Kolbrún Bergþórsdóttir drullar upp á bak.

Það barst mér til eyrna blaðagrein í Morgunblaðinu í gær eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur, ég varð að lesa hana tvisvar yfir, til að skilja að hún var að ræða um Frjálslyndaflokkinn.  Fyrir utan að greinin er á allan hátt Kolbrúnu til háborinnar skammar, þá eru hún ein staðreyndavilla út í gegn.  Ég vil ráðleggja henni að kynna sér málefnahandbók Frjálslynda flokksins, hún er aðgengileg á www.xf.is, þar kemur meðal annars fram að flokkurinn hefur mörg góð mál á sinni stefnuskrá. 

Ég er reyndar mest hissa á Morgunblaðinu sem vill láta taka sig alvarlega sem fjölmiðil að birta svona sora og ómerkilegheit. 

   

Í þessari grein ræðst hún með offorsi á þingmenn flokksins,  og segir eftirfarandi;   Það var mikið mein þegar fulltrúar þessa flokks komust  á þing og töldu sig vera gilda fulltrúa þjóðarinnar, jafn illa talandi og illa þenkjandi og þeir sýndu sig vera. 

 

Og svo síðar: Það má svo sem halda því fram með nokkrum rökum að ágætt sé að menn sem hafi engan áhuga á þjóðfélagsmálum en því meiri áhuga á sjálfum sér safnist saman í einn flokk, en dreifi sér ekki á milli bæja. 

 

Og hérna;

 Það er svo margt furðulegt við Frjálslynda flokkinn þar á meðal sú staðreynd að formaður flokksins virðist vera ágætis maður sem virðist aldrei átta sig á því að flokkur hans var kominn út á hættulegar villigötur.   (Leturbreytingar eru mínar) 

Nú langar mig að spyrja þig Kolbrún Bergþórsdóttir; 
Hvað áttu við með því að Guðjón Arnar, Sigurjón Þórðarson Magnús Þór Hafsteinsson og Sverrir Hermannsson séu illa talandi og illa þenkjandi, eða ertu ef til vill að vísa í Grétar Mar, Jón Magnússon eða Kristinn H. Gunnarsson?  Ég veit ekki til þess að Guðjón Arnar né neinn þessara manna sé illa þenkjandi og ekki eru þeir illa máli farnir, svo mikið er víst. 

 Hvað hefurðu svo fyrir þér í því að Guðjón Arnar og Grétar Mar hafi ekki áhuga á þjóðfélagsmálum? Menn sem hafa hvað eftir annað lagt fram frumvörp til leiðréttingar á kjörum aldraðra og öryrkja, um afnám verðtrygginga og allskonar góð mál, sem oftar en ekki hafa svo verið tekin upp af hinum flokkunum, nær óbreytt og samþykkt öllum til hagsbóta.  Guðjón Arnar er einn ötulasti þingmaður að fara um landið og ræða við almenning í þessu landi, það er Grétar Mar líka, svo  það er ekki hægt að segja að þessir menn hafi ekki áhuga á þjóðfélagsmálum.

Og hvað áttu við með að flokkurinn hafi verið kominn á hættulegar brautir?   Útlendingaumræðan var blásinn út m.a. af Jóni Magnússyni, sem er nú gengin til liðs við Sjálfstæðismenn, svo þessi hættulega umræða er nú komin heim í föðurhús sín.  En við í Frjálslynda flokknum höfum góða stefnu í málefnum útlendinga, sem þú getur kynnt þér ef þú nennir að lesa samþykktir og málefnaskrá flokksins áður en þú ryður út úr þér lyginni og ómerkilegheitunum. 

 

Þar  stendur m.a. þetta;

 

Úr málefnahandbók bls. 34.

 

 Innflytjendur og flóttafólk. 

Leggja þarf aukna áherslu á íslenskukunnáttu innflytjenda til að auðvelda þeim þátttöku í íslendsku þjóðfélagi.  Tryggja ber að þessi hópur njóti félagslegs jafnréttis og geti tekið fullan þátt í samfélaginu, öllum til hagsbóta.

  

Íslenskt þjóðfélag mun í framtíðinni að hluta til verða myndað af hópum fólks sem á rætur að rekja til ólíkra menningarheima.  Frjálslyndi flokkurinn telur að tilkoma fólks af erlendu bergi brotið leiði til víðsýni meðal þjóðarinnar og auki samkeppnishæfni hennar á aljóðavettvangi.

 

Ísland á ekki að skorast undan ábyrgð í málefnum flóttafólks.  Einnig ber íslendingum að taka þátt í mannúðar- og hjálparstarfi á erldnum vettvangi.

  

Hvar sérð þú hættulegar yfirlýsingar hér. 

 

Nei Kolbrún Bergþórsdóttir, með þessum skrifum hefur þú svo sannarlega sýnt skítlegt eðli, og fyrir mér allavega verður þú hér eftir ómarktæk.  Þar sem þú hirðir ekkert um sannleikann, eða það sem rétt er, heldur þína bjöguðu sýn á menn og málefni.  Ég vona svo sannarlega að þú kunnir að skammast þín, og vinsamlegast biddu okkur fólkið í Frjálslyndaflokknum formlega afsökunar á lygum og illa ígrunduðum áróðri þínum. 

 Að þú skulir kalla þig blaðamann er algjörlega út úr korti.  Þú ert hér á við Eirík Stefánsson Útvarpssögu hetju í sleggjudómum og skítkasti.  Lýðræðið er þér greinilega ekki ofarlega í huga, þegar þú vilt þagga niður í fólki sem kosið hefur verið á þing út á sín góðu málefni og áhuga að að bæta kjör fólksins í landinu, því ef þú nennir að skoða þau þingmál sem flokkurinn hefur lagt fram, þá sérðu að þar eru mörg þörf og brýn mál sem ættu svo sannarlega að koma fram, en því miður þá er í gangi þöggun á Frjálslynda flokkinn, nema þegar fólk eins og þú finnur hjá sér hvöt til að afbaka og falsa málefnin sem flokkurinn stendur fyrir.

svona undir svefninn.

 

BörniTakk elskurnar er búin að lesa og ætla að fara hringin á morgun.

En hér eru nokkrar myndir teknar í dag;

IMG_6220

Veðrið i dag var yndislegt.

IMG_6222

Þessi var tekinn í gær á leíð í sund á Suðureyri flottustu sundlaug ever.

IMG_6224

Á tjörninni ís mjög sterkur.

IMG_6226

Já og hér er alveg nýtt, hús við pollinn, Elías hér að verki.

IMG_6228

Og Gölturinn í sínu fulla veldi hér á Suðueyri.

IMG_6229´

Ísafjörður á sólríkum febrúardegi.

IMG_6230

Jamm birtan er flott hér á þessum tíma

IMG_6231

Segi og skrifa.

IMG_6234

Og persónulegra.

IMG_6237

Börnin mín svo yndæl.

IMG_6247+

stigin er bestur hehehe

IMG_6251

Hann passar nefnilega svo vel við öll tækifæri,

IMG_6253

Jamm tómatsósan er góð.

IMG_6255

Jamm það er hægt að sættast á tómatsósuna hehehe

IMG_6257

eins og ég sagði er veðrið upp á sitt besta.´

IMG_6265

Eins og ég sagði þá er vorið að koma á Seljalandsvegi 100.

IMG_6268

Afi með tvær skottur.

IMG_6271

Ja það þarf að mörgu að hyggja.

IMG_6275

Ó þú fagri Ísafjörður.

IMG_6281

svo getur maður fengið sér smáblund í bílnum hjá ömmu.  hehehehe

IMG_6282

Dularfull getur umhverfið verið stundum.

IMG_6288

en við fórum í smáheimsókn inn í hesthúsahverfið.

IMG_6294

Að ósk litlu manneskjunnar.

IMG_6295

Þessi fór í fjörufeð með Júlla að týna steina til að gera fiska úr. Svona ætlar hún á leikskólann á morgun, segir hún. en þetta var dýrðardagur í dag. Og ég segi bara góða nótt mín elskuleg.

 


Nokkrar myndir.

Það er fallegt veður á Ísafirði í dag, líka í gær.  Ég set fleiri myndir inn seinna, en ég hafði Evítu litlu í pössun í nótt, þær skiptust á að vakna og biðja um að súpa, fyrir utan smáatriði eins og að biðja um pabba og mömmu hehehehe... en afi hjálpaði til sem betur fer. 

IMG_6189

Þessi er tekinn í fyrradag.

IMG_6191

En það er byrjað að vora í kúlunni og bæði í gær og fyrradag grilluðum við þar frammi.

IMG_6200

Þær litlu voru mjög áhugasamar um grillið og afa sinn.

IMG_6202

Það er samt tjörnin sem alltaf heillar mest.

IMG_6204

Sulla sulla sulla.....

IMG_6208

Og svo er líka málað en sem betur fer bara með vatni.

IMG_6215

Jamm það er málað og penslarnir svo skoðaðir vel.

IMG_6218

ég komst að því að stelpan er hörkudugleg, hún málaði eins og hún væri í akkorði og hvergi helgidagar.  Ótrúlegt af litlu 2ja ára barni.

En eigið góðan dag elskurnar.  En ég set mjög líklega nýrri myndir inn seinna í dag.


« Fyrri síða

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Mars 2009
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband