Ýmislegt frá Forchteinstein

Það er smávandamál fyrir mig að komast í tölvuna mína, því ég á tvær litlar prinsessur sem vilja endalaust fá að horfa á myndir, og það er eiginlega best að horfa á þær í ömmutölvu.  Og vitaskuld geri ég allt fyrir þessar elskur. 

En nú tókst mér að hertaka tölvuna mína þegar þær áttu að fara í svefnin.  Og þá fæst smá næði til að heimsækja bloggheima Smile

Við höfum átt góðá helgi.  Við mæðgurnar ákváðum að lita á okkur hárið saman, gerðum það á föstudagskvöldinu þegar þær litlu voru farnar í svefninn og strákarnir í hesthúsinu. Settumst með rauðvín inn á bað og Bára mín sá um litunina á okkur báðum, ég var mjög ánægð með útkomuna.  Áttum yndislegt stelpukvöld inn á baði við að gera okkur sætar, líka með að lita augnabrúnir.

Á fimmtudaginn hafði mamma stelpanna líka lofað þeim að ef þær yrðu góðar, myndi hún fara með þær og láta gera göt í eyrun.  Það hafði verið lengi á döfinni.  Ég lét gera göt í mín eyru þegar ég var um tvítugt, vinkona mín Ranný Páls gerði þetta með stoppinál.  Svo það var ferkar óhefðbundið, enda ekki mikið um val við svona aðgerðir í þá daga.  En semsagt ég hef verið frekar löt við að setja í mig eyrnalokka undanfarin ár, svo það var að mestu gróið fyrir götin hjá mér, og þegar við komum til læknisins, já það er gert hér hjá lækni, ákvað ég að láta slag standa og láta gera aftur göt í eyrun mín.  Við vorum sem sagt þrjár ég Hanna Sól og Ásthildur sem fengum göt í eyrun þennan dag, og þessa líka fínu eyrnarlokka.

IMG_8723

Við vorum ekkert smá ánægðar stelpurnar þegar við komum heim með þessa fínu eyrnarlokka.

IMG_8724

Það þurfti heilmikið að skoða í spegli og svona.

En þær voru rosalega duglegar því þetta var sárt í byrjun,  Ásthildur fékk tár í augun, en lét sig hafa að fá í hitt eyrað líka, sama með Hönnu Sól, mamma hennar bauð henni hvort hún vildi setja í hitt eyrað líka, já stundi hún. Ég var rosalega hreykinn af þeim báðum.  Þetta er sennilega sama og með barnsfæðingar, þess vegna eru strákar líka bara með eitt gat fyrir eyrnalokk LoL

IMG_8722

 Ásthildur hreykin að sýna pabba eyrnalokkinn sinn. 

IMG_8725

Hér eru Púbbsý og Carlos, þeim gæti ekki verið meira sama um eyrnalokka LoL

IMG_8726

En þeir elska stelpurnar okkar. Heart

IMG_8727

Ásthildur hefur haldið nokkra konserta og hún er frábær.  Hér hlusta þær á hljómdiska sem innihalda um 100 barnalög frá Íslandi, og um daginn ákvað hún sækja gítarinn og reyna að spila með, en fann strax að það var ekki samhljómur svo hún hætti við.  Þetta er því lík næmni og eyra fyrir músik af svona litlu barni að ég varð hálf klumsa.  en ég er ákveðin í að reyna að taka upp konsert til að sanna þetta.  Hún verður rosalegal flott þegar hún fer að læra af alvöru.

IMG_8730

En hún er ekki bara músikant heldur líka algjör prímadonna, flott og æðisleg.

IMG_8731

Sjá þetta litla dýr, hvernig hún notar líkaman sinn.

IMG_8733

En hér er vorið komið, mánuði of snemma segir fólkið hér.  Íkornarnir komnir á kreik og blómin farin að spretta, akrarnir orðnir grænir, en fólkið segir það á eftir að bæði kólna og snjóa, hér byrjar vorið ekki fyrr en í endaðan febrúar, svo þetta er allt of snemmt.

IMG_8734

En það er ósköp nota legt að fá svona forvor fyrir mig. komin úr dimmunni heima og upplifi vor númer eitt.

IMG_8735

Stelpurnar mínar þrjár að skoða bloggið hennar ömmu LoL

IMG_8737

Og hér er Hanna Sól að leika sér á Leikjaneti og amma að lesa bloggið. 

Á morgun ætla ég að setja inn myndir af heimsókn vinkonu minnar hingað frá Vín Christínu Gobbi og ýmislegt fleira.  En nú er komið að svefntíma. því ég þarf að vakna afar snemma í fyrramálið, því mín bíður að vekja litlar yndislegar stelpur, koma þeim í skóla og leikskóla og fara síðan í hestamennskuna.   En þá gefst líka tími þar á eftir til að sinna netinu.  Egið góðar stundir þangað tilHeart


Myndir hitt og þetta.

Það gengur vel með hestana, þetta er bara gaman og gott fyrir mig að eiga við eitthvað svona alveg öðruvísi en ég er vön..  Við vorum með hesta í mörg ár þegar við vorum yngri, þaðan fékk dóttir mín bakteríuna.

IMG_8566

Hér er Birta hún er vön og á að fara á sýningu núna í vor.

IMG_8578

Eins og sjá má er Trölli voða duglegur að hjálpa mér og halda þeim við efnið.

IMG_8583

Þá er það karldýrið í hópnum, Strútur, hann er ekki eins léttur á fæti og merarnar.  En fallegt hross.

IMG_8589

Hann er eins og karlarnir reyna að gera sér allt sem best. Wink Án þess að þurfa að hafa mikið fyrir því.

IMG_8605

Hér er held ég Hnota, hún er ung en afar nett og snögg.

IMG_8619

Með fallega fótalyftingu.

IMG_8628

Hér er Vígdís.  Hún er afskaplega fallega byggð og skemmtilegur karakter.

IMG_8646

Hér er svo Björt hún er líka skemmtileg.  Ég var búin að gleyma hvað það hjálpar sálinni að vera innan um svona yndisleg dýr.  Gott fyrir sálina mína.

IMG_8655

Björt falleg, maður er bara eins og alvöru próLoL

IMG_8665

Svo er gott að setjast niður eftir velheppnaða vinnu og fá sér í gogginn.

IMG_8669

Fallega stelpan mín. Heart

IMG_8671

Snjórinn er farin hérna og fínt veður dag eftir dag, en börnin á leikskólanum eru ekki látin fara út að leika sér, því foreldrarnir vilja ekki fá þau skítug heim.  Svo litla krýlið mitt verður að vera inni allan daginn, svo fer hún út í garð heima hjá sér, klifrar í trjánum við skólann foreldrum til hrellingar og fær að leika sér smá í leiktækjunum þegar amma sækir hana.

IMG_8674

Hér er mamma að skipta um umbúðir á Trölla hann tábrotnaði nefnilega um daginn þegar hann kom of nálægt einni merinni og hún sté ofan á hann.

IMG_8522

Það er svo ósköp notalegt að horfa á eina mynd eða svo fyrir matinn.

 

IMG_8525

Þær eru svo glaðar þessar elskur.

IMG_8541

Á morgnana aftur á móti vöknum við kl. 6 og þá þarf að spila, borða morgunmat og klæða sig og greiða.  Þetta er nýjasta uppáhaldið í spilamennskunni heitir Memory, en svo er Svarti Pétur líka alveg brillians.

IMG_8539

Hér eru kostgangararnir og húsbóndinn, þetta eru kraftalegir járningamenn og nemar líka, einn frá Íslandi, annar frá Þýskalandi og sá þriðji frá Austurríki.

IMG_8678

Þessi eru ekki járningamenn ekki heldur járnsmiðir, heldur heimiliskettirnir Carlos og Lille fee.

IMG_8690

Og hér er prílað í skólanum.

IMG_8698

Svo rennir maður sér niður, þetta virðist vera vinsælt tæki ef marka má þá örfáu krakka sem mömmurnar leyfa að leika sér eftir leikskólatímann.

IMG_8701

Og klifrað í trjám. 

IMG_8705

Hér hangir letidýrið, eins og í sögunni um Dóru.  En börn hér virðast vera ofvernduð, mikið dúðuð og mega ekki klifra eða leika sér nema í barnatækjum.  Þá koma mömmurnar hlaupandi og taka þau niður eins og einn ætlaði að elta Ásthildi upp í tréð en fékk ekki.  Mér er sagt að þau séu oft veik, mömmurnar eru mjög oft heimavinnandi og eru mest í því að ala börnin upp.  Ef til vill vantar hingað feminista til að kenna þeim svolítið sjálfstæði.

IMG_8706

Ein vinkona kom heim með Hönnu Sól eftir skólann, hér eru þær að vinna heimavinnuna, það eru tvær þrjár blaðsíður af reikningi, tvær eða fleir síður til að lesa, svo þarf að læra skák, en það er aukalega.  Mikill heimalærdómur fyrir 6 ára barn.  En yfirleitt lærir hún á skóladagheimilinu þar sem hún er til kl. fjögur á daginn.

Þetta er Lara.

IMG_8708

Vinur Ásthildur kom svo líka í heimsókn Dini eða hvernig sem það er skrifað.  Þau léku sér vel saman.

IMG_8710

Það endað með að þau voru orðin sex krakkarnir í húsinu LoL Því nágrannarnir komu líka þau Jasmin og Daníel. Ég fór svo í gönguferð með stelpurnar.

IMG_8711

Eins og sjá má er ekki langt í vorið hérna.

IMG_8716

H'er erum við komnar út í skóg.

IMG_8718

Lara klöngraðist með þennan stein alla gönguferðina, hún er hrifin af steinum, hér eru hún og Jasmin að hreinsa steininn.  Hér var eikarskógur, en mennirnir hjuggu hann niður, og upp óx beykiskógur, en nú má sjá merki um að eikin er að koma upp aftur, svo sennilega mun hún eyða beykinu eftir 20 ár eða svo, munurinn á þessum tveim trjátegundum er að beykið er svo ljóst og gefur birtu niður í botnin, það gerir eikin hins vegar ekki, það væri því synd ef allar alpafjólurnar og prímúlurnar myndu hverfa, og svo berin, hrútaber, jarðarber og brómber og bláber.

IMG_8720

Hér var Trölli að grafa og þær skoða hvað varð þess valdandi, þarf reyndar ekki, því hann er alveg óður að grafa ef hann fær færi á því. Wink

Vona að þið njótið myndanna.  Eigið góðan dag.  kveðja frá Austurríki.


Jón Gnarr með myndum og grein.

Eins og ég minntist á í fyrradag þá birtist grein um Jón Gnarr borgarstjóra í blaði atvinnlausra hér.  Greinina kann ég ekki að lesa, en skilst að það sé góðlátlegt grín, en samt með virðingu fyrir nýjum kafla í pólitík.  En hér er Gnarrinn, eða Narrinn.

Jón Gnarr1

Inn í blaðinu var svo heilsíðugrein um hann. 

Jón Gnraa2

 Hér er viðtalið.

Jón Gnraa2

Hér er svo myndin inn í blaðinu.  Ef til vill kemur siðabótin og nýbreytnin frá okkur íslendingum eftir allt saman.  LoL


Smá saga um aupair í Austurríki.

Jæja þá er fyrsta degi lokið sem aupair í Austurríki.  Nú liggur ljóst fyrir í hverju það felst.  Ég vakna kl. hálf sex þ.e. á íslenskum tíma hálf fjögur með litlu skvísunum mínum, það þarf að vekja þær klæða og gefa að borða og koma þeim í skólann.   Já sagði dóttir mín, svo förum við út í hesthús.... Ha sagði ég, förum við út í hesthús??? já, það er best að fara beint frá skólanum út í hesthús.  Eins gott að hún sagði það  það hafði einhvernveginn farið fram hjá mér að ég ætti að fara þangaðW00t

Fyrst að fara niður allar bröttu brekkurnar sem ég hafði óttast svo mjög, það var reyndar allt í lagi með þær enda er ég vanur bílstjóri og vön að aka í hálku, sem reyndar var ekki staðreyndin í morgun. Svo var stelpunum skilað í skóla og leikskóla.

Svo lá leið mín út í hesthús þar sem þarf að þjálfa fimm hross, þ.e. láta þau brokka og valhoppa í skemmu, gefa þeim brauð og koma út í gerði. 

 Svo er að koma heim, ef tími er til kíkja á bloggið og svo þarf að sækja litlu skvísuna mína sem vill helst ekki fara í leikskólann svona eftir jólafríið.  Ekki gott að komast á netið eftir það, því hún þarf að horfa á DDDDóru eða eitthvert annað myndband Woundering Svo þarf að sækja skóladömuna um fjögurleytið.  'Eg er samt ekki að kvarta því mér finnst þetta frábært.  Ætlaði ég ekki að breyta algjörlega til???

Hér eru komnir tveir kostgangangara, einn þýskur og annar austurrískur sem eru í skólanum með Bjarka, svo það þarf að sýna vissa útsjónarsemi við eldamennskuna.   En ég er sem betur fer vön því síðan í árdaga þegar við Elli minn vorum að byrja að búa með ekkert milli handa. 

Það var dálítið hrollvekjandi í morgun að þurfa að byrja á að aka bílnum niður þessar rosabrekkur, en dóttir mín var alveg ákveðin mamma þú ekur..... ókey hugsaði ég þetta er nú bara hérna niður stóru brekkuna og leikskólinn og skólinn bara rétt fyrir neðan.  Svo þegar við höfðum skilað stelpunum okkar, sá ég mér til hryllings að dóttir mín gekk einbeittum skrefum beint á farþegasætið... á ég að aka??? alla leið út í hesthús... spurði ég og vonaði að hún hefði bara gleymt sér smá.... Já mamma þú ekur.

Þar fór það, ókey ég vildi ekki vera chicken og ákvað að láta sem ekkert væri, ég er auðvitað vön að aka allskonar bílum, en við þurftum að aka gegnum MattersburgUndecided

Mér tókst þetta þokkalega, nema dóttir mín ætlaði að deyja úr hlátri þegar ég var komin í fjórða gír, en pústið er bilað á bílnum, svo það er erfitt að hlustá á vélina....InLove Hún ætlaði að benda mér vinsamlegast á að ég væri í fjórða gír á 50 km. hraða, og ég setti hann umsvifalaust í fimmta gír Blush

Dóttir mín dó hreinlega úr hlátri.  En það er nefnilega þannig að maður þarf smá tíma til að þekkja bíl og sér í lagi ef hann er ekki með hljóðkút. 

Við komumst svo klakklaust út í hesthúsið, og svo var byrjað á Birtu fyrsta hrossinu, ég náttúrlega búin að gleyma öllu um hesta og beisli og þvíumlíkt.  Vonaði svona innst inni að við ætluðum bara að þjálfa þetta eina hross Crying

En annað kom á daginn, næst var það Strútur hann er með háls eins og strútur, karlinn í þessu hrossasamfélagi,  hann var þungur á bárunni, en flottur samt.  Ég hugsaði með mér, af því dóttir mín sagðí mér að hin væru tryppin að sennileg myndi ég sleppa við að láta þau hlaupa.  En nei mér varð ljóst að hér voru enginn undarbrögð, ég þyrfti að þjálfa öll fimm hrossin, láta þau brokka og stökkva fimmtíu hringi og halda þeim við efnið.  Allt var farið að hringsnúast í hausnum á mér, eftir hross númer tvö, en só be it, ekki ætlaði ég að gefast upp. 

Dóttir mín ætlar að koma með mér aftur á morgun og ég lofa að taka myndavélina með og sýna ykkur hvernig ég tek þetta með Western style LoL

Ég get svo svarið það, mín er komin á fullt í ævintýri sem ég veit ekki hvernig endar, en er það ekki bara amen á eftir efninu???  Held það bara.  Eg er allavega á lífi og að takast á við eitthvað annað en heima hjá mér.  Við höfum sennilega öll gott af að rífa okkur upp á rassinum og treysta á guð og lukkuna, lifa er það ekki sem þetta allt snýst um?
Eigið gott kvöld, það er komin tími á mig enda klukkan orðin margt hér í Austurríki. Heart Og allir sofnaðir nema ér.


Jón Gnarr - ein Narr?

Jamm í Austurríki er gefið út blað sérstaklega fyrir atvinnulausa, þeir selja svo blaðið og fá hluta af innkomunni, í morgun þegar við dóttir mín fórum í SparO stóð ungur laglegur dökkur og afar vingjarlegur maður fyrir utan verslunina og vildi selja okkur eintak.  Og jú þegar við skoðum blaðið nánar kom í ljós að Borgarstjórinn okkar grínaktugi var á flennimynd á forsíðunni með hundinn sinn væntanlega.  Ég ætla inn í blaðinu er svo grein um Jón og þá nýjung sem verið er að gera á Íslandi með nýja pólitík.  Ég ætla að skanna þessar myndir og inntakið í greininni og setja hér inn, ekki á morgun heldur hinn. 

Þetta var afskaplega skemmtileg uppákoma.  En þetta sem er heitið á blogginu Stendur þar;

Die Welt schaut nach Reykjavík.   Jón Gnarr, ein Narr? LoL

Svona í framhaldi er ég ekki frá því að hundurinn líkist svolítið Óttari Proppé LoL


Prinsessumyndir.

Já ÞÁ Er komið að nokkrum prinsessumyndum. Ég hef komist að því að það lesa allskonar þjóðerni bloggið mitt, fólk sem ekki skilur tungumálið er skoðar myndirnar og fylgist með.  Það er voða gaman að uppgötva svoleiðis. 

IMG_8499

Hér eru ketlingarnir á heimilinu Púbsý, Carlos og Lille Fee.  Þau eru rosaleg krútt.

IMG_8500

Þeim líður vel svona í hóp, en svo eru þau líka upp um allt og út um allt.  Þau voru svo pínulítil þegar þau komu misstu móður sína rétt eftir fæðingu svo dýralæknisneminn var fengin til að taka þá að sér.

 

 

 

 

 

IMG_8501

Hér er Carlos að tékka á rauðvíni, auðvitað Blau Frankies

IMG_8502

Í gær var dagur lúðrasveitar bæjarins, þeir komu og spiluðu fyrir framan öll húsin og fengu pening fyrir, það er þeirra fjárfesting.

IMG_8504

Ég var auðvitað að tala um prinsessumyndir hér er ein glæsileg.

IMG_8505

Flott bæði Púbsý og Hanna Sól.

IMG_8506

En Öskubuska litla var ekkert á því að láta mynda sig prakkarinn sá arna.

IMG_8507

Það var hlaupið horna á milli. LoL

IMG_8510

Hlaupi hlaupi hlaupi.....

IMG_8512

Hún er alveg sami grallarinn og hún hefur alltaf verið þessi elska.

IMG_8513

Svo er Hanna Sólin orðin svo mikil dama.

IMG_8514

Svo má setjast niður og horfa á eina mynd eða svo.

IMG_8515

 

Stundum rífst maður líka eða stríðir stóru systur.

IMG_8516

En oftast eru þær bestu vinir.Heart

IMG_8517

Hanna Sól er orðin nokkuð lunkin í að leggja kapal í ömmutölvu.

IMG_8521

Hér er verið að gefa ömmu kaffi og kökur.

vínarferð 048

Hér er líka nýtísku leirmyndavél.

vínarferð 052

Og hér er mynd síðan í gær, Ásthildur klappar Carlosi.

vínarferð 061

Sú stutta er vel liðtæk á hljómborðið líka. 

IMG_8520

Hér er svo mamman í smápásu frá próflestrinum og nýtur sín vel með kisunum sínum. Heart

Thats all for now my darlings. Hér er klukkan 17.19. og löngu orðið dimmt.  Austurríkismenn eru ekkert sérstaklega hrifnir af flýtingu klukkunnar hér er orðið albjart kl. hálf fimm á morgnana og aldimmt um hálf fjögur þegar þeir sækja börnin á leikskólann.   Ég held að við ættum aðeins að hugsa það mál betur. 

 

 


Er ekki komið nóg?

Ég er búin að vera að lesa bloggið núna undanfarið og er alveg undrandi á því hvernig evrópusinnar eru sannfærðir um ágæti þess að fara inn í esb.  Það er svo margt sem mælir á móti því og þeir sem hugsa sjálfstætt sjá það með berum augum.  Samt sem áður koma þessi kjánar og hamra á ágæti þess að fara inn í sambandið þótt öll merki séu um það að það sé algjört glapræði.  Ég hef áhyggjur af því að Samfylkingin sem mælist nú með mjög lítið fylgi sé að pota okkur nauðugum og óviljugum inn í þetta svarthol.  Það er eitthvað mikið að þegar fámennur hópur hrópara og leigupenna reyna að koma því á framfæri að við viljum endilega komast inn í esb skrifað viljandi með litlum staf. Það er líka alveg ótrúlegt á þessum tímum uppgjörs og krýsu í þjóðarsálinni að forsætisráðherra og hennar tindátar vilji endilega kjúfa þjóðína í herðar niður með þessu gæluverkefni sínu.  Annað hvort þekkja  þau ekki sinn vitjunartima eða þeim er fjandan sama, því þau hafa nú þegar sett sér að koma okkur inn í þessa svikamillu, sennileg að mínu mati með mútum frá sambandinu.  Að mínu mati hefur þeim verið lofað einhverskonar embættum eða dúsum til að vinna að þessu óheillaráði. 

Mest kemur mér á óvart að þau skuli komast svona langt með þessi svikráð við þjóðina, þegar ljóst er að meirihluti hennar er algjörlega á móti aðild.

Það er von að fólk spyrji sig hvar er stjórnarandstaðan, hvað eru þau að hugsa og hvernig má það vera að ekkert er gert til að koma þessu svikapakki burtu?

Við almennir borgarar eru búin að fá upp í kok af ríkisstjórninni, það eru tunnumótmæli, það eru allskonar mótmæli á netinu og það eru umræður í eldhúsum og vinnustöðum sem sýna að fólk vill breytingar. 

Ég er ein þeirra sem vill fá utanþingsstjórn, ég vil losna við Jóhönnu Sigurðardóttur, Steingrím J. Sigfússon, Össur Skarphéðinsson og þau öll sem sitja þarna vonlaus og vitlaus að mínu mati. 

Ég vil skora á forseta vorn að taka af skarið og stöðva nú þegar andvana ríkisstjórn og setja á fót utanþingsstjórn skipaða færu fólki sem kann að reka fyrirtæki og er óháð pólitík. 

Oft var þörf en nú er nauðsyn.  Hingað og ekki lengra þetta er komið nóg af lygum, falsi, feluleikjum og einræði. 

 


Myndir frá Asturríki.

 

Það er ágætt að vera aðeins í fjarlægð frá ástandinu heima.  Setur það í víðara samhengi og maður sér betur hve illa sett við erum, og hvað forystumenn okkar eru spilltir og veruleika fylltir.  Vonandi

fer þessu að ljúka, ég mæli með Utanþingsstjórn, við ættum að sameinast um að krefja forsetan okkar um að leysa þennan hnút sem komin er.  Það eru í raun og veru ekki margir sem ekki sjá að þetta stjórnarsamstarf er búið. Ef Lilja og þau sem með henni eru standa fast á sínu, og ég tala nú ekki um ef Guðfríður Lilja setndur með þeim þegar hún kemur út barneignafríi, þá er stjórnin fallinn.  En það er ekki bara það, heldur hafa þau sem betur fer að mínu mati stillt félögum sínum í VG upp við vegg með umsóknina að ESBaðild.  Á bak við sig þar hafa þau samþykkt fundar Vinstri grænna.  Og þar sem þau hafa líka grassótina með sér að því er virðist, auk loforða fyrir kosningar, þá sé ég ekki hvernig forysta VG ætlar að snúa sig út úr því dæmi.  Ég er líka alveg með það áhreinu að forysta Samfylkingarinnar getur ekki hætt við umsóknina, af því að þar hefur allt verið sett undir af þvílíku offorsi að annað eins hefur ekki sést, allt lagt í sölurnar það má svo spyrja sig FYRIR HVAÐ?

En nóg um þetta ég ætla að setja hér inn nokkrar myndir.

IMG_8438 (2)

Við gistum hjá systur Ella Sigrúnu áður en ég hélt út, hér erum við á huggusnakki í eldhúsinu dætur hennar og barnabarn og ég.

IMG_8439 (2)

 Ég stoppaði reyndar stutt við komum seinnipart dags 2.jan og ég fór út kl. 7 morguninn eftir.

IMG_8441 (2)

Svona björgum við heiminum konurnar, með skrafi í eldhúsinuLoL

IMG_8445 (2)

Þa' var skrýtið að horfa niður yfir Danmörku og reyndar allri Evrópu hún var hvít af snjó, en ég hafði farið úr snjólausu Íslandi.

IMG_8447 (2)

Því miður voru rúðurnar í flugvélinni hélaðar svo það sést ekki eins vel.

 

IMG_8450 (2)

Ömmu var svo vel fagnað, og hér erum við komnar heim í litla þorpið.  Það komu nokkrar videomyndir með frá Íslandi.

IMG_8452 (2)

Litli tónlistamaðurinn.  Hanna Sól er að læra á píanó og það varð að kaupa hljómborð fyrir hana, þá sagði sú stutta mamma ég vil fá gítar, og svo heldur hún hljómleika alveg rosalega flotta.

IMG_8451 (2)

Og ekki einn falskur tónn hjá henni.Heart

IMG_8453 (2)

Pabbi spilar svarta Pétur við Hönnu Sól.

IMG_8454 (2)

Sá sem tapar gerir fimm armbeygjurLoL

IMG_8455 (2)

Eins og sjá má er snjór hér ennþá, en veðrið er afar gott núna blanka logn og hlýtt, það fer að vora hér.

IMG_8456 (2)

Höllin er hér ennþá, jafn glæsileg og fyrr. Á Rosalie drottningunni vondu hefur ekkert borið á síðan byggð var kapellann á Rosalie hæðinni og beinin hennar flutt þangað.  Síðan hefur hún þagað kerlingarálftin.

IMG_8457 (2)

Við Hanna Sól fórum í göngutúr í fyrradag upp í skóginn.

IMG_8459 (2)

Hér sést vel hallinn á veginum upp að húsinu okkar, en skólinn er alveg niður í dalnum.

IMG_8460 (2)

Við ætluðum að setjast niður en það var snjór yfir öllu.

IMG_8461 (2)

Svo þurfti aðeins að klifra í gróðrinum.

IMG_8465 (2)

Og leggjast á jörðina.

IMG_8466 (2)

Þetta fjall er eins og það hafi verið skorin sneið af því, eins og kökusneið.

IMG_8469 (2)

Hanna Sól spilaði fyrir ömmu á píanettuna, hún er voða dugleg með fingrasetningarnar.

IMG_8470 (2)

Það má ekki trufla mig segir Ásthildur ég þarf að læra.... Ég skal hjálpa þér segir Hanna Sól.

IMG_8471 (2)

Jamm þetta gengur bara vel.

IMG_8472 (2)

Þegar áhuginn er fyrir hendi þá gengur allt vel.

IMG_8473 (2)

Hélt einhver að hún hefði gleymt einhverju?Cool

IMG_8475 (2)

Alltaf jafn sæt.  En amma það skiptir ekki máli hvort maður er fallegur, það skiptir máli að vera góður segir hún. Heart

IMG_8478 (2)

Að hlaupa og leika sér.

IMG_8480 (2)

Ég leit reyndar af henni augnablik um daginn og þá náði hún í lit InLove

IMG_8481 (2)

Já það er yndælt að vera hjá þeim aftur litlu skottunum mínum.  En það verður meira síðar.

Eigið góðan dag. Heart


Á ferð og flugi.

Þá er maður búin að svissa yfir algjörlega, nú er ég orðin Aupair í Austurríki.  Reyndar bara í mánuð, en það er afar notalelgt að knúsa litlu skvísurnar mínar meðan pabbi þeirra og mamma mennta sig.  Lokaprófin hjá dóttur minni eru í endaðan janúar.  Það var skrýtið að fljúga yfir Evrópu farandi frá Íslandi næstum marauðu og fljúga svo yfir endalaust hvíta Evrópu, í Danmörku voru vötn og sjór ísiþakin. 

Ég millilenti í Kaupmannahöfn ef bara þrjá klukkutíma, svo tími gafst ekki til að boða vini og vandamenn á hitting á Kastrup hvað þá fara inn í bæ í heimsóknir.  Það var síðan hálftíma töf hjá flugfélaginu Berlin air, af því að í miðju kafi þurftu starfsmenn á flugvellinum hleðslumenn og slíkir að mæta á fund hjá stéttarfélaginu.  Því miður sagði flugstjórinn, við erum að vísu öll komin um borð en málið er að engar töskur og farangur eru komnar um borð vegna fundarhalda hleðslumanna.  Hálftíma síðar sagði hann, nú eru töskurnar komnar umborð en við verðum að bíða eftir dráttarbílnum til að koma okkur frá útganginum.  Sé í anda okkar menn heima haga sér svona.....

En ég mun senda ykkur myndir af stelpunum okkar og svona.  Það er ágætt að komast svona í sólina, þó hér sé reyndar meiri snjór en heima, og meira frost, þá er sólin á sínum stað. 

Mér líður vel og allt í blóma hjá mér.  Það er nefnilega þannig hvað sem Eiður Guðnason segir, sá mæti maður að mér líður yfirleitt vel og er í jafnvægi.  Það er hans kjánaskapur og veikleiki að geta ekki tekið málefnalegri gagnrýni og loka á raddir sem eru ekki honum sammála.  En er þetta ekki einmitt pólitíkin í hnotskurn.  Hvorki Jóhanna né Steingrímur þola minnstu gagnrýni og vilja þagga niður slíkar raddir. 

Sem sagt þegar ég er búin að koma mér betur fyrir, mun ég sýna ykkur myndir og segja ykkur frá því sem fyrir ber.   Amman hér stóð út í dyrum þegar ég kom, og fagnaði mér ákaflega.  Þessi flotta kona sem fylgir húsinu, hér er sem sé ekki verið að hrekja fólk út á gaddinn þó eigandinn missi húsið sitt þá er ekki hróflað við foreldrunum, þau fá að vera í kjallaranum eins lengi og þau geta heilsu sinnar verið, nokkuð sem við mættum taka upp. 


Eiður Guðnason.

 

Maður er  nefndur Eiður Guðnason.   Hann setti inn á bloggið sitt háðglósur um að Lilja Mósesdóttir hafi verið kjörin maður ársins á Útvarpi Sögu. Ég átti í nokkru orðaskaki við þann ágæta mann, og þegar ég ætlaði að svara síðasta innleggi hans, þá kom á skjáinn: þú hefur ekki leyfi til að setja innlegg hér, eða eitthvað slíkt.

Ágæti Eiður þar sem þú talar svo mikið um mikilvægi þess að geta sagt að sem þér býr í brjósti, þá finnst mér að það gildi líka um mig.  Og þar sem þú hefur nú lokað á mig og mín svör, birti ég þau hér.  Áhugasamir lesendur geta kynnt sér þetta með því að fara inn á bloggið hans og lesa það Hér;http://esgesg.blog.is/blog/esgesg/

  

"Rétt , Sigðurður. Ég þarf ekki að kaupa  mér vináttu  eða  gera öðrum til hæfis  fyrir  borgun. Það hafa að vísu verið sendir  á mig lögfræðingar (Fjölskylduhjálpin ehf)  og konunni minni hefur verið hótað (Arnþrúður Karlsdóttir, Útvarpi Sögu), en það er  mikilvægt að geta sagt það sem manni í brjósti býr. Það mun ég halda áfram að gera."

Auðvitað geturðu sagt það sem þér býr í brjósti, ég hef líka fengið á mig málshöfðanir m.a. frá Útvarpi Sögu og Jónínu Ben.  En þú verður þá líka að kunna sjálfur að taka gagnrýni.  Að mínu mati eru allir jafnir fyrir lögum og fæddir með sama rétt.  Það er svo langur vegur frá að það sé tilfellið, og ég þekki það á eigin skinni hvernig elítan fer með þá sem minna mega sín.  

Þú hefur fengið þinn hluta af smjörkökunni og því eru gerðar meiri kröfur til þín en okkar sem standa á gólfinu, eðlilega þeir sem fleyta rjóman verða að taka því að þeir séu gagnrýndir. Og óþarfi að væla yfir því.  

Ég hef líka orðið fyrir því að verða fyrir ýmsum óþægindum vegna minna skoðana á ýmsum málum. Af því að ég kem alltaf fram undir nafni. 

Þetta segi ég af því að þú varst að hnýta í nafnleysi.  Það er nefnilega þannig því miður að sumt er ekki hægt að segja frjálst, hvorki nú né áður.  Þess vegna er nauðsynlegt að fólk geti tjáð sig nafnlaust.  Það hefur ekkert með einstaklingin að gera undir nafni eða nafnlaus, ef um málefnalega umræðu er að ræða.  

Ég þekki þetta afskaplega vel hótanir um brottrekstur ef menn voga sér að halla á sína yfirmenn, eða ætla sér í framboð eða bara segja það sem þeim finnst.  Sumir einfaldlega geta það ekki undir nafni.   Þannig er Ísland í dag.

Óska þér annars og þínum lesendum gleðilegs árs og friðar. 

 

P.S. mér finnst það afskaplega skrýtið að menn sem gaspra um frelsi til að tjá sig, stoppa svo ákveðna viðræðumenn af því að þeim líkar ekki svörin. En er þetta ekki bara Samfylkingin í hnotskurn? Spyr sú sem ekki veit.

IMG_3728


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Jan. 2011
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023333

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband