Hrekkjavaka í kúlunni.

Já það var sem sé Hrekkjavökupartí í kúlunni í gær.  Eitt barnabarnið Daníel Örn fékk þessa frábæru hugmynd, og fékk svo leyfi hjá ömmu sinni til að halda veisluna.  Hún var ákveðin með góðum tíma.  Ekki var verra að Úlfurinn hafði fengið leyfi til að kaupa Graskerið góða, og nú var hringt í ömmu í vinnunna og áhyggjur beraðar af því að ég var ekki kominn heim til að gera að graskerinu.  Ég sagði þeim að graskerið yrði tilbúið í tíma. Smile

IMG_9846

Það var því með nokkrum ugg, sem ég réðist með hnífnum að þessum tröllvaxna ávexti.

IMG_9916

ég get frætt ykkur um að það er heilmikið kjöt í honum.

IMG_9913

Þarna voru mjög áhugasamir aðstoðarmenn.

IMG_9917

Kjötið fjarlægt.

IMG_9920

Þá var komið að því að skera út í flykkið LoL Þetta var rosalega skemmtilegt.

IMG_9922

Og hérna er árangurinn.  Pumpkinið sætara en ég meira að segja.

IMG_9929

Tengdadóttirinn Tinna bakaði fullt af pizzum, sem voru vel þegnar.  Þau voru um 18 talsins krakkarnir þegar mest var. Og veislan bara rosalega skemmtileg.

Halluween

Þið þarna kóngúlóafóbíufólk, hver er hræddur við svona kónguló ?

IMG_0014

Það var farið í Limbó

IMG_0015

IMG_0023

Fullorðnafólkið tók auðvitað þátt líka hér er Skafti sonur minn.

IMG_0029

Partýdömurnar voru af ýmsum stærðum og aldri.  Evíta  Cesil og pabbi hennar.

IMG_0030

Þarna voru líka riddarar og ninjakarlar. Svakalega tekuru mikið af myndum, sagði riddarinn um leið og hann setti sig í stellingarna LoL

IMG_0041

Þessi er í boði Jennýjar, svo hún fái smá krúttkast. Heart Hvernig smakkast ?

IMG_0050

Þú færð klapp  á kollinn LoL

Sjáiði hvernig stelpustýrið pósar framan í myndavélina.  Hún er ótrúleg, verður sennilega fyrirsæta, ekki herðartrjáategundinn samt.  Heldur þessi fallega eins og hún er týpa.

IMG_0067

Hér er frumburður sinnar móður. 

IMG_0068

Kóngulóarmenn og Batman Gaman að leika sér í dótinu hans Úlfs.

IMG_0136

Hefðarmey frá París dettur manni í hug.

IMG_9933

Sjóræningjar.

IMG_9935

Ljóska ?  Ónei, þetta er strákurinn sem stóð fyrir þessu öllu hann Daníel Örn.

IMG_9937

Allt í fullum sving.

IMG_9940

Meira að segja Zorró orðinn spenntur.

IMG_9942

Þetta er alveg nóg málning á mig,  þakka þér fyrir !

IMG_9943

Pizzurnar hennar Tinnu voru vel þegnar, enda góðar.

IMG_9945

Nammi namm.

IMG_9952

Summum fannst erfitt að sjá út.

IMG_9953

Flottir gaurar.

IMG_9964

Eins og ég sagði, kóngulær geta verið ansi krúttlegar. LoL

IMG_9968

Ef þið hafið haldið að amma Kúl ætlaði ekki að taka fullann þátt, þá er það misskilningur.

IMG_9932

Og þeim fannst amma bara ansi flott.

IMG_9972

Og ömmu fannst sþau frábær líka.

IMG_9974

Já það voru ýmsar fígúrur á ferðinni. Tinna sjóræningi. 

IMG_9977

Og auðvitað urðu þeir að slást riddararnir, hvað annað, allt í góðu samt.

IMG_9978

Hér er hann upphafsmaðurinn, og í pels af ömmu.

IMG_9981

Smá hópmynd, hér vantaði samt nokkra, það er ekki hægt að safna svona stórum hópi saman hehehe þau eru út um allt.

IMG_9983

Kraðak af kátum krökkum Heart

IMG_9991

Já þau voru mörg, og hér eru ekki einu sinni allir, eins og ég sagði áðan, þau voru 18 stk.

IMG_9998

Sá hlær best sem síðast hlær eða þannig LoL

Vona að þið hafið notið sýningarinnar.  Ég varð eiginlega að setja inn svona margar, af því að ég tímdi ekki að sleppa neinni.  Þetta var virkilega gaman, og sýnir að bestu skemmtanirnar eru þegar allir skemmta sér saman ungir sem aldnir.  Það er í raun og veru alltof lítið gert af því á þessum tímum aðskilnaðarstefnu fjölskyldumeðlima.  Þegar ungabörnin fara á vöggustofu, í leikskólann, skólann, mamman og pabbinn í vinnuna, amman og afinn á elliheimilið.  Þarf þetta að vera svona ?  Er ekki einhversstaðar millivegur þar sem stórfjölskyldan fær að hafa meiri tíma saman.

Eftir þessa skemmtilegu veislu, fór ég svo á stórtónleika í Edinborg.  Það var Stórsveitinn sem lék og var aldeilis frábært.  Ég ætla að setja myndir af því hér inn seinna í dag.  Meiriháttar skemmtilegir tónleikar.


Snjór og vetrarbirta á Ísafirði, og svo Hrekkjalómar.

Það er komin hlýindi aftur.  Og fallegt veður í dag.

IMG_9895

Það er þessi birta sem ég er svo hrifinn af.

IMG_9896

Þegar sólin nær ekki alveg upp fyrir fjöllinn, en sendir birtuna niður.

IMG_9899

ég er byrjuð að gefa krumma, og hann er strax farinn að bíða og heimta matinn sinn og engar refjar, krúnk krúnk segir hann frekjulega og horfir beint á mig.

IMG_9900

En það er þessi birta, sem er alveg unaðsleg.

IMG_9904

Þær eru teknar í hádeginu þessar.

IMG_9905

Þið sjáið að gallerí himinn getur verið stórkostlegur líka á veturna.

IMG_9907

Snæfjallaströndinn brosir við manni. 

En ég þarf að drífa mig, það er verið að undirbúa Halloweenveislu barnabörnin eru að skreyta, og amma þarf að taka innan úr graskerinu, svo þau geti skreytt það líka.  Þetta verður heljar ömmu í kúlu veisla, með allskonar verum.  Eins og sjá má nú þegar.

IMG_9910

Hér er verið að skreyta og undirbúa.

IMG_9911

Sumir vilja samt frekar horfa á sjónvarpið, og láta þau eldri um undirbúninginn.

Jamm ég þarf að rjúka.  Sjáumst. Heart


Jólagjafalistinn hans afa.

Hulda bloggvinkona mín skoraði á mig að setja saman nýjan óskalista yfir jólagjafirnar hennar ömmu.

Þar sem ekki er hægt að endurtaka leikinn, þá datt mér í hug að gera óskalistann hans afa.

Svo hér kemur hann:

 

Bréf frá Ömmu.

 

Ágætu ættingjar mínir, þar sem nú líður að jólum einn ganginn enn, og þið brugðust svo vel við í fyrra, þá datt mér í hug að gefa ykkur smáhint fyrir þessi jólin líka.

 

Eins og þig vitið þá kemur hann afi ykkar ekkert nálægt því að kaupa inn jólagjafirnar.  En samt sem áður  er það alltaf hann sem fær bestu og skynsamlegustu gjafirnar.  Hlýja sokka, nýja peysu, góða vetrarúlpu og svo framvegis. 

Það er bara ég sem fæ stytturnar og myndirnar.  Af hverju þetta stafar veit ég ekki.  En ætli þetta sé ekki það sem blessaðir feministarnir eru alltaf að reyna að segja.  Ekki veit ég. 

En fyrst ég er nú byrjuð á annað borð, þá langar mig að minnast á nokkur atriði með hann afa ykkar.

 

Úlpan sem þið gáfuð honum í fyrra var heldur stór.  Ég skil vel að þið, sem eruð sífellt með börnin fyrir augunum, sem stækka og stækka, haldið að hann afi ykkar verði að fá úlpu svolítið við vöxt, svo hann geti notað hana lengur.  Málið er bara að hann afi ykkar rýrnar heldur en ekki.  Hann er sumsé hættur að stækka, og farinn að minnka.  Þetta mynduð þið örugglega sjá, ef þið kæmuð í heimsókn einhverntíma. 

Þá er betra bara að gefa honum fleiri pör af ullarsokkum, því hann er orðinn svo fótkaldur þetta skar.

Nú eða almennilega kuldaskó eða mannbrodda.

Hann vill nefnilega týna sokkaleistunum af sér.  Hvurnin það er hægt er mér hulinn ráðgáta.  Hann getur týnt þeim svo gjörsamlega að þeir sjást ekki meir.  Ég er reyndar að finna þá á ólíklegustu stöðum.

Fann einu sinni par inn í örbylgjuofninum.  Hann sagði mér að hann hefði ætlað að hita þá aðeins. Þeir höfðu þá verið þar í mánuð, vegna þess að við notum örbylgjuofninn svo lítið.

Þetta með íslensku lopapeysuna er auðvitað rosalega sætt, en gætið að, það þarf að handþvo svona peysur, og ekki gerir afi ykkar það.  Það er ég sem þarf að þvo flykkið, vinda það og leggja til þerris.  Þetta er bara heljar djobb, ef ég á að vera hreinskilin.  Þó það sé auðvitað voða sæt gjöf og allt það.  Þá megið þið nú aðeins spá í afleiðingarnar. 

Ef ykkur skyldi láta ykkur detta í hug að gefa honum nærbrækur, þá dugar ekkert minna en föðurlandið.  Ég vil ekki sjá hann þvælast um á stuttbrók með sína krækóttu köldu fætur um stofuna á kveldin. Fyrir utan að bibbinn vill lafa niður fyrir skálmarnar og vekur von um eitthvað sem ekki er hægt.

 Hann vill sum sé helst vera á nærbrókinni.  Ég hef því fjarlægt allar stuttar nærbuxur af svæðinu.  Hann vill ekki vera í neinum af þessum mörgu frottésloppum sem ég á svo mikið af.  Og ekki vill hann vera í náttfötum. En naríurnar þurfa að vera vel þæfðar, svo ég geti sett þær í þurrkarann. 

Það getur stundum verið svolítið erfitt með karlinn, því hann heldur að hann sé einhver Don Juan, þó það sé eins langt frá raunveruleikanum og Mata Hari og María Mey. 

En sum sé, þessi jólin, verð ég heima, og vonast til að eitthvert ykkar nenni að kíkja við, það er eiginlega betra en einhver jólagjöf eða kort.  Sérstaklega í ljósi þess að þið búið flest hér í nágrenninu. 

Elskulegu barnabörn sem allt viljið fyrir okkur gera, og eruð svo elskuleg og yndæl

ef þið nú í raun og veru viljið kerlingunni vel, þá væri við hæfi að þið bara gæfuð gamla brýninu honum afa ykkar stóran skammt af Viagra. InLove

Og ekki segja pabba og mömmu frá þessu.  Whistling

post-3976-1102533937


Vetur konungur, kemur með sína ljósadýrð.

Það var fallegur dagur í dag, en ansi kaldur, 8 ° var mér sagt að hefði verið á mælinum á mínum vinnustað. 

En fallegur dagur engu að síður.

IMG_9877

Þessi var tekinn snemma í morgun.

IMG_9878

Svo og þessi hér.

IMG_9879

Hér er komið hádegi.

IMG_9882

Það er eitthvað við birtuna svona þegar daginn fer að stytta, og sólin hættir að geta kíkt yfir fjöllinn, þá speglast hún bara í himninum.

IMG_9883

Og það er jafnvel grænleit slikja yfir öllu.

IMG_9885

Hér er hún nú samt að reyna að kíkja. En ósköp varlega.

IMG_9886

Eins og sjá má er birtan dálítið græn.

IMG_9888

Nei þetta er ekki tússmynd, heldur Kubbinn í öllu sínu veldi, vissuð þið að það er álfaborg upp á honum, og álfabústaðir í klettunum, meira að segja til saga af Huldumanninum í Strengberginu og bóndadótturinni, sem átti heima í bænum fyrir miðri myndinni.  Sorgleg ástarsaga milli huldumanns og mannameyjar.

IMG_9889

Hér erum við í Neðsta - kaupstað.  En það er elsta húsasamstæða á landinu hygg ég. 

IMG_9891

En sumsé það er kominn tími á vetrardekkinn, og það létum við hjónin gera í dag.

IMG_9892

Og hér er menntaskólinn, og listaverkið sem prýðir fordyr hans.  Falleg ljóssúla, eins og súlan hennar Joko, sennilega stærri miðað við höfðatölu LoL

IMG_9893

Og börnin að sjálfsögðu kominn út með sleðana sína.

IMG_98921

Enginn spurning um það.

En ég vil nota þetta tækifæri til að þakka fullt af fólki, sem hefur komið að máli við mig og talað hlýlega um bloggið mitt, og allar kveðjurnar sem ég hef fengið frá fólki allastaðar að úr heiminum.  Ég er rosalega ánægð og eiginlega hrærð yfir þeim móttökum.  Ég geri þetta mest mér til ánægju, en það er bara yndislegt ef aðrir geta notið þess líka.  Þá er það fullkomnað eins og meistarinn sagði.  Ég segi bara takk fyrir mig. Heart


Íslensk fyndni - í tilefni biblíuþýðingarinnar.

Hér eru nokkrar sögur svona til gamans, þær eru úr bók sem Ólafur Ragnarsson og Axel Ammendrup tóku saman ýmsar íslenskar skopsögur,  undir nafninu "Krydd í tilveruna" bókinn er myndskreytt af Árna Elvari. 

Þetta er svona í boði umræðna um biblíuþýðingar og fleira, þær eru barns síns tíma, og ef til vill kominn tími til að færa þær í nútíma horf.... eða þannig. Devil

 

Við prestkosningar í fríkirkjusöfnuðinum í Reykjavík báru stuðningsmenn sr. Emils það út, að einn eða fleiri skyggnir menn hefðu séð fríkirkjuprestana sr. Ólaf Ólafsson og sr. Árna Sigurðsson í kirkjunni við messugerð hjá sr. Emil, og hafi þeir dáðst að því, hve vel hann tónaði.

Þegar sr. Bjarni Jónsson heyrði þessa sögu, varð honum að orði.

"Ójá, ekki hafa þeir nú mikið við að vera hinu megin".

Lotta

Í Guðmundarsögu Arasonar er sagt frá því, hvernig heilagur andi birtist bóndanum í Viðvík í Skagafirði.

Guðmundur var þar prestur einn vetur, nokkru áður en hann varð biskup, en bóndinn í Viðvík hét Már Finnsson.

Segir svo í sögunni:

"Þat var eitt sinn um vetrinn at Más, at Guðmundr prestr var í kirkju úti at bæn sinni, ok kemr Már bóndi gangandi til kirkju. En er hann kom í kirkju, þá sá hann at fugl lítill fló upp af öxl Guðmundi presti í loft ok hvarf honum þá. Hann þóttist eigi vita, hvat fugls þat var, því at hann var óvanr at sjá heilagan anda".

Einhyrningur

Hvítasunnusöfnuðurinn var eitt sinn að láta skíra gamlan heiðarlegan mann.

Þeir, sem skírðir eru, verða að sjá heilagan anda í dúfulíki, áður en þeim er hleypt upp úr skírnarlauginni.

Gamla manninum gekk illa að sjá heilagan anda.

Að lokum segir hann þó, um leið og hann kemur upp úr lauginni með andköfum:

"Nú held á að ég hafi séð hann skjótast".

GrimaMathilda

Skagfirðingur einn, Jón að nafni, var kallaður dagbók, vegna þes að han ritaði dagbækur, frá því hann var á æskuárum.

Kvongaður var Jón, en bjó lengst af í húsmennsku.

Þegar þessi saga gerðist, var hann í húsmennsku á Hellulandi.

Vetur einn fór Jón með konu sinni í heimsókn að Vatnskoti, sem er skammt frá Hellulandi.

Frost var og hvasst veður, er Jón fór af stað, og hvessti því meira er nær dró Vatnskoti.

Þegar þau hjónin áttu skammt ófarið að bænum, fauk kona Jóns fram af svellbunka og sá hann hana ekki meir. Sjálfur var hann með broddstaf, og komst heim að bænuum, hitti húsmóðurina og var boðið inn.

Þegar hann var sestur segir húsmóðirin;

"Það er naumast að þú velur þér veðrið, Jón minn. Hvernig líður konunni þinni?"

"Hún var nú á leiðinni hingað með mér, en hún fauk fram af svellbunkanum hérna fyrri utan", svaraði Jón.

 

"Og hvað er þetta maður ! Reyndirðu ekki að bjarga henni? Spurði húsmóðirin.

"Mér finnst nú satt að segja, að í svona veðri hafi hver nóg með sig,", segir þá Jón.

gríma búkolla

Nemendur í gagnfræðaskóla voru látnir gera ritgerð um Hallgrím Pétursson. Kafli úr ritgerð eins nemandans hljóðaði svo:

"Hallgrímur fór ungur til Kaupmannahafnar. Þar kynntist hann konu, sem hann giftist síðar.

Hún var kölluð Grasa-Gudda.

frett_jola_api

 

Í þorpi einu var kirkjugarðurinn allfjarri húsum og mannvirkjum þorpsins.

Maður nokkur var eitt sinn einsamall að taka gröf í kirkjugarðinum.

Loks var gröfin orðin svo djúp, að hann komst ekki upp úr henni.

Drukkinn maður, sem hafði slangrað inn í kirkjugarðin, kom að gröfinni.

Grafarinn verður alls hugar feginn, þegar hann sér manninn og segir;

"Það var gott, að þú komst. Mér er að verða svo kalt"

"Það er von, því það hefur gleymst að moka ofan á þig", svaraði hinn.

GrimaMatty

Jón Ósmann, hið kunna hraustmenni, var einu sinni að ferja fólk yfir Héraðsvatnaós á dragferju. Ókyrrð var á ósnum, og var frú ein, fín í klæðaburði og feitlagin mjög, hrædd við að fara upp í ferjuna.

Ósmann þrýfur þá til hennar, snarar henni upp í og segir;
"Maður hefur nú fyrr tekið í þykkildi".

kattarfarthegi

Sr. Jón Stefánsson var prestur að Vallanesi um og eftir aldamótin 1800.

Hann var af Eydalaætt, gáfaður og hagmæltur, eins og hann átti kyn til, og fyndinn í tilsvörum.

Á efri árum varð hann feitur mjög.

Kaupmannsfrú spurði hann eitt sinn, hvernig hann færi að því að eiga börn svona feitur.

"Það væri hægra að sýna yður það en segja" svaraði Jón prestur.

Selur2

Í ráðherratíð Hannesar Hafsteins hélt fræg dönsk söngkona, sem hér Oda Nielsen, söngskemmtanir í Reykjavík.

Gríðarmikil aðsókn var að þeim.

Þorkell Þorláksson var þá skrifstofumaður í stjórnarráðinu.

Daginn eftir eina söngskemmtunina kemur Hannes inn á skrifstofu Þorkels og segir:

"Fórstu á Odu í gær, Þorkell ?"

"Já, standandi ". svaraði Þorkell.

Blush

Sonur manns, sem átti stóra bifreiðastöð, var í gagnfræðaskóla.

Hann átti einu sinni að svara því skriflega á prófi í skólanum, hvað kosningaréttur væri.

Hann svaraði því þannig:

"Kosningaréttur er það, að vera ekið í bíl á kjörstað, og verða svo að fara gangandi heim".

Devil

Selur

Og þá hló Marbendill.

þessar tvær síðustu myndir eru teknar af Halldóri vini mínum Sveinbjarnarsyni ljósmyndara á BB. 


« Fyrri síða

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Nóv. 2007
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband