Í dag - kæra fjallafólk nær og fjær.

Fyrir fjallafólkið mitt nær og fjær, eru hér nokkar myndir teknar í morgun.

IMG_0508

Þessi er tekinn um hálf ellefu leytið, þið sjáið að lognið er komið aftur.

IMG_0509

Það er aðeins farið að birta á himni.

IMG_0510

Mér finnst þessi tindur Eyrarfjallsins mjög tilkomumikill, en ég er alveg nýbúin að uppgötva hann, hann var þarna allt frá barnæskunni.  En þvílik fegurð og tign þar sem hann gnæfir til himins.

IMG_0512

Þessi er svo tekinn um hádegið, og þessi fjólublái litur sem kemur, þegar sólin kemst ekki að, en sendir sína daufu birtu gegnum ský.

IMG_0513

Smile

IMG_0515

Þegar svo birtir  ennþá meira kemur skuggi á fjöllinn.

 IMG_0516

Svo það virðist vera dimmra en það er..

Svo ein enn síðan fyrr í  morgun.

IMG_0511

Þetta er vinnustaðurinn minn og þar sem ljósin eru í glugganum eru gluggarnir á skrifstofunni minni, en þar hefur hann Óli Borgars sett upp jólaljós til að gleðja mig. 


Veðrið í dag og Duggholufólkið.

Jæja ekki var nú mikið bjart yfir okkur í dag, eins gott að margir hafa sett upp jólaljósin.

IMG_0503

En það sést þó í fjöllinn, má segja.

IMG_0504

Reyndar voru þessar teknar fyrir hádegi.  En dimmt er yfir Ísóheim.

IMG_0505

Ekki varð nú bjartara en þetta.  Svo sem ágætis veður reyndra.

 

En ég átti að vera á frumsýningu á Duggholufólkinu.  Ég lagði ekki í að fara suður þegar veðrið var svona leiðinlegt í gær. Svo ég hringdi bara í leikstjórann í morgunn hann Ara Kristins, þakkaði gott boð og bað að heilsa þeim öllum.  Ég verð með þeim í huganum. Hann sagði reyndar að þau myndu gera eitthvað úr frumsýningu hér heima, seinna.  Því myndin er jú að mestum hluta tekinn upp hér.  Þá gerum við eitthvað skemmtilegt sagði hann.  Og miðinn minn gildir áfram.

Ég óska þeim bara til hamingju með myndina og vona að hún verði vel sótt. 'Eg er alveg klár á að þetta er mjög skemmtileg mynd.  Og fjallar um efni fyrir alla fjölskylduna, ævintýri eins og þau gerast best.

Góða skemmtun  öll !Wizard Og takk fyrir skemmtilega viðkynningu.

Duggholufólkið


Veður og stemning.

Jæja veðrið hérna núna er svona inniveður til að vera inni og gera eitthvað af viti í innimálum.

IMG_0498

Sést ekki mikið út, en það er 2ja °hiti, svo ekki er kuldanum fyrir að fara.

IMG_0499

Þessar eru teknar um hádegisbilið, svo ekki er birtunni fyrir að fara.  Þetta er sko kertaljósaveður.

Svo er hann að hvessa upp.  Jamm það verður örugglega kertaljósakvöld hjá mér í kvöld.  Og prenta út jólakortin. 

IMG_0500

En minn elskulegi og stubburinn ætla að setja upp aðaljólaseriuna í garðskálanum á eftir.  Þá lífnar nú við þar aldeilis. 

En ég ætla mér að fara að vinna í jólaföndri, ég sagðist jú ætla að gefa börnunum eitthvað heimatilbúið.  Og ætla að standa við það.  Get samt ekki sagt ykkur það, því þau lesa stundum bloggið mitt þessar elskur. LoL En ég er bara ánægð með hugmyndina.  Segi ykkur frá henni eftir jólin.  Blush

Ég er sem sagt búin að gera jólakortið í ár.  Gekk bara vel þegar ég var byrjuð.  Það er svona aðeins að byrja jólafiðringur, og það er gott.  Vona að þið njótið dagsins líka.  Maður gerir bara það besta úr því sem maður hefur ekki satt. Heart 

 


Litlu tónlistarmennirnir.

Smá krúttmyndir fyrir svefninn.

DSC02029

Að spila á píanó er gaman.

DSC02036

En líka háalvarlegt sko.  Heart

 DSC02039

Ekki er nú verra að stóri frændi spili undir á gitar. 

En þessar myndir eru í boði sonar míns Inga Þórs.

Ég er á leið í draumalandið.  Það er gott að hvíla lúin bein, og hafa tónlistin með sér inn i þá ævintýraveröld sem bíður í blánætti skuggans.  Heart Góða nótt.  


Blátt, bleikt og gult. Veðrið á Ísafirði.

Jæja þá koma nokkrar ljósbláar fjallamyndir.

IMG_0483

Himalaja, nei Eyrarfjall.

IMG_0484

Naustahvilftin enn á sínum stað´.

IMG_0486

Fallegur vetrardagur.

IMG_0487

Bleikt og blátt, kannast einhver við þær umræður LoL

IMG_0490

Litirnir eru bara fallegir að mínu mati.

IMG_0493

Þessi mynd er líka dásamlega falleg, og þetta er allt tekið á sama deginum.

 

IMG_0494

Sól sól skín á tind. 

IMG_0495

Set inn bláa mynd. hehehe

IMG_0496

Rökkrið færist yfir.

IMG_0497

Dagur kveður oss. 

Saga dagsins á Ísafirði, þann 3. desember á því herrans ári 2007.  Njótið vel fjallafólkið mitt um heiminn. Heart

 


Fyrirgefning.

Að geta fyrirgefið er besta lyf í heimi.  Að geta fyrirgefið þeim sem hefur gert á hluta manns, er sigur manns sjálfs fyrst og fremst.  Ég hef heyrt fórnarlömb kynferðisofbeldis tala á þeim nótum, til dæmis Thelmu Ásdísardóttur þá sterku og fallegu konu. 

En stundum kemur það fyrir að samfélagið allt leggst yfir og dæmir einstakling, sem hefur brotið af sér.  Vegna þess að gjörðir hans hafa hræðilegar  afleiðingar.  Þó ég sé ekki kristinn, þá vil ég hér taka mér í munn orð hans, þegar hann sagði Dæmið ekki, svo þér verðið ekki dæmdir, eða einhvern veginn svona hljómaði boðskapurinn.

Þó okkur finnist að samborgari okkar hafi farið illilega út af sporinu, og við séum viðkvæm þess vegna og reið, þá skulum við hafa í huga að aðgát skal höfð í nærveru sálar.

Það var einhverju sinni umræður um þessi mál á Málefnunum.com, og ég sagði eitthvað á þá leið, að gjörningsmanninum væri líka vorkunn að þurfa að lifa við þær gjörðir.  Og þá kom þar fram maður, sem hafði orðið valdur að dauðsfalli.  Hafði ekið á mann og banað honum.  Hann kom þar fram og sagði, að það liði ekki sá dagur að hann hugsaði ekki um þennan atburð, og hann hefur burðast með þá gjörð æ síðan og mun gera til dauðadags.  Það sem við gleymum stundum, er að setja okkur í spor þess sem veldur.  Sjálfsásökun, ótti og angist munu fylgja honum alla tíð. 

Eitt það ömurlegasta sem við getum lent í er sjálfsásökunin, að þurfa að lifa með einhverju sem við höfum gert rangt á kostnað annara.  Þá getur ekkert komið okkur til hjálpar, ekki einu sinni þó við fáum fyrirgefningu, nema við getum sætt okkur við okkur sjálf.  Þetta vita allir. 

Það er engum gerður greiði með því að dæma hart og kalla fólk öllum illum nöfnum, og óska þeim alls hins versta. Það hvorki bætir skaðan eða gerir neitt gott. 

Þess vegna held ég að það sem við ættum að gera núna í skammdeginu og nánd jólanna, er að sveipa þennan sorglega atburð, aðstandendur og geranda í hjúp kærleika, ljóss og friðar.  Lýsa upp sorgina og upphefja tregan í stórri kærleikshugsun, láta þar engann blett skyggja á, engar vondar hugsanir, engar hótanir eða bannfæringu.

Megi allar góðar vættir vaka með þeim öllum, og vernda.  Megi þessi atburður verða til þess að aðstæður verði bættar, svo ekki verði hætta á öðru svona hræðilegu atviki. 

Blessað ljós ég bið þig nú

að brjóst oss innra fyllir þú

af heitri gleði

og hreinni trú. 

Á ljósið og kærleikann, fyrirgefninguna og umburðarlyndið. 

angel


Aðventukvöld með smá útúrdúr.

Fór á aðventutónleika í kvöld.  Elli maðurinn minn var að syngja og ég fór auðvitað til að hlusta.  Þetta er orðin árviss atburður, tónlistarveisla, þar sem okkar frábærasta tónlistarfólk leggur fram krafta sína, kórar og tónlistarfólk.

IMG_0455

Byrjaði með stúlknakór, þessar litlu elskur eru ekki háar í loftinu, en flottar samt.

Reyndar byrjaði kvöldið með Händel; Consertino í F dús, adagio, með Íris Kramer á trompet og Huldu Braga á orgel.

Svo kveiktu fermingarbörn á kertum og lásu setningar úr ritningunni.

IMG_0458

Hér eru eldri dömur stúlknakór Tónlistarskóla Ísafjarðar, hitt var telpna kór Tónlistaskólans.

IMG_0460

Svo var Sunnukórinn og báðir telpnakórarnir.

Hér má svo sjá karlakórinn Ernir.

IMG_0465

Og hér líka.

 

IMG_0466

Hér fyrir ofan þá má sjá kirkulistaverkið.

Presturinn Séra Magnús lagði einmitt út af þessu listaverki, mig minnir að hann segði að það hefði verið Ólöf Norðdal sem átti kveikjuna að því.  En það er úr ritningunni sagan um Jésú og lóurnar. 

En það var sagt að Jesú sem barn hefði leikið sér með öðrum börnum við að gera fugla úr leir, þá kom heittrúarmaður og varð reiður af því að þetta var gert á Sabbaddeginum, hann hóf að brjóta alla fuglana, en Jésú rétti þá út hendi og breytti leirfuglum í lifandi fugla sem flugu upp og voru þar fyrstu lóurnar.  Hann lagði vel út af þessu lista verki hvað það ætti í raun og veru vel við í öllum uppákomum kirkjunnar.  Svo lagði hann út af þröngsýninni og ofsatrú á alla kanta það sem umburðarlyndi vantaði.  En svo klikkti hann út með atriði sem sló mig.  Hann var að tala um umburðarleysi þar á meðan að fólk vildi ekki presta i leikskólanna, svo sagði hann, ég meira að segja las það í gær að einn maður í Vantrú sagði að það ætti að banna litlu jólin.  Og þá hugsaði ég; Magnú minn, nú varð fjöðurinn hjá þér að fjórum hænum.  Því það var nefnilega ekki svo.  Heldur sagði einhver prelátin í vandlætingu vegna umræðna Vantrúar, Svo vilja þeir  auðvitað banna Litlu Jólin.  Það var því ekki rétt sem hermt var eftir. 

En ótrúlega lífseigt það sem sagt er, ef fólk vill virkilega hamra á röngum staðhæfingum.  En ég tek fram að mér líkar afskaplega vel við prestinn okkar hann séra Magnús.

IMG_0474

Hér eru svo fjórir kórar saman, og lokasöngurinn var; Hin fyrstu jól, afskaplega hátíðlegt og yndislegur endir á frábæru kvöldi.

IMG_0476

Allir syngja saman.

IMG_0477

Og svo smá snjókoma hehehe

IMG_0482


Skugga Sveinn.

 

Ég fór á leiksýninguna Skuggasvein í gærkveldi í Edinborgarhúsinu á Ísafirði.

Þetta mun vera fyrsta leiksýninginn sem sett er upp í aðalsalnum.  En nokkur leikverk af minna taginu hafa verið sýnd í sal á annari hæð hússins.

Húsið í sjálfu sér er meistaraverk, þar koma saman gamli tíminn og sá nýji.  Húsið er bjálkahús, sterklega byggt, og hafa þau einkenni verið látin halda sér.  Edinborgarhúsið var teiknað af Rögnvaldi Ólafssyni, en endurgerð var allavega að hluta til í höndum arkiteksins ísfirska Elísabetar Gunnarsdóttur.  Í húsinu er nú rekinn listaskóli Rögnvaldar Ólafssonar undir styrkri stjórn Jóns Sigurpálssonar listamanns og Margrétar Gunnarsdóttur píanókennara.

En Skuggasveinn.

 

Í byrjun vil ég segja að sviðsmyndin var hreint frábær.  Einföld en afskaplega sterk og var einn mesti styrkur sýningarinnar.

 

Skuggasveinn var í höndum Páls G. Loftssonar.  Páll er vanur leikari, og Skuggasveinn varð eftirminnilegur í meðferð hans.  Allt frá því að vera næstum klökkur í endurminningum upp í að þruma yfir salnum, þá fyllti hann þennan karakter af þvílíku lífi að unun var á að horfa.

Ketill skrækur, Sveinbjörn Hjálmarsson var eftirminnilegur líka, mjög sannfærandi góður leikur og samleikur þeirra fóstbræðra var sérlega næmur og góður. 

Það var töluvert um óreynda leikara í sýningunni, og bar hún dálítið keim af því.  En hún var þó í heild sinni áferðarfalleg.  Ég held samt að það hefði mátt stytta hana verulega, sérstaklega fyrir hlé.  Söngvana hefði líka mátt stytta um einhver vers.  Ég hugsa að þarna hafi virðingin fyrir meistara Matthíasi ráðið um að svo var ekki gert.  En sýningin tók um 3. tíma.  Tek það samt fram að allir söngvarar voru mjög góðir enda flestir í Karlakórnum Ernir ef mér skjátlast ekki.

Grasagudda var líka ógleymanleg.  Viðar Konráðsson fór á kostum.  Hann datt aldrei út úr hlutverkinu og hélt salnum í hláturkasti í hvert sinn sem hann birtist. Magnaður leikur.

 

Sigurður í Dal, hefði stundum mátt reyna að sannfæra okkur meira, en Lárus komst samt ágætlega frá hlutverki sínu.  Lárus er glæsimenni og gaf Sigurði þann þokka og höfðingskap sem hæfði hlutverkinu. 

IMG_0433

Glæsimennið Sigurður í Dal. Því miður voru myndatökur bannaðar á meðan á sýningu stóð, en ég tróð mér baksviðs fyrir leikinn og náði nokkrum góðum myndum.

 Dóttir hans Ásta var einstaklega vel leikinn af Elínu Sveinsdóttur, stórfalleg stúlka og söng eins og engill.  Það voru því fallegar senurnar milli hennar og Haraldar (Hlyns Kristjánssonar)  það skorti nokkuð á sviðsöryggi hjá honum.  En leikur samt þokkalegur.

 

IMG_0429

Haraldur útilegumaður.

 

Spjátrungurinn Jón sterki var ágætlega túlkaður af Þorleifi Ágústssyni. Ef til vill full reigingslegur á stundum, en í heildina skilaði hann Jóni vel frá sér. 

Gvendur hjú í Dal, Ísak E. Róbertsson var léttur áfæti, en vantaði töluvert á framsögn, ég skildi varla orð hjá honum blessuðum. 

Sýslumaðurinn Lárensíus var skemmtilega túlkaður af Finni Magnússyni, enda Finnur mjög vanur leikari.  Hann gaf þessum sýslumanni líf, mitt í allri græðginni og hefnigirninni skein alltaf í gegn sá maður sem hann reyndist svo vera í lokinn. 

IMG_0428

Sýslumaðurinn Lárensíus. 

 Þjónustustúlkan Margrét, var þokkaleg í höndum Dagnýjar Hermannssdóttur einföld góð sál, ástfanginn af húsbónda sínum.  Þó var stundum sem mér fannst hún heldur undirleit. Þ.e. horfði of mikið niður á gólfið, einkum í samtali sínu við Hólasveina.  Augun eru sterkt afl á leiksviði, og maður þarf að gæta sín hvert maður horfir.  Það má líka segja í heildina, hafi leikendur horft full mikið upp í loftið, þegar þau ávörpuðu salinn.  Það hefði verið betra að finna stað sem var nær hausamótum leikhúsgesta.

 

IMG_0431

Þjónustustúlkan Margrét og Helgi Hólasveinn.

 

Grani kotungur var kostulegur í höndum Harðar Högnasonar. 

Hólasveinar voru túlkaðir af Ólafi Halldórssyni og Halldóri Sveinssyni.  Ágætlega gert, en ég hefði stytt þeirra atriði nokkuð fyrir mína parta. 

Galdra – Héðinn var í höndum Þrastar Ólafssonar, Þröstur er að minu mati orðin svolítið fastur í svona skrípafígúrum,  ég vildi sjá hann takast á við alvarlegra hlutverk næst.

 

IMG_0430

Galda Héðinn.

 

Ögmundur í túlkun Jóns Jens, var ágæt, skorti samt dálítið á sannfæringuna, en þetta er hlutverk sem er erfitt að gera eitthvað í.  Það bíður ekki upp á mikla leikhæfileika. 

IMG_0436

Ögmundur útlagi og galdramaður.

Það er alltaf sérstök tilfinning baksviðs fyrir sýningu, mér sýnist aðstaðan þarna vera mjög góð fyrir leikendur, eitthvað sem ekki hefur alltaf verið til staðar hjá okkur.

IMG_0426

Það er sminnkað og farið í búninga og dálítill sviðsskjálfti í mönnum eins og gengur.

IMG_0434

Ásta Dalamær sminnkar Hólasvein.

IMG_0435

Meðan leikstjórinn Hrafnhildur setur förðunina á sjálfan Skugga Svein.

IMG_0439

Stalst til að smella af nokkrum myndum í uppklappinu, þarna má sjá Jón sterka, Gvend vinnuhjú og GrasaGuddu.

IMG_0441

Ásta Dalamær.

IMG_0442

Hólasveina æringjar.  

IMG_0445

Skugga Sveinn og Ketill skrækur ganga hér fram undir dynjandi lófataki.

IMG_0448

Eins og ég sagði, áferðarfalleg sýning, vantaði ef til vill dálítið upp á framsögn hjá sumum nýgræðingnum, en það er ekki auðvelt að setja upp svona mannmarga sýningu með mörgu óvönu fólki.  Þau skiluðu þó öll góðri sýningu, og þarna kom í ljós hve afburðar góður hljómur er í húsinum. 

Leikmynd til fyrirmyndar, lýsingar góðar og hnökralausar, búningar skemmtilegir og trúverðugir, förðun smekkleg aldrei ofgert.

Leikstjóranum Hrafnhildi Hafberg óska ég innilega til hamingju með þetta leikverk. 

Ég skemmti mér hið besta, það gerði einnig 10 ára stubburinn minn.  Svo það er ljóst að leikritið höfðar til margra.  Það er full ástæða til að mæla með því.  Ég vona að þau muni sýna fleiri sýningar.  Það liggur mikil vinna á bak við svona sýningu,  óeigingjörn vinna allra þeirra sem þar koma við sögu.  Bæði leikara og þeirra sem vinna sitt verk í kyrrþey baksviðs og á æfingartíma.

Hafið hjartans þökk fyrir.  

Kveikt á jólatré á Silfurtorgi.

Jamm ég skaust niður á torg og tók stemningsmyndir, ég er tímabundinn svo ég náði ekki mynd af trénu, en lúðrasveitin var að leika og torgið fullt af fólki að fylgjast með.  En þetta er dálítið jólalegt.

IMG_0422

Jamm og þau eru þarna ennþá í þessum skrifuðu orðum,  sem sagt alveg glænýtt.

IMG_0425

Snjókornin vildu ekki víkja.

IMG_0424

Og svo er það kúlan.

IMG_0418

Svona er veðrið hér nákvæmlega núna.  Smile

Mig langar í tilefni aðventu til að þið lesið þennan link frá vinkonu minni Ragnheiði og látið eitthvað af hendi rakna.

http://hross.blog.is/blog/hross/entry/380019/#comments


1. desember.

'Eg vil óska öllum til hamingju með daginn.  Fullveldisdagurinn okkar.  Samt einhvernveginn finnst mér eins og við höfum farið afturábak hin síðari ár en ekki framá við.  Til dæmis í hinni botnlausu græðgi sem tröllríður þjóðfélaginu, og því miður þeir sem ráða í þjóðfélaginu taka fullan þátt í.  Eða að minnsta kost hafa gefist upp.  Eins og ein borgarstjórnarkona sagði, ég hélt að þetta væri fullfrágengið, og þess vegna var ekki verið að rugga bátnum.

Hvenær ætla kjörnir fulltrúar okkar að skilja að þeir sitja í umboði fólksins sem kaus það, en ekki til að verma sig við hlýju kjötkatlanna, eða hygla þeim sem þeim þóknast.  Þeir bera miklar skyldur til þeirra sem minnst mega sín. 

En af því að myndavélin er komin þá eru hér nokkrar myndir;

IMG_0408

Þessi brosti á móti mér í morgun, þegar ég opnaði dyrnar.

IMG_0410

Hér er verið að ræða háalvarleg mál, eins og vasapeninga.   Það er samið skrifað niður og undirritað.  þar skal allt gert eftir bókinni.

IMG_0412

Nýjir samningar undirritaðir.

IMG_0414

En til að fá kaup, þarf að sinna ýmsu smálegu, og gefa hænunum og fara út með ruslið og svoleiðis.

IMG_0415

En veðrið er að lagast eins og sjá má.

IMG_0417

Smá himnagallerí líka.

 

 


« Fyrri síða

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Des. 2007
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband