Sjáumst.

Ég verð ekki mikið við á næstunni.  Bið ykkur bara um að gleyma mér ekki Smile, hið daglega veður verður ekki alveg á næstunni, og fjallafólkið mitt verður að sýna biðlund, það er hægt að skoða gömlu myndirnar til að fá snertingu við fjöllin okkar fögru. 

 Sjáumst bara hress og kát. 

Ein mynd svona í lokin.  Hún er tekin árið 1995, þegar kúlan fór í kaf, við skulum vona að það snjói ekki svona mikið núna, því það var virkilega erfitt í öllum þessum snjó.

 

snjor

Brúnu blettirnir sýna bara að það er oft búið að taka hana niður og sýna gestum og gangandi, sérstaklega þeim sem koma langt sunnan að og þekkja ekki til snjóa.  Efri punktarnir eru eins og sést af því að hún hangir uppi í eldhúsinu til að minna mann á að það getur alltaf komið snjór.  Smile

 

Sjáumst !! HeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeartHeart


Jólagjafir og hið daglega veður á Ísó.

Eins og sjá má á myndunum, þá er veðrið við það sama í dag.  En spáir að hætti að snjóa á morgun, eins gott fyrir mig.

IMG_1081

Það er orðin þæfingur á götum, og gröfukarlarnir á fullu að moka götur og opna strætóleiðir.

IMG_1082

enda komið töluvert af þessum fallega hvíta hreina snjó.

En börnin komu í heimókn í gær, þau sem ekki komu á aðfangadagskvöld.  Þau fengu gjafirnar sínar í gær, og þær slóu í gegn, eins og hjá hinum.  En ég ákvað að gefa hverju þeirra ævintýri um þau sjálf.  Því miður tókst mér ekki að klára alla, en þau fá sínar sögur seinna.

IMG_1074

Svo lásu þau sögurnar sínar hvort fyrir annað, það var voða notalegt.  Og þau voru bara þrælspennt í sögunum sínum.

IMG_1077

Svo spiluðu þau Risk fram eftir kvöldi, og fóru seint að sofa.  Það er nefnilega allt leyfilegt heima hjá ömmu. BlushHeart


Hið daglega veður á Ísó.

Ég segi eins og fleiri hér, þetta er bara letidagur.  Bara að liggja í leti og láta fara vel um mig, drattast ef til vill í göngutúr því að veðrið er orðið bara nokkuð gott.  Það var mugga í morgun, en nú er birt upp og logn.

IMG_1071

Já svona var veðrið kl. hálf tólf.

IMG_1072

en núna er veðrið orðið svona

IMG_1073

Já ætli ég skondri ekki bara í útiföt og fari í smálabbitúr.  Hafið það gott elskurnar mínar. Heart


Jóladagur og hið daglega veður á Ísafirði. Jólasveinar og lítill trommuleikari.

Aðfangadagskvöldið var mjög skemmtilegt og líka viðburðarríkt, þar sem hingað komu óvæntir gestir sem krakkar kunna vel að meta.

IMG_1068

En veðrið í dag er fallegt, og jólin eru hvít.

IMG_1069

Þessar teknar fyrir nokkrum mínútum.

 

IMG_0930

Það var ýmislegt dundar meðan beðið var eftir kvöldinu.  Það er dálítið langur tími og frekar leiðinlegur, því það er svo mikið að hlakka til.

IMG_0925

Sumir einfaldlega fengu sér lúr á besta hugsanlega stað.  Hún var sárlasin þessi litla dúlla.  En braggaðist er leið á kvöldið.

En þar sem við vorum að byrja á súpunni í gær, heyrum við að það er bankað á dyrnar.

Og inn komu tveir karlar, þeir glöddu börnin heldur betur.

IMG_0934

Búnir að týna hrútunum, en áttu hornið. 

IMG_0938

Sumir voru nú svona hálf smeykir til að byrja með allavega.

IMG_0940

Það var allavega mikið gaman og mikið fjör.

IMG_0941

Smile

IMG_0944

Og svo fengu þau gott í poka.

IMG_0947

Já þetta var sannarlega óvænt og skemmtileg uppákoma, og gaman að fá jólasveinana í heimsókn. 

IMG_0967

Svo eru það náttúrulega gjafirnar. 

IMG_0971

eins og sjá má voru jólagestirnir mínir á öllum aldri, frá núll til níræðs.

IMG_0975

Litla jólabarnir mitt, hún Evíta Cesil.

IMG_0978

Og svo er það stigin hehehe.... hún var komin upp í hann miðjan áður en við tókum eftir henni, algjör klifurköttur sú litla.

En hún er algjör trommari, ef hún verður ekki einhverntíman heimsfrægur trommari þá veit ég ekki hvað.  Sjáiði einbeitinguna.  Og hún má hvorki sjá trommur eða bara kjuðana, þá iðar hún öll.

 

IMG_1004

IMG_1007

IMG_1017

IMG_1022

IMG_1035

Vú hehehehe.... af öllum kröftum ...

IMG_1036

Og svo smábros.

Eigið góðan og gleðilegan jóladag.  Heart


Aðfangadagur með myndum til vina minna um heimin allan.

Það er aðfangadagur og veðrið er falleg, svolítil mugga í morgun en nú er orðið bjart, tók nokkrar myndir út um dyrnar, og skelli þeim hér inn fyrir fólkið mitt úti í heimi, og allstaðar, þeir sem þeirra vilja njóta. 

 

IMG_0914

Birtan er ekki mikil, en það er samt einhver fegurð í loftinu.

IMG_0915

Jamm allt út um dyrnar hjá mér.

IMG_0916

Eiginlega er þetta hundslappadrífa.

 

IMG_0917

Og svo birti upp.

 

IMG_0918

Smá himnagallerí í lokin.

Svo þakka ég ykkur öllum fyrir hve yndisleg þið hafið verð við mig þetta tæpa ár sem ég hef verið hér.  Það er rosalega yndælt að fá svona móttökur.

Smá hugleiðing;

Hver segir að jólasveinninn sé ekki til?

Hann fær 7 milljón bréf á ári alltastaðar að úr heiminum.

Hann hefur aðstoðarmenn við að setja í skóinn allstaðar í heiminum og sumstaðar á hverri nóttu í 13 daga. 

Það hefur verið stofnað félag Jólasveina.

Það eru ótaldir menn út um allan heim sem fara í fötin hans og herma eftir honum. 

Börnin elska hann.

Þó enginn hafi eiginlega séð hann, þá vita menn nákvæmlega hvernig hann lítur út.

Það eru líka til 13 afbrigði af honum hér á okkar landi.  Hver með sitt nafn og sérkenni. 

Getur einhver verið í vafa um það að Jólasveinar séu til ? 

Ég held til dæmis að biskupinn þurfi aðeins að lesa sér betur til, áður en hann útilokar þennan alheimsflakkara og góðvin allra barna. 

Eigið þið gott og yndislegt kvöld í faðmi fjölskyldu og vina.  Megi magi ykkar fyllast af yndælum mat, og hjartað slá örar af gleði og hamingju. 

HeartHeartHeartfinal


Þorláksmessa og veður.

Já veðrið er frábært hér núna á Þorláksmessunni.

IMG_0906

Hér eru fjöllin fyrir ykkur sem ekki komast heim.

IMG_0908

Frá mínum sjónarhóli elskurnar.

 

IMG_0909

Þessi tekin á lóðinni minni. 

IMG_0910

Fyrir Jón Steinar, skipin komin inn og skreytt, Júlíus Geirmundsson og Páll Pálsson.

IMG_0911

Þetta er svona Thailand í hnotskurn, þær elska að skreyta þessar elskur, og lífga upp á tilverulna hjá okkur hinum.

 

IMG_0913

Og svo tungliði í kvöld, tunglið tunglið taktu mig og berðu mig upp til skýja.  það vanta allaveg ekki mikið upp á að Máni gamli sé fullur á sinni ferð um geiminn núna. 

Eins og þið sjáið af þessum myndum, stefnir í hvít jól á Ísafirði á morgun. 

Þetta er í boði Ísafjarðar og mín. Heart


Vetrarsólstöður og Gleðileg jól.

dag eru vetrarsólstöður, stysti sólargangur, myrkasti dagurinn.  Á morgun fer svo að birta á ný.

IMG_0903 

Það er ljós yfir Kubbanum mínum, ef til vill ljós engils sem gætir okkar hér.

IMG_0904 

Og dísirnar dansa í Naustahvilftinni.  Blæjudans fyrir þá sem vilja sjá og skynja. 

 IMG_0900

Og ömmustubbar spá í framtíðina.

Svo langar mig til að þakka ykkur samfylgdina þetta árið, það er ótrúlegt hve maður getur kynnst og þótt vænt um fólk sem maður hefur aldrei séð.  En sennilega kynnist maður sálinni betur svona við að lesa það sem fólk skrifar.  Þar leynist manns innri maður í hverjum stafkrók. Hér eru margir sem mér er farið að þykja mjög vænt um.  Og hlakka til að fá að fylgjast með áfram á næsta ári.  Oft þarf svo lítið til að geta glatt svo mikið.  Að maður trúir því ekki fyrr en maður upplifir það sjálfur.

o0o 

Hér er smásaga. Ungi maðurinn hafði fengið nóg af lífinu.  Hann var ákveðin í að enda þetta allt.  Og þennan dag skyldi látið verð af því.  Hann gekk þungum þönkum niður eftri götunni í átt til sjávar. Þá mætti hann gamalli konu.  Hún brosti til hans, og spurði hvort hann gæti mögulega hjálpað sér að bera pokana sem hún hélt á í kræklóttum höndum. Ég er svo slæm af gigt, sagði hún, og pokarnir eru þungir. Hann hugsaði með sér að tíminn skipti ekki máli, til eða frá, og tók af henni pokana og bar þá út að bílnum hennar.  Þetta var gamall Citroen.Æ hvaða hvaða sagði konan, nú hef ég gleymt lyklunum mínum inn í búðinni þarna.  Ekki viltu vera svo vænn að hlaupa fyrir mig og ná í þá ?Ég er fljótari í förum en hún, hugsaði hann og fór og náði í lyklana. Ég er nefnilega svo slæm af gigtinni sagði gamla konan.  Mikið varstu nú vænn, ég vildi óska að ég gæti gert eitthvað fyrir þig í staðinn. Hann stóð þarna og virti hana fyrir sér, gamla dálítið hokna, í snjáðum fötum við þennan gamla bíl, en það var einhver friður yfir henni samt, og hann horfði inn í augu sem voru full af ástúð og gleði.Og þá allt í einu sá hann hve heimskulegar áætlanir hans voru.  Hann rétti úr sér og brosti, fyrst komu viprur í munnvikin sem breiddust út yfir allt andlitið.  Í dag hefur þú gefið mér þá stærstu gjöf sem ein manneskja getur gefið annari, sagði hann hlýlega.  Hann tók utan um gömlu konuna og faðmaði hana að sér.  Svo gekk hann rösklega til baka, þaðan sem hann hafði komið. Þar sem ekkert er nytt undir sólinni, þá hefur þetta örugglega gerst einhversstaðar.  Svo langar mig til að setja hér inn smá kveðskap.

Jól.

 

Ég hugsa oft er herðir frost,

Og hel dimm nóttinn nálgast oss.

Með skammdegi og skugga,

er skylda okkar að hugga.

Þann sem ekki á neinn að

einskis barn, við skiljum það,

að þá er þörfin brýna

að þekkja vitjun sína.

 

 

Með kærleikann sem leiðarljós

lifir best vor sálarrós,

það blómið blítt sem dafnar

og birtu andans safnar.

Allt sem innnra áttu nú

elsku þína von og trú,

vert er gaum að gefa.

grát og sorgir sefa.

 

 

Dreyfðu ást um byggð og ból

þá bestu áttu gleði jól.

Gott er lífið sitt á því að byggja,

að sá sem gefur öðrum, allt mun þiggja.

 

 

 

 

Jólahugvekja.

 

 

Hátíð ljóss og lita,

Lýsir dimma jörð.

Það vinur skaltu vita

að völt er mannsins gjörð.

 

Í djúpi morgundagsins

ef drungi í sálu býr,

Af sorgum sólarlagsins

þá löngur áfram knýr.

 

 

Að vilja vaka og vinna

og verja fast sitt leg.

Því sókarfæri sinna

að sækja fram á veg.

 

Í miðju drungans dapra,

er dásemd – jólaljós.

Sem eyðir nístingsnapra

norðri – frostsins rós.

 

Og lætur blíða bera

oss blessun yfir hjörð,

Þá von mér viltu gera,

að vekja Ísafjörð.

 

Rosir

Gleðileg jól öll sömul og takk fyrir að vera til. Heart


Hitt og þetta.

Það birti svolítið til eftir hádegið, og himnagalleríið opnaðist smástund.

IMG_0877

Alltaf skemmtilegt þegar það gerist.

IMG_0879

Þá veit maður alla vega að sólin hefur ekki yfirgefið okkur alveg.

IMG_0880

Heldur aðeins brugðið sér í smá vetrarfrí eins og svo margir íslendingar.

IMG_0881

Þetta er hann Grettir ungur labrador sem hefur eignast yndislegan húsbónda og gott heimili, og er algjör kelirófa.

IMG_0887

Svo er hann lika alveg til í smá piparkökuleik.

IMG_0891
en það voru sem sagt litlu jólin hjá Ásel steypustöðinni og allir glaðir, pólverjarnir sem nýlega hafa komið, komast ekki heim, en hafa getað sent fjölskyldum sínum glaðning, og eru sáttir með það.  Svo fengu þeir góðar gjafir frá fyrirtækinu.  Portúgalarnir eru farnir heim í jólafrí.

IMG_0890

Það var glatt á hjalla, og fín veisla.

IMG_0896

Og þessi bátur er örugglega á leið í sína hinstu ferð inn í fjörð, þar sem Siggi Sveins sú gamla kempa mun kveikja í honum á gamlárskvöld.  Allt tekur enda er sagt.  Enda er örugglega flottara að gleðja börn og gamalmenni með flottri brennu til að fagna nýju ári, en að grotna niður í fjöruborði gleymdur öllum.  Eða þannig.  Þetta heitir af fara með stæl. 


Hið daglega veður og jólagjafir.

Hið daglega veður er bara ágætt 21 desember og vetrarsólstöður á morgun, þá byrjar að birta aftur.

IMG_0875

IMG_0876

Sérkennileg birta er alltaf á þessum árstíma.  Það er af því að sólarljósið brotnar uppi í skýjunum og kemur óbeint niður í fjörðinn minn.

En ég sagði ykkur í gær að pabbi hefði beðið mig um að teikna mynd, þegar ég var lítil.  Það er framhald á þeirri sögu, sem er dálítið skemmtileg og hrífandi. 

En svo er mál með vexti að í hitteðfyrra þá var ákveðið að fara í að hreinsa út háaloftið á mínu æskuheimili, þar kom ýmislegt í ljós, sem hafði verið geymt fram á þann dag. 

Eitt af því var mynd sem ég kannaðist við, en það var einmitt myndin góða sem ég teiknaði fyrir föður minn 50 árum áður.  Sumar gjafir endast bara nokkuð vel 

Mynd frá mér

Og það má alveg sjá hvaða mótív ég notaði.  Mér þótti vænt um að sjá að hún hafði verið geymd allan þennan tíma.  HeartInLove

Svo smá krúttmyndir.

Júlíana2346 001

Þessar elskur eru 10 ára í dag, en það voru alltaf ömmudagar og ömmu helgar.

Mynd frá mér 001

Sumir taka tæknina í sína þjónustu. LoL

Ætla að bæta smávegis við, var að taka til í herberginu mínu og rakst á þessa fallegu hugvekju, hún er alveg í anda þessa tíma,

Ég stend við uppsprettu kærleikans,

frá uppsprettunni fer sálin, ég.

Frá uppsprettunni vinn ég sem þjónutsumaður

og með vitundina í kærleiksljósi,

sendum við kraft til allra þeirra sem þarfnast hjálpar.

Megi kærleikur hins Guðlega kjarna,

streyma út og inn í hjarta mitt,

inn í hópinn minn og um allt landið mitt

og um alheim. Heart

Eigið góðan dag.


Gjafir og stress.

Í dag er stressið í hámarki, undirbúningur jólanna í algleymingi, og margir um það bil að fá magasár af taugaveiklun. 

IMG_0874

Þetta er jólaskraut letingjans, eða þess sem tekur lífið ekki of alvarlega.  Manneskja sem hefur svona jólaskraut inn á heimilinu er annað hvort ekki viðræðuhæf eða einhver sem ekki stressar sig á aðstæðum.

Okey ókey ókey tekið inn í kúlunni, en veggurinn er líka tákn um manneskju sem annað hvort tekur lifið ekki of alvarlega, eða er ekki að stressa sig á hlutunum.  Sú manneskja er reyndar múrari, og tekur hlutina eins og þeir eru, og þetta er alveg jafnflott og hvað annað, enda sést mótatimbrið á veggnum, hann lýsir þvi sem gerðist, alveg eins og ljósin skýra út að hlutirnir eru ekki teknir mjög alvarlega á þessu heimili.

Ég frábið mér einhverja hreinsispekulanta með sjónvarpið í för.  Og ég vil segja við ykkur hin, sem annað hvort hafið ekki heilsu til að gera allt sem ykkur langar til, eða hreinlega hafi hvorki tíma né efni á því, að svona getur þetta verið hjá fólki sem hefur alveg efni á einhverju miklu flottara, en finnst bara einfaldleikinn bestur.  Það er ekki allt fengið með því flottasta og dýrasta sem til er, heldur skiptir mestu máli að maður sé ánægður með það sem maður hefur. 

Það skiptir heldur ekki máli hversu dýrar gjafir maður gefur, heldur skiptir máli að maður hafi lagt allt sitt í valið.  Til dæmis prjónaðir sokkar, einhver sem hefur lagt á sig nokkurra daga vinnu við að prjóna sokka handa þeim sem honum þykir vænt um, í hverri lykkju er kærleiksrík hugsun, er það ekki flott gjöf?  Eða maður semur smásögu með gjöf þyggjandans í stjörnuhlutverki, er það ekki hið besta mál ?  Þó maður gæfi einhverjum litabók, sem viðkomandi hefði lagt á sig að mála allar myndirnar í, þá er það merki um umhugsun og kærleika.  Því það er jú það sem mest og best er, að finna að viðkomandi hafi lagt á sig að gera eitthvað fyrir MIG, að finna að gjöfin er í einlægni eitthvað sem hefur kostað tíma og umhugsun þess sem gaf.  Haldið þið að það séu ekki bestu gjafirnar eftir allt saman, að vita að þið hafið þegið eitthvað frá ástvini, sem þið vitið að hann hefur lagt eitthvað á sig til að gefa ykkur.

Faðir minn sagði gjarnan þegar ég var barn, og spurði hvað hann vildi fá í gjöf frá mér, hann vissi náttúrulega að ég hafði engin fjárráð til að kaupa neitt, en spurði af stolti.  Ég vil bara fá teikningu frá þér, sagði hann, og svo fór maður og var alsæl með þessa vitnsekju, og setti allt sitt í að teikna eins fallega mynd og maður gat fyrir pabba. 

Gjafir eru tvíbent vopn.  En góð gjöf, gefin af góðum hug, hvort sem hún kostar fimmhundruð kall eða milljón skiptir bara ekki máli þegar upp er staðið.  Ef hugurinn fylgir ekki máli, eða gjöfin er gefinn í hugsunarleysi, þá skiptir verðlag hennar engu máli.

Þetta er vert að hafa í huga.  Og stundum getur besta gjöfin verið eitthvað sem "kostar" ekkert, nema ást og kærleika, umhyggu, bros eða faðmlag.  Höfum það líka í huga. 

 Í fyrrakvöld drakk yndislegur maður sig í hel, vísvitandi um hvað hann var að gera.  Þessi maður var tiltölulega ungur, og afskaplega listrænn, hann átti við áfengisvandamál að stríða, og hann hreinlega tók þessa leið út.  Sorglegt, en svona er þetta stundum.  Þegar menn gefast upp í lífsins ólgusjó,  þá getur enginn mannlegur máttur bjargað.  Félagar hans sem eru á svipuðu róli og hann, reyndu að koma honum á spítala og reyndu sitt í sínum félagslega vanmætti til að hjálpa, en allt fyrir ekki, hann var ákveðin í að enda þetta allt. 

Ég vil biðja fyrir sálu hans, og senda ættingjum hans mínar samúðarkveðjur.  Þessi öðlingur mun örugglega fara beint upp i himininn, því þar eru verk mannanna metinn eftir sálinni en ekki andlegri mammons auðlegð.  Hann þjónaði listagyðjunni af sínum vanmætti.  En svona er lífið stundum og dauðinn. 


Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Des. 2007
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 41
  • Frá upphafi: 2023310

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband