Aldrei fór ég suður, daglegt veður og ýmislegt annað.

Ég er að skríða saman sem betur fer.  Það er hundleiðinlegt að fá svona pest þegar maður er með fólkið sitt í heimsókn.  Hanna Sól er svo með hlaupabóluna, hún fékk samt engan hita.  Og er að verða góð. 

Í sambandi við Aldrei fór ég suður þá voru hér margir erlendir blaðamenn, og sonur minn Ingi Þór var að aka þeim um í rútu,  hann fór svo með þá suður í gær.  Þetta voru blaðamenn allstaðar að, Þýskalandi, Bretlandi, Danmörku og fleiri löndum.  Þeir voru mjög áhugasamir um Ísafjörð og nágrenni, fóru m.a. til Bolungarvíkur upp á Bolafjall, og í sund.  En litla Evíta Cesil var hjá ömmu sinni á meðan, er búin að gista hér í tvær nætur með stóru systur Sóley Ebbu. 

IMG_3898

Maður er nú flott í snjónum.

IMG_3918

Svo er prinsessan Hanna Sól.

IMG_3922

Tinna tengdadóttir með litla serban okkar.

IMG_3932

Systur í ömmutölvu, það er svo gaman.

IMG_3933

Litlu skvísurnar Evíta og Ásthildur Cesil.

IMG_3948

Prinsessan með afa, sem er að fara að syngja með karlakórnum Erni og Óttari Proppé.

IMG_3969

Ævintýramynd úr kúlunni.Þarna gerast ævintýrin stór og smá skal ég segja ykkur.

IMG_3976

Hér er Eyvör Páls á Aldrei fór ég suður.  Falleg eins og venjulega.

IMG_3991

Karlakórinn Ernir og Óttar Proppé

IMG_3997

Flottur ekki satt?

IMG_4003

Hér eru gulu hanskarnir komnir til sögunnar hehehehe... Og eftir lagið var þeim kastað fram í sal svona eins og sumir kasta næsbuxum til aðdáenda sinna. En þarna var allt pakkað af fólki, og mörg hundruð manns bæði inni og fyrir utan. 

IMG_4020

Ég veit ekki hver þetta er Blush en þarna spiluðu allar helstu hljómsveitir landsins. 

IMG_4028

Þeir eru ansi skuggalegir þessir samt.

IMG_4048

Sumir voru greinilega dressaðir upp.

IMG_4051

Og í hjólandi stuði.

IMG_4063

Meðan aðrir voru meira hefðbundnir og svona eins og gengur.

IMG_4071

En það var ekkert auðvelt að taka myndir þarna inni, því það var svo margt fólk, og troðið.  En þessi hátið er komin til að vera.  Það var verið að ræða um að Sokkabandi kæmi fram í ár.  En það er verið að spá í næsta ár.  Það er aldrei að vita hvað við gerum kerlurnar. 

IMG_4080

En meðan einhverjir fóru á tónleika, voru aðrir heima og spiluðu risk.  Reyndar var stubburinn niðurfrá og safnaði undirskriftum, hann var með ekki ófrægari tónlistamenn hjá sér en Dr. Gunna, Heiðu, Lay Low og fleiri.  Dr. Gunni og Heiða spiluðu á dalnum á föstudaginn langa, tóku m.a. prumpulagið.

IMG_4089

Sumir voru svo bara í rólegheitum að borða páskaegg og svona.

IMG_4098

Einhverjir höfðu mestan áhuga á unganum ofan á egginu.

IMG_4110

Gamli rugguhesturinn er alltaf vinsæll.

IMG_3951

En stigin langvinsælastur, þær eru báðar búnar að kútveltast niður hann allan með tilheyrandi kúlum og marblettum, en alltaf skulu þær fara upp aftur.

IMG_4120

Upp og niður.

IMG_4125

Niður og upp Tounge

IMG_4131

Hehehe það er bara svoooo gaman.

IMG_4153

Svo borðuðum við saman fjölskyldan á Páskadag og pabbi gamli með.  það var voða ljúft.

IMG_4155

IMG_4171

Páskaskraut ég hafði náttúrulega gleymt að kaupa svoleiðis, svo það var notast við það sem hendi var næst, skírnarkertið hennar Ásthildar og páskaungu úr eggi.

IMG_4180

en það er líka hægt að nota það á ýmsa vegu sko.

IMG_4207

eða þannig LoL

IMG_4183

Þessi prinsessa er flottust.

IMG_4181

Fallega serbneska prinsessan okkar.  Hún hefur lent í ýmsu m.a. að missa aleiguna í stríðinu, þurftu að flýja, og það mátti ekki taka neitt með sér.  Allt horfið búið að stela öllu innan úr húsinu þeirra, þegar þau komu aftur, meira að segja fjölskyldumyndirnar voru horfnar.  En hún horfir bara fram á veginn.  Hún sagði að fólki hefði ekki einu sinni vita sjálft hvort þau voru serbar eða króatar.  Þau þurftu að spyrja foreldra sína, hvaða kynþætti þau tilheyrðu.  Svo þetta var alveg fáránlegt stríð.

IMG_4188

Þessi er sett inn fyrir Ínu mömmu hans Bjössa.

IMG_4212

Withney Huston ?  Nei Bára með hárkollu. LoL

IMG_4102

Eins og sjá má var veðrið yndislegt í gær.  það var smá mugga í morgun, en er nú aftur orðið bjart.

IMG_4105

Svo er ein hér að lokum, hún er bara einhvernveginn svo fyndin, sérstaklega þegar haft er í huga að hér er þurrkari á heimilinu.  En svona er þetta bara.  En er þetta ekki bara sætt ?

IMG_4213

LoL 

 


Daglegt veður og líf í kúluhúsi.

Það er sól og blíða á Ísafirði í dag, og mikil umferð.  Það ók einhver á bílinn hans Bjössa þar sem hann var kyrrstæður við apótekið og ók í burtu án þess að athuga hvort hann hefði skemmt eitthvað, Marjanna sat inn í bílnum og var alveg gáttuð. 

í kvöld er seinna kvöld rokkhátíðarinnar aldrei fór ég suður.  'Eg ætla að fara og hlusta á hann Ella minn syngja með karlakórnum Erni, þar sem Óttar Proppé er einsöngvari og svo verður flutt frumsamið lag eftir Mugison.  Ég hugsa að það verði hátindur hátíðarinnar.  Annars er bara gaman að sjá öll nýju andlitin og svo alla brottfluttu ísfirðingana, gaman að heilsa og hitta fólk sem maður þekkir, kannast við og er farið héðan.  En koma nú sem gestir. 

ég sé að Dimmalimm verður sýnd á morgun kl. 14.00 þá ætla ég að fara með litlu stelpurnar mínar, og leyfa þeim að sjá Komedíuleikhúsið og Elvar Loga.

IMG_3895

svona var veðrið í morgun, en nú er komin sólin, og allt bara svo ljúft.

IMG_3871

Þessi kom af dalnum í gær, þá voru börnin máluð, sælgætisregnið og furðurfatadagur.

IMG_3872

Þessi ungi maður var alveg gjörsamlega búin á því, eftir ferðina á dalinn.

IMG_3875

Litli serbinn með pabba og mömmu sinni.  Hann er voða ánægður, og drekkur mjólk sem aldrei fyrr.  var ég búin að segja ykkur að börnin fá rosalega góða matarlyst þegar þau koma til ömmu í kúlu, það er greinilega ekki bara eldamennskan, því hann er á brjósti.

IMG_3884

Júlli minn svo flottur og fallegur, hann er að fara að halda AAfund, hátíðarfund.  Ég er stolt af honum.

IMG_3888

Lifðu í lukku en ekki í krukku, gæti þessi mynd heitið hehehehe... hún ér nú samt bara alveg ánægð í krukku hún Hanna Sól.

IMG_3889

Stoltur afi með Arnar Milos, minnsta barnið á heimilinu.

IMG_3896

Tóta litla tindilfætt, tifar hún um gólfið. 

Sendi ykkur dash af hamingju og góðri tilfinningu, ég á svo mikið af því að ég get alveg miðlað.  Heart

 


Rúntur um bæinn og örn á ferð og flugi.

Farið að síga á seinnihluta af dýrðlegum degi.  Við dóttir mín fórum aðeins á rúntinn og tókum nokkrar stemningsmyndir.

IMG_3627

Þau eru góð saman Ásthildur og Brandur, ég er ekki að skrökva þegar ég segi að hann malar þegar hún situr ofan á honum og gruflar í feldinum hans.  Ótrúlegt.

IMG_3629

Þetta er líka menningarheimili, því heimilisfólkið grípur í ýmislegt, milli gönguferða og hvíldar.

IMG_3631

Og ekki gleymast okkar minnstu bræður svo mikið er víst.

IMG_3635

Veðrið stórkostlegt og birtan falleg.

IMG_3637

Húsin kúra undir fjöllunum stórkostlegu.

IMG_3639

Þessi sóði henti rusli út um gluggan, svei mér þá.

IMG_3641

Neðsti er hér heehe hér er tjöruhúsið þar sem Komedíuleikhúsið sýnir Dimmalimm, ég komst því miður ekki, af því að ég var að passa börn.

IMG_3643

Þorskur á þurru landi.

IMG_3644

Og safnahúsin frá annari hlið.

IMG_3645

Hér sést inn á skíðasvæðið og Seljalandsdalinn.

IMG_3647

Og björgunarbátarnir liggja við bryggjuna. 

IMG_3649

Og gömlu húsin sóma sér vel í sólinni.

IMG_3664

En hér er stórstreymt í dag, ætli tunglið sé ekki fullt.  Og hér er ljósmyndarinn á BB á ferð, það er nefnilega Örn hér í fjörunni, og margir að fylgjast með honum.  Halldór hefur örugglega náð betri myndum en ég, því hann er með aðdráttarlinsu.

IMG_3666

Hér er hann að taka myndir af erninum, það má örugglega sjá þær á morgun í BB.is

IMG_3695

Hér er þessi glæsilegi fugl.

IMG_3700

Það er óhætt að segja að hann olli umferðaröngþveiti á hraðbrautinni.

IMG_3735

Konungur fuglanna.

IMG_3812

Hann lét athyglina lítið á sig fá.

IMG_3827

Fánaborgin upp á dal.

IMG_3831

Menn á snjósleðum, það er allt skíðasportið hér.

IMG_3836

Fullt skíðasvæðið af fólki, og bílaröðin langt niður eftir veginum.

IMG_3844

Þegar við fórum inn í Engidal, þá var örnin komin þangað.

IMG_3851

Og  Engidalurinn baðaður sól, þetta er kapellan og kirkjugarðurinn.

IMG_3852

Hér er öllu meiri ró, ekki bara í kirkjugarðinum, heldur eru hestamennirnir með sína aðstöðu hér, og það voru nokkrir í útreiðatúr, meðal annars ein vinkona Báru minnar hún Auður Björns, og bára fékk að taka í og spretta úr spori.  En ég hafði eytt öllu kortinu á örnin.  hehehehe.

IMG_3855

Meðan á þessu stóð voru börnin í heitapottinum.

IMG_3864

Og létu fara vel um sig.  Sannarlega yndislegur dagur. 


Hið daglega veður furðufatadagur og grill á dalnum.

Föstudagurinn langi, og veðrið er yndislegt, það hefur verið stanslaust flogið í morgun.  Ég var að prikla en svo fór dóttir mín með Úlfinn og  Hönnu Sól á bretti upp á dal svo ég tók að mér að hlusta eftir nöfnu minni.  Bjössi og Marjanna ætla í labbitúr með sinn litla stubb.  Og veðrið er bara þvílikt yndi.

IMG_3611

Eins og sjá má, þá verður ekki á betra kosið.

IMG_3612

Í dag er furðufatadagur upp á dal, og sælgætisregn fyrir krakkana.

IMG_3613

Sólin gægist yfir Ernirinn.

IMG_3614

Og skíðasvæðin böðuð sól.

IMG_3615

ég sé að Elli hefur snappað af mér mynd, ég var svo upptekinn að ég tók ekki eftir því fyrr en ég setti kubbinn í tövuna Tounge

IMG_3616

Farið á dalinn.  Þar verður fjörið í dag.  Og svo Dimmalimm niður í tjöruhúsi kl. tvö.

IMG_3618

Arnar Milos strax farinn að kunna bara vel við ömmu í Kúlu.

IMG_3622

Og mamma fær að vera með á mynd líka. 

Eigið þið góðan dag elskurnar mínar.  Hamingjutilfinning send héðan úr blíðunni.  Heart


Fólkið mitt.

Ég er að vona að ég sé ekki að ofgera ykkur með þessum myndum af mér og mínum.  Ég er stolt af þeirri veröld sem ég hrærist í, og ég er eins og aðrir sjálfhverf mest megnis, og vil miðla af þeirri hamingju sem umvefur mig.  Ég er líka að vona að það geti verið smá leiðarljós um forgangsröðun í okkar villta og tryllta samfélagi.  Það sem skiptir svo óendanlega miklu máli er fjölskyldan, börnin okkar og umhverfið.  Einhversstaðar langt þar aftan við er fjárhagur, peningar og allra neðst eru völd og frægð.  Það er sennilega það sem er mest fallvalt af öllu því sem hægt er að sækjast eftir.

IMG_3545

Hér er hún Tinna tengda og Evíta.  Við áttum öll saman góða stund í kúlunni í dag.

IMG_3548

Það er svo notalegt að hafa alla fjölskylduna í kring um sig, og finna bara hvað allt er gott og svo mikil vænt um þykja.

IMG_3549

Frábærir feðgar.

IMG_3550

Flottar mæðgur.

IMG_3552

Fólk segir hvað þeir séu líkir þessir feðgar.  Málið er að sú líking er á andlega sviðinu því þeir eru ekkert blóðskyldir, en eiga saman gott fjölskyldulíf.  Segir svo margt um lífsins skrýtna tilgang.

IMG_3561

Maríubæn ? nei bara barnaskapur eins og allt hitt.

IMG_3566

Súpermódel ? nei elskuleg tengdadóttir mín.

IMG_3583

Jamm það var sko grillað, þarna eru feðgarnir að grilla úti við.

IMG_3593

Gættu vel að því hvar þú gengur Kristjan minn segir stjúpinn, sem er frábær pabbi.

IMG_3597

Umm maður getur nú borðað sér til ánægju sko, ef maður er svangur.

IMG_3600

Tvær barnsmæður og tengdadætur kúlunnar.

IMG_3602

Já litli Arnar Milos og mamma hans, hún er frá Serbíu og er ekki hress með sjálfstæðisyfirlýsingu Kosovo.  Hún segir að við megum aðeins líta í eigin barm hvað það varðar.  Þetta var serbneskt land þar sem innflytjendur bókstaflega tóku yfir í krafti þess að eignast fleiri börn og verða að lokum í meirihluta.  Við fáum stundum bara hálfa söguna af atburðum frá útlandinu, þangað til við hittum fólkið sem kemur þaðan.

IMG_3608

Knúsí krúsí.

IMG_3610

Töffarinn Ólöf Dagmar, flott ömmustelpa.


Hið daglega veður, og fjölskylda hittist.

Fimmtudags morgun og allt í góðri harmoníu hjá mér.  ég heyrði í flugvél, svo það er flugfært sem betur fer fyrir fólkið sem er að koma í heimsókn.  Það er lika allt í lagi með veðrið, þá komi smá gustur annað slagið.

IMG_3533

Fánarnir komnir upp sem bjóða fólkið velkomið á dalina og skíðasvæðin.

IMG_35331

Skíðavikufánin og fleiri fánar sem blakta víða um bæinn aðallega á leiðum að skíðasvæðunum.

IMG_3534

Og þegar ég set þetta inn, þá sé ég að það birtir upp, svo það gæti orðið sól í dag.  Það væri yndælt.

IMG_3518

Systkinin stolt með afkvæmin sín, Bjössi með sitt fyrsta barn.

IMG_3519

Gaman að sjá hvað hann er duglegur og natinn við drenginn sinn, reyndar eru allir synirnir rosalega natnir og duglegir við börnin.

IMG_3522

Hér sváfu þessir piltar í nótt, vildu endilega gista.

IMG_3530

Sumir voru að hjálpast að.

IMG_3531

Aðrir bara að hafa það notalegt.

IMG_3525

Nafna mín og litli serbinn.

IMG_3529

Hér sést hvað hún er krambúleruð þessi elska.

IMG_3536

Og svo getur maður alveg leikið við litla frænku, þó maður sé töffari og íþróttahetja, en Daníel er í landsliði í Íshokkey, og hefur leikið allmarga leiki bæði í Reykjavík og Akureyri.  Hann er flottastur.


Ærsl tilheyra unga fólkinu okkar.

Það var mikið fjör í kúlunni í dag.  Undirbúningurinn var svo spennandi.  Og svo þurfti náttúrulega að ærslast alveg heilmikið.

IMG_3507

En það var byrjað að máta sig við nýtt bretti sem Hanna Sól fékk frá pabba og mömmu, hér er Óðinn Freyr að fá að prófa.  Þau fóru svo út á lóð að renna sér, og það var voða gaman. 

IMG_3509

En svo var keypt nýtt rúm, og það var nú heldur betur spennandi fyrir prakkarana mína.

IMG_3511

Á öllum aldri reyndar.

IMG_3512

En dagurinn gekk nú samt ekki áfallalaust fyrir sig, því vegna þess að allir voru svo uppteknir þá gerðist það að sú litla datt niður tröppurnar, og fékk þungt höfuðhögg.  Það var rokið með hana upp á spítala.  En sem betur fer fór betur en á horfðist og hún slapp með skrekkinn og dálítið krambúleruð, kúla ofan á kúlu.  En hún er hörð af sér hún nafna mín. 

IMG_3514

Svo var slakað á fyrir framan sjónvarpið, milli tveggja stórra frænda.  En þau eru samtals  6 stykki sem gista hjá afa og ömmu í nótt.  Minnsti prinsinn kom með pabba sínum og mömmu í kvöld, Arnar Milos, eða litli serbinn eins og afi kallar hann. 

En ég segi bara góða nótt. Heart


Hið daglega veður og undirbúningur fyrir helgina.

Já lognið er víst eitthvað að flýta sér í dag, og ekki hefur verið flogið.  Það eiga að koma hingað 17 aukavélar yfir páskana, svo það er eins gott að veðrið lagist, eða menn sendi rútur vestur svo allir komist sem ætla sér. 

Tengdasonur minn tók tvo puttalinga upp í við eitt Hringtorgið í Mosó, þau ætluðu bara eitthvað út á land yfir páskana, bara þangað sem þau fengju far.  Og hann skilaði þeim niður á Silfurtorg á Ísafirði, vonandi fá þau gistingu.  Flippdýr sýnist mér, mér líkar vel við svoleiðis fólk.

IMG_3502

Já það hefur leyst heilmikinn snjó, það er nefnilega hlýjindi úti og vindur, sem er ákjósanleg skilyrði fyrir leysingum.  Það er samt nógur snjór á Dölunum tveimur.

IMG_3503

Vonandi lægir í dag.

IMG_3504

Sú stutta er farin að gera sig heimakomna í kúlunni, fiktsöm er hún LoL var búin að krækja sér í pennaveskið hans stóra frænda þar var límtúpa sem hún hafði mikinn áhuga á að opna, amma sá samt við henni í það skiptið.

IMG_3506

Svo eru tvær duglegar stelpur komnar í heimsókn til að hjálpa til að passa og laga til. 

Sonur Ella kemur í kvöld akandi með sína konu og barn, og það þarf að koma þessu öllu heim og saman.  En það er bara skemmtilegt. 

Vonandi eigið þið góðan dag. 

Einn smábrandari upp úr kryddbókinni.

Guðrún Erlendsdóttir, hæstaréttardómari og áður kennari við lagadeild Háskóla Íslands, var einu sinni þulur hjá Útvarpinu.

Helgi heitinn Hjörvar var feikilega mikill íslenskumaður og var honum mikill ami af því ef fólk talaði slæmt mál eða framburði þess væri áfátt.  Honum fannst Guðrún  ekki bera stafinn "æ" fram á réttan hátt, sagði að hún talaði um Granland, segði harra, lagra og svo framvegis.

Helgi minntist oft á þetta við Guðrúnu en fannst hún ekki taka leiðbeiningu og héldi áfram að bera æ-ið rangt fram.

Svo gerðist það að Guðrún datt í húsakynnum Útvarpshússins og handleggsbrotnaði.  Þegar Helgi frétti þetta spurði hann aðeins;

000, og gat hún þá loksins sagt "Æ" ? LoL


Maður er manns gaman, og börnin sinnar móður.

Það er búið að vera fjör í kúlunni í dag.

IMG_3449

Kasta snjó í mömmu sína.

IMG_3467

Taka mynd af henni, en þessi fallega mynd er einmitt tekinn af Hönnu Sól.

IMG_3469

Svo kom Ingi Þór í heimsókn með sín börn.

IMG_3476

Hér var grettukeppni í gangi LoL

IMG_3477

Svo var gaman að leika sér, hér er Sigurjón Dagur kominn líka og Kristjan Logi.

IMG_3489

Búnar að hátta og þvo sér og bursta tennurnar, tilbúnar í holuna sína, tvær yndislegar dömur.

IMG_3494

Smá galsi samt fyrst, það var svo gaman að leika saman allar þrjár.

IMG_3496

Maður getur nú verið fyndin LoL


Mamma kemur og hið daglega veður.

Mamma kom heim í gær, og það urðu fagnaðarfundir.

IMG_3421

Algjört stubbaknús hér með tilheyrandi ánægju og hamingju.

IMG_3430

Þær hittust líka litlu frænkurnar, báðar orðnar eins árs og flottar.

IMG_3432

Sú stutta komin í stólinn búin að fá sér morgunmat og verður fljót að venjast trúi ég.

IMG_3435

Svo var byrjað að kanna garðskálan, áður en maður klæddi sig.

IMG_3417

Strákar verða alltaf strákar ekki satt, hér er verið að tálga spýtur.

IMG_3437

Veðrið lofar góðu þennan morguninn.

IMG_3438

Búið að opna himnagalleríið.

IMG_3439

Og þessi sýnir lognið á pollinum.  Vonandi eigið þið góðan dag.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Mars 2008
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband