31.12.2010 | 17:24
Gleðilegt nýtt ár!!
Nú gengur þetta ár senn til viðar. Og nýtt ár tekur við. Þetta ár hefur vissulega verið erfitt mörgum og sérstaklega fyrir sálartetrið, þar sem við erum að takast á við erfiðar aðstæður og líka eru flestir óánægðir með úrvinnsluna á vandræðunum. Traustið farið á þeim sem tóku að sér að koma okkur út úr þessu. Sérstaklega þegar þau ákváðu í upphafi að sundra þjóðinni með því að reyna að þröngva okkur inn í ESB, í stað þess að þjappa þjóðinni að baki sér í því að reyna að vinna á þeim risavanda sem við erum ennþá að glíma við. Það voru hrikaleg mistök Jóhönnu og Steingríms. Þau þekktu greinilega ekki sinn vitjunartíma og nú er sá tími liðinn og við bíðum eftir því að þau gangi á fund forsetans og leysi upp þessa ömurlegu ríkisstjórn sem hefur gjörsamlega miss tökin á ástandinu og eru rúin trausti og velvilja þjóðarinnar. Sorglegt mál því svo sannarlega hélt ég í barnaskap að þó ég næði ekki mínu fólki að, þá væri þetta það besta sem byðist okkur.
En í kvöld gleymum við öllum slíkum væringum og erum ákveðin í að njóta kvöldsins.
Hér má sjá Snúð, sem er jólabarnið okkar, hann hafði gífurlegan áhuga á jólapökkunum og ekki síður jólatrénu, þar sem hann plokkar hverja jólakúluna á fætur annari af og skottast með hana um allt gólfið.
Hann hættir ekki fyrr en honum tekst að losa kúluna og svo búmsara búms
Notar öll meðul
Unglingarnir eru líka spenntir, nú er verið að skoða flugeldana og það sem fylgir.
Gleðin er auðsæ og ekki síður hjá Snúði. Sem betur fer þurfa þau ekki að hafa áhyggjur af framtíðinni því við munum auðvitað gera allt til að hún verði tryggð, þegar þau þurfa að fara að takast á við lífið.
Nýtt ár með nýju yndislegu fólki og góðri framtíð, hvað getum við óskað okkur betra
Sendi ykkur öllum mínar bestu kveðjur um Gleðilegt ár og bjarta framtíð. Ég sjálf sagði starfi mínu lausu í dag. Ég ætla að hefja nýtt líf, breyta til. Það var ekki auðveld ákvörðun þar sem ég hef nú starfað fyrir bæinn minn frá árinu 1966 með hléum, og sem garðyrkjustjóri og umsjónarmaður opinna svæða frá árinu 1978. Mest sakna ég þess að fá ekki að starfa með nýja bæjarstjóranum okkar honum Daníel Jakobssyni, því þetta er eðal drengur, bræður hans tveir voru heimagangar hjá mér öll uppvaxtar ár drengjanna minna sérstagklega Þórir. Ég hef starfað með öllum bæjarstjórum bæjarins nema Jóni Guðjónssyni.
Ég hef átt ótrúlega góðan stuðning bæjarbúa og hef fundið þakklæti þeirra alveg frá byrjun. Fyrir það er ég þakklát og þykir vænt um bæinn minn og fólkið sem þar býr. Nú var einfaldlega komin tími til að gera eitthvað annað. Sem segir okkur að það er aldrei of seint að breyta til.
Ég hef verið einstaklega heppin manneskja, sem hef í raun verið borin á höndum fólksins í bænum mínum. Nú ætla ég bara að setjast til hliðar og njóta þess að eiga minn tíma sjálf. Vona að ég koðni ekki niður og geri ekki neitt
Nebb það mun ég ekki gera. Það eru næg verkefnin sem bíða mín.
En nú þarf ég að fara að hafa mig til, ég er boðin í mat og partý hjá bróður mínum og konunni hans. Eigið gott og skemmtilegt kvöld elskurnar mínar, og njótið ykkar vel og lengi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
30.12.2010 | 16:57
Matur og myndir.
Smámatarveisla.
Tengdadóttir mín, eða svo kalla ég barnsmóður Júlla mín, eldaði þennan flotta mat fyrir okkur í fyrradag. Hún er að prófa allskonar austurlenskan mat, og bauðst til að koma og elda slíkan rétt ef ég eldaði mína vinsælu(af fjölskyldunni) tómatsúpu.
Það var virkilega notalegt kvöld og við átum á okkur gat.
Allir hjálpuðust að, meira að segja Sigurjón Dagur hér er hann að skera gulrætur fyrir mömmu sína.
Hann var rosalega áhugasamur. Þarna má líka sjá "afaskyr" en svo kallast þessi abt mjólk á mínu heimili
Hér er Sigríður að elda gourme kjúklingarétt með allskona góðgæti.
Og Úlfur fylgist vel með, enda mikill áhugamaður um austurlenskan mat.
Mér áskotnaðist þessi mynd af mér frá systur minni. Hún hafði orðið innlyksa í dóti frá mömmu.
Þessi mynd er frá slysi sem varð á pilti á mótorhjóli, mamma hans hún Guðbjörg í Salem sést hér krjúpa við soninn, en ég virðist ekki veram mjög sorgmædd á svipinn, en ég man að ég lagði kápuna mína undir höfuð hans. Þessi mynd er sennilega tekinn 1966 eða 7. Gaman að þessum gömlu myndum.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
30.12.2010 | 12:36
Þurfum við fleiri framboð?
Ég rakst á þessa upptalningu hjá bloggvini mínum Axel Þór Kolbeinssyni.
- Besti flokkurinn
- Borgarahreyfingin
- Framsóknarflokkurinn
- Frjálshyggjufélagið
- Frjálslyndi flokkurinn
- Frjálslyndir demókratar
- Frjálst Ísland
- Hreyfingin
- Húmanistaflokkurinn
- Hægri - Grænir
- Kristin stjórnmálasamtök
- Lýðræðishreyfingin
- Norræni íhaldsflokkurinn
- Rauður vettvangur
- Samfylkingin
- Samtök Fullveldissinna
- Sjálfstæðisflokkurinn
- Umbótahreyfingin
- Vinstrihreyfingin - Grænt framboð
- Þjóðarflokkurinn
Þetta er enginn smá upptalning, af þessum 20 samtökum eru tvo sem ekki eru virk á heimasíðunni sinni.
Þarna er auðvitað hægt að fara inn og skoða málefnasamninga flokkanna. Það hlýtur bara að vera skráð á heimasíðurnar þeirra.
Ég álít það frekar væri betra að þeir flokkar sem eiga þarna samleið sameinuðust frekar, heldur en að fólk hlaupi til og stofni nýjan flokk.
Það verður ekki langt í kosningar, því er tímabært að menn fari að huga að framboðum, og fyrirkomulag kosninga. Besta væri að kjósa persónur en ekki flokka.
Við eigum að fara að kjósa menn eftir málefnum og hvernig þeir hafa staðið við sín kosningaloforð og hvernig þeir vinna en ekki hlusta eingöngu á kosningaloforðin.
Í rúmlega 300.000 manna samfélagi höfum við ekkert að gera með 20 framboð eða jafnvel fleiri. Nær væri eins og ég sagði áðan að forsvarsmenn þessara framboða kæmu saman og skoðuðu flöt á samstarfi eða sameiningu þeirra sem hafa svipaðar áherslur.
Þetta er bara eins og í öllu sem við gerum, hver höndin upp á móti annari og öll erum við kóngar, sem höfun hinn eina rétta sannleika. Ef við viljum breyta samfélginu þá þurfum við að byrja á okkur sjálfum, fara að rökræða og gera málamiðlanir FYRIR KOSNINGAR. Þora að refsa þeim sem ekki hafa staðið sig, og kjósa eitthvert annað framboð. Þetta er lífsnauðsynlegt ef við viljum fá nýtt Ísland. Þetta er allt saman í okkar höndum en til þess þarf þor til að breyta. Við vitum hvað við höfum en ekki hvað við fáum. En þegar við fáum það versta mögulega þá er varla hægt að segja að lengi geti vont versnað, ég held að við séum nú þegar komin á botninn, og náum ekki að komast lengra í baktjaldamakki, leikfléttum, svikum, og spuna en pólitíkusar viðhafa í dag. Þannig er það bara.
Byrjum á okkur sjálfum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
29.12.2010 | 12:18
Undir áhrifum - í annarlegu ástandi.
Það er áberandi í fréttum mikil aukning á innbrotum, árásum og annari óáran. Það fer að verða svo að borgarar geta ekki um frjálst höfuð strokið. Margir þessara árásamanna virðast vera af erlendu bergi brotnir. Þ.e. virðast koma hingað í þeim tilgangi að brjótast inn og stela.
Þegar harðnar í ári og fólk missir lífsviðurværi sitt eða dettur fram af brúninni, tekur við örvænting og þá er gjarnan leitað í gleymsku vímunnar, eða róandi lyfja.
Þegar þjófnaði ber á góma segir fólk gjarnan; það á að loka þessi fífl inni og henda lyklinum. Ég veit að það er ófyrirgefanlegt að brjótast inn og stela frá fólki. Ég veit líka að fólk verður fyrir áfalli og er jafnvel lengi að ná sér eftir slíkt, það er hræðileg tilhugsun að einhver ókunnugur hafi farið um allar manns eigur og rótað í öllu manns dóti.
Og lögreglan virðist standa ráðþrota og vísar fólki oft frá. Fylgir jafnvel ekki eftir ábendingum eins og um notkun stolinna korta og slíkt.
Málið er bara ekki svona einfalt.
Bak við hvert innbrot og árás er sorgarsaga og niðurbrot einstaklinga. Og þessir einstaklingar eiga foreldra, systkini, afa og ömmur. Oftast fylgir sögunni þegar menn nást að þeir hafi verið undir annarlegum áhrifum.
Það er nefnilega málið, þeir sem svona er komið fyrir eru langflestir búnir að missa fótana í fíkniefnum og hringiðu neðanjarðarsvikamillu sem fólk almennt annað hvort veit ekki um eða gerir sér ekki grein fyrir.
Þetta byrjar sakleysislega með að prófa, sumir þurfa ekki meira, og smátt og smátt ánetjast ungmenni þessari neyslu og verða að lokum svo háð henni að þau ráða ekki við sig. Þegar þannig er komið sögu eru þeir venjulega komnir í skuld við díler sem getur stjórnað þeim að eigin vild. Því það er dýrt að nota eiturlyf og það þarf að fjármagna þau með einhverju móti.
Stúlkur eru betur settar að því marki er hægt er að tala um betur settar, því þær láta leiða sig í vændi, eða að þóknast einhverjum gæðingi díleranna. Strákarnir eru þá frekar settir í innbrot.
Þannig byrjar hringrás sem ekki sér fyrir endan á. Þeir nást, eru settir í fangelsi, fá sektir og þegar afplánun líkur er oftast fátt um úrræði. Fíkillinn búin að koma sér út úr foreldrahúsum, og ekkert að leita til. Þá bíður þeirra sama hringrásin, því eftir þeim bíður sá sem kom þeim þangað sem þeir eru, og það eru enginn grið gefinn, skuldir þarf að borga.
Það sem mér finnst svo skrýtið er að dómsmálayfirvöld hafa allan hugann við þessa neðri endastöð, ég man ekki eftir að stórlaxi hafi verið stungið inn eða fundinn, ekki síðan Steinermálið í Hafnarfirði.
Minn drengur átti til dæmis að taka á sig sök fyrir einhvern svona og óttin var slíkur að hann ætlaði að játa hvað sem tautaði og raulaði. Það bara stóðst engan veginn og ég verð að segja rannsóknarlögreglunni það til hróss að hún hætti ekki fyrr en hún hafði sannað sakleysi hans, reyndar með minni aðstoð.
En aftur að toppunum. Díler er auðvitað ekki aðalkallinn, heldur er hann millistig milli þeirra sem fjármagna og stjórna. Ég er ósköp hrædd um að slíkir menn séu einhverjir hvítflibbar sem eru hreinlega verndaðir af yfirvöldum, of hátt settir til að hægt sé að hrófla við þeim. Þetta er auðvitað hrein ágiskun en samt. Af hverju er aldrei reynt að finna þá sem fjármagna og stjórna?
Mig minnir að í Bretlandi hafi lögreglan tekið þá ákvörðun fyrir allmörgum árum að hætta að eltast við 0 - komma eitthvað gramm á götunni, sem gerir reyndar ekkert annað en að viðhalda eftirspurninni, en einbeita sér í stað þess að þeim sem eru hinir raunverulegu skaðvaldar. Þeir sem flytja efninn inn og borga fyrri þau.
Á lítill eyju út í ballarhafi hlýtur að vera auðveldara að hafa eftirlit með innfluttningi en á meginlandi. Ég man vel þegar þetta var allt saman að byrja og tollvörðurinn minnir að hann heiti Kristján varaði við þessu og vildi meira eftirlit. Einhverveginn var ekki hlustað á hann og eitthvað gerðist sem ég kann ekki að skilgreina. En allavega var ekkert gert til að reyna að koma í veg fyrir innflutning. Auðvitað finna menn burðardýrin og er það auðvitað vel, en hvað svo??? Af hverju er ekki hægt að finna þá sem eru á hinum endanum? Það er þarna uppi í pýramídanum. Það er alveg dagljóst að burðardýr og dílerar hvað þá fórnarlömbin sjálf hafa ekki það fjármagn til að kosta innfluttning, hvað þá áhættufé því alltaf finnst eitthvað af innflutningnum.
Hinar erlendu mafíur sem hingað venja komur sínar er svo annað mál. Miðað við þeirra heimaland er hér gósentíð, mikið af allskonar heimilistækjum og skartgripum sem hægt er að koma auðveldlega í verð. Sennilega flutt út í gámum til sölu erlendis.
Hér hefur ekki mátt orða það að biðja menn um sakarvottorð þegar þeir koma inn í landið. Það gæti allavega aðeins minnkað komu þeirra hingað. En það er eins og stjórnvöld hafi gefist upp á stríðinu við mafíur og fíkniefni því miður. Því ég tel að þetta snerti á einhvern hátt allar fjölskyldur landsins, annað hvort sem fjölskyldur eða fórnarlömb innbrota.
Þegar sverfur að og fólk missir fótana er reitt vonlaust og finnst það svikið, getur ekkert leitað og sífellt þrengir að þá brotnar eitthvað. Þegar svo fólk fer að deyfa sársaukann með til dæmis vímuefnum, hvort sem það er vín eða fíkniefni þá gerist það sem við sjáum nú, hringrás innbrota, fangelsis þangað til vonleysið eitt ræður og menn taka auðveldasta veginn út. Hvert líf er dýrmætt. En stundum er eins og yfirvöld líti ekki á þetta ólánsfólk sem manneskjur heldur einhverja sem hantera má eins og þeim sýnist. Virðingarleysið og fyrirlitningin er of algjör, og brotna sálin meðtekur þau skilaboð að hún sé einskis virði.
Þegar svona er komið er nær því ómögulegt að rífa sig upp, því ef það er reynt er er sjáflstraustið rifið niður og ekkert hald til að grípa í.
Þess vegna ætti að vera búið FYRIR LÖNGU SÍÐAN að setja á stofn lokaða meðferðardeild þar sem ungir fíklar og jafnvel eldri eru skikkaðir í meðferð í stað fangelsis. Ég bara skil ekki af hverju það er ekki löngu komið á hér í landi alsnægta. Jú auðvitað veit ég það. Þau eru einfaldlega ekki talin með í mannlegu samfélagi, setjum þetta pakk inn og hendum lyklinum. Er einhver hér sem hefur hugsað svona, eða talað?
Hver manneskja er dýrmæt, hver manneskja hversu langt niður sem hún er kominn á sinn rétt á virðingu og réttlæti, samkvæmt stjórnarskrá á hún sinn rétt sem afar oft er á henni brotinn.
Einhver sagði einhverntíman; Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum.
Svo má í lokin benda á að útrásarvíkingar eru líka undir annarlegum áhrifum, þeirra fíkn heitir græðgi og virðist samvkæmt skilgreiningu yfirvalda vera fíkn sem er lögleg og skiljanleg.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
28.12.2010 | 12:37
Ný framboð - hvað erum við að hugsa?
Nú er mikið rætt um nýjan flokk sem verið er að komast á koppinn. Það virðist vera mikill áhugi fyrir honum eftir umræðunum að dæma. Þetta getur þó verið stormur í vatnsglasi og menn misst áhugan þegar flokkurinn lítur svo dagsins ljós.
Manna síst ætla ég að andmæla því að fólk komi sér saman um að stofna stjórnmálaflokk. Nógu mikið hef ég talað fyrir því að fólk fari upp úr hjólförunum og skoði aðra möguleika en fjórflokkinn sem er gegnum rotinn og spilltur.
Það sem mér finnst að þessum nýja hægri flokki er hvernig tilurð hans er. Hann er stofnaður nánast utan um eitt málefni, inngöngu í ESB. Forsvarsmenn nýja flokksins gera sér vonir um tugþúsunda meðbyr. Málið er að alltaf skal fara varlega í væntingum. Best er að vona það besta en gera ráð fyrir því versta.
Í fyrsta lagi er það nokkuð augljóst að forsvarsmenn hinna flokkanna sitja nú sveittir við að finna ávirðingar á forsvarsmenn nýja flokksins, sem síðan verður notað til að gera þá ótrúverðuga. Ef ekkert slíkt finnst er alveg eins til í dæminu að það verði fundið eitthvað upp, saga látin fara á kreik sem svo verður illa hrakinn; látum þá afsanna þetta syndrómið.
Í annan stað ef þetta verður eitthvað svipað og með Frjáslynda flokkinn þá verður málsmetandi mönnum sem láta sér detta í hug að fara í framboð gefnar hótanir um atvinnumissi eða eitthvað annað. Þetta verður sérstaklega gert ef útlit er fyrir að nýji flokkurinn fái hljómgrunn.
Það var alltaf sagt að Frjálslyndi flokkurinn væri eins máls flokkur og hann hefði verið stofnaður um sjávarútvegsmálin. Að vísu varð hann til að megin hluta vegna þess að forystumenn hans gerðu sér grein fyrir því sem myndi gerast ef kvótakerfið festist í sessi, einnig börðust þeir gegn því að smábátakerfið yrði einnig kvótavætt. Ég man vel aðvörunarorð bæði Guðjóns Arnars, Sverris Hermansnssonar og fleiri. Allt það sem þeir sögðu hefur komið fram og meira til. Byggðirnar ekki svipur hjá sjón, og menn sviptir eigum sínum og lög brotin.
En þetta mál var mál sem mikill meiri hluti þjóðarinnar vildi leiðréttingu á. Þó náði flokkurinn ekki eyrum landans. Það var mikið til vegna þöggunnar þeirra sem vildu ekki að flokkurinn kæmist til áhrifa. Þeir sáu sína sæng útbreidda ef sú rödd fengi að hljóma.
Það var síðan ráðist á flokkinn með öllum tiltækum ráðum, rétt eins og við sjáum nú vera að gerast með Lilju Mósesdóttur og félaga. Það er mjög alvarlegt þegar fjölmiðlar taka virkan þátt í einelti af þessu tagi, eða standa jafnvel fremst í flokki.
Það er ekki von til þess að lýðræði verði virkt í samfélagi þar sem hver höndin er upp á móti annarri, keppst er við að rakka fólk niður, og ef einhver alþingismaður ætlar að rísa upp fyrir þjóðina, þá er öskrað að hann sé lýðskrumari eða þaðan af verra. Fólki virðist gjörsamlega fyrirmunað að skilja á milli skrumaranna sem vissulega eru allstaðar og þeirra sem vilja berjast fyrir réttlæti og sannleika. Oftast eru þetta snápar frá fjórflokknum, koma nafnlausir og jafnvel með fleiri nikk til að níða niður það fólk sem reynir að vera heiðarlegt.
Það er nefnilega ljóst að fjórflokkurinn vill ekki breytingar, af hverju ætti hann að vilja það? þeir hafa öll völdin og geta skipt gæðunum niður á milli sín. Verstir eru þó hundarnir þeirra sem gelta eins og þeim er sagt að gera til að eyðileggja. Þar er hvorki skeytt um æru né heiður.
Skorturinn á lýðræði er nefnilega okkur sjálfum að kenna. Með kæruleysi okkar og ábyrgðarleysi við að kjósa, hefur það komist á að menn eru nánast áskrifendur að atkvæðum okkar. Þeir geta gengið að því vísu að fá sín atkvæði hvað svo sem þeir hafa gert af sér. Þeir vita sem er að við æpum og öskrum smátíma, svo gleymum við bara öllu saman og í næstu kosningum smala þeir inn sínum atkvæðum á ný. Þeir hlæja svo að sínum hlýðnu hundum, leyfa þeim að gelta úr sér lifur og lungu og vita sem er að það gleymist allt saman yfir kjörtímabilið.
Þess vegna gengur svo illa að koma fram með ný framboð fólks sem vill breyta. Þess vegna er fjórflokkurinn svona sterkur, og getur nánast rottað sig saman um hvað sem er. Þó allir segist vera dauðþreyttir á spillingu og rottun þessara manna, þá vita þeir sem er að það gerist ekkert.
Það er búið að koma upp einhverskonar haldreipum fyrir forystumenn flokkana þannig að enginn má vera samkvæmur sjálfum sér. Við höfum horft upp á þetta undanfarið hvernig farið er með það fólk sem gat ekki samvisku sinnar vegna stutt fjárlagafrumvarpið, og það eftir að hafa reynt allt sem þau gátu til að koma sínum leiðréttingum að.
Er þetta samfélagið sem við viljum hafa? Er það þetta sem við köllum lýðræði? Þessi leikur sem við höfum horft upp á undanfarið þar sem fólk er lagt í einelti bara vegna þess að það hefur reynt að sinna því starfi sem það var kosið til.
Þetta er nákvæmlega það sama sem við upplifðum með Frjálslynda flokkinn, og hefur verið gert til að rakka niður Hreyfinguna, ég man líka eftir því að Ómar Ragnarsson hefur ekki átt sjö dagana sæla, því hann vogaði sér að berjast með landinu.
Þessu breytir enginn nema við sjálf. Við getum ekki látið öðrum eftir að taka ákvarðanir fyrir okkur um hvað við viljum kjósa. Láta ljúga að okkur ár eftir ár. Þó allt annað sé upp á borðinu. Við verðum að fara að horfa á gjörðir en ekki orðagjálfur.
Fyrst og fremst verðum við að þora að breyta til og fara að refsa þeim sem ekki standa sig.
Hvenær rís Nýja Ísland?
Set hér inn lista frá Axel Þór Kolbeinssyni um heimasíður þeirra flokka sem hafa slíkar.
- Besti flokkurinn
- Borgarahreyfingin
- Framsóknarflokkurinn
- Frjálshyggjufélagið
- Frjálslyndi flokkurinn
- Frjálslyndir demókratar
- Frjálst Ísland
- Hreyfingin
- Húmanistaflokkurinn
- Hægri - Grænir
- Kristin stjórnmálasamtök
- Lýðræðishreyfingin
- Norræni íhaldsflokkurinn
- Rauður vettvangur
- Samfylkingin
- Samtök Fullveldissinna
- Sjálfstæðisflokkurinn
- Umbótahreyfingin
- Vinstrihreyfingin - Grænt framboð
- Þjóðarflokkurinn
Bloggar | Breytt 29.12.2010 kl. 11:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
26.12.2010 | 16:53
Jólin, hátíð ljóssins og vonarinnar.
Jólin eru róleg á mínu heimili. Ég er frekar löt og nýt þess vel við að lesa hanga á netinu og borða góðan mat.
Ég verð nú að segja að ég hef ekki fundið fyrir tilhlökkun né þessara venjulegu tilfinninga sem barnið í mér hafði alltaf fyrir jólin. Þó hefur mér alls ekki liðið illa, það er bara þessi tómleiki í hjartanu, sem er svo sem vel hægt að lifa við. Ég hef meiri áhyggjur af nokkrum vinum mínum þarna úti, og þeirra sem einhverra hluta vegna hafa farið á mis við jólahátíðina. Venjulega hefur ein þeirra dvalið í konukoti um jólin, en nú er hún í fangelsinu í Kópavogi. Samt sem áður virðist hún ekki vera döpur. Ég sendi henni kort fyrir jólin með nokkrum myndum sem ég vissi að myndi gleðja hana.
Það er einhvernveginn svo að þegar mér líður svona, þá gleðst ég heilmikið við að gleðja aðra. Og finna að það sem ég geri skipti máli.
Það er svo sem ekki þannig að ég þurfi að kvarta. Þau voru hér hjá okkur Sigga tengdadóttir Sigurjón og Ólöf og auðvitað Úlfurinn.
Sigurjón er fjörkálfur hinn mesti.
Og Snúður er jólaköttur líka, hér tekur hann Kol með varúð.
Hér er hann svo í jólaþvættinum, en hann var afskaplega forvitinn um jólapakkana.
Hann er líka eini kötturinn sem ég þekki sem vill láta ryksuga sig, þá snýr hann sér á alla kanta og vill fá ryksuguna jafnvel á magan sem bakið.
Jólasveinninn okkar og mamma hans.
Þó Snúði þyki gott að kúra á jólapökkunum var hann samt meira í að nappa sér kúlum af trénu og hlaupa með þær um allt.
Undirbúningurinn í fullum gangi og greinilegt að börnin hlakka til.
Allt að verða klárt til að borða kl. sex og allir hjálpast að að leggja á borð og gera klárt.
Ég man hvað það var langur tími sem fór frá því að maður lauk við matinn og þangað til búið var að ganga frá öllu. Á mínu æskuheimili borðuðu allir saman, afar ömmur, pabbar mömmur, börn og barnabörn. Það hefur ekkert breyst með þá tilhlökkun, þó kynslóðaskipti hafi orðið. En sama reglan ekki byrjað að eiga við pakkana fyrr en búið er að ganga frá.
Krakkarnir skiptust á að lesa utan á pakkana, og svo var opnar einn í einu. Reglur sem þau settur Ólöf og Úlfur.
Verst er biðin fyrir litla stubba, en nú er þetta alveg að koma.
Hér hjálpast bræðurnir að við að lesa utan á pakka.
Vá en gaman, þessi var frá mömmu. Nýjir kuldaskór.
Svo var hægt að klæða sig í jólagjafirnar, en voða flott.
Og svona lítur þetta út þegar búið er að opna alla jólapakkana
En svo þarf að leika sér með gjafirnar.
Slást af alefli.
Flott tilþrif hjá afa er hann verst fimlega.
Svo er líka frábært að knúsast.
Stóri stubburinn minn flottur.
Heyrði í börnunum mínum erlendis og fjær, og það var gott að heyra að þeim líður öllum vel, og allt í góðu hjá þeim.
Ég er að hugsa um að beyta lífinu mínu á næsta ári. Er svona að hugsa málið. Ég er ekkert á förum neitt, bara breyta því sem hér er. Stundum þarf maður að gera eitthvað allt annað, þora að brjóta upp það sem verið hefur áratugi og snúa sér að einhverju öðru. Það er hvort sem er komin tími til þess, þar sem ég get farið að taka mér eftirlaun og fara að hlú að því sem að mér snýr, en eyða ekki öllum mínum kröftum og tíma í aðra. En það kemur auðvitað í ljós.
Ég veit líka að með hækkandi sól kemur framkvæmdagleðin aftur, og ég veit líka að þetta sinnuleysi hverfur smátt og smátt. Það taka við nýjir tímar, með nýjar áherslur, og nýja sýn. Við erum nefnilega aldrei of gömul til að breyta til. Vilji er allt sem þarf.
Ég veit ekki einu sinni hvort mér tekst að halda kúlunni minni, þar sem hver rafturinn á fætur öðrum sendir mér bréf frá sýslumanni um uppboð, þar tekur hver við af öðrum, og skuld upp á 700 þúsund verður á ótrúlegal stuttum tíma að fimm milljónum. En það er alveg víst að fyrr læt ég mig hafa það að vera hrakinn héðan út, en að verða þræll einhvers banka að húsasmiðju eða hvað nú sem fyrirtækin heita, eru reyndar öll á höndum ríkisins svo ótrúlegt sem það hljómar. Ég held að ráðamenn og lögfræðingar geri þetta til að hafa af því laun að skrifa rukkunarbréf og hrella fólk bara til að fá meira í sinn vasa sjálfir í allskonar laun og bitlinga fyrir að áreita íslenskan almenning meðan þeir afskrifa milljarða annara.
En núna er ég ekki að hugsa um svoleiðis. Ég er á kafi í að vera löt, láta mér líða bærilega, lesa, bæði bækur og netið, borða á mig gat, fá mér rauðvín og jafnvel horfa á sjónvarpið.
Sendi ykkur öllum ljúfar kveðjur og innilega takk fyrir mig, það er svo notalegt að fá hlý orð, gleðilegar kveðjur, knús og kram, og svo sannarlega hef ég blessunarlega verið svo heppinn að fólk finnur hjá sér þörf fyrir að gefa mér það allt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
24.12.2010 | 14:27
Gleðileg jól bloggvinir og aðrir.
Nú gengur hátíðin senn í garð. Þó mörg okkar séu ekki kristinn, þá getum við fagnað ljósinu og kærleikanum sem er svo mikill á þessum tíma. Við ásatrúarmenn höldum líka okkar hátíð þar sem nú fer sólin að hækka á lofti.
Við skulum hugsa til þeirra sem eru einmana og daprir nú. Þeir sem eru einmana, sorgmæddir eða í ömurlegum aðstæðum. Það fólk sem nú situr inni í gæsluvarðahaldi þarf líka smá ljós, því myrkur ríkir í sálum þeim.
Fyrst og fremst eru jólin barnanna, en líka þeirra sem geyma barnið í brjósti sínu.
Á þessum tíma kertaljósa og myrkurs er hættan mikil á íkveikju. En ég vek athygli á því að það eru ekki bara kerti og opin eldur sem er hætturlegur, heldur líka tuskur vættar í bóni eða olíu, jafnvel tekkolíu.
Það hefur komið fyrir oftar en menn gruna að eldur hafi kviknað í slíkum tuskum, sem hafa verið settar í plast eða eldfim efni. Þær geta hitnað og svo kviknað í þeim. Þess vegna er best að setja slíkar tuskur út á svalir eða í eldfast ílát. Því þarna er hætta á ferðum.
Ég vil óska ykkur öllum gleði og gæfu megi allir góðir vættir vaka yfir ykkur og fjölskyldum ykkar. Fjölskyldan er það besta sem maður á, og svo vinir og dýrin okkar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (19)
22.12.2010 | 11:49
Landsmálin frá mínum bæjardyrum séð.
Ég ætlaði ekki að blanda mér í umræðurnar um villiketti versus heimilisketti og Samfylkinguna. En ég get eiginlega ekki stillt mig.
Það hefur verið ótrúlegt að fylgjast með umræðunni og fréttamennskunni um þremenningana og afgreiðslu þeirra á fjárlagafrumvarpinu. þar hefur opinberast fullkomlega það sem fram kom í rannsóknarskýrslunni um foringjaræðið og skort á sjáfstæðri hugsun, fyrst og fremst sjáfstæðri hugsun alþingismanna.
Ég hef alltaf haldið að menn sverðu það við biblíuna að fylgja engu nema sinni sannfæringu, eða allavega þangað til Ólafur Ragnar fékk því framgengt eftir mikið streð þegar hann fór á þing að fá að sverja við drengskap sinn, af því hann trúði ekki á biblíuna þá.
En svo þegar fólk stendur upp og framfylgir þessari frumskyldu gagnvart þjóðinni, þá verða ráðamenn og vinir þeirra alveg brjálaðir. Alls konar ásakanir um að fylgja ekki liðsheildinni, verði að gera upp hug sinn um hvort þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu, þurfi að hugsa sinn gang og svo framvegis. (bullshit)
Ef þarna hefur ekki opinberast einmitt það sem Lilja og þau hin hafa verið að segja, þá veit ég ekki hvað. Foringjaræðið og fordómarnir gagnvart sjálfstæðri hugsun. Og hver man ekki eftir "Play with the team Dagnýju"?
Svo er reynt að segja upp í opið geðið á okkur að fullt samráð hafi verið haft við flokksmenn stjórnarflokkanna, þar stangast á orð Lilju og Árna Þórs, því hún sagði blákalt að hún hefði fyrst séð frumvarpið þegar það kom í þingið. Og ég trúi Lilju langt umfram Árna Þór og hina sem hér hafa svo sannarlega birst í líki hýena en ekki villikatta.
Ég hugsa líka að það sé erfiðara að smala hýenum en villiköttum, því þú veist að villikötturinn er óvinur þinn, en þú veist aldrei með hýenuna, því hún getur brosað til þín flírubrosi og stungið þig í bakið eftir á. Dettur reyndar í hug orð Kára Stefáns á sínum tíma, hýenur og hælbítar.
En það er líka gott að sannleikurinn blasir við þeim sem vilja sjá hann, gríman er fallinn og allur fagurgalinn og flírubrosin eru orðin að heiftargrettu og nýðingskap, svo nú standa forvígismenn okkar í pólitík naktir frammi fyrir okkur eins og keisarinn forðum. Það er alltaf best að vita sannleikann hversu ljótur sem hann annars er. Því þá er hægt að fara að breyta og laga.
Eitt það hallærislegasta og mestu mistökin voru ummæli formanns fjármálanefndar um að hún gæti ekki starfað með Ásmundi Daða, og ummæli Árna Þórs að hann liti svo á að þremenningarnir væru ekki lengur í Vinstri grænum. Fólk sem talar svona þekkir ekki íslenska þjóðarsál.
Ef þau þekktu sitt heimafólk betur, myndu þau sjá að meirihluti þjóðarinnar fylgir Lilju Mósesdóttur og villiköttunum í vinstri grænum að málum. Við sjáum þarna örla í fyrsta skipti á heilbrigðri hugsun frá fólki frá fjórflokknum. Hugarfari sem við höfum þráð lengi að upplifa. Loksins lítið op inn í Nýtt Ísland.
Ég vona að þessi ríkisstjórn fari frá sem fyrst. 'Eg vil sjá utanþingsstjórn í tvö ár í það minnsta, meðan stjórnmálin aðlaga sig að breyttum tímum.
Kjósendur þurfa svo líka að fara að hugsa sinn gang, og út fyrir rammann. Ef við skoðum það sem Hreyfingin hefur verið að gera, þar sem þau hafa staðið í lappirnar og sýnt okkur inn í heim vitfirringu á alþingi, sem er ekki lengur hægt að skrifa með stórum staf.
Einnig þarf þjóðin að fara að skoða það sem Frjálslyndi flokkurinn stóð fyrir, og tillögur hans og meðferð á málum. Sem voru allar í átt til betra lífs almennings, en var ekki hlustað á og allt reynt til að sverta og draga niður í svaðið.
Til þess voru notaðir svokallaðir stjórnmálafræðingar sem eru eins langt frá að vera hlutlausir og hægt er. Þessa rafta er ennþá verið endalaust að draga fram til að upphefja samfylkinguna sjálfstæðismenn og hluta vinstri grænna, hagræða sannleikanum ef þarf. Segja hálfsannleikann og þegja yfir öðru.
Þarna skortir mikið á hlutleysi fjölmiðla því miður virðast flestir fjölmiðlamenn fylgja herrunum á kostnað þjóðarinnar. Ég hefði haldið að á þessum tímum hefði aldrei verið meiri þörf á því að draga sannleikann fram og sópa drullunni undan teppinu. En ekkert slíkt gerist. Alltaf sömu ráðgjafarnir sem allir vita í dag að segja það sem ráðamenn vilja heyra.
Það er dæmigerður hræðsluáróður að þessi ríkisstjórn verði að vera áfram svo Sjálfstæðismenn og Framsókn komist ekki að. Það þarf nefnilega ekki að vera þannig. Við eigum nú þegar gott og heiðarlegt fólk sem við getum kosið inn á þingið. Það eru þessir villikettir í Vinstri grænum, Hreyfingin og Frjálslyndi flokkurinn. En fyrst og fremst þurfum við að koma á persónukosningum, til að hægt sé að henda slímsetufólkinu út af þingi. Það gengur ekki lengur að sumir séu hreinlega áskrifendur að stólum alþingis vegna forgangsröðunnar stjórnmálaflokka.
Þess vegna bind ég vonir við Stjórnlagaþingið og þeirra afstöðu til lýðræðisbreytinga.
En bráðum koma blessuð jólin, og síðan nálgast nýtt ár. Látum nýja árið verða árið sem við hreinsuðum til og komum sannleikanum, heiðarleikanum, virðingunni og kærleikanum í forgang.
Með bestu kveðjum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
21.12.2010 | 14:49
Smá jólafílingur.
Smá jólahugleiðingar svona í skammdeginu.
Ég hugsa oft er herðir frost.
hel-dimm nóttinn nálgast oss.
Með skammdegi og skugga,
er skylda okkar að hugga,
þann sem ekki á neinn að,
einskis barn, við skiljum það,
að þá er þörfin brýna
að þekkja vitjun sína.
Með kærleikann sem leiðarljós,
lifir best vor sálarrós.
Það blómið blítt sem dafnar
og birtu andans safnar.
Allt sem innra áttu nú,
elsku þína von og trú,
vert er gaum að gefa,
grát og sorg að sefa.
Dreyfðu ást um byggð og ból,
þá bestu áttu gleði jól.
Gott er lífið sitt á því að byggja
að sá sem gefur öðrum allt mun þiggja.
Við skulum hugsa til þeirra sem eiga bágt, vegna veikinda, fátæktar, en líka þeirra sem eru fátækir í andanum og kunna ekki og vita því síður að hamingjan felst í manni sjálfum og það sem innra býr.
Sumir eiga nefnilega ekki ljós í hjartanu og það er verra en allt annað.
Hátíð ljóss og lita,
lýsir dimma jörð.
Það vinur skaltu vita,
að völt er mannsins gjörð.
Í djúpi morgundagsins
ef drungi í sálu býr.
Af sorgum sólarlagsins
þá löngun áfram knýr.
Að vilja vaka og vinnan,
og verja fast sitt leg.
Því sóknarfæri sinna,
að sækja fram á veg.
Í miðju drungans dapra,
er dásemd - jólaljós.
Sem eyðir nístings napra
norðri - frostsins rós.
Og lætur blíða bera
oss blessum yfir jörð
þá von mér viltu gera
að vekja Ísafjörð.
Hérna læðist ketkrókur.
Jólin eru líka ævintýri og gamlar hefðir.
Og auðvitað jólakúlur.
Yndislegust eru þó börnin. Hér eru unglingarnir mínir, ekki viss um að þau þakki mér fyrir þessa mynd En þarna eru þau bara lítil krútt. Algjörir töffarar í dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
20.12.2010 | 20:24
Nýr ríkisborgari.
Það var gleðidagur hjá fjölskyldunni minni frá El Salvador, þegar Rolando sonurinn í fjölskyldunni fékk ríkisborgararéttinn í gær.
Það var auðvitað slegið upp veislu.
Nú eru þau öll komin með íslenskan ríkisborgararétt nema Alejandra, en það er verið að vinna í hennar málum loksins.
Þetta var aldeilis fín veisla með hnallþórum og ostaveislu.
Isobel móðir Rolandos og Elli.
Rolando minn velkomin í hópinn. Þú hefur svo sem alltaf verið okkar maður þau 10 ár sem þú hefur verið hér. Man vel eftir því þegar þú komst fyrst fyrir 10 árum 13 desember, beint frá El Salvador og fórst að vinna í beitningu. Það voru viðbrigði, þú hafðir aldrei séð snjó. En aldrei hefur þú kvartað einu orði um veðrið eða aðstæður. Við vorum heppinn að fá þig inn í fjölskylduna. Til hamingju bæði tvö.
Ég kalla þetta tússfjöllinn, þetta eru alveg eins og fallegar tússmyndir. Tók þessar í gær.
Þó það birti ekki mikið til núna, þá eru vetrarsólstöður á morgun, þá byrjar sólin aftur að hækka á himni, og í fyrramálið verður svo tunglmyrkvi. Vonandi verður ekki skýjað svo hægt verði að sjá hann.
Með kveðju frá Ísafirði.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 0
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 31
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar