Niðurstöður í póstkosningu Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi.

Ég lofa því að íþyngja ykkur ekki með kosningaáróðri.  Reyni að stilla mig allavega.  En í gær töldum við atkvæði í kosningu um fimm efstu sæti Frjálslyndaflokksins í Norðvesturkjördæmi.  Þetta var póstkosning og eru 255 mann sá kjörskrá.  Svarhlutfall var mjög gott eða rétt tæplega 50%

Talningin var spennandi, því mjótt var á munum milli frambjóðenda og ekki ljóst fyrr en í blálokin hvar hver fengi sæti.  Það þurfti því að telja þrisvar áður en óyggjandi niðurstaða fékkst. 

Guðjón fékk afgerandi kosningu í fyrsta sæti um 90% settu hann í fyrsta sætið. 

Sigurjón Þórðarson var kjörinn í annað sætið. 

Ragnheiður Ólafsdóttir í það þriðja

Magnús Þór Hafsteinsson í fjórða sætið

Sigurður Hallgrímsson í fimmta sætið. 

Ragnheiður fékk líka afgerandi kosningu í þriðja sætið, enda flott kona og skelegg. 

Landsfundur Frjálslynda flokksins verður svo haldinn í Stykkishólmi núna um helgina, og þá verður kosið um varaformann, þar sem Magnús Þór hefur fengið mótframboð af mjög hæfum konum.  Svo það verður fróðlegt að vita hvað kemur út úr því.  Ég reikna líka með því að unnið verði að við notum tækifærið og vinnum í framboðslistum flokksins allavega í Norðvesturkjördæmi, þar sem við erum dreyfð allt frá Fljótum fyrir norðan að Borgarnesi, það er því víðfeðmt svæði svo ekki sé meira sagt.

Það er kjörið tækifæri fyrir fólk sem vill starfa að stjórnmálum að skoða stefnu flokksins og vita hvort þar er flötur á því að styðja við bakið á Frjálslyndum.  FLokkurinn hefur enginn spillingarmál á bakinu og nú virðist sem grasrótin hafi fundið uppruna sinn aftur.  Við erum komin á beinu brautina eins og við vorum áður. 

Frjálslyndi flokkurinn er fyrst og fremst landsbyggða flokkur.  Í raun og veru eini flokkurinn sem aldrei hefur kvikað frá þeirri stefnu að breyta fiskveiðistjórnunarkerfinu.  Það er líka stefna flokksins að vinna að hagsmunum aldraðra og öryrkja, við höfum okkar fólk þar framarlega á listanum eins og Ragnheiði Ólafsdóttur sem er öryrki og Guðmund Hagalínsson skeleggan baráttumann aldraðra var í 6 sæti síðast, og mun að öllum líkindum vera þar áfram.  Guðjón og fleiri hafa flutt mörg góð þingmál um öryrkja og aldraða.  

Það var póstkosning um afstöðu félagsmanna til ESB og það var yfirgnæfandi meirihluti sem vill ekki ganga í ESB að svo stöddu.  Þannig að okkar afstaða í því er skýr að mínu mati.

Þetta er bara brot af því sem áherslur okkar liggja, en ef einhver vill skoða málefnasamningin þá er hægt að lesa allt um hann á www.xf.is  

Ég styð þennan flokk af því að mér finnst vera gott fólk í honum með góð stefnumál og af því að ég þekki vel til, þá get ég staðfest að fólkið sem verður í forsvari á lista flokksins hér í Norðvestrinu allavega er allt saman fólk sem vill vinna að því að bæta hag fólksins í landinu, en ekki að mylja undir sjálfa sig.  Á þessum síðustu og verstu tímum þá er það kostur sem ekki verður litið framhjá.  Og ég hef ekki betur séð en sú hugsun ríki hjá öllum öðrum í innsta kjarna flokksins.  Nú hefur horfið á braut fólk sem ekki hefur talið sig eiga hljómgrunn í flokknum, það er líka vegna þess að forystumenn flokksins hafa verið trúir málefnunum en hlaupa ekki upp til handa og fóta eftir vinsældakönnunum eða loftbólum.  Mér líka þar vel.  Ég vil vita hvar ég hef fólk, og ég vil að það sem frambjóðendur lofa fólkinu í landinu, það eigi þeir að standa við.  Annars á að refsa þeim með því að kjósa þá ekki aftur. 

Ég vil það besta fyrir íslenska þjóð, við eigum skilið að fá virkt lýðræði.  Hvernig sem við tökumst á við að koma því á, þá er það lykilatriði fyrir velferð okkar allra.  Þess vegna skulum við skoða vel, orð og athafnir, hvað hafa frambjóðendur lagt fram á þingi og hverju hafa þeir lofað.  Hvað segja þeir og hvað gera þeir svo.   Froðusnakka á ekki að setja aftur á vetur.  Þeir verða aldrei neitt annað en froðusnakkar og loftbelgir hverju sem þeir klæðast, hvort það eru jakkaföt lopapeysa eða bara lambshúð, eins og margir reyna að sveipa sig með þessa dagana. 

Í raun og veru þá erum það við fólkið í landinu sem höfum valdið.  Við höfum bara ekki nýtt okkur það hingað til því miður.  Því allof margir láta glepjast af fagurgala og flottum fötum.  En við hvorki fæðum okkur eða klæðum með slíku, hvað þá að hafa ofan af fyrir fjölskyldum okkar.  Við skulum því setja okkur sjálf og okkar í fyrirrúm, og kanna vel hvernig við getum best komið lýðræðinu til vegs og virðingar á ný. 

 

merki

 


Ein mórölsk spurning!!!

Jæja þá er seinni turninn fallinn.  Ætli Davíð Oddsyni líði eitthvað betur með það?  Ekki að ég sé að réttlæta neins gjörðir, en langar aðeins að fara inn á móralskar hugleiðingar. 

Gegnum mörg ár hefur Davíð Oddsson eldað grátt silfur við Baugsmenn.  Kallað þá götustráka og ég veit ekki hvað.  Bar upp á þá að reyna að múta sér og svo framvegis.  Það er nokkuð ljóst líka hverjum hugsandi manni að það var hefndarráðstöfun hjá Seðlabankastjóranum fyrrverandi að knésetja og yfirtaka Glitni.  Að lokum varð hann að hrökklast frá embætti með skömm sem hann mun aldrei komast frá, þess vegna leiðir maður nú hugann að því hvort honum líði betur að vita að Baugur féll líka. 

En einhvernveginn þá er það svo að það líður engum vel við það að annar fari í þrot.  Það upplyftir enginn sér með því að niðurlægja annan.   Þetta vill oft gleymast í hamagangi og látum. 

Hugur minn til Baugsveldisins er beggja blands, annars vegar er hugsun um alla vörulækkunina sem við fengum við opnun Bónus hér á Ísafirði, ég held að það hefi verið reiknað um 30%  og munar um minna.  Það jók ráðstöfunartekjurnar all mikið á stórum heimilum.  Auk þess meira vöruúrval.

Á hinn bóginn þá heyrði maður frá fólki í sama bransa um aðferðirnar sem notaðar voru til að einoka staðina, og ég get ekki sagt að mér hugnist slíkt.  Þetta er eins og tvær myntir á sama pening, gott og illt í bland. 

Samt held ég að þetta sé lenska í business, og við vitum sennilega ekki helmingin af því sem fer þar fram.  En hitt finnst mér ófyrirgefanlegt þegar stjórnmálamenn og ráðamenn þjóðarinnar eru svo veruleika fyrrtir að þeir fara að skipta sér af því hver lifir og hver deyr í bransanum.

Þeirra hlutverk er að setja reglur og umhverfi sem allir eiga að fara eftir.  En ekki flokka menn niður í heppilega og óheppilega bissnessmenn.  Þá er lýðræðið komið allt á skjön, eins og nákvæmlega hefur gerst hér hjá okkur. 

Sjálfstæðisflokkurinn er ekki beint stjórnmálaflokkur, hann er frekar annað hvort valdastofnun eða trúfélag, nema hvorttveggja sé.  Þar innanborðs er fólk sem; svo ég kvóti nú í þeirra aðalhuguð; spáir  ekki mikið í pólitík, en vill græða á daginn og grilla á kvöldin.  Þetta fólk virðist ekki hugsa mikið, eða spá í hvernig hlutirnir eru.  Þeir horfa bara á brosandi andlitin á glansmyndunum og sjá bara XD. 

Svo eru hinir sem trúa blint öllu sem þessir mógúlar láta frá sér fara.  Allt sem þeir segja er heilagur sannleikur, og allir hinir ljúga.  Þannig hafa margir sett Davíð Oddsson á stall, þar sem hann dagaði uppi, vegna þess að það flæddi að honum og hann gat ekki stigið niður. 

En sem betur fer er ég að sjá menn sem eru komnir í nafnaskoðun og skilja hreint ekkert í sínu fólki hvernig það hagar sér.  En þetta fólk setur samt Xvið Déið, og telur sig geta breytt einhverju innanfrá.  Ég gæti sagt þeim að það væri alveg vonlaust, en þeir myndu ekki trúa mér.  Þessi flokkur virðist nefnilega hafa það eitt að markmiði að halda völdum í landinu.  Það er sýnilegt þessa dagana og hefur aldrei verið sýnilegra, að þeir hugsa fyrst og fremst um að flokkurinn haldi velli, að þeir ráði stofnunum og innri strúktúr landsins.  Fólkið er bara þarna til þess eins að kjósa þá aftur og aftur og aftur.....

Ég var að lesa bloggið hans Sigurðar Inga Jónssonar og þar birtir hann þetta flotta kvæði. sem mig langar til að setja hér inn, ljóðið er eftir Davíð Stefánsson frá Fagraskógi og nefnist söngur Loddarans.

 

 

Söngur loddarans



Ég er einn af þeim átján,

sem allur heimurinn þekkir,

því ég er frægasta fíflið

og fíflið, sem alla blekkir.

En þeir verða fyrstir frægir

og falla síðast í gleymsku,

sem iðka loddaraleiki

og lifa á fjöldans heimsku.

 

Sé mér boðið að sitja

að sumbli með öðrum köppum,

þá geng ég í gömlum frakka

með gljáandi silfur hnöppum.

Ég veit hvað höfðingjum hæfir

og hentar í þeirra sölum.

Með skotthúfu skarlatsrauða

skarta ég frammi í dölum.

 

Ég blæs í lyginnar lúður

og leik á hégómans strengi,

og hræsninnar bumbu ber ég,

svo bergmálið hljómi lengi,

og sé ég í sölum kvenna,

þá syng ég um þeirra yndi.

Ég haga svip eftir sveitum

og seglunum eftir vindi.

 


Hjá þeim, sem heiminum hafna

og himininn þykjast erfa,

læt ég með lyst og prýði

léttúðarsvipinn hverfa.

Þá læzt ég elska og aumka

alla, sem flaka í sárum.

Með gömlum, gigtveikum klerkum

græt ég krókódílstárum.


Ég tala sem breyskur bróðir

og bið fyrir þjóð og landi

og dingla með koparkrossinn

í kaþólsku talnabandi.

Um miðaldamusterin hljóðu

í myrkrinu einn ég fálma,

og engum öðrum tókst betur

að eigna sér gamla sálma.

 

Ég leik mér að litlum sálum

og lokka þær sæll og glaður.

Ekkert er léttara en látast

lifa sem helgur maður.

Ég er frægasta fíflið,

sem fellur síðast í gleymsku,

iðkar loddaraleiki

og lifir á fjöldans heimsku.

 

 


mbl.is Frekari greiðslustöðvun hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndir og ýmislegt fleira.

Málþóf eða ekki málþóf.  Mikið rosalega eiga sjálfstæðismenn bágt þessa dagana, þeir ráða nefnilega ekki ferðinni aldrei slíku vant.  Og svo er auðvitað hundleiðinlegt að fara ofan í sama hjólfarið og þeir hafa hvað eftir annað sakað hina um.  Þeir hafa greinilega verið að fylgjast með hvað hinir í sandkassanum voru að stríða og aðhafast, og nota nú það sama, nema þeir gera aðeins meira, eins og öll hrekkjusvín gera náttúrulega.  En málið er bara að í þetta sinn, þá er meiri alvara á ferð, og fólki ekki hlátur í hug, hvað þá ánægja með pissukeppni.  Þeir standa því á berangri hallærislegri en nokkurn tíman áður og fólk er búið að fá gjörsamlega upp í kok.  Ég allavega.  Ég fæ klígju þegar ég sé brosandi smettinn á sneplunum sem berast inn um lúguna hjá mér, eða ég sé birtast af þeim myndir og greinar þar sem við erum beðin um að standa með þeim.  Í hverju? svo þau geti haldið áfram að brenna sinuna?

Ég bið þess einlæglega að við fáum frið fyrir þessu fólki næstu árin eða áratugina.  Svo samfélagið geti jafnað sig á þeirri stefnu sem þau mörkuðu og virðast ætla að fylgja, því ekkert er að stefnunni segja þau, það var fólkið sem brást.  Eða eiginlega brást enginn, þetta var bara svona, og ekki þeim að kenna á neinn hátt, það má benda á alla aðra en þau.

Úff ég get svo svarið það og segi eins og svo oft hefur heyrst áður BURTU MEÐ ÞETTA LIÐ. 

Nú en ég ætlaði að setja inn nokkrar myndir fyrir mömmur og svoleiðis fólk.

sur

Eins smá sybbinn að fara á leikskólann, en hún er fljót að ná góða skapinu sínu, því hún elskar að fara á leikskólann.

sur2

Sigurjón Hrannar Dagur hehehehe.... þetta er sagt fyrir Hrönn, fékk að sofa hjá afa og ömmu í gær, af því að mamma þurfti að skreppa.  Og Hanna Sól las fyrir hann kvöldsöguna og það fór vel á með þeim.

sur3

Þau sofnuðu svo fljótt og vel, svo þæg og góð.

sur4

Og í morgun var sest aðeins við sjónvarpið og svo morgunverður eins og alltaf.

IMG_6477

Og svo er að fara á leikskólann, þau eru að visu í sitt hvorum, hún á Sólborg hann á Eyrarskóli, þar er hjallastefnan hennar Pálu á fullu.

sur5

Afi sá svo um litlu skottuna í morgun, þau fóru saman á Bakkaskjól.

sur6

Það er komin dágóður snjór við kúluna, svo það þarf að feta sig áfram eftir troðningi. 

sur7

Þá er nú eins gott að vera í góðri þjálfun. 

IMG_6385

Hér er Ólöf Dagmar, í bekknum hennar þá fá krakkarnir að koma með sögur sem kennarinn les fyrir þau.  Ólöf Dagmar ákvað að koma með bókina sem amma samdi um krakkana í kúlunni; Ævintýri Loðfílanna.  Og nú er verið að lesa hana sum sé í bekknum hennar Ólafar Dagmar.  Vonandi líkar krökkunum sagan, hún gerist allavega á svæði sem þau þekkja vel.

En ég ætla að fara blogghringinn á morgun, og segi bara við ykkur góða nótt Heart


Smá grín svona undir nóttina!!!

Já ég var einmitt að fá svona líka skemmtilegan brandara frá litlu systur minni um daginn og ég er ennþá að hlæja, en ef til vill er það vegna þess að ég er þess fullviss að mínum gamla lífsförunaut hefði aldrei dottir batman, súperman eða spiderman í hug í þessu sambandi heldur stokkið á bráð sína umsvifalaust, en þannig er það nú bara segi ég og skrifa, sumt bara er, og sumir þroskast ekkert sem betur fer.  Sumir einfaldlega eru bara Börn náttúrunnar hehehehehe... en hér er svo sagan.  Hlátur í boði Ásthildar Cesil.

 

 

The other day I had lunch
with 2 of my unmarried friends.
One is engaged, one is a mistress, and of course I have
been married for 20+ years.

 

We were chatting about our relationships and decided to

amaze our men by wearing a black leather bra ; bodice,

stiletto heels and a mask over just our eyes. We agreed to

meet in a few days to exchange notes. Here's how it all

went :

 


My engaged friend:

The other night my boyfriend came over and found me wearing

a black leather bodice, tall stilettos and a mask.

He saw me and said, 'You are the woman of my dreams.

I love you.' Then we made love all night long.

 


The mistress:

Me too! The other night I met my lover at his office and

I was wearing the leather bodice, heels and mask over my

eyes and a raincoat. When I opened the raincoat he

didn't say a word, but we had wild sex all night.

 

 

Then I had to share my story:

When my husband came home I was wearing the leather bodice,

black stockings, stilettos and a mask over my eyes. As soon

as he came in the door and saw me he said.


"What's for dinner, Batman?"

band
 


Afmæli stubbsins míns.

Afmælið gekk vel hjá stubbinum.  Það kom fullt hús af flottum krökkum og þó megi segja að hávaðinn hafi verið nokkuð mikill, þá voru þau öll bara svo flott og skemmtileg.  Ég ætla að vona að þau fari saman gegnum þessi erfiðu ár sem eru framundan, og að þau hlúi hvort að öðru, til að ekkert þeirra fari út í vitleysu, því þetta er viðkvæmur aldur og með sameiginlegu átaki þá geta þau stutt hvort annað og passað upp á hvort annað hvert á sinn hátt, þannig að þau komist öll í gegn um nálaraugað.

IMG_6387

trommusettið var náttúrulega spennandi, og sumir voru hreinlega rosalega flottir að þeyta kjuðana svo að aðdáunarver var.

IMG_6391

en strákarnir komu líka með græjur til að spila, þetta var sko alvöru....

IMG_6392

Og sífellt komu fleiri. 

IMG_6393

Já það voru pitsur og gos, og nammi og hvað eina. 

IMG_6395

ég held að þau hafi bara skemmt sér vel yfir veitingunum.

IMG_6394

En það þurfti að koma græjunum í lag, og þar eru strákar bestir, nema ef enginn er til að gera hlutina, þá tökum við stelpurnar við og gerum nákvæmlega það sem þarf. Bara ekki þegar þeir eru viðstaddir... hafiði tekið eftir þessu lífsreyndu konur?

IMG_6397

en músikinn dunaði og það var dansað.

IMG_6398

ég get alveg samsamað mið þessari rauðhærðu stúlku, ég er líka svona dansfífl, með jákvæðum formerkjum.

IMG_6402

Hér er verið að leika fyrir framan myndavélina LoL

IMG_6407

Flottar stelpur.

IMG_6411

Það er bara eitthvað svo heilbrigt og skemmtilegt við krakka sem eru af hjartans einlægni að skemmta sér.

IMG_6423

Jamm hehehe sumir eru rólegri en aðrir.

IMG_6429

Úlfur í prinsessuherberginu. 

IMG_6439

stelpurnar mínar sváfu hér, það var notalegt, amma skaust svo inn um morguninn og stalst til að taka mynd heheheh.... Þetta eru ömmukrútt.

IMG_6440

Svona var nú veðurútlitið í morun.  snjór og vindur...

IMG_6455

Og að lokum undir svefninn, Gulli er bangsi sem hefur verið á Bakkaskjóli yfir 25 ár.  Krakkar taka ástfóstri við hann og hann fær að fara með þeim heim yfir helgi.  Mamma á svo að skrifa um það hvernig helgin gengur.  Það fylgir honum bók til að skrifa í.  Við settum þessa mynd inn í bókina hans Gulla, því okkur fannst við hæfi að hann fengi líka mynd af sér og aðdáanda sínum.  Og hér er sú mynd.

en svona að lokum, krakkar mínir ef þið kíkið hér inn til að skoða myndirnar, þá vil ég segja þetta.

Ég vil þakka ykkur fyrir prúðmannlega framkomu, og umhyggju fyrir mér.  Þið eruð yndæl og góð, ég óska þess að þið standið saman og standið bæði með ykkur sjálfum og hinum krökkunum um að verjast öllu utanaðkomandi sem áreitir ykkur.  Ég sé að þið eruð hæfileikarík og flott, og það mun fleyta ykkur langt, en besta vörnin sem til er, er að þið ákveðið að standa saman, verja hvort annað og taka tillit til hvors annars.  Ég verð 65 ára á þessu ári, ég hef hitt mín skólasystkin núna á fimm ára fresti í allmörg ár og við rifjum upp skólagönguna, við munum öll svo margt frá okkar skólaárum, við munum ekki bara það sem við gerðum vel, við munum líka alltof vel það sem miður fór, og við hefðum svo gjarnan viljað laga.  En það var þá of seint.  Þið aftur á móti eigið þetta allt eftir og örugglega hittinga gengum ykkar tíð.  Látið þær minningar verða fallegar og gleðiríkar með því að breyta rétt og vel, það er ykkar val.  Knús og mikið var ég ánægð með ykkur öll í gær. Heart 


Krúttfærsla - að dansa.

Í gær meðan verið að að undirbúa veisluna, fengu litlu krakkarnir að skemmta sér, Úlfur var að prófa músikina og þau tóku fullan þátt í að dekka borð og svo að dansa.

IMG_6347

Evíta litla var í heimsókn og þær skotturnar voru að skemmta sér saman.

IMG_6350

Þær voru nefnilega að dansa.

IMG_6351

Þær eru nefnilega alveg eins og amma sín, algjör dansfífl Heart

IMG_6358

Á meðan voru Hanna Sól og Sigurjón Dagur að gefa fiskunum í tjörninni.

IMG_6363

Dansa hvað er betra en að dansa

IMG_6364

Hér lyftir daman herranum upp hehehehe...

IMG_6368

Og dansinn dunar enn.

IMG_6371

Dansi dansi dans!!!

IMG_6373

Hér sýnist Evíta vera komin út í Riverdans hehehe...

IMG_6374

Dansi dansi dúkkan mín, dæmalaust er stúlkan fín.

IMG_6375

Mjallhvít komin líka.

 IMG_6381

Já það er gott fyrir líkaman að dansa.

IMG_6385

Ólöf Dagmar tilbúin í slaginn með stóru krökkunum.  

IMG_6379

En svo verður maður þreyttur og þá er gott að eiga sterka arma að.  Mamma á ég ekki að taka litlu stelpurna með mér heim og leyfa þeim að sofa þar, ég þekki nefnilega til svona krakkapartýja og veit að þar er ógurlegur hávaði, þær munu ekki sofna í slíku. Heart  Og hann reyndist hafa rétt fyrir sér, það var hávaði, en allt fór samt vel fram og ég mun fjalla betur um það síðar.

En eigið góðan dag elskurnar.

 


Vorið kemur hlýtt og grænt.

Hér er verið að undirbúa afmælispartý stubbsins, á morgun verður hann 12 ára, og hefur fengið leyfi til að bjóða til sín krökkum í kvöld.  Það er allt að verða klárt undir partý.

En þið voruð að tala um vor í kúlunni, vorið er vissulega byrjað.

IMG_6339

Páskarósin er búin að standa svona lengi, þó ekki séu komnir páskar.

IMG_6340

Kínveska runnabóndarósin komin á fullt líka, bráðum birtast hennar stórkostlegu knúppar.

IMG_6341

Krisuberin fara að sýna blómin.

IMG_6342

Sakúrakirsuberni líka.

IMG_6343

Rósamandlan vill ekki láta sitt eftir liggja.

IMG_6344

Og drottningin sjálf komin af stað.

IMG_6345

Og margarítan. 

IMG_6336

Þessi var tekin í gærmorgun, morgunin að rísa við sjóndeildarhringinn. 

Eigið góðan dag elskurnar.

 


Stemningsmyndir.

Þemað er ljós og skuggar.

IMG_6319

Allar teknar í dag.

IMG_6321

Kubbinn í morgunsárið.

IMG_6322

Hnífsdalur í morgun.

IMG_6323

En morgunin biður þess að taka við.

IMG_6325

Vegaskiltin eru á kafi í snjó.

IMG_6326

Það er unnið í gangnagerð af flullum krafti.

IMG_6329

Birtan leikur sér að komandi degi.

IMG_6330

Hægt og rólega tosat dagurinn áfram.

IMG_6331

Líkt og í ævintýralandi.  Og ég segi bara góða nótt elskurnar mínar. 

 


Smá hugleiðingar um frambjóðendur, frá hjartanu mínu.

Kæru vinir ég hef verið upptekin í gróðurstússi, þar sem ég tók að mér að vera með fyrirlestur um nytjajurtir sem vaxa hér fyrir vestan.   Það er af mörgu að taka, og erfitt að gera upp á milli.  Ég kaus að nota mér lítið rit frá 1880, um íslenskar nytjajurtir til lyfjagerðar.  Þessi bók er enn í fullu gildi þrátt fyrir aldurinn, og plönturnar eru þær sem eru hér allt í kring um okkur, eins og njóli, fífill, vallhumall og fleiri.  Ég ætla að koma með þetta hér inn seinna ykkur til fróðleiks, því það er margt hægt að gera við þær plöntur sem við í daglegu tali köllum illgresi. 

kvöldið var í gær og tókst mjög vel, þó ég segi sjálf frá.  Það var húsfyllir, þau héldu jafnvel að þetta væri mesta aðsókn sem verið hefði, og ég er stolt af því, einnig var fjarfundabúnaður notaður til að fólk á Hólmavík gæti verið með okkur.  En þetta tók allan minn tíma.  Svo þess vegna gerðist ekkert hér.  Blush

En ég ætla að setja nýjar myndir inn á eftir, frá snjónum og veðrinu hér, sem er mjög gott í dag, og í gær reyndar líka, þó umferð hafi verið erfið á götum, því mikið var að moka og skafa snjó.  Karlarnir okkar hér snjómokararnir eru sem betur fer vanir og eldsnöggir að ryðja þá vegi sem þarf, sumir þurfa þó að bíða aðeins, því þetta tekur allt sinn tíma. 

Ég var svona að hugs um það áðan, nú þegar allt er komið á fullt í kosningabaráttu hjá þeim sem vilja bjóða sig fram, að nú þurfum við aðeins að stoppa við, skoða hlusta og kynna okkur það fólk sem býður sig fram.  Það þarf að meta unnin störf þeirra líka.  Það ætti nefnilega ekki að vera nóg að hafa bara hátt og láta mikið á sér bera.  Vera duglegur að kynna sig og sitt, ef ekkert liggur svo á bak við það annað en að komast að völdum. 

Nú ríður á mín kæru að vinna að lýðræðisbyltingunni, því ég hugsa að það sé ekki nóg að stökkva bara á eitthvað nýtt, heldur er sennilega affærasælast að reyna að hafa góð áhrif á frambjóðendur í þeim flokkum sem við ætlum að kjósa yfir okkur í vor.

Ekki láta glepja okkur með fagurmælum, ef viðkomandi hefur ekki sýnt neitt í þá veru áður, þá er hann svo sannarlega ekki líklegur til að fara að taka upp á því eftir kosningar. 
Ekki heldur láta plata okkur með því að viðkomandi sé svo duglegur að afla fylgis.  Það er ekki grunnurinn undir lýðræðið.  Því oftast er slíkt mest byggt á að mylja undir sig sjálfan sig. 

Nei þið skuluð taka eftir þeim sem er rólegur þögull en hefur sýnt af sér að vilja vinna í þágu fólksins.  Hann þarf ekki að gala hátt til að heyrast, því hann vill einmitt láta meta sig að verðleikum.  Það er til svona fólk, það er bara að gefa sér tíma til að finna það í öllum þessum hamagangi.  Ég bendi til dæmis á Jóhönnu Sigurðardóttur, af því að hún er gott dæmi, en það eru Jóhönnur í öllum flokkum trúíð mér.  Þær verða bara oftast undir af því að fólk glepst á þá sem hafa hærra. 

Málið er að nú ríður á að vanda valið.  Ekki bara á þeim flokk sem viðkomandi ætlar að styðja, heldur líka að taka þátt og vanda valið á frambjóðendum þar. 

Reyndar kemst það vonandi á koppinn að hafa óraðaða lista, það er vilji til þess hér hjá mér, og ég mun beita mér fyrir því að svo verði.  Að vísu verður það sameiginleg ákvörðun frambjóðenda og forystu, en ég hef trú á því að fólk setji sig ekki upp á móti þeirri lýðræðislegu gjörð sem það er. 

Annað sem vert er að hafa í huga er að það er líka á ykkar ábyrgð að veita konum brautargengi í flokkunum.  Það fer alltaf best á því að sjónarmið beggja kynja komi sem mest að málum.  Oft var þörf en nú er nauðsyn.

Látið aldrei telja ykkur trú um að þessi eða hinn sé ómögulegur, af því ..... eitthvað bara, eða að þessi sé ómissandi af því .... eitthvað bara. 

Við erum oft svo fljót að dæma, og taka mark á því sem við okkur er sagt.  En það er einmitt í svona tíð sem reynt er að olnbogast í gegnum skarann og þá er sama hver verður fyrir, hann skal burt.  Það er í okkar valdi að láta ekki olnbogarana troðast fremst, og láta hina sitja eftir af því að þeir troða sér ekki.  Ég vona að þið skiljið hvað ég er að fara. 

Skoðum hvern og einn fyrir sig, og hugsum hverjum treysti ég best til þess að vinna að því að koma þjóðinni út úr þessari vansæmd.  Hvað hefur þessi manneskja gert, og hvað hefur hún sagt.  Fer það ef til vill ekki saman?

Ekki bara hlusta á næsta mann og trúa því sem sagt er.  Nú ríður á að við sýnum hæfni okkar sem kjósendur til að lyfta lýðræðinu upp á æðra plan.  Gera það skilvirkara og dempa aðeins niður í olnbogurunum, þeir eru oftast fullir af sínu eigin lofti, og sjá ef til vill ekki neitt fram fyrir eigið nef.  Ef þið spáið í það, þá sjáið þið að það er oftast satt.  Narrzissus horfði bara í spegilinn, af því hann var flottastur, við höfum ekkert að gera með slík spegladýr á þessum tímum.  Heldur alvöru fólk sem vill vinna fyrir okkur. 

Þetta er bara hugsun sem sækir á mig í öllum þessum æsingi fólks við að kynna sig.  Ekki halda að ég hafi á móti því að fólk láti uppi þau góðu verk sem þau hafa gert.  Heldur þarf einmitt að skoða hvort það stenst.  Hvort viðkomandi hafi í raun og veru þann kaliber til að bera að vinna þjóðinni sinni og okkur öllum sem best í hag en það er einmitt það sem þarf núna. 

Eitt að lokum, sumir gerast rosalega lýðræðislegir rétt fyrir kosningar, þó þeir hafi ekkert sýnt annað en hroka.  Biðjast afsökunar á þessu og hinu og skilja allt svo vel.  Þetta fólk treystir á gullfiskaminnið fræga.  Ekki láta slíkt fólk glepja ykkur til að vinna þeim brautargengi, við höfum nákvæmlega brennt af okkur allar stélfjaðrir með slíkt fólk í fararbroddi undanfarin svona 20 ár.


Snjóflóðahætta og illfært um götur.

Jæja mín kæru, þá er veður vont, ófært um Kirkjubólshlið, Óshlíð og Eyrarhlið.  Svo ekki komst litla skottan mín í leikskólann, en sú eldri er á Sólborg og það er ennþá fært innanbæjar, þó það sé orðið þungfært.  Og svo á að hvessa upp, svo það má segja að ekki sé hundi út sigandi. 

IMG_6296

Svona er útlitið úr mínum bæjardyrum núna.

IMG_6297

Jamm það er komin ansi mikill snjór.

IMG_6298

Rétt grillir í Engi. Og nú var verið að hringja bæði frá Grunnskólanum og Leikskólanum Sólborg og tilkynna að það væri verið að loka skólunum vegna ófærðar.  Þetta er nú meira ástandið.

Ferð í Reykjanes 1999. 001

Já svei mér ef ég tek ykkur ekki bara með mér á ættarmót í Reykjanesi.  Hér er mamma mín sem situr, Dóróthea systir hennar næst henni, Pétur bróðir hennar næstur og Kristín kona hans.

Í djúp8inu

ég Aron bróðir Úlfs Júlíana og Úlfur. Þetta var áriði 1999, sem systkini mömmu hittust, og svo var farið fram í Hraundal og Selið heimsótt, en þar ólst mamma og systkinin upp að einhverju leyti.

Ferð í Reykjanes 1999.2

Það þurfti að vaða yfir Hraundalsána, því yfir hana er enginn brú.   Og eftir allan þennan tíma, mundi Pétur frændi hvar vaðið var.  Sumt gleymist ekki.

Seilið

Hér er svo Selið, moldarbær sem mamma mín ólst upp í, svona erum við nú nálægt fátækt fyrri ára.  það er bara ekki lengra síðan en þetta.  Og Kreppa hvað!!!

Mamma og Júlíana

Mamma og Júlíana Lind.  þetta var síðasta árið sem mamma mín lifði, og gott að hún skyldi upplifa þessa ferð með ættingjum sínum.

Ferð í Reykjanes 1999333

Ein hlýleg og notaleg.  Skafti minn í sundlauginni í Reykjanesi með Júlíönu dóttur sinni.

En ég kveð ykkur héðan út snjónum og þeim hættum sem steðja að íbúum hér, verið samt alveg róleg það er vel hugsað um okkur, og almannavarnirnar á vaktinni.  Væsir ekki um okkur meðan við höfum rafmagn og svoleiðis.  

 

 

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Mars 2009
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 5
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023311

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband