Hugleiðingar um jól og jólagjafir herrans árið 2008.

 IM001788

Ég veit að jólin verða mörgum erfið í ár.  Ástandið í samfélaginu er þannig, að margir eiga um sárt að binda. Mig langar því að koma á framfæri  smá hugmyndabanka um jólagjafir, sem ekki kosta mikið, eða jafnvel bara vinnu og umhyggju. Það þarf nefnilega ekki að kosta miklu til.  Nú gildir að láta dýru gjafirnar eiga sig, og hlú að því einlæga og kærleiksríka.   

IM001790

Hér eru nokkrar hugmyndir;  

Margir eiga efnisafganga eða garn inn í skáp, sem fólk veit ekki hvað á að gera við.  Það má taka fram saumavél, nál og tvinna eða garnafganga, og sauma,  hekla eða prjóna föt á uppáhaldsdúkku prinsessunnar.Þeir sem eru duglegir að teikna, geta teiknað dúkkulísur, þar má láta hugann reika og teikna allskonar falleg föt sem fylgja.   Þetta getur líka orðið hin besta skemmtun.

Það er hægt að fá spýtur, sög og nagla, og  smíða bíla, dúkkurúm eða dúkkuhús, foreldrar eða afi og amma, geta átt góðar stundir að föndra jólagjafirnar í atvinnuleysinu. 

Síðan má föndra allskonar innanstokks muni, sófa, borð stóla mottur, rúm og bara hvað sem er.   Þetta eru pottþétt velþegnar gjafir.

Fyrir fullorðna má föndra ýmislegt, eins og til dæmis sauma eða prjóna skemmtileg föt utan á rauðvínsflöskuna, tekönnuna, eða bara hvað sem er.  Það má nota fallegar litlar öskjur, til dæmis utan af ostum, höfðingjaöskjurnar eru reglulega flottar, og camerbert 

Þessar öskjur má mála eða sauma utan um,  í fallegum litum, og fylla af ást og kærleika.  Eða jafnvel sem skartgripaskrín.  Óendanlegir möguleikar, bara útsjónarsemi.

Þeir sem eru duglegri á tölvurnar, það má gera allskonar skemmtileg plaköt, eða myndir af viðkomandi.  Árita og prenta út. 

Eða mynd með fallegu ljóði, annað hvort frumsömdu, eða frá þekktum höfundum. 

Svo eru til manneskjur sem hafa gaman af að semja sögur, hvað er skemmtilegra en saga þar sem maður er sjálf söguhetjan samin af afa eða ömmu.  Gafst mjög vel hjá mér í fyrra.

Eins og sést, þá eru margir möguleikar að gera aðventuna og aðdraganda jólanna gleðilega, og sameinað fjölskylduna, þó lítið sé í buddunni, og alveg óþarfi að hætta að gefa jólagjafir. 

Og mín reynsla er sú, að einmitt þessar litlu, persónulegu gjafir gleðja mest.  Af því að fólkið, börnin okkar skynja að við höfum lagt eitthvað á okkur til að gleðja. 

Og eins og ég sagði áðan, þá leynist oft eitthvað nothæft í skápum og skúffum, sem hefur einmitt beðið eftir réttu hlutverki.  Nú er rétti tíminn til að fara að skipuleggja hvað það er sem við viljum gera og hentar hverjum og einum.  Og það verður jafnvel til þess að þessi tími myrkurs og örvæntingar verði ánægjulegri og sameini fjölskylduna meira en okkur órar fyrir.  Þið getið líka komið með fleiri hugmyndir hingað inn.  Eitthvað sem ykkur dettur í hug, eða hafið gert, og viljið miðla öðrum. 

Það er nefnilega það smáa og einlæga sem gefst best.  Látum þessi jól verða jól kærleikans, einfaldleikans og sameiningu fjölskyldunnar. 

frett_jola_api

Fallegar myndir frá Vestfjörðum - og smá mömmó.

Ég er með nokkrar fallegar myndir sem ég tók í gær og dag. Það var mjög fallegt veður báða dagana, og á þessum árstíma og frameftir eru litirnir dásamlegir í náttúrunni.  Það er friður yfir þessum myndum, ekki veitir af á þessum síðustu og verstu tímum, að fá náttúrukraft í sálina sína.

IMG_3279

Himnagalleríið opið í gær.

IMG_3281

Birtan er ólýsanleg á þessum tíma, þegar sólin nær ekki alveg upp fyrir fjallatindana, en gægist aðeins, og lýsir upp himininn og fjallatoppana.

IMG_3282

Dásamlegt ekki satt?

IMG_3297

Sjá roðan í austri, og snæfjallastsröndin blasir við í öllu sínu veldi.

IMG_3298

En Súgandafjörðurinn skartar fagurbláma. kaldur en tignarlegru.

IMG_3300

Fjöllin spegla sig í firðinum, eins og fallegt listaverk.

IMG_3301

Við eigum þetta fallega land, og það getur enginn tekið það frá okkur.  Við munum berjast fyrir því að fá að vera hér.  Byggja líf okkar upp aftur, gefa skít í þá sem vilja forsmá okkur, og svínbeygja.  Þeirra er skömmin, og þeir munu ekki sigra, það mun aftur á móti réttlætið.

IMG_3302

Í faðmi fjalla blárra, þar freyðir aldan köld, eða speglast sléttur sær.

IMG_3304

Við eigum líka roða í vestri ef vel er að gáð.

IMG_3319

Ísland er land þitt....

IMG_3320

Þessi er fyrir Magný og Rannveigu.

IMG_3322

ég get sagt ykkur að í mörg ár saknaði ég þess að sjá ekki sólina í skammdeginu, eða alveg þangað til ég var tvo vetur í Hveragerði og þurfti að aka oft til Reykjavíkur.  Með skammdegissólina í augum endalaust, sá ég, að það er betra að hafa hana bak við fjöllin.

IMG_3325

En það er ef til vill bara Pollýannan í mér

IMG_3284

Hafið engar áhyggjur, þær fá ekki að leika sér með plastpoka, nema augnablik undir umsjá ömmu.

IMG_3293

Leikskólinn bíður.

IMG_3295

Best að fá sér aðeins að smakka.

IMG_3306

Maður getur nú verið eins og prinsessa stundum.

IMG_3314

Úlfur og bananabrauðin hans. Ég ætti ef til vill að setja uppskriftina hér inn.

IMG_3327

Kate Moss, nei Hanna Sól.

IMG_3329

Snjór er nefnilega nammi sko !!

IMG_3330

Góður til átu nefnilega. Heart

IMG_3292

Þessa mynd tók Úlfur, þetta er listaverk hehehehe...

IMG_3331

Og með þessari hlýlegu - köldu - mynd býð ég ykkur góða nótt, látið ykkur dreyma vel, og hugsið vel um ykkur sjálf.  Maður getur ekki gefið neinum neitt, ef maður hlúir ekki að sjálfum sér og sálinni.  Knús á ykkur öll. Heart


Við erum þjóð öfganna.

images 

 

 

Og það er skammt öfga á milli.  Við dásömuðum útrásina, og margir spiluðu með, eða allavega dáðumst að þeim sem urðu moldríkir á stuttum tíma.  Margir standa nú brenndir á sálinni og í veskinu sínu, vegna þess að þeir treystu útrásarliðinu, ríkisstjórninni, tilskipuðum eftirlitsaðilum og ekki síst Seðlabankanum.

Allt reyndist þetta vera tál, og nú stendur þetta fólk á nærbrókinni einni saman, eins og keisarinn forðum, og reynir hver sem betur getur að forða sér, og ljúga sig út úr aðstæðunum.  Helst vill það kenna almenningi um allt saman.  Þar er hin breiðu bökin. 

 

Sem betur fer virðist almenningur loksins ætla að hrista af sér slenið og foringjadýrkunina, og krefjast réttlætis, og ábyrgðar.  Það er mjög ánægjulegt.

 

En, eru menn virkilega að vonast til þess að við förum úr öskunni í eldinn ?  Í hræðslukastinu sem er í gangi  þjóðfélaginu í dag, heimta menn að ganga í ESB.   Ég set stórt spurningamerki við það.

 

Erum við svo bláeyg að halda að það hjálpi okkur eitthvað ?  Svona til lengri tíma litið.  Ég las um daginn frá einhverjum ráðamanni frá gömlu austur Evrópu, að stjórnunin í ESB væri eins og kommúnistaríkjunum hér áður fyrr.  Sjá menn ekki skóginn fyrir trjám ?

 

Þessi krafa hryggir mig.  Ég held að við ættum að reyna að komast út úr þessu af sjálfsdáðum.  Og ég er viss um að við getum það.  Þegar landnámsmennirnir komu fyrir meira en 1000 árum, þá voru hér bara refir og nokkrir munkar (papar). 

Það voru landnámsmennirnir sem  fluttu með sér það sem þurfti til að koma á þjóðfélagi.  Það ætti að vera auðveldara í dag en þá.

 

Það sem brýnast er að gera, er að styrkja og styðja við það sem við eigum hér heima.  Landbúnaðinn, fiskveiðarnar og hugvitið.  Við eigum þetta allt í góðum mæli.  Auk þess eigum við dugnað og útsjónarsemi.  Ef við bara setjumst niður og hugsum málið.

 

Við höfum nefnilega margt að bjóða fram, til að selja útlendingum.  Hreinar góðar landbúnaðarafurðir, mjólkin með því besta í heimi, skyr, smjör, og hvað eina sem gert er úr húsdýrunum okkar.  Við eigum líka bestu ull í heimi.  Ull sem auðvelt er að gera að hátískufatnaði, með góðri hönnun, og markaðssetningu.  Frú Dorrit er nú þegar byrjuð að auglýsa hana. 

Refa- og minnkaskinnin okkar eru hágæðavara, í öðru sæti á heimsmarkaði, hvað gæði varðar. 

Við eigum líka besta fiskinn, það þarf að vísu að vinna hann meira hér heima, í frystihúsum, sem eru í hæsta gæðaflokki í heiminum.  Besta hráefnið þar líka, það má meira að segja útbúa hráefnis vottun, hvaðan fiskurinn er og hvaða bátur veiddi hann, með vistvænum útbúnaði, því við myndum örugglega byrja á því að henda þessu arfavitlausa fiskistjórnunarkerfi.  Þjóðir heims þarfnast matar, og við eigum stóra matarkistu, sem ekkert mál er að fylla. Ekki gleyma harðfiskinum.

 

Í dag er hægt að rækta korn allskonar á Íslandi, við bruggum okkar eigin bjór, sem er bestur vegna hreina vatnsins, vodka og aðra sterka drykki framleiðum við líka.

Það yrði að vísu að þjóðnýta jarðirnar sem keyptar hafa verið og ekki er stundaður búskapur á.  Og fá fólk til að búa á þeim, útlendinga ef íslendingar vilja ekki. 

  

Svo má benda á laxveiðiárnar, sem útlendingar sækja í miklum mæli, silunginn okkar, og hreindýrin. 

Náttúrfegurð er mikil og orkan í náttúru Íslands er einstök og rómuð.

 

Fólk gerði grín að því hér mitt í öllum dansinum kring um gullkálfinn hvort menn ætluðu að lifa á fjallagrösum og lopapeysum.  

Ég segi; Af hverju ekki ?  Með góðri markaðssetningu er hægt að selja fjallagrös sem hágæðavöru, við höfum dúninn okkar, hann ætti að fara að seljast aftur, nú þegar krónan er ekki svona yfirspennt, lúxussængur væri hægt að fá á ný. 

Við getum framleitt grænmeti og ávexti til útflutnings, ó já, með þeirri orku sem við eigum, getum við framleitt hreint og ómengað grænmeti undir gleri með lýsingu. Það væri líka hágæðavara. 

 

Við eigum allskonar fólk, sem er á heimsmælikvarða, bæði listamenn og iðnaðarmenn á öllum sviðum.  Vorum við ekki að vinna til gulls í matargerð um daginn ?


Við gætum komið upp flottum veitingahúsum um allt land, þar sem hægt væri að kaupa góðan íslenskan heimilismat.  Nýmjólk beint af kúnni, rjóma og vöfflur.

Við höfum þetta allt saman. 

 

ESB hvað ?  Ég bið fólk aðeins að slaka á og hugsa málið.  Ef við losnum við þessa dauðu krumlu sjálfstæðisflokksins, flokksræðisins og spillingarinnar af höndum okkar, og kjósum fólk sem vill réttlæti og sanngirni handa öllum.  Þá er okkur í lófa lagið að koma okkur út úr þessum vanda á eigin spýtur. 

Eitt að lokum, við eigum ef til vill aðgang að olíu á Drekasvæðinu, mjög líklega.  Og er okkur þá ekki borgið.

  

Ágætu landar, við eigum allt sem til þarf.  Það er sáralítið sem við þurfum að flytja inn, ef við hugsum málið aðeins.  Ekki fara inn í enn eitt báknið.  Losum okkur einfaldlega út úr því sem við erum í, og byrjum upp á nýtt.  Með sparnaði og ráðdeild, með því að láta þá fá að njóta sín sem eru dugmestir, og treysta hvort öðru, þá gengur þetta.  Ég er alveg viss um það.  Og þá loksins getum við sagt að við séum frjáls þjóð.  Laus undan oki kvalara, sem hafa einokað, þvingað, rænt og nú að lokum komið okkur á kaldan klaka. 

Ekki gleyma að þeir sem hafa einokað okkur s.l. 17 ár, hafa bundið hendur okkar á bak aftur og bannað mönnum að bjarga sér, til að hygla sínum pótintátum, með því að banna mönnum að veiða fiskinn í sjónum, sett kvóta á bændur, og bannað þeim að gera að eigin framleiðslu.  Boð og bönn sem hafa sett hamlandi hönd á dugmikið fólk og bannað því að bjarga sér.  Nú horfir öðruvísi við, ef við förum að framleiða matvöru ofan í svangan heiminn.

  

Ættum við ekki allavega að reyna ?

 

Mitt faðirvor

Ef öndvert allt þér gengur
og undan halla fer
skal sókn í huga hafin
og hún mun bjarga þér
Við getum eigin ævi
í óskafarveg leitt
og vaxið hverjum vanda
sé vilja beitt.

Hvar einn leit naktar auðnir
sér annar blómaskrúð
það verður sem þú væntir
það vex sem að er hlúð
Þú rækta rósir vona
í reit þíns hjarta skalt
og búast við því besta
þó blási kalt

Þó örlög öllum væru
á ókunn bókfell skráð
Það næst úr nornahöndum
sem nógu heitt er þráð
Ég endurtek í anda
þrjú orð við hvert mitt spor
Fegurð-Gleði-Friður
Mitt Faðirvor.

Ég vildi að ég hefði ort þetta kraftmikla ljóð, en ég ætla að gera það að mínu faðirvori, og bið ykkur að hafa það líka nærri hjartanu á þessum erfiðu tímum. Heart





Nýr dagur.

Það er fallegt veður í dag, líka, en ansi kallt.

IMG_3256

Það var samt notalegt hjá afa gamla á sunnudaginn i mat.

IMG_3257

Það var nefnilega of mikill snjór við kúluna, til að hann kæmist þangað, og þegar Múhameð kemst ekki til fjallsins, þá verður fjallið bara að fara til Múhameðs.. eða þannig Tounge

IMG_3258

Á þessum tíma fer birtan að verða ansi skrautleg og mikil litadýrð, þegar sólin er að undirbúa brotthvarf sitt í skammdeginu.

IMG_3259

En ég vil minna fólk á smávinina fögru, það þarf að fara að gefa þeim eitthvað í gogginn.

IMG_3261

Birtan ótrúlega flott.

IMG_3264

Og engir smáruðningar af snjó, þó enn sé október.  En hér er alltaf vel mokað.  Okkar snjóruðningsfólk kann sitt fag, og þeir vita nákvæmlega hvað þeir eiga að gera, fumlausir og flottir losa þeir okkur við snjóinn af götum og gangstéttum.

IMG_3269

Þessi blái litur er eins og hann kemur af kúnni, ég hef ekki gert neitt til að laga litinn, frekar en endranær.

IMG_3272

Þá er ósköp notalegt að vera inni og leika sér.

IMG_3273

Láta afa kenna sér að spila á spil.

IMG_3274

Grúfa sig yfir Latabæjarbók..

IMG_3276

Nú eða afla sér uppskriftar af þessu líka fína bananabrauði, og baka það alveg sjálfur, og þrífa allt upp eftir sig.  Ég kom ekki nálægt því að baka, eða segja honum til með þetta líka flotta bananabrauð.  Það eina sem ég gerði var að gefa honum leyfi til að baka InLove

IMG_3277

Svo er voðalega notalegt að borða saman morgunmat.

Hanna Sól er komin með nýjan frasa, það er allt auðvitað.  Hanna Sól, veistu hvað náttkjóllinn þinn er ?

Auðvitað..... ekki.

Ertu tilbúin að koma á leikskólann ?

Auðvitað. 

Svo er hún búin að plana afmælið sitt, út í gegn.  Það verður fyrst dansað, svo verður matur, þvínæst teknir upp pakkarnir, og það sem hún vill í afmælisgjöf eru; hvolpur, fimm kettlingar, tveir naggrísir, kanína eða tvær, önnur hvít og hin brún.  Nokkrir prinsessukjólar Smile  Þetta er alveg á hreinu. 

Svo verður drekkutími og þá verða 7 bleikar prinessutertur, sem eru skreyttar með prinsessumyndum. 

Þar sem afmælið verður 23. febrúar, vona ég að sumt af þessu verði orðið úrelt, þegar það að kemur LoL Hún mun nefnilega ekki gleyma þessu. Heart En gæti skipt um skoðun.....

En ég vona að þið eigið öll góðan og glaðan dag.  Nú er sólin búin að brjótast fram, og þá verður einhvernveginn allt svo miklu skemmtilegra og jákvæðara.  Við skulum muna að við erum ekki ein, heldur heil þjóð, sem erum í sömu súpunni, og saman munum við ná okkur upp úr þessu.  Með eða án sökudólganna. 


Vitnað í Einar Má Guðmundsson.

Las þetta á blogginu hans Ómars Valdimarssonar, og ákvað að setja hér inn, vegna þess að það eru tiltölulega fáir sem lesa Moggan í dag.  Það má segja að aldrei sé góð vísa of oft kveðin.  Og hverjir eru betri að brýna okkur til dáða, en baráttumenn orðanna.  Enda hefur það oftast verið svo gegnum tíðina, þegar kreppir að þjóðarsálum landa, að það eru menntamenn og listamenn sem fyrstir standa upp og telja kjark í þjóð sína.  Það er auðvitað vegna þess að þeir bera í sér frjóa hugsun, snarræði og vald á orðum.  Ég gef Ómari orðið og síðan Einari Má. 

En vil segja þetta; Oft hefur verið þörf fyrir okkur að standa saman sem þjóð, en aldrei eins og nú.  Við þurfum að reka af höndum okkar liðónýtri ríkisstjórn, óhæfum bankastjórum, eftirlitsfólki sem þáði bara laun, en vann ekkert upp í þau, og svo burgeisa sem léku sér með fjöregg okkar.  Þetta fólk ber allt saman ábyrgð, en ætla sér greinilega að komast undan því að bera nokkra ábyrgð á ástandinu.  Þau ætla að þreyja þorran og góuna, og vona að þetta sjatni nú allt saman, bara ef þau klappa okkur nógu blíðlega á bakið, og biðja okkur að sýna biðlund, jafnvel ganga svo langt að segja beinlínis, að þetta sé nú okkur líka að kenna, við berum öll ábyrgðina. 

Ef það á að takast að byggja hér upp nýtt þjóðfélag, sem er trúverðugt, og sem við getum treyst, þá þarf allt þetta fólk að fara burt.  Það þýðir ekkert að skipa einhverjar nefndir til að kanna málið, sem þetta lið skipar sjálft, hvað þá eins og dómsmálaráðherran kvað upp úr með í gær að hann stofni nýtt embætti ríkissaksóknara til að skoða málin.  Hve fjærri þjóð sinni getur nokkur maður verið, að við förum að treysta honum af öllum til að skipa einhvern til að skoða málin.  Nei hér þarf að koma að utanaðkomandi aðiljar, sem hvergi hafa nálægt íslandi komið, eða klíkunni sem hér hefur sett allt á annan endann. 

Einar Már Guðmundsson skilur merg málsins

Einar Már Guðmundsson skrifar hárbeitta grein í Morgunblaðið í dag. Þessi grein fangar ansi vel hversu ábyrgðarlaus, skilningslaus og getulaus íslensk stjórnvöld eru til þess að taka á einhverju mesta hneyksli Íslandssögunnar. 

Ég ætla að taka mér það bessaleyfi að birta grein Einars hér:

Hvort sem sagan
er línurit eða súlurit
í auga hagfræðingsins
er heimurinn
kartafla í lófa guðs.

***

Vissulega er hinn frjálsi maður
ekki lengur veginn með vopnum,
ekki höggvinn í herðar niður
eða brenndur á báli.
Sem slíkur gæti hann öðlast samúð
sagnritara og orðið gjaldgengur
á myndbandaleigum framtíðarinnar.
Þess í stað er honum svipt burt
með snyrtilegri reglugerð
og málinu skotið til markaðarins
sem mállaus vinnur sín verk.

***

Ég byrja á smá ljóðabrotum, venjunni samkvæmt, en það er líka til mannætubrandari sem er einhvern veginn svona: Mannæta flýgur á fyrsta farrými. Flugfreyja kemur með matseðil, skrautlegan með nokkrum valkostum. Mannætan er afar kurteis, eins og mannætur eru víst við fyrstu kynni. Mannætan rennir augunum yfir seðilinn og segir svo við flugfreyjuna: Ég sé ekkert bitastætt á matseðlinum. Vilduð þér vera svo vingjarnlegar að færa mér farþegalistann?

Ég ætla ekki að fara að líkja auðmönnum Íslands, sem komið hafa okkur á kaldan klaka ásamt stjórnvöldum, við mannætur, ekki í bókstaflegri merkingu, en eftir að hafa fengið nánast allt upp í hendurnar, banka og ríkisfyrirtæki, virðast þeir samt hafa sagt við stjórnvöld og eftirlitsstofnanir: Það er ekkert fleira bitastætt á matseðlinum. Vilduð þið vera svo vingjarnleg að rétta okkur þjóðskrána?

Og stjórnvöld ábyrgjast heilt spilavíti, rússneska rúllettu, og niðurstaðan er ónýtt mannorð heillar þjóðar – og við sem vorum svo stolt og áttum stundum ekkert nema stoltið. Aumingja Jón Sigurðsson í nepjunni niðri á Austurvelli og Jónas Hallgrímsson, svo laglegur í frakkanum. Hvar er nú andi frönsku byltingarinnar og þýsku rómantíkurinnar þegar það hafa verið sett á okkur hryðjuverkalög þar sem við megum dúsa með skuggalegustu þjóðskipulögum heims og þjóðhöfðingjum sem enginn vill hitta í myrkri.

Hver Osama bin Laden er í þessu dæmi skal ósagt látið, en margir af auðjöfrunum eru flúnir land og láta ekki ná í sig eða aka um með lífverði sér við hlið. Verður ekki allt tal um turnana tvo í íslenskum stjórnmálum dálítið kaldhæðnislegt í þessu samhengi? Hafa þeir ekki orðið fyrir hryðjuverkaárás, jafnvel sjálfsmorðsárás? Eru þeir ekki hrundir og það af eigin völdum? Ég ætla heldur ekki að líkja neinum við feðgana Kim Yong Il og Kim Il Sung, en stjórnvöld og eftirlitsstofnanir þeirra virðast hafa sagt við auðmenn þessa lands þegar þeir báðu þau um þjóðskrána: Já, gjörið þið svo vel. Er ekki eitthvað fleira sem við getum gert fyrir ykkur?

Þetta eru auðvitað ekkert annað en landráð, hafi það orð einhverja merkingu lengur, og það er því skýlaus krafa okkar sem eigum ekkert nema sjálf okkur og börnin okkar að eignir auðmannanna verði frystar strax, og kerfið hætti að rannsaka sjálft sig. Almenningur vill að fjármálaeftirlitið sé sett af og það og aðrar eftirlitsstofnanir séu rannsakaðar; líka Seðlabankinn, líka ríkisstjórnin. Menn sem hafa haft hagsmuni af sukkinu eru látnir rannsaka sukkið, og fjármálaspillingin teygir sig jafnvel inn í ríkisstjórnina, en við sitjum uppi með risavaxinn reikning, tólf þúsund milljarða, og þeir ætlast til að við borgum, við, börnin okkar og barnabörnin og barnabarnabörnin líka.

Ég hirði ekki um að halda romsunni áfram, slíkur er glæpurinn sem framinn hefur verið, og þessi glæpur hefur verið framinn með vitund stjórnmálamanna, þeirra sem einkavæddu bankana, gáfu þá raunar pólitískum vildarvinum, já létu þá í hendur fjárplógsmanna sem veðsett hafa okkur langt fram í tímann og gert okkur að bónbjargarmönnum hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og öðrum lánastofnunum.

Við erum gíslar á lögreglustöð heimskapítalismans, því reikningurinn sem skilinn var eftir á veitingahúsi hans er svo stór að enginn getur borgað hann og ríkisstjórnin segir ekki eins og strákarnir í Englum alheimsins: Við erum öll saman á Kleppi, það væri of gott til að vera satt, heldur segir hún: Þjóðin borgar. Við munum pína skrílinn. Já, ríkisstjórnin er alveg jafn ábyrgðarlaus og strákarnir sem snæddu á Grillinu í áðurnefndri sögu. Munurinn er bara sá að samfélagið var búið að taka af þeim ábyrgðina en ríkisstjórnin var kosin til að axla ábyrgð.

***

Marktækur hagfræðingur, sem var búinn að vara okkur við, segir að ríkisstjórn Íslands og seðlabanki séu engu hæfari sem stjórnendur nútímahagkerfis en þau væru sem stjarnvísindamenn. Þau skildu ekki að uppsveifla íslenska hagkerfisins árin 2005 og 2006 byggðist á skuldasöfnun – lán voru tekin til þess að standa í skilum með önnur lán – og nú vita þau ekki hvernig unnt er að ná jafnvægi aftur þegar pappírsauðurinn er horfinn.

Og hagfræðingurinn bætir við: Það er ólíklegt að nýir leiðtogar sem væru valdir af handahófi í símaskrá gætu valdið jafnmiklum efnahagslegum glundroða og núverandi stjórnvöld.

Þarf frekari vitnanna við? Hvað segja stjórnvöld og hvað segja fjárplógsmennirnir? Þau segja ekkert og þeir segja ekkert. Enginn segir neitt. Það ætlar enginn af þessu fólki að axla ábyrgð. Sigurjón bankastjóri, sem lýsti ICESAVE-reikningunum sem tærri snilld, segist ekki bera neina ábyrgð, og Halldór Kristjánsson félagi hans ekki heldur, en þessum reikningum var komið á fót þegar engir marktækir bankar vildu lengur lána íslensku bönkunum. Já, þá var þeim komið á fót með ábyrgð í þjóðskránni. „Það eina sem ég þarf að gera er að kíkja í lok dags hvað er kominn mikill peningur inn,“ sagði Sigurjón bankastjóri hlæjandi við blaðamann einhvers viðskiptablaðsins. „Það bættust við fimmtíu milljónir punda bara á föstudaginn!“ Þetta hafa verið skemmtilegir föstudagar sem við fáum nú í hausinn.

Bera slíkir menn enga ábyrgð? Ekki segja þeir, og allir meðvirku stjórnmálamennirnir taka undir. Það má ekki dæma, það má ekki hafa skoðun. Samt er enginn að æpa úlfur úlfur, þeir halda bara sjálfir eða heyra það löngu á undan öllum öðrum, en þegar jafnvel götunnar menn sem stela einum lifrarpylsukepp og koníaksfleyg þurfa að sæta ábyrgð er ekkert nema eðlilegt að þeir sem hafa komið þjóðinni á kaldan klaka geri grein fyrir máli sínu og reyni að bæta fyrir brot sín, jafnvel þótt brotin kunni að vera lögleg og hafi gerst með blessun stjórnvalda. Hér er einfaldlega svo miklu meira í húfi; þjóðin getur ekki beðið eins og Breiðavíkurdrengirnir eftir einhverri hvítbók, það væri eins hægt að syngja fyrir okkur gamla Flowers-lagið Slappaðu af, nema að verið sé að viðurkenna að við séum eins og Breiðavíkurdrengirnir, við höfum verið misnotuð í einhvers konar kennitöluflakki um öll hagkerfi heimsins og gott ef ekki sólkerfi.

***

Sú hagfræðibóla, sem stjórnvöld settu engar skorður, var svo augljós vitleysa og stjórnvöldum var margsinnis bent á það, nei ekki einu sinni, ekki tvisvar, heldur hvað eftir annað. En í stað þess að taka mark á þessum ráðleggingum fóru ráðherrarnir út í lönd sem kynningarfulltrúar bankanna. Héldu Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún virkilega að ástandið myndi lagast ef þau héldu blaðamannafundi? Hvaða stjórnspeki er þetta eiginlega? En þetta fólk ber auðvitað enga ábyrgð. Þau gátu ekki séð þetta fyrir, segja þau. Nei, þau hlustuðu bara ekki á neinar viðvaranir, þar liggur ábyrgðin, og þess vegna á að skylda þau til að hlusta á það sem við erum að segja.

Það voru orðin hálfgerð trúarbrögð að hægt væri að kjafta ástandið upp og niður, enda réð ríkisstjórnin einn aðalkjaftaskinn til sín sem ráðgjafa og hann hætti þegar hann komst að því að ráðgjafastörfunum fylgdi vinna. Við viljum líka sjá ábyrgð greiningardeildafólksins, sem virðist hafa verið í vinnu við að ljúga að okkur. Skoðið tekjublað Frjálsrar verslunar og sjáið hvað þetta fólk var með í laun! Sjaldan undir fimm milljónum á mánuði. Fyrir hvað? Fyrir að ljúga? Skoðið líka hvernig fólk nátengt ríkisstjórninni hefur makað krókinn, og nú ætlar þetta fólk að fara að rannsaka sjálft sig. Það er annars merkilegt að tekjublað Frjálsrar verslunar er allt í einu orðið eins og mögnuð heimildaskáldsaga. Fyrir hvað voru forstöðumenn greiningardeilda, fyrirtækjasviða og ég veit ekki hvaða sviða að fá sjö milljónir, átta milljónir, tíu milljónir, í mánaðarlaun? Ef Jóhann Páll Valdimarsson borgaði ljóðskáldum slík laun myndi Forlagið strax fara á hausinn. Samt virðast mér ljóð margra skálda margfalt verðmætari en pappírarnir sem þetta fólk var að sýsla með. Verður þetta fólk ekki líka að axla ábyrgð, reikna sér eðlileg laun og skila afganginum upp í skuldir? Öðruvísi verður engin sátt í þessu þjóðfélagi. Þannig er Ísland í dag.

Eða eigum við nú þegar skuldunum rignir yfir okkur að fara bara með reikningana okkar út í tunnu og halda síðan blaðamannafund? Hvað á fólkið sem nú missir húsin sín, vinnuna, að gera? Á það að halda blaðamannafund? Eins og stjórnvöld. Sjá menn ekki hvílík vanhæfni hér er á ferð? En þau bera enga ábyrgð. Samt stjórna þau landinu. Halló! Þetta er eins og að segja: Ég rústaði húsinu, en ég ber enga ábyrgð af því að ég gerði mér ekki grein fyrir að ég væri að rústa húsinu. Myndi einhver taka slíka röksemdafærslu gilda? Nei, en þetta er röksemdafærslan sem okkur er boðið upp á.

Geir Haarde átti að vita að hann var á hriplekum báti, en hann sagði: Við róum bara áfram og sjáum hvað gerist. Það er best að gera sem minnst. Það var speki frjálshyggjunnar, að gera ekki neitt. Aðspurð um vanda bankanna sagði hinn leiðtogi ríkisstjórnarinnar, Ingibjörg Sólrún: Þetta er fræðilegt vandamál, og bætti við: Ég fæ ekki betur séð en að bankarnir standi ágætlega.

Hún sagði ekki þetta er hræðilegt vandamál, heldur fræðilegt, og fór svo til Köben með Sigurði Einarssyni, fjármálafurstanum sem nú byggir sér níu hundruð fermetra sveitasetur í Borgarfirðinum og hefur nýverið látið bankann sem farinn er á hausinn kaupa handa sér hús í London upp á tvo milljarða. Geir Haarde og Ingibjörg Sólrún ætla kannski að sitja með Sigurði Einarssyni og dást að sólarlaginu í Borgarfirðinum og segja: Þetta er fræðilegt vandamál, þegar allir verða farnir úr landinu, og Sigurður Einarsson, varla ber hann ábyrgð, þessi mikli snillingur, sem fyrir örfáum vikum fékk hundruð milljóna í kaupauka. Fyrir hvað? Þetta var maðurinn sem hótaði að fara úr landi ef hann fengi ekki ofurlaun.

Já, Ingibjörg Sólrún, hvað varð af hinni hagsýnu húsmóður kvennalistans? Það eru ekki bara unglingar sem lenda í vondum félagsskap. Stjórnvöld hafa verið í vasanum á ábyrgðarlausum fjármálafurstum og nú ber þeim að taka ábyrgð á því.

Nei annars, þetta er ekki þeim að kenna. Þau bera enga ábyrgð. Geir Haarde forsætisráðherra segir að kreppan sé bara einhver óþægilegur vindur sem kom frá útlöndum, svipaður óveðrinu í síðustu viku, og ef það hefði ekki gerst, ef það hefði ekki blásið, þá væri allt í himnalagi. Það var sem sé ekkert að, bara ef bullið gat haldið áfram. Allt fjármálasukkið, ofurlaunin, kaupaukarnir, endalaus sala á verðlausum bréfum og endalaus niðurlæging á fólki sem vann heiðarleg störf. Laun Lárusar Weldings bara fyrir að byrja í bankanum voru hærri en ævitekjur flestra vinnandi manna. Rithöfundur þyrfti líklega að skrifa tugi metsölubóka til að vera andvirði eins fótspors hjá Lárusi Welding. Er þetta eðlilegt verðmætamat? Vita menn í hvað ICESAVE-peningarnir fóru? Er það satt að þeir hafi verið lánaðir til Baugsfyrirtækja sem nú skulda hundruð milljarða á meðan eigendur fyrirtækjanna monta sig af lystisnekkjum, einkaþotum, lúxusíbúðum, sveitasetrum og hótelum? Það virðist hafa verið samkomulag fjármálafurstanna að lána hver öðrum út á veð sem ekkert stóð á bak við. Og þetta finnst stjórnvöldum bara allt í lagi; og þau ætla að fara hægt í sakirnar og ekki að dæma.

Eini vandinn er sá að þetta fékk ekki að halda áfram. Það segir Geir Haarde. Nákvæmlega sama viðhorf birtist hjá Jóni Ásgeiri. Maðurinn heldur því blákalt fram, og virðist trúa því sjálfur, af svipbrigðum hans að dæma, að fyrst þeir fengu ekki meira lán til að halda vitleysunni áfram þá hafi bara allt stoppað og það sé allt Davíð að kenna. Maður gæti haldið að Jón Ásgeir væri alinn við einhverja sérstaka útgáfu af Davíðssálmum, svo hugleikinn er Davíð honum. Jón Ásgeir notar sömu rök og drykkjumaðurinn sem segir að það sé allt í lagi að keyra fullur, bara ef hann er ekki tekinn, og þegar hann keyrir á ljósastaur er það ljósastaurnum að kenna. Síðasti bankinn sem ekki gat lánað, hann gerði mig gjaldþrota! Eigum við að kaupa þetta bull? Það kann vel að vera að eitt og annað hafi verið óheppilegt við yfirtöku bankanna, til dæmis Glitnis, en hefði verið heppilegt að lána banka sem var kominn í þrot miklar fjárhæðir? Ef ég skuldaði Jóni Ásgeiri margar milljónir myndi hann þá lána mér fleiri milljónir? Skuldir banka og fyrirtækja voru einfaldlega orðnar svo miklar að dæmið gekk ekki upp. Talað er um að Stoðir skuldi 260 milljarða, Eimskip um 200 og þar fram eftir götum.

Þess vegna erum við orðin þreytt á öllu þessu bulli. Við þessar aðstæður er ríkisstjórnin rúin öllu trausti nema hún taki til hendinni og beri niður þar sem eitthvað er að sækja. Það er rétt, við ætlum ekki að borga skuldir óreiðumanna, en við erum farin að heyra mjálmið og afneitunina. Stjórnmálamennirnir munu fylla eyru okkar af langlokum og afsökunum. Þeir vonast til að geta setið af sér storminn eins og þeir eru vanir að gera. Eins og Bjarni Ármannsson var sérfræðingur í. Hann hefur kannski kennt þeim trikkin. Var það ekki Pétur Blöndal sem uppgötvaði Bjarna, Pétur Blöndal sem sagði þessa skemmtilegu setningu í þættinum Mannamál í sjónvarpinu á sunnudag: „Ég viðurkenni ekki neitt.“

Eitt hafa stjórnvöld þó framkvæmt, það er að koma sér upp sérsveit lögreglu, en að við séum búin að missa landið út úr höndunum, að hér ljúki sögu lýðveldisins, og það allt af því að örfáum fjárplógsmönnum var gefinn allt of laus taumur, það er auðvitað þyngra en tárum taki, því satt best að segja hef ég alltaf kunnað vel við lýðveldið og ég geri ráð fyrir að sakna þess þegar fram líða stundir.

Nei, ég get ekki gert mikið fyrir ríkisstjórnina, en vil þó nesta hana með einu ljóði sem henni er frjálst að fara með næst þegar hún hittir fulltrúa Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og önnur yfirvöld af veraldlegum toga, en það heitir einmitt Síðasta tilboð Íslendinga og er að finna í ljóðabók með því viðeigandi nafni: Í auga óreiðunnar.

Því miður, herra framkvæmdastjóri,
ég hef ekkert að bjóða
í þessum samningaviðræðum
nema þrjú tonn af kokteilsósu,
örfá eintök af dýrafræði Jónasar frá Hriflu
og allar hljómplötur Árna Johnsens.

Höfundur er rithöfundur.



Skemmtilegur dagur.

Í dag var fallegur dagur, en ég set inn líka nokkrar myndir frá gærdeginum.  Þetta verður því maraþon myndasýning.  Á meðan afi les og svæfir litla skrímslið, og sú eldri borðar veetabix með sykri, þá sit ég hér og set inn myndir og texta.

En svona smá orðamynd.  Það er sunnudagsmorgun, og allt er hljótt, svo heyrir amma að sú litla er vöknuð, og þegar hún rís upp, þá stendur amma á fætur, tekur litla barnið upp og setur milli afa og ömmu í hjónarúminu.  Hún liggur samt ekki lengi kyrr, því hún er útsofin, þó klukkan sé bara rúmlega sjö.  En samt liggur hún og byltir sér svona í góðan klukkutíma.  Svo er þolinmæðin þrotin, og hún byrjar að reyna að vekja mannskapinn.  Það er eitt sem alltaf dugir þó og hún veit alveg hvaða magic orð það er, en það er einmitt orðið Kúka! Hehehehe.. maður veit svo sem að það er ekki á dagskrá, heldur bara svona orð sem litla stýrið veit að virkar.  Amma rís upp, fer framúr, litla skottið tekur í höndina og leiðir ömmu fram, stoppar smástund við morgunsloppinn sem liggur á gólfinu, bendir og amma hlýðir, fer í sloppinn.  Venjulega eru það inniskórnir og svo fötin eitt af öðru, en þarna nægir sloppurinn.  Þegar við erum svo komnar fram úr herberginu; þá segir sú stutta, Lababær hehehehe og það var allan tímann það sem hún ætlaði sér. LoL Þetta er svona venjulegur laugar- og sunnudagsmorgunrúntur.

En frá því í gær.

IMG_3080

Úbbs sleit síman hans afa úr sambandi...

 IMG_3084

Best að setja hann í samband aftur.

IMG_3085

En i fyrrakvöld þá var ömmuhelgi, þau fengu að sofa unglingarnir mínir.  Pöntuðu sér pitsu og myndir, og fengu að sofa.  Hér eru þau í gær morgun að leira.

IMG_3086

Og þeim finnst það bara gaman.

IMG_3089

En það þarf líka smávegis að vera á spjallinu, við jafnaldrana, og ættingjana, stundum vilja þau spjalla við ömmu sína.

IMG_3091

En litlu skotturnar hafa það notalegt í ömmuherbergi.

IMG_3093

Og nú á að fara út að leika.

IMG_3094

Hænuskottið lenti svo í Brandi og varð að fljúga ansi hátt til að verja sig, en hún getur það alveg.

IMG_3095

Sjáðu ! segir Ásthildur og bendir á hænuna.

IMG_3098

Það er gaman að leika í snjónum.

IMG_3099

Það er alveg sama lögmálið og þegar ég var á þessum aldri, það hefur ekkert breyst þar.

IMG_3100

Svo var komið inn og farið út aftur eins og gengur.

IMG_3103

Rosalega gaman.

IMG_3106

Í gær var mugga, ekki slæmt veður, en útlitið frekar dökkt.

IMG_3108

En Júlli er með þessa flottu sýningu í Edinborgarhúsinu.  Og hann er bara flottur.

IMG_3111

Kem aðeins nánar að því síðar.  En hér eru grýlukertin flott.

IMG_3112

Ísafjörður in the twilightsoon hehehehe...

IMG_3114

Þessi er sett inn fyrir Magný mína og líka Rannveigu Höskuldar, Engi í vetrarham.

IMG_3115

Kúlan í svona ævintýrablæ.

IMG_3117

Og börnin búin að grafa göng, vonandi að hér verði fleiri göng, í réttri stærð fyrir vegakerfið.

IMG_3118

Veðrið var yndislegt í dag.

IMG_3119

Og kúlan nýtur sín vel í svona birtu.

IMG_3123

Nýtt sjónarhorn frá mér.  En yndislega fallegt að mínu mati.

IMG_3124

Kubbinn í allri sinni dýrð.

IMG_3126

Kúlan enn og aftur.

IMG_3128

Smábrot af sýningunni hans Júlla. Þessi fremsta er geimvera.

111

Sést betur hér.

IMG_3130

Hulktrutt í góðum félagsskap.

IMG_3132

Þessi heitir óperufiskur, enda er hann greinilega að syngja La travíata hehehe..

IMG_3137

Ísfirðingar kunna svo sannarlega að gera sér mat úr góðaveðrinu. 

IMG_3139

Og það eru svo sannarlega ekki bara börnin sem skemmta sér, heldur bæði fullorðnir og foreldrar barnanna, sem gera sér gott út því sem er til staðar.  Við kunnum þetta ísfirðingar.

IMG_3140

Hér er líka verið að búa til stökkpall.

IMG_3143

Birtan er sjónarspil út af fyrir sig.

IMG_3145

Og nú á að fara í sund á Suðureyri.

IMG_3147

Allt klárt í bílinn.

IMG_3149

Og veðrið ennþá hrikalega flott.

IMG_3151

Naustahvilftin líka flott.

IMG_3157

Og við lögð af stað.

IMG_3158

Hugsandi um hvað er í vændum.

IMG_3162

Búbbsí, ætli þetta væri ekki flott auglýsing fyrir útlendinga, að koma og njóta fjölbreytileika landsins.

IMG_3166

Er það ekki alveg ótrúlega flott ?

IMG_3168

Með snjó í glasi...

IMG_3171

Og svo má ná sér í meira.

IMG_3179

Þetta er hann Jói Súgfirðingur, strigakjaftur og harðfiskverkandi.  Aldeilis flottur og daglegur gestur í lauginni.

IMG_3184

Og hér er afi búin að ná í klaka fyrir Hönnu Sól.

IMG_3193

Nammi namm

IMG_3195

Þá er að reyna að komast út í stóru laugina.

IMG_3200

Og litla skottið að ná sér í snjó.

IMG_3204

Hvað haldið þið, getur ekki verið að svona myndir trekki fólk til að koma og skoða það sem við höfum upp á að bjóða ?

IMG_3206

Jamm snjórinn ER góður hehehe

IMG_3209

Og hitin er notalegur.

IMG_3212

Svo má fara í boltaleik.

IMG_3216

Þar geta allir verið með.

IMG_3219

Já allir!

IMG_3231

Þá er best að fara uppúr.

IMG_3245

Hér liggja bátarnir uppi sem þýsku sjómennirnir hafa róið á undanfarin ár, og gefið vel af sér vonandi.

IMG_3249

Ísafjörður seinnipartinn, fallegur í kvöldsól, sem senn kveður okkur.

IMG_3253

Og afi ber litlu gimsteinana okkar heim í kúluna.

IMG_3254

Ísafjörður skartar sínu fegursta.

IMG_3255

Þegar svona mikill snjór er, þá getur afi gamli ekki komið að borða, þá er ekkert annað í stöðunni en að koma með matinn heim til hans á Hlíf.  Og það er einmitt það sem við gerðum.  Fórum öll með matinn og borðuðum hann heima hjá afa gamla.  Hann var hinn glaðasti við að fá heimsóknina. 
Elskulegust mín, þetta er eins og ég sagði maraþonmyndasýning.  Vonandi hafa einhverjir gaman af henni.  En ég segi bara góða nótt, sofið rótt í alla nótt og megi allir góðir vættir vaka með ykkur og vernda.  Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn, því skulum við fara að hugsa sem ein þjóð.  En samt þannig að við skulum ekki láta telja okkur á að gleyma misgjörðum manna, heldur standa saman, og heimta skilagrein frá sökudólgum, og aldeilis ekki gefa þeim nýtt umboð til að halda áfram að flá okkur inn að skinni, og veðsetja börnin okkar og barnabörnin.  Nú er komið að skiladögum, þar sem hinir seku fá að taka pokann sinn, hvort sem þeir eru pólitíkusar, útrásarlið, eða þeir sem áttu að líta eftir því að svona kæmi ekki upp á, svei þeim bara.


Fundurinn hefst kl. 15.00.

Hef það eftir málverjanum Óradísi, sem hafði samband við Hörð Torfason, og hann sagði henni að fundurinn byrjaði kl. þrjú, en ekki fjögur.  Veit ekki hvað er í gangi, hvort hér er um tvo fundi að ræða, eða hvort eitt eigi að leiða af öðru.   Vil bara vekja athygli á þessu mikilverða máli. 

Sjá hér.

QUOTE (human @ Oct 25 2008, 13:37) *
Samkvæmt þessu er fundurinn klukkan 16:00 http://nyirtimar.com/

Nýir tímar boða fundinn klukkan fjögur:

"Við mótmælum öll – Hittumst á Austurvelli á laugardag kl. 16. Vertu þátttakandi, ekki þolandi. Kyndilganga og blysför frá Austurvelli að raðherrabústaðnum. Krafan er einföld og þverpólitísk, rjúfum þögn ráðamanna!"


Óradís svarar:


Ég veit það.
Ég var að enda við að tala við Hörð Torfason og hann sagði mér að fundur yrði kl 15:00 á Austurvelli.
Annar hópur er klárlega að reyna að hleypa þessu upp. Pólitísk öfl sem vilja greinilega rjúfa samstöðuna.
Við búum okkur bara vel og gerum ráð fyrir löngum fundi. Fundi sem stendur frá klukkan 15:00 og jafnvel fram eftir kvöldi, þ.e ef þriðja fundinum verður hleypt af stað

Vonandi tekst okkur að standa saman um þetta mikilverða mál.  Og hér sé um einn fund að ræða en ekki fleiri.  Sameinuð stöndum vér, sundruð föllum vér.  Gott gengi og ég verð með í huganum.


Enn ein sagan af nýju fötum keisarans.

Ég vil þakka ykkur öllum hlý orð og kærleikskveðjur.  Ég ætla að svara ykkur á morgun.  En ég verð að segja að ég er máttvana af andstyggð á öllu þessu stjórnarfari, óheiðarleika, og að reyna að rýna í hvað er sannleikur og hvað er lygi sem matreitt er ofan í okkur.  Ég á afskaplega erfitt með að þola lygi og óheiðarleika, og ef ég get ekki sett puttan á hvað er í gangi, þá missi ég fullt af orku.  Þannig er ég bara.  Og það á við nú. ég er líka reið, reið yfirvöldum, sem sitja þarna og plotta í bakið á okkur, rúin trausti, en hanga eins og hundar á roði.  Láta sér fátt um finnast, og halda áfram að verja ósóman.  Sum þeirra hálftaka undir alþýðusöngvana, þ.e. samfylkingarfólkið, en það er bara málamyndamjálm finnst mér, og enginn alvara á bak við.  Svona til að halda lýðhyllinni, því þau eru jú að stórgræða á ástandinu, með því að segja sem minnst, alveg eins og sjálfstæðismenn hafa alltaf stundað.  Það er þó hægt að gleðjast yfir því að þeir sitja nú berskjaldaðir í drullunni og komast ekki upp úr. Vonandi skilar það sér á kjördag, því það er komið nóg af þeirra stjórnvisku og peningaviti.  Það þarf að fara að breyta alvarlega til. 

Ég vil biðja ykkur öll að muna fundinn á morgun, kl. fjögur.  Ég myndi mæta ef ég væri ekki stödd á Ísafirði, það var talað um að það ætti að reyna að koma einhverjum mótmælum á fót hér, ef svo verður, mun ég láta sjá mig þar.

En ég var að taka til í tölvunni minni og rakst á grein, sem ég skrifaði árið 1999/2000.  Hún á jafn vel við í dag og þegar hún var skrifuð.  Það hefur sum sé ekkert breyst í núna meira en átta ár.  Og reyndar hefur þetta ástand verið stigmagnandi s.l.17 ár, meðan Sjálfstæðismenn hafa verið að sölsa undir sig landið okkar. En hér er greinin:

 

Hann er ekki í neinu ! 

Keisarinn í sögu H.C. Andersens, leit stórt á sig, hann vildi fá það besta út úr heiminum fyrir sjálfan sig.  Hann var ekki í neinum tengslum við fólkið í landinu vegna eigin hroka.  Þegar honum bauðst að láta sauma á sig dýrindis fatnað úr stórkostlegu efni, sem aðeins þeir sáu sem gáfaðir voru stóðst hann ekki mátið.  Auðvitað gat hann ekki viðurkennt að hann sá ekki fínu fötin.  Æðstu ráðgjafar hans dásömuðu einnig hin óséðu föt, hirðin og fólkið stóð allt og og hreifst af þessum undursamlegu klæðum.  Það var svo loks lítið barn sem hrópaði sannleikan; Hann er ekki í neinu ! og þá opnuðust augu fólksins fyrir eigin heimsku.  Þessi saga leitar alltaf meira og meira á huga minn þegar ég hlusta á æðstu menn þjóðarinnar ræða um stjórnmál og afrek sín á þeim sviðum.  Einhverntíma á einhver eftir að hrópa í múgnum  -  Þeir eru ekki í neinu  !

 

                Það verður að segjast eins og er að þjóðin mín er í þykjustuleik við hlustum á stóru karlana leika sér, þú mátt halda á mínum ef ég má halda á þínum.  Og svo standa þeir og hrópa til okkar svart er hvítt og blátt er rautt, og við þorum ekki annað en að dást að stjórnvisku þeirra.  Þótt við í hjartanu vitum að þetta er ekki satt.  Manni verður stundum bumbult af þessum leikaraskap. 

 

                Við stærum okkur oft af því að búa í lýðræðisríki og okkar háttsettu leikarar tala gjarna um það á hátíðastundum hve gott við eigum að búa við svo mikið lýðræði sem hér er.  Svo var mér sagt í sumar af manni sem flytur inn vörur hingað frá norðurlöndunum að þar á bæ legðu þeir að jöfnu Ísland og Panama. Þar væru í reynd samskonar stjórnun, ekkert þýddi að reyna að flytja neitt inn til landsins nema að þekkja réttu mennina, sem greiddu götu þess sem þekkir hvernig kaupin gerast á eyrinni.  Ég  hef oft hugsað um þetta  síðan og ég skammast mín fyrir að þurfa að hlusta á svona, en ég get ómögulega andmælt þessu, því þegar maður horfir á leikaraskapinn í kringum alla stjórnsýsluna - þetta vina og kunningja samfélag þá hlýt ég að halda að fótur sé fyrir þessu. 

 

                Okkar menn eru líka orðnir svo vissir um sig að þeir skammast sín ekkert fyrir að segja hreint út að þeim finnist eðlilegt að þeirra menn fái réttar stöður og bitlinga, þrátt fyrir að heilbrigð skynsemi segi manni allt annað.  En ég verð að segja það að þótt leikararnir okkar komist upp með þetta æ ofan í æ, og engin frétta- eða blaðamaður spyrji þá mjög óþægilegra spurninga, og láti þá komast upp með allskonar fullyrðingar án þess að andmæla, þá er almenningur á Íslandi engir asnar.  Það heyrir maður í kring um sig, og þetta óánægju muldur eykst og magnast dag frá degi.  Almenningur þessa lands les í gegnum línurnar og sér í gegnum allt blaðrið.  Og einn daginn mun loftbólan springa.  Því fyrr því betra.  

  

                Það sem ég vil óska Íslandi á þessum aldamótum er að við fáum sem fyrst stjórnendur fyrir landið okkar, sem eru þess megnugir að láta heill þjóðarinnar og náttúrunnar ganga fyrir sínum eigin hagsmunum.  Vonandi tekst okkur að fá slíka menn til að koma að stjórnun landsins, það verða að vera manneskjur sem hafa sannleikann að leiðarljósi.  Sú stjórn sem við höfum yfir okkur núna er mikið okkur sjálfum að kenna, við höfum látið blekkjast af fagurgala og dansi í kring um gullkálfinn.  Innantómum loforðum um stöðugleika og góðæri sem náði rétt fram yfir kosningar og launahækkanir leikarana okkar.  Orð eins og heiðarleiki, réttsýni, sannleikur og göfuglyndi virðast einhvernveginn svo hjáróma í munni þeirra því miður.

 Ég bind miklar vonir við æskuna, við eigum þann fjársjóð sem er unga fólkið okkar, vonandi ber þeim gæfa til að snúa vörn í sókn brjóta niður þessa rotnu yfirbyggingu og byggja upp nýja framtíð á traustum grunni.  Með þá von skulum við ganga inn í nýja öld.  

                                                Með kveðju  Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Eigum við að þurfa að bíða lengur eftir réttlæti og sanngirni.  Eftir upplýstri faglegri stjórn, sem hefur hag fólksins að leiðarljósi en ekki frændsemi og vinatengsl.  Er ekki bráðum að verða komið nóg?  Ég get ælt þegar ég horfi á "landsfeðurna" tjá sig um hvað þeir ætli að gera.  Þeir eru vandamálið ekki lausnirnar, eins og einhverjir erlendir blaðamenn og fræðingar sögðu um Davíð Oddsson.  

Ég tek undir með þeim sem ætla að fara niður í miðbæ Reykjavikur á morgun.  Við viljum lifa í upplýstu samfélagi, þar sem okkur er treyst til að fylgjast með, og skoða hvað er í gangi, við erum ekki ómálga börn sem þarf að hlífa við óþægilegum upplýsingum, eða er það sem er að gerast, eða er verið að plotta um framtíð okkar ? spyr sú sem ekki veit. 

Mín kæru, ég er orkulaus af því að ég er miður mín yfir að geta ekki losnað við það fólk sem kom okkur í þessar ógöngur.  Sem lætur ekki segjast.  Það er komið nóg.  Það sem þarf núna er þjóðstjórn skipuð sérfræðingum, innlendum og erlendum, sem kunna að takast á við vandamálin og spillinguna.  Síðan mega flokkarnir tjasla saman trúverðugleika sínum og hefja kosningabaráttu.  En ekki fyrr en við erum komin á réttan kjöl.  Með þetta fólk áfram í brunni höfum við einfaldlega ekki traust alþjóðasamfélagsins, þau verða einfaldlega að skilja það og viðurkenna.  Því fyrr því betra.  Þess vegna er mikilvægt að sem flestir mæti og láti sjá að okkur er ekki sama.  Og þjóðarsálin talar einu máli.  Það er komin tími til að við látum að okkur kveða og látum vita hvernig okkur líður.   

                                     

 


Kósýkvöld.

Veit ekki hversu langt ég kemst með þessa færslu, rafmagnið er endalaust að fara.  Áhyggjufull móðir situr út í Austurríki, endalausar fréttir af viðbúnaði og hættu á snjóflóðum.  Það er erfitt að vera einhversstaðar annarsstaðar, þegar svoleiðis er, því við viljum alltaf mikla fyrir okkur, það sem við þekkjum ekki.  En við höfum það gott hér í kúlunni.  Rafmagnsleysið eykur bara á ævintýrið, afi að leika skrímsli, strákarnir að spila rakka, og amma leggur kabal, ekkert annað að gera með kertaljósinu.  Maturinn var eldaður í flýti milli rafmagnsleysa, svo nú erum við södd og sæl.

IMG_3010

Það hefur bætt töluvert í snjóinn, við fórum snemma að sækja stelpurnar, þorðum ekki að bíða, því veðrið var að versna.

IMG_3013

Höfnin á Suðureyri, við þurftum að lúsast alla leiðina, sá ekki á milli stika inn á milli.

IMG_3016

Þessar elskur voru á sínum stað, og við áttum sem betur fer brauð til að gefa þeim.  Annars er þeim gefið vel af eigendum sínum.

IMG_3018

Þá er að berjast út í bílinn.

IMG_3022

Ásthildur hafði ekki lokið blundinum sínum þegar við komum, svo afi bar hana bara út í bílinn.

IMG_3023

Hanna Sól fékk sér smálúr á leiðinni heim, því það var rétt þokast áfram, í seiðandi snjódrífu.

IMG_3024

Sjáðu mig, ég næ upp hehehe

IMG_3026

Með jólalög Borgardætra í spilaranum þokuðumst við áfram áfram áfram og þurftum oft að bíða þess að sortan lægði aðeins, svo við sæjum stikurnar.  Hún amma er hjá mér um jólin, sungu þær...

IMG_3028

Við vorum fegin þegar við komum að gangnamunnanum, þvílíkt sem þessi göng eru manni kær í svona veðri.

IMG_3029

og þar snjóar ekki, eða er hálka.

IMG_3032

Og svo út í sortan hinu meginn.

IMG_3033

Við þurftum að færa foxinn, svo afi gæti komist alla leið upp að dyrum, svo við þyrftum ekki að bera börn og buru alla brekkuna.

 

En hann Júlli minn er að opna sýningu á verkum sínum í Edinborgarhúsinu, hann er búin að leggja nótt við dag að gera verk, og loks er allt að verða klárt, það átti að vísu að opna í dag, en veðrið var ekki þannig að það hefði neitt upp á sig.

IMG_3034

En það var samt komið sumt upp, sem á að vera á sýningunni.

IMG_3036

Þau eru falleg steinblómin hans.

IMG_3038

Þessir voru allavega farnir að biða.

IMG_3039

'Eg hlakka til að skoða sýninguna, ég veit að þetta verður mjög forvitnileg sýning, og öðruvísi en allt annað sem við höfum séð.  Fjörugrjót í fyrirrúmi.  Hann er meistari grjótsins þessi drengur minn Heart

IMG_3040

Og ennþá kyngir niður snjónum.

IMG_3041

Þetta fer að verða jólastemning.

IMG_3042

Sko bara !

En svo hringdi nágrannakona mín, hún Fríða á Stakkanesinu.  Viltu kaupa hænu, sagði hún sporsk í símann.  Þá hafði gestkomandi maður hjá henni, náð einni hænunni.  En hve ég var glöð.

IMG_3043

Og Úlfur og Daníel fóru að sækja hana.

IMG_3044

Orðin osköp villt þessi ræfill.

IMG_3047

Svo flýtti hún sé inn í hús. 

IMG_3048

Hvort á ég að fara á eldavélina eða örbylgjuofninn spurði hún hehehehe

IMG_3049

Nú eða bara stofuna.

IMG_3050

Prinsessuherbergið!!!

IMG_3051

Hanna Sól var líka spennt og fékk að klappa henni.

IMG_3052

Úlfur var voða duglegur.

IMG_3056

En litla skottinu stóð ekki á sama LoL

IMG_3059

Já hún var bara ánægð að vera komin, og nú er hún frammi í garðskála, því ekki getum við látið hana vera eina upp í hænsnakofa.  Vonandi finnast hin hænsnin líka á lífi.

IMG_3065

Og svo fór rafmagnið, og það var nú spennandi.  Og það er ennþá að koma og fara.

IMG_3071

Strákarnir spiluðu rakka og veiðimann, afi lék skrímsli og amma lagði kabal, það er ekkert annað hægt að gera í rafmagnsleysi.

IMG_3073

Já kósýkvöld í kvöld, með kertaljósum.

 En nú þori ég ekki annað en að slútta, því ef rafmagnið fer núna, þá missi ég alla færsluna á einu bretti.  Eigið gott kvöld í kvöld elskurnar, ég fer og kíki á ykkur á eftir.  Knús á ykkur öll.  Og Bára mín, hér er allt í þessu fína. Heart

 


Kuldaboli konungur.

Veðrið er reyndar ekki skollið á ennþá, en það er samt blint af blautum snjó.  Hér er hitinn um 0°

IMG_2996

Hér er verið að klæða Ásthildi til að fara á leikskólann.  Við vorum samt beggja blands hvort við ættum að fara með börnin.

IMG_2998

Jú við förum sagði Hanna Sól, svo við slóum til.

IMG_2999

Já útsýnið var ekki mikið.

IMG_3001

En við komumst alla leið samt.  Kemst þótt hægt fari segir einhversstaðar.

IMG_3002

Og ekki varð mín fyrir vonbrigðum, því þau áttu að fá að horfa á mynd jibbý!!

IMG_3004

Já útsýnið er ekki mikið.  Við reyndum að aka eftir stikunum, því það sást ekki lengra en svo.

IMG_3005

Og þessi hafði greinilega ekið út af, sem betur fer slasaðist ökumaðurinn ekkert.  En þetta hefur verið slæm bylta.

IMG_3009

Þessir félagar þurftu samt engu að kvíða, þeir gátu bara slakað á heima við áhaldahúsið. Smile

IMG_2993

En litlu prinsessurnar mínar verða örugglega glaðar að komast heim á eftir.  Við ætlum að fara snemma og sækja þær.

Hér sést að Hanna Sól hefur verið í heimsókn hjá Tinnu frænku, hehehe... þær dúlla sér alltaf mikið, og naglalakk er efst á óskalistanum hjá Hönnu Sól.

IMG_2994

Amma komdu og sjáðu litla skrímslið, kallaði afi sporskur, jú hún hafði læðst með matinn upp í rúm til Hönnu Sólar og horfir á Ladabæ.   Hún gerði þetta alveg sjálf, og það var auðvitað ekki hægt að banna henni InLove Hún var nefnilega svo hreykin af sjálfri sér þessi elska.

En eigið góðan dag, og vonandi fer þetta veður sem fyrst framhjá okkur. Heart


Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Okt. 2008
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 40
  • Frá upphafi: 2023304

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband