Litill prakkari.

Sú litla er afskaplega uppfindingarsöm.  Amma hefur ekki roð við henni.  Í gær hafði hún fundið (Guð veit hvar) spúnabox frá Úlfi.  Ég gat tekið það af henni með lægni, svo varð ég vör við að hún fór inn í svefnherbergið og lokaði vendilega á eftir sér.  Hvað er nú hugsaði ég, en hélt áfram að horfa á kriminalinn í danska sjónvarpinu.  Eftir smástund kom hún fram aftur dálítið furðuleg á svipinn, svo ég spurði hvað varstu að gera?

Ekki neitt, sagði hún,

Ég fór inn og sá að hún hafði þá fundið annað spúnabox og hafði sett krókana í lakið sitt.Whistling

Hanna Sól, sagði ég.

Fyrrrirgefðu, fyrrrrirgefðu !!

Svo amma gat náð krókunum úr, og hún sættist að leggjast í holuna og horfa á eina mynd undir svefninn.  Hjúkket.  Svona krókar eru stórhættulegir í höndunum á svona litlum grísum. 

IMG_2875

Beðið eftir að fá kjúllann á diskinn sinn. 

IMG_2877

Það  er mugga í dag, og sést ekki í fjöllinn.  En prýðisveður samt sem áður. 

Ég er glöð að sjá að Jenný vinkona er komin heim aftur.  Hún er hetja sem fleiri ættu að taka sér til fyrir myndar. 

Ég vona svo að allir góðir vættir vaki yfir ykkur öllum í dag.  Og munið að brosa; ekki geyma bros dagsins þangað til á morgunn.  Ef þið eruð kærleiksrík til annara fáið þið það þúsundfalt til baka.


Fleiri gamlar myndir.

Frá henni Svönnu vinkonu.

Mynd SH48[1]

Í blómagarðinum.

Mynd SH49 (3)[1]

Utan við sjúkrahúsið.

scan0016[1]

Að steypa kerti.

scan0017[1]

Þessar ættu einhverjir að kannast við.

scan0022[1]

Hér er Svanna okkar með tveimur kavalerum.

scan0055[1]

Þessi er úr Súðavík.

scan0056[1]

Jæja hér eru nokkrir ungir menn til að kanna.

Ef einhver kannast við þetta fólk, þá er bara hið besta mál að láta vita.  Ég veit að Svanna þekkir flesta af sjúkrhúsinu, því hún var að vinna þar.


Ég las það í Bændablaðinu. Og hið daglega veður.

Ég hef stundum skrifað hér um málefni bænda og þá um frelsi þeirra til að selja vörur sínar beint frá búi, eða Frá Haga til Maga.  Þess vegna þykir mér svo sannarlega gleðilegt að lesa að nú hafa þeir stofnað Samtök heimavinnsluaðila.  Þetta nýja félag er að fara í átak í að kynna bændum samtökin og bjóða þeim að gerast stofnfélagar.   Þetta er sannarlega jákvæð þróun, og gleðileg og löngu tímabær.  Ekki trúi ég öðru en langflestir bændur taki þessu fagnandi.  Og við getum svo farið að versla beint við bændur og búalið.  Ég vil óska bændastéttinni til hamingju með þetta framtak, sem ég tel vera stórt framfaraskref og til heilla fyrir landbúnaðin, sérstaklega í hinum dreyfðari byggðum landsins.

En hér er greininn.  Tek fram að ef hér eru stafsetningavillur þá á ég þær, en ég ber ekki ábyrgð á framsetningunni. Grin

 

Stofna samtök heimavinnsluaðila. 

Þann 18. júní 2007 urðu Bændasamtök Íslands og Félag ferðaþjónustubænda sammála um að skipa stýrihóp þriggja bænda til að hafa forystu um að hvetja til aukinnar heimavinnslu og sölu matvæla til sveita.  Þau Marteinn Njálsson, Suður- Bár við Grundarfjörð, Ólöf Hallgrímsdóttir, Vogafjósi við Mývatn og Þorgrímur Guðbjartsson Erpustöðum í Dalabyggð voru valin til verksins.

Nú hefur stýrihópurinn sem skipaður var, starfað í rúmlega hálft ár og hafa þau kannað stöðu heimavinnslu með hliðsjón af samvinnu við hina ýmsu aðila.

 

“Það er deginum ljósara að alger eindrægni hefur ríkt hjá þeim aðilum sem leitað hefur verið til en þeir eru tilbúnir að aðstoða eftir föngum með uppbyggingu á verkefnum tengdum “Beint frá býli” meðal annars með aðkomu að skipulagningu námskeiða, aðstoð við frumkvöðlastuðning, vöruþróun og aðstoð við að koma á tengslum milli aðila”, segir Marteinn Njálsson einn úr stýrihópnum.

 Mikilvægt að halda tengslum.

Stýrihópurinn hélt vinnufund á Hvanneyri í byrjun ferbrúar og nú er boðað til stofnfundar þann 29. febrúar næstkomandi á Möðrudal á fjöllum þar sem tillögur að stofnsamþykktum félagsins verða kynntar.

“Fyrstu viðfangsefni hins nýstofnaða félagsskapar verður að halda kynningarfundi um hið nýstofnaða félag, víðsvegar um land þar sem bændum gefst kostur á að gerast stofnfélagar.  Einnig er markmiðið að ná samningum við Bændasamtök Íslands um fóstrun á félaginu í gegnum átaksverkefni til þriggja ára”, útskýrir Marteinn og segir jafnframt;

“Mikilvægt er í framhaldi af þeirri vinnu sem stýrihópurinn hefur unnið að viðhalda tengslum við þá aðila sem hópurinn hefur verið í samskiptum við og bæta frekar í hópinn.  Við höfum ekki náð að hitta ráðherra byggðamála og landbúnaðarmála til að greina þeim frá verkefninu og óska eftir stuðningi frá þeim, en það er eitt af þeim verkefnum sem stjórn hins nýja félags þarf að taka sér fyrir hendur”.

 

Hér kemur svo hið daglega veður.  Það var mugga í gær, svo sást varla út úr augum, þó veðrið væri í rauninni hið besta.  Tengdasonurinn beið lungan úr deginum eftir flugi, og hún þ.e. flugvélin steypti sér niður í sortanum seinnipart dagsins, okkur til mikillar furðu.  En það hefur verið kjarkaður og áræðin flugmaður þar við stýrið, en auðvitað voru allir ánægðir að komast á leiðarenda, sér í lagi fólkið sem hafði sveimar klukkutíma í djúpinu eftir að komast niður eða hverfa suður aftur.

IMG_2871

IMG_2872

 


Gamlar myndir frá Ísafirði.

Hér eru nokkrar gamlar myndir frá henni Svönnu vinkonu minni.  Gaman væri ef einhver þekkir fólkið á myndunum.  Ég veit að Svanna þekkir flesta. 

is29[1]

nr. 1

 

is31[1]

nr.2

Mynd SH27[1]

nr.3

Mynd SH28[1]

nr.4

Mynd SH29[1]

nr.5

Mynd SH31[1]

nr.6

Mynd Sh32[1]

nr.7

Mynd SH33[1]

nr.8

mynd SH34[1]

nr.9

 

nr. 10Mynd SH38[1]

 

 

nr. 11.

Mynd SH41[1] 

Ég skora á Dísu og Svönnu að setja hvað af þessu fólki þær þekkja, og svo aðra sem skoða og þekkja, að segja til hverjir eru þarna á ferð.  Hún sendi mér fleiri myndir, sem ég kem með síðar.

Nú er gott að fá svör. 


Hver er eiginlega stuðningsyfirlýsingin ? Við hverju er verið að lýsa stuðningi ?

Þar sem ég er rosalega sjaldan sammála henni Sóley Tómasdóttur, þá verð ég hreint og beint að setja þetta hér inn.  Af því líka að hún hefur lokað sínu kommentakerfi, af ástæðum sem margir muna tel ég.

 

En ég hef nefnilega verið að spá í þetta líka svona með hálfum huga.  Hvernig fólk ætlar að starfa saman af heilindum, og vera á sama tíma í hörkukosningaslag um borgarstjórastólinn. 

Fer þetta ekki bara út í einhvern koddaslag og vitleysu. 

Mér virðist lika svona ef rýnt er í stuðningsyfirlýsinguna, að það sé ekki verið að styðja Vilhjálm sjálfan heldur þá ákvörðun hans að sitja áfram, án þess að gera kröfu um stólinn strax.  Þau styðja aðallega að öllu sé haldið opnu.  Og það þegar það er morgunljóst að reykvíkingar hafa látið vel í ljós að þeir vilja skýr svör.  Hér er ekki verið að hugsa um hag borgarinnar, heldur er hver að hugsa um sjálfan sig, og hvað kemur honum best.

Ég segi eins og Sóley og fleiri er það trúverðugt ?

Nei hlýtur svarið að verða.  Einhversstaðar er sagt; yfir litlu varstu trúr, yfir mikið mun ég setja þig.  En hér er þetta svona, ég ætla að vera trúr sjálfum mér, svo ég hafi möguleika á því að verða Aðal.

Ólafur F. verður ekki öfundsverður af því að leiða þennan sundurleita hóp áfram og láta málefnin tala.  Og svo er spurningin, hvað verður svo um málefnin, þegar hann lætur af störfum sem borgarstjóri ?  Þegar nýr borgarstjóri hvort sem hann heitir Hanna Birna eða Gísli Mareinn, nú eða Júlíus Vífill vill fjarlægja flugvöllinn, og fækka leikskólum og minnka aðstoð við hina fátækari og smærri, það er jú stefna sjálfstæðisflokksins í reynd, hvað svo sem þeir lofa í kosningum. 

Það sem fer mest í mig í sambandi við þetta allt er að forystumennirnir sem eru þarna í forsvari fyrir Frjálslynda flokkinn, en eru í raun félagar í Íslandshreyfingunni, skuli hafa sett í nefndir og ráð fólk úr þeirri hreyfingu.  Sem var ekki í framboði, og hefur ekkert með  Frjálslynda flokkinn að gera, hefur aldrei starfað þar.  Það er svo sem hægt að vera rólegur meðan þeir halda sér við þau kosningaloforð sem gefinn voru í kosningunum.  En hvað svo, þegar Sjáfstæðismenn taka aftur við stjórnartaumunum ?  Hefur Ólafur þá þann styrk að geta staðið gegn þeim í þeim málum sem hann vill halda til haga ?

Eða verður enn ein uppákoman eftir ár eða svo ? Spyr sú sem ekki veit.  En mikið er ég fegin að vera áhorfandi svona utanað komandi.  Þó þetta sé höfuðborgin. ..........

meðan flugvöllurinn og öll stjórnsýslan er þar ennþá.  Því ég vil, ef flugvöllurinn, lífæðin verður flutt eitthvað burtu, þá fylgi höfuðborgartitillinn á eftir, og öll stjórnsýslan, þá má hann vera á Egilstöðum mín vegna, eða Keflavík, því þá hef ég ekkert erindi í Reykjavík, nema til að fara í heimsók til ættingja.  Og í rauninni miklu styttra fyrir mig að komast utan, ef höfuðborgin er í Keflavík.

2008 | 19:55

Trúverðugt?

Borgarstjórnarflokkurinn lýsir yfir óskoruðum stuðningi við oddvita sinn, Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, og meðfylgjandi yfirlýsingu hans.

Borgarstjórnarflokkurinn tekur undir það með Vilhjálmi, að ekki sé ástæða til að ákveða nú hver verði borgarstjóri eftir rúmt ár. Sú ákvörðun verður tekin af borgarstjórnarflokknum í sameiningu þegar nær dregur og með hagsmuni flokksins og borgarbúa að leiðarljósi.

Undir þetta skrifa 13 einstaklingar, borgar- og varaborgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks.

Frá blaðamannafundinum ógurlega í Valhöll fyrir tæpur tveimur vikum síðan hefur aðeins eitt breyst. Stuðningsyfirlýsing hefur verið kreist út úr sexmenningunum.

Óþarft er að velta sér frekar upp úr stöðu eða trúverðugleika Vilhjálms Þórmundar. Það eru hinir borgarfulltrúarnir sem er rétt að hafa raunverulegar áhyggjur af. Sexmenningarnir hafa gert ótal tilraunir til að segja hvað þeim býr í brjósti og hafa raunveruleg áhrif á framgang mála - en allt kemur fyrir ekki.

Geta borgarbúar treyst þessu fólki til að standa á sínu í málefnum borgarinnar ef þau geta ekki staðið á sínu gagnvart oddvitanum? -Nei. Borgarstjórnarflokkur sem sendir frá sér svo ótrúverðuga stuðningsyfirlýsingu er ekki vel til þess fallinn að stjórna Reykjavík.


Kvöldverðurinn.

Pabbi minn kom í kvöldmat, og tengdasonurinn var svo "heppinn" að það var ekki flogið, svo hann fékk steik, Tinna tengdadóttir og litli Óðinn Freyr komu líka, en hann var lasinn í gær.

IMG_2860

Börnin kominn fyrir framan sjónvarpið, svo næði er fyrir fullorðna fólkið að borða.

IMG_2861

Afi gamli þessi elska nýtur þess að koma í mat til okkar á sunnudögum, rétt eins og afi minn Júlíus kom að borða heim til pabba og mömmu á hverjum sunnudegi í þá góðu gömu daga.  Sumt endurtekur sig.

IMG_2862

Hvað er til í ískápnum pabbi.

IMG_2863

Úbbsí búbbsí myndavél.... SÍS!!!

IMG_2865

Þessi töffari aftur á móti vildi ekki láta taka af sér mynd.

  IMG_2868

Mömmuknús. Heart

Svo ein í lokin svona krúttmynd, var að fá senda mynd af minnsta ömmubarninu okkar.

Nep fk0sjy

Aldrei of snemmt að byrja ................................ eða þannig hehehehe....

Hann verður samt bara flottur, þegar hann vex úr grasi enginn hætta á öðru. LoL Þessi var bara of góð til að láta vera.


Krúttfærsla fyrir mömmu. Afmælisdagur Hönnu Sólar og þorrablót Sæfara í einum pakka.

Afmælisdagurinn er hér í máli en aðallega myndum, og sett inn fyrir mömmuna sem er úti, á kafi í próflestri, tók skínandi gott próf á föstudaginn, og síðan er annað próf á mánudaginn. 

IMG_2754

Morgungjöf frá ömmu, dagurinn byrjar.

IMG_2759

Svo þurfti að baka fyrir gestina.

IMG_2766

Svo þurfti að blása í blöðrur, og pabbi og Alejandra hjálpuðu til.

IMG_2767

Tertan fína úr gamla bakaríinu.

IMG_2768

Maður fékk líka smáhjálp við að taka upp gafirnar, Hanna Sól og Isobel.

IMG_2776

Hæ hef ég ekki séð  þig áður ?

IMG_2777

Þarf að spyrja mömmu.

IMG_2783

Pabbi var liðtækur við að búa til vöfflurnar.

IMG_2787

Ein ömmustelpan kom með verðlaun, hún keppti á skíðum, og vann til verðlauna.  Hún tekur sig vel út hér.

IMG_2793

Kakan var rosalega góð.

IMG_2796

Hér er lítill búálfur.

IMG_2803

Sumir vildu bara vera út í garðskála í gröfuleik, uppáhaldsstaðurinn hjá þessum litla manni.

IMG_2806
Svo var þetta bara allt svo yndælt, gaman þegar fjölskyldan hittist.

IMG_2808

Tekið smá í píanóið og svona.

IMG_2811

Eftir að drykkju lauk var farið út að leika.

IMG_2812

Það er nú ekki verra að fá íþróttakennara til að aðstoða sig við að standa á brettinu.

IMG_2817

Kúlan er frábær, það er hægt að nota hana sem þotubrekku á veturna. 

IMG_2827

Stubburinn farin að aðlagast brettinu.  Hann er farin á námskeið, og finnst það frábært.  Besti dagur lífs míns sagði hann í gær þegar hann kom heim af fyrstu æfingunni.

IMG_2832

Réttu taktarnir komnir strx.

IMG_2835

Já það er gaman að leika sér í snjónum.

IMG_2838

Deginum lauk svo í heita pottinum.

IMG_2842

Sumir eru reyndar rosalega stríðnir hehehe en þetta var samt gaman.

IMG_2848

Við fórum svo hjónin á þorrablót hjá Sæfara, kajakklúbbnum.  Þar var fjör og skemmtilegheit.

IMG_2850

Hér eru nokkrir bestu kajakræðarar landsins er mér óhætt að segja.  Og tekið hraustlega til matar síns.

IMG_2851

Maður er manns gaman, hér þurfti enginn skemmtiatriði, því við skemmtum okkur vel við samræður og myndasýningu frá ferðum þessara kappa m.a. til Grænlands.

IMG_2855

Skemmtilegt kvöld.

IMG_2859

Þessar ömmustelpur gistu svo í nótt.

IMG_2764

Endum svo á hinu daglega veðri. 


Söngvakeppni sjónvarpsins - úrslitin.

Ánægð er ég með úrslitalagið í Evróvision.  Ég var skíthrædd um að við myndum senda annað hvort af þessum skrípalögum,sem mesta athygli vöktu, og ráðgjafarnir hömruðu sem mest á að fá send út.

Ég verð að segja svona eftir á eftir að hafa horft á úrslitakvöldið í tölvunni minni, að svo sannarlega vann besta lagið.

Davíð Olgeirsson, sem ég vildi helst sjá fara út, var of tense í kvöld, það skilaði sér því miður til áhorfenda.  Falsettan var á köflum ósannfærandi vegna óstyrks, því miður.

Spock lagið var falskt, og svo var líka um Hvar ertu nú.  Þessi tvö lög voru gerð út á grínið, og voru þannig séð góð.  En þau báru ekki sönginn uppi. Og þrátt fyrir rosalegan áróður svokallaðra dómara, þá náðu þau ekki nægilega miklu fylgi landsmanna sem betur fer.  Lagið sem kom næst vinningslaginu faglega séð voru þau Magni og Birgitta.  Bæði pottþétt og flott.

En Regína og Friðrik voru flottust.  Ég er ósköp ánægð með að þau fara út.  Ég er nefnilega þannig gerð að mér líkar ekki að reyna að vinna út á fíflagang.  Þá vil ég frekar bara vera í 16ánda sætinu, og una þar glöð og stolt. 

Ég sá hér á blogginu áðan eitt af því ósmekklegasta sem til er, og fullt af fordómum, eitthvað svohljóðandi;

Í stað þess að fá Spock eða Hohoheyhey sent út sendum við hommatitt og konu sem eiga enga samleið saman á sviði sjónrænt séð þó þau geti sungið saman, þetta er ekki illa meint en þau passa ekki saman til áð fá Evrópubúa til að falla fyrir sér 1,2 og 3.

Ég verð að segja að mér fannst Regína og Friðrik koma vel út á sviðinu.  Þau eru sæt saman, og þau eru bæði flottir söngvarar.  Kynhneigð kemur þarna bara nákvæmlega málinu ekkert við. 

Ég verð að segja að fyrir minn smekk, þá eru mínir fordómar meira á þann veg að ég vil ekki sjá gula uppþvottahanska, eða talentlaus vöðvabúnt send út í okkar nafni. 

Ég hef sjaldan verið jafnsátt við okkar framlag.  Og ég spái því að við munum komast langt í ár.

Svo legg ég til að við skiptum út þessum mjög svo vilhöllum dómurum, og fáum fólk sem reynir ekki að hafa áhrif á hvaða lög komast áfram.  Með því að segja, þetta lag verður að fara út og svo framvegis.  Það hefur endalaust farið í taugarnar á mér, hvað þessi þrjú hafa verið hlutdræg, og beinlínis reynt allt til að hafa áhrif á hver vinnur.  Það má því alveg skipta þeim út.  Ef einhverjir stóðu sig arfailla, þá voru það þessi þrjú.  Reyndar var þetta alltof langdregið of margir keppendur, og of mikið umfangs.  Af hverju til dæmis fengu menn annað tækifæri ?

Sum lögin þarna áttu ekkert erindi í loka úrslit.  Og svo voru önnur sem ég hefði viljað sjá fara áfram eins og til dæmis lagið Picture.

En úr því sem komið er, þá einhendum við okkur örugglega í að standa með vinningshöfunum, og standa með okkar fólki.  Við ætlum ekki endilega að vinnida, við viljum koma út úr þessu með reisn.  Helst komast alla leið í aðalkeppnina.  Svona er lífið.   Áfram Ísland.


Regínu Ósk og Friðrik Ómar áfram, nú eða lagiðl In my dreams.

Ég er að fara á þorrablót hjá Sæfara, kajakklúbbnum Ég treysti því að þið ágætu landsmenn forði okkur frá því að senda einhvern fíflagang út í Júróvísjon.  Regína Ósk og Friðrik Ómar eru verðugir fulltrúar okkar, líka lagið In my dreams. 

Vona að þið eigið skemmtilegt júróvisionkvöld.  Wizard


Gamlar myndir.

Er hér með gamlar myndir sem ég hef fengið sendar í pósti.  Það eru margir sem hafa gaman af svona gömlum myndum.  Eg á svo sem nóg af þeim líka, og set öruggleg inn fleiri seinna.  Nú er það vöfflurnar og undirbúningur undir afmæli.

Ella,Dísa og mömmur

Þessi er tekin fyrir svona 61 ári, þarna eru tvær leiksystur mínar síðan í gamla daga, Ein besta vinkona mín Magndís Grímsdóttir hér í forgrunni og Elín Jónsdóttir heitir eldri stúlkan.  Mamma hennar Dísu var líka yndisleg manneskja, ég átti margar góðar stundir í eldhúsinu hjá þessari glaðværu góðu konu, og kleinurnar hennar gleymast aldrei.  Og ég man ennþá hláturinn og bara alla hennar takta.  Það hverfur aldrei.  Ég man einu sinni þegar við vorum allar þrjár að hoppa í hlöðunni hjá Ellu, vorum að keppa um hver stykki hæst, að hún hoppaði svo hátt að flétta sem hún var með kræktist í nagla í loftinu og hún fór af.  Það hlýtur að hafa verið sárt.  Já þær eru margar sögurnar síðan maður var ungur.

amma og aðrar

Hér er aftur á móti mynd sem Lóa frænka mín sendi mér, þar sem hún hefur sett inn ömmu Guðrúnu, og Önnu dóttur hennar, og svo nokkur barnabörn.  Þið megið alveg giska, sem til þekkið, hverjar stelpurnar eru sem eru með þeim á myndinni. 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Feb. 2008
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband