8.2.2011 | 21:53
Hæ!
Ég er lifandi og hef það gott. Það er bara svo mikið að gera í hóglífinu, partý gleði gaman og líka andlegar upplifanir, listalíf þ.e. annara. Allt fest á filmu og mun koma hér inn fljótlega.
Að vísu er ég að undirbúa mig í að fara héðan, sem verður afar erfitt, því ég er orðin háð litlu stelpunum mínum aftur. En ég hef fengið hjálp, sem ég mun ef til vill segja ykkur frá, Veit ekki hvað það heitir á íslensku en heitir eitthvað sem sándar eins og kinologi, þ.e. samtal við innra sjálfið. Búin að fara tvisvar til góðs vinar míns hér í svoleiðis therapy og hef fengið alveg ótrúlegar úrbætur á mínu sálarlífi og svör sem enginn gat sagt mér nema ég sjálf. Ég veit ekki hverstu mikið ég get farið út í það hér, en ætla samt að reyna að gefa ykkur smáhint, því ég tel að þetta sé eitthvað sem við þurfum öll virkilega á að halda.
Þetta er eins og að fara niður í rót mannlegrar visku og gera sér grein fyrir hver maður er í raun og veru, og hvað er hægt að gera til að laga hlutina, hvers vegna hlutirnir eru eins og þeir eru.
Stórkostleg upplifun.
En sem sagt ég mun segja ykkur frá þessu öllu, smátt og smátt, listsýningu Ericu eiginkonu frænda míns Leó Jóhannssonar, stórkostleg listamanneskja, þau eru það reyndar bæði, hún var að opna listasýningu í Vín, þau búa í Graz, seventys partý, þar sem Nína Hagen er í fyrirrúmi listræns ungs fólks í Vín, og keppni um mest spennandi flottasta handarkrikan, rosalega skemmtilegt. Einnig myndir frá sveitinni, mest teknar myndir út um glugga bíls dóttur minnar á um 100 km hraða, en svona er lífið bara.
Hlakka til að hafa tíma til að setja þetta hér inn.
Nú á ég bara einn dag eftir hér og á fimmtudag fer ég til Oslóar til að heimsækja yngsta sonin og fjölskyldu hans, hefði viljað hitta elsta soninn líka, hef ekki alveg misst vonina um að hann geti komið til Oslóar yfir helgi til að hitta mömmu sína. Svo verður haldið heim. Hér er vorið komið, 17°hiti og allt að vakna, heima eru vetrarhörkur sem aldrei fyrr. En svona er lífið. Ísland kallar ég verð alltaf íslendingur, hefðí svo sem getað dvalið hér lengur því það er lítið sem kallar á mig vinnulega séð. En þetta er búið að vera yndislegur tími og svo kemur að því að fara HEIM.
Ætla að setja eitthvað inn á morgun, þangað til eigið góðan dag
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.2.2011 | 23:26
Afmæli og ýmislegt fleira skemmtilegt.
Í dag héldum við upp á afmæli Ásthildar Cesil, þegar hún átti afmælið var mamma hennar í prófum og enginn tími til neins, svo varð hún lasin svo enn var frestað. En í dag var sem sagt haldið upp á afmælið hennar.
Ég morgun fer ég með Báru minni til Gras að hitta Leó frænda minn og Ericu eiginkonu hans, en þau eru bæði listamenn, ljósmyndarar, málarar, grafík og skúlptúrlistamenn.
Leó frændi bjó lengi á Ísafirðí og var það með ljópsmyndastofu, en þegar Erica kom til Ísafjarðar á námskeið í myndlist, ef ég man rétt var þá kennarinn Sigurður Th. Man ekki alveg nafnið hans, en hann er látinn. En þá kviknaði ástin sem enn brennur hjá þessum tveimur.
Eftir Gras fer ég svo til Vínar og gisti hjá vinkonu minni Christinu Gobbi, við ætlum að gera eitthvað skemmtilegt saman, og á sunnudaginn förum við svo í Katakomburnar og síðan er partý hjá Christine, svona sixties sem kallast með hár undir höndum hehehe...
Síðan verður farið á myndlistasýningu Ericu í Vín, svo það verður nóg að gera hjá mér um helgina.
Þetta byrjaði allt mjög sakleysislega. Mamma þeirra keypti handa þeim svona handarmálningu, og þær áttu svona teiknisspjöld hehe....
Og svo vildu þær fá að prófa, mamma og pabbi farin í partý!!!
Aldrei að vanmeta svona uppákomur. En ég var að passa litlu dömurnar mínar. Mamma þeirra og pabbi fóru í útskriftarpartý með skólafélögum Báru.
Svo smám saman æstist leikurin, rétt si svona, ég var ekki alveg sátt við framvinduna, en hvað er hægt að gera?
Annað en að slá þessu upp í kæruleysi?
Því þó það sé ár og dagur síðan ég var svona lítil, þá man ég hvað það gat verið gaman að gleyma sér í allskonar.... þó svona væri ekki til þá.
Lengi vel reyndi ég samt að halda andlitinu, en ég bara gat ekki annað en hlegið...
Þetta var nefnilega ósvikin gleði, sem við ættum stundum að leyfa okkur líka fullorðna fólkið.
En Palli heimalningur var heima, þeir voru reyndar að fara í partý líka drengirnir, Reinhard hinn heimagangurinn og skólafélagi þeirra. Reinhard hvíslaði r eyndar út um annað munnvikið að svona ætti bara að gera á sumrin út í garði
Anyway... þá leit dæmið svona út...
Eða jafnvel svona hehehe...
En svo tók Palli af skarið, lét renna í bað og bar bæði villidýrin þangað og setti í bað.
Og þá var eftir að þrýfa hehehe
Jamm duglegir strákar ekki satt!!!
Einhver þurfti jú að baða stelpurnar og koma þeim í náttföt og í rúmið ekki satt!!!
En strákagreyin voru sem sagt á leið í partý, voru búnir að kaupa þessa flottu körfu og setja allskonar ofan í hana bjór, osta og snakk til að gleðja einn skólafélagan sem átti afmæli, svo ég sagði rétt si sona hvort það væri ekki tilhlýðilegt að setja kort með. Það var auðvitað ekki til neitt kort, svo ég sagði þið getið bara teiknað kort, og lét þá hafa blað. Og já Palli fór að teikna, og hér er fyrirmyndin.
Félagarnir horfuð áhugasamir á...
Og ég hafði gaman af öllu saman.
Já þetta gengur bara vel hjá stráksa.
Hver segir að Helló Kittý geti ekki heillað jafn unga pilta sem litlar stúlkur+
Og karfan tilbúin og strákarnir til í tuskið.
Hér eru svo partýljóninn tilbúinn líka, búin að opna freyðivín og alles.
Svo sæt saman
BINGÓ!!!!
En barnapían var dálítið slöpp og reyndar ætlaði að leggja sig aðeins hjá stelpunum, sem hún hafði plantað upp í ömmuholu með ávaxtaskál og mynd, og sofnaði á undan pæjunum Það gerði samt ekki til , því ég á svo dugleg barnabörn.
En það var sum sé haldið upp á afmæli Ásthildar í dag, og nágrannabörnunum boðið, þessi tvö eru alveg rosalega stillt... heima hjá sér, en bæta það upp þegar þau koma annarsstaðar Get sagt þetta því enginn skilur.
Mín auðvitað búin að klæða sig uppá og svona.
Svo var sest inn í stofu, og hér eru pakkarnir.
´Það var eftirvænting í loftinu hjá krílunum.
Setja upp kórónuna sem við Hanna Sól útbjuggum um daginn.
Svo var sunginn afmælissöngurinn á ensku í þetta skipti og Ásthildur varð svolítið feiminn.
Og þá var farið í að opna pakka, hér er gjöfin frá ömmu í kúlu, syngjandi Barbie, ég sver það, það var ekki mín hugmynd, heldur vissi ég að það var einmitt svona sem hún vildi. Barbie syngur samt klassik en ekki dægurflugur.
Það er alltaf gaman að taka upp pakka.
Hún fékk líka þennan flotta prinsessukjól frá pabba og mömmu.
Aldeilis fín lítil stúlka.
Svo var farið í að skreyta kökuna, jamm það var ákveðið vegna tímaskorts að það væri bara sniðugt að börnin fengju öll að hjálpast að við að skreyta, og þau voru alsæl. Ég bakaði skúffuköku og pönnukökur.
Ég er alveg klár á að þessi blessuð börn með allar fyrirmyndarmömmurnar hafa aldrei fengið að skreyta kökurnar í afmælinu sínu, hvað þá annara krakka kökur, enda leyndi áhuginn sér ekki.
Já og bara svona rosalega flott.
Og það er gott að hjálpast að.
Þetta er allt að koma.
Svo var farið út að hoppa á trampólíninu.
Og hver segir að álfaprinsessur geti ekki flogið.
Jamm flottar systur
Flott og fín.
Litla prinessan mín
Og þá var kakan klár og allir inn að fá sér í gogginn.
Og það var tekið hraustlega til matarins.
Svo var hægt að halda áfram að leika sér. Það voru öll börnin himinlifandi og skemmtu sér mjög vel.
Hver á sinn hátt.
Meira að segja Tölli átti sín móment.
En þessu er lokið í bili, ég fer eins og ég sagði til Vínar á morgun, tek ekki tölvuna með, en örugglega myndavélina. ´Ég hlakka til að sjá katakomburnar og hitta Leó elskulegan frænda minn.
En ég býð ykkur góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
3.2.2011 | 12:27
Má bjóða ykkur í ökutúr?
Sæl hér er ágætis veður sól en frekar kalt. Ég var að lesa skrif eftir ágætann mann á netinu þar sem hann tekur úrskurð hæstaréttar og sýnir fánýti dómsins á mannamáli, svo jafnvel ég skil hvað er um að tefla, og þar kemur svo sannarlega í ljós að þessi úrskurður dómaranna er þeim sjálfum til mikils vansa, sjúsk og óvönduð vinnubrögð. Það hlýtur að þurfa að kæra þennan dóm, til að fá úr því skorið hvort þjóðin ætli að una því að pólitískir varðhundar gamals kerfir geti framið slíkan gjörning. Við hljótum að þurfa að fá úr því skorið hvort hér ríki algjör Mugabeismi og vitfyrra eða hvort hér á að ríkja sæmilegt lýðræði.
http://www.dv.is/blogg/tresmidja/2011/2/2/urskurdur-haestarettar-maladur-melinu-smaerra/
Hvet ykkur til að lesa þennan pistil og segja svo hvort hér sé ekki eitthvað á ferðinni sem þarfnast gaumgæfilegrar skoðunar ef við viljum telja okkur upplýsta lýðræðisþjóð, sem við viljum gjarnan telja okkur trú um að við séum.
Að svo loknu ætla ég að bjóða ykkur í bíltúr, ég fór í hesthúsið í morgunn og hafði myndavélina með. Mér datt svo í hug að taka myndir á leiðinni upp götuna sem við búum víð. Vona að enginn lögga sé að lesa þetta.
Fyrst er það höllin böðuð sól.
Og svo út í sveitinni.
Þar sem enn er allt hvítt af snjó.
Og nú náði ég mynd af lestinni hverrar brautar ég er alltaf að aka yfir.
Leiðist að fara þarna yfir.
Þetta kallast gluggaveður heima.
En nú leggjum við í hann upp alla brekkuna. Vinsamlegast spennið sætisólar og munið að reykingar eru stranglega bannaðar, líka á klósettinu.
Og þá erum við lent, gjörið svo vel að hafa sætisólar spenntar uns ökutækið hefur stöðvast.
Takk fyrir samfylgdina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
2.2.2011 | 16:38
Ýmislegt úr Austurvegi.
Annars höfum við mæðgurnar gott, Bára mín er auðvitað eftir sig eftir átökin við prófin, og þarf að hvílast eins og hægt er. 'Asthildur litla hefur verið lasin í gær og í dag vonandi verður hún frísk á morgun til að fara í leikskólann sinn.
Hér er svo fyrsta embættisverkið sem hún vinnur eftir að hún er orðin doktor.
Og ekki er nú verra að hafa hjálparkokk við saumaskapinn.
Segi ykkur það satt, þetta er alveg týpisk ég, er að tala við Ella minn og rauðvínsglasið ómissandi.
Litli tónlistarmaðurinn.
Mömmukoss.
Auðvitað erum við rosa sætar saman.
Hér eru kostgangararnir okkar, einn bættist í hópinn í gær, en það er bara tímabundið, það er Haraldur hann er ljósmyndari, tónlistarmaður og eiginlega allt múligmann eins og það heitir upp á hreina íslensku. Svo er Reinhard og Poul. Þetta eru allt prýðisdrengir og finnst grjónagrautur góður. H'er eru þeir að skoða ljósmyndabók frá Íslandi.
Hér er svo Poul að tefla við Hönnu Sól. Den hún ætlar að verða glúrin skákmanneskja.
KJúlli upp á Íslensku, meira að segja með frönskum og kocktailsósu. Strákarnir voru ánægðir með kocktailsósuna.
Hér fær maður svo hárgreiðslu, voða notalegt.
Já Sunna mín þetta hefur hún örugglega frá þér.
Þegar maður er heima veikur, þá er maður að dunda sér við eitthvað, hér eru lesgleraugun hennar ömmu.
Það átti að halda upp á afmælið hennar í dag, bjóða nágrannakrökkunum og svoleiðis, en var hætt við vegna þess að hún var lasin. Þær voru samt búnar að finna dress fyrir morgundaginn og við Hanna Sól bjuggum til þessa fínu kórónu, því kórónulaus getur prinsessa ekki verið í veislu.
Ég fór í göngutúr með Trölla í góða veðrinu í dag.
Svona lítur gilið út á veturna, á vorin er þetta allt grænt með blómum líka.
Hér er svo skólabíllinn, krakkarnir voru að koma heim úr skólanum.
Hér má sjá húsin lengst niður í dalnum, og ávaxtatrén í forgrunni.
Hér má sjá þau standa í beinum og fallegum röðum sennilega eplatré.
Ef maður stækkar sjónarhornið má sjá byggðina hinu meginn.
H'er eru allstaðar snarbrattar brekkur bæði upp og niður.
Alveg í stíl tréð og húsið, sennilega ávaxtatré sem er klipp svona til að auðveldara sér að týna ávextina.
Sum húsin eru virkilega falleg og nostrað við skreytingar á þeim.
Önnur gnæfa yfir eins og risar.
Grunnurinn er líka gerður á ýmsan máta, eins og þessi hér, eins og grjótvarnirnar á Óshlíðinni.
Neðra húsið er svona týpiskt fyrir fjölskyldurnar hér, þegar börnin fara að búa, þá er einfaldlega byggð hæð ofan á húsið. Og pabbi og mamma búa áfram í húsinu, sem er þá orðin kjallari.
Já svona er þetta hér.
´
Veit ekki alveg hvað íslenskir iðnaðarmenn myndu segja um svona frágang. Ég veit bara að minn maður myndi aldrei láta sjá svona eftir sig.
Það´sést ekki nógu vel á myndum hve brattinn er í raun og veru mikill.
Vonandi fer eitthvað af þessum snjó á helginni þegar hitin fer yfir 17 °
Sumar innkeyrslunar eru hrikalega brattar.
Ekki vanamál að útbúa svalir fyrir frúna.....
Ég þyrfti samt ofan í hálfa rauðvín til að njóta þess að sóla mig á svona svölum.
Ekki svalir fyrir mig.
Sum húsin gnæfa við himinn.
Loksins sést Trölli.
Hér sést þetta flotta hús betur.
Byggðin hinu megin.
Hér er Trölli með mömmu sinni og systur.
Hér er verið að kenna honum að gelta og þegja.
Koma svo Trölli.
Og leika sér......
Duglegur strákur.
Og með þessum fjörugu myndur af Heimilishundinum og flottasta hundinum Trölla kveð ég í bráð. Eigið gott kvöld.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
1.2.2011 | 22:46
Smáhugleiðing ekki í kristilegum anda, því viðkomandi er ásatrúar.
Var að panta mér flugfar heim, þann 14 febrúar, fékk farið fyrir tæpar 18 þúsund krónur með SAS, þetta er svipað verð og ég myndi greiða fyrir fullt gjald Ísafjörður Reykjavík. Af hverju þarf allt að vera svona dýrt?
En það er margt sem leitar á hugann, ég var að hugsa í dag hvernig fólki liði, þá er ég að tala um fólk sem hefur átt eitthvað undir sér og otað sínum tota, og komið sjálfu sér til góða með aðstöðu sem það hefur haft til að hygla sér og sínum, þegar flett er ofan af framferði þeirra. Ætli það sé ekki dálítið erfitt að horfa í spegilinn á morgnana vitandi að það sem stendur í blöðunum, öllum til aflestrar sé það sem leynt átti að fara og ekki átti að tala um?
Það eru sífellt fleiri tilfelli að koma upp, og þar hefur DV verið iðnast við að koma upplýsingum á framfæri um svona tilvik, hafi þeir þökk fyrir það, þó stundum hafi þeir barkað upp við röng tré.
Við fólkið í landinu sem erum bara venjulegt fólk skiljum ekki af hverju þetta getur gerst, eins og sparisjóðsstjórar geti bara upp á sitt einsdæmi afskrifað fleiri milljóna skuldi sona sinna eins og ekkert sé, eða slíkir geti bara sest niður við tölvuna og samið starfslokasamning sjálfum sér til handa upp á milljónir og komist upp með það. Þessi sparisjóður ætlaði sér að bjóða mig upp, og vildi fá 25 milljónir fyrir ónýtt hús. Það var ekki hægt að koma neinni vitrænni skynsemi þar að og þó væri fenginn óhlutdrægur tæknimaður til að meta húsið, sem kostaði okkur nokkra tugi þúsunda, sem við þurftum að greiða helming á móti bankanum, létu þeir sér ekki segjast heldur buðu upp húsið, þeim var slegið það á átta milljónir, sem þeir reiknuðu sér að væri skuld okkar við íbúðarlánasjóð og svo áhvílandi veð sonar okkar. Sem reyndar var í skilum með allt sitt. Komust svo að þeirri niðurstöðu sem við höfðum reynt að segja þeim að húsið var ekki þess virði sem þeir töldu og gengu þar af leiðandi frá tilboðinu.
Svo eftir allt þetta les maður að bankastjórinn hafði óvart hyglað syni sínum með að afskrifa ekki bara einhverjar átta milljónir, heldur fimmhundruð eða meira. Mér býður við svona fólki.
Eins er með Húsasmiðjuna, þetta fyrirtæki sem nú er í ríkiseign, það var 700 hundruð þús. króna skuld sem hvíldi á mér vegna fyrirtækis sem sonur minn átti. Í dag eru þetta orðnar 5 milljónir, og Húsasmiðjan bauð upp húsið mitt, en enginn frá þeim mætti á uppboðið, og þegar sparisjóðurinn hafði farið sína feigðarbraut með sitt uppboð, kom Húsasmiðjan, sem ég veit ekki betur en sé ríkiseign og höfðaði aftur uppboðsmál. Svona er okkur haldið í spennitreyju sem við ætlum okkur ekki að láta hanka okkur á. Ef fram fer sem horfir þá förum við frekar út og leyfum þessu húsi okkar að fara til andskotans, því það er nokkuð víst að miðað við ástandið á því og úttektina er það tæknilega ónýtt, og ef enginn býr í því um skeið, þarf ekki að spyrja að endalokunum.
Og meðan á þessu stendur er Húsasmiðjan og Blómaval að gera allt sitt til að drepa niður garðplöntusöluna sem ég hef verið með í um 30ár
Er þetta ekki ríkiseign eða hvað. Og mér er spurn hvað eru stjórnvöld að hugsa að gefa veiðileyfi á fyrirtæki á landabyggðinni til að koma ríkisreknum fyrirtækjum þar inn. Væri nú ekki heillavænlegra að leyfa þeim fáu fyrirtækjum sem eru rekinn af heimamönnum að njóta vafans. Ókey það má alveg tala um samkeppni, en það er bara ekki þannig. Því með aðstoð ríkisins fyrir þessi risafyrirtæki er nákvæmlega enginn réttlát samkeppni. Húsasmiðjan og Blómaval geta alltaf undirboðið alla sem eru að reyna að halda sínum litlu heimareknu fyrirtækjum á floti.
En ég byrjaði á að ræða um þessa forkólfa sem hafa milljónir til að eyða og leika sér með, og sífellt dregur nær að þjóðin verði upplýst um sporslur þeirra og forgang, í því sambandi langar mig að nefna öldusundlaug í kjallara eins slíks. Hvernig líður þessu fólki, þegar öll þeirra forréttindi eru borin upp á torg, og þau hljóta að finna fyrirlitninguna og andstyggðina sem fólk hefur á þeim. Með réttu því gróði þeirra hefur áunnist með því að vinna öðrum tjón. Hvernig líður þessu fólki að lesa fréttir um langar biðraðir fólks eftir mat, þegar það gæti auðveldlega satt allt fólkið um langa tíð.
Þetta er alveg ömurlegt og ömurlegast af öllu er að ríkisstjórnin, sem lofaði öllu fögru og var kosin út á skjaldborg og ekkert Icesave ekki alþjóðlega gjaldeyrissjóðinn og ekki ESB að hluta til skuli sitja áfram og þverskallast við að segja af sér og biðja forsetann um að koma á utanþingsstjórn. Þjóðin er búin að segja sitt álit, hún vill ekki fjórflokkinn. Þjóðin að því er virðist er búin að fá alveg nóg af núverandi alþingi eins og það leggur sig, og vill nýtt og betra Ísland.
Ef þið ágætu stjórnmálamenn sem nú sitjið á þingi hafið snefil af sómakennd þá vinsamlegast farið frá og gefið borðið laust fyrir nýtt fólk, nýjar hugmyndir og nýtt Ísland.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 33
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 28
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar