29.2.2008 | 21:49
Smá ylur undir nóttina.
Smáylur svona fyrir nóttina.
Vinkona mín Christina Gobbe tók þessa mynd á Havai, en hún er heit og hlý. Hun er örugglega að kalla ALOAH!!! Skál.... held ég
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
29.2.2008 | 15:44
Það er veður á Ísafirði í dag.
Ég sit hér inni með stubbnum, en er hálfpartinn um og ó. Litla prinsessan á Suðureyri og minn ektamaki í Bolungarvík. Og það snjóar og snjóar.
bb.is | 29.02.2008 | 15:07Ekkert ferðaveður á norðanverðum Vestfjörðum
Ekkert ferðaveður er nú á norðanverðum Vestfjörðum samkvæmt upplýsingum frá vegagerðinni og má búast við snjóflóðahættu á vegum undir fjallshlíðum víða á svæðinu. Á sunnanverðum Vestfjörðum er snjóþekja og skafrenningur á milli Patreksfjarðar og Bíldudals og yfir Kleifaheiði. Þá er hálka á Barðaströnd og yfir Klettsháls.
Þessi mynd er úr BB, reyndar er miklu meiri snjór hér allstaðar. En svona er að búa hér, stundum alveg yndislegt, en svo kemur veður þar sem fjölskyldan væri best bara geymd innan fjögurra veggja.
Í raun og veru er veðrið svona, og mikill skafrenningur. Elli kemur ekki heim fyrr en í kvöld í fyrsta lagi, og þá er óvíst hversu mikill snjór hefur safnast á Óshlíðina. Þar er alltaf hætta á snjóðflóðum þegar svona viðrar. En vonandi komast allir mínir menn heilir heim.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
29.2.2008 | 13:33
RUV í rugli og róli.
Ég er búin að skemmta mér endalaust núna í morgunn. Í tilefni dagsins þá svissuðu þau yfir, þannig að þá sem venjulega er að finna á Rás 1, eru nú á Rás 2, og öfugt. Það er bara svo skemmtilegt að fylgjast með þeim, Óli Palli í Óskalögunum hennar Gerðar G. Bjarklind, og kom henni svo rækilega á óvart með að hringja í hana og bjóða henni óskalag.
Og svo er Svanhildur Jakobs, Ævar Kjartansson og tvö önnur á rás 2 með poppland. Þau eru frábær. Þið ættuð endilega að kíkja við og hlusta. Ég veit ekki hver átti þessa hugmynd en hún er aldeilis frábær.
Ævar sagði að vera þarna væri eins og að setjast upp í nýjan bíl sem maður þekkti ekkert til.
Takk Rúv fyrir þessi skemmtilegheit í tilefni af hlaupári. Þið ættuð ef til vill að gera meira af að stokka svona upp og fríska upp á allt.
Takk fyrir mig Enda eruð þið öll að standa ykkur þvílíkt vel, og greinilegt að þið hafið öll saman gaman af uppátækinu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
29.2.2008 | 10:30
Afa saga.
Ég fékk í hendur spólu þar sem afi minn hafði samtal við útvarpsmann. Þeir voru samsveitungar, og þetta hafði sem sagt verið tekið upp. Ég fékk spólurnar í hendur og skrifaði upp frásagnirnar eins og afi sagði frá.
En hann var frábær sögumaður, og ég hafði heyrt allar þessar sögur mörgum sinnum þegar ég var lítil. Ég svaf inni hjá afa og ömmu þangað til ég var um það bil 13 ára, þegar ég fékk herbergi fyrir mig. Amma mín var mikið úti á fundum og allskonar samkomum. Svo þegar við afi lágum sitt í hvoru rúminu í rökkrinu, þá sagði ég; afi segðu mér frá. Eina sögu af því sem þú lentir í.
Þessi er ein af þeim, sögð með hans eigin orðum, gjörið svo vel.
Sagan um týnda lykilinn.
Þátttakendur eru: Karen Jóhannsdóttir systir Magnúsar. Ragnar Bárðarson brúarsmiður frá Ísafirði. Þegar þessir atburðir gerast búa á Ármúla Rósa Jóhannsdóttir, og Sigurður Hannesson. Karen sem var ógift var systir Rósu. Guðbjörg Jónsdóttir og Kristján Hannesson bróðir Sigurðar. Ragnar hefur sennilega leigt herbergi á Ármúla. Meðan þeir voru í brúarsmíðinni.
SP.Komdu með hana aftur, þessa sögu með hana Kæju, þegar þú varst í brúarvinnunni.
Já þegar ég var í Brúarvinnunni, við Selárbrúna, þá ætlaði ég að fá bílinn hjá honum Ragnari til að fara fram að Laugalandi um kvöldið, þetta er laugardagskvöld. Og þegar ég kem úr vinnunni þá er hann kominn inn að Ármúla, svo ég borða í hasti og hleyp svo fram að Ármúla, þegar ég kem heim á túnið, þá mæti ég Karen, þá kemur hún á móti mér og segir mér að nú séu ljótu vandræðin sem hafi komið fyrir sig, nú sé hún búin að tína lyklinum af herberginu sínu. Ég segi henni það að ég geti ekkert við það átt nema það komi fyrir mig að ég sjái, þá skuli ég reyna að athuga það. Svo höldum við nú á heim og ég fer til Ragnars inn í eldhús.. nei inn í borðstofuna, hann er inn í borðstofunni sem er inn af eldhúsinu, í gamla húsinu á Ármúla. Ég heilsa Ragnari og segi honum það að ég hafi ætlað að ná í hann og biðja hann um bíl fram að Laugalandi, en hann hafi verið kominn heim að Ármúla áður en ég hafi fengið svar. Hvurt hann vilji lána mér hann, hann Gummi ætli að keyra mig frameftir. Já já segir Ragnar það er velkomið. Að þið fáið bílinn. Svo er er eins og við manninn mælt maður, að ég veit ekki meira. Ég rakna við aftur eftir dálítinn tíma, þá er Ragnar að kalla; og segir Hvað er að þér maður ertu veikur Þá náttúrulega hrekk ég við og bið hann fyrirgefningar á þessu. Já þú heyrðir ekki neitt af því sem ég var að segja segir Ragnar Ég var að segja þér að þið þyrftuð að muna eftir að taka benzín á bílinn, þá varstu eins og ég veit ekki hvað, værir sofnaður eða liðið yfir þig, þú ansaðir ekki og starðir og gláptir út í loftið Já það var allt annað, ég var að fylgja fólkinu, sem var þarna með henni Karen sagði ég. Hvar ætli Kaja sé nú skal ég fara og vita hvort ég geti ekki fundið lykilinn. Kaja kemur undir eins og við af stað.
Sp. Ja há ?
Já já já hún er að segja við mig á leiðinni að hérna hafi hún verið að fylgja því niður eftir fólkinu þessu sem kom og það sé nú margbúið að fara þar attur og attur út túnið til þess að leita og niðrettir, þegar við komum dáldið út á flatirnar fyrir utan þá segir hún allt í einu; Hingað fór ég hérna snéri ég við því það gleymdist böggull heima á borði Sem hann átti þessi skipstjóri hvað hann nú heitir
Sp. Leifur.
Já. Nei segi ég þú snérir ekki við hérna, meðan við erum að tala þá höldum við á, svo bara beygi ég mig til hliðar og gríp svona niður í grasið og kem með lykilinn svona bara.
Sp. Upp úr grasinu?
Hún alveg fölnaði upp henni brá svo við.
Sp. Ég skal trúa því.
Þetta er alveg merkilegt skal ég segja þér.
Sp. ja há.
Ég ræð ekkert við þetta sjálfur.

Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.2.2008 | 21:16
Skíðavikan ekki langt undan, og komin tími til að huga að fari vestur.
Já páskar ganga í garð 20 mars, eða þá er skírdagur. Skíðavikan verður örugglega sett á miðvikudaginn 19 í Dymbilviku. Ég sá í BB í dag að Anna Sigríður Ólafsdóttir hefur verið ráðinn skíðavikustjóri, það er vel, því hún er frábær í alla staði. Ég sá um þessa skíðaviku í nokkur ár, og get vottað að það er gríðarlega vinna sem liggur að baki henni. En íbúatalan nánast tvöfaldast. Og nú undanfarin nokkur ár hefur líka verið hátíðin, Aldrei fór ég suður, sem er frábær tónlistarhátíð í umsjón Mugison og Mugipaba, ásamt fjölmörgum sjálfboðaliðum. Það verður svo sannarlega mikið um að vera, ég mun örugglega fjalla um þessa atburði síðar. En ég er viss um að þeir sem ætla að fljúga, verða að fara að huga að því að kaupa sér miða, því þó hér myndist loftbrú dagana fyrir páska, þá komast færri að en vilja.
Hér eru nokkrar myndir frá okkar frábæra skíðasvæði, og eins og sjá má, eru nægur snjór í fjöllum.
Hér innst í Tungudal eru lyftur og skíðabrekkur við allra hæfi, auk fjömargra göngubrauta.
Eins og sjá má eru hér brattar brekkur, en það eru líka minni brekkur fyrir þá sem ekki eru vanir og svo barnabrekkur.
Og svo Ísafjörður í baksýn.
En themað er líka Suðureyri hjá mér, því ég tók myndavélina með þegar ég sótti litlu prinsessuna mína á leikskólann.
Hér er kirkjan þeirra, hún er með steindum gluggum, algjör listaverk, sem afhjúpuð voru fyrir ekki svo mörgum árum síðan.
Hér er svo leikskólinn.
Það er spennandi dót á lóðinni.
Inni var líka notalegt, og allir í dúkkuleik, strákar sem stelpur.
Og Hanna Sól kynnti alla krakkana fyrir ömmu.
Svo kvaddi hún Trausta skáfrænda, sem er jafngamall Ásthildi litlu systur.
Og hún er búin að fá mynd og merki líka.
En það var þetta sem hún vildi ná í usss....
Svo var farið gegnum gönginn til Ísafjarðar.
Og heim í kúlu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
28.2.2008 | 14:21
Hið daglega veður.
Já sólin hefur brotist fram það er logn, hvítur snjór og yndislegt veður hér núna.
Fyrst var loftið lævi blandið og draumkennt
Eins og í ævintýraveröld.
En svo braust sólin fram og skín nú og brosir á allt og alla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
28.2.2008 | 08:31
Enn fleiri gamlar myndir.
Hér eru nokkrar gamlar myndir frá henni Svanfríði Gísladóttur, Svönnu vinkonu minni. Í þetta sinn eru allir nafngreindir. Svanna mín þakka þér fyrir að senda allar þessar myndir, þær eru fleiri reyndar. Það er virkilega gaman að skoða þessar myndir, og líka að þekkja fólkið sem er á þeim.
Knús á þig mín kæra.
Myndin tekin í Hjaltlínuhúsi á Núpi Þröstur Sigtryggsson
spilar og syngur fyrir Svönnu 60ára.

Flottir strákar, þarna er bloggvinur minn Þói Gísla m.a.
Efri röð: Össi Pétur,Þói Gísla,Villi Siggi,Tryggvi Sigtryggs,Nonni
Kitt,Biggi hlaup og Siggi Jó´
Neðri röð:Nonni Bjartar ,Hinni Matta ,Halldór Guðbjarna. Gvendur Jó,og Einar
Oddur.
Guðrún kona Egils í Árnesi og Kristín
Mér finnst þessi svo lítið góð,allar í ullarsokkum og ílopasokkum yfir. (Svanna)
þetta eru systurnar frá Grund :Sigrún Sigurbjörg og Svanfríður.
Grundarhús rís 1929 ,á hinni myndinni eru eru þeir sem grófu
grunninn,
þar á meðal eru Ellert Eiríks pabbi Ómars og Annas pabbi Diddu. (frá Svönnu)
Njótið vel. Þeir sem þekkja fleiri á þessari mynd mega alveg segja okkur hinum frá.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
27.2.2008 | 22:06
Hið daglega veður.
Veðrið í dag var einskonar bómullar veður. Það var eins og Ísafjörður væri vafinn inn í bómul. En fyrst smá knúsimynd.
Afaknús.
Birtan er sérstök og allt einhvernveginn eins og dúnmjúkt.
Og litirnir alveg frábærir.
Flott ekki satt.
Hrein mjöll og hreinar meyjar fegurðin sjálf.
Hvað er fallegra en lognkyrr pollurinn.
Eða þegar kvöldar og sólin situr á fjallatoppum áður en hún legst til hvílu.
Og þá er líka komin tími fyrir börnin til að læra.
Og svo loks fjöllin fjörðurinn og bærinn minn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
27.2.2008 | 17:52
Litli ljósmyndarinn.
Jamm við erum búnar að eyða stund úr degi hér heima ömgurnar, og eins og ég segi þá stenst ég endan veginn snúning við þeirri stuttu. Núna áðan fékk hún myndavélina "lánaða" Og var svooooo stillt og góð. Þegar ég ætlaði svo að taka mynd sjálf, var myndavélina hvergi að sjá, en mín vissi um hana hehehe... þegar ég svo skoðaði kubbinn voru komnar yfir 120 myndir. 'Eg ákvað að gefa ykkur sýnishorn af ljósmyndunarhæfileikum þessarar ungu dömu. Þeir eru óvéfengjanlegir, eitthvað svo listsrænir.
Amman tekin í bakaríið.
Hin ýmsu mótív.
Best að prófa að taka sjálfsmynd.
Jamm þetta gengur bara vel.
Aha ég held að amma geri einhvernveginn svona.
Einbeitningin er meira að segja í tánum.
Já hér er skemmtileg fyrirmynd
Best að skjóta á Brand líka.
Púðarnir hennar ömmu eru spennandi.
Ég er viss um að amma hefur aldrei sýnt húsið frá þessu sjónarhorni.
Trommusettið hans Úlla Búlla Bí.
Keramik listaverk af bestu gerð.
Og það sem tilheyrir hehehehe...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
27.2.2008 | 15:07
Ætla íslendingar að taka Lúkasin á Friðriki Ómari ?
Friðrik Ómar hefur læst bloggi sínu. Las þetta hjá einum bloggvini mínum http://blogger.blog.is/blog/blogger/
Friðrik Ómar skráir sig úr símaskránni
Friðrik Ómar Hjörleifsson verðandi Eurovisionfari hefur tekið númer sitt úr símaskránni. Friðrik var skráður með símanúmer og heimasíðu í skránni (tilvitnun lýkur)Ég fór síðan inn á Google og kannaði málið, og sá að þar var enginn umfjöllun um Friðrik Ómar og Evrovision 2008. Bara eldri færslur Og sá þetta.http://fridrikomar.blog.is/blog/fridrikomar/
Það hefur margt verið rætt um ummæli sem Friðrik Ómar lét falla eftir sigurinn. Ég tek það fram að ég sá það ekki, þar sem sjónvarpsupptakan náði ekki nema fram að hléi, af hverju sem það nú annars var.En ég sá umræðuna í Kastljósinu, þar sagði Friðrik að ummæli framm úr sal hefðu sett sig úr jafnvægi, orð sem ekki voru hafandi eftir, jafnvel um móður hans hefðu gert það að verkum. Hann sagði jafnframt að þessi framíköll hefðu ekki heyrst í sjónvarpinu, og því kæmi þetta illa út fyrir hann. Ég verð að viðurkenna að mér ofbýður stundum hvað íslendingar geta verið illskeyttir haldi þeir sig einhverstaðar geta grýtt menn í kaf, stundum af litlu tilefni. Það er róið- og kynt undir illmælginni þangað til það verður að stórum suðupotti, besta dæmið hingað til er hundsmáli svokallað Lúkasarmál. Vilja menn virkilega gera öðrum svona illt, jafnvel þó viðkomandi hafi ekki gert nokkrum manni neitt ?Eru menn ekki ennþá komnir út úr hellinum, með kylfurnar enn á lofti dragandi fólk á hárinu. Hvar er siðferðið og kurteisin og já umburðarlyndið. Ég geri mér grein fyrir að það er oft erfitt að sitja á toppnum. Það vekur oft öfund þegar einhver gerir eitthvað sem vekur athygli, mönnum hættir til að tala illa um þann sem þannig kemst, en þeir sem taka undir eru bara ekkert betri. Það fólk sem hvað hæst hefur látið ætti að biðja Friðrik Ómar, og aðstandendur vinningslagsins afsökunar og skammast sín síðan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023307
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar