9.1.2009 | 23:38
Munið mótmælin kl. þrjú á morgun.
Á morgun verða mótmæli á Silfurtorgi á Ísafirði. Ég fór í dag til Dagnýjar Þrastar og herjaði út skilti fyrir mig og Úlf. Hann vill endilega bera líka skilti. Ég er náttúrlega alveg rosalega stressuð, vegna þess að ég veit að börn mega ekki taka þátt í mótmælum, en innrætingin er svo rosaleg hjá mér hlýtur að vera.
Ég hlakka til. Það verður spennandi að sjá hvort einhver verður svo óforskammaður að hylja andlit sitt. Svo verður líka spennandi að vita hvernig veðrið verður. Það er spáð leiðinda veðri, en var svo dregið til baka að einhverju leyti þ.e. það á ekki að blása mikið en það á samt að snjóa.
Það sem ég veit er að ræðurnar verða góðar bæði Herdis Hübner systir hans Tryggva gítarleikara og Lýður Árna eru flottir ræðumenn. Fundarstjórnin verður líka í góðum höndum því þar heldur á veldissprota Guðmundur Þór, þó hann komist náttúrulega ekki með rassinn þar sem Hörður hefur magann.... eða þannig
Ég vona að það mæti sem flestir, nú verðum við að fara að sýna samstöðu. Mér finnst eins og sumir sitji bara og flatmagi á sófanum heima hjá sér, setjist svo niður við tölvuna og fjandist út í fólkið sem er að mótmæla, finna því allt til foráttu, og leita eftir veikum punktum. Þó held ég að flestir séu á því að hér hafi verið framið óréttlæti sem ekki verði við unað.
Hvað vakir fyrir þessu liði veit ég ekki, hvort að er einhversskonar sjálfskipuð fyrirhyggja, eða hvort þeim finnist að þeir séu útundan er ekki víst. Ef til vill dreymir þetta fólk um að standa í fararbroddi og vera hetjur, en fyrst það tekst ekki, þá er um að gera að rakka allt niður sem aðrir eru að gera. Og benda á að þetta sé nú heldur betra svona, eða geta ekki tekið þátt af því að þetta er hinsegin. Þjóðverjarnir sem voru hér að mótmæla sögðu að við kynnum ekki að mótmæla, og sennilega hafa þau rétt fyrir sér. Við höfum aldrei gert neitt þessu líkt áður. Þess meiri hetjur eru þeir sem komu þessu af stað.
Ef til vill finnst þessum sjálfskipuðu fyrirhyggjupostulum sem allt vita betur, bara allt vera í fínu lagi og ekki þörf á að breyta neinu. Spurningin er bara hve margir þeir eru og svo auðvitað hvort þetta er týnda þjóðin hennar Ingibjargar.
Ég er allavega þakklát því fólki sem fór af stað hér í minni heimabyggð. Því mér fannst ég sitja utanvið allt, sérstaklega þegar heiglarnir stoppuðu af að sent væri beint út frá fundunum. Sú þöggun sem þar sýndi sig var eftirtektarverð og sýnir svo ekki verður um villst að málstaðurinn er ekki beysin hjá stjórnvöldum. Þau vilja ekki að við stöndum upp og mótmælum. Þau vilja hafa okkur áfram sofandi sauði, helst að við förm í hár saman og eyðum orkunni í að gagnrýna aðferðir hvors annars.
En ég held að það takist ekki. Vona það alla vega því mótmælendur eru af öllum stærðum og gerðum, á öllum aldri og þverskurður af ekki - þjóðinni hennar Ingibjargar. Áberandi er að fremst í fríðum flokki fara þroskaðar konur. Það eitt og sér bendir til alvarleika mótmælanna. Konur eru ef eitthvað er seinþreyttari til vandræða en karlmenn. En þegar sverfur að og grunngildi þeirra fjölskyldan og öryggið er í hættu þá er ekkert dýr grimmara en kvendýrið, hvort sem það er mannvera eða annað dýr. Við verjum það sem okkur er kærast. Og það sem þyngra vegur er að hér er ekki um að ræða eitthvað feministakjaftæði eins og sumir myndu kalla það, heldur hin venjulega húsmóðir, mamma, amma og jafnvel langamma sem stjórnvöld þurfa að díla við.
Mætum öll þau sem finnst við vera órétti beitt og látum í okkur heyra. Látum spillingaröflin finna að okkur er ekki sama og að við viljum breytingar.
En svo eru nokkrar myndir svona til upplífgunar.
Fiskur er herramannsmatur.
Hér er verið að búa til eyju sem verður svo etin af svangri tröllskessu sem heitir SólHanna.
Svo þarf auðvitað að vaska upp og ganga frá eins og gengur.
svo má afi teikna kalla á handarbakið, sem er mjög spennandi.
En veðrið....
Klukkan er hálffjögur og rétt að koma að göngunum Ísafjarðarmegin. Það er byrjað að snjóa.
Og það hefur snjóað töluvert á þessum klukkutíma sem tók að sækja stelpurnar.
Þið hafið ef til vill tekið eftir því að það er fullt tungl, þessi er því spúkí, tekinn á 1600 Iso og dálítið hreyfð en hér gætu vappað inn álfar og tröll ef þið gætið ekki að ykkur.
Aðrir litir með flassinu.
Já þetta er eins og ævintýraland.
Eigið góða nótt og góða drauma elskuleg mín
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
8.1.2009 | 22:41
Upphitun fyrir mótmæli.
Þýsku vinir mínir Hnífsdælingarnir Abrecht búa lengst inn í Þýskalandi, langt frá sjónum. Þau eru sannir íslandsvinir og hafa keypt sér lítið hús við sjóinn í Hnífsdal, þar sem þau eyða sínum fríum. Þau hafa líka leigt húsið út til fólks sem kemur hér og nýtur þess að vera við sjóinn og í náttúrunni. Svo var ákveðið að gera göng til Bolungarvíkur, sem ekki er nema bara gott mál. En síðan var ákveðið að leggja veg sjávarmeginn við húsið þeirra. Þau hafa lengi unað sér þarna í fríum veitt fisk í soðið og notið þess að vera á þessum friðsæla stað. Nú breytist allt, enginn aðgangur að sjó lengur, og sennlega mun hávaðinn af bílum glymja í kyrrláta húsinu þeirra. Það er því ekki sama eignin og þau keyptu af bænum á sínum tíma.
Þau fóru því og mótmæltu þessum gjörningi á táknrænan hátt í dag.
Og slagorðið er orðið klassiskt ekki satt!
Þau eru bæði vel menntuð hjónin, og vita hvað þau syngja í þessu máli. Hún er arkitekt og hann sólarorkusérfræðingur.
Vonandi fær þetta að standa fólki til viðvörunar. Því eins og þau segja, hvað gerist ef peningarnir klárast þegar gerður hefur verið hálfur vegur og hálf göng? Væri ekki nær að klára göngin og sjá svo til, hvort þörf er á þessum vegi?
Ásthildi er svo sem sama, því hún étur bara appelsínur og nóg af þeim.
Hún er líka tilbúin í ræktunina. En vegna allra smáputtana sem alltaf eru á þessu heimili þá setti afi steypu ofan á pottinn. Moldin var endalaust út um öll gólf.
Hér er svo prinsessudyngjan með öllum flottu prinsessukjólunum.
Myndir af fjöllunum. Veðrið var gott í dag eins og venjulega. Mikið er farið af snjónum eins og sjá má.
Og jafnvel þó skuggsýnt sé orðið, þá er fjallamálverkið á pollinum.
En ég ætla að setja hér inn mynd sem var stungið að mér. Veit einhver deili á þessu fólki? Mér finnst ég kannast við þau, en kem þeim ekki fyrir mig.
Það væri gaman að fá nöfnin og söguna.
Svo verð ég að segja það fyrir mig að ég skil ekki alveg þetta niðrandi tal um þá mótmælendur sem bera grímur. Hvað er að því að fólk hylji andlit sin ef það vill? Svo lengi sem mótmælin eru friðsamleg og á góðum nótum. Við hvað er fólk hrætt? Er það of mikið gláp á erlendar fréttir? Eða hvað er það sem vekur fólki þennan ótta.
Er þetta sama og með fólk sem skrifar nafnlaust?
Ég skrifa alltaf undir nafni, og myndi aldrei hylja andlit mitt. En ég get vel skilið fólk sem það gerir. Ég veit nefnilega að Ísland er ekki meira lýðræðisríki en svo, að fólk hefur verið látið gjalda fyrir það að hafa skoðanir sem ekki hugnast annað hvort vinnuveitanda eða ráðamönnum. Þess eru mýmörg dæmi. Þetta kemur iðulega upp á yfirborðið í kosningabaráttu. Ég veit ekki hve margar sögur ég hef frá fólki sem þorir til dæmis ekki að láta uppi stuðning við minn flokk, vegna hótana. Og aðrir sem ekki treysta sér til að fara á lista. Fólk hefur misst vinnuna vegna þátttöku í pólitísku starfi, fleiri en einn og fleiri en tveir.
Sama gæti átt við um mótmælendur sem hylja andlit sín. Þið ættuð frekar að beina reiðinni að þeim spilltu yfirvöldum og vinnuveitendum sem haga sér þannig, en ekki fólkinu sem jafnvel er að verja sjálft sig og fjölskylduna.
Ísland er ekki lýðræðisríki í dag, heldur gjörspillt einokunarríki, því fyrr sem þið opnið augun fyrir því, því fyrr tekst okkur að endurreisa lýðræðið og koma á réttlæti. Meðan fólk gengur um eins og blindir kettlingar og heldur að allt sé í himnalagi eruð þið að gefa skotleyfi bæði á ykkur sjálf og alla hina. TAKK FYRIR ÞAÐ.
Eigið svo gott kvöld elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (17)
7.1.2009 | 20:19
Kajak og kvöldverður með góðum vinum.
Þrettándin var í gær, það er síðasti dagur jóla hér hjá okkur allavega.
Svona var veðrið í þá, en það rigndi heilan helling í dag svo nú er allur snjór á burt.
Hnífdsdælingarnir vinir okkar frá Svartaskógi fóru með Ella á kajak í gær, enda var veður til þess.
Fyrst var að velja sér kajak.
Það verður svo skemmtiferð í Reykjanes um mánaðarmótin, þar sem við munum eyða helginni saman.
En því miður gat ég ekki beðið eftir að þau færu á flot, því ég þurfti að fara og sækja stelpurnar.
Okkur var svo boðið í mat í notalega heimilið þeirra í Hnífsdal, sem þau hafa nú dvalið yfir jól og áramót.
Þessi líka fína steikta rauðspretta.
Og svo var spilað og leikið.
Það var virkilega notalegt.
Og Úlfur brá smá á leik.
Birgit og Ásthildur skoða myndir.
Þau ætla sko að fara heim með bæði fisk og kjöt, sennilega harðfisk líka, svo er konfektið gott. En fiskur og kjöt frá Vestfjörðum er það besta sem til er.
Svo var farið að leita að álfabrennunni, hún var svo í Bolungarvík svo við misstum af henni.
En þetta var samt frábært kvöld..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
7.1.2009 | 15:01
Dagný Dimmblá. Þú ert bestust.
Ég ætlaði að setja inn nokkrar myndir núna, en ákvað að fresta því þar til seinna í dag. Ég vil nota þetta tækifæri til að ræða um málefni Dagnýjar Dimmblár litlu hetjunnar sem fullorðið fólk er að rífa í sig eins og hungraðir úlfar. Ég held að sambærilegt dæmi gæti verið Smáralindarbæklingurinn frægi.
En hverslagt réttlætiskennd eða skilningur er það hjá fólki að börn megi ekki tjá sig, það hljóti að vera eitthvað bogið við foreldrana, eða barnið hljóti verr af.
Það er ekki skeytt um að kynna sér málið, eða lesa það sem fólk skrifar sem nærri henni stendur. Heldur ræðst hver um annan þveran í vandlætingu að fólkinu eins og um alvarlegan glæp sé að ræða.
Þetta sama fólk segir ekki STAKT ORÐ UM FORELDRA SEM GEYMA BYSSU Á GLÁMBEKK í húsi þar sem eru unglingar. Úr hvaða efnivið er fólk hér gert ?
Andskotans forræðishyggja. Það er allt í lagi að hafa sínar skoðanir á þessu, og sumir eru auðvitað hógværir. En ég verð reið þegar ég sé að aðförin hefur ill áhrif á blessað barnið. Hvað er þá skilningurinn og verndin? Hvar er hún í ykkar huga, sem hér ráðist af vandlætingu fram á ritvöllinn, eða haldiði ef til vill að 8 ára barn kunni ekki að lesa. Eða haldið þið virkilega að hún hafi ekki viljað sjá hvaða áhrif ræðan hennar hafði. Auðvitað hélt hún að hún fengi plús fyrir frammistöðuna, við þráum öll viðurkenningu. Og hvað blasir svo við?
Jú fordæming á foreldrum hennar. Og að það hefði ekki átt að leyfa henni að tala.
Ég segi nú bara, fjandans afskiptasemi alltaf í fólki, og forræðishyggjan. Já ég er orðin reið fyrir hönd litlu stúlkunnar og ég segi nú bara.
Dagný Dimmblá mín takk fyrir að þora að koma fram og segja ÞÍNA meiningu. Ég veit að jafnvel átta ára gömul börn hafa meiningar, og oft heilbrigðari en fullorðna fólkið, sem lætur mata sig endalaust og ætlar því öðrum það sama.
En hér ætla ég svo að endingu að setja inn færslu frá móðursystur hennar:
Innlegg frænku hennar.
Sjaldan hef ég heyrt jafn marga, opinbera fordóma sína og skinhelgi. Börnin eru líka þjóðin, ekki satt! Heldur fólk, að það sé hægt að vernda börn fyrir upplýsingum í upplýsingaþjóðfélagi? Heldur fólk, að börn hafi enga greind og geti ekki myndað sér skoðanir? Heldur fólk, að börn þessa lands verði ekki vör við kreppuna og allt krepputalið? Á sumum heimilum á fólk ekki fyrir mat, á öðrum heimilum eru foreldrarnir búnir að missa vinnuna. Heldur fólk, að það sé hægt að pakka börnunum inn í bómull og vernda þau fyrir raunveruleikanum?Stúlkan sem um ræðir, Dagný Dimmblá, er bróðurdóttir mín. Bráðskír, ófeimin og fylgin sér. Hún ákvað sjálf á sínum tíma, að búa til sitt mótmælaspjald, því hún vildi mótmæla á Austurvelli. Hún fór með pabba sínum á nokkra mótmælafundi, þessir fundir eru afar fjölskylduvænir svo ekki sé meira sagt: Fólk á öllum aldri, frá ungum börnum í barnavögnum upp í háaldrað fólk, og allt fer friðsamlega fram. Á einum fundinum fór hún til Harðar Torfasonar og bað um leyfi til þess að ávarpa næsta fund, því henni fannst vanta upp á að raddir barna heyrðust þarna líka. Pabba hennar leist ekkert á þessa hugmynd til að byrja með, og vildi í fyrstu ekki samþykkja þetta (hann sá fyrir ofstækisfull viðbrögð fordómafulls fólks, það gekk líka eftir). Hann lét þó undan henni að lokum, mest vegna þess að það eru mannréttindi barna að fá að tjá sig. Hún skrifaði ræðuna sjálf, pabbi hennar hjálpaði henni að hreinskrifa og þetta var alls ekki æft heima. Að hún hafi verið heilaþvegin eða fjölskyldan hafi att henni út í þetta er algjör fjarstæða. Allir sem þekkja Dagný Dimmblá vita það mæta vel. Henni varð heldur ekkert meint af atburðinum. Hún hefði getað átt mjög góða minningu um þetta: Hún hélt ræðu, sem hún skrifaði sjálf og hún stóð sig vel og fólk klappaði. Nei, það má hún ekki. Það þarf að eyðileggja upplifunina og snúa þessu upp í ofstæki og einelti. Henni hefur orðið meint af viðbrögðum ykkar bloggara við þessu. Eitrið sem vellur út úr sumum pennum hérna á moggablogginu, meðal annars, er til háborinnar skammar. Fjölskylda mín er kölluð kommúnistar! (ég hélt að þeir væru allir dauðir með kalda stríðinu!) Það á að senda barnaverndarnefnd á okkur! Við erum ásökuð um barnaníðslu og heilaþvott! Svo ég nefni lítið brot af þeim svívirðingum sem velta út úr bloggurum þessa síðustu daga. Dagný litla þorir varla út úr húsi og hefur átt erfitt með svefn síðustu daga. Hún verður sennilega líka að skipta um skóla vegna þessa. Þetta er á ykkar ábyrgð.Þið bloggarar standið ykkur vel í því að brjóta niður unga sál, undir því yfirskini, að þið séuð að vernda barnið og berið hag þess fyrir brjósti. Mig langar að kasta upp. Þjóðin er greinilega ekki bara gjaldþrota í peningum, hún er líka að tapa vitinu að mínu mati, og svona skrif eru ekki greindu fólki sæmandi á neinn hátt. Þau sýna aftur á móti gjaldþrot andans og umburðarlyndisins.
http://siggahulda.blog.is/blog/siggahulda/ Hér er hægt að hlusta á ræðuna hennar líka.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
7.1.2009 | 09:35
Ætlar þetta engan endi að taka - er ekki komið nóg?
Ætli þetta eigi að vera brandari?
Ótrúlegt að horfa upp á þetta. Heila þrjá klukkutíma ætla þeir að "gefa" Palestínu á degi hverjum, og drepa þá svo í 21 tíma þess í milli. Opna hvað MANNÚÐARLEIÐ!!! Er ekki allt í lagi með þetta lið. Æ nei fyrirgefið, það er auðvitað aldrei í lagi með fjöldamorðinga, þeir þurfa blóð og mikið af því til að finna að þeir eru teknir gildir í samfélagi þjóða. Eða hvað?
Ég held að ráðamenn í Ísrael geri sér enga grein fyrir þvílíkan viðbjóð þeir hafa vakið hjá almenningi heimsins. Þeir munu aldrei þvo þann blóðblett af sér, og eins og íslendingar hafa skuldsett börn og barnabörn, hafa þessir menn blóðgað alla sína niðja í þúsund ár. Ó vei Ó vei mikil er reisn ykkar morðhundar og mikil er reisn ráðamanna heimsins meðan blóðið flæðir niður heimasvæði Palestínu og allt svínaríið liggur undir steinum.
Megi þið hljóta þau örlög sem þið hafið skapað öðrum. Megi allt það henda ykkur sjálfa sem þið ætlið palestínsku þjóðinni.
Mér er farið að líða virkilega illa út af þessu öllu, og var þó ekki á bætandi þegar haft er í huga ástandið sem ríkir hér á heimaslóðum. Ætlar þetta engann endi að taka? Hvar byrjaði talið um mannlega reisn? Eða dýrslegar hvatir? Og hvar er skilgreiningin þar á milli? Er nema von að ég spyrji.
![]() |
Hlé gert á árásum á Gaza |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
6.1.2009 | 12:15
Erum við ennþá í moldarkofunum? Höfum við ekkert lært eða þroskast?
Það er eitt sem hefur spillt fyrir mér gleði nýgenginnar hátíðar, sett svartan blett á allt. En það er ofbeldi Ísraels gagnvart Palestínu. Mér ofbýður gjörsamlega hvernig þetta getur átt sér stað, og að þjóðir heims geti hreinlega setið og gert lítið eða ekki neitt.
Þegar einelti á sér stað, þýðir ekkert fyrir kennarann á skólalóðinni að segja bara skamm skamm. Það þarf að taka í hnakkadrambið á hrekkjalómnum og setja af stað vinnuferli til að stemma stigu við ofbeldinu.
Að þjóðir heims geti bara setið og horft upp á þessa villimenn murrka lífið úr saklausu fólki er mér algjörlega óskiljanlegt. Yfirklór eins og fordæming (skamm skamm) skiptir nákvæmlega engu máli fyrir þessa ofbeldisfullu þjóð Ísrael. Ég veit svo sem að alþjóðasamfélagið er ennþá að skammast sín vegna meðferðar sem gyðingar fengu hjá Hitler og nasistum. En eru ísraelskir ráðamenn ekki nákvæmlega sömu gerendur nú, eins og þeir voru fórnarlömb áður?
Ef maður tekur þetta lengra, hvað ætlar svo samfélagið gera þegar ísraelar hafa murrkað lífið úr palestínsku þjóðinni? Brotið sjálfstæði þeirra á bak aftur og skilja eftir rústir einar?
Ætla þeir þá að burðast með sektarkennd yfir Palestínskri þjóð næstu öldina? Og hvar staðsetur það morðingjana í náinni framtíð? Þeir munu fyrirlitnir og smáðir af öllu hugsandi fólki. Samúðin sem þeir hafa alltaf treyst á, er ekki til, nema hjá því fólki sem sér ekkert fram yfir biblíuna og að þeir séu Guðs útvalda þjóð. Svo satt sem það nú trúlega er, eða hitt þá heldur. Ég er viss um að Jesús Kristur hefði skipt um ríkisfang, hefði hann getað og allir spámennirnir með.
Það þýðir heldur ekkert að hóta að taka friðarverðlaunin af Peres, þó það sé auðvitað alveg sjálfsagt mál. Þessi verðlaun eru hvort sem er honum til háðungar í dag. Hann hefur fyrirgert rétti sínum til að hafa þau í eign sinni blóðugur upp fyrir axlir af saklausu blóði barna og kvenna.
Sérstaklega svíður mér að hlusta á íslenska ráðamenn eins og Þorgerði Katrínu éta upp eftir bandaríkjamönnum við að réttlæta drápinn. Skömmin er algjörlega hennar, enda þykir mér einsýnt að daga hennar séu taldir í pólitík, bæði vegna þessa og annarra spillingarmála í hennar fjölskyldu.
Ég hef lengi haft lítið álit á ráðamönnum í Ísrael, ég veit að margir ísraelar eru friðarsinnar og vilja ekki hafa þetta svona, sumum sem ég þekki til, líður hreint og beint illa yfir þessu, enda brottrækir og eiga ekki endurkomu til heimalandsins. En þetta litla álit hefur nú breyst í hreinan viðbjóð. Ég spái því að mannorð þjóðarinnar verði orðið þannig að þeir geta hvergi komið eða verið í friði. Fólk muni allstaðar fyrirlíta hvern og einn af þeirra þjóðerni. Við vitum sjálf hve auðvelt það er að dæma heila þjóð sem glæpamenn, þó við séum örþjóð.
Ísrael er að leggja grunninn að sjáflseyðingu sinni. Það sem þeir munu uppskera og reyndar allir sem tala þeirra máli í heiminum verður fyrirlitning og hatur.
Níðingsverk þeirra munu fylgja þeim í þúsund ár. Og ég vorkenni þeim ekki.
Annað sem ég vil segja hér er að margir hafa fordæmt foreldra átta ára gamallar stúlku fyrir að leyfa henni að tala á friðsamlegum mótmælum á Austurvelli. Talið þetta bera vott um slæma foreldra, og þeim er ætlaður allskonar ásetningur með þessu. Þó höfum við frá fyrstu hendi frásögn af því að þessi litla stúlka bað sjáf um að fá að tala. Hafði frumkvæði að því við Hörð Torfason að fá að tala. samdi ræðuna sína sjálf meira að segja.
Á sama tíma hef ég ekki séð þetta sama fólk fordæma foreldra sem höfðu marghleypu og skot á glámbekk með börn, eða allavega ungling á heimilinu. Maðurinn þar að auki sérsveitarmaður og lögregla, sem ætti að vita betur.
Ég get ekki kallað þetta annað en tvískinnungshátt.
Og svo er freistandi að spyrja hvar ætlar þetta fólk að draga mörkin. Má ekki leyfa þroskaheftum að tala á friðsamlegum mótmælum? Eða á að banna fóki yfir áttrætt að tala, þau geta jú verið orðin elliær. Fíklar mega heldur örugglega ekki tjá sínar skoðanir þarna eða hommar og lesbíur. Enda hefur nú aldeilis verið veist að Herði Torfa og hann kallaður allskonar nöfnum.
Þetta er forræðishyggja að mínu mati. Fólk sem vill ráða hverjir mega tala og hverjir ekki. Bara það að tæp 50% ætla ennþá að kjósa þessa ríkisstjórn yfir okkur aftur, segir meira en þúsund orð. Núna þegar ljósara verður með hverjum deginum spillingin, eftirlitsleysið, yfirhylmingin og ráðaleysið í núverandi stjórnvöldum, jafnframt því að hanga eins og hundar á roði á völdum sínum hvað sem tautar og raular.
Við erum sem sagt ennþá föst í moldarkofunum, eða höfum rétt troðið okkur út fyrir dyrnar, klifrað upp á bæjarburstina og reynum að sjá út að túnfætinum, en sjáum aðeins okkar eigið bæjarhlað. Er nema von að fólk sem vill berjast, vill réttlátara samfélag og vill leggja á sig að reyna að mótmæla ástandinu sé orðið uppgefið.
Það vantar ekki að fólk sjái misskiptinguna, óréttlætið og ég efast ekki um að allir sem ekki eiga hlutdeild í kjötkötlunum vilji breytingar. En annað hvort er fólk hrætt við að breyta til, eða kærulaust um lýðræðislegan rétt sinn. Eða eins og ein kona sagði við mig fyrir nokkrum árum, þegar ég stóð í kosningabaráttu; mér finnst málefnin hjá ykkur afskaplega góð, og mér lýst vel á fólkið sem er í forsvari hjá ykkur en ég hef alltaf kosið sama flokkinn, og ég kann ekki við að fara að breyta til núna. Er þetta ef til vill hugsunin? Er þetta ef til vill lýðræðið sem ríkir hér í dag.
Ég vona ekki. Ég vona svo sannarlega að við getum fundið flöt á pólitíkinni, sem verður okkur öllum til góðs, sem við getum sameinast um. Þetta ástand getur ekki varað lengur ef við viljum vera ein þjóð í einu landi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
6.1.2009 | 00:07
Að segja bless. Every time you say good bye you die a little.
Nú er Bára mín farin áleiðis til Vínar. Við fórum inn á flugvöll í morgun og kvöddum hana, og svo var brunað í leikskólann. Sú eldri var greinilega vel undirbúin, því mamma hennar hafði rætt þetta vel og vendilega við hana áður en hún fór. Sú litla var ósköp leið og grét. En hafði samt gaman af að komast á leikskólann, svo fórum við í sund á Suðureyri, sem er frábær. Og það var gaman. En í kvöld var hún aftur lítil og aum. Ég veit samt að hún verður fljót að taka gleði sína á ný, því hún er orðin heimakær hér.
Það sést samt í þessum fallegu augum að hún veit að mamma er að fara.
En upp með léttara hjal.
Á góðri stund í gær.
Heidi frá Austurríki er viss um að þessir leikrænu taktar sér frá ömmunni hehehehe.
Hér er smá leyndó á ferðinni reyndar..
Og sú stutta spilar með.
Leyndóið hefur með kyssitauið að gera.
Sjáið brosið Kate Moss hefði ekki gert betur, hvað þá Naomi Campbell.
Og nú fáum við örugglega tilboð frá snyrtivörufyrirtækinu
En það geta fleiri sýnt tilþrif, og í þetta sinn eru það björgunarsveitirnar sem þurfa að styrkja.
Tilbúin í flugeldana sko!!!
En meðan sú stóra verður prinsessumódel, þá verður þessi pönkdrottning.
Ókey farin að heiman
En Brandur lætur sér fátt um finnast.
Og svo bíður morgunverðurinn, en það þarf að svara í símann...
Og ræða business, útrás sennilega það er svo arðbært
Það er allt klárt að fara út á flugvöll með mömmu.
Allt klárt í bílinn.
Inn á flugvelli hitti Ásthildur þessa flottu grænlensku tík.
Hanna Sól keypti sér litabók um hesta af Lindu hestakonu.
Og bráðlega verður kallað út í vél.
Jólaskrautið heillar mikið.
En svo var erfitt að segja bless. Og elsku Bára mín, ég held að þú hafir átt mest erfitt elsku stelpan mín. En þú veist að okkur líður vel, og að við söknum þín heilmikið. Það er margt að gera og lífið heldur áfram. Og svo hittumst við aftur í febrúar. Knús á þig elskuleg mín. Börnin þín eru í góðum höndum hjá afa og ömmu í Kúlu, og öllum hinum kúlubúunum. Stórfjölskyldunni.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 00:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
5.1.2009 | 13:39
Sýning á fjörusteinum og öðru grjóti í Hamraborg á Ísafirði.
Hann Júlli minn er að halda þriðju sýningu sína, núna í Hamraborg á Ísafirði. Ég skrapp og tók nokkrar myndir. Hann er sífellt að þróast betur og meira sem listamaður.
Hamraborg á Ísafirði.
Sýningin er stílhrein og einföld en falleg.
Þessir smáfiskar eru mjög skemmtilegir.
Hann er líka með næmt auga fyrir lögun grjótsins í fjörunni, þessi er með náttúrlega sniðið hjarta eins og sjá má.
Plattar.
Fiskarnir eru líka í góðri þróun hjá honum.
Þetta eru örugglega góðar gjafir fyrir sjómenn.
Blómin hans eru líka falleg.
Steinblóm fjölna ekki.
Ég mæli með að fólk kíki við í Hamraborg og skoði þessar fallegu steinamyndir hans.
Ég ætlaði að segja inn myndir af litlu stelpunum mínum, en bíð með það aðeins. Ætla að helga Júlla mínum þessa færslu. Hann hefur lagt nótt við dag undanfarið við að búa til steinlistaverk. Ég er mjög stolt af honum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
4.1.2009 | 15:37
Sunnudagur og nýjasta hártískan ala Hanna Sól.
Sunnudagur og löng helgi að baki. Ég er orðin bráðlöt og búin að snúa sólarhringnum við. En á morgun hefst hið daglega líf á ný.
Veitir ef til vill ekki af smá sykursjokki hehehehe...
Prinsessan komin í nýjan kjól.
Svo er skálað við Tinnu frænku í ávaxtatei með hunangi nammi namm.
Fallegu óléttu tengdadæturnar mínar komu í heimsókn.
Og Hanna Sól búin að hasla sér völl í hárgreiðslugeiranum. Þetta er hárgreiðslan árið 2009 ekki spurning.
Stíllin hreinn og mikið í lagt, veitir ekki af í drunganum sem þyrmir yfir landsmenn, þessi hargreiðsla vekur gleði.
Mamma kveður á morgun, það verður sorg í ýmsum hjörtum og sinni. En í dag er í dag, þær eru í sundi og ætla að eyða deginum í gleði og fyrst og fremst saman.
Veðrið í dag er gott eins og sjá má. Og birtan eykst dag frá degi, eitt hænuskréf í einu.
Og þegar geislar sólar ná niður að Sólgötu á Ísafirði, drekkum við sólarkaffi sem er í flestum tilvikum pönnukökur og rjómi.
Ég óska ykkur góðs dags og vona að ykkur líði öllum vel. Eftir daginn í dag tökum við svo til við daglegt líf, og nóg er að vinna og gera. Fyrst og fremst þarf að sinna sínum nánustu, síðan er að reyna að stilla saman strengina í mótmælum, til að vinna að rettlátu og skynsamlegu Nýja Íslandi. Mér finnst sífellt feiri taka í sama strenginn, þó reynt sé á allan hátt að tala mótmælendur niður, týna til allt sem neikvætt er, gera jafnvel neikvætt úr góðum hlutum, eins og til dæmis með þessa litlu átta ára stúlku sem bað sjálf um að fá að tala á Austurvelli. Ástæðan var, jú hún er bara átta ára. Segir ekki að við eigum öll sama rétt án tillits til aldurs, kyns eða litarháttar? Ég held nú það. Á þá að útiloka líka fólk eldra en 70 ára af því að það á ekki að plata gamalt fólk? Hvar liggja mörkin? Eða á ekki að leyfa þroskaheftum einstakling að tala, því hann hefur ekki vit á hlutunum ? Eg þekki þroskahefta einstalinga sem hafa sko aldeilis góða sýn á menn og málefni. Það hafa börn líka, þau hafa sína sýn og sinn skilning. Af hverju mega þau ekki tjá sig? Nei fólk ætti aðeins að hugsa sig um.
P.S: sá þessa færslu eftir að ég skrifaði þetta:
http://gretare.blog.is/blog/gretare/entry/761313/Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
3.1.2009 | 19:46
Mótmæli líka á Ísafirði.
Loksins kom að því að hér voru líka mótmæli. Ég vissi að vísu ekki af þeim fyrr en seint, rétt missti af innleggi hér á minni eigin heimasíðu, sem sést á því að innleggið er komið inn meðan ég er að svara öðrum. En ég náði sem sagt að komast til að taka þátt. Var í sundi á Suðureyri þegar ég frétti af þessu.
Það voru einhverjir farnir þegar ég kom, en það var mikill hugur í mönnum.
Og það verður örugglega fjölmennara næst. Takk fyrir þetta!!!
Já ég er rosalega ánægð með þetta.
Og hér skirrist útvarpið ekki við að mæta á staðinn.
Lýst vel á þetta helvítis fokking fokk hehehehe...
Síðan lá leið okkar í Gamla bakaríið þar er alltaf sama góða meðlætið.
Vinkona mín Ruth Tryggvason stendur ennþá vaktina meira að segja á laugardögum.
Hér er góða álfkonan, álfar og huldufólk fara á stjá á þrettándanum eins og allir vita.
En sumir eru endalaust að bardúsa.
Hér reynir hún að bera þrjár appelsín flöskur hehehe...
Eins og sést var veðrið yndislegt á Ísafirði í dag.
Polluriinn stendur alltaf fyrir sínu.
Að lokum, það er notalegt að lesa inn í skápnum hjá ömmu.
En eigið gott kvöld elskurnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 4
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 41
- Frá upphafi: 2023310
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar