Gróðurvinna og barnapössun.

Búin að vera bókstaflega á kafi í dag að raða plöntum á vaxtarstað, í grenjandi rigningu en ágætis hita.  Ég er alveg af menni genginn svei mér þá.  Svo komu börnin í heimsókn, til ömmu sinnar.  Foreldrarnir þurftu að fara að vinna, seinnipart dagsins. Og núna loksins er smáfriður til að setjast niður og blanda geði við mína eðalbloggvini.  Heart

Tók mér tíma þó, til að taka nokkrar myndir.

IMG_9546

Smáhluti af lóðinni sem við ætlum að gróðursetja í, á morgun, leikskólalóð sem verður vígð á morgun.

IMG_9547

Þetta er ekki mengun þetta er dalalæða, en það virkar svona hehehe... Sjáið lognið.

IMG_9541

Þessar elskur létu plata sig, þær eiga ekki gott ef kólnar fljótlega.  En svona er þetta sumar plöntur fara eftir hitastigi, aðrar eftir birtu.  Birki er birtutengt, lætur ekki plata sig, en aspir og víðir láta mjög gjarnarn plata sig, ef það gerir hlýindakafla og frystir síðan.  Þá er hætt við kali.

IMG_9549

Hér er Sóley Ebba í tölvunni.  Hún getur ekki beðið eftir næsta skrautskriftarnámskeiði hjá honum Jens Guði.  Enda skrifar hún rosalega vel allt heimanámið í skólanum.

IMG_9551

Kristján Logi er algjört æði, og heilmikill ömmukarl.  Flottur í uniformi.

IMG_9553

Og meðan stelpan er í tölvunni, þá passar strákurinn.  Þannig er það bara hér sko !

IMG_9554

Og hver segir að pabbar geti ekki verið Húsmóður/föðurlegir ?

En nú er komin tími á gott bað.  Eldaði kjötsúpu, sem er algjör möst eftir svona bleytuvinnu.  Smile


Ég er náttúrulega heimsfræg en......

Var að skoða Goggle fyrir margt löngu og datt í hug að googla upp nafnið mitt.  Þá sá ég dálítið skondið.  Viðtal við mig, sem ég skil ekki baun í bala úr nema örfá orð.  Mér finnst frekar gaman að þessu, og veit svo sem um hvað viðtalið fjallar.  En ef til vill getur einhver tungumálafræðingur sagt mér hvaða tungumál þetta er.  Er það pólska eða eitthvað annað?

Drug islandski primer je še novejši in govori o cca 5 X 7 metrov veliki skali, ki je stala na zelenici tik poleg glavne ceste v Reykjaviku. Pred petnajstimi leti so to skalo hoteli odstraniti, vendar se je ob vsakem poskusu kdo ponesrečil. Poskušali so tako dolgo dokler eden od tam zaposlenih gradbenih delavcev ni videl palčke, ki domujeo ob skali. Vse poskuse odstranitve skale so opustili in v letu 2000 so jo po pogajanjih vendarle premaknili na palčkom željeno mesto, le 300 metrov v dolino k reki.
Takšna je Islandija danes. Na prvi pogled nekoliko okorela, vendar jo je potrebno fokusirati do prave mere, nakar že lahko dobimo pravo sliko bitij ki nas obkrožajo. Ravno o teh bitjih so pisane knjige, mnogo ljudi jih vidi, kot sogovornico oziroma osebo, ki mi je bila v pomoč pri nabiranju informacij za ta prispevek pa sem izbral Asthildur Cesil Thordadottir. Ta ženska srednjih let je sicer po poklicu vrtnarka, vendar pa na poseben način zazna druga bitja v naravi ali kar doma. Pred leti je skupaj z zgoraj omenjeno Erlo Stefansdottir narisala načrt mesta Isafjorđur, z zaznamki kjer domujejo palčki ter druga pravljična bitja. Na hrbtni strani zemljevida so narisane oznake kje potekajo energijske cone v mestu Isafjorđur, kjer Asthildur domuje. Sama še dodaja, da recimo avstralski staroselci te črte imenujejo črte pesmi in Kitajci jih pojmujejo z že tudi Slovencem znanimi zmajevimi črtami. Prepustil sem ji besedo, saj ji ta teče kot ura, zato mi tudi preveč vprašanj ni bilo potrebno postavljati

 

palcek

 

palcek3

 

palcek20

 

Hér er svo allt viðtalið fyrir þá sem kunna að lesa þetta. 

 http://www.nenavadno.com/palcki.html

 

Sumsé, ég er orðin eins og Villi, man ekki eftir að hafa veitt viðtal, og alls ekki að hafa talað þetta ágæta tungumál hehehehe.... En svona er maður bara gáfaður, og víðförull þó maður muni alls ekki eftir því. CoolLoL


Boðið upp í Færeyjaferð í kuldakastinu.

Það er hrollur, og hriktir í beinum.

 

Hryggeymsli liggja í leynum.

 

Í liðum er tak,

 

Er leiða í bak,

 

Ég er tætt yfir öllum þeim meinum.  Frown

Úff.  Svo kalt, en það á að hlýna.  Mér datt í hug að skreppa smáferð til Færeyja. 

Img_1493

Það eru margar fallegar og sérkennilega byggingar í Færeyjum.  Fólkið elskulegt og jákvætt.

Img_1495

Ætli Hundertwasser hafi verið hér líka hehehehe.

IMG_1506

Hér sjást tröllinn sem drógu Færeyjar alla leið frá Íslandi, þau ætluðu víst að fara lengra, en döguðu uppi hér og urðu að steinum, og þess vegna eru Færeyjar þar sem þær eru.

IMG_1509

Hér er Gjáin, stórkostleg frá náttúrunnar hendi.  Og hljómburðurinn þarna niðri drottinn minn.

IMG_1510

Hér glumdu flottar karlaraddir, Hermannakór Shaporins og Hraustir menn.

IMG_1515

Listaverk eru hér flott á torgum.

IMG_1519

Og kúluhús.  Svei mér þá, það er þarna líka.

IMG_1528

Þröngar götur og Þrándar í Götu líka LoL

IMG_1532

Hér stendur skrivarastova.  Örugglega einhver ríkur og frægur.

IMG_1538

Kanónur höfðu þeir til að verja sig.  Hafa sennilega ekki skotið vestfjarðanornum út og suður samt.

IMG_1542

Hér eru víða falleg þorp, og göng að þeim öllum.  Þeir bora göng þó þar sé bara einn sveitabær.  Danir segja; Færeyingar bora við borgum.  LoL Eitt fjallið er kölluð blokkflautan held ég, vegna þess að það eru fleiri göng, og það vill syngja í fjallinu í ákveðinni átt.  En þetta er sagt eftir minni og getur vel verið að ég fari aðeins með rangt mál.

Allir vegir eru nánast einbreiðir, en allir malbikaðir, og svo eru útskot, eins og hér á Vestjförðum, þar sem vegurinn er bara einbreiður. 

IMG_1547

Hver maður á líka bát, sem er algjört must.  Og þeir hugsa vel um bátana sína.

IMG_1548

Kindur eiga þeir líka, sumir bara eina eða tvær, en aðrir nokkrar, heyjið þurrka þeir á snúrum.  Kartöflurnar setja þeir ekki niður eins og við, heldur stinga upp torf, leggja kartöflurnar niður og snúa torfinu við og setja yfir.  Örugglega miklu fljótlegra og hreinlegra en hjá okkur.

Það er gaman að fara til Færeyja.  Ég held að ég eigi eftir að fara þangað aftur.  Margt að sjá hjá vinum okkar og frændum í Færeyjum.  

Fallegur dagur og foreldraboðorð.

Það var fallegt veður á Ísafirði í dag, en kallt, á morgun á að hlýna aftur, sem er gott mál, því ég á eftir að gróðursetja heilmikið, bæði plöntur og lauka.  Svo það hentar mér vel að fá hlýrra veður og rigningu.

IMG_9539

Fallegt en kalt.

IMG_9540

Snæfjallaströndin jafnvel ennþá fallegri og kaldari.

IMG_9535

Þau komu í heimsókn í gær, mæðginin, Óðinn Freyr og Tinna tengdadóttir, hér eru þau að lesa foreldraboðorðin sem þau fengu með heim úr leikskólanum. Heart

Svo er það hann Brandur.

IMG_9538

Hann velur ekki auðveldustu leiðina til að fá sér að drekka, svona gerir hann, og hefur reyndar alltaf gert, mér finnst það voða krúttlegt. 

Brandur og Júlli 001

Hann er reyndar mesti töffari.

Brandur og Júlli 004

Jamm og nautnabelgur. 

 

 


Ef til vill ekki alveg tímabært en.................................

Var að taka til í bréfum og greinum, og fann þessa ágætis hugvekju og datt í hug að setja hana hér inn;

 

Jólagjafalistinn hennar ömmu.

 

Elskulega fjölskylda, mér datt í hug fyrir þessi jól að senda ykkur smábréf um jólagjafir. Þar sem plássið er farið að minnka hjá mér, en þið öll svo elskuleg að færa mér gjafir fyrir hver jól.

 

Ég biðst undan því að fá fleiri flókainniskó.  Ég á orðið lager sem endist mér út ævina.

 

Ég vil líka segja ykkur að ég á nóg bæði af pottaleppum og svuntum.

 

Ég á orðið 7 flónelsmorgun sloppa úr Rúmfatalagernum, og þarf ekki fleiri í bili.  Auk þess þykir mér eldrauður litur fallegri en þessi gammeldags pink kerlingarlitur.

 

Myndir af börnum og barnabörnum eru allt í lagi, en best er að vera ekkert að setja þær í ramma, ég vil heldur setja þær inn í albúm, þar sem allir veggir eru orðnir þaktir af myndum, svo hvergi er auður blettur.

 

Í Guðanna bænum ekki fleiri smástyttur, hvorki gler, keramik eða tré.  Ég þurfti að setja tvo stóra fulla kassa niður í kjallara eftir síðustu jól.  Og ég er orðin svo fótafúin.

 

Bækur eru svo sem allt í lagi, en ég á orðið 10 biblíur, les þær reyndar aldrei, og allskonar ævisögur og heilsubækur.  Ef þið viljið gefa mér bækur, þá vil ég frekar Arnald Indriða, eða Agötu Christie.

 

Og ég hlusta frekar á Led Zepplin og Nirvana en Hauk Mortens eða Karlakór Reykjavíkur.

 

Sem betur fer hef ég losnað við öll fótanuddtækin með því að gefa þau á tombólur, nema þetta eina sem ég nota undir blóm á svölunum.

 

Ég verð að segja eins og er, að ég hefði í staðinn fyrir þennan dýrindis lazerboystól sem þið tókuð ykkur saman og splæstuð á mig í fyrra, viljað hljómflutningsgræjur eða tölvu.  Sit afar sjaldan í svona stól, því það er erfitt að standa upp úr honum.  Og ég nota tölvu frekar, og þykir meira gaman að háværri rokktónlist.

 

Svo ætla ég að benda ykkur á að þið verðið að koma jólagjöfunum ykkar snemma til mín þetta árið, því ég hef ákveðið að skella mér til Kanarí um jólin, við ætlum nokkur saman gamlingjar og djamma og djúsa.  Vonandi verðið þið stillt og góð á meðan.

 

                                                Sjáumst á næsta ári amma. 

Broskelling

 

 

Gleðileg Jól.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Gönguferð við Dóná, og skoðuð skrýtin hús.

Það var kalt í dag, og ég var frekar döpur, bara út af veðrinu.  Svo ég ákvað að fara í smá göngutúr upp með Dóná, og skoða sérkennilegt hús í Vínarborg.  Byggingunni hans Hundertwasser, sérkennilegur karl, sem vildi byggja húsin þannig að það yrði skógur í borginni.  Hann vildi sum sé að fólk ræktaði tré á svölunum hjá sér, og í húsunum, rætur trjánna ættu að fá að eiga sitt pláss.  Sérkennilegur fugl.  En gaman að skoða byggingarnar.

IMG_6005

Svona er ein af hans hugmyndum.

IMG_6011

Hér glittir í blokkina sem hann byggði.

IMG_6016

Sérkennileg bygging ekki satt ?

IMG_6020

Ekki skortur á hugmyndaflugi á þessum bænum.

IMG_6024

Smile

IMG_6027

Já trén þurfa að hafa pláss fyrir ræturnar.

IMG_6032

Smáatriðin skipta líka máli sko.

IMG_6036

Það er alveg satt, það býr fólk í þessari blokk.

IMG_6039

En það er líka víst, að það er enginn venjulegur Jón Jónsson.

IMG_6092

Eins gott að hafa ekki fengið sé neðaní því þegar maður gengur um svona gólf.

IMG_6095

Sennilega betra fyrir sjómenn en aðra, þeir eru vanir að stíga báruna.

IMG_6101

Hér er líka rosalega fallega skreyttur veitingastaður, en maður fær sjaldnast pláss, því hér koma margir að skoða.

IMG_6115

Það er sama hvar litið er ekkert er hornrétt í þessu húsi.

IMG_6120

Við yfirgefum þessa frábæru byggingu og tökum stefnuna á Dóná.  En þar eru margar mjög flottar byggingar.

IMG_6155

Og stutt til allra átta.

IMG_6159

Það er dálítið kalt, en það gerir ekkert til, því við erum hlýlega búin.

IMG_6179

Já hér eru margar flottar og stórkostlegar byggingar.

IMG_6189

Og mikið skreytt hús.

IMG_6207

Sjá hér til dæmis.

IMG_6217

Hér er líka kaffi Mílanó, hér getum við farið inn og hlýjað okkur með heitu kakói.

IMG_6253

Og þá er maður komin niður á aðaltorgið Stefansplatz, og þá er hægt að taka neðanjarðarlestina heim í Gasometer. En ég á eftir að sýna ykkur þær byggingar.

 

 


Uppskeruhátíð og matarboð.

Það var vínberjauppskera hjá okkur í gær.  Eins og sjá má nammi namm.

IMG_9496

Þau eru rosalega góð.

IMG_9493

Hér er sonur minn að klippa klasana af.

IMG_9491

Stubburinn litli fylgist með.

IMG_9494

Meðan stóri bróðir hjálpar til.

IMG_9495

Nammi namm.......

IMG_9497

IMG_9499

IMG_9500

Svo var pabbi búin að bjóða okkur út að borða, við fórum á Hótel Ísafjörð og fengum okkur að snæða.

 

IMG_9506

Lesið í matseðlana.

IMG_9512

Og pantað.

IMG_9515

Eftir matinn fórum við með pabba heim á Hlíf, í smá partý, hér eru kátir vistmenn.

IMG_9518

Bara gaman.

IMG_9526

Sæt saman, Tinna tengdadóttir og stubburinn.

IMG_9505

Sonur minn er að gera listaverk úr steinum, þessi karfi er eitt af þeim, sem hann gerði fyrir afa sinn.

IMG_9503

Og þessi fallega kona er móðir mín.  SmileHeart

Kvöldið var mjög skemmtilegt. 


Smá ferðalag í sólina, sjóinn og sandinn.

Ég var að passa litla blómabarnið mitt í gær.

IMG_9488

Henni finnst gott að fá kex til að maula.

IMG_9490

Stubburinn uppáklæddur, enda var okkur boðið í mat í gær.

En ég ætla að bjóða ykkur í smáferð til Benidorm, í sumar og sól.  Þó veðrið sé alveg skaplegt í dag, þá er ekkert sem jafnast á við gott ferðalag svona í huganum.

IMG_2642

Stórkostleg auglýsing fyrir Mundo Mar, sem er mjög skemmtilegur dýragarður.

IMG_2643

Já þessi myndasería snýst sumsé um stubbinn og afa hans.

IMG_2654

Og dýr náttúrulega líka.

IMG_2658

Sumir eru bara einfaldlega flottastir.

IMG_2681

Ekki satt ?

IMG_2688

Vill einhver leika þetta eftir ?

IMG_2700

Eða þetta ef til vill ? hehehehe  LoL

IMG_2718

Svo fengu börnin að klappa keikó auðvitað.  og þau voru af öllum þjóðernum.

IMG_2726

enginn smásmíði þessi páfagaukur.

IMG_2734

Ég var búin að lofa ykkur sól og sjó ekki satt ? hehe

IMG_2747

eða þannig.................................

IMG_2751

Hugsuðurnir tveir, hvað eigum við að gera næst ?

IMG_2783

Sjáiði svipinn á stubb, hann var komin of langt í röðina, þegar hann uppgötvaði að það voru bara stelpur sem fóru í þetta tæki heheheheeh.. og hann gat ekki snúið við hahahaha... og ... jamm það byrjar snemma karlremban.  LoL

IMG_2803

Sumt er bara flott. 

IMG_2822

Annað er hm........................... frekar gerfilegt. 

IMG_2819

Hér vantar ekki leikræna tjáningu. 

IMG_2808

Ummm notalegt ekki satt ?

IMG_2791

Og gaman að fara út að borða.  Sem minnir mig á að við erum að fara út að borða í kvöld með pabba mínum. 

IMG_2793

Hvurslagt matur er þetta eiginlega afi ?

IMG_2797

Og er þetta ekki ólöglegt ? GaspLoL Gildir ef til vill ekki í útlöndum.

Við lendum eftir nokkrar mínutur vona að þið hafið notið ferðarinnar.  Heart


Fallegur dagur og haustlitir.

Þessi dagur var fallegur og góður. 

En byrjum aðeins í Bolungarvík, í gær var rigning og kalt, meira að segja fjöllin voru með trefil.

Haustlitir okt.2007 005

En glæsileg.

Haustlitir okt.2007 007

Hér endar vegurinn, það er ekki hægt að komast norðar á bíl en þetta. 

Haustlitir 11.10

Smá tips fyrir þá sem vilja hafa falleg ker, en hafa ekki mikið milli handanna, þetta er bíldekk svona skemmtilega skorið og málað.  Kostar ekkert, nema smá handavinnu og slettu af málningu.

En aftur að haustinu.  Nú skartar gróðurinn sínu fegursta.  Ég fór um garðinn minn í dag í góða veðrinu og tók nokkrar myndir.

Haustlitir okt.2007 017

Haustlitir okt.2007 018

Haustlitir okt.2007 019

Haustlitir okt.2007 020

Haustlitir okt.2007 022

Haustlitir okt.2007 023

Haustlitir okt.2007 025

Haustlitir okt.2007 026

Haustlitir okt.2007 027

Hér er bara að njóta þess sem fegurst er.

Haustlitir okt.2007 028

Og fjörðurinn minn fallegi og lygni er algjör dýrð í svona veðri.

Haustlitir okt.2007 029

Silfurtorgið og ég er stolt af þessu beði.  Sem hér er svona ósköp fallegt. Og svo má bara borða þessar kræsingar og þær smakkast vel og eru meira að segja mjög hollt fæði.

Haustlitir okt.2007 033

Silfurtorg í allri sinni dýrð.

Haustlitir okt.2007 035

Eins og sést er blanka logn og blíða.

Haustlitir okt.2007 034

Mannlífið líka fallegt, tvær flottar óbeislaðar ísfirskar.

Haustlitir okt.2007 031

Mætti líka litlu lady Evítu Cesil og pabba hennar á förnum vegi.

Haustlitir okt.2007 032

Og gat ekki stillt mig um að taka eina krúttmynd fyrir bloggvinkonur mínar.  Hvað er eiginlega yndislegra til ? Heart


Afmæli.

Þennan dag árið 1922 fæddist móðir mín Aðalheiður Bára Hjaltadóttir.  Hún hefði því orðið 85 ára í dag hefði hún verið ennþá á meðal okkar blessunin.  En mamma mín fór frá okkur þann 1. nóvember árið 2000. Það var eftir stutta sjúkdómslegu, og hún fékk að vera heima allan tímann, við systkinin skiptumst á að vera hjá henni. 

En mamma mín var alltaf miðpunktur heimilisins.  Kring um hana voru alltaf barnabörnin og gæludýr barnanna hennar.  Ef eitthvað bjátaði á hjá einhverju barnabarnanna, þá var farið heim til ömmu.  Og þau voru mikið inn á heimilinu á Seljalandsvegi 78 Vinaminni.  Þetta varð til þess að ungarnir hennar voru miklu nánari en ella hefði verið.  Þau voru meira eins og systkini en systkinabörn.  Og sá strengur hefur aldrei slitnað sem betur fer.

Öll jól hittust allir hjá mömmu, og meðan fjöldinn var ekki of mikill var borðað saman, en síðan eftir að við urðum of mörg, þá var farið eftir matinn heim til mömmu og þar voru teknir upp jólapakkarnir, og við sátum öll saman og áttum góðar stundir.  En það var annað, það voru mörg jólin sem utanað komandi fólk eyddi jólunum með fjölskyldunni.  Einhver sem átti engan að, eða var fjarri heimkynnum sínum.  Allaf var sjálfsagt að við kæmum heim með slíka, og allir boðnir velkomnir.  Hjartað í mömmu var stórt, og þar rúmuðust allir. 

Okkur þótti vænt um það systkinunum að geta veitt henni þá síðust ósk að fá að dvelja heima uns yfir lauk.  Og undir það síðasta, þá vissi hún að fólkið hennar beið eftir henni, hún var vör við þau. 

 1967 þann 11. júní eignaðist hún dreng sem var skírður Júlíus.  Þeir voru á sama aldri elsti sonur minn og bróðir minn.  En það var mömmu mikið áfall þegar hann dó aðeins 7 mánaða gamall í janúar 1968.  Ég held að hún hafi aldrei jafnað sig almennilega á þessum barnsmissi, og ég er alveg viss um að þau hafa hist aftur, þegar hún fór héðan. 

Elsku mamma mín, takk fyrir að hafa alltaf verið hér fyrir okkur börnin þín og allra mest fyrir barnabörnin. 

Mamma og fjölskylda

Hér í faðmi fjölskyldunnar. 

Mamma.

Hve endanlegt síðasta andvarp þitt var,

hve fjarlægist ímyndin þín.

Að vita ekki leið þína burtu og hvar

þú heldur þig kjölfestan mín.

 

Heilög var sorgin í hjartanu - þú

helgaði minnin um son.

Sem hrifinn var burt frá þér, smábarn, en nú

er sameining ykkar mín von.

 

Þitt hljóðláta fas, þinn hlátur og þrek

í hug mínum aðeins nú skín.

Þinn stuðning við áttum við bernskunnar brek,

og best var að leita til þín.

 

Þú varst okkur klettur í hafinu - keik

og hjá þér við átt höfum skjól.

Í brotsjóum lífsins, í baráttu og leik,

björt varstu lífs okkar sól.

 

Nú horfin þú ert og við sitjum hér hrygg

og hugsandi hvert fyrir sig.

Við elskum þig mamma sem trú varst og trygg

og trúum að Guð geymi þig.

Elsku mamma, einhversstaðar í faðmi fjölskyldunnar sem ef flutt yfir móðuna miklu.  Til hamingju með daginn.  Heart


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Okt. 2007
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband