Ég hef oft leitt hugan að þessu, og mér finnst einhvern veginn að við leiðumst æ lengra í burtu frá því sem skiptir okkur mestu máli. Sálinni og hennar þörfum. Hún þarf ekki auð og völd, hún þarf ekki að eignast allt sem hugurinn girnist. Sálin okkar er einföld og sjálfri sér nóg. Þegar við skynjum að veraldleg gæði þessa heims hafa lítið með sálina í okkur að gera, þá fyrst er hægt að fara að lifa góðu og fullnægjandi lífi. Þegar áhugi okkar er bundin þeim sem við elskum, og því sem næst okkur er, og umhyggja okkar beinist að þeim sem minna mega sín, þegar grundvallarþörf okkar verður að allir aðrir séu líka hamingjusamir, þá fyrst getum við sagt að við séum hamingjusöm. Þá blómstrar vort andlega líf.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
Af því að bloggvinur minn Jakob Falur var að tala um sjálfstæða Vestfirði, þá langar mig að setja hér inn hugleiðingu mína frá 1. nóvember 2004, en ég hef oft áður reyfað þessi mál. En hér er hugleiðingin.
http://www.malefnin.com/ib/index.php?showtopic=24844&hl=Niceland
Ég var að fara gegnum gamalt efni hjá mér, og rakst á þessa hugleiðingu frá 9.4. 2001. Læt hana flakka hér í gamni mínu. Vinnuheitið á þessu var Niceland.
Ég hlustaði á sunnudagsspjall við Guðjón Arnar s.l. sunnudag. Mér fannst Addi komast mjög vel frá því kaffispjalli. Hann er alltaf málefnalegur og skeleggur, við erum heppin að eiga slíkan málsvara vestfirðingar og auðvitað njóta aðrir landsbyggðamenn góðs af málflutningi hans.
Ég er alveg sammála Adda að kvóti á ýsu, steinbít og ufsa verði til þess að rústa byggðum landsins, og það er alveg með ólíkindum að stjórnvöld haldi því til streitu án þess að skeyta um hvað verður.
Ég var að hugsa um að við verðum með einhverjum ráðum að ná vopnum okkar og gera eitthvað í málinu svo þetta nái ekki fram að ganga.
Ég var að láta mér detta í hug að við myndum kanna möguleikana á að stofna sjálfstætt ríki á vestfjörðum, þetta ríki næði frá Hrútafirði og Gilsfirði og yfir allan Vestfjarðarkjálkan, og við myndum einfaldlega girða okkur frá. Við myndum síðan krefjast fiskimiða okkar og búa að því sem Vestfirðir eiga. Það er hægt að nota tímann fram að september til að athuga kosti og galla þess að stofna sjálfstætt ríki. Það er að segja ef stjórnvöld ætla að kippa undan okkur lífstilverunni, þá segjum við okkur úr lögum við Ísland og stofnum sjálfstætt ríki. Ég er alveg viss um að málstaður okkar er það sterkur að þó einhverjir vildu setja fótinn fyrir okkur, þá er aðstaða okkar þannig í dag að Evrópudómstóll, eða mannréttindadómstólar myndu standa okkar meginn í því að verja tilveru okkar.
Ég er viss um að þegar við værum laus við yfirráð að sunnan, þá myndi okkur fjölga fljótlega, Öll verðmætamyndum yrði notuð hér, og við myndum koma okkur upp eigin bönkum og gullforða. Við myndum losna við töluvert af spillingun og mangi. Það er líka löngu orðið ljóst að stærri einingar eru ekki hagkvæmari en minni. Bestu fyrirtækin eru lítil fyrirtæki. Þar er betur haldið utan um hlutina, og hér myndi stjórnsýslan vera nær fólkinu en nú er. Það yrði auðvitað byrjað á að stórbæta vegasamgöngur innan ríkisins, þannig að samgöngur yrðu greiðar milli Patreksfjarðar, Ísafjarðar og Hólmavíkur, sem yrðu helstu byggðarkjarnar ríkisins.
Við myndum sennilega gera milliríkjasamninga um ýmis mál svo sem háskólamenntun, og fleira sem yrði okkur of stór biti. En það gæti allt eins verið við Danmörku, Stóra Bretland eða Bandaríkin eins og Ísland. Við myndum örugglega koma okkur upp samgöngum til útlanda. Flugvöllurinn í Dýrafirði yrði t.d. mjög heppilegur alþjóðaflugvöllur, og þá yrði grundvöllur til að kaupa fragtskip, sem sigldi með afurðir okkar út og kæmi með vörur. Auk þess myndi þetta litla ríki virka spennandi og forvitnilega á útlendinga, við myndum örugglega njóta vissrar samúðar, og fá þar af leiðandi fleiri tækifæri frá hinum stóra heimi.
Mig langar til að fá umræðu um þetta mál af fullri alvöru, sértaklega myndi ég vilja fá upp á yfirborðið kosti og galla þessarara hugmyndar frá hagfræðingum og fésýslumönnum vestfirskum.
Í staðin fyrir að sitja með hendur í skauti og bíða þess sem verða vill, hvað hinum háum herrum fyrir sunnan þóknast að láta yfir okkur dynja, vil ég að við stöndum upp og gerum eitthvað sjálf. Vestfirðingar hafa alltaf verið duglegt og harðgert fólk, sem ekki lætur deigan síga við hættuástand. Við verðum að verja tilveru okkar sjálf, það gerir það engin fyrir okkur.
Ég vil biðja fleiri að láta í sér heyra um þetta mál.
Með bestu kveðjum Cesil
Maður getur alltaf látið sig dreyma.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
5.3.2008 | 15:03
Hið daglega veður.
Veðrið er gott hérna núna, logn og allt svo hreint og fallegt með nýfallinni mjöll.
Sú stutta á leið í leikskólann sinn á Suðureyri.
Stundum er maður staddur í ævintýraveröld, svona einn og yfirgefinn, og bíður þess að tröllin poppi fram og stöðvi mann.
Nú eða huldar vættir, eða eins og þessi engill sem hér svífur yfir.
Svissneskt fjallaþorp ? nei sumarbústaðabyggðin í Tungudal, sennilega alveg sérstakt fyrir bæri, þar sem þarna eiga bæjarbúar sumarhús, sem þeir bókstaflega flytja í á sumrin, og eru þar allt sumarið í góðu yfirlæti.
Það er eins og fjöllin nái saman í enda fjarðarins. Ég hef hitt fólk sem kom sjóleiðina, og var að spá í hvað það hefði komist inn í fjörðinn, því hann virðist vera lokaður af.
Felumynd af kúlunni minni.
Það er bjart yfir norðrinu. Vonandi kemst minn maður heim í kvöld með vélinni, hann fór ásamt einum portugala sem vinnur hjá okkur, sá var að verða blindur, og því nauðsynlegt að koma honum til sérfræðings fyrir sunnan. Vonandi er eitthvað hægt að gera fyrir hann. Fékk víst sýru í augun heima hjá sér í Portugal, og ekkert gert í því, þegar það gerðist. Sennilega ekki mjög vinnuvænt umhverfi þar.
En sum sé þetta er rapport um hið daglega veður á Ísafirði. Og ég held að Ólínu sé alveg óhætt að labba Seljalandsveginn, eins og hún gerir nánast á hverjum degi með Dalmatíutíkina sína.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
4.3.2008 | 22:50
Þegar ég varð sextug.
Ég var að taka til í tölvunni minni og rakst á þessa tölu mína sem ég hélt í tilefni af 60 ára afmælinu mínu, og út af pælingum hennar Jennýjar hér bloggvinkonu m.a. um hrukkur, datt mér í hug að setja hana hér inn svona undir svefnin, til gamans.
Þegar ég var eins árs, þá hafði ég eins og barnið í Mary Poppins, gleymt þrastarmálinu, og hvers vegna ég kom og hvað ég ætlaði mér að gera.Þegar ég var tíu ára, hélt ég að lífið væri búið um tvítugt. Þegar ég var tvítug, héldu allir að ég væri sextán. Þegar ég varð þrítug, héldu allir að ég væri tvítug. Fertug varð ég og enn á uppleið, gæjarnir horfðu á eftir mér, og blístruðu. Fimmtug, og strákarnir horfðu enn á eftir mér, að vísu svolítið eldri strákar.Í dag er ég sextug, ég er að byrja að róast og þroskast. Ég er farin að hlakka til að verða sjötug, og geta farið að hafa tíma til að raða myndunum inn í albúm, og dútla í róleg heitum, sem kannski endist mér til áttræðs. Níræð gæti ég orðið, ellismellur á heimili fyrir slíka, ef ég verði hundrað, þá kemst ég í viðtal við blöðin án fyrirhafnar, 106, þá fæ ég bréf frá ökuskólanum. En ég ætla að lifa í topp uns kallið kemur. Nú er ég orðin nógu þroskuð til að vita hvað hlýhugur þýðir. Hlýhugur?Það er orð sem maður skilur ekki fyrr en maður er orðin eldri en tvævetur. Þegar maður er ungur, þá heyrir maður þetta orð, og það virkar mjög fjarlægt. En það er ekki mjög langt síðan að ég fór að setja merkingu í þetta orð. Hlýhugur, þegar maður loksins skilur það, þá segir það svo óendanlega margt. Það segir að þegar maður finnur hlýhug, þá þýðir það það, að einhverjum þykir vænt um mann. Hlýhugur kemur ekki út af engu, sá hugur er áskapaður, maður hefur unnið fyrir honum. Enginn nennir að sýna einhverjum hlýhug, sem honum líkar ekki við. Til hvers ? það er hægt að smjaðra, og biðja og rella. En að sýna hlýhug........ nei, fyrir honum þarftu að eiga inneign. Ég hef undanfarið verið að átta mig á þessu. Og skynja þenna fallega hug, sem ég finn fyrir. Og mér líkar hann vel. Og hjarta mitt fyllist þakklæti, til þeirra sem sýna mér hann, og forsjóninni fyrir að hafa gefið mér tilefni til að geta vænst þess að einhver sýni mér slíkan hug. Það er sagt að bágt eigi vinalaus maður, og slíkur á svo sannarlega bágt. En enginn er vinalaus, ef hann hefur ræktað vináttuna við náunga sinn. Vináttu og kærleika þarf að rækta eins og hvert annað kærleiksblóm, hlú að henni, og leggja sig fram um að eiga innistæðu. Leggja inn í kærleiksbankann. Að gefa af sjálfum sér. Annað sem ég get þakkað forsjóninni fyrir er, að ég er maður hversdagsins. Ég er almúgakona, svo að það þarf enginn að smjaðra fyrir mér, eða leika neinn leik. Þeir sem hafa völd, peninga og frægð, verða að búa við það, að vita ekki hvenær vinátta er boðin af góðum huga eða af löngun í vegtyllu, eða viðurkenningu af einhverju tagi. Enginn þarf að smjaðra fyrir mér, þannig að þeir sem eru mér góðir, eru það af því að þá langar til að vera mér góðir, eða þeir hafa fundið eitthvað í minni persónu, sem gerir það að verkum að þá langar að auðsýna mér velvild og hlýhug. Eftir því sem ég verð eldri, því vænna þykir mér um slíkt. Og kann betur að meta það. Sennilega spilar þarna inn í, að þegar við hverfum héðan, þá förum við eins og við stöndum. Við tökum ekki með okkur kornhlöðurnar eða peninga.Það sem við getum hugsanlega tekið með okkur yfir móðuna miklu, er einungis kærleikur og væntumþykja. Ég er þess fullviss að þeirri sál, sem þannig fer, mun vegna betur, og ganga betur að aðlagast nýjum aðstæðum. Þess vegna mínir kæru gestir, er ég þakklát þegar ég lít yfir hópin í kvöld og sé ykkur öll standa hér, til að fagna með mér og mínum elskulega maka til þrjátíu og fjögurra ára. Þakklát fyrir að þið skylduð taka frá tíma til að koma og fagna með okkur, og sýna okkur þann hlýhug sem við höfum orðið áskynja. Ég vil líka þakka þeim sem höfðu samband og gátu ekki verið með okkur hér í kvöld.Svo ég segi bara kærlega takk fyrir okkur. Og megi kvöldið vera öllum ánægjulegt


Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
4.3.2008 | 19:14
Lýst mér á það lagsi minn, og þó fyrr hefði verið.
Já ég er sammála honum Skafta http://skaftie.blog.is/blog/skaftie/ Að það er tvískinnungur í gangi um að ofvernda hval, en svo má drepa öll önnur dýr, þar á meðal menn konur og börn.
Það er nokkuð ljóst að Hrefnan étur mikið af okkar nytjategundum, og þar förum við eiginlega halloka, ég las á einhverju blogginu að það borgaði sig hreinlega að skjóta hana og sökkva henni. Eitthvað verður að gera. Friðun er komin langt út fyrir öll skynsemismörk og einungis hræðsla við verndunarsinna kemur í veg fyrir skynsamlega nýtingu á hvalastofnum hér við land. Það er ljóst að stofnstærð hrefnu er sterk hér við land. Svo ekki nokkur hætta er á útrýmingu hennar. Svo er hrefnukjöt hið mesta lostæti, og oft betra en nautakjöt, sé það rétt meðhöndlað.
![]() |
Borðið hvalkjöt og bjargið heiminum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.3.2008 | 12:17
Er stríðið í Írak og vandamál múslimaheimsins svo fjarri okkur ?
Ég hef verið að horfa á þessa glaðlegu og fjörugu stráka sem ég birti myndina af í gær. Og hugur minn hefur hvarflað til dómsmálaráðherrans okkar, sem langar helst til að taka upp herþjónustu, og taka þátt í stríðsbrölti um heiminn. Hann hefur jafnvel gengið svo langt að ræða um að björgunarsveitirnar gerist heimavarnarlið og útkallssveit og læri vopnaburð.
Ég verð að segja að mér hugnast þessi hugsanagangur engan veginn. Og það er hægar í að komast en úr að fara. Ef ráðamönnum tekst að koma hér upp her, verður ekki aftur snúið. Það er hræðileg tilhugsun.
En aftur að þessum glöðu drengum. Hvað ef hér væri herþjónusta, og að þeir herramenn sem tóku það upp hjá sjálfum sér að blanda okkur í ólöglega innrás í Írak, hefðu komið því við að senda drengina okkar í slíkar morðferðir.
Það er ekki svo langt í burtu frá okkur þegar allt kemur til alls. Ég á yndislegan frænda, systurson, sem býr í Danmörku, hann var sendur til Írak. Að vísu er hann með allskonar orður og viðurkenningar fyrir hetjulega framgöngu, þar sem hann sýndi bæði fórnfýsi og hugrekki. En örin í sálinni gróa ekki svo glatt.
Ég ætla hér að birta úr bréfi mágs míns, sem hann setti á netið, svo þið getið séð að við erum bara hársbreidd frá hryllingnum.
Gef honum hér orið.
"Nú langar mig að skrifa nokkra línur um mínar hugsanir til Drengjana Okkar sem fóru að berjarst í Írak. Ég birti hér nú einnig mynd af Hjalta slösuðum, sem ég gat ekki áður þar til að allir Dönsku hermennirnir voru farnir frá Basra. Þótt að útlegðin í stríðinu hafi verið okkur öllum erfið erum við Guði þakklát fyrir öll bænasvörin um vernd yfir Hjalta, en sorglega náðu ekki allir drengirnir heim á lífi. Þetta er það verð sem við greiðum fyrir Bandaríska heimsvaldastefnu á sama tíma sem við erum að reyna að verja það vestræna lýðræði og stjórnskipan sem margar kynslóðir hafa barist fyrir, en á sama tíma er það eins og fjármálahákar og olíjuokrarar nýti sér þetta út til ystu æsar. Áttaíu prósent af útfluningstekjum Bandaríkjamanna kemur af sölu á hergagna framleiðslu og er það holt og gott fyrir þeirra efnahag að það séu alltaf ölfugar styrjaldir í gangi. Kaupmannahöfn brennur fólk frá Arabalöndunum notar sér óspart tækifærið við birtingu M-teikninga að koma fram með sína óánæju með hverning farið er með þá. Ég hefi haft samtöl við ýmsa nágranna og vini um þessi mál og þeir segja að margra ára útskúfun frá atvinnutækifærum og kynþáttamisrétti eigi sér rót að þessum óeirðum, hvort að það sé rétt að senda börnin sín undir lögaldri út á kvöldin til þessara aðgerða, verða þeir að taka fulla ábyrgð á. Ég hefi alltaf sagt að við Skandinafar hefðum aldrei í byrjun átt að taka við þeim, við erum nefnilega þannig, að ef útlendingur vill ekki verða eins og Við í máli, trúarbrögðum. skoðunum og háttum, þá eru þeir í raun ekkert velkomnir í okkar samfélag, þetta er nú bara þjóðarsálin!. Ég held að almenningur og stjórnmálamenn ættu að skoða þessa staðreynd og fara að sætta sig að þetta fólk eru þjóðarbrot sem hafa engan áhuga á að verða eins og VIÐ." Tilvitnun lýkur.
Frændi minn hér lengst til vinstri.
Í 50 °hita inn í skriðdrekum, spurningin um að skjóta eða verða skotinn, allstaðar hætta á sprengjum. Ég er ekki að vorkenna innrásarliðinu, en ég er að segja að það er hræðilegt hvað er verið að leggja á syni og dætur fólks í löndum þar sem herþjónusta ríkir. En þó þessi yndislegi frændi minn hafi komið heim í heilu lagi, þá er langur vegur frá að hann hafi náð sér andlega. Einn besti vinur hans var sprengdur við hliðina á honum. Annar úr deildinni hans framdi sjálfsmorð þegar heim var komið, gat ekki lifað með minningunum. Hann sjálfur gengur til sálfræðings hersins.
Er það svona sem við viljum til handa okkar saklausu börnum ? Ég segi nei takk Björn Bjarnason, ég vil ekki sjá að íslendingar verði nokkru sinni svo aumir að þeir lyfti vopnum gegn neinni þjóð.
Það getur vel verið að sumir hafi einhverja blauta drauma um frægð og frama í herbúningum og upphefð á vígvelli, en fyrr skal ég dauð liggja en samþykkja slíkt til handa okkar sonum og dætrum, við skulum því vera vel á verði gagnvart öllum tilraunum til að gera Ísland að herveldi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
Nema þá sem var einmitt í sundlauginni með þeim. En ég fór á Suðureyri seinni partinn til að ná í prinsessuna mína, og við fórum í sund í leiðinni. Þar voru tvö hörkutól sem sýndu svo ekki varð um villst að þeir eru karlar í krapinu.
Flottir ekki satt ?
Gaman í snjónum. Þetta kalla ég hörkukarla.
Og komnir ofan í hlýjuna aftur.
Vatn er náttúrulega bara vatn, í hvaða formi sem það er ekki satt ?
Þessi mynd er sérstaklega fyrir Sigrúnu, annars var erfitt að finna rétta húsið, þar sem húsnúmerin eru eitthvað á reiki.
Svo ég tók nokkur hús til viðbótar svona til öryggis.
En þetta var sérdeilis fallegur dagur.
Og mikill snjór á Suðureyri.
Þetta er aðalgatan gegnum þorpið.
Hér erum við að koma úr sundi, hið nýja íþróttahús tengist sundlauginni, með þessum skemmtilega gangi.
Svo að lokum mynd af Kubbanum. Takið eftir birtunni í ljósaskiptunum. Við fórum á Thai Koon og fengum okkur Thai mat að borða, sem er hið mesta hnossgæti.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 2
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 39
- Frá upphafi: 2023308
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar