23.1.2009 | 20:00
Bara hreint úr úr mínu öskurreiða hjarta.
Ég vil byrja þennan pistil minn á fleygum orðum; kirkjugarðarnir eru fullir af ómissandi fólki. Þá er ég ekki að vísa til veikinda Geirs og Ingibjargar. Heldur einungis að minna fólk á að maður á ekki að persónugera vandann.
Ég er satt að segja alveg gáttuð, ég er fyrst og fremst gáttuð á því hve þykk hljóðhimnan virðist vera á stjórnmálamönnum ÖLLUM, og stjórnmálafræðingum, fréttamönnum og öllu heila valdaklabbinu í þessu þjóðfélagi.
Þið hafið greinilega ekkert hlustað, ekkert heyrt eða viljið ekki vita ótíðindin; sum sé þau að mótmælendur vilja hvað!!! Jú ríkisstjórnia burt, seðlabankastjórana burt, fjármálaeftirlitið burt, útrásarliðið burt, spillinguna burt!!!
Er þetta svo erfitt að meðtaka? Ójá það er erfitt að fá það beint í æð að fólk vill ykkur ekki lengur.
Nú stendur yfir undirskriftasöfnun að mestu leyti byggðar á tillögum frá Nirði P. Njarðvík sjá hér http://www.nyttlydveldi.is/ um að mynduð verði utanflokkastjórn, þar sem gerð verði alvarleg útttekt á lýðræðinu, farið yfir stjórnarskrána, fækkað þingmönnum og gerðar margskonar leiðréttingar og breytingar í átt að virkara og betra samfélagi.
Ég get vel skilið að þið ágætu pólitíkusar hræðist slíka naflaskoðun, hvert og eitt ykkar, því svo sannarlega getur það haft mikil áhrif á stöðu ykkar sjálfra og aðild að Nýja Íslandi. En ÞIÐ ERUÐ EKKI AÐALATRIÐIÐ Í ÞESSU SAMBANDI, HELDUR ÞJÓÐIN SEM HEILD. RÉTTARRÍKIÐ ÍSLAND ER Í HÆTTU SEM LÝÐVELDI EF EKKERT VERÐUR AÐ GERT. Og núna er tíminn til að breyta.
Með hrókeringar milli flokka, eða hrókeringar milli manna í æðstu stöðum gerist ekkert af þessu. Þið hafið þann samtryggingarmátt að ekkert kemst þar að annað en ykkar persónulegu þarfir, samanber eftirlaunafrumvarpið fræga og fleiri mál því tengd.
Við sem höfum mótmælt viljum breytingar, við viljum að þessi ríkisstjórn víki, og að sett verði á stofn utanþingsstjórn sem mun taka á þessum málum, síðan má kjósa eftir nýjum formerkjum.
ÞIÐ HAFIÐ EKKI LENGUR TRAUST OKKAR, EKKERT YKKAR. Því miður fyrir ykkur.
Þess vegna finnst mér afar ógeðfeld umræðan um hvort hér verður grænblá eða rauðgræn ríkisstjórn fram að kosningum. Eða hvort einhver ráðherra tekur hattinn sinn og staf. Það bara skiptir engu máli í þessu samhengi!
Hér hefur verið töluð hrein og tær íslenska af fólkinu í landinu, sem er að missa allt sitt, eða á í allskonar erfiðleikum og hefur misst traustið á valdastrúkturnum eins og hann leggur sig.
Því er það í hæsta máta sorglegt þegar æðstu stjórnendurnir, sem reyndar eru báðir fárveikir diskutera um hvernig ÞAU ÆTLA AÐ HAFA ÞETTA. Umboðslaus eins og þau eru.
Ég hef fulla samúð með veikindum þeirra beggja, og finnst það dapurlegt að svo skuli vera komið fyrir þeim báðum. En því í ósköpunum taka þau sér ekki frí og eftirláta öðru fólki að takast á við þau mál sem þarf að gera NÚNA. Það er slíta þessu samstarfi og biðja um að skipuð verði utanþingsstjórn að vilja fólksins.
Mér finnst það líka í hæsta máta ósmekklegt af þessu fólki að ætla okkur það að hafa sektarkennd út af veikindum þeirra, og vilja að við lítum á þau sem hetjur að standa í þessu svona veik. Ég segi fyrir mig, ég vil það bara alls ekki. Það er ekkert sem bindur ykkur við þær stöður sem þið nú hafið gegnt um árabil. Við höfum fullan skilning á því að þið þurfið hvíld og næði til að hlú að ykkur sjálfum, og berjast til heilsu á ný.
Ég vil ekki persónugera þennan vanda. Og ég fæ klíju af að hlusta á meðvirkniskórinn sem hér talar út í eitt, veitist að Herði Torfa og öðrum sem vilja halda okkar sjálfsögðu góðu óskum til streitu.
Ég hugsa stundum að það sé von að landið hafi sporðreists, þegar ég upplifi hverslags meðvirknishænur eru hér í stórum stíl, og eru nú að reyna að koma inn sektarkennd hjá þeim sem vilja standa á sjálfsögðum rétti sínum að mótmæla.
Þeir segja að nú sé markmiðinu náð það verði kosningar í vor.
Það voru aldrei markmið mótmælenda að það yrði bara kosið í vor.Markmiðin voru að þessi ríkisstjórn færi frá, Seðlabankastjórnin færi frá, fjármálaeftirlitið færi frá, spillingaröflin færu frá. Að tekið yrði á spillingunni.
Ekkert af þessu hefur verið gert. Og nú eiga menn bara að sitja og þegja af því að formennirnir eru svo veikir að þeir eiga samúð okkar skylda.
Það er fullt af fólki sem er veikt og þarf skilning, verður hætt að senda þeim reikninga eða veita þeim einhverja aðstoð svo þau geti lifað betra lífi? Verður þar með tekið meira tillit til aldraðra og öryrkja af því að þau þurfa aðhlynningu? Fá menn betri meðhöndlun af því að þeir eru jú veikir, af hendi hins opinbera?
Nei við persónugerum nefnilega ekki vandann. Við höfum öll okkar djöful að draga, en við þurfum að lifa við það, og oftast án þess að almenningur þurfi að hliðra til fyrir okkur.
Ég get svarið það að ég næ ekki upp í nefið á mér fyrir reiði. Hér er hámark hinnar heimóttarlegu lítilmótlegu þjóðarsálar.
Landið er að fara til fjandans, og við eigum bara að setjast og bíða af því að tvær manneskjur hafa veikst og að þeirra eigin mati getur enginn annar sinnt þeirra störfum. Þó hafa þau svo sannarlega andskotan ekki verið að gera neitt, ekki sýnilegt allavega. Og það sem verra er að það er fólk sem tekur undir þennan söng og vælir í kór. Meðvirkniskór.
Þetta er mín sýn á málið, og ég bið ykkur kæru mótmælendur, látið ekki einhverjar skammsýnisraddir telja úr ykkur kjarkinn. Við erum í fullum rétti til að halda áfram að mótmæla og mótmæla hátt og ennþá hærra en áður, ef þetta lið spillingar og samvirkni hefur ekki ennþá heyrt kröfurnar okkar.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (70)
23.1.2009 | 14:33
Hún er tveggja ára í dag.
Skottan mín er tveggja ára í dag. Þennan dag eða aðfararnótt hans sat ég út í Vínarborg þegar Bára mín fékk hríðarnar. Bjarki maðurinn hennar fór með hana á spítalann, en ég fór inn til Hönnu Sólar. Datt samt í hug að best væri að hringja í Ella minn og segja honum fréttirnar. Fór fram til að hringja til að trufla ekki barnið. En bak við hurðina voru geymt allskonar dót, innisnúrur og einhverjar aflóga hillur, sem ég er að hringja heyri ég dynk og höfðu dyrnar lokast og dótið dottið fyrir þær, þannig að ég gat ekki opnað. þarna sat ég fyrir utan svefnherbergisdyrnar en inni svaf barnið og hundurinn. Það var sama hvað ég reyndi ekkert gekk að opna, og um sjö leytið kom pólska ræstingarkonan og við reyndum áfram. Svo heyrði ég að Hanna Sól var vöknuð, svo ég fór að tala róandi við hana gegnum dyrnar. Las fyrir hana sögu og söng, hún var ótrúlega róleg. Ég bað hana að reyna að taka dótið frá. Hún skildi ekkert í af hverju ég kæmi ekki inn, en hún var þá bara þriggja ára. Loks bara gerðist eitthvað og sem ég rykkti í dyrnar opnuðust þær eins og ekkert væri. Ég hef aldrei fundið skýringuna á því hversvegna í fyrsta lagi dyrnar smullu aftur, það hafði ekki gerst áður, og síðan opnuðust alveg fyrirvaralaust.
En sem sagt litla skottan er hér og er tveggja ára í dag.
Henni fiinnst gaman að búa um sig í tröppunum og þykjast sofa.
Henni dettur allskonar hlutir í hug, og framkvæmir þá.
Tjörnin hefur löngum haft aðdráttarafl fyrir litla prakkarann.
Blómakona er hún líka eins og amma.
Brandur fær líka sinn skammt af athygli.
Hún getur líka verið algjör kjúklingur þessi elska.
Og það er gaman að fara í sund.
Og sum uppátækin eru kostuleg.
Vínber eru líka góð.
Best að fara varlega þegar endur eru einhvarsstaðar í nánd.
Svo þarf að prófa allt.
Henni þykir gott að borða.
Og er sérlega hrifinn af kjöti.
Sjáðu!!!
Ég var að sulla.
Já það þarf ýmislegt að máta og prófa.
svo er best að skreppa út.
Hún er líka skapmanneskja mikil.
En alltaf til í að kyssa.
Svo er hægt að skoða sjálfa sig frá öllum hliðum.
Líka gott að knúsa ömmu.
Og afa.
Svo getur maður líka verið voða fín.
Og á morgun fær hún pakka, og þá verður líka veisla. Pabbi hennar ætlaði að koma í dag, en það var því miður ekki flogið, svo vonandi kemst hann í fyrramálið.
Innilega til hamingju með tveggja ára afmælið elsku Ásthildur Cesil mín !
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
22.1.2009 | 18:54
Hvað með utanþingsstjórn - þjóðstjórn. Er hún út úr myndinni. Please þetta er ákall um samstöðu.
Málin eru að taka vinkilbeyju sem ég er ekki sátt við.
Ég var tilbúin til að leggja flokksstarf til hliðar og leggja af stað upp í göngu, marseringu með þjóðinni um að setja á stofn utanþingsstjórn, eða þjóðstjórn nú eða hvað það er kallað, til að fá utanaðkomandi fólk inn og fara yfir stjórnarskrána og koma á virku lýðræði. Fá bestu sérfræðina gil að vinna að því. Mér fannst það eiginlega vera það eina sem kæmi til greina. Sérstaklega í ljósi kröfu fólksins sem hefur látið mest að sér kveða í mótmælum. Það hefur einmitt verið krafan um að halda pólitíkinni burtu, en fara inn með sérfræðinga og þá sem best vit hafa á.
Nú stefnir í að menn séu að rotta sig saman, Vinstri grænir, Samfylking og Framsóknarflokkur til að "taka að sér að redda málunum". Er það virkilega það sem við viljum? Er það það sem fólk hefur staðið dögum saman og beðið um í mótmælum?
Nei ekki hefur mér skilist það. það hefur einmitt verið krafan að PÓLITÍK VÆRI EKKI INN Í MYNDINNI, ÞEIR AÐILAR SEM HAFA SETIÐ ÞARNA NIÐRI Á ALÞINGI OG RÁÐIÐ RÁÐUM SÍNUM yrðu ekki með í þetta sinn, ekki í Nýja Íslandi.
En ónei í skjóli fyrirhyggjunnar og björgunar, þá kemur þetta fólk fram og ætlar sér að taka við kyndlinum. Setjast í ríkisstjórn og bjarga okkur þjóðinni. Bíðið meðan ég æli.
Hvað hugsa menn sér, að Ingibjörg Sólrún verði forsætisráðherra? Steingrímur þá utanríkisráðherra? Ekki svo að Steingrímur myndi ekki sóma sér ágætlega þar. En málið er bara að með þetta sama samtryggingarfólk ennþá þarna inni þá BREYTIST EKKI NEITT. Það verður ekkert rippað upp, það verða engar breytingar sem máli skipta, ekki fækkur þingmanna, ekki breytingar um að ráðherrar sitji ekki á þingi, samtryggingin er nefinlega samnefnari þessa fólks. Allt í einu núna kvaka þingmenn um gömlu kosningaloforðin, sem þeir hafa steinþagað um síðan þeir komust í ríkisstjórn. Nú á allt í einu að fara að draga þau upp, dusta af þeim rikið og sýna á brjóstinu eins og orðu.
Fyrirgefið ég er bálill. Augnablik hélt ég að það væri pláss fyrir réttlætið, samhyggðina og nýja sýn. En ónei, við sitjum uppi með sama gamla þreytta liðið, sem ætlar að bjarga okkur af sinni snilli.
Ég segi; ÉG ER BÚIN AÐ FÁ NÓG. ÉG VAR TILBÚIN AÐ GLEYMA AUGNABLIK STJÓRNMÁLUM OG TAKA ÞÁTT Í AÐ SKAPA NÝTT ÍSLAND. NÝJA SÝN, BREYTA TIL BATNAÐAR. En ég sé að það á bara að troða nýjum andlitum af gömlum belgjum niður í kokið á okkur.
Stjórnmálamenn hafa gefið okkur puttan. Þeir ætla ekki að gefa valdið til fólksins. Þeir ætla bara að hrókera og skipta um lið. En það verður sama liðið áfram, bara hinir. Þau hafa ekki heyrt orð af því sem sagt hefur verið. Ekkert hlustað.
Og auðvitað draga svo flokksdindlarnir sig í hlé, því það má hætta andófinu af því að þeirra flokkur fær smjörklípu.... eða hvað!
Er þetta það sem hrópað var á Austurvelli? Nei við sögðum Nýtt Ísland. Kosningar í vor og þjóðstjórn, utanflokkastjórn eða hvað sem það kallast strax.
Ég vona svo sannarlega að við hættum ekki hér, tökum þessa dúsu og látum okkur þetta lynda. Þá var til enskis barist. Því það er sami rassinn undir þeim öllum. Og þó þeir hrókeri til og frá til að halda völdum núverandi stjórnmálaafla, þá verður það ALREI OKKAR NÝJA ÍSLAND. Það verður sama sullið í annari skál!
Please látum í okkur heyra, látum þetta fólk vita í eitt skipti fyrir öll, að við viljum breyta og við viljum ekki meiri pólitík í bili. Það er komin tími á að bestu sérfræðingar okkar taki við og leiði okkur tæknilega út úr ósómanum. Þegar leikreglur hafa verið skerptar og breytt stjórnskipulagi, þá má kjósa. Þangað til megum við biðja ykkur að halda ykkur burt kæru pólitíkusar. Við höfum fengið upp í kok af ykkur í bili.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
22.1.2009 | 14:20
Smá tiltal og krúttfærsla.
Áður en ég set hér inn ljúfara efni og yndislegra, langar mig að koma á framfæri minni sín á það sem er að gerast.
Það er talað um að mótmælin séu að breytast í óeirðir og fólk hafi ekki lengur tök á ofbeldinu. Löggan segir að það sé undir mótmælendum komið hvort þeir taki á móti.
Þetta er hvorttveggja hálfsannleikur.
Í fyrsta lagi sýna langflestir lögreglumenn aðdáunarverða þolinmæði og þrautseigju. Þarna standa þeir hreyfingarlausir og taka móti eggjum og mjólk án þess að depla auga. Þeir eiga alla virðingu skilið. En innan um þessa virðingarverðu lögreglumenn og konur, eru ofbeldismenn sem ætti að vera búið að fjarlægja fyrir löngu. Þeir eru í lögreglubúningum en ættu ekki að fá að setja slíka upp, því búningurinn verndar þá. Þeir sýna af sér ofbeldi og ofstopa. Þeir ráðast tilefnislaust á hvern sem fyrir verður, miða á ljósmyndara og heimildargerðarmenn, til að varna því að ódæðin náist á myndband. Það er lögregluyfirvöldum ekki til sóma að verja þessa ofbeldismenn. Miklu frekar á að taka þá úr umerð. En þeir virðast vera þarna í skjóli yfirvalds sem dreymir um að stofna her. Þess vegna nýtur þessi stofnun því miður ekki trausts.
En ég vil biðja fólk um að láta lögregluna vera í friði, flestir þeirra eru fólk eins og ég og þú, sem hafa tapað miklu og eru skuldsettir. Það er líka langbest að gefa ofstopamönnunum ekki tækifæri til að haga sér eins og fílar í postulínsbúð.
Langflestir mótmælendur eru friðsemdarfólk, það er að vísu reitt, en hefur sýnt ótrúlega stillingu og þolinmæði. Innan um þá eru ofbeldismenn sem hafa yndi af átökum og gera sitt til að æsa ástandið upp. Það er erfitt að ráða við þá vegna þess að yfir þeim er enginn stofnun sem þarf að gæta að virðingu sinni. Þeir hafa engan yfir sér nema sjálfa sig. Þess vegna á að gera eins og Hörður biður um að reyna allavega að tala þá til, og fá þá til að láta af ofbeldinu. Það gerir illt verra fyrir alla hina og skemmir fyrir.
En að það sé undir mótmælendum komið að allt fari vel er kjaftæði. Það eru til margar myndir og frásagnir sem sýna einmitt að löggubullurnar efna oftast til illindanna, með framferði sínu. Það ættu yfirvöld að taka fyrir strax ef þau vilja halda trúnaði og trausti almennings á stofnunni Lögregla.
Annað sem ég vil koma á framfæri, af því að menn virðast ætla að hlaupa á tilboð Framsóknar um að styðja Vinstri græna og Samfylkingu vilji þeir koma á nýrri ríkisstjórn. VIÐ VILJUM ÞAÐ EKKI.
VIÐ VILJUM EINMITT SPILLINGUNA BURT, OG ENGA PÓLITÍK Í BILI HELDUR UTANÞINGSSTJÓRN MEÐ FÓLKI SEM HEFUR EKKI KOMIÐ NÁLÆGT PÓLITÍKINNI. Er þetta svona erfitt að sjá og skilja? Og hvað haldið þið að það myndi gera þessum flokkum ef svo yrði kosið í haust? Jú ég veit það, í fyrsta lagi myndu mótmælin halda áfram, þetta er ekki það sem verið er að biðja um. Og svo myndi fylgi Samfylkingarinnar halda áfram niður á við, einnig Vinstri grænna og Framsóknar. Vilja menn virkilega taka sjensinn á því?
Nei hér er best fyrir alla aðila að komið verði til móts við almenning um utanþingsstjórn sem fengi svigrúm til að endurskipuleggja lýðræðið og nýja stjórnarskrá og ný kosningalög. Í anda Njarðar P. Njarðvík og Vilmundar heitins Gylfasonar. Það verður aldrei ALDREI sátt um neitt annað, þó sumir séu með ráðherraglýjur í augunum. Og hana nú!.
En léttara hjal.
Dagurinn í fyrradag var fallegur, í gær var rok og svo er lika í dag.
Það blæs dálítið, lognið er að flýta sér.
Þetta er eins og það sé pottlok yfir fjöllunum.
Morgnarnir ganga sinn vana gang. Fyrst er Hanna Sól vakinn og sett framan við sjónvarpið, svo er Úlfur vakinn og svo vaknar litla skottið sjálf örlítið seinna. Brandur vaknar um leið og afi kemur fram.
Úlfur tilbúinn og bíður eftir rútunni.
Brandur er mjög áhugasamur um morgunmat telpnanna.
Svo er knúsast svolítið áður en prinsessur klæða sig upp til að fara í leikskólann.
Jamm ég sagði prinsessur, svona var Hanna Sól klædd í gær.
É pðinseðða sagði skottið.
Hún ákvað líka að fara með bók í skólann. En amma gat laumað henni frá.
Hér er hún að segja Úlfi til með tölvuna. Hún verður tveggja ára núna 23. janúar.
A sjáðu! segir hún og fylgist vel með öllu.
Afi og skottan, hún er að skoða mynd sem Steingrímur S.T. Sigurðsson heitinn teiknaði af ömmu hér á balli fyrir mörgum árum.
Hanna Sól er byrjuð á sundnámsleiði. Hún er að vísu flugsynd en það er eiginlega svona hundasund, nú á hún að læra að synda venjulega.
Og stinga sér og alles.
Þetta þarf allt að lærast.
Það var fullt af krílum sem eru á námskeiði, þrjú holl líka.
Og mamma, Hönnu Sól vantar svona froskalappir í réttri stærð, hún var alltaf að missa þessa. Hún þarf líka að venjast þeim.
Synt áfram í röð. Sumir krakkana voru rosalega dugleg. Hanna Sól var líka mjög dugleg miðað við að hún var þarna í fyrsta skipti.
Þetta kemur allt saman.
Þær eru saman á leikskólanum á Suðureyri.
Svo var voða notalegt að skríða í heita pottinn eftir sundið.
Ekki sleppa þessi börn við aðgerðir útrásarvíkinganna. Þeirra vegna verða þau að taka á sig rúmar 6 millur á barn, svo þeir geti leikið sér og flutt fjármagn á Caymaneyjar með aðstoð stjórnvalda. Nei það er ekkert réttlæti í því.
Sem betur fer er þetta bara ský, en ekki það sem það lítur út fyrir að vera. Eigið góðan dag elskurnar.
Munið að þið mótmælið í mínu nafni. Og ef þið verðið fyrir einhverju eins og táragasi, piparúða eða kylfum, þá snertir það mig líka, og vekur mér reiði. Það er alveg skýrt.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
21.1.2009 | 12:02
Ég er þjóðin - þjóðin er ég.... og þú!
Miðað við hve hörð mótmælin voru í gær, og svo viðtal við einn þingmann samfylkingarinnar sem sagði að hann gæti ekki stutt ríkisstjórnina lengur bætti við aðspurður að hann teldi að þingmenn bæði hjá sjálfstæðismönnum og samfylkingu væru sama sinnis, þá bjóst ég eiginlega við því að fá að heyra þær fréttir í morgun fyrst af öllu að Geir H. Haarde hefði gengið til forseta og beðist lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt.
En nei ó nei, það sem ég heyrði var yfirlýsing frá dómsmálaráðherra um að hann ætlaði að fjölga lögreglumönnum.
Nú þekki ég ekki þankagang ráðamanna og ég mun sennilega seint skilja hann eða af hverju stólarnir eru svona þægilegir, þó þeir séu orðnir brennandi heitir svo úr rjúki. Hvað er það sem þau óttast svo mjög að þau loka augum og eyrum fyrir kröfum fólksins?
Þetta er fólkið sem þurfti að læðast heim í gærkveldi bakdyrameginn. Halda þau virkilega að fólk hætti og gefist upp? Að þetta síendurtekna staðfestuleysi íslendinga gerist nú eins og alltaf áður. Þau gefast upp og allt verður í lagi. Svo verður þetta gleymt í næstu kosningum?
Já ég held því miður að það sé rauninn. Að Þau virkilega haldi að ef þau þreyja þorran og góuna, þá hætti þetta allt saman, fólkið gefist upp og síðan komi til þetta venjulega gullfiskaminni sem við erum fræg fyrir.
Það versta við þetta er að við höfum sjálf skapað þetta ástand. Við höfum kennt þeim að við sitjum bara þæg og góð sama hvað gert er. Einkavinavæðing, ráðning vina og vandamanna í toppstöður, spilling einstakra ráðherra og jafnvel lögbrot af þeirra hendi. Við höfum hreinlega kennt þeim að svona megi. Þess vegna geta þau ekki skilið að í dag sé þetta ekki svona. Að nú sé allt breytt, alvaran tekinn við. Þau halda í alvöru að þetta sé bara skrílslæti í einhverjum vinstri grænum. Þeir vita að þeir hafa tögl og haldir í fjölmiðlum, og að þar sé reynt að fegra ímynd þeirra og mála hina dekkri litum.
En jafnvel það er að breytast. Fjölmiðlafólk er að verða aðgangsharðara og farið að sýna meira af hegðun þeirra. Það kemur örugglega af þrýstingi frá fólkinu á gólfinu, sem sættir sig ekki lengur við þöggunina. Þau þurfa bara að standa saman í því að slá skjaldborg til varnar sannleikanum og réttlætinu, svo það verði ekki þaggað niður.
Ég veit að flestir lögreglumenn eru prúðmenni og gott fólk. Innan um þann hóp leynast því miður bullur og ofbeldismenn, sem njóta þess að "láta helvítin hafa það". Slíkir menn eiga aldrei að fá leyfi til að ganga í búningum. Þeir setja blett á alla hina sem vinna af trúmennsku og góðum hug. Það eru mennirnir sem eyðileggja trúnaðartraustið sem almenningur verður að geta borið til lögreglunnar. Það þarf líka að taka piparúðann af þessum mönnum, þeir hafa sýnt að þeir nota hann til að vera í stórkallaleik og rambóstælum. Ég er mjög hissa á að það skuli ekki vera búið að grípa í taumana og innkalla þessa úða, svo misnotaðir sem þeir eru. Það getur ekki þýtt nema eitt, stjórnvöld samþykkja þetta ofbeldi. Eftir höfðinu dansa limirnir, og það virðist vera að þessum mönnum sé hreinleg veitt veiðileyfi á mótmælendur. Þetta er ekkert nýtt, því þeir hafa lengi haft svona "skotleyfi" á undirmálsfólk og fíkniefnaneytendur. Þetta er bara stigið fyrir ofan, því samkvæmt skilgreiningu valdsins eru mótmælendur skríll.
Það sem yfirvöld skilja ekki, vegna gjárinnar sem aðskilur þá frá fólkinu að hér er alvara á ferð. Sífellt fleiri missa lífsviðurværi sitt, sjálfsvirðinguna og tækifærin til að framfleyta sér. Um leið og það er tekið frá fólki gerist eitthvað. En á sama tíma og þetta gerist, þá er sýnt að valdið heldur hlífiskyldi yfir þeim sem rupluðu og rændu fólkið. Þeir sem hafa sitt á hreinu í skattaparadísum hér og þar um heiminn, og ætla að kaupa landið upp á brunaútsölu. Með fullkomnu leyfi og aðstoð valdsins. Svona lítur nú dæmið út ef maður skoðar atburði síðastliðna mánuði.
Og svo biður þetta fólk um vinnufrið. Óskapast yfir hávaðanum. Forseti þingsins segir með hroka að auðvitað komi það alls ekki til greyna að breyta neitt starfi þingsins. Forgangurinn er líka augljós, það er verið að fjalla um leyfi til sölu á bjór og léttvíni í verslunum. Hvernig eigi að greiða fyrir innvols og líkamsparta og ég veit ekki hvað og hvað.
Er nema von að fólki blöskri. Síðast útspil sýslumannsins á Selfossi var svo einn af dropunum sem fyllti mælinn. Að auglýsa fjöldahandtökur á skuldara meðan þjófarnir ganga lausir. Þó honum hafi verið gert að hætta við þann gjörning var skaðinn skeður.
Fólki er hreinlega ofboðið og það er ekkert skrítið við það. Fólkið sem er að mótmæla er þjóðin sjálf, þetta eru ekki bara einhver vinstri græn, eða stúdentar, eða einhver gengi. Þetta eru ömmur afar, mæður, feður allt litrófið við ég og þú. Um leið og lögregla piparúðar mótmælenda á Austurvelli, piparúðar hann mig um leið og lögga handleggsbrýtur mann með kylfu, handleggsbrýtur hún mig. Ég deili lífsreynslunni með þeim sem verða fyrir ofbeldinu af því að ég deili áhyggjum mínum með þeim samsama mig þeim. Væri þarna sjálf ef ég hefði tækifæri til. Reiðin sem gagntekur mig við að horfa upp á lögregluna misbeita valdinu er reiði þjóðarinnar. Þjóðar sem loksins hefur risið upp og mótmælir óréttlæti, svikum, lygum og öllum þeim óþverragangi sem finna má.
Krafan er einföld hún getur ekki verið einfaldari; við viljum ykkur burt. Við viljum ekki að þið aukið lögregluafskipti, við viljum heldur ekki að þið farið að skipta út mannskap, eða grauta eitthvað og krukka í ykkar liðum. Við viljum hreint borð. Við viljum neyðarstjórn samsetta af fagfólki, sem bjargar því sem bjargað verður NÚNA. Við viljum svo fá að kjósa í vor. Ef þið bara opnið augu og eyru þá getið þið heyrt að þetta er krafa þjóðarinnar, meira að segja krafa flestra þeirra sem deila með ykkur flokkum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
20.1.2009 | 18:32
Í skugga ofbeldis lögreglu með piparúða og friðsamlegra mótmæla.
Mótmælin í dag voru afgerandi. Viðbrögð stjórnarliða er líka eftirtektarverður. Þorgerði Katrínu þótti verst að verið væri að trufla hana við vinnuna sína. Árni Mathiesen taldi að hann hefði ekki gert neitt rangt. Geir bað um þolinmæði. Hversu langt frá þjóðarsálinni er þetta lið eiginlega. Og hver voru svo þessi áríðandi mál sem alþingismenn voru að ræða? Jú þeir voru að ræða um líffæragjafir og hvort selja ætti áfengi í matvöruverslunum.
Getur einhver sagt mér hvað fólkið er að hugsa? Nei auðvitað ekki. Þau eru svo gjösamlega á svig við alla almenna skynsemi.
Ég held að lögreglan ætti að fara á námskeið í framkomu. Þeir voru þeir einu sem beittu ofbeldi Það vakti hjá mér vondar hugsanir að sjá þá standa þarna og rjúka upp af minnsta tilefni og sérstaklega þegar þeir beittu piparúðanum. Þegar gert verður hreint fyrir dyrum eftir að búið er að losna við spillingaröflin, verður að taka í gegn lögregluna og skoða hverjir þar eru sem beita valdi. Eru í Rambóleik. ´Sá ekki betur en aðgerðir þeirra væru fumkenndar, og allt í einu ákveðið að rýma þennan stað eða hinn. Og þá var ráðist til atlögu gegn óvörðu fólki.
Ég hef verið að reyna að gera mér í hugarlund hvað þetta fólk er að hugsa. Hvað er það sem gerir þeim svona erfitt fyrir að segja af sér. Að þau vilja vinna allt til að sitja áfram þó alveg sé ljóst að þjóðin hefur hafnað þeim. þau fórna ærunni, stoltinu og mannlegri reisn til þess að slímsitja hvað sem á dynur.
Hvernig líður þeim, þegar þau heyra hvern sérfræðinginn af öðrum, innlendan sem erlendan segja hreint út að þau séu í besta falli vanhæf í versta falli lögbrjótar. Eða hafa þau lokað öllum skilningarvitum?
Í flugi er ákveðin staður þar sem ekki er hægt að hætta við flugtak. (point of no return) Núna hefur ríkisstjórnin komist á þann punkt að hún á enga leið til að sitja áfram. Henni ber því að segja af sér og koma sér frá.
Mér líður eins og að hafa verið svipt inn í einhverskonar hryllingsmynd, þar sem allt getur gerst. Á nokkrum vikum hefur lífi mínu verið umturnað gjörsamlega. Ég var í öryggi sátt við það sem ég hafði, átti von á rólegum þægilegum tíma í ellinni. þessu var svipt burtu með einu pennastriki þjófa og ræningja. þessir ræningjar sitja ennþá og má ekki blaka við þeim, meðan almenningi blæðir, þar er enga miskunn að fá. Þeir skulu sko fá það óvegið, meðal annars piparúða, beint í augun ef ekki vill betur til.
En ekki nóg með það, heldur var mér kippt út úr umhverfi lýðræðis og inn í ógn alræðisríkis. Þar sem fólkið sem við höfum jú að vísu komið til valda, reynast einræðisherrar og sýna ekkert nema hroka og yfirgang. Ég er reið, en líka hjálparvana, því ég er að gera mér grein fyrir að ósvífið fólk hefur rænt okkur og ætlar að halda áfram að láta okkur blæða, meðan það er að hjálpa sínum auðkýfingum og ræningjum, enda má segja að sum þeirra allavega eru nú einhversstaðar nálægt bankageiranum, spurning um hversu náið. Og er svo firrt að það telur sig eða segist vera að bjarga okkur, moka skaflinn og vill frá frið.
Það er búið að gefa ykkur meira en þrjá mánuði til að bjarga okkur ágæta ríkisstjórn. Það er ekkert sýnilegt sem þið hafið verið að gera. Það tók eina kvöldstund að hækka á okkur áfengi og tóbak. En það tekur meira en þrjá mánuði að gefa út tilskipun um handtökur og rannsaka stærsta þjófnað Íslandssögunnar. Hvað veldur?
Og í Guðsbænum ekki tala við okkur um hvað þið ætlið að gera í Nýju Íslandi, það er bara klám í ykkar munni. Við viljum ykkur ekki. Við erum búin að fá nóg, og þolinmæðin er á þrotum.
Þið hafið fengið rauðaspjaldið svo vinsamlegast komið ykkur burt.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
20.1.2009 | 00:16
Af prinsessum og öðru fyrirfólki.
Eftir þessa framsóknaryfirhalningu er ekki úr vegi að setja inn smá prinsessumyndir og af öðru góðu fólki.
Prinsessur eru vanmetnar í dag allavega mínar þær hafa sterkan persónuleika, og þó þær séu ungar að árum þá hafa þær stálvilja allavega þessar sem hér eru kúluprinsessurnar mínar.
Sjáið bara, þær eru til í hvað sem er.
Og flottar eru þær.
Þessi prinsessa átti langt samtal við afa sinn um daginn, þar sem hann útskýrði fyrir henni að þeir fyrstu yrðu siðastir og hinir síðustu fyrstir. Hún vill nefnilega alltaf vera fyrst, inn í bílinn, út úr bílnum, og núna síðast vakna fyrst af öllum. Og eftir þetta samtal, sagði hún við ömmu, ég vil vera fyrst, og þess vegna má Ásthildur fara fyrst út úr bílnum, af því að þeir sem eru fyrstir verða síðastir og þeir sem eru síðastir verða fyrstir. Og þannig er það bara núna.
Málið er að börn eru miklu eftirtektarsamari en fullorðnir. Og þau fylgjast miklu betur með því sem er að gerast í kring um þau en fullorðið fólk, og þessi litla dama var farin að íhuga málin, sá að sú stærri var alltaf á undan, og svo kom að því að það gerðist sem ég vissi að myndi gerast, hún sagði É fytt!
Já málið er að hún er ekki alveg búin að ná þessu með síðastir og fyrstir, svo ennþá er allt í jafnvægi
Amma sagði Úlfur, þú setur aldrei inn myndir af þér, þessi fer á netið sagði hann um leið og hann smellti af. Og auðvitað er það netið....
Hér er svona pabbaprinsessa, en nýtur athygli frá föðurbróður líka.
Og svo er dundað sér við eitt og annað þar sem tvær prinsessur koma saman.
Skipst á ýmsum hlutum og svona. Einhverju sem skiptir máli og svoleiðis.
Og samningar hafa náðst, enda hvað er peli eða afaskyr á milli vina.
Og maður er manns gaman.
Og alltaf gaman að fara í smáreiðtúr, þó bykkjan sé bara rugguhestur.
Og svo er haldið heim á leið.
Þó sumir dundi sér við að horfa á videó.
Svo blundar alltaf þessi modelismi í manni frá unga aldri heheheh
Já það er hægt að vera ansi frumlegur þó maður sé ekki orðin tveggja ennþá.
ég verð að fara að gefa mér tíma til að þrífa þennan spegil. En einhvernveginn þá hleypur draslið ekki frá manni. Allt hitt tekur meiri tíma, og gefur manni meira.
Þetta er veðrið í gær.
Veðrið í dag kemur örugglega á morgun hér. Ein eigið góða nótt elskurnar mínar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
19.1.2009 | 18:00
Nýir bankar - nýr Framsóknarflokkur - nýtt þetta og nýtt hitt. En sorrý hvað er nýtt í þessu?
Nú eru allir að tala um Framsóknarflokkinn. Framsóknarmenn himinglaðir og uppfullir af bjartsýni og segja að hreinsun og endurnýjun hafi átt sér stað.
Og satt er það vissulega eru þarna ung andlit og sum ný. Það er samt einhver svona ónotatilfinning í mér. Framsóknarflokkurinn hefur alltaf verið eins og kamelljónið litast af þeim sem eru þeim næstir. Opnir í báða enda, skoðanalausir og grípa það sem hendi er næst. Eða það er mín meining. Þessi endurnýjun ber dálítin svip af þessu. Að vísu eru Valgerður, Guðni og Halldór Ásgrímsson ekki með í myndinni, en eru þau horfinn?
Ég man ekki betur er Birkir Jón Jónsson hafi verið formaður í fjárlaganefnd þegar Birgismálið stóð sem hæst. Og ekki var hann mikið á verði þar ef ég man rétt. Guðmundur karlinn frekur til fjársins, þó við sauðsvartur almúginn héldum annað. Þá er það enginn afsökun fyrir þá sem áttu að gæta peninganna okkar. Eða er það bara með mælistika á hversu miklu menn klúðra, en ekki hvort þeir klúðra? En þessi maður var kjörin varaformaður Framsóknarflokksins. Sigmundur er síðan sonur Gunnlaus nokkurs Sigmundssonar framsóknarmanns. Ég man nú ekki alveg hvernig mál Kögunar komu til, en minnir nú samt að þar hafi nú einhver "útrás" verið í gangi. Þannig að nýstraujaði gulldrengurinn er nú sprottinn úr slíkum farvegi. Þó auðvitað eigi aldrei að láta börnin gjalda foreldranna, eins og Jón Baldvin sagði forðum. Þá hringja nú einhverjar bjöllur. Var ekki verið að tala um að hreinsa til og moka út spillingunni komplett?
Svo er hitt að þegar framsóknarmenn tala um heiðarleika, gegnsæi og betri stjórnsýslu, þá fer einhvernveginn kaldur gustur niður minn hrygg. Ekki hefur nokkur stjórnmálaflokkur verið orðaður við aðra eins spillingu og einmitt Framsóknarflokkurinn, og er þá mikið sagt. Þar má nefna ýmislegt, til dæmis S.Í.S veldið sem um áratugi stóð vörð um eiginhagsmuni flokksinsmanna og gæðinga, síðan þessi S hópur með Finn Ingólfsson, Bankar, tryggingafélög og bara nefnið það, voru færð "réttum" aðilum á silfurfati. Síðan klúðrið með Gift, þar sem millurnar hurfu bara út í loftið rétt si sona!!!
Nei gott fólk, þegar ég er að tala um nýtt Ísland, þá eiga flokkseigendur, flokksforkólfar og aðrir sem hafa nýtt sér að hagnast sjálfir á kostnað almennings ekki þar neina aðkomu.
Það verður að vera breiðfylking fólksins í landinu, þeir sem ekki hafa neinstaðar nálægt komið, heldur ekki feður og mæður. Því sjaldan fellur eplið langt frá eikinni. Og hætt er við að fólk taki til það elst upp við. Það er mitt mat.
Nýja Ísland þarf að vera alveg nýtt ekki gömul ullarpeysa sem lappað hefur verið upp á, búið að stoppa og staga í götin. Þetta hugsa ég þegar núverandi stjórnvöld eru að tala um nýtt Ísland, þau eiga að mínu mati engan aðgang að slíku, því þá væri ekkert nýtt Ísland. Heldur fyrrnefnd stagbót. Þá er nú betra að prjóna nýja peysu og nú nýju garni. Ekki einu sinni vil ég rekja upp þá gömlu og prjóna úr henni nýtt.
Nei hér á allt að umturnast, og nýtt fólk með nýja sýn á réttlæti og jöfnuð að leiða þá breiðfylkingu. Fólk sem kann, veit og vill byggja upp okkar fagra land, og gera það byggilegt fyrir okkur sem viljum eiga hér heima. Okkur sem þráum að láta okkur líða vel, treysta þeim sem við ráðum til að stjórna landinu. Svo við getum horft stolt fram á veginn, vitandi að allir eru með. Líka öryrkjar, aldraðir og þeir sem minna mega sín. Helst án aðkomu stjórnmálaflokkanna ef það er hægt.
Við verðum bara að muna að lýðræðið kostar. Og að við verðum alla tíð og alltaf að veita aðhald og vera óhrædd við að breyta. Refsa þeim sem ekki stendur sig, og hygla þeim sem gera vel að okkar mati. Einungis þannig getum við varðveitt hið sanna lýðræði. Annars er hætt við að allt fari í sama farið. En vonandi höfum við lært okkar lexíu af þessu öllu saman. Og þá má segja að öll sorgin og reiðin hafi orðið okkur til góðs.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
18.1.2009 | 11:21
Opin fundur á Silfurtorgi Ísafirði.
Fundurinn í gær á Silfurtorgi fór vel fram. Veðrið var fallegt og þarna voru á þriðja hundrað manns.
Guðmundur stjórnaði eins og áður.
Ræðumenn voru Linda Jónsdóttir
Mæltist henni vel. Og Finnbogi Hermannsson.
Máli sínu til stuðnings talaði hann mikið um litla barnið í Silvercrossvagninum.
Og hve skuldsett þessi litlu kríli væru strax við fæðingu.
Það var líka gaman að skoða skiltin, hér eru þrjár hetjur með skilti við hæfi.
Afar brýn og skiljanleg krafa.
Sumir hafa haft töluvert fyrir skiltunum sínum.
Eins og sjá má var töluverður fjöldi samankominn á Silfurtorgi.
Verkalýðsforinginn okkar hér.
Veðrið var líka fallegt.
Feðgar á ferð.
Ég segi það enn og aftur, það er á við tíma hjá sála að fara á svona fund og vinna samstöðuna og að finna að allir eru í rauninni á sama bátnum. Þið ættuð endilega að prófa sem heima hafið setið. Hér eru engir sérstakir stjórnmálaflokkar eða flokka drættir yfirleitt, heldur bara venjulegt fólk eins og þú og ég. Almenningur í þessu landi sem vill breytingar.
Og dropinn holar steininn, við munum vinna þetta stríð, almenningur í þessu fallega og gjöfula landi. Það tekur það ENGINN fra okkur. Eigið góðan dag.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
17.1.2009 | 11:01
Er verið að skemmta skrattanum - eða stjórnvöldum?
Mótmæli eins og þau hafa verið núna undanfarið eru ný á Íslandi, eða allavega á þessum tímum. Við höfum setið hljóð og etið allt sem að okkur hefur verið rétt. Ekki hefur þó spillingin farið fram hjá flestum okkar. En við höfum bara gefist upp og ekki náð samstöðu..... fyrr en nú. Hörður Torfason og félagar hafa komið þessu af stað með því að mótmæla á Austurvelli kl. þrjú á laugardögum, hann byrjaði að standa þarna einn, þó ekki hafi verið byrjað að telja fyrr en fleiri létu sjá sig, Gunnar Sigurðsson byrjaði svo með fundina í Iðnó og nú í Háskólabíói, sem hann stjórnar af miklum ágætum, greinilega nýtist honum leikstjórnarmenntunin þar. Síðan hafa aðrir hópar risið upp, Eva Hauksdottir og hennar aktívistar flott fólk og gefur líf í mótmælin.
Eflaust fleiri sem ég kann ekki skil á.
Svo er það Ástþór Magnússon, hann mótmælir mótmælum. Hann ryðst inn á annara fundi, heimtar að fá að tala. Lýsir sjálfan sig fórnarlamb og reynir að setja ljótan blett á margra mánaða uppbyggingu fólks sem er að reyna að breyta ástandinu. http://austurvollur.org/
Fólkið sagði við hann; auglýstu þinn eigin fund og haltu ræðu þar. Hvað gerir svo maðurinn?
Jú hann auglýsir fund inn í öðrum fundi, eða klukkan 15.15 á Austurvelli. þar ætlar hann eflaust að koma í sínum jólasveinabúning og eyðileggja fundinn sem fyrir er. Finnst fólki þetta í lagi?
Aðal brandarinn er náttúrulega þar sem stendur stórum stöfum; sameinaðir stöndum vér sundraðir föllum vér.
Það sem mér þykir verra er að tveir af félögum mínum úr Frjálslyndaflokknum ætla að vera þarna með honum og láta ljós sín skína. Þau gera það ekki í þökk Frjálslyndaflokksins. Auðvitað hefur fólk málfrelsi og getur galað þar sem það vill. En þetta fólk er í miðstjórn Frjálslyndaflokksins, þess vegna vil ég taka sérstaklega fram að þau eru þarna að róa ein, en ekki í umboði flokksins.
Hversu langt á þessi maður að fá að komast með allan sinn ruddaskap. Hann kallar allar manneskjur ljótum nöfnum, og skilur ekkert í af hverju hann "fær ekki að tjá sig". 'Eg held að hann ætti að fara í sjáfsskoðun og hugsa aðeins, hvort sökin liggi ekki hjá honum sjálfum, og þeim sem hvetja hann áfram í vitleysunni.
En mikið held ég að stjórnvöld séu ánægð með hann. Ætli hann fái greitt frá þeim fyrir að eyðileggja svona auglýsta fundi? Hann fær örugglega greiðlega leyfi fyrir fundi kl. 15.15 á Austurvelli. Þó vitað sé að þar stendur yfir fundur frá 15.00 - 16.00. Ef hann hefði haldið fundinn sinn kl. 16.15 þá hefði þetta allt saman verið í lagi og komið mótmælum til góða. Þetta er hrein skemmdarstarfssemi.
Ég veit ekki hvað hægt er að gera, ef heyrist ekki í auglýstum ræðumönnum fyrir hamagangi athyglissjúks manns og pótintáta hans. Hvaða rétt á fólk á því að fá að hlusta og fylgjast með opnum fundi sem það vill sækja, en fær ekki vegna svona fíflaláta.
Heldur þetta fólk virkilega að þetta sé sniðugt, eða hjálpi eitthvað til upp á ástandið? Eða finnst því ástandið eins og það er vera sirkus sem hægt er skemmta sér og skrattanum með.
Ég á ekki orð yfir þetta!
En ég er reið eiginlega bálreið yfir þessu framferði yfirgangi og dónaskap.
P.S. var að frétta að lögreglan hafi verið aðvöruð um að þarna ætti að hleypa upp fundinum og eyðileggja fyrir. Það er spurning um hvað lögreglan gerir í því. Það mun koma í ljós.
Í huga minum eru orðin sem standa þarna á fremsta skiltinu. Helvítis fokking fokk.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 11:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (31)
Um bloggið
Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Tónlistarspilari
Bloggvinir
-
prakkarinn
-
katrinsnaeholm
-
jensgud
-
matthildurh
-
jenfo
-
kiddat
-
hronnsig
-
katlaa
-
katagunn
-
kolbrunb
-
joiragnars
-
birgitta
-
holi
-
rs1600
-
ktomm
-
heidathord
-
vestfirdir
-
steina
-
laufeywaage
-
maggadora
-
lehamzdr
-
icekeiko
-
isdrottningin
-
skaftie
-
hneta
-
hross
-
amman
-
johanneliasson
-
helgamagg
-
zeriaph
-
olafia
-
jogamagg
-
tigercopper
-
ellasprella
-
zumann
-
estro
-
sjos
-
gmaria
-
gudr
-
ktedd
-
salvor
-
bertha
-
solisasta
-
meistarinn
-
baenamaer
-
sirrycoach
-
annalilja
-
komediuleikhusid
-
tildators
-
hector
-
bene
-
skelfingmodur
-
fifudalur
-
xfakureyri
-
madddy
-
siggith
-
antonia
-
elina
-
rosaadalsteinsdottir
-
framtid
-
annaragna
-
sirri
-
thjodarsalin
-
bestalitla
-
helgatho
-
jyderupdrottningin
-
hallaj
-
ingistef
-
gudruntora
-
zunzilla
-
sisvet
-
aevark
-
bostoninga
-
ace
-
drengur
-
robbitomm
-
faktor
-
disag
-
ffreykjavik
-
ma
-
rannveigh
-
igg
-
robertb
-
sgisla
-
rafng
-
helgi-sigmunds
-
lotta
-
fullvalda
-
heimssyn
-
naflaskodun
-
johannesthor
-
jeg
-
huxa
-
sigrunzanz
-
jodua
-
tryggvigunnarhansen
-
minos
-
saemi7
-
blossom
-
ansigu
-
skagstrendingur
-
beggo3
-
h2o
-
westurfari
-
ammadagny
-
bjartsynisflokkurinn
-
elfarlogi
-
esig
-
sunna2
-
frjalslyndir
-
gudlaugbjork
-
gp
-
hreinn23
-
guki
-
gustafskulason
-
harhar33
-
diva73
-
huldagar
-
kliddi
-
axelma
-
keli
-
bassinn
-
jonvalurjensson
-
josefsmari
-
kuldaboli
-
kiddatomm
-
ksh
-
kristjan9
-
mio
-
omnivore
-
sumri
-
samstada-thjodar
-
fullveldi
-
nafar
-
stjornlagathing
-
sattekkisatt
-
athena
-
tikin
-
vallyskulad
-
vest1
-
totibald
-
tik
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 38
- Frá upphafi: 2023307
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar