12.2.2008 | 22:56
Still here.
Já eins og veðrið hefur verið gott hér í henni Reykjavík, þá hefur það verið frekar rysjótt heima, svo ekki var fært að fara heim í dag. En við höfum samt átt góða daga.
Við fórum á mjög notalegan kínverskan matsölustað í hádeginu í gær.
Hanna Sólin og pabbi hennar.
Heimsótti yndislegu barnabörnin mín, sem búa hér í Reykjavík, hér eru þau Júlíana og Daníel með litlu systur sína.
Svo bauð Laufey vinkona mín og bloggvinur okkur í mat í kvöld og við áttum ferlega skemmtilegt spjall um gamla daga, Sara var eiginlega með okkur, því þarna eru mörg verk eftir hana, m.a. þessi mynd sem er fyrir ofan okkur. Myndin greinilega af húsmóðurinni.
Við fengum mjög ljúffengan pönnurétt, og hittum hennar elskulega, hann er jafnvel ennþá flottari en hún hefur lýst honum.
Sú litla hafði það líka rosalega nice eins og sjá má, þessi er fyrir mömmu hennar.
Við erum sko flottastar, takk elsku Laufey mín fyrir frábært kvöld.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
12.2.2008 | 16:55
Strandaglópar enn og aftur.
Ég er ennþá í góðu yfirlæti í henni Reykjavík, það er ófært um Ísafjarðardjúp, Steingrímsfjarðarheiði og Súðavíkurhlíðina. En vonandi kemur betra veður fyrir vestan á morgun.
En í vetrarhamnum hér er ágætt að ylja sér við vorið í Vín.
Jasmín brosir glaðlega við sólinni og vegfarendum.
Sennilega er þó sælgætið frá Belgíu sætara, en þetta er bara til að horfa á en ekki eta, því þá verða línurnar ekki í lagi.
Og á tankgólfinu eru stjörnurnar, hér er Bill Wyman.
Toto hefur líka átt sín spor hér.
Og norsku drengirnir í Aha.
Hér erum við í lyftunni á leið í ferðalagið okkar, þetta er Trölli sem gægist þarna í töskunni. Hann er dálítið dapur á svipinn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
11.2.2008 | 20:47
Komnar til Reykjavíkur.
Loksins, það var bara gott veður á leiðinni og litla fröken Hanna Sól alveg eins og engill. Talvan mín er að fyllast af myndum, og batteríið búið, en ég ætla að setja inn þrjár myndir hér núna, en lofa ykkur myndasýningum á næstunni. Búin að hafa það yndislega gott, hjá Siggu systur minni í Danmörku og fjölskyldu hennar, og svo var mjög gaman að heimsækja Sunnu og skoða litla frænda. Ég hitti svo Bjössa og litla manninn hér áðan, en ætla að skoða í fyrrmálið hvort ég næ að hitta litlu stelpuna mína hana Júlíönu, ég vil svo gjarnan skoða nýja heimilið hennar. En ég veit ekki hve lengi hún er í skólanum.
Við erum orðnar dálítið þvældar og þreyttar ömgurnar. Pabbi hennar Hönnu Sólar er reyndar hér í heimsókn, og er í þessum skrifuðum orðum að svæfa hana.
Annars er allt gott, mikið eruð þið elskuleg og yndæl öll saman. Knús á ykkur.
Á leiðinni til Damerkur. Maður er nú heimsdama sko !!!
Skýjum ofar, þetta er landið sunnan við sól og austan við mána.
Og á flugvellinum í Köben. En við erum sum sé komnar á næsta áfangastað. Takk fyrir öll hlýju orðin og ábendingarnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (27)
8.2.2008 | 21:06
Eins gott !!!

![]() |
500 farþegar bíða í flugvélum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
8.2.2008 | 10:21
Á ferð og flugi, og í stöðugleika.
Takk fyrir hlý orð og kveðjur elskurnar. Ég ákvað að vera um kyrrt í Kaupmannahöfn, eftir að Elli minn sagði mér að það væri allt ófært, líka til Keflavíkur, eins og reyndar Maddy var búin að tala um. Systir mín er með nóg pláss, svo ég ákvað bara að bíða þetta af mér og koma ekki heim fyrr en á mánudaginn. Frétti af íslendingum sem komu í gær um fimmleytið að heiman, voru þá búin að vera að dingla og hringla í flugfélinni og í flugstöðinni frá því kl. 6 um morguninn, biðu 4 tíma út í vél áður en hún fór í loftið. Og voru orðnir ansi pirraðir á þessu. Og vélin sem ég átti að fara með, kom víst aldri í gær.
En ég ætla bara að eiga nokkra góða daga hér í köben, eða í Köge. FLottur staður og rétt hjá ströndinni.
Reyni ef til vill að senda ykkur myndir seinna. Hanna Sólin var eins og engill alla ferðina og hún er eins og ljós, ef þið lesið þetta Bára mín og Bjarki. Við erum bara að hafa það rosalega notalegt. Ég er búin að fá staðfestinguna á miðabreytingunni frá Iceland Express. Ég ef ekki séð fjölskyldunna hennar Siggu systir í átta ár, strákarnir orðnir fullorðnir menn með kærustur. Fæ að hitta þau öll, áður en ég fer heim. Hér verður smá knall í kvöld, svo það er dekrað við mig algjörlega.
Með bestu kveðjum frá mér til ykkar allra þarna úti sem hugsið til mín. Love you all.
Hér er smá blóm svona inn í allan snjóinn. Prímúla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
7.2.2008 | 09:10
Heimför.
Jæja þá leggur maður í hann heim. Hér er sól og blíða, en minn elskulegi eiginmaður var að hringja og sagði að það væri allt fullt af snjó og ófært að fljúga frá Reykjavík vegna fannkomu. Úff, en ég á nokkra klukkutíma í Danmörku, og systir mín ætlar að sækja mig út á völl, hún býr í Köge. Svo það verður yndislegt að hitta hana. Við erum að ljúka við að pakka niður ömmgurnar. Og svo er kvíðin í mér út af þessu flugi. En það bjargast allt.
Sjáumst seinna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
7.2.2008 | 01:05
Krúttfærsla, ömmustælar og Vínararkitektúr.
Já ég ætla að byrja á byggingunum.
Eins og ég sagði þá er þeim ekkert heilagt í arkitektúr og að blanda saman gömlu og nýju.
Gler/stál og gamli tíminn hlið við hlið. Í forgrunni rólóinn við leikskólann.
Skelin frá nýju sjónarhorni, hún stendur reyndar á nokkrum steypustöplum.
En þann 26. janúar kom þessi litli drengur í heimin hann Arnar Milos, 17jánda barnabarnið mitt, takið eftir hvað hann er fallegur og sléttur í framan. Yndislegur drengur.
Og virkilega stoltur faðir, með einkasoninn. Til hamingju elsku Bjössi minn og þið bæði
Hér er svo skottið Ásthildur Cesil, sem samkvæmt mannanafnanefnd má ekki heita Cesil. HUH
En við fórum í dýralæknaskólann hennar Báru dóttur minnar í dag, sem er eiginlega miklu meira en bara einhver dýralæknaskóli, þarna er hátækni sjúkrahús fyrir dýr, og heilt háskólaþorp. Þar eru skurðstofur fyrir hesta kýr og önnur stór dýr, önnur skurðstofa fyrir smærri dýr, röntgen stofur fyrir stór og lítil dýr, og allt sem lýtur að menntun dýralækna, en mér skilst að þeir þurfi að mennta sig meira en mannalæknar. Þessi dýralæknaskóli og sjúkrahús er sá elsti í Evrópu, og það var María Theresa keisaraynja sem kom honum á fót, á sama tíma og Napoleon vinur hennar setti sinn skóla á stofn, af því að hann þurfti að hafa heilbrigða hesta. En sá skóli leið undir lok, meðan þessi starfaði og starfar ennþá.
Hér sjáum við póníja frá Hjaltlanseyjum. Krúttlegir alveg.
Hanna Sólin var afskaplega hrifin af þessum smáhestum eins og sjá má, og líka Ásthildur.
Þeir eru frá Hjaltlandseyjum þessar elskur.
Ungviðið er samt við sig og yndislega og forvitin.
Þessi er austurrískur að ætterni, haflinger heitir kynið sem hann er af, og þeir eru allir svona á litinn.
Og þeir þáðu svo sannarlega heyið sem Sólin gaf þeim.
Þessi er algjört krútt, móðir komin að burði.
Þessi líka. Þ.E.krúttmoli.
Hér er annar austurrískur hestur, honum þótti gælurnar góðar.
Þau náðu vel saman, enda er Hanna Sól vön hestum, þar sem foreldrar hennar eiga hesta heima á Íslandi.
Sú stutta kemur líka til, hún er gott efni í hestamann.
Jamm krútt öll þrjú.
Hér eru svo aftur á móti íslendingar. Þeir eru náttúrulega bestir.
Þetta er ekki bara skóli, heldur heilt þorp, sem telur ekki minna en 10.000 manns, þegar allt er talið, hér er ríki í ríkinu, eins og risastór Bifröst, með götum sem heita Röngengata, Skurðstofugata, Höfuðgata, og svo framvegis, hér eru búðir, mötuneyti og allskonar deildir.
Hér rakst ég á agave plöntuna, en hún er notuð í Tequilahéraðinu til að framleiða Tekíla, þá eru blöðin í miðjunni fjarlægð og þá myndast eins og skál, í þessa skál myndast svo vökvi sem er agave sem er uppistaðan í Tekíla. 100 % Agave er rosalega dýrt og gott vín. Þetta er ættingi Alua vera plöntunnar, í enda þessarar plöntu er svo oddur mikill og beittur, og ef hann er rifinn frá plöntunni, fylgja þræðir, þetta notuðu indíjánarnir til að sauma með. Þetta er því margnota planta.
Hér má sjá eina götuna í þessu litla dýralæknaþorpi, í miðri Vín.
Hér erum við í mötuneytinu,
Litla skottið undi sér vel í glugganum á byggingunni.
Amma lét ekki sitt eftir liggja.
Og stóra stelpan mín varð að fá að klifra svolítið.
Sú stutta stendur keik og labbar ef maður heldur í hendina á henni, annars sígur hún bara niður á rassin og skríður svo.
Það er í lagi að labba svona í hundaólinni hehehe
Og amman ekki langt í burtu.
Móðir, dóttir, hundur og börn, þannig á lífið að vera.
En máli hafa æxlast þannig að amma fær að fara heim með stóru stelpuna sína hana Hönnu Sól. Hún vill koma heim og vera hjá ömmu og afa í mánuð eða svo, svo mamma geti aðeins andað og verið til. Og sú verður nú aldeilis prinsessa.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
5.2.2008 | 22:23
Bæjarferð.
Við dömurnar á öllum aldri fórum í miðbæjarferð í dag eftir hjólatúrinn, og þegar við vorum búnar að hvílast aðeins, þá var haldið af stað aftur, og nú lá leiðin niður á Stefansplatz, aðaltorg Vínar.
Og hvað sá ég svo í bakaríinu hér rétt við tankinn, jú bollur að vísu án rjóma, en allt annað var til staðar. Bara að þeyta rjóma og bæta inn í.
Í lestinni voru svo rauðakrossmenn, ætli þeir hafi ekki verið á leiðinni til Íslands að moka snjó ?
Á torginu má sjá hvernig þeir austurríkismenn blanda saman ólíkum kúltúr í húsagerð. Sumum finnst þetta gott mál, aðrir eru algjörlega á móti þessari blöndun.
Dómkirkjan er algjört augnayndi.
Frekar algeng sjón hér og í fleiri borgum. Oftast stúdentar sem eru að drýgja tekjur sínar.
En húsin hér eru yfirleitt afskaplega fallegar byggingar.
Og hér er einn lítill póný, hann er ekki hár í loftinu þessi.
Þessi er dálítið yfirlýst hjá mé, en þetta er minnismerki um svartadauða sem geisaði hér eins og annarstaðar.
Falleg götumynd, svona er Vín í hnotskurn.
Hver sagði að hesturinn hennar Línu Langsokks væri uppdiktuð ævintýrapersóna ?
Hér eru svo alvöru hestar. Það er mikið af svona á götunum hér.
Íslenska sendiráðið svolítið blurrý hjá mér.
Hér er svo búð sem farandi er inn í, gömul frá árinu 1828, matvörubúð, þar sem fæst nánast allt frá öllum heimshornum, nema skata og hákarl.
Ekkert smáflott, þetta er brot af vínbirgðunum.
Þessi er vörumerkið fyrir kaffið. Sá sem stofnaði þessa verslun hét Júlíus Meinl. Sjá hér
http://www.meinlamgraben.at/meinl.aspx Eitthvað til að skoða.
Smábrot af ostadeildinni.
Og fiskurinn, þessi skötuselur brosir breitt, en við hlið hans var stærðar þorskur.
Þetta er svo Demel, lang elsta kaffihúsið í Austurríki og þó víðar væri leitað.
Og þetta er ein útstillingin í glugganum þar, og ég veit að þið trúið því ekki en þetta er kaka, húðuð með marsípani.
Hér er svo konungshöllin. Reyndar keisarahöllin, eða keisaraynjuhöllin.
Og fyrir framan hana eru rómverskar rústir.
Þetta hús er síðan mjög frægt, því að er fyrsta húsið sem byggt er án augnabrúna, (skrauts) það þótti alveg hræðilega ljótt svona án skreytinga, hvað ætli þeir myndu segja í dag yfir blokkunum sem eru að rísa allstaðar svo forljótar.
Jamm og þá er það skrautið á höllinni, það sem snýr að hallartorginu.
Og hér bíða hestar og ökumenn í röðum eftir að aka túrhestum um borgina.
Og það er byrjað að rökkva í Vín.
Og himnagalleríið opið.
Hér göngum við fram hjá nýlistasafninu, og sjáum karlana hvítu. Listamaðurinn er kínverskur.
Hér er kynning á honum.
Þjóðleikhúsið.
Og þreyttar dömur á leiðinni heim.
Við komum samt við á kínveskum veitingastað sem er í tanknum rétt við innganginn. Við höfum borðað hér nokkrum sinnum áður, og þær framreiðslustúlkurnar eru farnar að þekkja okkur.
Og svo er pantað, ég fékk mér pekingönd, nammi namm, það er mjög góður matur hér, og það kostaði bara 60 evrur fyrir okkur fimm, með forrétti, bjór og tipsi.
Hér er reyndar aðstoðað við að komast inn, og svo tóku þær Ásthildi fram í eldhús, svo við gætum borðað í friði. Sannarlega flott þjónusta.
Það var misjafnt sem við vildum gera þegar heim kom, Trölli vildi bara skoða naggrísina.
Hann elskar þá nefnilega eins og sjá má.
Aðrir fóru í bað og svona.
En allir höfðu það notalegt eftir velheppnaðan dag, fyrst hjólatúr út í náttúruna, og svo bæjarferð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
5.2.2008 | 12:07
Skógarferð.
Já við fórum í skógarferð í dag. Það tekur bara fimm mínútur að hjóla út úr borginni og inn í skóginn.
Nóg af hjólum, hjólageymsla tanksins greinilega.
Við erum klárar í slagin og lagðar af stað.
Göngu- og hjólabrú yfir kanalinn, járnbrautarsporin og nokkrar umferðaræðar.
Hátt uppi.
Og komnar út í skóg. Þetta er steinsnar frá öllu argaþrasinu og umferðinni, og bara kominn inn í kyrrð og ró.
Svo var aðeins stoppað, til að fá sér banana og svoleiðis, það fór vel um þær stuttu í þessari hjólakerru. Sést hvaðan hún er upprunnin.
Sú gamla lét sig ekki muna um að hjóla heldur.
Hnökrarnir eru mistilteinar, þessir sem maður kyssir undir á jólunum. Mistilteinninn er sníkjuplanta, sem lifir á öðrum trjám.
Hér er svo allslags leiktæki og hvíldarstaðir. En skógurinn er risastór, og í honum á bambi heima, þau eru hér villt dádýrin.
Það er margt skemmtilegt gert fyrir börnin.
Hér eru Rómína og Trölli. Rómína býr hjá ömmu sinni í Rússlandi, þar er ekki heitt vatn í húsinu, heldur ekki kalt vatn, þær þvo sér úr ánni sem rennur rétt hjá húsinu, en þær eiga heima í litlu þorpi.
Fallegir fuglar á vatninu, þetta vatn frýs á veturna og er þá notað sem skautasvell.
FLottur.
Og eins og sjá má, þá eru tré og runnar farin að bruma, Jasmín sá ég reyndar í fullum blóma í gær.
Gaman að leika sér við vatnið.
Í þessari fótboltahöll fer heimsmeistaramótið fram í júlí í sumar, risastór og ljósgræn. Það hefur verið styr um þetta, því það þurfti að fjarlæga einhver gömul tré af öryggisástæðum, svo hægt væri að tryggja öryggi þátttakenda.
Og það er verið að gera fínt fyrir mótið.
Hér er tilbúin snjóbrekka, það er settur í hana tilbúinn snjór, en nú er allt að bráðna og fara, því það er svo hlýtt.
Og allstaðar eru skemmtitæki fyrir börnin.
Og svo þurfti maður náttúrulega að skoða trén, þarna er mikið um eik, birki og hrossakastaníu. Og svo ávaxtatré, plómur, epli og slík. Austurríki er mjög gjöfult land fyrir landbúnað. Hér er mikill raki, sérstaklega upp í fjöllum að allt grær vel og mikið. Einn frændi minn á hér skammt frá ávaxtabúgarð, sem hann rekur ásamt eiginkonu sinni austurrískri, ég er að tala um Leó frænda og Ericu. Þau eru bæði listamenn, en hafa ávaxtagarðinn sem aukabúgrein. Ég er ákveðin í að heimsækja þau þegar ég kem við aðrar aðstæður en nú er. Þau búa í Gras.
En nú var haldið heim, enda litlu stúlkurnar orðnar svangar og þreyttar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
4.2.2008 | 15:31
Maskadagurinn í dag.
Ísfirðingar eins gott að muna eftir namminu í kvöld, þegar litlir gestir berja að dyrum og syngja eða bara sníkja nammi.
bb.is | 04.02.2008 | 10:22Maskað í dag
Upp er runninn bolludagur og samkvæmt rótgróinni ísfirskri hefð ganga börn í hús íklædd grímubúningum og sníkja nammi. Þrátt fyrir að aðrir Íslendingar hafi kosið að nota öskudaginn til þessara hluta halda Ísfirðingar sínu striki á bolludaginn. Sá siður að flengja sína nánustu með bolluvendi í því skyni að fá að launum gómsætar bollur hefur einnig löngum verið viðhafður á Vestfjörðum og ekki er líklegt að hann leggist af meðan bollur reynast jafn gómsætar og raun ber vitni en í dag nær bollusala Gamla bakarísins og Bakarans á Ísafirði hámarki. Öllum þeim sem aðfluttir eru og ekki orðnir aðlagaðir siðum og venjum Ísfirðinga er bent á að birgja sig upp af sætindum og undirbúa sig fyrir stórkostlega búningasýningu ísfirskra barna í kvöld.
Þessar verða sennilega ekki að maska í kvöld, því samkvæmt BB er hún fjögurra ára gömul, svo þessar dömur telja sig örugglega of gamlar til að maska.
En ég óska ykkur öllum góðs maskakvölds, og krýlin mín sem eru að maska, afi lumar vonandi á sælgæti fyrir þá sem banka uppá hjá honum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (37)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 5
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023311
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar