31.10.2007 | 13:19
Veturinn er líka fagur. Og svo getur margt sýnst öðruvísi.
Já veturinn hefur sinn sjarma. Barnabörnin fóru út í gær að renna sér á snjóþotum. Þau eru ánægð með veturinn, svo sannarlega. Enda er fátt skemmtilegra en að leika sér í snjónum. Maður gerði það mikið í gamla daga, byggja snjóhús, renna sér á skíðum og sleðum. Það er margt hægt að gera fyrir börnin á þessum árstíma.
Sumt fær annan búning.
Þessi gæti hafa verið fyrir utan hjá Eyvindi og Höllu.
Hulduhóllinn minn.
Og útsýnið í dag.
Meira að segja gallerí himinn er að myndast við að opna sig. Annars styttist í að sólin láti sig hverfa frá okkur fram í endaðan janúar. En hún þvælist þá ekki í augunum á manni á meðan við aksturinn.
Trén taka á sig ótrúlega fallegar myndir. Eins og í ævintýrunum.
Og blóminn fá allt annað yfirbragð.
Sýprisinn virkar niðurlútur, en er í rauninni ánægður með skjólið sem snjórinn veitir honum, og nægur er rakinn.
En bara örfáum skrefum í burtu, lítur dæmið öðruvísi út. Hugsið ykkur að hafa báða þessa heima, inn í sínum eigin einkaheimi. Lánsöm erum við.
Þar brosa blómin og segja HÆ!
Pernilla að blómstra í þriðja sinn í sumar.
Hortensían kominn í jólabúninginn sinn.
Og eldþyrnirunninn, alveg í takti við jólin. Já, hver árstíð hefur sinn sjarma, það er bara eins og með allt annað, við erum það sem við hugsum. Við getum verið svartsýn og leið yfir kuldanum og myrkrinu, en við getum líka hlúð að því smáa og fagra, lesið úr náttúrunni, og fundið gleðina í öllu, bara ef við viljum það sjálf. Það er þarna hvort tveggja, hvort kýst þú ?
Það er alveg sama með allt annað líka, við eigum það val að vera leið eða reið yfir hlutum, eða við getum glaðst og fagnað. Bara eftir því sem við viljum taka á þeim með okkur sjálfum. Við erum fyrst og fremst við sjálf, og við höfum frjálsan vilja. Bara spurning um hvernig við vinnum úr honum. Með jákvæðni verður lífið svo miklu MIKLU skemmtilegra. Og eitt í viðbót, við breytum ekki heiminum, en við getum breytt okkur sjálfum, eða ákveðið að taka frekar pólinn á það jákvæða og góða, og horft fram hjá því slæma. Heimurinn hvílir ekki á okkar herðum, en við getum ef til vill gefið alveg heilmikið með því að vera sólargeislar sem lýsa öðrum. Eigið góðan dag elskurnar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (30)
30.10.2007 | 18:16
Ævintýri og æsingur.
Um ævintýri.
Hér logar allt bloggið og aðrir fjölmiðlar vegna vísnanna um "Tíu litla negrastráka". Og "Litli Svarti Sambó" fær að fljóta með.
Þessi hasar minnir mig óneitanlega á hamagang hér í fyrra, þegar fólk æsti sig ofan í tær yfir umræðum um innflytjendur.
Við erum stundum svo öfgafull, og sjáumst ekki fyrir í hamaganginum. Ekki að ég ætli mér að fara að leggja neinn sérstakan dóm á þessar vísur, sem ég las sem krakki og veit ekki til að hafi gert mér neinn mein, hvorki vitandi né óafvitandi. Sumir segja að það hafi verið vegna þess að ekki voru til neinir þelgökkir menn hér á þeim tíma, það eru ekki rök í málinu að mínu mati.
En ég vil bara segja, ég er ansi hrædd um að það verði lítið um gömlu barnabækurnar í hillum fólksins sem býsnast hvað mest yfir litlu negrastrákunum, sem nú er búið að analýsera af mikilli nákvæmni og ákveða eins og í tilfelli Hans Klaufa og kó, að hér sé á ferðinni stórhættuleg bók, ekki minna hættuleg en öxin góða sem hefði getað fallið hvenær sem var.
Við skulum aðeins skoða málið.
Grimmsævintýrunum eru örugglega úthýst úr þeim bókahillum, því það er mjög skaðlegt fyrir börnin að lesa það sem þar stendur, til dæmis um Aulabárð og bræður hans, ekki eru það góð skilaboð, þar sem eldri bræðurnir sem báðir eru frekar skynsamir, eru hálshöggnir, vegna þess að þeir geta ekki svarað einföldum spurningum prinessunnar, en aulabáður, sem er nánast frekar illa gefinn, hann fær hana til að hlæja með aulagangi og hreppir konungsdæmið, er það nú til fyrirmyndar ?
Vonda stjúpan í Mjallhvít platar saklausa stúlkuna til að borða banvænt epli, misnotar traust hennar. Ekki gott. Og að lokum fær hún að dansa á eldhituðum járnskóm, til refsingar, flokkast það ekki undir pyntinga ? Ó jú. Börnin okkar mega ekki fá neitt svona atferli inn í litlu kollana sína, því þau taka það bara upp, ómeðvitað ef ekki betur.
H.C. Andersen ? Ónei hann kemur ekki til greina. Þar er til dæmis sagan um Eldfærin, þar heggur dátinn hausinn af kerlingargreyinu þegar hún er búin að leiðbeina honum að öllum fjársjóðnum. Hvetur það ekki til ofbeldis, ef maður setur það í samhengi við Negradrengina tíu?
Enid Blyton, nei hún kemur ekki til greina heldur, burt með hana úr bókahillunum. Hún hvetur til kvenfyrirlitningar. Strákarnir eru hetjur en stelpurnar standa sveittar við að elda, búa um og vaska upp.
Frank og Jói, æ nei út í tunnu með þær bókmenntir, þeir gefa líka til kynna að stelpur séu ekki samboðnar strákum.
Guð minn góður Tarzan er hér ennþá. Út með hann.
Harrý Potter, nei það er ekki hollt börnunum að fá það inn í hugsunina að til séu allskonar hulduverur, sem ekki eru til í raunveruleikanum. Þau geta orðið veruleikafyrrt.
Best að henda líka út Guðrúnu frá Lundi og slíkum, þar sem ímynd stúlknanna er dreginn niður í einhvern vesaldóm, þar sem stóru sterku mennirnir bjarga öllu.
Og við skulum fela Barböru Cartland, svo stúlkurnar okkar fái nú ekki einhverjar grillur í höfuðið.
Ég fæ eflaust skömm í hattinn fyrir þetta innlegg mitt. Og það er reyndar ekki í alvöru gert, bara svona til að sýna að við getum ekki haft galdrabrennur og bannað alla hluti. Það bara gengur ekki. Ég er til dæmis viss um að allt þetta hafarí er besta auglýsing sem Negrastrákarnir tíu gátu fengið.
Það sem gildir er að við sjálf séum vakandi fyrir því hvað börnin okkar lesa, og leiðbeina þeim til að verða sterkari einstaklingar. Hjálpa þeim til að velja og hafna, þegar þau verða nógu stór til að gera það. Það verður alltaf besti kosturinn.
Þeir sem tala um að svona hlutir sjatlist inn ómeðvitað, skulu aðeins hugsa sig um, hvað með allar sjónvarpsauglýsingarnar ? Hvar á að byrja og hvar á að enda ? Það er allskonar áreiti á börnin okkar, sem og okkur sjálf. Tíu litlir negrastrákar eru bara dropi í hafið, miðað við alvöru innrætingu, meira að segja allskonar tilboð við fermingar og skírnir, þessu megið þið ekki missa af, áreiti.
Og það sem meira er öll boð og bönn virka öfugt, það er alla vega mín reynsla. Þess vegna er það í okkar verkahring að sjá til þess að börnin okkar verði eins ónæm og hægt er fyrir allskonar innrætingu. Það hefst ekki með því að banna eða æsa sig yfir einni bók fram um aðra. Heldur að halda vöku okkar og kenna þeim að velja og hafna.
P.S. Gló mín takk fyrir þessar æðislegu myndir af Pumpkin.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
30.10.2007 | 15:00
Vetur og gróðursetning.
Getur það farið saman ? Já reyndar, svona snemma, og áður en frost er komið í jörðina. En það er óneitanlega kuldalegt að sjá.
Já það er sannarlega ekki sumar eða sól.
En málið er, að þessar plöntur eru tilbúnar til að fara að vaxa strax næsta vor. Þær hafa tíma til að róta sig í haust, fer reyndar eftir vetrinum. Og svo geta þær byrjað sinn gróðurferil strax í vor.
Síðustu laukarnir fara svo líka niður í dag. Tíu þúsund stykki, Ísafjörður verður fallegri en nokkru sinni fyrr í vor.
Svona var hið daglega útlit í morgun.
Ofan gefur snjó á snjó,
Snjórinn er sæng fyrir plönturnar.
Já svona er dagurinn í dag. En það er samt notalegt að vita að laukarnir eru farnir ofan í moldina. Og svo núna plönturnar. Þó þær séu ekki alveg komnar niður.
Nú væri notalegt að kúra inni og hafa góða bók til að lesa, þ.e.a.s. ef maður þyrfti ekki að vera úti að gróðursetja.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
29.10.2007 | 23:57
Grasker !
Stubburinn minn er búin að vera að ræða við okkur afa og ömmu undanfarið um að fá að kaupa sér Grasker. Það fékkst í Samkaup eitt stórt og mikið, og hann langaði svo að fá það og skera út eins og gert er á Halloween.
Nema hvað í dag hringir hann í ömmu sína og spyr hvort ég vilji sækja hann úr trommutíma. Nema hvað; ég er niðrí Samkaup, segir hann, stend fyrir framan grænmetisborðið við hliðina á graskerinu.
Oh boy, ömmur eru náttúrulega svag fyrir svona stubbum. Sem ég kem inn í búðina, stendur hann þar ábúðarmikill, ég veit ekki hvað það er þungt amma, en "við" erum búin að vera að reyna að mæla hvað það er þungt. Það er allavega ekki eins þungt og skólataskan mín.
Við tökum kvikindið og setjum í kerruna. Já sagði ein kona sem ég þekki vel; ég sé að þið hafið tekið graskerið, hún snýr sér að mér; við vorum að reyna að vikta það til að vita hvað það væri þungt.
Flykkið reyndist vera rúm 9 kg. og kostaði yfir 2 þúsund kall. En hvað gerir maður ekki fyrir svona stubba
Jamm hér er það í allri sinni dýrð.
ég er að hugsa um að fara að rækta svona grasker, sagði stubbur. Ætli ég geti ekki bara ræktað það í garðskálanum ? Og ég veit um tvær bestu manneskjur til að hjálpa mér við ræktunina, hann blimskakkaði augunum á ömmu. Þið afi eru þau bestu.
Við skulum nú sjá til hvort fræin spíra, sagði ég.
Já en amma, ef til vill mun ég rækta stærsta grasker í sögunni. Það mun sennilega taka mikið pláss, en það verður bara að hafa það. Verst að þau taka svo mikið pláss þessi grasker.
Nú er ég búin að fá nokkrar uppskriftir frá vinkonu minni af Málefnunum.com um Graskerasúpur, Graskerabökur Graskerabrauð og fleira. Ég ætla að prófa hvort ég fæ eitthvað matarkyns út úr þessu flykki, áður en stubburinn fær það til útskurðar
En svo að lokum, tvær myndir frá deginum í dag.
Fallegur dagur. Fjöllinn eins og tússmynd og birtan eftir því.
Vonandi eigiði góða nótt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
29.10.2007 | 13:49
Áskorun til stjórnvalda og almennings.
15. milljarðar er mikill peningur. Menn hneykslast á því að þessu fé sé verið til að styrkja bændur í landinu. Ég ætla út af fyrir sig ekkert að tala um það í sjálfu sér, hvort þetta sé of mikið. En ég er alveg viss um að hluti af vandræðum í landbúnaði eru höftin og kvótarnir sem bændum okkar eru settir. Og þess vegna er þeim borgað fyrir að fá ekki að nytja þær auðlindir sem þeir eiga í bústofni og framleiðslu á búum sínum.
Bændasamtökin hafa um nokkurt skeið talað fyrir því að geta haft meira um það að segja að selja sínar afurðir. Það er talað um verkefni; frá Haga til maga" og "beint frá býli".
Ég satt að segja skil ekki af hverju það er ekki löngu komið á, að menn megi verka og selja öðrum sínar afurðir. Þessi höft og boð og bönn eru bara til trafala, alveg eins og í sjávarútveginum. Þar hafa skuldir aukist gríðarlega, svo stefnir í algjört hrun í sjávarútvegi. Þar er líka eins og í landbúnaði verið að verja hagsmuni fárra, fyrir hagsmuni heildarinnar. Þar sem fólki er meinað að komast inn í greinina, með valdboði undir því yfirskini að verið sé að vernda fiskinn og miðinn. En ekkert hefur bólað á neinni aukningu á fiskigengd samkvæmt þeim mælingum sem Hafrannsóknarstofnun gerir. Þeir hafa týnt fleiri þúsund tonnum út úr fiskisstofnum, og kvótasetningin algjörlega þýðingarlaus, og tap þjóðarinnar vegna þessara aðgerða hafa kostað þjóðina milljarða á undanförnum árum.
Það má ekki hlusta á sjómenn, eða endurskoða aðferðarfræðina, þótt það sé örugglega hverjum manni ljóst að hér er vitlaust að farið. Rangur grunnur notaður, og svo bætt við einhverskonar pottum hér og þar til að lappa upp á handónýtt kerfi. Af því það hentar ekki herrum sem telja sig eiga fiskinn í sjónum, að hugsað sé heildrænt og með hag byggðanna að leiðarljósi.
Eins finnst mér verið gera við bændur. Þeir eru kvótasettir, bannað að selja það sem þeir framleiða, og allt á þetta að vera vegna hreinlætis og umhyggju fyrir heilsu okkar landsmanna.
Hvenær hefur einhver dáið af því að eta heimaslátrað lamb ? Eða drekka ógerilsneydda mjólk ? Í þessu ljósi er líka rosalega erfitt að ímynda sér að hér sé verið að huga að heilbrigðissjónarmiðum, því ég veit ekki betur en menn fái að skjóta hreindýr á færi, drösla þeim yfir land og girðingar, og gera að þeim jafnvel á hlaðinu hjá bóndanum, og svo er kjötið selt. Hvar er hreinlætið þá ? Eða vaskarnir eða öll hreinlætisaðstaðan.
Nei hér er allt annað á ferðinni. Ég hef líka hneykslast á því hvernig sláturdýr eru send milli landsfjórðunga, sáralítið eftirlit virðist vera með því hvernig aðbúnaðurinn er, og ekkert spáð í hve hættulegir vegir eru á þessum tíma, eða að hafa dýr í tveggja til þriggja hæða bílum og aftanívögnum. Nýlega fór einn slíkur út af veginum og drap marga skepnu og særði aðrar. Og þetta er ekki í fyrsta sinn sem það gerist. Og maður spyr sig; hvar eru dýraverndunarsamtök, og þeir sem eiga að bera ábyrgð á velferð dýra, eða yfirdýralæknir? Hvers vegna er ekki sett stopp á þessa villimennsku ? Og af hverju segir enginn neitt ?
Hvers vegna þarf að flytja sláturdýr milli landshorna ? Jú það er þetta hryllilega orð "hagræðing". Þetta stórnvaldstæki sem notað er, þegar menn vilja hygla örfáum útvöldum, en taka brauðið úr munninum á öðrum. Sláturhúsaleyfishafar, vilja auðvitað hafa húsin fá og stór. Þeim hentar að gína yfir afurðum bóndans, og gera hann í rauninni að leiguliða í sínu eigin búi. Alveg eins og L.Í.Ú, gerir sjómenn, smáútgerðir og kvótalausa atvinnurekendur að þrælum.
Þetta gengur ekki lengur, og við eigum ekki að sætta okkur við þetta. Það á að vinda ofan af kvótakerfi bæði til sjós og lands. Leyfa sjómönnum að sækja sjóinn, eins og stendur í stjórnarskrá landsins. Það er skýrt að náttúruauðlindir séu sameign þjóðarinnar. Það er því fjandi hart að nokkrir menn, geti eignað sér fiskinn í sjónum, eða afurðir bændanna.
Beint frá búi er mjög áhugaverður kostur, og það ber að hlusta á bændurna. Þeir eiga að fá leyfi til að slátra sínu fé sjálfir, og selja sínar afurðir beint frá býli, ef þeir kjósa svo. Það er hægt að auka eftirlit með hreinlæti á bæjunum, með því að auka vægi dýralæknaembætta. Ég er viss um að bara þetta gæti stóreflt bændastéttina, það myndu fleiri koma inn í greinina, ef fólk mætti framleiða og selja sínar eigin afurðir. Þá er verið að tala um allt sem lítur að landbúnaði. Ég sé fyrir mér að bændur myndu jafnvel koma sér upp sameiginlegri aðstöðu, þar sem hver hefði sinn sölubás, og fólk gæti valið um hvar það vildi helst versla.
Ég sé líka fyrir mér með smábátana, að ef handfæraveiðar væru gefnar frjálsar, og þannig opnað fyrir aðgang ungra manna að sjávarútveginum, myndi setja drifkraft í byggðirnar. Lífæðar landsins myndu ganga í endurnýjun lífdaga.
Það eru í raun og veru engar afsakanir til fyrir því að koma þessu ekki í gegn. Þess vegna skora ég á stjórnvöld að huga að þessu. Og ég vil hvetja almenning til að standa með bændum og sjómönnum að því að taka þrælaböndin af höndum þeirra, svo þeir geti frálsir menn sinnt því sem hugur þeirra stendur til. Að þeir séu ekki gerðir að lögbrjótum bara við það eitt að bjarga sér. Þetta er orðið nóg, og kominn tími til gefa eftir. Hér er lítið samfélag og alveg óþarfi að reyna að apa allt upp eftir milljónaþjóðum. Við eigum að nýta okkur smæðina og frelsið sem getur verið hér einmitt vegna hennar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
27.10.2007 | 23:31
Afmælið hans Baldurs Geirmundssonar - BG.
Já ég var að koma heim af stórkostlegri stund. Þar sem Menningarnefnd Ísafjarðarbæjar hélt veglegt hóf til heiðurs Baldri Geirmundssyni BG og Ingibjörg, nema það vantaði Ingibjörgu, ég veit að þú varst upptekinn IGG mín, en við söknuðum þín öll. En þetta var frábær skemmtun, og maður fékk í hnén og tærnar.
Fyrst kom Sunnukórinn, og söng eitt lag eftir Baldur og svo húsið er að gráta.
Þvínæst lúðrasveitinn, en Baldur hefur verið liðtækur í þeim báðum.
Þvínæst harmonikkufélagið. Hér eru tvær kempur sem hafa gefið Ísafirði svo mikið af tónlist, þeir Baldur og Villi Valli. Þarna sést líka í Magnús Reynir annan gamalreyndan kappa, en hann var líka kynnir.
Yndislegir alveg hreint, og með þeim þarna er sonur Villa Rúnar sem spilar á Fagott í symfóníunni, en kom hingað heim til að heiðra Baldur með nærveru sinni og spilar hér á trommur.
Hér eru bæjarfulltrúar Ísafjarðarbæjar með tilkynningu um að Baldur Geirmundsson hefði verið valinn Bæjarlistamaður árið 2007, vel að því kominn blessaður.
Hver maður er ber að baki nema sér góða konu eigi, sagði Birna Lárusdóttir og kallaði Karitas Pálsdóttur eiginkonu Baldurs upp líka. Flott hjá þeim.
Þessi unga kona spilaði því næst tvö lög á harmonikku eftir Baldur, hún er stórkostlegur harmonikkuleikari.
Og þá sté hann Gunnar Hólm á sviðið, þessi elska, hann söng fyrir okkur útlagann, fyrsti söngvari sem er eingöngu söngvari með hljómsveit. En hann var síðan trommari í BG í mörg mörg ár.
Frábær stemning.
Flott saman Kalli Geir, Gunnar og Margrét.
Og þau eru auðvitað að syngja Hesta Jóa hvað annað, Gunnar sýndi stórkostlega takta, þar þekkti maður gamla góða Gunnar aftur þann æringja.
Þarna er Svanfríður komin í hópinn, og ef þið skoðið bassaleikarann þá er að hann Siggi Samma, úr Írafár. En hann er sonur Samma rakara. Þarna var greinilegt að synir og dætur hafa eftir foreldrum sínum, þarna voru allir synir Kalla Geir að spila og syngja, sonur Balda, og sonur Villa Valla og sonardóttir, sonur Samma, allt í ættir. það var gaman að horfa á.
Hér er hún Ylfa Mist barnabarnið hann Villa Valla og sonur Kalla Geir taka hér Blue Bayjo.
Rosa stemning og allar minningarnar komu aftur.
Og þetta er auðvitað Mín innsta þrá, hvað annað og þá vantaði þig nú mín elskulega Ingibjörg.
Þessi yndislega og fallega stúlka Anna Sigga, sá um að skipuleggja þetta allt, og var þarna eins og á hjólum, til að allt gengi smurt.
Síðan voru góðar veitingar, og hér sker Baldur sneið af afmælistertu.
Síðan var æðisleg flugelda sýning, og svo er ball á eftir, ég fór hins vegar heim, en er með þeim í huganum.
Það er margt sem flýgur í gegnum huga manns á svona stundum. Allir dansleikirnir og rómantíkin líka minn æviferill í þessum sporum.
En ég vil bara þakka fyrir mig, þakka ykkur í menningarnefndinni sem létuð ykkur detta þetta í hug, og að bjóða öllum bænum upp á svona stórkostlega sýningu. Takk Baldur Geirmundsson fyrir þitt framlag til okkar, og allir sem komu þarna fram. Gleðin og fjörið, allt var bara svo skemmtilegt, það var þrusustuð í salnum, sem var þétt setinn af fólki á öllum aldri, sumir komust við, aðrir glöddust. Enginn var ósnortinn.
Ísafjörður er menningarbær, fyrir margra hluta sakir, eitt er þessi yndislega tónlist sem við erum svo stolt af, tveir tónlistaskólar, og kórar, lúðrasveitir, leikklúbburinn og svo djassinn, hljómsveitirnar. Við eigum líka út um allan heim fólk á heimsmælikvarða, sem hefur átt sín fyrstu skref hér. Ég er hrærð inn í mér fyrir að fá að vera partur af þessu öllu saman.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
27.10.2007 | 11:55
Óbeisluð fegurð og skrall hjá kerlu.
Ég skemmti mér rosalega vel í gær. Þetta var svona frekar óbeislað kvöld. Við hittumst öll heima hjá Matthildi og stilltum saman strengi. Gengum svo niður í bíóið, og upp rauða dregilinn. Það var gaman að upplifa hláturinn og skemmtunina hér heima alveg eins og í Reykjavík á frumsýningu. Eftir myndina stóðu Matthildur og Hrafnhildur upp og svöruðu spurningum. Síðan hélt Matthildur smátölu, sagði m.a. frá félagi athyglissjúkra, sem hún er loksins komin í, þar eru tveir aðilar fyrir, Halldór nokkur Jónsson stórhöfði og höfðingi, og svo Ólafur þvagleggur Helgi Kjartansson, og svo Matthildur, og í gær, fékk ég óvænt inngöngu í þetta fræga félag. Mér til mikillar undrunar og ánægju, fékk líka að gjöf Webcam, eða hvað sem það nú heitir heheheh.. þar sem ég er svo mikill bloggari, þá á ég núna að fara að blogga á mynd líka. En þetta var sannarlega mikill heiður.
Síðan kallaði Matta til Barða nokkurn gröfukarl, sem var einn af dómurum í keppninni, en hann hafði nýlega lent í því að detta útbyrðis úr bát, og þurfti að svamla í land. Matthildur tilkynnti, að titillinn sem hún fékk í keppninni, og var mjög hreykin af, tilheyrði henni ekki lengur, hún þyrfti að afhenda Barða hann, þar sem hann hefði bjargað sér á Michelindekkinu, Varadekkinu- mallakútnum ) við að bjargast í land. En hún fékk titilinn Michelin 2007. hún krýndi hann þarna við mikla kátínu gesta.
Svo var boðið upp á veitingar, eins flott og á var kosið.
Eftir þetta var farið út á lífið, og auðvitað á Langa Manga hvað annars. Sú gamla lét sig ekki vanta.
Hér er verið að aðstoða Ástu Dóru með borðann sinn þennan eina sanna. Það er auðvitað Eygló sem þar er að verki.
Þessi fallega stúlka er Björk árudómarinn. Hún er flott bæði utan og innan.
Hér er Matthildur með Micheinborðann sinn sem hún svo afhenti Barða eftir myndina.
Boðið upp á flottar veitingar. Hér er einn dómarinn úr keppninni, hann dæmir líka hross
Gréta Skúla, ein af óbeislaða teyminu.
Við Hrafnhildur.
ég á alveg rosalega fallegar tengdadætur, þær létu sig ekki vanta á sýninguna. Þær Matthildur og Tinna.
Hér er Tinna og ein af þeim óbeisluðu Íris.
Já við erum komin á Langa Manga, þar var auðvitað lifandi músik.
Aðalgellurnar Matthildur og Hrafnhildur.
Stóðst ekki mátið að láta þetta gossa, segiði svo að maður skemmti sér ekki.
Og sagan "morðið á barnum" er auðvitað í boði..................................................
Sem sagt skemmtilegt kvöld búið, og bara gera sig klára í kvöldið í kvöld, þegar frændi minn Baldur Geirmundsson verður sjötugur, og allur bærinn er boðin í afmælið. Ekkert mina en það.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
26.10.2007 | 18:34
Enn gróðursettir laukar, og óbeisluð í kvöld.
Já það má segja að fljótt skipist veður í lofti. Og í morgun byrjaði að snjóa, og eftir smátíma var allt orðið hvítt, það má því segja, að það sé fremur kuldalegt um að litast, en það var samt ekki frost, svo það virðist kaldara en það er í raun og veru.
Dálítið kuldalegt ekki satt, en fallegt verður samt.
En fyrst í morgun grenjaði rigninginn og karla greyin urðu holdvotir, svo ég keypti fyrir þá nýja hanska og beitningahanska og ekta íslenska ullarsokka, sem er það besta í svona veðri.
Þessi mynd er tekið í Neðstakaupstað, og sólin er að gæjast og skoða hvort ekki sé allt í lagi.
Það er eitthvað svo fallegt við skýin og fjöllinn, eitthvað afl sem fyllir mann andakt.
Jamm og svo er gróðursett í snjónum, í nýju ullarsokkunum.
Það er allt annað líf.
Og að er farið að birta, eins gott þvi heimildarmyndin var í Reykjavík og átti að koma með miðvélinni, ásamt leikstjóranum Hrafnhildi og óbeisluðu fegurðinni Ástu Dóru.
Hér er svo menningarhúsið okkar eitt af þeim Edinborgarhúsið. Og sést í gamla miðbæinn.
En nú er myndin komin, ég búin að fara í hárgreiðslu og þarf að fara að gera mig fína.
Það var ekki auðvelt get ég sagt ykkur að segja við pólverjana á íslensku þeir skilja bara pólsku, og á táknmáli; Ég þarf að fara í hárgreiðslu, ég ætla að sýna ykkur hvað þið eigið að gera. Hér á að setja niður einfalda röð, hér líka og hér fjórfalda og hér tvöfalda. Þið eigið að taka bílinn og áður en þið hættið, þurfið þið að taka þessa poka hér, með illgresinu og sumarblómunum og setja á bílinn. Ég er farinn. Læt ykkur vita hve mikið þeir skildu af þessu á morgun hehehehe...
En moi er farin í partý, við ætlum að hittast óbeislaðar, bæði þátttakendur, aðstandendur og leikstjóri, síðan verður farið í bíó, gengið upp rauða teppið, og láta eins og stórstjarna....
Við vorum reyndar nokkar í Vísindaportinu í hádeginu, þar sem Matthildur og Gréta Skúla fóru yfir tilurð myndarinnar, og við ræddum við gesti, og svöruðum spurningum. Það var rosalega gaman.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
25.10.2007 | 22:04
Gallerí himin og pólskir menn að setja niður haustlauka á Íslandi.
Ég vona að mér sé fyrirgefið að hafa ekki komist blogghringinn í dag, en ég var að setja niður lauka frá kl. átta í morgunn til kl. fimm í dag, og er alveg ótrúlega þreytt. Ég var með tvo pólska menn mér til aðstoðar, og þvílíkir verkmenn sem þeir voru, duglegir, samviskusamir og skapgóðir, þeir tala ekki orð í íslensku og ég ekki orð í pólsku, allt fór fram á táknmáli, en það var alveg sama, þeir gerðu allt sem gera þrufti vel og samviskusamlega.
Hér erum við að setja niður lauka á Flateyri, nýkomin frá Þingeyri.
Hér erum við komin á Suðureyri.
Duglegir eru þeir.
Jamm þá er Ísafjörður næstur.
Það var ýmist grenjandi rigning eða bara bjart og gott ferlega misjafnt veðrið.
Gróðursettum líka tré og runna.
En eins og ég sagði áðan, þá var veðrið ótrúlegt og Gallerí himin opinn og meiri háttar, hér koma nokkrar myndir;
Mystik ekki satt.
Þessar myndir eru allar teknar á svipuðum tíma og ekkert við þær átt.
Þetta er ótrúleg fegurð.
Gallerí himin, það jafnast ekkert á við þann sýningarsal.
Svona getur náttúran leikið sér við mann, svo maður verður eiginlega dolfallinn. Og allt saman ókeypis og frítt fyrir þá sem vilja skoða.
Þetta virðist vera komið í lag, svo hér eru tvær í viðbót.
Og ein sem ég var að leika mér að.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
25.10.2007 | 18:21
Ég sagði þetta nákvæmlega um daginn...
Þetta er nákvæmlega sem ég var að ræða um hér um daginn. Hvar í andskotanum eru dýraverndurarsamtök Íslands ? Af hverju í ósköpunum grípa þau ekki inn í og stöðva þessa hræðilega hættulegu fluttninga með varnarlaus dýr í sláturhús ? Það á að koma upp sláturaðstöðu sem næst hverjum kjarna fyrir sig, það er ekkert mál að vera með hreyfanlegt sláturhús. En það sem ég held er, að það er verið að vernda sláturhúsaleyfishafa, leyfa þeim að "hagræða" stækka og fækka, þá er alveg sama hvort vesalings skepnurnar þurfa að kúldrast í allof þröngum bílum, upp og niður fjallvegi, og svo eins og ég hef bent á lenda í því að bíllinn veltur, og fleiri þeirra deyja eða limlestast. Ég er arfareið yfir þessu, og vil að þetta verði stöðvað núna, þannig að næsta ár, fari enginn skepna lengra í slátrun en nokkra kílómetra.
Hunskist bara til að útvega sláturbíla sem aka um og sjáið til að sláturhúsið komi til þeirra. Það er það minnsta sem þið getið gert.
Annars vil ég koma á heimaslátrun, og að bændurnir fái að selja beint frá búi sínu. Ég ætla að skrifa meira um það síðar, ég veit að það er unnið að því máli meðal bænda, og STJÓRNVÖLD EIGA AÐ HLUSTA, OG HLUSTA VEL. Þau geta kallað þetta mótvægisaðgerðir, eins og svo vinsælt er núna, eða bara björgun byggðanna. Það er komið nóg af miðstýringu frá Reykjavík það er komin tími til að við hin gerum uppreisn og tökum málin í okkar hendur, og sýnum þeim ráðamönnum, sem halda að allt verði til í Kringlum og Smárum, að við viljum fá að lifa og vera til, og við viljum ekki ölmusu, heldur að fá það til okkar sem við vinnum að. Fá að halda reisn og fá að halda mannréttindum, og fá að vera í friði fyrir öllu þessu fjandans reglugerðarfargani sem er að drepa landsbyggðina, og er oftúlkuð hjá okkar ráðamönnum, sennilega til að styðja við bakið á þeim gróðapungum, sem allt vilja gleypa í þessu þjóðfélagi.
Ég er svo reið, að ég á erfitt um mál. Og ég ætla að leggja á og mæla svo um, að héðan í frá, verði það landið, fólkið og náttúran í öllu sínu veldi sem sigrar græðgisvæðinguna, og kemur skikki á þessa útópíu sem við lifum við í dag.
![]() |
Tugir fjár drápust þegar flutningabíll valt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 4
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 2023310
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar