Jólaklippingar.

Jæja dagurinn hefst þessa dagana á því að opna jóladagatölin.

IMG_4143

Spennandi, þetta gerist eftir að búið er að tékka á jólasveinaskónum.

IMG_4152

Stubbur fær jólaklippinguna.  Matta tengdadóttir kom með skærin og greiðuna, og fór yfir nokkra hausa.

IMG_4153

Sigurjón Dagur kom líka í heimsókn.

IMG_4155

Hann er töffari þessi drengur.

IMG_4158

Hanna Sól fékk líka klippingu.  Hún var voða stillt og róleg meðan Matta klippti hárið.

IMG_4167

En Sóley Ebba spilaði jólalög og það skapaði náttúrulega stemningu.

IMG_4168

Hanna Sól að verða flott, og Aron Máni vill fá klippingu líka.

IMG_4169

Tvær litla fiktrófur hjá ömmu sín.

IMG_4176

Ömmukrullidúlla.

IMG_4146

 

Veðrið er fallegt alla daga núna.

IMG_4149

Ég þarf að fara að svæfa, en ætla að kíkja við hjá vinum mínum á eftir.Heart 

 


Myndir myndir myndir!!

Jæja mín elskuleg, þá er ég komin í samband aftur.  Elskulegur sonur minn bjargaði mér með tölvuvandræðin, og þeir í Netheimum áttu varahlut í hana, yndislegir drengir á allan hátt.  Svo nú er ég komin í samband aftur og er alveg rosalega glöð með það.

IMG_4105

Það var þessi elska, frumburðurinn sem bjargaði móður sinni.  Pabbi hennar Evítu litlu.  Takk Ingi minn. Heart

Við Úlfur fórum í verslunarleiðangur í dag og keyptum jólafötin á strákinn, hann er náttúrulega rosalega flottur.

IMG_4104

Hann á eftir að fara í klippingu, ég er að vona að Matta mín, tengdadóttir sjái um hana.

En það gerðist ótalmargt meðan ég var tölvulaus.  Ekki vildi ég hafa verið í þessum bíl til dæmis,

IMG_4029

En það voru margir til að leggja hönd á plóg.

IMG_4031

Og allt gekk þetta svo vel sem betur fer.

IMG_4011

Hér eru Hanna Sól og Sigurjón Dagur að leik.  En litla skottið þurfti að snyrtast eftir að stóra systir klippti hana um daginn.

IMG_4016

Og afi sá um þá klippingu, afsakið klæðnaðinn á herranum Blush

IMG_4018

En hún er alveg hæstánægð með drengjakollinn.

IMG_4044

Svo kom Evíta litla í heimsókn og pössun.

IMG_4047

Og hún svaf í ömmuholu. Heart

IMG_4079

Úlfur spreytti sig á rosalega góðum ítölskum kjúklingarétti.  Hann er að verða Gourmekokkur drengurinn.

IMG_4090

Hér er allt klárt.

IMG_4094

Þetta er saladið með matnum.  Stelpunum þótti það rosalega gott.

IMG_4095

Þetta er orðin uppáhaldsstaður prakkarans.

IMG_4111

Í dag var jólaballið í Leikskólanum, það var svaka fjör, hér sést litla skottið með drengjakollinn sinn.

IMG_4112

Það var gengið kring um jólatréð og sungið. 

IMG_4116

Prinsessan ekki í vandræðum með að dansa.

IMG_4129

En svo fór að kárna gamanið.....

IMG_4130

Það komu nefnilega skrýtnir karlar.

IMG_4133

Satt  best að segja varp hún skelfingu lostinn, yfir þessum körlum.

IMG_4134

Ekki er hægt að segja það um alla hina.

IMG_4135

Krakkarni fögnuðu þeim nefnilega vel, þeim Giljagaur og Stekkjastaur.

IMG_4137

Þau sungu fyrir þá.

IMG_4139

en sumir forðuðu sér sem lengst í burtu hehe

IMG_4142

Hér eru börnin með jólasveinunum.

Að lokum svo nokkrar fjallamyndir.

IMG_4022

IMG_4023

IMG_4025

IMG_4026

IMG_4027

IMG_4036

IMG_4039

Picture3

Og svona mun jólakortið mitt líta út, ég hef ekki getað unnið í því ennþá, vegna tölvuhrunsins, en nú get ég sett allt í gang með það.

Eigið góðan dag elskurnar. Heart

 


Ljósið í myrkrinu.

Jólin nálgast, jólin eru líka hátíð Ásatrúarmanna.  Ég ætla ekki að fara neitt nánar út í það.  Það skiptir ekki máli.  Þessi tími er dimmasti tími ársins, þegar myrkrið hefur yfirhöndina yfir birtunni.  En ljósið skín skærast í myrkrinu.  Það er bara þannig, þegar börn fá vasaljós, þá fara þau með það á dimmasta staðinn til að njóta birtunnar, inn í skáp jafnvel.  Við erum öll inn í þessum skáp núna, að dást að jólaljósunum, allur heimurinn, við sjáum misvel til.  Sumir eru úti í horni og missa af mesta ljósinu.  Það er okkar allra að sjá til þess að hver og eitt geti notið þess.  Með því að taka tillit til allra, lyfta ljóskerinu aðeins, svo birtan nái til fleiri, jafnvel víkja aðeins til hliðar svo næsti maður fái aðeins meiri birtu.

Það et ótrúlegt hvað hægt er að gera gott með smá kærleika, umhyggju og tillitssemi. Og ef ástæðan er ekki fyrir hendi einmitt núna á okkar litla landi, þá er það aldrei. 

Aldrei hefur fólk staðið frammi fyrir öðru eins óöryggi, reiði, vonbrigðum og ótta en einmitt nú.  Aldrei hefur útlitið verið jafn dökk og framtíðarhorfur litlar og einmitt nú. 

Þess vegna eigum við að sýna hvort öðru tillitsemi, jafnvel opna hjarta okkar og snerta eða knúsa næsta mann.  Ef maður getur ekki gert það, þá er það brosið sem vermir.  Við getum sjálf gert alveg heilmikið með því að ljóma og gefa frá okkur góða strauma.  Brosið skiptir máli.  Það lýsir upp vitund fólks, og veitir þeim gleði sem fær það.  Það kostar ekki neitt, en gefur svo mikið. 

Munum að brosa til fólksins sem við mætum.  Það getur verið að við fáum ekki bros til baka, þá er bara að brosa betur næst.  Sumir eru jafnvel hræddir við slíka nánd.  En við skulum strengja þess heit að læra að meðtaka bros og hlýleika frá næsta manni.  Læra að treysta því að fólk vilji vera gott hvort við annað. 

Mig langar til að fara hér með smá bæn að lokum.

Ég stend við uppsprettu kærleikans,
frá uppsprettunni fer sálin,
Ég.
Frá uppsprettunni vinn ég sem
þjónustumaður
og með vitundina í
kærleiksljósi,
sendum við kraft til allra þeirra sem
þarfnast hjálpar.
Megi kærleikur hins Guðlega kjarna,
streyma út og inn í hjarta mitt,
inn í hópinn minn og um allt landið mitt
og um alheim.

Gerum þessi orð að okkar, og ljósið í myrkrinu skín fegurra og bjartara en nokkru sinni, því hvað er allt heimsins glópagull miðað við visku og kærleika alheimsins.  Heart

c_documents_and_settings_owner_my_documents_my_pictures_cesil_img_3810_293710

Falleg mynd af Ísafirði, eins og Guð brosi við okkur.

IM001790

Elsku táningarnir mínir, jólabörnin í kúlunni, þau eru að vísu orðin 18 í dag og tvo á leiðinni. Heart

ég sjálf.

Og svo brosa. Heart


Hversu lágt getur þetta lið lagst?

Mikið var ég hissa að heyra að Þorgerður Katrín telur það eina von Íslands að ganga í ESB.  Þar er hún sammála Ingibjörgu Sólrúnu.  Mér þykir það vont mál þegar ráðamenn þjóðarinnar sjá ekkert annað fyrir til bjargar en að koma sér undir yfirráð annara. 

'Eg skammast mín fyrir þessar tvær konur að tala svona ábyrgðarlaust.  Bara leggjast eins og mellur og láta stóra sterka aðilann taka sig með húð og hári.  Ef þið teljið þetta einu vonina, þá er greinilegt að þið ætlið ekkert að gera af viti til að koma okkur út úr þessum erfiðleikum, og þá er ekkert annað fyrir ykkur að gera en að segja af ykkur, koma ykkur burt og láta aðra um að hreinsa til.  Þeir sem gefast upp fyrirfram eiga ENGA VON UM SIGUR.   Ég vil ekki láta draga mig niður á þetta plan.  Ég vil að við að minnsta kosti reynum að bjarga okkur með það sem við eigum og höfum hér til þess.  Við eigum alla möguleika, ef við fáum fólk við stjórnvölin sem vill vinna með þjóðinni.  Þið hafi ekki traust fólksins til að leiða okkur áfram.  Þið ættuð að skilja það og virða óskir fólksins um að það vill breytingar. 

Ég hefði satt að segja átt von á því að þið þessar tvær sterku konur hefðuð meiri dug og djörfung í ykkur fyrir íslensku þjóðína.  En nei þið hafið báðar gefið upp hug ykkar með það.  Beint í stóra hlýja hjónarúm keisarans, verst að hann er nakinn og þar að auki einvörðungu að hugsa um heimamundinn og sinn eigin hag.  Eða dettur einhverjum í hug í alvörunni að Evrópusambandið hafi svona mikinn áhuga á að bjarga okkur?  Flýtimeðferð.... hægt að koma þessu við á undan öðrum umsækjendum.... Nei.  Ætli það séu nú ekki auðlindirnar okkar sem þeir vilja gjarnan festa klærnar í.  Málið er nefnilega, að þó við hér fávitarnir gerum okkur ekki grein fyrir því ennþá, þá eru þær auðalindir sem við eigum; gjöful fiskimið, að vísu í (herkví sægreifa) heitavatnið á leið í klær auðkífinga, ósnortin náttúra, á leið í klær álrisa.  Væntanleg olía, svo ekki sé talað um orkuna í fólkinu sjálfu, betra en gull og gersemar.  Auðlindir okkar, eru nefnilega einstakar.  Hreint vatn, ómengaður matur og alsnægtir gjöfuls lands.

Því miður þá sjáum við þetta ekki, eða þeir sem eiga að gæta hagsmuna okkar.  Það sem þeir einblína á er að mylja sem mest undir erlenda aðila.  Einhverskonar undirlægjuháttur og fall fyrir smjaðri, komast í klíkurnar, vera með fína fólkinu í útlöndum. 

Hver man ekki eftir gríninu um mussuliðið, hvort fólk ætlaði að lifa af að týna fjallagrös, ganga í lopapeysum og rækta rollur.  Málið er bara að öll þessi atriði eru þýðingarmikil fyrir íslensku þjóðina, og með réttri notkun allt saman eitthvað sem mun hjálpa til við að endurreisa hana.

Ef við viljum vera sjálfstæð þjóð, þá þurfum við að standa saman, standa vörð um það sem við höfum, sem þjóð.  En áður en við getum hafið uppbyggingu og tryggt réttlæti og betra líf handa öllum, þurfum við virkilega að taka til, kjósa burtu spillinguna, hreinsa til í kerfinu, forgangsraða öðru vísi.  Til dæmis get ég ekki tekið undir að það sé ekki til fjármagn til að búa sæmilega að öldruðum, meðan við rekum rándýr sendiráð í nokkrum löndum og erum með fleiri manns á launaskrá, sem eru titlaðir sendiherrar og erindrekar allskonar, en eru samt ekki að gera neitt.  Burtu með bruðlið í utanríkisráðuneytinu, helst að leggja það alveg niður, og sameina það einhverju öðru ráðuneyti, viðskiptaráðuneytinu til dæmis.  Það ráðuneyti virðist ekki þurfa mikið umhendis, allavega hefur núverandi viðskiptaráðherra verið upp á punt. 

En ég ætla ekki nánar út í útlistun á sparnaði.  Þar er nóg af að taka, áður en farið er að skera niður hjá þeim sem minna mega sín.   Málið er bara að það fólk sem nú höndlar með fjármál okkar og líf, hefur ekki skilning á sparnaði og ráðdeild.  Það er orðið spillt af valdinu og vill ekki fara frá.  Við þurfum að finna leið til að losna við slímsetu þess, svo hægt sé að byrja upp á nýtt, með fólki sem kann, veit og hefur hjarta og móralin ennþá til staðar, umhyggjuna fyrir lítilmagnanum og réttlætið í farteskinu. 
Það er nú eða aldrei!


Ein lítil jólasaga.

Þar sem eitthvað lítið er um að ég geti sett inn myndir, fyrr en ég hef komið tölvunni minni í lag, langar mig til að segja ykkur sögu.  Hún var samin á þessum tíma fyrir nokkrum árum, mér þykir vænt um hana, og finnst hún aldrei eiga betur við en núna.  Gjörið svo vel elskuleg mín, og með henni sendi ég ykkur öllum kærleikaknús og kveðjur.  Heart

 

Ljós í myrkri.

 

Hún sat í lítilli herbergiskytru, sem átti að kallast eldhús, smágerð stúlka.  Hún sagði ekki margt en hugsaði því meira, og nú var hún að hugsa um jólin.  Skammdegið þrengdi sér allstaðar inn, og ljósin í íbúðinni voru ekki nógu björt til að halda myrkrinu úti. Jólin ! það voru margir sem hlökkuðu til jólanna, en hvað hafði hún að hlakka til, hún vissi vel að það yrði ekki mikið um dýrðir á þessu heimili. 

Mamma og pabbi unnu myrkranna á milli, en það var alveg sama hve mikið þau unnu, það stóð ekkert út af til að geta gert neitt nema rétt að skrimta.  Það sem kom upp úr launaumslaginu rétt dugði fyrir húsaleigu rafmagni og mat.  Fötin sem þau gengu í voru öll keypt fyrir lítið hjá Rauðakrossinum.  Mamma átti gamla saumavél, og stundum þegar hún var ekki of þreytt reyndi hún að breyta þeim þannig að það væri ekki eins auðsætt hvaðan þau kæmu.  Þetta voru auðvitað góð föt, en bara að maður vissi sjálfur hvaðan þau komu var nóg til að maður var ekki eins ánægður með að fá nýtt. 

Litla stúlkan sat við gluggan og horfði út í myrkrið og  snjókomuna fyrir utan litla gluggann.  Það var napur næðingur og jafnvel Kári kuldaboli þrengdi sér inn um gluggann til hennar og hún vafði snjáðri peysu þéttar að granna litla kroppnum.  Hún var oft ein, vegna þess hve pabbi og mamma unnu mikið.  Hún vildi ekki bjóða neinum heim, því hún gat ekki hugsað sér að skólafélagarnir sæju hve heimili þeirra var fátæklegt.  Og það þýddi auðvitað að henni var ekki boðið heim til annara. 

Jólin, það var eitthvað svo dapurlegt að hugsa til þeirra, allt umturnaðist einhvernveginn, allar skreytingarnar og auglýsingarnar, kaupið þetta, kaupið hitt, og jólagjafa auglýsingarnar,   maður varð svo dapur, vegna þess að það voru engir peningar til að gera sér dagamun.  Að vísu vissi hún að þær mamma myndu fara á skrifstofu mæðrastyrksnefndar á aðfangadag eftir fjögur, þegar mamma kom heim úr vinnunni og standa þar í langri biðröð til að fá jólamatinn.  Veislumat sem þau fengu aðeins einu sinni á ári. 

Æ þetta er allt svo tilgangslaust hugsaði barnið, hún var níu ára og það var eins og allar heimsins áhyggjur hvíldu á henni.  Hún hugsaði um skólafélagana, sérstaklega eina stúlku, foreldrar hennar voru mjög rík, þau áttu einbýlishús og þrjá bíla, Jórunn fékk allt sem hún óskaði sér.  Hún gekk alltaf í fötum sem voru í nýjustu tísku.  Hún kom meira að segja stundum í leigubíl í skólann.

 

Ó hvað hún öfundaði Jórunni.  Hve gott átti hún að vera svona rík og vinsæl. Allar stúlkurnar í bekknum vildu vera vinkonur hennar, og eltu hana hvert sem hún fór.  Þær ekki svo mikið sem litu í áttina til hennar hvað þá meira.  Hún var eins og lítil mús sem reyndi að láta sem minnst fyrir sér fara, þó þráði hún að vera með, vera ein af þessum glæsilegu glöðu stelpum.   Bara ef við værum rík og allir vildu þekkja okkur hugsaði hún dapurlega.  Ég vildi óska að  við myndum vinna í lottói eða eitthvað kraftaverk gerðist.

 

Allt í einu var drepið á dyr, stúlkan hrökk upp úr hugsunum sínum.  Hver gat verið að banka á dyrnar hjá þeim, meira að segja sölumenn sneyddu hjá þessari fátæklegu hurð.  Hún fór hikandi til dyra og opnaði.  Úti stóð Jórunn, hún var ekki svo snyrtileg núna, hárið allt í óreiðu og augun rauð og þrútinn. 

Má ég koma inn spurði hún hikandi. 

Já .. já auðvitað gjörðu svo vel, sagði stúlkan, hún var svo hissa að hún vissi ekki hvernig á sig stóð veðrið.  Datt ekkert annað í hug til að segja. 

Jórunn smokraði sér inn um dyrnar, fyrirgefðu að ég skuli koma svona en ég vissi ekki hvert ég ætti að fara, svo datt mér í hug að ég gæti komið til þín. 

Hingað? spurði litla stúlkan undrandi; til mín?

Já sagði Jórunn, mér líður svo illa, ég var ein heima og það var einhver maður alltaf að hringja í númerið okkar hann var svo dónalegur að ég þorði ekki að vera heima. Jórunn gekk inn í íbúðina og litaðist um, litla stúlkan skammaðist sín fyrir hve allt var fátæklegt, en Jórunn virtist ekki taka neitt eftir því.

 

Hvar eru pabbi þinn og mamma? spurði stúlkan til að segja eitthvað.   

 

Æ þau eru einhversstaðar úti að skemmta sér.  Ég veit ekki hvar þau eru, og það er slökkt á gemsunum þeirra.  Þau verða líka alltaf svo pirruð ef ég ónáða þau. 

 

Pirruð, hugsaði litla stúlkan, og hún hugsaði með sér að aldrei voru pabbi hennar og mamma pirruð eða reið við hana, hversu þreytt sem þau voru og ergileg, þá fann hún aldrei annað en kærleik og hlýju frá þeim. 

 

Já sagði Jórunn, ætli þau séu ekki einhversstaða í jólaglöggi, það er svo mikið um svoleiðis veislur fyrir jólin, og þau þurfa að mæta allstaðar til að fylgjast með. 

 

Fylgjast með? 

 

Já þú veist til að detta ekki út úr félagsskapnum, þau þurfa alltaf að passa sig á að umgangast rétta fólkið og móðga ekki neinn, pabbi segir stundum að það sé full vinna að hafa alla góða í kring um sig. 

 

Þetta var undarlegt, þvílíkt fánýti hugsaði telpan.  Hún þorði samt ekki að segja það upphátt.  En af hverju komstu til mín, spurði hún, og hugsaði um allar fallegu vinkonurnar sem alltaf voru eins og suðandi bíflugur í kring um Jórunni í skólanum. 

 

Æ þær! Þú skilur þetta ekki , en það er ekki hægt að leita til þeirra, því ef þær halda að eitthvað sé að, þá mega þær ekki umgangast mig lengur. 

 

Hvað segirðu ? Lifið þið þá í einskonar glansmynd spurði litla stúlkan undrandi. 

 

Já veistu ég hef oft hugsað um það, sagði Jórunn.  Það má aldrei tala um það við neinn ef manni líður illa, og mamma og pabbi hafa alltaf svo lítinn tíma, þegar þau eru heima. En veistu að þegar ég fór að hugsa um hvert ég gæti leitað, þá fór ég að hugsa um þig.  Þú ert alltaf svo alvörugefinn og róleg.  Það er eitthvað svo raunverulegt við þig.  ‘Eg hef öfundað þig lengi fyrir að geta bara verið þú sjálf. 

 

Þetta hafði stúlkunni aldrei dottið í hug, að nokkur gæti öfundað hana.  En kannski var glansveröldin ekki svo eftirsóknarverð þegar allt kom til alls, kannski var betra að geta verið maður sjálfur og hafa það sem maður á, heldur en að reyna að teygja sig sífellt eftir tunglinu.  Það var einhvernveginn eins og ljósin yrðu bjartari, og hún heyrði ekki lengur gnauðið í vindinum.  Hún brosti, ég ætlaði einmitt að fara að fá mér heitt kakó og brauð, viltu ekki fá líka, sagði hún. 

 

Jú takk ég finn að ég er orðin svöng, sagði Jórunn og brosti á móti. 

 

Þær þrengdu sér inn í litla eldhúsið og brátt sátu þær þar og gerðu kakói og brauðsneið góð skil.  Stúlkan litla vissi einhvernveginn að héðan í frá myndi henni líða betur, hún hugsaði með ástúð til foreldra sinna og litla heimilisins, hér var öryggi og hlýja,  þótt heimsins gæði vantaði, þá var eitthvað til sem aldrei yrði frá henni tekið og hún vissi líka að hún hafði eignast vinkonu og  hún vissi að þær myndu styðja hvor aðra í lífsins ólgu sjó.  Þær brostu báðar, þessar tvær níu ára stúlkur, svo ólíkar en höfðu svo margt að gefa hvor annarri. 

 

Án þess að þær tækju eftir því leið bjartur ljósgeisli upp frá fátæklega eldhúsinu og alla leið til himins,

 

Guð! sagði björt og falleg ljósvera,  ég hef gert góðverkið mitt fyrir þessi jólin.

angel

Rafmagn og tölvuvandræði.

Það var rafmagnslaust meiripartinn í gærkveldi svo það var kertaljós og eldhúsborðsumræður hjá okkur.  En það sem verra var, er að tölvan mín virðist hafa hlotið tjón af.  Það kviknar ekki á henni, ég var með heilmikið í henni, sem ég var að vinna með, meðal annars jólagjafir, og svo jólakortin, þetta næ ég ekki í því miður.  En síðan er allt myndefnið, ég vona samt að ég nái henni í lag, en meðan svona er, þá verður lítið um myndir, nema ég bjargi mér einhvernveginn öðruvísi.

Það var samt dásamlegt í morgun þegar ég kom út, mánabjört fjöllin, hvít og hrein, og það var yndislegt að aka niður Súgandafjörðin, baðaðan tungsljósi það glampaði á sjóinn og fjöllin gnæfðu yfir, og efst trónaði svo fullur máni.  Það var undursamleg sjón, jólalög á diski, værðarleg börnin í aftursætinu, Hanna Sól að vísu öll í spurningum; amma hvernig væri ég ef ég væri Kúlasta stelpan í heim?

Þú væri bara eins og þú ert elskan, frábær.

Nei amma þú skilur ekki, hvernig væri ég ef ég væri Kúlasta stelpan í heimi, óþolinmóð yfir skilningsleysi ömmu.

Ég held að þú værir alveg rosalega flott, sagði amma til bjarga sér fyrir horn, þetta samtal átti sér stað í göngunum.

Já og með galdrastaf fullyrti sú stutta, ákveðinni röddu.

Já auðvitað galdrastaf.  Sagði amma. 

En sem sagt við sjáum til hvort ég bjarga mér eða ekki.  þá verður bara að hafa það, ef ég get ekki sett inn myndir, eða yfirleitt verið í sambandi. 

En ég sendi ykkur bestu kveðjur inn í daginn. 


Föndrað í leikskólanum.

Ég náði mér í flensuskít, og hef verið eins og drusla. 

En í fyrradag var föndurdagur á leikskólanum okkar, og ég var með, reyndar var rosalega gaman, kakó og smákökur á boðstólum, sem krakkarnir höfðu bakað sjálf.  Það er allt svo heimilislegt og vinalegt á Tjarnarborg.  En ég tók nokkrar myndir.

IMG_3998

Sumir eru einhvernveginn svo litlirHeart Svei mér þá hún var hálffeiminn við allt fólkið.

IMG_3999

Svo var að velja ser skreytingarefni.

IMG_4000

Já sumir eru alltaf hrifnir af rauðu og bleiku....

IMG_4001

Pabbarnir voru ekkert síður áhugasamir í föndrinu en mömmurnar og börnin sjálf.

IMG_4002

Skemmtileg og notaleg samverustund, og börnin voru algjörlega afslöppuð og höfðu gaman af.

IMG_4003

Já það er virkilega gaman að gera eitthvað allir saman.

IMG_4004

Ásthildur var mjög áhugasöm, þegar hún komst í gang, hún gerir aldrei neitt í hálfkáki.  Hún gefur sig alla að því sem hún er að gera.

IMG_4006

Hún fer líka sínar eigin leiðir.

IMG_4007

Og mest þurfti hún að skreyta sínar eigin hendur hehehe.. með aðstoð ömmu.

IMG_4008

Já þetta var gaman.

IMG_4009

Engin kreppa hér, bara gleði.

IMG_4010

Her er svo aftur á móti hugmynd að jólagjöf sem kostar ekki mikið, svona steina niðursag, ég get sagt ykkur að mínir krakkar þessi litlu, þeim finnst þetta spennandi og skemmtilegt, að raða þessum náttúrulegu kubbumm upp. 

En eigið góðan dag elskurnar.


Amma eru Heilu jól?

Spurði Hanna Sól, á leiðinni frá Suðureyri í gær, ég var annars hugar og sagði já já, hélt að hún ætti við heilög jól, svona eins og gengur.  En eru þá til hálf jól? spurði barnið LoL

IMG_3974

Magnaður Súgandafjörður.

IMG_3975

Myndirnar teknar um hálf fjögur í gær.

IMG_3976

Hanna Sól með viðurkenningu frá slökkviliðinu, þeir komu í leikskólann og ræddu um brunavarnir.

IMG_3977

Skottið að fá sér "nammi" LoL

IMG_3981

Jólasteikurnar að bíða eftir nammi.  Þessar sluppu reyndar við að verða jólasteikur.

IMG_3982

Og Súgfirðingar búnir að kveikja á jólatrénu.

IMG_3986

Þessi grallari harðneitaði að fara að sofa í gærkveldi,  hún sofnaði mjööööög seint.

IMG_3988

endaði með því að stubburinn minn stóri fór að sofa á undan henni.   Ég held að ég verði að biðja fóstrurnar að hætta að láta hana sofa í vagninum á daginn.  Greinilega. Blush

IMG_3990

Það er ekki einu sinni hægt að vera reið við þetta kríli.  Því hún er svo ánægð.

IMG_3995

Hún er algjör grallari. Heart

eigið góðan dag.


Myndbrot í dag og í gær.

Jæja þá eru nokkrar myndir á dagskrá.

IMG_3937

Þessar voru teknar í gær.

IMG_3942

Áður en hægt er að setja jólaljósin upp, þarf að snyrta tréð.  Júlíana mín, ef þú lest þetta, þá sérðu skreytingarefnið liggjandi þarna, bara taka það sem þú vilt. 

IMG_3943

Litla skotta fylgist með úr eldhúsglugganum, en það var hávaði í klippunum og bæði hún og kötturinn voru ekki alveg með á nótunum í þessum hávaða.

IMG_3949

En birtan er bara einstök á þessum árstíma.

IMG_3950

Þessar myndir eru teknar með stuttu millibili, enda dagurinn ekki langur hér hjá okkur núna.

IMG_3951

Ótrúlegt ekki satt?

IMG_3952

En það þarf líka að sinna músikinni, gott hjá afa að hafa hjálparkokk.

IMG_3957

ég veit að þið hafið heyrt spilað fjórhent á píanó, en hafiði verið á konsert, þar sem spilað var fjórhent á klarinett ? LoL

 

Þessar voru svo teknar í morgun.

 

IMG_3958

Já stubbarnir eru góðir á morgnana, og hún syngur með Tinky Vinky, Dipsý, Lala, Pó, og svo er talið á þýsku, og hún segir orðin eftir þeim á þýsku, og skilur greinilega, svo eitthvað man hún frá Vínardvölinni.

IMG_3959

MMM það er erfitt að vakna á mánudagsmorgni.

IMG_3960

Jafnvel þó litla systir sé með allt á fullu, í sama rúmi LoL

IMG_3961

Þessar voru svo teknar í morgun, stemningsmyndir fyrir jólin.

IMG_3963

Sem betur fer hafa margir sett upp jólaskreytingarnar.

IMG_3964

Það lífgar upp á skammdegið.

IMG_3965

Minn bær minn bær.

IMG_3966

Og betri mynd af Engi.

IMG_3967

Og kúlan.

IMG_3968

Þessar myndir eru allar teknar á sama klukkutímanum.

IMG_3969

Segið svo að náttúran skreyti ekki líka fyrir jólin.

IMG_3971

Heart

IMG_3972

Vona að vinir mínir erlendis, fái smá jólafiðring við svona ískaldar, fallegar veðurmyndir héðan af hjara veraldar.  Eigið góðan dag elskurnar mínar. Wizard


Myndir úr kúlunni.

Þá eru það nokkrar myndir.  Við erum tvær heima Ásthildur og Ásthildur, Hanna Sól er í jólabaksti með Tinnu frænku sinni, afi á lúðrarsveitaræfingu og Úlfur í afmæli hjá Daníel Erni, en hann er 9 ára í dag, ömmu strákurinn. 

IMG_3947

Afmælisbarnið kíkti við hjá ömmu í dag, og ég bakaði vöfflur í tilefni dagsins.  Innilega til hamingju með afmælið elsku Daníel minnHeart

IMG_3912

Svona var veðrið í gær, fallegt eins og venjulega.

IMG_3913

Doddi búin að setja upp jólaskreytingarnar á Engi, þessi er fyrir Magný og Rannveigu.

IMG_3914

Svo þarf að ditta að jólaseríunum á þessum tíma og Hanna Sól er dugleg við það  að hjálpa afa.

IMG_3916

En sú litla hehehe.. afi klæddi hana í sokkabuxur og henni er svo sem alveg sama hvernig þær snúa.

IMG_3918

Það þarf líka að hengja upp seríurnar, þegar búið er að laga þær og þá er nú gott að hafa lítinn aðstoðarmann.

IMG_3919

Jamm þetta er spennandi LoL

IMG_3921

Stóra systir þarf nú líka að prófa...

IMG_3923

Æ það verður einhvernveginn allt svo miklu skemmtilegra með svona kríli sér við hlið, í jólaundirbúningnum.Heart

IMG_3927

Sæta stelpan mín.

IMG_3931

Og litli prakkarinn.

IMG_3934

Þetta kemur vel út, satt að segja.

IMG_3935

Einhvernveginn náðu þær í skæri, og Hanna Sól ákvað að gefa litlu systur jólaklippingu Blushég vona að mamma hennar sjái þetta ekki.  En Matta lagar þetta örugglega fyrir mig áður en hún kemur.

Eigið góðan dag elskurnar mínar. Heart


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Des. 2008
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband