Krúttmyndir.

Nokkrar krúttmyndir.

IMG_7785-1

 Það er nú hægt að lesa í baði.

IMG_7968

Það eru ekki bara stjórnmálamenn sem taka þátt í pissukeppni.

IMG_8399

Gaman í balabaði.

IMG_8410

Stubbaknús.

IMG_8438

Að tína tína blóm.

IMG_8440

Hjólbörur eru til margra hluta nytsamlegar.

IMG_8577

Ég ætla ekki að fara að sofa strax.

IMG_8692

Þú mátt hafa þennan enda, ég vil hinn.

IMG_8740

Umm knús.

IMG_8781

Heimurinn brosir við mér.

IMG_8783

Hahaha ég var að gabba.

IMG_8796

Halló.

IMG_8808

Smjúts.

IMG_8814

Knús.


Spaugstofan í gær.

Af því að enginn hefur rætt um spaugstofuna þá ætla ég að kommentera á hana.  Var að horfa á þáttinn núna rétt í þessu. http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4359994 Og ég verð að segja það, að ég hef sjaldan skemmt mér jafnmikið.  Ég hef hneykslast á þeim stundum, en þeir fóru frábærlega með smjaðrið og útlendingadekrið í okkur landanum.  Þetta var alveg frábær þáttur að mínu mati.  Strákar mikið asskoti voruð þið góðir.  Takk fyrir mig. LoL

Sunnudagsmorgun.

Sunnudagsmorgun.  Hljóðlátur enginn börn í húsinu.  Veðrið er eins og vorveður.  Það er líka ágætt að gera nartað í leifar úr troginu. 

Þorrablótið var skemmtilegt.  Við sátum þarna saman fjölskyldan með pabba gamla meðal okkar, hann skemmti sér hið besta, pabbi minn verður níræður í ágúst þessi elska.  Þá verða vonandi sem flestir niðjar þeirra hans og mömmu hér til að eiga með honum góða stund.

Ég hitti líka bloggvinkonu mína og félaga Laufey Waage. 

Ég hitti líka daglega fólk sem segir að það lesi bloggið mitt, og þakkar fyrir myndirnar.  Ég  er ákaflega hrærð þegar fólk kemur svona til mín.  Það er gleðilegt að geta gefið eitthvað sem fólki finnst til um.  Það hvetur mann líka til að halda áfram.

IMG_9163

Afi með litla Ísac Loga, að leggja honum lífsreglurnar.  Heart


Að blóta Þorra.

Jæja þá er sundið búið, ósköp notalegt, og nú er tími til að fara að taka sig til fyrir þorrablótið.

IMG_2678

Eins og sjá má er veðrið upp á það besta.

IMG_2679

Kúlan enn á sínum stað.

IMG_2680

Kirkjubólshlíðin líka.

IMG_2683

Umm svo bara notalegheit.

IMG_2685

Sólin og afinn.  Hún er farin í pössun til Tinnu frænku.

IMG_2688

Þetta má segja að séu dálitlar andstæður ekki satt Smile


Hið daglega veður.

Hér er gott veður, dálítil mugga, en hlýtt sennilega um 5° Einhvernveginn svo kyrrlátt og gott.  Ég er að hugsa um að fara í sund á Suðureyri með krakkana, og svo að undirbúa mig undir Þorrablótið.  Jamm Sléttuhreppsmótið, það verður sko borðaðir súrsaðir hrútspungar, harðfiskur, hangiket, hákarl og allt sem við á að eta í einu trogi.  Nammi namm.  Eigið góðan dag elskurnar. LoL

 

IMG_2676


Krúttfærsla.

Það er að komast fjör aftur á í kúlunni minni.  Í dag komu þau nokkur í heimsókn.  Alejandra mín kom til að gera ritgerð um Snorra Sturluson og fékk að vinna hana í tölvunni hennar ömmu sinnar. Alejandra

Svo komu Óðinn Freyr og Sigurjón Dagur í heimsókn með mömmum sínum.

IMG_2663

Og þau fengu öll sleikjó hjá ömmu sinni. ömmur mega svoleiðis nefnilega Tounge

IMG_2664

Og það er látið fara vel um sig.

IMG_2665

Nú eða prílað.

IMG_2666

Og svo var farið út í snjóinn að leika sér, sem er rosalega spennandi.

IMG_2668

Fyrir litla polla eins og sjá má.

IMG_2671

Svo kom Matta frænka í heimsókn til að snyrta hárið á Hönnu Sól, hún er voða fín núna.

IMG_2673

Það er sko hægt að sjá það.

IMG_2674

Ef hún verður ekki einhverntíman módel, það er alveg sama hvernig myndir eru teknar af henni, hún myndast alltaf rosalega vel.  Knús á þessi litlu kríli mín.


Hvaða stefna verður ofan á í Framsóknarflokknum um sjávarútvegsmál.

Kvótakerfinu þarf að breyta segir Guðni, núna loksins, og gott mál að heyra það.  Varaformaðurinn aftur á móti var spurð um þetta í Silfri Egils núna s.l. sunnudag, Egill spurði:

"Valgerður! ertu sammála Guðna um að afnema kvótakerfið. Valgerður. hann hefur nú ekki sagt það.

            Síðar segir hún; en ég er nú ansi treg til að gera miklar breytingar á þessu kerfi.       Það hefur fært okkur gríðarlega mikið inn í hagkerfið, og er í raun landsbyggðaratvinnuvegur,sjávarútvegurinn. "

Og ég spyr hvar hefur þessi kona alið manninn, ef henni finnst að sjávarútvegurinn sé lyftistöng fyrir landsbyggðina í dag ? Eða er hagkerfið svokallaða bara ríkið og ríku karlarnir í þjóðfélaginu ?

Ég ætla að biðja fólk um að muna þessi orð hennar í næstu kosningum.  Það er sem sagt allt í blóma í sjávarútveginum.  Hún er allavega ekki í sömu veröld og ég, og það fólk sem hefur tjáð sig við mig, svo mikið er víst.

Þetta með hagræðinguna, hún er þannig að hún er til að færa örfáum allann gróða á kostnað hins almenna manns. En það er ekki bara svo einfalt, því skuldir sjávarútvegsins hafa vaxið um marga milljarða, og hækka enn. 

Þessar skuldir eru að sliga sjávarútveginn, ekki ef til vill kvótagreifana sem hafa eignað sér allan fiskinn í sjónum, og vilja ennþá meira.  Nei þær eru að sliga fyrirtækin sem eiga að standa undir veiðum og vinnslu. 

Ég vek athygli á því að þessi kona var til skamms tíma iðnaðarráðherra og hafði á sinni könnu hinar dreyfðu byggðir landsins.  Hún er samt ekki betur inn í málefnum þeirra en þetta. 

Það er skömm að því hvernig illa upplýst fólk kemst til æðstu metorða í okkar litla landi.  Það er beinlínis hættulegt þjóðfélaginu.  Og það er mál að linni.

 


Þetta er svo rosalega krúttað.

Ég las þetta í 24 stundum minnir mig.  Og ég hef verið dálítið hugsandi yfir þessu máli öllu.

"Meirihlutinn féll á fyrstu kosningunni
Óvænt tillaga um varaformann umhverfis- og samgönguráðs var ekki samþykkt í fyrstu í gær. Ásta Þorleifsdóttir féllst svo á að greiða atkvæði með meirihluta. Sjálfstæðismenn töldu ekki með sinn eigin fulltrúa. "Krúttað," segir Ásta.
Reykjavík Segja má að nýr meirihluti sjálfstæðismanna og F-lista í umhverfis- og samgönguráði hafi fallið á sinni fyrstu atkvæðagreiðslu á fundi ráðsins í gær.

Þegar Gísli Marteinn Baldursson, formaður ráðsins, bar upp þá tillögu að Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir yrði varaformaður, stakk Þorleifur Gunnlaugsson úr VG upp á Ástu Þorleifsdóttur af F-lista á móti, enda kom tillaga Gísla minnihlutanum á óvart; gert hafði verið ráð fyrir Ástu í varaformennskuna.

Því þurfti að ganga til kosninga um varaformanninn og kom í ljós að Ásta sjálf hafði einnig reiknað með embættinu. Studdi hún því ekki Þorbjörgu, heldur sat hjá.

Féllu atkvæðin jafnt. Þrjú gegn þremur, en sjö eru í ráðinu. Tillaga formanns var því ekki samþykkt.

Þá munu Gísli og Ásta hafa rætt málin sín á milli og var kosið í annað sinn. Þá lyftist höndin á Ástu afar hægt og alls ekki hátt, að sögn eins fundargests.

"Já, þetta var nú bara krúttað!" segir Ásta. "Í upphafi höfðum við gert samkomulag um að ef F-listi hefði tvo menn í ráði, þá fengi D-listi varaformanninn.

Þau í Sjálfstæðisflokknum höfðu talið hana Helgu Jóhannesdóttur til F-listans af því að eiginmaður hennar, Ómar, er formaður Íslandshreyfingarinnar! En Helga hefur alltaf verið í Sjálfstæðisflokknum. Þannig að þetta var krúttlegur misskilningur og verður leiðréttur á næsta fundi. En það var ljúft að finna að maður hefur svona mikinn stuðning meðal minnihlutans," segir Ásta og skellir upp úr.

Ekki náðist í Gísla Martein Baldursson borgarfulltrúa vegna málsins."

o00o

Já einmitt það.  Ástu finnst þetta svo krúttað og fyndið.  En ég verð að segja að þó ég sé að mörgu leyti ánægð með að Ólafi F. Magnússyni skuli hafa tekist að koma á framfæri mörgum kosningaloforðum F-listans með þessu nýja meirihlutasamstarfi, þó ég ætli ekki að réttlæta hvernig þau mál voru framkvæmd, þá finnst mér alveg nóg um,  ekki bara að öll fjögur efstu sætin á F-listanum erum í höndum Íslandshreyfingarinnar, og reyndar flestir á listanum eða tveir þriðju.  Heldur að þau skuli öll dansa hvert í sína áttina.  Ólafur og Ásta halda sig að vísu við málefnin sem lofað var í kosningunum, en á sama tíma þá eru það mest fólk úr Íslandshreyfingunni sem sest í ráð og nefndir innan borgarinnar.  Jakob Frímann hefur til dæmis aldrei starfað eða verið nálægt Frjálslynda flokknum.   

Þetta er svo krúttað segir Ásta, sjálfstæðismennirnir héldu að Helga Jóhannesdóttir væri á vegum Frjálslynda flokksins, af því að maðurinn hennar Ómar er formaður Íslandshreyfingarinnar.

 Er enginn sem sér neitt athugavert við þennan vinkil ? Hverslags fólk er það eiginlega sem hefur valist til forystu í þessari hreyfingu ? Þeim finnst ekkert að því að yfirtaka heilan borgarstjórnarflokk, hvað fengu þau mörg atkvæði í síðustu kosningum 2% Og þeim finnst þetta bara krúttað.

Ég segi fyrir mig, að þó ég ætli ekki að gera neina athugasemd við að Þau sitji þarna í borgarstjórn Ólafur og Ásta, meðan þau vinna að stefnumálum Frjálslyndaflokksins, þá finnst mér þetta alveg út úr kú.  Raunar er þetta fyndið ef maður lítur á það þannig.  Og síðan er það Margrét og Guðrún, sem hafa klofnað út úr samvinnu við Ólaf og Ástu, og þær ætla sko ekki að vinna að þeim málum sem þær lofuðu í kosningabaráttunni, þeim finnst ekkert að því að vinna gegn þeim loforðum sem þær gáfu því fólki sem þær sitja í forfsvari fyrir. 

Ef svo Margrét og Guðrún fara í hár saman, er þá Íslandshreyfingin komin niður í sínar frumeindir.  Og hvar er Ómar í öllu þessu, er hann ekki einmitt að ræða um siðferði í stjórnmálum.  Greinilega eru þau ekki á sama meiði formaðurinn og varaformaðurinn, ef hann er Ástu og Ólafsmeginn í dæminu, eins og þessi krúttlega sáttargjörð sýnir. 

Ja hérna hér.  Ég legg til að spaugstofumenn fari um þetta sínum höndum, eða það þarf ef til vill ekki, þetta er einn stór brandari allt saman.  Það versta er að fólk kennir F-listanum um klúðrið, meðan það er algjörlega í höndum forystumanna Íslandshreyfingarinnar, sem hefur í raun hertekið Frjálslyndaflokkinn í borginni.

Ég hef heyrt forystumenn flokksins míns segja að þeir beri ekki ábyrgð á Ólafi Magnússyni og borgarstjórnarflokki F- listans, nema að því leyti að þeir eru ánægðir með að ná fram málefnum sem þeir hafa unnið að, og eru flest á landsvísu.  Það verður fróðlegt að sjá stefnumál Íslandshreyfingarinnar í næstu kosningum.  Ef þau geta ekki komið sér saman um málefnin meðan þau sitja í nafni annars flokks. 

En nú er bara að bíða og sjá hverju fram vindur.  Allt er í óvissu, og óvíst hvernig þetta allt saman endar.  Svo er líka að sjá að Sjálfstæðisflokkurinn sé að klofna líka niður í frumeindir sínar.  Og ég er ekki viss um að Tjarnarkvartettinn haldi vatni eða vindi ef út í það er farið.

Það verður því mikið fróðlegt að fylgjast með framvindunni í borgarmálunum á næstunni.   Þar sem hver heggur annan í herðar niður.  Eitt er víst að ég er voða ánægð með að geta horft á þetta úr fjarlægð og hlutlaust. 

Vonandi verður þetta til að siðferði og heiðarleiki verða tekin til skoðunar hjá kjörnum fulltrúum landsins.  Ástandið eins og það hefur verið hin mörg undanfarin ár eru til skammar. 


Valentín og fegurð í ýmsum myndum.

Valentínusardagurinn hefur fengið aðra merkingu hjá mér.  Ég svo sem hugsaði ekkert um hann sem slíkan, en fyrir ári síðan þá fékk hann alveg nýja merkingu.   Því þann dag fæddist lítil prinessa, hún fæddist á þessum hjartardegi með tvær Ásthildar í kring um sig, svo hún er svo sannarlega algjör engill.

IMG_2649

Til hamingju litla ljósið hennar ömmu sinnar.

IMG_2651

Afi varð auðvitað að prófa kórónuna líka. 

IMG_2654

Og stóri bróðir gerði sitt líka.

IMG_2643

Annars er fjör aftur að færast í kúluna okkar.

IMG_2634

Fallegt veður á leiðinni heim í gær.

IMG_2638

Ísköld fegurð og æðisleg birta.

IMG_2639

Svo tröllin döguðu uppi á Ströndunum, enda eru þar galdrar og vættir miklar. 

En það er gott að vera komin heim. Heart


Frændaknús og örbrot af Danmörku.

Jæja loksins komin heim, er að komast inn í daglega rútínu, margt sem þarf að gera.  Hér er rok og rigning, og frekar dapurlegur dagur fyrir mig.   En það er persónulegt. Heart

Blessað ljós ég bið þig nú

að brjóst oss innra fyllir þú

af heitri gleði og hreinni trú.  Megi allir góðir vættir vaka með mínu fólki og vernda.  Knús tíu sinnum HeartHeartHeart

SL730071

Frændaknús, þessi ungi maður var mikið í fótboltanum, yndislegur systursonur minn.

SL730095

Þessi hér er bróðir hans, jafn yndislegur hann barðist í Írak, en kom sem betur fer heill heim. 

2008 heimferð frá Vín. febr. 076

þriðji bróðirinn það var virkilega gaman að hitta þá alla þrjá hjá henni systur minni og manninum hennar. 

2008 heimferð frá Vín. febr. 079

Hér er hann að æfa sig undir afa hlutverkið, hehehe.... hann átti nefnilega bara stráka  með systu sko , og segist ekki kunna neitt á stelpur, svo það er eins gott að æfa sig þegar tækifæri gefst.  Enda dekraði hann við Hönnu Sólina.

SL730050

Hér er svo litla sys, hún er að læra hebresku og grísku auk fleiri tungumála.  Rosalega dugleg.  Takk Sigga mín og þið öll fyrir frábærar viðtökur og gestrisni.

2008 heimferð frá Vín. febr. 064

Hér erum við svo í fjörunni í Köge, hér er hægt að labba ströndina alla leið til Kaupmannahafnar.

SL730065

Stubban eins og blóm í eggi.

SL730089

Hér erum við systur að keppast um að halda á litla frænda okkar Stefáni Eyjólfssyni hennar Sunnu.

2008 heimferð frá Vín. febr. 097

Hér er svo hin nýbakaða hamingjusama fjölskylda.

2008 heimferð frá Vín. febr. 082

Þeir feðgar tóku nokkur lög á gítara, þeir eru bara mjög færir spilara.

2008 heimferð frá Vín. febr. 122

Skoðuðum líka gamla bæinni í Köge, mjög gömul og falleg hús þar mörg.

2008 heimferð frá Vín. febr. 124

Þetta er örugglega sleði jólasveinsins.  Hann er svo gamall.

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Feb. 2008
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 2
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 2023308

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband