17.3.2008 | 17:01
Skíðaparadísin Ísafjörður.

Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
17.3.2008 | 14:01
Fullt hús..... og hið daglega veður.
Jamm hér er nóg um að vera. Eða var, litli herinn er farinn upp á dal, allir nema fjórir.
Evíta litla upp og niður stigana hjá ömmu sinni.
Kannist þið nokkuð við svona ? endalaust rusl og ekkert þýðir að reyna að taka til, því það kemur bara meira Þá er bara að loka augunum. En þau hafa það rosalega nice hjá ömmu.
Knúsídúllur með sleikjó.
Gaman gaman fyrir þau altso.
En svo var farið út að leika sér, enda veðrið rosalega gott.
Fínt að vera úti í snjónum.
Úlli gröfukarl búin að búa til þennan líka fína snjóvegg.
Já sól og snjór, ekki hægt að hafa það betra.
En nú hefur færst smá ró yfir húsið, sú minnsta sefur úti í kerru, Óðinn, Daníel og Hanna Sól eru að leika sér úti og þau stóru farin á dalinn á skíði og snjóbretti.
Og útsýnið ekki amalegt út um dyrnar hjá mér. Vona að þið eigið góðan dag mínir kæru bloggvinir og lesendur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
16.3.2008 | 17:21
Afmæli.
Veðrið í dag er búið að vera dásamlegt. Isobel Liv litla varð 4 ára í dag, svo við Hanna Sól og afi fórum í afmæli. Það var hið mesta fjör.
Það voru flottar og girnilegar kökur á borðum.
Afmælisbarnið bíður eftir að fá að blása á kertin.
Og þarna blæs hún á kertin fjögur.
Amma hafði komið með sælgætisbrúðu frá El Salvador og nú áttu krakkarnir að slá sælgætið úr henni.
Sumir voru mjög spenntir. Það voru trúðar sem hjálpuðu til við undirbúningin.
Og þau eru greinilega spennt, nema ein lítil hehehe sem dundar sér við að taka brúðurnar sínar úr pakkningu, hún fékk nefnilega líka gjöf.
Afmælisbarnið byrjaði auðvitað.
Hér er Hanna Sól, og svo koll af kolli.
En það var svo öruggast að sitja hjá abolidu ömmu, þegar stóru krakkarnir byrjuðu að slá um sig.
Sumir voru sniðugir og drógu sig í hlé með nammið og blöðrurnar, og svo auðvitað dúkkurnar sínar, bak við sófa.
ein mynd svo í lokin, ég ætla að kalla hana leikur ljóss og skugga. Hún er tekin nú fyrir tuttugu mínútum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 17:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (23)
16.3.2008 | 10:52
Hrikaleg fegurð, sundferð og grill.
Við fengum Sigurjón, Ólöf Dagmar og mömmu þeirra í heimsókn í gærdag, á ákváðum að fara með krakkana í sund, Bolungarvík varð fyrir valinu í það skiptið.
Það er gaman að leika saman.
Tilbúin í sundferðina.
Krúttlegi vitinn sem blasir við um leið og Bolungarvíkin, böðuð sól.
Hér kúrir bærinn undir Traðarhyrnunni.
Og svo er sundhöllinn.
Fannhvítir tindar.
Á leiðinni til Bolungarvíkur, eru fjöllinn dálítið hrikaleg, en falleg og kraftmikil
Allskonar hulduverur sem standa í framvarðarsveit Vestfjarða, til búin að verja fríríkið.
Sumir er til vill drungalegri en aðrir.
Jafnvel ógnvænlegir.
Kuldalegir og ógnandi.
En alltaf sólarglæta einhversstaðar.
Hér er Hnífsdalur baðaður sól.
Við ákváðum að grilla af því að veðrið var svo gott.
Ekki sakar nú að hafa góða hjálparkokka í svoleiðis framkvæmdum.
Já það vantar ekki áhugann hér.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
15.3.2008 | 12:37
Hið daglega veður.
Það er sama blíðan hér í dag.
Fallegt veður á Ísafirði.
Og garðurinn minn er fullur af rjúpnaförum, þær hafa sest að hjá mér þessar elskur.
Góða helgi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
14.3.2008 | 21:49
Dagurinn í dag var góður fyrir mig.
Jamm hér er aðeins meira frá þessum yndæla degi.
Bara gott veður og ekkert annað.
Skíðasvæðið orði tilbúið fyrir alla sína gesti um páskana.
Brekkur við allra hæfi, svo sannarlega.
Og svo er líka hægt að gefa öndunum á öðrum pollum en í henni Reykjavik, til dæmis á Suðureyri. Þar eru þessar elskur alveg til í brauðmola.
Að gefa gefa brauð.... það er lífið.
Glommi glommi glomm hehehehe.
Og nokkrir ungar litu við í dag hjá ömmu sinni, eins og hún Evíta Cesil, sem rambaði á stigabrúninni hjá ömmunni, upp og niður stigann það er lífið.
Pabbi er upptekin, en ég elska svona dömuveski hehehehe.
Sieg Heil tilbúin í slaginn segir hann Kristján.
Amma burstin er fastur í hárinu.
Hmm fáum við frið í tölvunni.
Jamm mikið um að vera á stóru heimili.
Og mín fór í klippingu og strípur í dag, og er ánægð með árangurinn.
Upp á píanóinu amma.
en ég er að fara niður amma mín.
sko ég get alveg sjálf.
Og svo ein tveir og hoppa !
Meðan sumir blaðra bara í símann
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
14.3.2008 | 12:26
Hið daglega veður og smá grín.
Í dag er yndislegt veður.
Morgunin lofaði góðu.
Súgandafjörðurinn komin í páskaskreytinguna.
Amma ég vil líka taka mynd sagði Hanna Sól og þessi er í boði hennar.
Þessi líka hehehe hún er greinilega hrifin af fjöllum eins og amma.
Sólskreytt Suðureyrin.
Ekki komin upp á Ísafirði.
En komin í hádeginu, umm yndislegt.
Hér hefur ófreskja hertekið skrifstofuna mína Risaísbjörn sennilega.
Sumir hér eru með föstudagsgrín, mér finnst það skemmtilegt, og set þess vegna inn einn slíkan.
Í 51. grein. lögrelusamþykktar Reykjavíkur sem enn gildir árið 1983 segir m.a.
Á almannafæri má ekki ríða eða aka hraðar en á hægu brokki, og þar sem mikil umferð er, gatan mjó eða farartálmi á veginum, skal aðeins fara fót fyrir fót.
Lögreglan getur skipað svo fyrir, hvenær sem nauðsyn þykir, að fara skuli aðeins fót fyrir fót á tilteknu svæði.. !
Þeir, sem skyggnast um í höfuðborginn sjá fljótt að ekki er fullkomlega farið eftir þessum reglum, því að mikið er um að bifreiðar fari þar um götur hraðan en á hægu brokki.
Þetta er tekið úr Krydd í Tilveruna eftir Ólaf Ragnarsson Axel Ammendrup og árna Elfar.
Njótið dagsins.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
14.3.2008 | 01:46
Hið daglega veður og árshátíð Grunnskólans.
Hið daglega veður var bara allsæmilegt í dag.
Sólarglit á fjallshlíð.
Jamm snjór og snjór.
Birtan eykst dag frá degi.
En svo fór ég á árshátíð hjá Grunnskólanum í kvöld, stubburinn var að taka þátt og auðvitað varð amma að fara á sýningu, afi þurfti að vera heima að gæta litlu prinsessunnar.
Við innganginn voru men in black, kurteisir ungir menn sem buðu manni góðrar skemmtunar.
Skyldi eitthvað vera komið í kassan af viti. Sjöundu bekkingar voru í fjáröflun í ferðasjóð.
Hér eru aðalkynnar kvöldins themað var Bókasafnið.
5tu bekkingar með sína sýningu. Ég hleraði svo sem að ekki voru allir sáttir við sitt hlutverk, fjörugir strákar sem héldu á blómum og fuglum, ekki alveg svona þeirra cup of the.
Stubbur spilaði á trommu, en hefði viljað vera sögumaður.
Rúsínan mín hún Sóley Ebba, hefði líka gjarnan viljað vera sögumaður hehehe.
Ef þið skyldur ekki átta ykkur á því, þá eru þetta Nylon og líka sjöttubekkingar.
Þessar fótboltahetjur eru líka í sjötta bekk.
Þessir ungu menn spiluðu klassisk. Flottir.
Og svo free styl dans Alejöndru og félaga.
Áttundu bekkingar eru hér, í ævintýraheimi sem fór allur úr böndum og öll ævintýrin rugluðust. Hér er Rauðhetta í samkvæmi með riddurunum þremur.
Og amma gamla var á msn tali við einhvern ástarmögur, dularfullan sjómann.
Þetta er örugglega Lea prinsessa sem verður hrifin af Svarthöfða, svona getur allt fokkast upp.
Ég get alveg sagt ykkur það satt að Bangsímon vann leiksigur, hann átti salinn alveg. Flottur með grísla.
Og segiði svo að Harrý Potter og vinir séu ekki ekta og flott.
Eða Bubbi byggir hehehe.
Noh... þessi var flottur hommi í Berts Dagbók.
Og hér glíma Grettir Ásmundarson og Glámur.
Thriller dans flott atriði.
Og smart endir á þeirra atriði, mér skilst að eldri krakkarnir hafi fengið að velja sjálf sín atriði og sýna. Bara flott.
Síðasta árshátíð tíundu bekkinga í Grunnskóla, þeirra leið liggur í Menntó. Hér var tekið á einelti. Gulli ekki tilbúin til að fara í skólann, af því að hans bíða þar krakkar sem stríða.
Og sjálfhverft fullorðið fólk.
Þá er gott að eiga Kaptein Ofurbrók að. Og ég verð að segja að ég dáist að þessum dreng, enda átti hann salinn.
Svo er hér draumur Gulla um vinsældir, hvaða ungur maður dreymir ekki um flottar meyjar.
Þetta show endaði svo á danshóp, þau voru bara mjög flott. Í heildina var sýningin full af gleði og margt skemmtilegt þarna. Enginn svikin að fara á árshátíð Grunnskólans.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
13.3.2008 | 00:37
Stubbafjör.
Jamm það hefur verið talsverður erill hjá mér í dag. En það er alltaf jafn gaman að fá þessar elskur í heimsókn.
Hér er verið að leggja lestarteina, ef til vill til Keflavíkur.
Og ýmislegt brallað hjá litla fólkinu mínu. Og járnbrautin endar eins og hraðbrautarkerfið í Argentínu í lausu lofti
Meðan stóra fólkið er í tölvunni.
Eða í loftfimleikum hehehe
Hér er svo páskarósin mín, sem minnir okkur á að páskarnir eru við næsta heygarðshorn. Og dagarnir telja svo sannarlega.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (32)
12.3.2008 | 12:59
Hið daglega veður.
Það er dálítill rigningarúði í dag, en ekki mikið. Það verður örugglega nægur snjór í dölunum tveimur yfir páskana.
Bjart yfir norðrinu greinilega.
Svona lítur veðrið út í dag.
Hér er þessi forvitni hundur. Hann var að glommast í matinn sem ég setti út fyrir krumma.
Þessi vél stendur þarna á Suðureyri eins og skúlptúr, flott er hún finnst mér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (39)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar