2.3.2010 | 17:57
Stöndum saman íslendingar.
Já það er málið. Þetta er eins og í þorskastríðinu og baráttunni við dani á sínum tíma. Loksins tekur þjóðin sjálf af skarið og dregur mörkin. Og nákvæmlega á þeim tímapunkti sem þráinn Bertelsson segir að stór hluti þjóðarinnar sé fífl.
Ég hef stundum sagt að við séum kjánar og kunnum ekki fótum okkar forráð. En núna er ég stolt af mínu fólki. Loksins göngum við í takt og erum sem þjóð, stöndum upp og segjum hvað okkur finnst, við gerum það ekki endilega á Austurvelli, við gerum það heima við tölvuna. Við gerum það í kaupféllaginu, við gerum það í saumaklúbbunum, og við gerum það á söngæfingum og í saunaklefanum.
En við erum að komast að samkomulagi um að nú sé eiginlega nóg komið. Reyndar vorkenni ég dálítið Jóhönnu og Steingrími, ég held að þau hafi viljað vel. En einhversstaðar á leiðinni misstu þau af lestinni og misstu af þjóðinni. Aðrir í stjórninni hafa bara ekki komið neinstaðaðar nálægt nema Össur svona smá, sem sendi hvuttana sína til að tala við BNA, og hafði gleymt að hann hafði sjálfur móðgað þá alveg rosalega með afturköllun á orðu, sem hann hefur reyndar aldrei útskýrt af hverju hann gerði.
En áfram íslenska þjóð.
Öxar við ána, árdax í ljóma,
upp rísi þjóðlið og skipist í sveit.
Skjótum upp fána, skært lúðrar hljóma,
skundum á þingvöll og treystum vor heit.
Fram, fram, aldrei að víkja.
Fram, fram, bæði menn og fljóð.
Tengjumst tryggðarböndum,
tökum saman höndum,
stríðum, vinnum vorri þjóð.
![]() |
Sama aðferð og í þorskastríðunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
2.3.2010 | 11:57
Bretar að snappa.
Það er að koma æ betur í ljós það sem vinir mínir bæði í Þýskalandi, Austurrík og Danmörku hafa verið að segja. Evrópusambandið er skíthrætt við þessa litlu þjóð í ballarhafi. Nú er hótað sem aldrei fyrr. Hollendingar sitja eftir sárir og móðir, rúnir orku til að ljúka málinu.
Hér eykst aftur á móti andstaðan við óréttlætið og þvinganirnar. Þrátt fyrir endalausan áróður ríkisstjórnarinnar.
Gætið að hvað þessi maður segir, John McFall, þetta hafi afleiðingar fyrir alla Evrópu, kosning hér upp á Íslandi. Þeir vita sem er að á eftir kemur þeirra eigið fólk, og að spillingin mun vella upp á yfirborðið á fleiri stöðum en hér.
Ég las einhversstaðar í gær að menn væru að BÍÐA MEÐ AÐ SENDA ÚT KOSNINGAGÖGNI, TIL AÐ SJÁ HVORT VERÐI AF ATKVÆÐAGREIÐSLUNNI: Hverslags ósvífni er þetta eiginlega? Eru menn algjörlega fyrrtir veruleikanum. En hann er sá að hér verður kosið eftir nokkra daga. Þið komist ekki hjá því kæru stjórnmálamenn, því ég get lofað ykkur því að meirihluti landsmanna mun aldrei samþykkja að gengi sé þvert á bak vilja meirihluta þjóðarinnar, og það er ekki verið að tala um 51% það er verið að tala um yfir 70% og fer talan hækkandi eftir því sem nær dregur.
Fólk sem áður var meðfylgjandi ESB inngöngu hefur snúist á sveif þeirra sem ekki vilja í í töluverðum mæli. Þrátt fyrir mikinn áróður og allskonar leigupenna, bæði hérlendis og erlendis til að hræða úr okkur líftóruna, séu með flesta miðla á sínu bandi. Það dugar ekki til.
Við viljum fá að kjósa. Og Jóhanna, þú spyrð kjósa um hvað? 'Eg skal segja þér hvað ég vil kjósa um; 'Eg vil segja með þessu atkvæði mínu að ég hef algjöra skömm á framkomu ykkar í þessu Icesavemáli.
Þið getið sem best haldið áfram að stjórna landinu, ef ekki er hægt að setja á neðarstjórn, því þrátt fyrir allt, eruð þð skárri en D og B. En þið verðið að fara að opna augu og eyru fyrir því sem fólkið í landinu er að segja ykkur.
Hætti þessu ESB brölti og einbeitið ykkur að vanda fólksins í landinu. Frasinn um að moka flórinn, að lögð sé nótt við dag í að vinna að málum, eða þetta sé vandi síðust ríkisstjórna, duga bara ekki lengur sorrý það er komið meira en eitt og hálft ár.
Snúið ykkur að þvi sem brennur á fólki og látið þessi hugðarmál ykkar forystumannanna í glatkistuna í bili. Icesave og ESB eru ekki á dagskrá hjá þjóðinni. Það er aftur á móti skjaldborgin um heimilin og þjóðina, skattar sem eru að slig almenning sérstaklega öryrkja og aldraða, og slík mál. Þau mega einfaldlega ekki bíða lengur. Ef þið getið ekki komið ykkur í þann gírinn, ber ykkur að segja af ykkur og leyfa öðrum að komst að.
Ég geri mér grein fyrir að enginn núverandi stjórnmálaflokkur vill taka við þjóðarbúinu, þá verður að skipa utanþingsstjórn, og í hana þarf að velja vel. Ef það á að voga sér að skipa gamla afdankaða pólitíkusa eins og Þorstein Pálsson eins og heyrst hefur, þá springur það allt saman framan í andlitin á þeim sem það reyna. Við erum búin að fá nóg af gömlu spillingarliði, og öllu sem það inniber.
![]() |
McFall: Telur að lausn verði að nást |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
1.3.2010 | 21:43
Nokkrar kúlumyndir og fjallasýn.
Nokkrar kúlumyndir.
Þau systkin gistu hjá ömmu í kúlu á laugardaginn.
Það var gaman að leika sér í snjónum.
Og gera snjóhús.
Úlfur passaði svo upp á að allt væri í lagi. Þau fengu að vera með kerti.
Stundum er líka gaman bara að pússla.
Við bökuðum pizzur.
Í svoleiðis geta allir hjálpast að.
litli bróðir í Taikvondó dóti frá stórabróður.
Veðrið er líka búið að vera einstaklega fallegt.
Dálítill snjór en það er bara betra, þá er hægt að fara á bretti upp á Seljalandsdal.
Himnagalleríið var líka opið í morgun.
Morguninn var fallegur, sólin skein á fjallatoppa og beið þess að komast upp yfir fjallatoppana.
Og það tókst auðvitað.
Þetta er inngangurinn inn í Ævintýralandið
Hér eru svo tveir kettir. Sá litli apar allt eftir þessum stóra, en sá lætur sér fátt um finnast um þennan kjána.
Eigið góða nótt mín kæru.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
1.3.2010 | 14:08
Gömlu skíðin undir vagna og kerrur.
Þetta er yndisleg frétt og skemmtileg. Gaman að sjá hvað hægt er að gera með gott hugmyndaflug og koma því í framkvæmd.
En ég vil benda vagna-og kerrumæðrum á að hér á Ísafirði þegar færð er slæm, setja þær skíði undir vagnana og kerrurnar og komast þar af leiðandi betur yfir svæði sem ekki eru vel mokuð.
Það væri til dæmis vel til fundið hjá einhverjum handlögnum að útbúa svoleiðis skíði, geta verið gömul og aflóga sem hægt væri að smella undir vagninn ef svo ber undir. Nýta allt sem hægt er að nýta.
![]() |
Púla með afkvæmin í kerrum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.3.2010 | 12:07
Við sem viljum segja NEI við Icesave.
Sól skín í heiði og allt er hulið hvítum hreinum snjó, nema fjöllinn efst ég kalla þessa tússfjöllin, því þau eru eins og fallegar tússlitamyndir við svona aðstæður.
Ég er að hugsa um Icesave og allt sem er að gerast í þeim málum. Ég er að hugsa um skyndilega breytingu hjá bretum, sem hingað til hafa ekkert verið nema heimtuferkjan og hótanir. Og allt í einu núna eins og lömb sem vilja brauð úr lófa. Það sem breyttist var.... já nefnilega bara eitt það var þjóðaratkvæðagreiðslan væntanlega núna í mars.
Og af hverju skyldu þeir óttast hana svo mjög? Jú fólk sem ég þekki erlendis og ég tek mark á hefur undanfarin ár varað mig við ESB og hvernig það bákn starfar. Þetta fólk hefur líka sagt mér, og það fyrir löngu síðan að aðildarlönd ESB óttuðust ekkert meira en að Litla Ísland sýndi þeim fingurinn og neitaði ESBaðild. Þeir vita fullvel um alla ónægjuna sem grasserar í þeirra eigin löndum vegna báknsins sem þeir hafa enga stjórn á lengur. Sama heyri ég í Austurrík, Danmörku og fleiri löndum.
Það er líka sagt við mig. Þeir (ESBstjórnin) Nota þá aðferð að finna út lykilmenn í landinu, þetta fólk er svo reynt að kaupa með embætti í Brussel eða góðri stöðu í heimalandinu. ESB er nefnilega ekki góðgerðarsamtök eins og sumir virðast halda, sem ætlar að koma þjóðum til aðstoðar.
Þær þjóðir sem hafa verið hvað lengst í sambandinu eru hundóánægðar með hvernig þeir þurfa sífellt að borga hærri skatta sem fara svo til ráðstöfunar í Brussel. Og sífellt er verið að troða þeim meira saman í eitt ríki, eina ríkisstjórn einn fána og eitt yfirvald.
Þó þetta fólk sem ég tala við sé ef til vill ekki alveg með allt á hreinu varðandi þetta, þá er umræðan svona í ýmsum löndum ESB. Þau sögðu mér líka í fyrra sumar að Evran myndi hrynja á þessu ári. Svo það sýnir að ýmislegt hefur síast út í samfélagið um ástand og horfur.
Sem betur fer er hér meirihluti fyrir því að ganga ekki inn í ESB. Þó er áróðurinn stanslaus og Jóhanna búin að fara bónleið til Brussel til að biðja um flýtimeðferð. Hvað sem henni gengur til og Össur getur heldur ekki á sér setið. Það er einmitt þetta atriði sem hefur gjörsamlega rústað trúverðugleika þessara tveggja hjá mér. Ég hafði mikla trú á Jóhönnu í upphafi, en það er horfið veg allrar veraldar. Og það er mest fyrir þessa þráhyggju hennar, þegar þjóðin er í sárum að vera endalaust að baka ESBvandræðabollur.
Steingrímur endaði sinn traustferil hjá mér með Icesave. Ekkert meira um það að segja.
Nema að þegar fólk er að segja að þjóðarkosningin um Icesave sé óþörf og það eigi að hætta við hana, þá segi ég, þið sem þannig talið hafið ekki hundsvit á mikilvægi lýðræðis.
Það er einmitt svo að þessi kosning verður að fara fram. Það er réttur fólksins að fá að kjósa, eftir neitun forsetans. Að stjórnvöld séu reyna að koma í veg fyrir atkvæðagreiðsluna er svo mikil lágkúra að ég á ekki orð. Á hvers bandi eru þeir eiginlega.
Það er næsta víst að fólk (NEI) kýs eftir því sem því líður, sumir vegna þess að þeir vilja fara dómstólaleiðina, aðrir vilja ekki binda sig og allt sitt klan á klafa þrælkunnar, enn aðrir vilja einfaldlega ekki láta beygja sig í duftið fyrir erlendum yfirgangi og svo eru margir sem ekki vilja borga skuldir óreiðumanna.
Það er með ólíkindum að loksins núna viðurkennir Steingrímur að það liggi ekki fyrir ábyrgð ríkisins á þessari skuld. Meðan allan tímann hefur hann hamrað á því að við verðum að borga, og þessi glæsilegi samningur sem félagi hans kom með heim, var sá besti í stöðurnni og átti að þvinga gegnum alþingi helst án þess að alþingismenn fengju að lesa hann yfir.
Nei gott fólk, við höldum okkar þjóðaratkvæðagreiðslu, og þau okkar sem hugsa þannig mætum öll og segjum NEI, ég er reyndar búin að fara og segja mitt álit. Ef við viljum lýðræði og réttlæti í landinu þá mætum við á kjörstað og kjósum. Svo er að sjá svart á hvítu hvað þjóðin vill gera.
Nú er komin í gang hræðsluáróður um að við verðum að athlægi um allan heim ef aðeins mæti 10 - 15% á kjörstað.
Það eru endalaus hræðsluáróður búin að vera í gangi af fólkinu sem hvorki þorir né vill. Þeir hrekjast frá einum hræðsluáróðrinum til annars. Fólk sem situr eins og strúturinn og þorir ekki að vera til.
Látum þau ekki hafa áhrif á okkur hin. Mætum öll á kjörstað og segjum okkar álit. Það hefur komið í ljós að augu heimsins hvíla á þessari örþjóð í miðju Atlandshafinu. Og við skulum ekki valda þeim vonbrigðum. Látum rödd okkar berast hátt og lengi; við viljum lýðræði, réttlæti og sanngirni, við látum ekki kveða okkur í kútinn og binda á okkur þrælaklafa sem við eigum engann þátt í að hafa komið af stað.
Í þessum töluðu orðum brýst sólin fram yfir Erninum og beint í augu mér. Það er góð tilfinning. Eigið góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar