10.12.2007 | 16:01
Hið daglega veður og smá jólastemning.
Þá er komið að hinu daglega veðri, fyrir fólki mitt sem er ekki hér nema í huganum. Það dimmir sífellt meira eins og sjá má, og þessar myndir sem teknar voru í morgun, gætu þess vegna verið teknar í ævintýralandi.
Takið eftir birtunni á toppnum, þar sem sólin nær aðeins að teygja geislana sína yfir svartnættið.
Þetta eru enginn Grimmsævintýri heldur raunveruleikin.
Hér búa örugglega álfar og tröll, ef vel er gáð.
en það birtir aðeins yfir hádaginn hehehehe..
Það virkar nú aðeins dimmra en í rauninni það er. En ekki mikið.
En dagurinin þokast áfram.
Og það verður sæmilega bjart.
Þessi er aðallega tekinn fyrir Rannveigu. Engi í jólabúningnum.
Og smá jólastemning fyrir alla hina. Þetta eru fyrstu barnabörnin mín, myndin tekinn í dag, þau voru í heimsókn hjá pabba sínum, en eru núna í þessu á leiðinni suður heim aftur. Nema stubburinn náttúrulega, hann fékk að fara með í heimsókn sem ég fór í til móður afa og ömmu.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
10.12.2007 | 10:11
Morgungullkorn dagsins.
Það kemur stundum til mín á morgnana svona gullkorn, ég gleymi þeim oftast, en ætti sennilega að leggja þau á minnið. Því mörg þeirra eru afskaplega viturleg, hvaðan sem þau koma.
Morgun gullkornið sem kom til mín í morgun hljómar svona;
Ef enginn kemur á eftir þér og tekur við ævistarfi þínu, þá koðnar það niður og gleymist.
Fyrstu barnabörnin mín. Nú eru þau sautján og það átjánda kemur í janúar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
9.12.2007 | 19:38
Tónleikar í Ísafjarðarkirkju í dag - Karlakórinn Ernir.
Tónleikarnir voru æðislegir. Flottir karlar og flottir drengir og flott tónlistarfólk sem við eigum hér.
Fyrst svona smá stemningsmyndir frá Ísafirði, þetta er gamla sjúkrahúsið, sem núna er safnahús og bókasafn.
Kirkjan okkar. Þó ég vildi presónulega heldur hafa þarna gömlu kirkjuna áfram. En þá hefði vantað það góða tónleikahús sem við höfum þarna núna.
Þessar myndir eru teknar um hálf fjögur svo birtan er ekki mikil.
Hér er svo kórinn, þetta voru mjög góðir tónleikar.
Það voru þó nokkrir tónlistarmenn sem settu svip sinn á tónleikana, hér er leikið tvíhent á píanó og flautuleikarar.
Og ekki endilega allir með margra ára þjálfun að baki, en stóðu sig óaðfinnanlega. Við erum rík af efnilegu tónlistarfólki.
Þeir voru ekki heldur allir háir í loftinu drengirnir, en þeir sungu eins og englar.
Sumir dunduðu við eitthvað annað, en söng
Hér eru svo þeir sem stuðluðu að tónleikunum, kórstjóri og hljóðfæraleikarar, og sú sem þjálfaði drengakórinn.
Og auðvitað voru veittar blómagjafir.
Og litla Evíta Cesil lét sig ekki vanta, með pápa sínum á tónleika.
Ég held að þessi ungi maður eigi eftir að ná langt. Hann hefur allt til þess að bera.
En ég vil bara þakka fyrir frábæra tónleika, svo var aðstandendum boðið upp á súpu á eftir. Aldeilis grand hjá karlakórnum Erni. Takk fyrir mig.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
9.12.2007 | 14:47
Hið daglega veður, og tónleikar.
Hér koma veðurmyndir dagsins í dag.
Heldur kalt en fallegt.
Jamm.
kl. 4 fer á á tónleika með litla mínum og þeim stóra. karlakórinn Ernir og drengjakórinn með jólatónleika í kirkjunni, sem ég ætla ekki að láta fram hjá mér fara. Og taka nokkrar myndir ef Guð lofar.
Hér eru þeir á leiðinni til Bolungarvíkur í gær.
En þessir ömmuststubbar voru í heimsókn í gær, og létu listina ekki á sig fá. Þó má segja að svona Transformers séu list út af fyrir sig.
Og ótrúlega heillandi fyrir stubba á ýmsum aldri.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
8.12.2007 | 15:10
Litli trommuleikarinn. Parampampampa.
Jamm sumir eru nú ekki gamlir þegar þeir fara að hafa gaman af hljóðfærum. Evíta er hér í hlutverki litla trommuleikarans.
Pammpammpam!
Hvað ertu að trufla mig amma ?
Pampampampa
Ákafin leynir sér ekki.
Þetta er betra, nú fæ ég meira hljóð.
En það þarf ákveðna kunnáttu til að setja saman trommusett.
Taramtaramtaram pam pamm.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
7.12.2007 | 21:39
Frostrósir framhald.
Já þær voru flottar Frostrósirnar.
Nutu sín vel í kirkjunni, og þar kom svo vel í ljós hve fuglalistaverkið kemur vel út í sviðsetningunni.
Hér er hún Heiða hún opnaði tónleikana.
Og Hera Björk eins og sígaunastúlka í ofsalega flottum kjól, þær voru reyndar allar flottar.
Hljómsveitinn og Regína Ósk.
Og Margrét Eir, ég á þetta bros, tók myndina áður en hún steig á sviðið, það á líka við um Heru Björk
Hver annari flottari söngkona.
Hérna sést vel hvernig lýsingin var notuð á bak við og hve vel það fór við fuglana, þetta var eiginlega eins og frostrósir þarna á bakvið.
Endaði líka hátíðlega á samsöng Dívanna og telpnakór Tónlistaskólans.
Aldeilis frábært kvöld.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
7.12.2007 | 16:31
Frostrósir.
Nei ekki þessar, þó þær séu flottar, og myndaðar í dag. Það eru þessar........
mínar uppáhalds, þetta er svona mynd fyrir, í kvöld kemur svo mynd á eftir. En eru þær ekki flottastar bara svona eins og þær eru. Fallegar bæði utan og innan.
Svo ætla þær að syngja fyrir mig og alla hina á eftir.
Frostrósir
Var með myndavélina á mér í dag.
Naust við Norðurtangann.
Fjöllin vaka yfir byggðinni.
Og svo húmar að.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
7.12.2007 | 15:32
Ótrúlegt en satt.
Hafiði heyrt það betra ?
Var að lesa þetta í Fréttablaðinu. Ég á ekki til orð.
Einu sinni bjó maður í litlu samfélagi, þar sem hver hugsaði um náunga sinn. Því er ekki til að dreyfa lengur, og það sem verra er. Hér virðist vera komið á einhversskonar möppudýrasamfélag, sem engu eirir.
Ég segi nú bara; viljiði gjöra svo vel að láta þetta niður falla. Ég vil skora á verslunina 10 - 11 að draga kæruna til baka og GEFA Lee Reyni einn eða jafnvel tvo lifrarpylsukeppi. Og dómskerfið allt má heldur betur skammast sín. Þetta heitir á mínu máli að skjóta flugu með fallbyssu. Svei ykkur bara.
Dreginn fyrir dóm út af lifrarpylsukeppi Lee Reynir Freer stakk á sig lifrarpylsukeppi í verslun 10-11 í mars. Starfsmaður hafði samband við lögreglu, aðallega til að koma Lee í húsaskjól. Málið verður þingfest á mánudag. "Með ólíkindum," segir framkvæmdastjóri 10-11. lögreglumál "Svona lagað gengur náttúrlega ekki," segir Hilmar Ingimundarson hæstaréttarlögmaður og skellir upp úr þegar hann er spurður út í þjófnaðarmál sem þingfest verður ílögreglumál "Svona lagað gengur náttúrlega ekki," segir Hilmar Ingimundarson hæstaréttarlögmaður og skellir upp úr þegar hann er spurður út í þjófnaðarmál sem þingfest verður í Héraðsdómi Reykjavíkur á mánudaginn. Hilmar er verjandi Lee Reynis Freer, heimilislauss manns sem freistaðist til að stinga inn á sig lifrarpylsukeppi.Tildrög þess eru þau að í mars var Lee Reynir svangur og lagði leið sína í 10-11 í Austurstræti og keypti þar harðfisk, rjóma og smjör. Þá voru peningar hans uppurnir. Hann segist hins vegar hafa verið afskaplega svangur og því freistaðist hann til að stinga inn á sig lifrarpylsukeppi, sem hann langaði mikið í. Þegar hann var kominn að útgangi verslunarinnar kom ungur starfsmaður 10-11 til hans og bað hann um að koma með sér inn á skrifstofu. "Ég skilaði honum auðvitað keppnum og baðst afsökunar. Maðurinn sagði að þetta væri allt í lagi og hann hefði fullan skilning á þessu. Hann hefði þó áhyggjur af því hvað ég væri illa til reika og spurði hvort ég gæti ekki komist í gistiskýlið í skjól. Ég sagði honum að það væri fullt," segir Lee Reynir. Hann segir unga manninn þá hafa stungið upp á að hringja í lögregluna svo hann gæti komist út úr kuldanum. Það þótti Lee Reyni góð hugmynd.Lögreglan tók skýrslu af Lee Reyni daginn eftir vegna málsins og sagði að keppinn yrði hann að greiða. Hann segir verslunarstjórann þó ekki hafa viljað þiggja greiðslu þar sem keppurinn hefði endað uppi í hillu og enginn skaði orðið.Hilmar furðar sig á því að ákæruvaldið hafi stefnt Lee Reyni fyrir dóm vegna málsins þótt forsvarsmenn 10-11 hafi ekki lagt fram kæru. "Þetta er svo mikið smámál og ég skil ekki hvað þeim gengur til, þetta mál kostar skattborgara svo margfalt meira en einn lifrarpylsukeppur gerir," segir Hilmar og kveðst steinhissa á viðbrögðum lögreglu og bætir við: "Þeir standa sig vel en það eru takmörk fyrir öllu."Í sama streng tekur Guðjón Karl Reynisson, framkvæmdastjóri 10-11. "Mér þykir þetta alveg með ólíkindum og finnst undarlegt að einhver vilji elta ólar við heimilislausa menn vegna svona lagaðs," segir Guðjón en tekur fram að málið þekki hann ekki til hlítar. karen@frettabladid.is
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
7.12.2007 | 13:01
Föstudagurinn 7.
Fjallatindar, fegurð geyma
Fönnum barinn klett og gil,
Þá er ljúft að lesa heima
lotning þeirra, ber ég til.
Morgunandakt.
Og svo er það Frostrósirnar í dag. þetta verður góður dagur.
Sjáumst
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.12.2007 | 18:29
Karlakórinn Ernir - drengakór með tónleika á Þingeyri í kvöld. Upplagt að mæta með góða skapið og hlýða á fallegan söng.
Ég fór í dag og keypti jólafötin á stubbinn minn. Hann þarf nefnilega á þeim að halda, þar sem hann er í drengjakór Karlakórsins Ernis, og þeir eru að syngja í Þingeyri í kvöld.
Hér er verið að binda bindishnútinn, en þar þarf afi að koma til.
Jamm það er vandi að hnýta bindishnútinn. Sumir læra það aldrei fyrst þarf mamma og svo eiginkonan að gera þetta. En minn kom með þekkinguna á þessu grafalvarlega alvörumáli með sér í hjónabandið, enda eins gott, því ég hef aldrei lært að hnýta bindishnút, og er frekar léleg að læra hvaða bnútabindingu sem er, nema ef til vill rembihnút, sem á ekkert skylt við rembingskoss, hvað þá rembing almennt.
Svona á að gera þetta hehehehe...
Svo ein mynd sem var tekinn seinnipartinn í dag.
Og eitt að lokum, að það þurfi að biðja menn að sýna stillingu, þar sem alvarlegt slys hefur orðið, og að menn skuli reyna að ryðjast framhja slysstað meðan á lokun stendur, er sorglegt svo ekki sé meira sagt. Reynið nú að sýna stillingu gott fólk og munið að tíminn er afstæður, lífið hleypur ekki fram hjá ykkur sem þarna bíðið. Notið frekar tímann til að hugsa um náungakærleikann og senda fallegar hugsanir til þeirra sem um sárt eiga að binda.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 5
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023311
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar