4.2.2008 | 12:51
Hafa skal það sem sannara reynist, segir Svanfríður Gísladóttir. Og það er mikið rétt, enda lýsi ég yfir trausti á henni og hennar málfluttningi.
Ég ætla að setja hér inn færslu frá vinkonu minni henni Svanfríði Gísladóttur. Þar sem hún ræðír um ósk um inngöngu á Reykjalund. Læknirinn sem hún talaði við, tilkynnti henni að hún væri orðin of gömul til að á inni.
Hann hefur svo reynt að draga í land og gera hana ótrúverðuga, sem er honum ekki til sóma. Ég veit að Svanna fer ekki með rangt mál, er alveg sannfærð um það, og ég veit líka að hún er með stálminni. Þannig að þessi læknir má blása eins og hann vill, en hann á líka að skammast sín.
En hér kemur innleggið hennar.
Meira um Reykjalund!
Hafa skal það sem sannara reynist! Í grein sinni í Morgunblaðinu í dag(3.febr.) hefur Magnús Jónasson yfirlæknir á Reykjalundi ekki rétt eftir mér. Orðrétt skrifaði ég: Vegna tíðra innlagna út af hjartabilunn, síðast nú um helgina með vatn í lungum,vonaðist ég til að komast enn einu sinni í endurhæfingu á hjartasviði ReykjalundI, ( tilv. líkur) . Það er breyttur tónn hjá Magnúsi lækni í frétt Mbl. ( í dag sunnudag 3.febr. ) og nú bíð eg bara eftir að hringt verði í mig og og mér boðið pláss, því að ekki er lengur í gildi það aldurstakmark er hann tjáði mér að væri , eða að ég 62 ára væri of gömul til að komast í endurhæfingu á Reykjalundi. Þegar Magnús læknir hringdi í mig í seinna skiptið (þá búin að frétta af BLOGGINU mínu) var honum mikið niður fyrir og viðhafði orð sem engum er sómi af, allra síst manni í hans stöðu.
|
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.2.2008 | 10:54
Bolludagur - verði ykkur að góðu landar mínir.
Til hamingju með bolludaginn þarna heima. Hér er víst engar rjómabollur að fá, en ég get svo sem alltaf skroppið á kaffihús og fengið mér kakó með rjóma og rjómatertu. Ég geri það ef til vill seinna í dag, dóttir mín er í prófi frá kl. 14.00 til 16.00 og þá kemur hún heim, og getur loksins slakað aðeins á. Við ætlum að eiga tvo góða daga saman áður en ég fer heim.
En ég sendi ykkur smá bollumynd frá Ísafirði, þetta er hún Rut Tryggvason, hún er heiðursborgari Ísafjarðar alveg frábær yndisleg manneskja, og kraftakona. Hún kom frá Danmörku og þau stofnuðu Gamla bakaríið saman maðurinn hennar og hún. Og eftir að hann dó, hélt hún áfram rekstrinum og starfar þar enn. Dugnaðarforkur og góður vinur minn. Sonur hennar og tengdadóttir hafa að mestu tekið yfir reksturinn. En hver heima vildi vera án Gamla bakaríisins.
Myndina fékk ég lánaða úr Bæjarins besta. Þetta eru einu bollurnar sem ég sé í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
3.2.2008 | 18:42
Í Zoom Kindermuseum.
Jæja við stelpurnar og auperin og ég fórum í kindasafnið í dag..... nei hehehe auðvitað ekki það heitir Zoom Kindermuseum. Þetta er bráðskemmtilegt safn, þar sem foreldrar koma með börnin sín á helgum og leika við þau, eða fá að skilja þau eftir í einn til tvo tíma.
En fyrst þetta, eins og þeir segja í spaugstofunni.
Alþjóðlegt samfélag í gastanknum, Ísland, Rússland og Svíþjóð.
Þetta er hús nýlistasafnsins, þar sem húsið á hvolfi var á mynd hjá mér áður. Nú tróna þessir karlar og konur á veggnum.
Hér erum við komin inn í sjávarsafn barnanna, Ásthildur Cesil er hér í svona speglaskriðgöngum. Hún var í essinu sínu og reyndar öll börnin sem þarna voru, og ekki síður skemmtu foreldrarnir sér.
Hér er margt að skoða og allt miðað við hæð barnanna.
Hér er gert að aflanaum, fiskarnir teknir af króknum.
Málið er að foreldrarnir líka pabbarnir og afarnir eru ekki síður ánægðir með þetta umhverfi en börnin. Hér er staðið við stjórann, og siglt beint áfram.
En svo er næsta skref, það er búið að taka út leirinn, og hér eru komnar heilmiklar málningargræjur, og nú er Hanna Sól að klæða sig í samafesting til að geta farið að mála.
Já og svo er bara málað.
Sú stutta var nú ekki alveg á því að láta skilja sig eftir, hún var of lítil í samfesting, en fékk svona bol til að vera í.
Sumir nostruðu við sín málverk, og ekki bara stúlkurnar.
Vígaleg Ásthildur.
Alltaf bætist við málninguna hjá krökkunum.
Síðan var málað með fílterboltum, sem drippað var í málningu.
Þetta verður sko flott.
Síðan var að skilgreina hvaða litur var uppáhalds, og hvað hver litur þýddi.
Og svo fékk hver að mála sína mynd. Hér er Hanna Sól og áhuginn leyndir sér ekki.
Hún fékk líka að hjálpa til, af því að hún var vinkona annars leiðbeinandans.
Þessi ungi maður tók sína mynd alvarlega, mjög flott hjá honum.
Hér hjálpast þær að Christine og Hanna Sól að fullgera málverkið.
Svo fékk hún alveg spes fyrirgreiðslu, hún fékk andlitsmálningu.
Já lítil mús.
Ég á litla mús hún heitir Hanna Sól.
Og litla systir alveg steinhissa.
Svo var haldið heim eftir skemmtilegan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
3.2.2008 | 07:44
Hver er munurinn á Secil og Cesil.
Í 63 ár hef ég borið nafnið Cesil, það misritaðist að vísu í kirkjubókum, svo í nokkra áratugi var ég skrifuð Secil í þjóðskrá. Ég sendi þeim bréf hjá Hagstofunni nokkrum sinnum með bón um að fá nafnið skrifað rétt. Ég er með bréf undirritað af móður minni og föður um að það var ætlunin að skrifa nafnið mitt á þann hátt. Það var svo eftir að ég sendi mynd af leiði afa míns sem ég er skírð eftir, en hann hét Hjaltí Cesilíus Jónsson, að ég fékk bréf upp á að nafninu mínu hefði verið breytt á Hagstofunni. Síðan eru tvær litlar telpur komnar í heimin sem bera þetta nafn, Evíta Cesil og Ásthildur Cesil. Nú í morgun las ég á Málefnunum.com hjá málverjanum Skurki, að mannanafnanefnd hefði hafnað nafninu mínu.
Sjá hér;
QUOTESíðan í október hefur mannanafnanefnd hafnað sex umsóknum um skráningar en samþykkt ellefu. Eiginnafninu Pia var hafnað þar sem það tekur ekki eignarfallsendingu og rithátturinn er ekki í samræmi við íslenska hefð.
Kvennafninu Kayla og karlnöfnunum Daniyal, Sven og Ezra var einnig hafnað með áþekkum rökstuðningi, en aðeins ein kona er fyrir skráð með nafnið Kayla og þótti nafnið því ekki hafa áunnið sér hefð. Þá var kvennafninu Cesil hafnað um skráningu þar sem það þótti of líkt karlnöfnunum Cecil og Sesil, en samkvæmt lögum um mannanöfn er óheimilt að samþykkja sama nafn fyrir bæði kyn. Einnig er aðeins ein kona skráð undir því nafni í þjóðskrá, svo nafnið hefur ekki áunnið sér hefð.
Karlnöfnin Patrek, Ástvald, Runi og Nikanor voru samþykkt án athugasemda, auk kvennafnanna Hrafna, Kristólína og Dórey. Kvennafnið Amy var samþykkt sem ritháttur nafnsins Amý, þrátt fyrir að samræmast íslenskum málfarsreglum ekki að öllu leyti. Þótti rithátturinn hafa áunnið sér hefð hér á landi, en í rökstuðningi nefndarinnar segir að ellefu konur beri nafnið hér á landi, þar af sú elsta fædd árið 1928.
Einnig samþykkti nefndin þrjú millinöfn, sem öll eru dregin af íslenskum orðstofnum, taka ekki eignarfallsendingu og eru ekki í notkun sem ættarnöfn. Það eru millinöfnin Vopnfjörð, Finndal og Hörðdal.
Nú spyr ég, hvernig getur einhver nefnd út í bæ hafnað nafni sem ég hef borið í 63 ár. Þó það hafi verið vitlaust skrifað, þ.e. Secil í stað Cesil, þá hefur það staðið í bókum Hagstofunnar frá því að ég var skírð. Ég neita þessari að för að nafninu mínu og minni persónu, því vissulega er nafnið mitt hluti af sjálfri mér. Ég neita því alfarið að þessi svokallaða mannanafnanefnd hafi á nokkurn hátt leyfi til þess að svipta mig nafninu mínu. Ég vil bara vekja athygli á þessu, en þegar ég kem heim, mun ég skoða lagalegan rétt minn til nafns sem ég hef borið svo lengi. Það hlýtur að vera komin hefð á nafnið, þó ekki væri annað eftir 63 ár. Og rökin eru þau að Þetta þyki of líkt karlmannsnöfnunum Cecil og Sesil.
Hér eru tvær Ásthildar Cesiljar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
2.2.2008 | 16:03
Villa Aurora - Vienna.
Ég fór með hinum Austurrísku vinum mínum á mjög skemmtilegan stað í gærkveldi. Ég kynntist þeim reyndar þannig að þau komu í kúluna, vildu fá að hitta þessa skrýtnu konu og ræða við hana um lífið og tilveruna. Og þar með var boltanum kastað. Þau eru íslandsvinir, og planið er að koma til Íslands aftur næsta sumar. Hann er fyrrverandi blaðamaður og blaðaljósmyndari, hætti eftir 10 ára starf, af því að honum fannst blaðamennskunni vera of mikið stjórnað af peningamönnum. Hún vinnur með börnum á á listasafni fyrir börn, og er að ljúka námi í listasögu. Þau eru rosalega yndæl bæði tvö.
En við fórum á stað sem heitir Villa Auróra, á einni hæðinni hér í Vín, þetta er eins og upp í sveit, staður sem er út úr, þó hann sé aðeins í örfárra mínútna keyrsla frá miðbænum. Þarna er allt gert til að gestum líði vel. Þar er stór grasflöt sem er fyrir "Picnic" á sumrin, þegar frost er, þá búa þeir til skautasvell á flötinni, þarna er gamall fiskibátur sem hægt er að fara upp í og með nesti útbúið frá veitingastaðnum, það er líka hægt að fá picnickörfu og teppi út á grasflötina, og það er bara rosalega flott þarna, og allt ódýrt. Ég mæli með þessum stað ef þið eruð á ferð í Vín.
Þetta er grasflötin góða.
Þessir herramenn sem flestir kannast við brostu við manni þegar maður kom inn.
Hér erum við svo öll, við fengum okkur auðvitað vínarsnitzel, hvað annað. Og alveg rosalega gott.
Hér er svo báturinn, ég veit ekki hvort hann er með kvóta hehehe.
Garðurinn er heilt ævintýri út af fyrir sig.
Hér erum við hátt upp í útsýnisturni þar sem hægt er að horfa yfir Vín og nágrenni. Christina tók þessa mynd sjálf af okkur.
Frábært kvöld. Ef þið hafið áhuga, þá er addressan Villa Aurora - Vienna, A-1160, Wilhelminenstrabe 237, at the corner of Savoyenstrabe.
Og nú er nefnilega komin laugardagur. Góðar stundir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
2.2.2008 | 11:00
Skemmtileg mynd frá Svönnu bloggvinkonu og æskuvinkonu minni.
Ég skrifaði um daginn um hana Brynju Arthúrsdóttur, hún var með mér í Dóminikanska Lýðveldinu, hún er blind, en það kemur ekki í veg fyrir að hún ferðist víða, og mér finnst hún algjör hetja, það er ekki auðvelt að ganga um á svæðinu með fulla sjón, hvað þá ef maður sér ekki vel. En hún lét engar hindranir aftra sér frá því að fara hvert sem hana lysti. Ég elska svona fólk, sem yfirvinnur erfiðleikana og sýna manni svo ekki verður um villst að það er allt hægt, fólk eins og Brynja vekur manni jákvæða hugsun. 'Eg tek það fram að ég hugsa það sama um vinkonu mína Svanfríði Gísladóttur frá Súðavík, sem hefur líka átt við mikla vanheilsu að stríða. En hún sendi mér nefnilega mynd af þeim stöllum, þegar þær voru ungar, og Brynja var að taka við stafi sem Svanna gengdi. ég ákvað því að smella inn þeim myndum hér svona til gaman, tvær hetjur.
Hér er svo Brynja í dag.
Flottar konur. Frábærir félagar.
Bloggar | Breytt 4.2.2008 kl. 11:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
2.2.2008 | 08:02
mbl.is tíu ára.
Ég vil bara nota þetta tækifæri til að óska afmælis"barninu" og aðstandendum þess til hamingju með tíu árin. Ég held að netmiðlar hafi breytt landslaginu í fjölmiðlaheiminum. Sérstaklega eftir að bloggið kom til sögunnar, og svo spjallrásirnar.
Nú hefur hinn litli Jón Jónsson tækifæri til að tjá sig. Það hefur tekið tíma fyrir blaðamenn að sætta sig við þetta, auðvitað, þvi það var ákveðin samkeppni fólgin í því. Auðvitað hafa menn alltaf getað skrifað greinar og birt í Morgunblaðinu og öðrum blöðum, en það tók tímann sinn, og oftar en ekki var umræðuefnið búið og gleymt þegar það birtist, ef það þá var tekið inn. Það hafa verið áhöld um slíkt.
Auðvitað er það svo að það eru ekki allir sem höndla þetta vald, og verða sér til skammar með skrifum sínum, og stundum þarf að loka á fólk. En allur þorri manna, hefur staðið sig með sóma, og gert alla umfjöllun áhugaverðari, með víðari sjónarhorn en áður.
Þetta er ákveðið vald sem er fært niður til hina almenna manns, og ég fyrir mína parta er þakklát fyrir það. Ég þarf oft að tjá mig um ýmislegt, og ekki er verra að fá svör og jafnvel útskýringar, sem maður fékk ekki í blaðagrein.
Svo ég segi bara Mbl stjórnendur og aðstandendur til hamingju með öll 10 árin.
![]() |
Tíu ára afmæli mbl.is |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.2.2008 | 15:28
Stoltar ömmur.
Við systurnar erum hreyknar ömmur, önnur var í Danmörku um daginn og var viðstödd fæðingu lítils barnabarns, hann heitir Stefán... já Anna frænka mín, Stefán heitir hann. Og svo fyrir ári síðan þegar ég var hér til að hjálpa til þegar litla nafna mín Ásthildur Cesil fæddist. Þau eiga sitt hvorn afmælisdaginn, hún 23 janúar, hann þann 24. 'Eg fékk skilaboð á flugvöllinn í Kastrup, þegar ég var að tékka mig inn þar, á leiðinni hingað.
Hér erum við Ásthildur Cesil.
Og Dóra systir og Stefán. Ég vona að systir mín myrði mig ekki fyrir að setja inn þessa mynd, en hér má sjá stoltar ömmur, og hvað við erum líkar. Sami montsvipurinn á okkur báðum.
En strákurinn er með fljótavíkurgogginn, það er nokkuð ljóst.
Sjáið bara.
Og svo mín hún er líka með Fljótavíkurgogginn.
Yndislegir einstaklingar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
1.2.2008 | 07:45
Þegar frostið brennir fold.
Ég hef verið með hugan við veðrið og lætin heima undanfarið, og í nótt þá kviknaði þessi hugmynd.
Þetta skriftarforrit er svo fandi erfitt svei mér þá. En ég reyni þetta aftur.
Þegar frostið brennir fold,
fannir hylja laut og móa,
eyjan góða ofurköld
með ísilagða flóa.
-0-
Æðir rok um eyðisand,
og ógnumþrungnar sprungur.
Í vetrarham vort ættarland
þá vaknar hugur þungur.
-0-
Í sálinni er stríð og stál,
stungur bakið svíða.
Lastabrestir, lygamál,
lífga upp sorg og kvíða.
-0-
Raunir hafa miklar mædd
mennina við ysta haf.
Herrann sjávar, holdi klædd
hörmunganna versta traf.
-0-
Bundið hefur bakið við,
bjargarlausa sjómannshönd.
Bændur hafs og búalið
bjáninn hefur lagt í bönd.
-0-
Hagnaðinn og hafsins auð,
hefur gefið öðrum, hann
Almenningur er í nauð,
illvirkið það vonda vann.
-0-
Þungan hug og þjóðarsorg,
þrautum pínd er byggðin.
Reiði er yfir bæ og borg
brostin forna dyggðin.
-0-
Upp nú rísum öll sem eitt,
í ráðsmenn æpum vilja.
Því við viljum þessu breytt,
það verða þeir að skilja.
-0-
Veit að það eru hnökrar á þessu, en ætti samt að vera nokkuð ljóst. En það er sama blíðan hér í Vínarborg, ég er að fara út að borða með vinum mínum hérlendum í kvöld.
Með góðri kveðju og einni mynd af fannbörðu ísaköldu landi.

Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 6
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 43
- Frá upphafi: 2023312
Annað
- Innlit í dag: 5
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar