11.3.2008 | 21:35
Hin hvíta fegurð vestfirskra fjalla.
Já eins og fram hefur komið þá var veðrið hreint unaðsleg hér i dag.
Byrja samt á stúlkunni minni og nýju náttafötunum, og í nótt þá gistir líka litli Óðinn Freyr hjá ömmu og afa.
En þessi fallegu litir og birta eru eilíf uppspretta gleði fyrir mig.
Og þessi ævintýra heimur er bara ótrúlegur. Súgandafjörðurinn í öllu sínu ævintýraveldi.
Hér sést Botn og Súgandafjörðurinn og fjöllinn, ótrúleg fegurð og hreinleiki.
Og ennþá og aftur.
Ísafjörður í kaldri fegurð.
Elskulegi stubburinn minn, þurfti að fara eitthvað sem hann vildi ekki, og hér er mynd sem sýnir þögul mótmæli, en þetta var samt honum fyrir bestu, hann er bara of ungur til að skilja suma hluti.
Hér er hann svo komin upp á dal, ánægður og sæll.
Já þessi paradís er það sem bíður skíðavikugesta í næstu viku.
Algjörlega meiriháttar
Hin hvíta paradís, sem bíður gesta sinna og fólksins sem er að koma heim á Páskunum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
11.3.2008 | 11:11
Káta hóran, den glade lude.
Horfði á Kastjósið í gærkveldi, þar sem var merkilegt við tal við konu í Danmörku sem stundar vændi. Ég er svona að spá í hvernig feministar taka þessu viðtali. Sennilega verða viðbrögðin lítil ef ég þekki rétt til.
En þessi ágæta kona sem er að mig minnir hjúkrunarfræðingur, ákvað að prófa þessa leið til að "leika" sér eins og hún kallaði það. Hún naut þess að selja sig, og hafði góð laun. Svo góð að, að lokum þurfti hún að standa frammi fyrir því vali að hætta, eða gera þetta að alvöru atvinnu, með vasknúmeri. Og það gerði hún.
Viðtalilð er hér: http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4365630/3
Það kom fram hjá henni að rödd vændiskvenna heyrðist aldrei í umræðunni um vændi, þar töluðu aðrar stéttir kvenna um þær og atvinnu þeirra. Hún sagði að tölur um nauðungarvændi og mansal væru stórlega ýktar. Ekki ætla ég að dæma um það, en ég er líka viss um að fólk sem hrærist í ákveðnum kreðsum þekkir betur umhverfið en fólk sem áætlar bara.
Ég kynntist til dæmis lífi og umhverfi fíkla, þegar fólkið mitt var komið á kaf í svoleiðis, og ég er alveg viss um að fæstir sem fjalla um þeirra mál geri sér grein fyrir þeim lögmálum sem þar gilda, milli þeirra og þá samtryggingu sem þeir hafa sjálfir sín á milli.
Þess vegna hallast ég að því að trúa konunni. Svo var hún spurð um það, af hverju hún kæmi ekki hreint fram í viðtalinu, í mynd og undir nafni. Þá svaraði hún; það er af því að fordómarnir eru slíkir í samfélaginu, að ég yrði fyrir allskonar aðkasti frá fólkinu í samfélaginu.
Og þetta er það sem mér finnst alvarlegast í þessu. Ég er svo sem ekki hlynnt þessari atvinnugrein, síður en svo. En verðum við ekki að leyfa fólki að gera það sem það langar til og vill. Hver erum við að kasta fyrsta steininum, alltaf endalaust. Við búum okkur til einhverja mynd, og verjum hana, og ætlumst til að allir aðrir geri það líka.
Af hverju þarf manneskja að fara huldu höfði með þá atvinnu sem hún vill stunda, af því að það fittar ekki inn í okkar smáborgarahugsunarhátt ?
Ef manneskja vill hafa atvinnu af því að selja líkama sinn, þá á hún skilyrðislaust að fá að gera það í friði, og án okkar afskipta. Hitt er svo annað mál, að það á aldrei að líða að þriðji aðili hafi hagnað af slíku, eða að fólk sé þvingað í svona aðstöðu. Á því á að taka hart, og fara með sem mannsmorð, ekkert minna en það.
Hér þarf að skilja á milli, og mér sýnist það hafa verið gert hér með því að leyfa vændi. En banna að þriðji aðili hagnis á sliku.
Þær konur sem hæst hafa um að konur þurfi að hafa yfirráð yfir eigin líkama, til dæmis til fóstureyðingar, hljóta líka að viðurkenna að kona hafi yfirráð yfir sínum líkama til að nota hann sér til framfæris ekki satt.
Fordómar hvaðan sem þeir koma og að hverjum sem þeir beinast eru andstyggilegir. Og besta leiðin til að útrýma þeim er þekking. Þetta viðtal hefur breytt mínu viðhorfi allavega til þessara kvenna. Ég held að viðtalið hafi verið vegna þess að þær opnuðu heimasíðu á baráttudegi kvenna, til að leggja áherslu á að þær vilja láta rödd sína heyrast eins og aðrar stéttir kvenna.
10.3.2008 | 20:39
Sól og snjór og Skíðavikan nálgast, og svo auðvitað Aldrei fór ég suður.
Já Sólin braust fram eftir hádegið, og það var sérdeilis fallegt veður og fallegur bærinn minn.
Hér er byrjað að rifa í skýin, og þá á maður að syngja sól sól skín á mig.
Nýr sjónarhóll á kúlunni ekki satt.
Blár himininn brosir við Ísfirðingum.
Og sólin skríður niður Eyrarfjallið.
En inni dafnar sáningin.
Og græðlingarnir.
Snjóhúsið mitt.
Við fórum svo í sund á Suðureyri af því að veðrið var svo gott, en það er pínukalt í snjónum fyrir litla dömu.
Þau eru líka tignarleg fjöllin í Súgandafirði.
Og Ísafjörður og Tungudalur skörtuðu sínu fegursta, Tungudalurinn og skíðasvæðið eru alveg tilbúin að taka á móti skíðavikugestum, sem fara að streyma í næstu viku, því hún verður sett næst komandi miðvikudag.
Bærinn minn fallegi.
Og snjóhúsið hehehehe.
Amma keypti ný náttaföt á prinsessuna, og hún var orðin rosalega þreytt, og var sofnuð fyrir átta. Þegar mikið er að gera, þá þarf maður að fara snemma að sofa.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
10.3.2008 | 13:47
Hið daglega veður.
Já hér er gott veður bjart þó ekki sé sól, og logn.
Heilmikill snjór náttúrulega.
Hér sést birtan í fjallatoppum.
Þessi er svo tekin í hádeginu, og sést að það er farið að sjá í bláan himin í norðrinu.
Vonandi eigið þið öll góðan mánudag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
10.3.2008 | 11:03
Bréf frá Dísu vinkonu og skilaboð frá Lóu frænku.
Já vegna þess sem ég skrifaði um Margréti Frímanns fékk ég eftirfarandi skilaboð frá Lóu frænku minni, sem hefur oft sent mér myndir af fjölskyldunni, sem ég hef birt hér.
hæ Íja mí veistu ekki að Margrét er skild þér Elísa lángamma okkar var systir Árna lángafa Margrétar ha heimurinn er lítill kveðja Lóa Júl
Og það er einmitt það. Ég vissi svo sem að hún Margrét var frænka mín, vissi bara ekki alveg hvernig við vorum skildar, en þarna er það svart á hvítu. ´
Síðan fékk ég svo fallegt bréf frá Dísu vinkonu að mig langaði að setja það hér inn, og fékk til þess góðfúslegt leyfi. En við Dísa erum búnar að vera nágrannar og vinir frá því að við vorum bara smápúkar.
Fengum alveg yndislegt veður hér í dag og ég fór í tvær gönguferðir. Geri það reyndar venjulega á laugardögum, fer fyrst með vinkonum sem eru eins og ég með vefjagigt og hittast alltaf á laugardögum kl. 11 í Laugardalnum og svo förum við í kaffi á eftir í bakaríinu Korninu í Borgartúni og spjöllum þar yfir veitingum að eigin vali. þar bætast oftast fleiri við sem ekki treysta sér í göngu. Síðan fór ég þegar ég kom heim í aðra göngu með Steinunni í Elliðaárdalnum. Hvor ganga er um þrír kílómetrar, en í morgun tóku þær lengri tíma en venjulega því ég tók með mér myndavél í bæði skiptin í dag til að geyma aðeins fegurðina sem er í náttúrunni á svona svölum sólbjörtum síðvetrarmorgnum þegar sólin bræðir nýfallinn snjóinn af trjánum. Svona stundir gera mig hamingjusamari en flest sem fæst fyrir peninga, sérstaklega þegar ég er í góðum félagsskap. á báðum stöðum gengum við um og hrópuðum upp "sjáðu hvað þetta er fallegt" sitt á hvað og nutum þess í botn hvað við eigum fallega náttúru. Mér finnst svo gaman að komast svona útúr öllum ysnum og umferðinni, að vísu var Elliðaárdalurinn eftir hádegi næstum eins og Laugavegurinn, fullt af ólki á göngu og gleðin skein úr öllum andlitum. Það finnst mér mikill munur eða þegar rignir í tíu mínútur og fólk segir "það er bara alltaf rigning" þó kannski hafi verið gott veður daginn á undan. Þessa viku til dæmis hefur verið gott veður annan hvern dag. Af hverju ekki að gleðjast yfir því frekar en sjá alltaf það lakara? En ég er bara ánægð með að vera Pollíanna því ég hef umgengist fólk sem alltaf sér dökku hliðina og er aldrei ánægt. En ég er auðvitað "þorpari" í þess orðs bestu merkingu, ólst upp við leiðbeiningar frá fólkinu í kring og nýt enn góðs af. Ég væri miklu fátækari andlega ef ég hefði ekki haft mína foreldra, þína, ömmu þína og afa og foreldra allra hinna vegapúkanna til að gera mig það sem ég er.
Kær kveðja,
Dísa
Með þessum fallega pistli kom svo mynd af þeim frænkum Ellu og Dísu, og svo bróður Dísu Óðni
Flottir krakkar ekki satt ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
9.3.2008 | 20:59
Kvöldverður með pabba mínum.
Já það var mjög skemmtilegt kvöld sem við áttum með pabba. Ég eldaði svo áttum við yndislega stund saman fjölskyldan.
ein svona til gamans um leið og við fórum þá flaug flugvélin yfir til að lenda, og ég smellti af mynd.
Svo lögðum við af stað. Það þurfti náttúrulega að flytja hinn bráðnauðsynlega barnastól milli bíla.
Þessar elskur heilsuðu okkur þegar við komum á Hlíf, óþekkar angar sem ekki fóru á Hlífarsamsætið af ýmsum ástæðum, en ein hafði pottþétta afsökun hún hafði lærbrottnað.
Steikin komin á borðið. Og allir njóta.
Og svo pabbi minn glaður og sæll kominn í stólinn sinn, saddur á ánægður. Hann er bara frískur og hefur það fínt fyrir ykkur elsku lesendur ættmenni mín hér og þar. Ég þurfti aðeins að setja nokkra dropa í eyrað á honum. Stera segir hann stoltur, af því að eyrað er bólgið eftir heyrnatækið. En hann pabbi er bestur af öllum og ég bara elska hann rosalega mikið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
9.3.2008 | 16:01
Sunnudagsgöngutúr.
Já ég gerði alvöru úr þeirri hugmynd minni að fara í labbitúr með þeirri stuttu, stubburinn er komin heim af brettaæfingu, og er alveg að ná þessu öllu saman, er farinn í bíó, og bráðum fer minn elskulegi eiginmaður á lúðrasveitaræfingu, og ég bauð pabba í mat heima hjá honum, af því að aðgengið hingað er erfitt. Við fórum á föstudaginn saman út að versla, og nú er komið að því að elda dýrindissteik. Hann er reyndar á Hlífarsamsæti, að skemmta sér sá gamli, en kemur svo heim til sín í veislumat.
Stubburinn kemur heim af brettaæfingu.
Afi amma og Hanna Sól að fara í göngutúr.
Já sumir sitja bara.
Svo skiptist maður á ekki satt.
Mig langar að fá snjó afi. já já, hérna er einn stór ís fyrir þig.
Tilvalið að leika sér smá fyrst maður er komin út á annað borð.
Þá er að drífa í þessu. Hehehehe.. við bökuðum pönnsur í morgun og hún át 7 stykki, og ég er ekki að skrökva mamma litla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
9.3.2008 | 12:06
Hið Daglega veður og nýr Forstöðumaður á Litla Hrauni.
Það er besta veður hér núna. Ekki sól, en bjart veður eigi að síður, logn og blíða.
Ljúft bara, maður ætti ef til vill að fara í útiföt og labbitúr, myndi gera manni gott, það væri hægt að setja barnið í snjóþotu. 'Eg er að hugsa upphátt núna.
Nýfallin snjór, og hreinleiki. Það er gott.
En ég ætlaði að ræða svolítið um fangelsismál og hana Margréti Frímanns.
Ég heyrði viðtal við hana í útvarpinu um daginn og koms að því mér til mikillar gleði að hún hefði tekið við Litla Hrauni.
Sjá hér:
Margrét Frímannsdóttir skipuð forstöðumaður Litla Hrauns
Fangelsismál Margrét Sæunn Frímannsdóttir, fyrrverandi alþingismaður, hefur verið settur forstöðumaður fangelsins að Litla Hrauni í stað Kristjáns Stefánssonar sem er á leið í starfsleyfi. Margrét, sem tekur við starfinu hinn 1. febrúar, verður þar með fyrsta konan til að stýra fangelsi hér á landi. Þetta leggst rosalega vel í mig, sagði Margrét í samtali við Gluggann. Fangelsismál eru málefni sem ég hef kynnt mér vel í gegnum árin og haft mikinn áhuga á. Það er mjög gott starfsfólk á Litla Hrauni sem hefur mikinn áhuga á að efla starfsemi fangelsisins og ég hlakka til að fá að vinna við hlið þess. Margrét segir öruggt að ákveðnar áherslubreytingar verði þegar hún komi til starfa, það fylgja alltaf áherslubreytingar nýjum mönnum.
Ég þekki Margréti dálítið hún kenndi mér félagsfræði þegar ég var í Garðyrkjuskólanum, árið 1987. Þá var hún sveitarstjóri á Eyrarbakka, afskaplega skelegg kona. Hún var líka skemmtileg og sagði okkur margar sögur.
Ég hafði síðan nokkrum sinnum samband við hana, einmitt um fangelsismálin á Litla Hrauni, þegar minn drengur var í vítahring þar út og inn. Það var margt sem mér þótti að stjórninni þar, og mannfyrirlitningin í algleymi. Ég veit ekki hvort það hefur átt sinn þátt í því að Margrét fór að kynna sér málefni fangelsisins, en þó er trúlegt að það hafi ekki spillt fyrir.
En Margrét þekkir sem sagt fangelsið utanfrá, og beint frá aðstandendum, og svo núna innviðina. Og ég hef trú á því að Magga komi öllu á betri veg þarna. Ég er sannfærð um að kona hefur aðra sýn á vandamálin, og það verði betur hlúð að föngunum, og málin tekin öðrum tökum. Mér heyrðist líka á henni í viðtalinu, að það væri strax breytingar til batnaðar og meiri umhyggja. Hvað sem segja má um kynin þá er það þannig að konur hugsa oft meira með hjartanu og það er meira innbyggt í konur að hlú að og vernda.
Það sem þarf að breyta er að það á alls ekki að setja fíkla inn í fangelsi, það á að vera til stofnun sem tekur inn fólkið sem er komið í ógöngur, áður en þau grípa til örþrifaráða. Það verður að stoppa þetta ferli með öllum ráðum. Það er ekki langt síðan einn vinur sonar míns, fannst látinn af of stórum skammti, þar áður hafði ung vinkona hans hengt sig á svipuðum slóðum, bara í fyrradag tók ung stúlka sitt eigið líf. Sonur minn sagði við mig um daginn. Mamma ég sá myndir af mönnum sem höfðu stytt sér aldur framan á DV og ég þekkti þá alla. Þetta gengur ekki, en málið er að þegar fólkið okkar er komið á ystu nöf, og sér ekki morgundaginn, þá er þetta úrlausnin. Þau sjá enga aðra, og ég segi og skrifa, það sér það enginn annar heldur. Foreldrar standa ráðalaus, og geta ekkert gert. Kerfið hafnar þeim, og það er ekki bara biðlistar á meðferðarstofnanir, heldur taka þeir ekki við fólki nema það sé mótiverað fyrir því að hætta.
Það er því lítið sem hægt er að gera, og því fer sem fer. Líf þessara ungmenna er því á ábyrgð kerfisins. Það er stjórnvalda að koma á stofn lokaðri meðferðarstofnun, þar sem hægt er að koma þeim ungmennum inn sem misst hafa fótana og komast ekki upp úr farinu. Þar þyrfti líka að vera deild sem væri hægt að dæma afbrotamenn til innlagnar, afbrotamenn sem eru fíklar og hafa ekki stjórn á lífi sínu. Afbrotamenn sem eru gangandi hætta fyrir alla, þar sem þeir eru ekki sjálfráðir, vegna fíkniefna og áunninnar geðveiki.
Hve lengi ætla stjórnvöld að líta til hliðar og neita að takast á við þennan fjanda ? Hve mörg ungmenni þurfa að fara þessa leið, áður en einhver vaknar og fer að vinna í því að opna slíkt heimili ?
Eða skiptir engu hvað verður um þessa einstaklinga ? eru þeir ekki fólk, og nær ekki stjórnarskrá lýðveldisins yfir alla einstaklinga ríkisins ? Eða þarf að vera þrýstihópur sem hefur hátt og krefst þess að eitthvað sé gert ?
Það verður aldrei, því aðstandendur fíkla, eru löngu orðnir brotnir sjálfir, örvæntingafullir og orkulausir af endalausum áhyggjum og baráttu við fíkniefnadjöfulinn. Með sífelldar áhyggjur af því að barnið gangi fram af stapanum. En við getum ekki sem ein ríkasta þjóð heims horft upp á að hópur sjúks fólks þvælist um,jafnvel heimilislaust, og hefur misst öll tök á lífi sínu. Hér erum við öll samábyrg fyrir því að koma þeim undir læknishendur og inn á stofnun sem tekur á þeirra vandamálum, og hjálpar þeim út í lífið aftur án vímu. Það er hægt, en ekki með því að loka augum og eyrum.
Svo þarf að breyta um kúrs í baráttunni við eitulyf og sölumenn þeirra og innflytjendur efna. En það er allt önnur saga.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
8.3.2008 | 21:32
Ammæli.
Já hér var heljarmikið afmæli. Ég pantaði 10 pizzur með tilheyrandi gosdrykkjum. Og það hvarf allt eða svo til, ofan í svanga en skemmilega gesti.
Skvísurnar létu sitt ekki eftir liggja, og píanóið trekkir.
Líka strákana sko !
Sumir vildu þó bara klifra í stiganum hennar ömmu.
Afmælisbarnið var náttúrulega miðpunkturinn eins og vera ber.
Og pabbi liðtækur við að uppvarta.
Tvær flottar Heiða Bára frænka og Alejandra frænka.
En sumir ákváðu að þeir vildu ekki koma inn og vera með, því þeir "þekktu" engan, hehehe þessi kom með frænda Úlfs, og það var reynt að fá hann til að koma inn, en hann þáði þó veitingar í garðskálanum, og var veitt vel.
Systir hans var þó alveg á því að koma inn, og vera með í ammælinu.
Sumir höfðu þó meiri áhuga á því að vera í tölvunni.
Frændu að skemmta sé saman.
Hver segir að stákar geti ekki slegist út af bangsa.
Tvær flottar saman, Tinna tengdadóttir og hún Natalía heimilisvinur.
Og það þarf að fá sér stórt glas til að drekka úr, þó það sé bara vatn sem maður vill.
Og þau litlu höfðu bara skotið út af fyrir sig.
Sumir voru meira spenntir fyrir sjónvarpinu, eða eins og þessi ungi maður sagði við vin sinn til að fá hann inn, þetta er hjá ömmu í kúlu, þar má gera allt, hér eru líka trommur og svo hoppiherbergi.
Já það var svona standandi borðhald, og allir fengu sér eins og þeir vildu.
Og svo eru sumir bara alveg æðislega flottir
En stubburinn er ánægður með daginn, og hann vill þakka ykkur fyrir góðar óskir, og að hugsa til hans á þessum merkisdegi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
8.3.2008 | 11:14
Hið daglega veður og nokkrar aðra myndir.
Til hamingju með daginn konur. Ég keypti þessa flottu rós í gær.
Það var víst metsala á rósinni hér á Ísafirði. Sjá hér http://bb.is/Pages/26?NewsID=113120
Hið daglega veður.
En svo er hið daglega veður. Það er prýðisveður hér í dag. Eins gott því Úlfur minn á afmæli í dag, hann er 11 ára í dag stubburinn minn, og hér verður haldinn veisla, það verða pizzur og gos. Svo það verður fjör í kúlunni í dag.
Þau Alejandra saman í tölvunni.
Svo er hér ein mynd sem er tekinn spes fyrir hann Jóhannes bloggvin minn og kommúnista.
Þessir tveir félagar eru í svefnherberginu mínu. Og þeim líður báðum held ég bara nokkuð vel.
Eigið svo gleðilegan laugardag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023307
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar