30.11.2007 | 17:24
Hvað um það....
Það góða er, að ég fékk myndavélina mína í dag úr viðgerð. Og að þó ég komist ekki á fund og jólahlaðborð fyrir sunnan, þá get ég eldað góðan mat handa okkur fjölskyldunni hér í kvöld og farið í leikhúsið annað kvöld. Það er alltaf þannig að þó eitt bregðist þá kemur annað í staðinn.
Það var sem sagt hvorki flogið né bílfært suður í dag, svo ég er hér ennþá. Og svo er nágranninn búin að skreyta húsið sitt. Og þó veðrið hafi verið kolbrjálað í kring um okkur, var það ekkert svo slæmt hér inn í fjarðarbotni.
Þarna á bak við bílinn er fjallið sem þið eruð alltaf að sjá með Naustahvilftina. Hún sést ekki í dag, þessi elskan en ég er nokkuð viss um að dísirnar dansa við hljómfall hviðanna og Kára kuldabola. Þær hlæja og dilla ser hvað mest þær mega.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
30.11.2007 | 14:01
Hvernig myndi þér líða ?
Ef barnið þitt sem hefði verið í rosalega góðum málum núna í marga mánuði og sýnt ótvíræðan vilja og getu til að koma sér í venjulegt líf, en fyrrverandi fíkill, sem var kominn langt niður, væri fallinn og berðist af alefli við að komast inn á Vog.
Ef þú vissir að það yrði sífellt meiri barátta við fíknina, sem lengra liðið til að komast inn, og nú væri kominn langt í mánuður.
Ef bæði læknir og trúnaðarmaður væru búnir að hringja og reyna að koma honum inn, en ekkert gengi.
Þú svæfir illa og værir með sífelldar áhyggjur af afkvæminu, af því að reynslan hefði sýnt að hann getur farið ansi langt niður og þar með hafið ferli sem endar með ósköpum.
Ef þú svo uppgötvaðir svo að það er bara einn maður sem ræður því hvort hann kemst inn eða ekki, það eru engir biðlistar, eða röð, bara ákvörðun manns sem öllu ræður.
Og að þú hafir frétt að það er oftar en ekki maður sem þekkir mann sem þekkir mann sem gengur fyrir, og þú ert svo sannarlega ekki í þeim hópi.
Að í rauninni eru sárafá úrræði fyrir mann sem vill reyna að komast aftur upp á yfirborðið, getur það ekki sjálfur, og fær ekki að komast að.
Þá er hægt að spyrja;
Er þetta ríka þjóðfélagið sem við erum alltaf að gorta okkur af?
Er þetta samfélagið þar sem allt er í svo góðu lagi, best á heimsmælikvarða ?
Er þetta það sem okkur þeim mörgu sem erum aðstandendur óláns fólks er boðið upp á ?
Já því miður. Hér sárvantar fleiri meðferðarstofnanir, svo að þeir sem vilja snúa við blaðinu, geti komist að strax ekki á morgun ekki eftir 6 mánuði, heldur í gær. Við erum hér að tala um fólk sem hefur missts taumhald á lífi sínu, getur ekki bjargað sér sjálft, en hefur samt sýnt að það vill bjargast.
Og að lokum vil ég sýna hér blogg frá annari móður í svipuðum aðstæðum. Þetta bara gengur ekki lengur. Hér á ekki að minnka hjálpina, og fækka heimilum, heldur stórauka aðgengi bæði fíkla og aðstandenda að hjálpinni.
http://www.daudansalvara.blog.is/blog/daudansalvara/entry/378387/
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (36)
29.11.2007 | 18:30
Svona inn í helgina.
Í dag var lognið svolítið að flýta sér eins og sjá má.
Það rýkur upp sjórinn við flugvöllinn.
Sést betur hér.
Þessi tekinn í ljósaskiptunum.
Og þessar myndir verða þær síðustu í bili. Eins og ég hef reyndar sagt hér áður, þá bilaði Canon myndavélin mín um daginn, svo ég sendi hana suður í viðgerð. Hún er ekki kominn aftur. En ég hef notað aðra gamla vél sem ég átti. En ég ákvað að lána El Salvadorunum mínum hana svo þau gætu tekið myndir á heimaslóðum. Svo nú er engin myndavél á heimilinu.
Ég er að fara suður á morgun, að hitta mína Frjálslyndu félaga, og á myndasýninguna hennar Katrínar á laugardaginn, því miður þá verður enginn myndavél í för. En bara góða skapið og ánægjan af að hitta góða vini.
Ef til vill fær ég myndir frá þeim í staðin frá ferðalagi þeirra. það væri svo sem gaman að fá El Salvador beint í æð frá heimafólki. Við sjáum nú til.
En sem sagt, verið stillt og prúð á meðan ég er í burtu. Þið sem hafið áhuga á að hafa samband, getið hringt í mig, í gemsanúmerið, er í símaskránni. Það væri svo sem mjög gaman að hitta ykkur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
28.11.2007 | 17:29
Bláar myndir.
Þegar myndir eru teknar á sérstökum tíma, þá verða þær sérstakar. Þessar eru bláar, svo eftir ritualinu eru þær faktískt bannaðar börnum.
ekki satt ???
Svo fékk amma heimsókn í gær.
Maður þarf að standa uppi allstaðar, það á ekki að sitja þegar maður getur staðið í sína tvo jafnfljóta.
Það er bara fjör hjá henni Evítu Cesil.
Stóri bróðir var ekki alveg eins hress hehehehe... hann lagði sig aðeins yfir Múlan. Það var nefnilega svo notalegt að leggjast í sófann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (28)
28.11.2007 | 11:49
Jafnrétti -
Ég ætlaði mér svo sannarlega ekki að taka þátt í umræðunni sem hér hefur tröllriðið þjóðfélaginu undanfarið.
En umræðan hefur þróast á frekar óheillavænlega braut.
Ég er jafnréttissinni, ég veit að það hefur hallað á konur gegnum tíðina, hef fundið það á eigin skinni. Þó ég hafi ekki látið það aftra mér frá því að ná fram því sem ég hef viljað.
En málið er, að það eru sterkar umræður í þjóðfélaginu á báða bóga, og mér hugnast hvorugt. Það hefur aldrei neitt gott áunnist með stríði.
Í jafnréttismálum er slíkt ekki hægt. Þegar tekist er á um slík mál, þarf málamiðlanir.
Ég horfi upp á allskonar árásir kvenna sem eru talsmenn feminista (kvenrembur) á karlmenn, og því er svarað af hörku af karlmönnum (karlrembum) sem finnst á sig ráðist. Hvorugur þessara hópa eru beint líklegir til að koma af stað vitrænum umræðum um málefni kynjanna. Þar sem öfgar eru aldrei vænlegar til árangurs.
Þess vegna tel ég þessar konur, sem að mínu mati eru öfgafeministar séu ekki heppilegir framsögumenn kvenna í leið að jafnrétti, frekar en ég tel að karlremburnar séu heppilegir talsmenn karlanna.
Þetta stríð milli kynjanna er því háð af öfgatoppum á sitt hvorum vængnum, meðan meirihluti fólks vill ræða þetta á hlutlausari hátt, á báða bóga. Hvað það er sem skortir á að konur geti notið sín í samfélaginu, og hvað það er sem þarf að leysa til að karlmenn sitji við sama borð og konur í öðrum málum ekki síðri.
Sumir vilja segja að það dugi ekkert minna en svona upphlaup. Ég segi að það skili litlu sem engu, nema að æsa fólk hvort gegn öðru, og setja málin í enn harðari hnút en áður.
Boð og bönn hafa aldrei skilað neinu. Þau leiða einungis til þess að vandamálin sem þau eiga að leysa fara undir borðið og í leyndarhjúpa, sem miklu erfiðara er að nálgast. Og gerir fólki enn erfiðara fyrir að lifa við þau skilyrði sem þeim eru búin.
Þess vegna þarf að leysa vandamál með umræðum og fræðslu. Jafnvel að leyfa þeim að þróast til betri vegar með meiri upplýstum umræðum, og fræðslu.
Hausatalningar eru frekar pínlegar að mínu mati. Það skiptir ekki máli hve margir karlar eða konur eru í viðtölum heldur hvernig það fólk talar sem þar kemur fram. Sem betur fer eru flestir bæði karlar og konur á því að jafnrétti kynjanna sé það æskilega, og þó seint hafi gengið, þá þokast hlutirnir í rétta átt.
Ég sá komment einhversstaðar um að það mætti rekja launamun kvenna og karla m.a. til þess að konur gerðu ekki sömu kröfur og karlar um betri laun. Þessu get ég alveg trúað. Það býr í okkur sjálfum ákveðið "umburðarlyndi" og jafnvel minnimáttarkennd gagnvart okkur sjálfum, sem konur þurfa að ráða bót á. Ég er nokkuð viss um að þar þarf hver og ein að taka til í sínum ranni, þar vinnst ekkert með hausatalningum og upphrópunum.
Hinsvegar er alveg ótrúlegt hvað sumir karlmenn láta út úr sér um, og við þær konur sem eru þó samkvæmt bestu vitund að vinna konum brautargengi. Því þær eru að þessu í bestu meiningu, þó ég sé ekki sammála aðferðunum.
Ég er því á því að hér þurfi að taka málin öðrum tökum, fá aðra formælendur, og jafnvel taka málin upp á víðari grundvelli. Ég er ekki feminist, og ég vil ekki láta samsama mig með þeim aðferðum sem þær hafa beitt. Þó dáist ég að þessum konum og veit að þær eru að vinna að málefnunum með þeim aðferðum sem þær telja réttastar.
Það sem ég á við er, að það lagar enga stöðu að reyna boð og bönn til að gera hlut kvenna betri. Þar þarf sameiginlegt átak okkar allra kvenna og karla. Það fæst ekki með öfgafullum aðferðum.
Þær gera það einungis að verkum að fólk sem vill leggja þessu máli lið af sanngirni hellist úr lestinni. Eins og alltaf gerist þegar fólk gengur of langt í öfgum. Þá fara hinir friðsömu og yfir gefa skotgrafirnar. Ekki er það það sem við viljum.
Svona er ég nú stemmd gagnvart umræðunni um Jafnrétti. Við erum örugglega flest á þeirri línu að allir eigi að vera jafnir og hafa sem bestan aðgang að lífsins gæðum. Okkur greinir bara á um áherslur og aðferðir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
27.11.2007 | 22:06
Menningarblogg.
Ég ætlaði að vera í leikhúsi í kvöld. En sýningunni var því miður frestað.
Skuggasveinn var víst fyrsta leikritið sem sýnt var á Ísafirði. Því er gaman að Litli Leikklúbburinn skuli nú sýna það leikrit hér í fyrsta sinn i nýjum sal Edinborgarhússins. Við höfum lengi átt draum um leikhús, og nú hefur það ræst. Vonandi kemst ég á sýningu hjá þeim síðar.
Mig langar líka til að sjá sýningar Elvars Loga Jónas Hallgrímsson á Hótel Ísafirði, og Jólasveina Grýlusyni í Tjöruhúsinu. Ég er viss um að þessar tvær sýningar eru vel þess virði að koma og njóta þeirra.
En á næstu helgi verð ég í borg óttans, ætla á miðstjórnarfund Frjálslyndaflokksins, og svo á jólahlaðborð. Hlakka mikið til að hitta félaga mína þar og eiga við þau létt spjall yfir veisluföngum.
Þá ætla ég líka að nota tækifærið og fara á myndlistarsýningu hjá bloggvinkonu minni Katrínu Snæhólm. Vonast jafnvel til að hitta fleiri bloggvini þar.
En í dag datt inn um bréfalúguna hjá mér boðsmiðar á frumsýningu á kvikmyndinni Duggholufólkið, Nútíma ævintýri, sem verður 5. desember n.k.
Sjá hér;
Duggholufólkið frumsýnd um jólin
Barna- og fjölskyldumyndin Duggholufólkið verður frumsýnd um jólin en hún er fjallar um Kalla, 12 ára borgarbarn og tölvuleikjaunnanda, sem sendur er til Vestfjarða til að dvelja hjá föður sínum yfir jólin. Þar kemst hann í hann krappan þegar sýndarævintýri skjáheima breytast í alvöru ævintýri. Þar sem sagan gerist að stórum hluta á Vestfjörðum og fóru töluvert af tökunum fram fyrir vestan. En innitökur fóru hins vegar fram í stúdíói í Reykjavík. Myndin byggir lauslega á sögu um að eitt sinn endur fyrir löngu hafi 18 manns farist við Dugguholu Gilsbrekkudal í Súgandafirði á leið frá jólagleði að Hóli í Bolungarvík. Í burðarhlutverkum eru tvö 11 ára gömul börn, þau Þórdís Árnadóttir og Bergþór Þorvaldsson. Auk þeirra fara með helstu hlutverk Brynhildur Guðjónsdóttir, Margrét Vilhjálmsdóttir, Erlendur Eiríksson og Magnús Ólafsson. Auk þess eru margir Vestfirðingar í aukahlutverkum.
Leikstjóri og handritahöfundur er Ari Kristinsson en hann er einna þekktastur fyrir barnamyndirnar Pappírs-Pési og Stikkfrí sem slógu svo rækilega í gegn fyrir nokkrum árum.
Þessa mynd tók ég út Bæjarins besta.
Ég var með í upptökum einn dag í vor. Það var mjög skemmtilegt og fræðandi að eyða deginum með þessu skemmtilega og yndæla fólki. Við fórum svo aðeins að skemmta okkur á Langa Manga um kvöldið. Margrét Ákadóttir var líka með í hópnum.
Jamm skemmtilegt.
Svo þið sjáið að það er mikið að gera í listalífinu hjá mér. Og mikið um að vera á þessum tíma í menningunni hér á Ísafirði. Bara spurning um hvað maður hefur mikinn tíma til að njóta þess alls sem í boði er.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
27.11.2007 | 12:27
Draugar og daglegt veður.
Já hér er hið fegursta veður í dag svo sem og aðra daga flesta.
Tunglið tunglið taktu mig og berðu mig upp til skýja.
Ef til vill get ég náð þér með þvi að teygja mig frá fjallatoppum Eyrarfjallsins.
Ég segi það satt, þetta er alltaf jafn fallegt.
Í mínum augum það er. Og nú er farið að koma gulur litur, eftir því sem á morguninn líður, sjáið hvernig birtan glampar á sjónum.
Já og nú er himinn gulur. Þetta sjónarspil er ókeypis fyrir alla sem vilja líta upp úr amstri dagsins og bara njóta.
Svona líka.
Það er verið að landa úr Júlíusi Geirmundssyni í dag, hátíðlegt að sjá það.
En hér er önnur mynd úr höfninni, mynd hinna gleymdu skipa.
Var ég að tala um drauga.... ? Já einmitt.
Í þessu húsi er draugur, eða maður sem er farinn héðan. Ég hef sjálf heyrt í honum og það gerðu líka fleiri manns. Þetta hús var flutt frá Hesteyri á sínum tíma, þegar faðir minn og fleiri keyptu það og endurbyggðu það hér á höfninni. Það var svo notað undir skreiðarvinnslu. Þessar dyr sem hér sjást voru aldrei notaðar, nema til að sturta inn skreiðinni, en það eru aðrar dyr innan til, sem voru notaðar, þar er líka stigi upp á loftið, þar sem ýmislegt er og var geymt, svo sem eins og net og margskonar hlutir.
Stundum þegar við vorum að vinna niðri, heyrðum við að eitthvað var dregið til á loftinu. Einu sinni kvað svo mikið að því að húsið nötraði. Við fórum upp til að skoða hverju þetta sætti, um leið og við fórum upp stigann, datt allt í dúnalogn. Uppi var ekki nokkur einast maður, hvað þá að einhver væri þar sem hefði getað útskýrt hávaðann. Við leituðum um allt loftið, en það er einn geimur.
Afi minn í móður ætt Hjalti Jónsson, sagði mér síðar að hann hefði séð þann sem þessu olli. Hann gat lýst honum, svo að einhver þekkti hann, hann hafði svo einkennilegar hendur, stórar kjúkur á þumalputtunum. Þetta var þá smiður frá Noregi, sem hafði fylgt húsinu. Gat ekki yfirgefið staðinn. Ég veit ekki hvort hann er þarna ennþá blessaður. En ég mun aldrei gleyma þessu. Og það heyrðu allir sem inni voru hávaðann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
26.11.2007 | 18:35
Óbeisluð fegurð, og hið daglega veðurfar á Ísafirði.
Hið daglega veður á Ísafirði er hér;
Dálítið muskulegt svona í morgun, en besta veður samt.
svo fór að birta til, djúpið fallegt ekki satt ?
Arnarnesið kyngimagnað.
Jamm.
En þó það sé þýða, þá eru samt ennþá svona flottir frostfossar, listaverk náttúrunnar, gerist ekki flottara.
En í tilefni af því að myndin um óbeislaða fegurð var endursýnd í gær, þá er hér ein sem er hin eina og sanna óbeislaða fegurð, Mærin frá Willendorf, ég held að hún sé um 20.000 ára gömul, ein af fyrstu styttum af konu sem gerð var. Hún er núna geymd á Náttúrugripasafninu í Vínarborg, vel við hæfi, það er eitt það elsta í Evrópu.
Hér er hún í allri sinni dýrð. Og eins og sjá má, er líkamsvöxtur hennar ekkert í líkingu við herðatrén sem mest er sýnt af í nútímanum. Heldur er hér á ferðinni kona, með allt á hreinu, brjóst, maga, læri og pjötlu, allt á sínum stað.
Þær gerast ekki fallegri.
Reyndar er Náttúruminjasafnið í Vín allt frá árinu 1005. Svo það er svona að skapast um það leyti sem ísland var að byggjast ekki satt. Þegar súlurnar voru fyrst til umræðu hehehe segiði svo að súlur sér eitthvað nýmóðins eða þannig. Það voru allavega öndvegissúlur sem ráku á land í henni Reykjavík. Nú vilja Reykvíkingar ekkert við súlur kannast. Þær á að banna með öllu. Hvað ætli Ingólfur gamli hefði sagt við því ?? Hann hefði sennilega bara fært sig til Hafnarfjarðar, nú eða Ísafjarðar
Ég ræddi um það hér einhversstaðar að Unnur Jökulsdóttir hefði komið og rætt við mig í sumar um Huldufólk. Ég var að tala um að ekki rötuðu allar sögur á spjöld sögunnar. Í dag fékk ég svo voða sæta sendingu frá henni, elskulegt kort og bókina góðu. Hún sagði að því miður hefði ekki verið hægt að hafa allar sögur með. Sem ég skil vel. En ef hún les þetta þá vil ég þakka henni kærlega fyrir bókina, sem er ein af þeim fáu sem ég virkilega vildi fá núna yfir jólin til að lesa. Unnur mín, ef þú lest þetta, þá þakka ég þér kærlega fyrir bókina, sem ég mun lesa af mikilli ánægju. Ég vildi bara að þú hefðir áritað hana. Ef þú kemur vestur, þá kem ég með hana til áritunar, annars verð ég bara að líma kortið inn í hana. Takk kærlega fyrir mig.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:59 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
25.11.2007 | 22:34
Veður á Ísafirði og fjölskylda í heimsókn.
Fyrst er það veðrið á Ísafirði í dag.
Já hann er dálítið blár þessi dagur.
Ég bauð El Salvadorunum mínum í mat í kvöld, ég hafði prentað út myndir sem ég vildi að þau hefðu með sér til heimalandsins. Já þau ætla að fara í heimsókn til El Salvador. Alejandra er búinn að fá 3ja mán. dvalarleyfi, og er kominn með passa, svo hún fær að koma inn í landið aftur, þau ætla að vera í ættlandinu yfir jólin og svo hjá ættlingjum í BNA yfir áramótin. Þau eru full tilhlökkunnar og ég skil þau svo vel.
Lambalæri auðvitað.
Litla ömmuskottan hún Isobel Rólandsdóttir Díaz kom með afa og ömmu. Og var bara glöð að vera hér.
Hún skilur spænskuna alveg, en talar íslensku, og hún gerir greinarmun, það er afi og amma í kúlu og svo abuelo og aboela.
Hér eru þau Alejandra og Úlfur að tölvast.
En það komu fleiri í heimsókn í dag. Litli Sigurjón ömmustubbur og mamma hans og systir. Hér er hann að skoða Toy r us með mömmu sinni.
Amma á alltaf rússur í pokahorninu handa þessum elskum.
Og svo er það náttúrlega dótið.
Og prinsessan mín, stóra systir.
Ég hrindi í pabba minn í morgunn til að bjóða honum í mat, eins og ég geri oftast á sunnudögum, þá heyrði ég að hann var sárlasinn. Hann sagði mér að hann hefði ekki getað borðað neitt í tvo daga. Ég hafði áhyggjur af honum, og fór í heimsókn. Hann var sofandi þegar ég kom, ég hafði með mér cvítamín gostöflur. Setti þær á borðið og skrifaði honum lítið bréf, þar sem hann var sofandi þegar ég kom. Vildi ekki vekja hann. En áður en ég fór, þá sendi ég risastóra bæn og ljós og kærleika um alla íbúðina hans, það var yndisleg stund.
Hann hringdi svo í mig í kvöld og þakkaði mér fyrir pillurnar, sagði að hann hefði fengið sér pillu, þegar hann vaknaði og þetta bara svínvirkaði, hann væri allur annar og betri.
Ég brosti með sjálfri mér, og vissi að það var bænin en ekki pillurnar sem virkuðu svona vel. En þannig er það bara. Þessi ljúflingur hann pabbi minn. En ég gerði meira, ég tók mynd af myndinni af henni ömmu minni Guðrúnu Jónsdóttur, og set hana hér inn fyrir þá ættingja mína sem rekast hér inn, Önnu Stefáns og fleiri. Þetta er falleg mynd af ömmu, og hún átti alltaf rúsínur og súkkulaði í stórri kistu til að gefa okkur krökkunum, þegar við komum í heimsókn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
24.11.2007 | 23:16
Góð þjónusta í Hamraborg og dagurinn fer út í gult hér á Ísó.
Blár dagur sem breyttist yfir í gulan. En svona eru litirnir hér.
En fyrst ætla ég að segja ykkur frá meiriháttar góðri þjónustu hjá þeim Hamraborgarmönnum, hér á Ísafirði er rekinn sjoppa og vídeóleiga sem heitir Hamraborg. Við leigjum þar stundum spólur og kaupum snakk á laugardögum fyrir stubbinn. Í kvöld hafði hann boðið Sóley Ebbu frænku sinni í svoleiðis veislu, og við sátum öll fjölskyldan og horfðum á Schrek 3 og skemmtum okkur konunglega. En síðan höfðu þau valið aðra spólu, sem þau ætluðu að horfa á. Þegar spóluhulstrið var opnað, kom í ljós að í staðinn fyrir gamanmynd var barnaspólan Happy Feet. Stubburinn minn sem er nú ansi ákveðinn þó hann sé bara tíu ára, hringdi niður eftir og kvartaði. Ég get alveg ímyndað mér að á flestum stöðum hefðu menn nú bara látið það eiga sig þó einhver gutti hringdi svona, en ekki í Hamraborg, þar er hver einstaklingur meðhöndlaður með sömu virðingunni. Og þau skutluðu spólunni heim í hús. Þetta er alveg sérstakt og ber að þakka fyrir. Þið eruð æðisleg þarna í Hamraborg.
En að myndunum.
Hér er liturinn kominn út í gult.
Skemmtilegt finnst mér.
Sonur minn náði reyndar þessari aðeins fyrr í dag. Meiriháttar ekki satt.
Smá krúttmyndir, Evíta litla Cesil kom í heimsókn, og nú er hún byrjuð að standa alveg sjálf.
Og þetta er ekki gerfiblóm, afi sem er múrari setti steypu yfir moldina fyrir mörgum árum, þegar barnabörnin fóru að koma svona mikið, því moldin var alltaf sett út um öll gólf. Fíkusinn kann svo ekkert illa við steypuna, en er vel varinn litlum puttum. Rjóð í kinnum eftir að hafa fengið sér lúr út í garðskála.
Og svo er prílað í stiganum líka hehehehe....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (22)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 5
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 42
- Frá upphafi: 2023311
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar