31.1.2008 | 11:01
Ætli þetta sé málið ?
Ætli þetta sé málið ? Las þetta á Eyjunni. Á maður að óska Samfylkingunni til hamingju með liðsaukan ? Og hverjir verða þá eftir í Íslandshreyfingunni ? Og hvert fer Ólafur, Ásta og Jakob Frímann, ætli þau lendi hjá Frjálslyndum ?
Þetta fer að verða spennandi framhaldsaga í Dallas stíl. Maður bíður spenntur eftir framhaldinu.
26. janúar, 2008 - Rita ummæli »
Loks getur Margrét gengið í Samfylkinguna
Orðið á götunni er að nú sé það bara tímaspursmál hvenær Margrét Sverrisdóttir gengur til liðs við Samfylkinguna og líklega Guðrún Ásmundsdóttir líka. Báðar voru þær kjörnar í nefndir borgarinnar á vegum nýja minnihlutans á fimmtudag þrátt fyrir að vera varaborgarfulltrúar Ólafs F. Magnússonar. Það hefur lengi verið talið að Margréti langaði mikið að taka stökkið yfir í Samfylkinguna en eitthvað tafði af því gæti orðið.
Orðið á götunni að nú hafi loksins öllum hindrunum verið rutt úr vegi fyrir því að Margrét geti tekið þetta skref formlega. Það sem hún var að bíða eftir að gerðist gerðist í síðustu viku. Þá fékk Íslandshreyfingin greiddar þær 12,5 milljónir króna sem hún á rétt á samkvæmt lögum um starfsemi stjórnmálaflokka. Hreyfingin hefur ekki beinlínis verið iðandi af lífi eftir kosningarnar og meðlimir hennar og forkólfar eru nú sundraðir um pólitísku lendur Reykjavíkur. Ásta Þorleifsdóttir og Jakob Frímann Magnússon eru með Ólafi F. en varaformaðurinn Margrét Sverrisdóttir í minnihlutanum en formaðurinn, Ómar Ragnarsson hefur ekkert um málið að segja og bloggar bara um EM í handbolta og eldgosið í Heimaey af miklum móð. En nú ætti amk að vera til fyrir kosningaskuldum hreyfingarinnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
31.1.2008 | 08:30
Á ferð í dýragarðinn í Shönn Brunn.
Jæja þá er það ferðin í Dýragarðinn. Ásthildur svaf óvenjulega lengi, svo við lögðum ekki af stað fyrr en um þrjú leytið. Svo það vannst ekki mikill tími til að skoða dýrin. Við fórum með metrónum, og þurftum að skipta um lest einu sinni.
Á leið í lestinni.
Shonn Brunn höll, höll Maríu Theresu, Napoleon átti sér herbergi þarna, enda góður vinur Maríu Theresu, enda giftust börnin þeirra, sonur Napoleons og dóttir Maríu Theresu, hún stofnaði hér dýralæknaskóla, um svipað leyti og Napoleon stofnaði slíkan, en hennar er ennþá starfræktur, og er elsti dýralæknaskóli í Evrópu, og þar er dóttir mín að læra í dag.
Hér erum við í hallargarðinum, en þar er dýragarðurinn líka. Shonn Brunn var mjög stórt enda veiðihöll keisarahjónanna. Garðurinn var risastór, og þar veiddu hátignirnar með gestum sínum.
Fannst þetta mótív bara svo flott, svo ég tók mynd, það blekkir svolítið að það er ekki svona dimmt, en ef ég lýsi hana, þá kemur þessi fallega birta ekki rétt.
Hanna Sól og Pöndurnar. Hér gerðist sá merki atburður í fyrra að það fæddist lítill pönduungi alveg óvænt, það er víst alveg einstakt í heiminum, því pöndur eiga ekki unga í dýragörðum. Þær voru komnar inn, þegar við komum, og löng biðröð fyrir utan húsið þeirra til að skoða ungann, svo við fórum bara til ljónanna í staðinn.
Glæsileg skepna þetta, hann virstist ljúfur sem lamb, það sama var ekki hægt að segja um kvenvarginn.
Hún hvæsti á stelpurnar og stökk á glerið hvað eftir annað. Sjáið grimmdarsvipinn á henni, ótrúlegt, maður var þakklátur fyrir öryggisglerið, hún hefði étið báðar stelpurnar og mig og Rominu með.
Hér undirbýr hún enn eitt stökkið, þær hrukku dálítið við, en urðu ekki hræddar. En ég tók það upp á vídeó, set það ef til vill inn einhverntíma, ef ég get lært það.
Þetta ljón er samt vinalegast
Þessi voru líka glæsilegar skepnur.
Vatnasvín, þessi hafa örugglega verið á matarlista höfðingjanna. Vatnasvín.
Á leiðinni heim, búin að herja eitt tuskudýr út úr ömmu sinni. Sjáiðið hvernig runnarnir eru klipptir til, eins og út úr tískublaði.
Komum við í hallarkaffinu og fengum okkur kakó, þarna er allt gífurlega flott, kristalsljósakrónurnar, hátíðardanssalur er þarna bakatil, og klósettinn eru öll í pelli og purpura, nennti ekki að fara niður í þau núna, en ég á myndir sem ég get sett inn síðar. Sannkölluð drottninga og keisaraynju ívera.
Hér sést ein af þessum kristalskrónum.
Kominn á endastöð, Gasometersity. Það voru þreyttar litlar stúlkur sem komu heim, og fóru fljótlega í bað og sofnuðu svo fljótt og vel.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
30.1.2008 | 11:25
Má ég bjóða ykkur á veitingahús í Bratizlava.
Já hér er yndælis veður, og við erum að spá í að fara í dýragarðinn með telpurnar. En mér datt í hug svona að bjóða ykkur til Bratizlava á kósý veitingastað og fá góða súpu, svona mitt í snjónum og rokinu heima. Þessi veitingastaður er í kjallara, eins og reyndar margir barir og veitingastaðir í þessari gömlu menningarborg.
Þessi lofar góðu, við skulum kíkja hér inn.
Já hér er allavega mjög notalegt.
Best að taka upp gleraugun því þjónninn er að koma.
Hér er margt ansi skrautlegt, bara að maturinn sé góður.
Sumum finnst þetta örugglega vera ofhlaðið af skrauti og allskonar gömlu dóti.
Hér er svo matseðilinn, hann er auðvitað allur á slavnesku, svo maður verður bara að þróa sig áfram, með hvað er á boðstólum.
Og jú við fengum þessa fínu ungversku gúllashsúpu, sem smakkaðist vel, og er heit og notaleg.
Svo er náttúrulega hægt að halda áfram að líka í kring um sig. Þetta er eiginlega alveg ótrúlegt, ég hef ekki séð svona yfirfullan veitingastað áður af öllu öðru en mat og mataráhöldum og svoleiðis.
En það er skemmtilegt að skoða þetta.
Litagleðin er líka ríkjandi hér.
Svo er að borga og koma sér út. Þetta var saðsöm og notaleg stund, verði ykkur að góðu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
29.1.2008 | 17:37
Dominikanska- sögulok.
Jæja þá eru sögulok í ferðinni til Dominikanska lýðveldisins.
Síðasti dagurinn var sólríkur, en þó lúrði rigninginn einhvernveginn á bak við. En við fórum á ströndina í síðasta skipti.
Tvö hlæjandi börn gengu fram hjá og kölluðu, góðan dag gamli maður góðan dag.
Rigningin lúrir á bak við sólargeislana.
Hér eru nokkrar myndir af frábærum ferðafélögum okkar.
Beðið eftir rútunni til Sanktó Domingo.
Slakað á í lobbíinu.
Þessar tvær yndislegu konur voru nágrannar okkar, ég sat stundum og átti gott spjall við þær.
Hér hafa menn það gott við sundlaugina. Það sést að menn eru komnir í ferðafötin.
Sæt saman Úlfur stubburinn minn og hún Freyja litla.
Þarna erum við á leið út í vélina. Endalausar biðraðir búnar, fyrst biðröð við inntékk, síðan biðröð við vegabréfaskoðun og svo við leitina. En svo kom í ljós að við þurftum að labba út í vélina. Ferðinni hafði verið flýtt af öllum uppákomum, sem varð svo til þess að við þurftum að bíða heillengi í vélinni, því fólk var ekki alveg með á nótunum. Svo stóð á skjánum gamli brottfarartíminn sem var nokkrum klukkutímum síðar.
Svona gera menn bara ekki held ég.
Það var heilmikil bið í flugvélinni, meðan leitað var að og beðið eftir fólkinu sem ekki hafði fylgst nógu vel með. Enda finnst mér einhvern veginn að það sé ekki hægt að flýta brottför, bara af því að áhöfnin vildi komast heim sem fyrst, þau höfðu meðvind út.
Þetta er svo himnagallerið bakdyrameginn.
En svo komum við til landsins, sveitt svekkt og þreytt, og hvað haldiði að taki við?
Jú móttökulið grátt fyrir járnum, teknir allir vökvar, úr skónum og allsherjar leit. Það var ekki mjög ánægjulegt. Ég sýndi víst einhverja óánægju og stúlka ein af þeim sem hefur ekki þroska í einkennisbúning, sýndi af sér mikinn hroka, þú verður að leita betur í dótinu hennar, sagði hún illkvittnislega, og setti veskið mitt fyrir framan ungan tollvörð, hann grautaði aumingjalegur í veskinu með annari hendinni meðan ég horfði á hann manndrápsaugum. Annar farþegi hafði smálögg af Beefeater í handtöskunni, hún var tekin upp og sýnd öllum sem þar stóðu, taktu hana bara hvæsti maðurinn út úr sér, eða drekktu hana ef þú vilt það frekar.
Ég verð að segja það maður hefur oft og mörgum sinnum komið heim frá ýmsum stöðum í heiminum, en að fá svona velkomstmóttöku, er meira en hægt er að þola. Hvern andskotan voru þeir að taka af manni vatn og vökva þegar maður er að koma ÚT ÚR FLUGVÉLINNI OG INN Í LANDIÐ?
Ég hugsaði ekki fallega til Halldórs Ásgrímssonar í það skiptið, þetta fjandans chengensamkomulag, sem hann langaði svo til að komast í. Bretar höfðu vit á að standa utan við þetta.
Svo á að velja vel það fólk sem klæðist einkennisbúningum, sumt fólk þolir bara ekki að fá þannig yfirráð yfir öðrum.
Ég átti í smá samræðum við Björn Bjarnason litlu seinna, og sagði honum að ég væri ekki hress með þetta. Hann benti auðvitað á að þetta væri Chengensamkomulagið sem við ættum þátt í og yrðum að fara eftir. Ég segi nú bara þetta er óþolandi, við vorum í leiguflugi, sama fólki sem fór út og kom inn. Og allir að koma heim til sín. Er þetta nú ekki að fylgja einhverjum reglum út í æsar. Ég er ennþá bálreið.
Ekki varð svo undan því vikist að koma við í Toys R us, stubbur þurfti endilega að skoða, hann átti ennþá einhverja peninga frá jólunum.
En svo lá leiðin heim.
Í íslenskt veðurfar. Það er svo sem bara gott líka.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
29.1.2008 | 10:06
Hið eina og sanna valdarán.
Svona mitt í allri uppákomuni í henni Reykjavík, þá get ég ekki annað en brosað út í annað. Hér hafa
menn hneykslast fram og til baka á kjörnum fulltrúum borgarinnar, sem sagðir eru stinga hvor annan í bakið, stunda klækjastjórnmál og ég veit ekki hvað og hvað. Fólk er að kafna úr vandlætingu yfir því sem það kallar svik við kjósendur, óheiðarleg vinnubrögð og svo framvegis.
Held meira að segja að grandvarasta fólk hafi falið hnífasettin sín í læstri skúffu.
En þegar maður skoðar málið betur, þá verður að viðurkennast að enginn hefur farið jafn illa úr út þessum klækjum og refskákum og Frjálslyndi flokkurinn. Samt er hann hafður að skotspæni og skammaður fyrir tiltækið.
Málið er að í borgarstjórnarflokki Frjálslyndra og óháðra, er meiri hluti stjórnarmanna í Íslandshreyfingunni. Fjórir efstu menn eru þar, ég man ekki hvar á listanum Gísli Helgason er, en hann er okkar maður einn af fáum Frjálslyndum á honum, síðan kemur Sveinn Aðalsteinsson sem líka hefur gengið úr flokknum. Það er því Íslandshreyfingin sem á flesta fulltrúa á lista Frjálslyndaflokksins og óháðra. Sniðugt ekki satt ? Og jafnvel ennþá sniðugra er eftir því sem mér skilst þá hafa menn úr Íslandshreyfingunni verið settir í nefndir á vegum borgarinnar, sem aldrei hafa komið nálægt Frjálslyndaflokknum, eins og Jakob Frímann Magnússon til dæmis.
Svo eru menn að væla yfir því að kjörnir fulltrúar skipta um meirihluta, og finna því allt til foráttu, ég segi nú ekki margt. Hvernig er þessi pólitík eiginlega að verða hjá okkur, einn hrærigrautur?
Íslandshreyfingin er nokkurskonar klofningur úr Framtíðarlandinu, sem ætlaði sér stóran hlut í íslenskri pólitík. Síðan gerist það að Margrét tapar varaformannskjöri og verður reið, rífur sig frá frjálslyndum, og það fylgja hennir nokkrir einstaklingar, þar á meðal þessi þrjú sem með henni tróna í efstu sætum F-listans, og alla leið inn í Íslandshreyfinguna. En klofningnum er ekki lokið, því þessir fjórir einstaklingar hafa síðan skipst niður í tvær einingar, þ.e. Ólafur og Ásta annars vegar og hinsvegar Margrét og Guðrún. Nú vantar bara að Margrét og Guðrún fari í hár saman, og þá er þessi Íslandshreyfing orðin að öreindum.
Þetta er raunar mjög sérstakt og af því verið er að tala um svik og óheiðarleika, þá spyr ég, hvernig getur fólk sem er í öðrum stjórnmálaflokki, en sitja sem kjörnir fulltrúar fyrir flokkinn, talist áháðir ? Ein þeirra meira að segja varaformaður annars stjórnmálaflokks?
Allt í lagi ég get skilið Ólaf F. og Ástu, þau eru með sínum gjörðum að stuðla að framgangi þess sem þau lofuðu í kosningabaráttunni á sínum tíma. En ég get ekki skilið hinar tvær, því þær ætla sér ekki að starfa eftir þeim loforðum sem þær gáfu. Margrét kynnti það hátíðlega og glaðhlakkaleg, eins og ekkert væri sjálfsagðara, það hefur reyndar lítið heyrst í Guðrúnu, þeirri mætu konu. Margrét segir stolt að hún ætli ekki að styðja Ólaf, sem er að vinna að framgangi kosningaloforða sem þau bæði gáfu fólki í síðustu kosningum. Og samt finnst fólki þessi kona trúverðug ? Einhver annar hefði verið kallaður vindhani og af minna tilefni.
Sérstaklega þegar það hefur verið upplýst af Ástu Þorleifsdóttur að Ólafur hafi sagt sínu fólki viku fyrir skiptin að hann ætti í viðræðum við Sjálfstæðismenn.
Ég get ekki að því gert að mér finnst það ekki gott mál að sitja sem fastast á lista Frjálslyndra, í skjóli
þess að hún sé óháð, þegar hún er varaformaður í Íslandshreyfingunni. Það er von að Ómar hjali þýðlega um allt aðra hluti, þegar hann hefur sitt fólk raðað niður á F-listann. En ég held að þetta fólk ætti sem minnst að tala um heiðarleika og góða siði í stjórnmálum.
Það er líka pínu fyndið að fylgjast með mínum mönnum, sem vita ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga, eiga í erfiðleikum með að svara. Þeim finnst þeim koma þetta lítið við, og þó er þetta allt gert í nafni Frjálslyndaflokksins. Þeir minna mig dálítið á þorska á þurru landi, þessar elskur. Þetta er eiginlega bara drepfyndið, ef maður hefur húmor fyrir svoleiðis þ.e. dálítið svartan. Ég hugsa að fáir vildu vera í þessum sporum, talandi um valdarán, þá er eina valdaránið sem framið hefur verið að mínu mati, yfirtaka Íslandshreyfingarinnar yfir Frjálslyndaflokknum í Reykjavík.
Eitt ætti að vera nokkuð ljóst að Frjálslyndi flokkurinn býður ekki fram í nafni Frjálslyndra og óháðra aftur.
Þetta er nú bara svona smápæling hjá mér, þegar maður hefur lítið annað að gera en að passa þæg og góð börn og leika sér í tölvunni
Megi blessun, ljós og friður fylgja ykkur öllum á Ísaköldu fögru landi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
28.1.2008 | 20:36
Arkitektúr og börn það er málið.
Ég fæ oft gesti heim til mín, hvaðanæva úr heiminum. Það er allskonar fólk, bæði hérlent og erlent. Sumir koma af forvitni eins og gengur, aðrir vilja kynnast þessu skrýtna fólki aðeins nánar, finna einhvern samhljóm með okkur.
Það koma eðlilega þó nokkuð margir arkitektar, þeir hafa komið víða frá, til dæmis Mexícó og Skotlandi, það hefur mikið borið á því, með það ágæta fólk, að þeir öfunda íslenska arkitekta af því frelsi sem þeir hafa við að teikna hús. Það er til dæmis í Skotlandi, verður nýtt hús í götunni að vera alveg eins eða mjög svipað og hin húsin í götunni, menn eru bundnir af hæð og lögun húsa. Þetta er víst svona víða. En hér í Austurríki virðist frelsið vera jafn mikið og heima, munurinn er sá, að þeir þora meira hér, og leggja meira upp úr arkitektúr en við heima, þar sem eru mest í dag bara kassar.
Ég tók nokkrar myndir í dag, og ætla að sýna ykkur hvað ég á við.
En fyrst fylgjum við Hönnu Sól í leikskólann.
Hér er mikil uppbygging, og stórar háar byggingar, mest gler og stál, en þessi leikskóli er mitt í öllum stóru húsunum, lágreist bygging, með garði í kring, og leikvöllur við hliðina. Það er greinilegt að það er ekki búið að taka jólaskrautið niður ennþá.
Hér er björt forstofa, sem börnin leika sér í stundum, meðan þau bíða eftir að vera sótt, þarna sést lítil verslun, sem er örugglega spennandi að leika í, og svo kubbarnir stóru sem þau hafa mikið gaman af að raða upp og hnoðast í. Í miðjunni í loftinu er svo stór gluggi, sem varpar skemmtilegri birtu inn.
En að byggingunum á leiðinni.
Hér sést hvað þeir eru óhræddir við að tengja saman gamlar byggingar með nýju efni, tankarnir eru allir tengdir saman með svona glerskálum.
Hér er verið að byggja fimm svona nýjar blokkir hinu meginn við götuna, sem er reyndar aðeins aðgangsgata að tönkunum. En einhversstaðar hefði nú þetta ekki talið geta gengið upp, svo gjörólíkar byggingar, og takið eftir hvernig þeir halla veggjunum, þetta er mjög algengt hér.
Þetta er skelin svokallaða, hún er blokk sem byggð er utan á einn tankinn, takið eftir forminu á henni, hún er hærri en tankarnir, og liggur að tanknum á einum stað. Þetta er stórkostlegt finnst mér. Ljótt myndi einhver segja. En þarna eru um 600 íbúðir.
Þetta stórhýsi minnir mig alltaf á Orkuveituhúsið í Reykjavík, þetta er eins og Títanic, og stefnið stendur upp yfir borgina, eins og sökkvandi skip, einskonar Hallgrímskirkjuturn.
En hér hefur mikið verið byggt, og líka rifið niður. Og þegar þeir rífa niður hús, þá er það rifið niður, steipan kurluð niður í möl og allt efnið endurnotað. Það er ekki verið að aka burt með steypuklumpa og kasta þeim í fjöru einhversstaðar eða urða. Húsin eru bókstaflega tekinn niður í smæstu agnir og endurnýtt.
Ekki veit ég hver verða örlög þessa kofa, þetta er hesthús, einhverra sem sitja niður í miðbæ með hestakerrur. Maður horfir á hestana hvíla sig á morgnana úr í gerði sem er þarna hinu meginn við. Svo fara þeir í vinnuna sína niður á torg. En sennilega mun byggingin víkja fyrir blokk.
Svo ein að heiman, fyrir fjallafólkið mitt. Ég veit að sólin er komin lengra niður núna, en þessi er tekinn um svipað leyti í fyrra.
Og svo svona í framhaldi af heima, þá var hún Sunna frænka mín og bloggvinkona, þessi elska að eignast son þann 24. janúar. Drengurinn er 14 merkur og 51 cm. Anna frænka mín og Beta ef þið slæðist hingað inn, þá er Sunna dóttir Dóru systur. Ég þori ekki að setja inn mynd af honum, en ég get sagt að hann er stórglæsilegur með Fljótavíkurútlitið á hreinu.
Elsku Sunna mín innilega til hamingju með litla ungan þinn, ég veit að þú verður rosalega góð mamma, þú ert alltaf svo ljúf og hlý.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
28.1.2008 | 13:58
Stundum getur maður verið alveg gaga.......
Stundum getur maður verið alveg úti að aka. Ég fór með Hönnu Sól litlu á leikskólan áðan, og datt í hug að fara í búðina í leiðinni, það vantaði ýmislegt og ég var með handtöskuna mína. Þegar ég var búin að tína heilmikið ofan í körfuna, þið vitið, það er allt svo ódýrt að maður freistast til að kaupa meira. Komin að kassanum, og búin að tína allt upp á bandið við kassann, fatta ég allt í einu að peningaveskið er uppi í íbúð, ég flýti mér að skella öllu ofan í kerruna aftur og muldra að ég hafi gleymt veskinu mínu, óþarfi að taka fram, að það var löng biðröð, og það er einhvernveginn þannig hér að fólkið er allt meira og minna fýlulegt, svona sem maður hittir ókunnugt á götunni og búðunum, meira að segja kassafólkið lítur á mann eins og hundaskít. En ókey ég hleyp upp, sem betur fer bara steinsnar í lyftuna upp sæki veskið og það er auðvitað kominn ennþá lengri biðröð þegar ég kem niður aftur. En sem betur fer hef ég nægan tíma hér. En samt ekki það skemmtilegasta að lenda í svona í útlöndum.
En ég var að segja hér áðan að ég fékk kveðju frá vinkonu minni sem býr hér, við ætlum að hittast eitthvað kvöldið á næstunni, en hún er að vinna í Kindermuseum, safni fyrir krakka, þar sem hægt er að fara með þau og leika sér og jafnvel skilja þau eftir í einn til tvo tíma. Þar er risaleirsalur, 3 tonn af leir, þar sem foreldrar og börn leira saman. Svo er líka annar salur þar sem er allt gert við hæfi barnanna, risaskip og allskonar horn og hollur til að skríða í. Þetta er mjög vinsælt. En þarna eru líka sýningar og fyrirlestrar, síðast þegar ég var hér, var sýning á flóttamannabúðum, sýnt hvernig flóttamenn búa, og aðstaða bæði hvað varðar flóttamenn sjálfa sem búa í tjöldum, læknatjöld og aðrar aðstæður, þetta var unnið af læknum án landamæra. Hér er mikið gert af því að uppfræða almenning um stöðu mála í þriðja heiminum.
Ég tók nokkrar myndir af safninu síðast þegar ég var hér.
Hér er verið að leira.
Pabbar og mömmur hafa ekki síður gaman af þessu leiri en börnin.
Hér er svo hinumeginn. Mjög áhugavert fyrir ungana að skoða og leika sér. Þarna er Hanna Sól að skoða.
Risaskip, með kvóta og alles, að vísu eru það plastfiskar.
Kristine vinkona mín og Hanna Sól í safninu.
Talandi um byggingar, þeim er ekkert heilagt í þeim efnum. Þetta er reyndar listaverk, draumahúsið, þar sem öllu er snúið á hvolf, eins og húsið Slunkaríki hans Sólons forðum, nema þar snéri allt út sem átti að snúa inn, og öfugt. Hér snýr allt á hvolfi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
28.1.2008 | 10:22
Inn í Tanknum og smárabb.
Er að hugsa til ykkar í snjónum og ófærðinni. Vona samt að veðrið hafi lagast. Og ég er alveg viss um að börnin eru himinsæl með allan þennan snjó.
Mér datt svona í hug að sýna ykkur myndir innan úr miðjunni á tanknum sem ég er í. Þar snúa gluggar inn í miðjuna, og neðst yfir verslunarmiðstöðinni er glerþak.
Ég er búin að sjá stjörnu með Chris Rea, Toto og fleiri frægum sem hafa haldið tónleika hér. Það er bara gaman að skoða hérna niðri fótsporin og handaförin þeirra, skemmtileg hugmyndi líka.
Hér sést tekið uppávið, og aðeins í skreytinguna ofan á tanknum.
Hér má aftur á móti sjá niður á þak verslunarmiðstöðvarinnar, en ég er á áttundu hæð.
Hér er svo ein mynd af stelpunum í baði, og Romína, hún er rosalega yndisleg manneskja og við höfum fundið okkur sameiginlegt mál, svona bland af þýsku og táknmáli, okkur gengur því ágætlega að tjá okkur hvor við aðra ef það er ekki of flókið.
Hér er svo ein mynd af þessum tveimur Ásthildum Cesiljum sem til eru í heiminum. Hún grettir sig vegna sólarinnar. En það er dálítið skrýtið að heyra sífell kalla Ásthildour ! og ef hún gerir eitthvað af sér, enda er hún rosalegur prakkari, sérstaklega iðin við að stríða stóru systur, þá heyrist Ásthildour Cesil. Hehehehe.. en það er líka mjög ljúft og ég er afar hreykin af að þessi litli frábæri einstaklingur ber nafnið mitt, hún á eftir að gera það með miklum sóma.
Eigið annars góðan dag. Gott að fara út í snjókast það er ekki svo oft sem sunnlendingum gefst færi á því.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
27.1.2008 | 21:30
Góða nótt.
Lærið heppnaðist vel, og börn og fullorðnir átu á sig gat, þannig á það að vera með íslensku sauðkindina, sem er besta villibráð sem til er. Veðrið er gengið niður hér í Vín, og ég er að fara að halla mér, þarf samt að fara aðeins út að rölta með hundinn, en það er vegna þess að hann fékk bein af íslensku lambalæri, í staðin fyrir eitthvert pillusull En svona er lífð, þú færð eitthvað gúrme og þarft að vinna það upp á einhvern hátt, ekkert er ókeypis í þessum heimi. Það er gott að hafa í huga, sérstaklega núna á dögum útsölu og tilboða.
Ég segi bara góða nótt elskurnar og munið að það er líf eftir nóttina, þá hefst nefnilega nýr og spennandi dagur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
27.1.2008 | 09:23
Hugleiðing frá Vín.
Ég er að hugsa þegar maður er svona í útlöndum, hve gott það er að geta fylgst með útvarpi og sjónvarpi. Það er voða notalegt, að setja á rás2 eða bylgjuna, og hlusta á tónlistina sem maður er vanur, opna fyrir fréttirnar, sjá veðrið og svo ekki sé talað um þætti eins og spaugstofuna, og Laugardagslögin.
Ég er að vísu sammála þeim sem hafa hneykslast á ósmekklegu gríni þeirra spaugstofumanna í garð nýja borgarstjórans Ólafs F. Magnússonar. Ég þekki Ólaf ekki af öðru en að vera heiðarlegur kurteis og prúður maður, með væntingar um að halda í heiðri þau málefni sem hann hefur barist fyrir, og halda þeim til streitu. Mér þykir því sárt að sjá hve fólk getur svifist enskis til að koma á hann höggi. Ég ætla bara að segja að það fólk sem þarna er í forsvari, ætti að huga vel að hvað það er að gera, því gröfin sem þau ætla Ólafi gæti reynst þeim sjálfum hættuleg.
En nóg um það. Ég er hér að hlusta á Rás2, á sunnudagsmorgni, það er frekar drungalegt veður hér í Vín, það var spáð leiðinda veðri með roki, en hér er allt ennþá með kyrrum kjörum. Ég hafði með mér lambalæri frá Íslandi, sem ég ætla að elda í kvöld fyrir dóttur mína og barnabörnin og Rómínu hina austur sovétsku, hef ekki ennþá spurt hvaðan, hún talar bara þýsku og rússnesku, en ég tala ensku, eitt og eitt orð getum við samt átt saman, svo eru merkja mál. En gengur ekki alltaf alveg nógu vel. Sérstaklega þegar maður þarf að spyrja um flókin mál, eins og hefur litla barnið kúkað í dag, og svoleiðis, en hún hefur verið dálítið óvær eftir veikindin, blessunin.
Hér eru þær stöllur, hér eru naggrísir og Ásthildur er voða spennt fyrir þeim, hún klifrar upp á allt, maður þarf að hafa augu allan hringin þegar hún á í hlut.
Hér eru svo Miriam og Hanna Sól, ásamt Trölla.
Hér eru svo tankarnir, þetta voru gastankar sem hafa verið gerðir að íbúðum, niðri í Gasometer a, þessum lengst til vinstri, er verslunarmiðstöð, þægilegt að þurfa ekki að fara út til að versla. Þetta glerhýsi við tank nr. 2 kallast skelin og er um 600 íbúðablokk að mig minnir, þeir byggja mikið svona á ská, það er verið að byggja hér fyrir framan tankana svoleiðis blokkir, ég á eftir að sýna ykkur myndir af þeim.
Í tanki 2 er svo hljómleikasalur, sem margir frægir listamenn hafa haldið tónleika, síðast þegar ég var hér, voru þeir hér í 0asis, það var svo sannarlega mikið um að vera fleiri trukkar með hljóðfærum og græjum. Susie Quadro hefur verið hér, Boney M, Alice Cooper og fleiri, þeir fá allir stjörnu og fóta og handfar hér niðri í verslunarmiðstöðinni.
Þeir eru svo sannarlega ekki hræddir við að brydda upp á ´nýjungum í arkitektur, og heldur ekkert feimnir við að setja stál og gler við gömul hús. Eins og þeir hafa tengt saman tankana með glerbrúm.
Svo er ein að heiman fyrir fjallafólkið mitt.
Tekin þegar komið er upp úr álftafirðinum og yfir Kambsnesið, svo sannarlega glæsilegur tindur, sem blasir við á bleikum himni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 37
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 26
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar