Til hamingju með daginn dýralæknir Bára Aðalheiður Elíasdóttir.

Já dóttir mín náði síðasta prófinu áðan, ég er svo stolt af henni.  Aldeilis glæsilegt og mikill léttir eftir tæpra  7 ára nám.

0284_08660

Stelpan mín getur allt sem hún ætlar sér.  Og ég er að rifna úr monti.

P5238151

Meira að segja að stökkva úr flugvél.

P5238157

Komin í gallann.

P5238147

Það á að láta verða af því.

P5238183

Ekki fyrir mig þetta hér, ég hef alveg nóg með að hræðslupúkast INN Í FLUGVÉLLoL

P5238160

Ætli þetta sé ekki svona fyrir og ....

P5238164

Eftir myndir hehehehe.

En nú er hún orðin dýralæknir hún dóttir mín.

CIMG2604

Og það er ýmislegt sem þarf að gera bæði skemmtilegt og leiðínlegt.

CIMG2606

Og það er líka þakklátt verk þegar vel tekst til.

CIMG2622

Og dýrin eru margskonar.

CIMG2648

og öllum þarf að sinna af ástúð af henni á hún alveg nóg.

CIMG2682

Sum verk eru jafnvel ógeðslegri en önnur LoL En þá er bara að hafa það.

P4301080

Svo er líka skemmtilegur og góður félagsskapur.

CIMG2668

Jafnvel grillað saman og skemmt sér.

Innilega til hamingju elsku Bára mín með titilinn, prófin og allt.Heart

 


Fréttir um daglegt líf frá Austurríki

Sunnudagur hér er sól og stilla en frost.  Við erum hér stelpurnar mínar og ég, Bára mín að læra einhversstaðar og bóndinn að hvíla sig.  Hér komu gestir í gærkveldi, tveir menn frá Þýskalandi með hesta sem verða í hesthúsinu.  'Eg þarf að líta á þá og vona að þeir taki leiðsögn eins og hin hrossinn.

Annars líður mér mjög vel, er í góðu jafnvægi og ljósið inn í mér hefur kviknað aftur sem er gott, því aðeins þannig getur maður látið sé líða vel.  Ég veit eiginlega ekki af hverju, sennilega eru það margir þættir sem spila inn í.  Fyrst að kúvenda lífinu þannig að ákveða að hætta í vinnunni sem ég hef verið í yfir 30 ár.  Síðan að fara í annað umhverfi og þurfa að takast á við gjörbreyttar aðstæður, eins og að hugsa um barnabörnin mín, hestana, kisurnar og hundinn.  Eiga tíma fyrir sjálfa mig þess á milli, og síðan að fá leiðsögn um hvernig ég get gert vel við minn gamla skrokk og hjálpað sjálfri mér til að takast á við þau innanmein sem alltaf fylgja því að eldast. Ég er ákveðín í að halda áfram þessu striki og sjá hvert það leiðir mig. 

IMG_9155

Hér pússla sú minnsta og stærsta.

IMG_9156

Það er gaman og sú stutta er ótrúlega dugleg við pússlið. Hanna Sól er meira fyrir að reyna við spil, bæði í tölvu og með spilum, ótrúlega lunkinn stelpan sú.

IMG_9157

Poul er hjálplegur hann kemur frá ótrúlega stórri fjölskyldu í Köln, þau eru 8 systkinin og öll spila þau á hljóðfæri, hann segir að stundum hafi nágrannar kvartað yfir hávaða þegar þau voru öll að spila hvort á sitt hljóðfærið, svo hlær hann að öllu saman.

IMG_9159

Tvær kisur, þau Carlos og Lille fee eru örugglega mað þak yfir höfuðið. LoL

IMG_9160

Svona var veðrið í gær og er líka í dag. Við köllum þetta gluggaveður heima.  

IMG_9161

Við dunduðum okkur í gær þrjár saman.  Mamma að lesa undir próf og pabbi og Poul upp í Gras að járna hesta. Efnið sem notað er er leir og kattamatur Smile

IMG_9162

Við fórum til að gefa Kanínunum í næsta húsi, við geymum afganga af ávöxtum og grænmeti, þær voru mjög ánægðar með að fá matinn frá stelpunum í gær.

IMG_9166

Hér koma kanínurnar og eru alsælar með matinn.

IMG_9172

Hér er einn kanínuunginn. 

IMG_9178

En við vorum á leið í bæinn að kaupa inn fyrir helgina.  Fyrst fórum við í Hoffer til að kaupa í matinn, bæðí fyrir mannfólkið, ketti og hund.  Það er svona einskonar Bónus í Mattersburg.

IMG_9179

Svo fórum við í OBI sem er einskonar Bauhaus með garðyrkjudeild og allskonar vörum.

IMG_9180

Það keyptum við eldivið í kamínuna, sem er notuð til að kynda húsið til að spara olíu eða gas, sem er mjög dýrt hér.

Við keyptum líka rós fyrir mömmuna og blómafræ, við stóðumst ekki mátið.

IMG_9183

Hér eru svo nýju hestarnir, annar heitir Sleipnir, man ekki hvað hinn heitir,  vona bara að þeir séu vanir við skipanir.  Það kemur í ljós.

IMG_9192

Þeir verða auvitað dálítið ráðvilltir fyrst, nýkomnir úr löngu ferðalagi, en ég hlakka til að kynnast þeim.

IMG_9202

Bjarki með drengjunum sem fluttu hrossin hingað frá Köln.  Þeir gistu svo hér í nótt.

IMG_9204

Og Ásthildur Cesil hélt tónleika, hún er frábær.

IMG_9205

Það var samt öruggara að sitja í fanginu á pabba, þegar svona ókunnir menn voru viðstaddir.

IMG_9206

Svo fengu menn sér bjór og smá viskýlögg eins og gengur.

IMG_9207

Og hér er prinsessa og stóra systir að hjálpa til.

IMG_9208

Þeir gerðu sér gott af pizzunum sem ég bjó til í gær, ég gerði þrjár stórar og það kom sér vel í gær, enda voru þær gjörsamlega kláraðar.

IMG_9210

Hér heldur svo Hanna Sól tónleika, en hún er að læra á píanó í skólanum, og er ansi dugleg.

IMG_9217

Gaman er á góðri stund, gleði lífs að njóta.

IMG_9220

En nú er sunnudagur og sól inni og sól úti.  Ég er ákveðin í að kíkja í hesthúsið í dag og heilsa upp á hrossin.

Sendi ykkur öllum góðar kveðjur héðan frá Austurríki.  Ef það er eitthvað sem ég sakna, fyrir utan Ella minn og Úlf þá er það þorramatur, ég fæ vatn í munninn að hugsa um súrsaða hrútspunga, svið hangikjöt og bara allt sem heitir þorramatur.  Heart

 


Hugleiðingar um lífið úr litlu þorpi og skúlptúrsnjóamyndir.

Einu sinni enn er komin föstudagur.   Hér líður tímin ótrúlega hratt, en samt svo friðsællega.  Hér í þorpinu og sérstaklega upp í brekkunni sem við búum er maður farin að heilsa öllum og fólk ræðir sín á milli um þessa íslendinga sem eru hér.

Ég fór ekki í hesthúsið í gær, vegna þess að það var ekki nóg bensín á bílnum, svo ég fór þess í stað í göngutúr með Trölla.  Í göngutúrnum hitti ég franska konu sem býr hér.  Hún vildi heilmikið spjalla.  Bjó áður í Vín og er sjálfs sín herra stundar þýðingar úr frönsku í þýsku eða öfugt.  Hún hefur líka verið með námskeið. Og eftir að hún flutti hingað, fór hún og lærði um villiplönturnar sem hér vaxa.  Svo heldur hún námskeið um notkun þeirra.

Þessi ágæta kona bauð mér í heimsókn ef ég mætti vera að, hún heitir Cloudine Andrea.  Hún ætlar að halda fyrirlestur um plönturnar í leikskólanum og skólanum hennar Hönnu Sólar, það á nú við þær.

Já þú ert íslenska konan sem ert hérna fyrir neðan sagði hún, ég hef heyrt talað um það.  Já eru ekki litlu þorpin allstaðar eins.

En nú er kominn föstudagur aftur, ég er búin að fara í hesthúsið.  Hrossin eru farin að þekkja mig og jafnvel fagna mér þegar ég kem, reka til mín snoppuna og bíða svo eftir að komi að þeim. 'Eg er farin að kemba þeim fyrst og tala við þau, ég er að prófa að mantra á þau, meðan ég kembi þeim, mantra á hvert hross fyrir sig eftir því hvað er hjá þeim sem betur má fara.  Birta með lendarnar sínar, Strútur með orkuleysi, Hnota þarf að fá meiri ró, Vigdís þarf að komast yfir hræðslu við rafmagnsgirðingarnar sem umlykja þær og Björt þarf ég að hæna að mér og vera vinur.  Þetta er allt að koma.  gaman að prófa hvort svona virkar í alvöru. 

Nú sit ég heima búin að fara í göngutúr með Trölla og sækja stelpurnar.  Ég horfi út um gluggan og það er hvítt um allt, mystur yfir sem er sennilega hitabreytingar, því nú er frostlaust, en hrím á trjánum, sem gerir þau falleg eins og skúlptúra.  Allt er rólegt og þögult úti, því hér eru ekki margir á ferli.

IMG_9114

Prinsessa, maríubjalla og ballerína, ekki slæmur félagsskapur þar. 

IMG_9120

Þetta eru sennilega álfkonur sem hafa komið inn úr kuldanum.

IMG_9117

Og svo þegar mamma kemur heim, þá er margt að gera.  Bára mín er í erfiðu prófi í dag, hún var líka í prófi í gær og náði því, hún hefur náð öllum þeim prófum sem hún hefur farið í núna, síðasta prófið verður svo á mánudaginn.  Það gengur allt vel hjá henni.

IMG_9123

 

Við reynum að láta tíman líða á meðan, hér eru klippimyndir sem fást í Spar og Billa, þær hafa gaman af að raða þessu saman og líma á blöð.  Þær hafa mjög gaman af að föndra.

IMG_9125

Þessi mynd var tekin í gær, þá féll lóðrétt snjókorn í rólegheitum niður af himninum og allt var svo friðsælt.

IMG_9128

Kisurnar eru þeim óendanleg uppspretta gleði og umhyggju.

IMG_9129

Enda eru þessar kisur skemmtilegar og góðar.  Börn hafa afskapleg gott af því að alast upp með dýrum, hvort sem það eru hundar, kettir, hestar eða bara hvaða dýr sem er. Þau læra að taka tillit til annara um leið og þau þurfa að læra að umgangast dýrin sín.

IMG_9130

Svona lítur staðurinn út í dag, trén eru hrímuð og mynda fallega skúlptúra.

IMG_9133

Held að þetta sé trollhettan, skemmtilegur runni.

IMG_9135

Hér er svo skógurinn, dularfullur og mystik yfir öllu.

IMG_9136

Já það er töluverður snjór á Evrópskan mælikvarða.

IMG_9139

Vetrarmyndir.

IMG_9140

Hér er ekki skylda að nota dagljós, og bílar því ekki útbúnir með sjálfkveikiútbúnaði.

Ég gleymi því alloft að kveikja á ljósunum, er á hvítum bíl og sennilega ekki gott að koma auga á mig í mystrinu.  En svona er það þegar maður venst á eitthvað, þá er erfitt að brjóta það upp.

IMG_9144

Ég er afskaplega hrifin af þessu útsýni.

IMG_9145

IMG_9147

Greinar svigna undan snjó og ísingu.

IMG_9148

Smá stund mátti greina þorpið hinumeginn við dalinn, en nú sést ekki neitt  nema næsta hús.

IMG_9150

Hér er þetta fallega fjall sem eir eins og risahús.  IMG_9151

Já þetta er fallegt.

IMG_9152

Hæðirnar er hér allstaðar.

IMG_9153

Höllinn alltaf jafn flott.

IMG_9154

Ég er viss um að hér býr einhver tröllkarl, hann lætur samt ekkert á sér kræla ennþá allavega.

En með þessu kveðjum við héðan frá Forchtenstein og vonum að þið eigið góðan dag heima á fróni.  Ég sakna reyndar mest þorramatsins.  Hann verður að bíða enn um sinn.

Eigið góðan dag.Heart

 

 


Hræsni, hroki og hleypidómar.

Ég veit ekki hvort það er bara ég, eða hvort umræðan er að harðna, skilin að skerpast milli fjórflokkanna, þá er ég ekki að tala um málefnin, heldur samtök þeirra og þeirra áhangenda, í að styðja sinn hóp, með því að vera sem ruddalegastir í garð annara.

Sumar umræður eru svo fyrir neðan allar hellur að manni fallast hendur. Ég ætla að taka dæmi hér um frétt úr DV sem birt var á Eyjunni, þar sem ung kona sem aðhyllist rasisma, kvartar yfir því að hún verði fyrir allskonar áreiti.  Nú tek ég skýrt fram að rasismi er viðbjóðslegur í mínum augum og með öllu óskiljanlegur.  En umræðan við  þessa frétt var á svo lágu plani að ég fór að skipta mér af, sem ég hefði ef til vill ekki átt að gera.  En fólk getur dæmt fyrir sig ef það nennir að lesa viðbjóðin sem vellur upp úr fólki sem telursig vera að andmæla því sem þeim finnst ljótt, en fer gjörsamlega niður á sama planið sjálft.

Eins og sjá má hér:    http://eyjan.is/2011/01/24/islenskir-rasistar-segjast-fa-jakvaed-vidbrogd/

Af því að ég fór að skipta mér af og benda á þá staðreynd að sumir sem þarna tjáðu sig væru ekki betri en áðurnefnd stefna, þá fékk ég yfir mig allskonar viðbjóð, meðal annars er ráðist þarna á látinn son minn.  Veit ekki í hvaða tilgangi það er.  Ég hefði sjálfsagt getað látið eyða þessum innsláttum, en ég ákvað að láta þá standa til að reyna að sýna á hvaða umræðugrundvelli við erum komin á í dag, sum okkar. 

Eins hef ég tjáð mig á bloggi hjá þessum sjálfstæðísmanni og þvílík dómharka og upphlaup hans og félaga hans úr FLokknum á alla sem reyna að tjá sig þarna málefnalega.  :http://baldher.blog.is/blog/baldher/entry/1135943/

Hörðustu sjálfstæðismennirnir eru nú farnir að hópa sig saman og standa vörð um Davíð og hirð hans.  Sennilega finna þeir fyrir dalandi fylgi, þó hrokinn meini þeim að viðurkenna það.  Þá eru allir hinir fífl og asnar, jafnvel rauðvínsdrekkandi fífl og asnar.

Svo er það það síðasta sem kom uppá að stjórnlagaþingið var slegið af í hæstarétti.  Ég kann ekki lög og get því ekki tjáð mig um niðurstöðu dómaranna, verð þó að benda á að það hefur alltaf verið talað um að Sjálfstæðísflokkurinn "ætti" hæstarétt, vegna pólitískra ráðninga þangað meðan Sjálfstæðisflokkurinn hafði öll tögl og haldir, (hefur það sjálfsagt enn)

En að sjá glottið á alþingismönnum sjálfstæðísflokksins á þinginu, er fyrir mér andstyggilegt, því það vita allir sem vilja það að þeir eru eins og Jóhanna benti á; Skíthræddir við stjórnlagaþing, að missa sjávarútveginn úr höndum L.Í.Ú. sem elur þá grimmt í kosningabaráttum, og að missa af því að geta hyglað vinum sínum bæði með embætti, fyrirtæki og álver og annað sem þeir telja lífsnauðsynlegt að fylla allt landið með.  Ég held stundum að Sjálfstæðísmenn séu ekki bara svona þjóðflokkur sem vill hafa einn sterkan foringja til að hugsa fyrir sig, græða á daginn og grilla á kvöldinn, eins og einn ágætur talsmaður þeirra segir, heldur hafi þeir afskaplega litla framtíðarsýn, og hugsi bara um að græða nákvæmlega núna, á morgunn kemur eitthvað nýtt.  Sorglega komið fyrir þessum gamla flokki sem stóð í mörg ár stétt með stétt, en er nú bara hjómið eitt.  Vonandi hefur fólk aðeins vaknað til vitundar með það.

Ég sá hluta af ræðunni hennar Jóhönnu í gær, ég dáðist að henni, hún var reið og það fór henni vel.  Ég var henni þakklát fyrir þessa ræðu, sýnir að Jóhanna getur ennþá staðið með réttlætinu ef hún vill.  Hún ætti umsvifalaust að hætta þessu ESB dekri og snúa sér að því að leiða þjóðína út úr þessari vitleysu og sameina fólkið með gagnsæi og heiðarleika og fyrst og fremst með hag fólksins að leiðarljósi. 'Eg sá það í gær að hún gæti þetta ef hún vildi.

Hún hefur kosið ásamt Steingrími J. að tvístra þjóðínni í ESB andstæðínga og ESBsinna, sem berjast á banaspjótum, og þó andstæðíngarnir séu fleiri þá hafa hinir margfalt hærra, enda er vitað mál að margir eru styrktir af Evrópusambandinu til að tala þeirra máli.  En nóg um það hér.

Ég er svolítið hugsi yfir þessu öllu.  Þessari hörku í fólki sem svífst enskis í athugasemdum, getur aldrei hrósað þeim sem það er á móti, ef þau gera eitthvað  sem hrósa ber, og bakka allt upp sem þeirra menn segja, hversu arfa vitlaust sem það er.  Við svona aðstæður getur aldrei þrifist málefnaleg og jákvæð umræða.  Við þessa framkomu er öllu snúið á hvolf, öllum andstæðingum ætlað allt það versta og aldrei hróflað við sínu liði.  Hvernig ætlum við að leiða inn Nýtt Ísland með svona háttarlagi?

Það er einfaldlega ekki hægt.  Ef við viljum betra samfélag, þá verðum við að hugsa meira um að ræða málefni en ekki stunda svona illþyrmisleg samskipti haturs, öfundar og illvilja.  Það skilar sér bara til baka endalaust aftur og aftur. 

Þessi pistill er reyndar orðin alltof langur, en ég hef af þessu áhyggjur, því við gætum vel komið okkur út úr þessum vanda með sameiginlegu átaki, með því að standa saman og tala saman eins og fólk. 

Ég mæli líka með því að það verði kosið aftur til stjórnlagaþings, eða fundinn lausn á hvernig hægt er að halda þessu ferli áfram. 

Ég vil að lokum benda á viðtalið viðtalið við Mikael M. Karlsson prófessor, sem mér finnst vera frábær sýn á þetta allt saman.   Hann segir m.a. að pólitíkinn í dag sé ekkert annað en Hagsmunasamtök stjórnmálamanna, og að þeir hafi engar hvatir til að vinna fyrir fólkið í landinu, heldur verður það þannig að þeir hugsa fyrst og fremst um að viðhalda sjálfum sér og sínum.  http://www.youtube.com/watch?v=JiLFPOUsgsY&feature=player_embedded#!    Ég tek hér undir hvert orð. 

Eigið góðan dag.


Snjór í Fortchenstein.

HeartEins og ég sagði í gær þá snjóaði hér og nú er allt hvítt yfir að líta.  Það er líka kalt.  Líka í húsinu.  Fólk kyndir mikið með timbri og ríkur úrhverju húsi.

IMG_9079

Já svona fór hún í skólann í gærmorgun.   Það var haldin veisla fyrir hana í leikskólanum.

IMG_9080

Ætli það sé ekki bara meiri snjór hér heldur en heima á Ísafirði. Þar var rigning í gær.

IMG_9081

Bíllinn neitaði að fara í gang og ég þurfti að ýta honum sem betur fer er brekkan brött, svo ég náði að koma honum af stað og í gang.  Það þarf að hafa fyrir svona flottum prinsessum.

IMG_9082

Jamm þetta gæti allt eins verið heima í janúar. LoL

IMG_9083

Smá sólarglæta samt, það passar ekki heima á þessum tíma... eða hvað?

IMG_9084

Á leiðinni í skólann.

IMG_9085

Hér eru skólasystkini Hönnu Sólar, en Ásthildur er í næsta húsi.

IMG_9086

Mér finnst það svo skrýtið að börnin skuli ekki fara út að leika sér ef það er blautt eða kalt eða hvað.  Enda verða þau oftar veik og eru viðkvæmari en íslensk börn.  Svo er annað sem er skrýtið hér, það er allt fljótandi í nammi, ef stelpurnar fara í heimsókn til nágrannanna eftir skóla, eiga þær til að koma heim með fullt af nammi.  Maður gefur einfaldlega ekki börnum sælgæti heima og alls ekki í eftirmiðdaginn rétt fyrir kvöldmat.  Ég er hissa á þessu, drengurinn í næsta húsi er með allar barnatennurnar brenndar af vanhirðu eða sælgætisáti.  Hér fá mínar stelpur disk með grænmeti og ávöxtum og finnst það svakalega gott.

IMG_9088

Hér er prinsessan komin inn í stofuna sína hæst ánægð, á eftir fá þau ávastadjús í boði skólans vegna hennar.

IMG_9089

Hér eru nokkrir krakkar komnir, en eins og ég sagði í gær, var áberandi hve margir pabbar komu með börnin á leikskólann í gær.

IMG_9090

Miðbærin í Fortchenstein hér er ekki mikið um verslanir, þær eru flestar í Mattersburg, þó er Spar rétt hjá, Billa er dálítið neðar svo er blómabúð.

IMG_9091

Það snjóar dálítið ennþá.

IMG_9092

Þetta tryllitæki keypti húsbóndinn sér, með bílnum ætlar hann að aka hestakerrum.  Því þarf sterkan bíl undir svoleiðis.

IMG_9093

Trambolínið nýja fína komið í kaf.

IMG_9094

Og hjólið hennar Ásthildar.

IMG_9095

Svona getur þetta verið hér líka.

IMG_9096

Fallegt að sjá yfir í hæðina hinu meginn.

IMG_9098

Höllin nýtur sín líka vel svona með hvítu ívafi.

IMG_9100

Og svo eru allir úti að moka, hver sem vettlingi getur valdið er mokandi eða sópandi fyrir utan húsin sín og út á götu, því allir eiga lóð að götunni.

IMG_9101

Hér má sjá akrana með hvíta yfirbreiðslu, snjórinn bjargar miklu í sambandi við kal.

IMG_9102

Og það er farið að rökkva upp úr fjögur.

IMG_9103

Við erum stödd í Billa, þar er hægt að fá rauðvínskút 1 líter á 0.99 evrur,

IMG_9106

Já hér er ágætt að versla, en ég er orðin ansi leið á kjötborðunum hér.  Vantar það sem við á að éta, kjötborðið í Samkaup á Ísafirði er miklu girnilegra en hér sést.

IMG_9108

En hér er fallegt.

IMG_9109

Komst ekki upp þessa brekku í gær, ekki nema upp í hana hálfa, varð að láta mig renna niður, sem betur fer hafði Bjarki sýnt mér aðra leið sem var ekki svona brött.

IMG_9110

En hér má sjá hæðirnar á móti allar ræktaðar meðan það er skógur okkar megin.

IMG_9111

Og þessi mynd minnir mig á að ég þarf að fara og sækja Hönnu Sól og vinkonu hennar Láru, þær ætla að eyða deginum saman hér hjá okkur.

Eigið góðan dag.

 


Afmæli.

Það var ökladjúpur snjór þegar við vöknuðum í morgun, ég mun síðar setja inn myndir af snjónum í Forchteinstein. En í gær átti lítil dama afmæli, og við héldum upp á það.  Svo á að vera afmælisveisla í leikskólanum núna, hún fór því í fína prinsessukjólnum sínum í snjónum í morgun.

IMG_8952

Pabbi keypti fína kjóla handa stelpunum sínum.  Þær fengu sjálfar að velja.

IMG_8953

Svo þarf aðeins að laga sig til og sona.

IMG_8956

Þær vilja heilmikið vera í tölvunni hennar ömmu, þar geta þær horft á myndir, klædd dúkkur í föt og teiknað eða spilað kapal.  Margt hægt að gera í svona tæki

IMG_8957

Er ég ekki fín???

IMG_8964

 Kórónan var nú samt ekki lengi alveg heilLoL eða krónan eins og hún kallar hana.

IMG_8966

Einhverra hluta vegna vaxa börnin alltof fljótt upp úr barnaskapnum.  Frown

IMG_8971

 

En nú stendur eitthvað til???

IMG_8974

Hvað á ég að gera ?

IMG_8977

Já það er nefnilega verið að setja upp trampolín og allir hjálpast að.

IMG_8980

Svo dagurinn í gær fór að mestu í að hoppa og skoppa á Trambólíni, þær voru úti eiginlega allan daginn.

IMG_8988

Eða hefðu orðið það ef það hefði ekki staðið til fjögurra ára afmæli.  Hér er verið að skreyta tertuna.

IMG_8996

Og áhuginn leynir sér ekki.

IMG_9004

Svona á að gera þetta, aldeilis flott.

IMG_9008

Afmælisbarnið fallegaHeart

IMG_9014

Og svo er gestum boðið,  afmælissöngurinn var sunginn á íslensku, ensku og þýsku, vegna Poul sem kemur frá Köln.

IMG_9018

Allir nutu þess að borða þessa flottu köku.

IMG_9020

Ásthildur Cesil segir gjörið svo vel.

IMG_9026

Svo var blásið á kerti og teknar upp gjafirnar.

IMG_9028

Minna mús.  Poul hafði keypt handa henni Minnu mús.

IMG_9030

Æ svo góð.  Ég hafði ekki verið búin að kaupa gjöfina en ég ætla að gefa henni barbie sem syngur klassisk lög, það er á óskalistanum.

IMG_9031

Og svo var hoppað.

IMG_9039

Og hoppað....

IMG_9042

og hoppað hehehehe...

IMG_9043

og hoppað

IMG_9046

Brandur.... nei Carlos varð líka aðeins að prófa.

IMG_9047

Svo er gott að koma inn fá mynd og borða ávexti og grænmeti.

IMG_9048

Og leika við kisurnar.

IMG_9056

murrrrr.......

IMG_9072

Hanna Sólin.

IMG_9075

Pússla með mömmu þegar hún kemur heim úr skólanum.

IMG_9078

Hafið þið séð annan eins kött.  Púbbsý er ótrúlegur.

En þá þarf að fara að ösla snjóinn og svona.  Ætli það sé ekki bara meiri snjór hér en heima.  Og ég tók eftir að í morgun voru fáar konur við stýrið, og óvenju margir pabbar sem komu með börnin í skólann.  LoL Wonder WHY.

Eigið góðan dag. 


Myndir og aðeins frá sjálfri mér.

 

Ég var bún að skrifa heilmikið og setja inn myndir en svo hvarf það allt í óminni himingeimsins, svo ég þarf að byrja upp á nýtt.

IMG_8923

Já skjótt svipast verður í lofti og nú ríkir vetrarkuldi enn á ný hér.  Dæmigerðar íslenskar umhleypingar.

IMG_8924

Hér erum við í miðbæ Forthenstein beint á móti skólanum og leikskólanum.  Við vorum í seinasta lagi, því bíllinn fer ekki í gang og ég þurfti að ýta honum á götuna og láta hann svo renna í gang, sem er ekki mikið mál í þessum brekkum hér.

IMG_8925

Hér erum við svo komið í hesthúsið, og sólin komin fram.  Það gekk allt vel með hrossin, þau eru farin að þekkja mig og flest ánægð með prógrammið og vilja vinna með mér.  Þá er alltaf einhver með óþekkt, en ég læt þau ekki komast upp með neitt múður.  Það þarf að taka allt svona föstum tökum og það kann ég með alla mína reynslu.

IMG_8926

Skuggamynd af mér og hrossin búin með sitt og við getum öll verið sátt við morguninn.

IMG_8927

Vonandi hafa ekki orðið miklar kalskemmdir á ökrum, en auðvitað eru flestar framleiðsluvörurnar ekki komnar í moldina. Svona er bara lífið.

IMG_8928

Hér er akur vendilega stúkaður af með rafmagnsgirðingu held að þetta sé jarðaberja akur.

IMG_8929

Dularfull trjágöng og vegur í gegn.

IMG_8934

Í gær komu svo góðir vinir okkar frá þorpinu Maria Ellend. Hér má sjá Hönnu Sól, Miriam, Ásthildi kettina og Goldie og Trölla

IMG_8937

Heidi og Samúel eru Búddatrúar, og yndislegar manneskjur.  Þau komu m.a. til að mantra með Báru minni og konu sem býr hér í þorpinu.   En það er mikil aukning á Búddatrú hér í kring.

IMG_8938

Hér er Yoko komin til að eiga þessa stund með fólkinu, og ég ætla mér að taka þátt líka.

IMG_8939

Hér erum Heidi, Hanna Sól og Miriam dóttir þeirra Heidi og Samúels.

IMG_8940

 

Miriam, Goldie og Púbbsi góð saman, allir geta nefnilega orðið vinir.

IMG_8950

Og Ásthildur hélt konsert.

IMG_8951

Hún gerði það með svona Poul Mc Cartney stæl, hún verður einhverntíman góð.

En við möntruðum í tuttugu mínútur, ég segi ekki að ég hafi fengið mikið út úr því, en ég ætla samt að halda þessu áfram orðin sem fólkið segir er svona;: Nam Yoho Renge Kyo, og hefur mikla merkingu um duld lótusblómsins og fæðingu og dauða rétt eins og hringur Ásatrúarinnar.

Það má líka segja að hluta til hafi örlög mín ráðist hér á síðasta ári, þegar ég var að velta fyrir mér framtíðinni, og Samúel sagði mér að hann væri að hætta í vinnunni sinni sem aðstoðaraðili aldraðs og vangefins fólk, þar sem hann bæði var þeim til halds og trausts og sótti fyrir þau allar nauðynjar.  Hann var að fara að læra inn á svið sem ég kann ekki að nefna en er að vinna með einstaklingum og þeirra undirmeðvitund.  Það hafði verið ákveðið af dóttur minni og honum að hann tæki mig í tíma hér við þessa heimsókn.

Ég er alltaf til í svoleiðis.  Og ég verð að segja að ég varð fyrir stórkostlegri upplifun.  En það er auðvitað bara fyrir mig.  En hann sagð mér að það sem kæmi fram væri eingöngu samtal milli míns innra sjálfs og mín, hann væri eingöngu milligöngumaður sem kæmi skilaboðunum á framfæri.  Og það sem okkur fór á milli var frábær og mér mikil upplifun.   Hann kom mér á óvart, þar sem þrátt fyrir mína næmni og skynjanir er ég alltaf jafn skeptisk, En svo sannarlega átti ég þarna upplifelsi sem ég mun ekki gleyma heldur geyma í huga mér og vinna áfram með.  Og allt sem kom þarna fram voru hlutir sem ég í raun vissi og þegar hann sagði mér þá, fann ég að ég er á réttri leið.   Það er yndislegt þegar maður kemst á flug í andlegum málum sem tengjast manns innri vitund. 

Ég finn að það breyttist eitthvað, og nú þarf ég bara að vinna við sjálfa mig, til að gera það sem þarf fyrir mig sjálfa.  Ég hef fengið leiðsögn, reyndar frá sjálfri mér gegnum túlk, og nú er bara að fara að bretta upp ermar, ég er reyndar aðeins byrjuð með því sem ég er að gera í dag, hætta í vinnunni, fara sem aupair til dóttur minnar og ekki bara það, heldur vinna með hrossunum, sem hafa gert mér gott líka, því ekkert er betra fyrir brotna sál en umgangast dýr og finna sjálfan sig í því að komast inn í hugarheim þeirra og finna samsömun og vilja til að vinna með manni.  Það er yndisleg tilfinning, þegar maður segir þeim bara með einu orði að brokka og þau hlýða, eða segja þeim að galoppa og þau stökkva eða bara segja á ákveðin hátt sto og þau stoppa.  Og svo finnur maður að dýrin vilja virkileg og hafa jafn gaman af þessu og ég. 

Já elskurnar ég segi bara, við erum miklu sterkari en við höldum.  Ef við bara hlustum á náttúruna og það sem er í kring um okkur, og förum þá leið sem okkar æðri máttur leiðbeinir okkur til, þá getur ekkert klikkað.

Eigið góða nótt. Heart


Myndir og svoleiðis.

Veðrið hér minnir óneitanlega á umhleypingarnar heima,  hér er búið að vera hlýtt og vorveður, en austurríkismenn vantrúaðir á að vorið sé komið.  Enda kom á daginn að nú hefur kólnað ískyggilega og í morgun var allt hvítt af snjó. 

En ég lét mig hafa það í gær að aka svolítið um sveitirnar og taka myndir,  það var frekar erfitt, því ég þurfti bæðí að hafa augun á landslaginu og veginum. Blush Og svo vera tilbúin að taka snöggar ákvarðanir um að stöðva ökutækið og stilla sér upp.

IMG_8883

En hér má sjá ömgurnar vera að gera heimavinnuna, Hanna Sól með skákverkefni og amman að ráða krossgátur, ég fer sjaldan eitthvað í ferðalag án þess að hafa slíkar meðferðis.

IMG_8885

Það er galsi í þessum litlu skvísum mínum Heart

IMG_8886

Og margt sér til gamans gert Heart

IMG_8890

Fallega ömmustelpan mín.

IMG_8892

Heart

IMG_8893

Mæðgurnar við matarborðið, mamma þurfti að aðstoða Hönnu Sól með skákdæmin.

IMG_8895

Svo þarf að koma þeim í skólan og leikskólan  á morgnana, þá er gott að hjálpast að.

IMG_8896

:Þessar myndir eru teknar í fyrradag.  Það var bjart og fallegt veður, en afar kalt og frost.

IMG_8897

Hér erum við komin í sveitina við hesthúsin, eins og sjá má er grasið farið að grænka og akrarnir tilbúninir til útplöntunnar.

IMG_8899

Sumt komið lengra en annað.

IMG_8900

Sem sagt bara beðið eftir vorinu.

IMG_8901

Hér verður örugglega maís.

IMG_8902

Mér finnst fólk utan Íslands ekki vera jafnmiklir fagurkerar og við þegar kemur að raflínum, þær eru miklar og skemmandi fyrir útsýnið, en það er víða um heim.

IMG_8903

Vindmyllurnar eru líka víða, þær eru auðvitað náttúrlega hagkvæm auðlind.

IMG_8905

Hér er eitt þorpið, svona kúra þau inn á milli akranna.  En þau eru saman í klösum með einni yfirstjórn, ég held að Mattersburg sé aðalþorpið í þessum klasa hér.

IMG_8906

Hér sjást vindmyllurnar betur.

IMG_8907

Ég þarf að fara yfir lestarteina á leiðinni í hesthúsið, Christína segir mér að það séu mörg dauðsföll á ári þegar fólk fer yfir á rauðu eða gulu, og tekur sjensinn.  Samt sem áður er ekki farið í að fjárfesta í slám sem opna og loka. 

Austurríkismenn eru í sumum málum á eftir okkur, þeir til dæmis reykja eins og strompar.  Í umferðinni eru þeir ekkert betri en við, aka yfir löglegum hraða og jafnvel svína á mann út af hliðarbraut. 

IMG_8908

En þeir eru afskaplega kurteisir og bjóða alltaf góðan dag við þá sem þeir hitta,  ég er líka farin að þekkja sumar konurnar og karlana sem koma með börnin á leikskólann á sama tíma og ég.   Í sveitinni eru allir miklu vingjarnlegri en í Vín, þar sem enginn horfir í áttina til þín, nema þú sért með hund.  Þú mátt líka fara með hunda inn í kaffihús, sem okkur finnst alveg út úr kú á Íslandi.

IMG_8911

Þessi húsasamstæða minnir mig alltaf á hringhúsið í Garðabænum

IMG_8912

Svona sólarmynd ala Ísafjörður.

IMG_8913

Hér má sjá eitt þorpið kúra við hlið akranna.

IMG_8914

Gaman að þessum litlu þorpum þar sem búa svona fimm þúsund manns eða svo.  Friðsæl og hlý.

IMG_8915

Ég held að ég hafi örugglega vakið eftirtekt heimamanna þegar ég stoppaði bílinn á hinum ýmsu stöðum og dró fram myndavélina. LoL

IMG_8916

Og hvert erum við nú komin? Jú til Marz hehe

IMG_8917

En ég hef aldrei farið þessa leið og varð sífellt að taka eldsnöggar ákvarðanir, þegar ég sá eitthvað sem var interesant.

IMG_8919

En svo er komið kvöld og litlu prakkararnir mínir þurfa að bursta tennur og fara að sofa því hér vakna allri snemma.

En á morgun ætla ég að segja ykkur frá mjög áhugaverðum degin sem var í dag.  Núna held ég að ég farið að halla mér.  Eigið góða nótt elskurnar.  Með kveðju frá Austurríki.

 

 

 

 


Enn um Austurríki.

Hér er klukkann 13.32, ég er búin í hesthúsinu, stelpurnar eru á leikskólanum og skólanum.  Ég horfi hér yfir byggðina, það er frekar hlýtt að mínu mati, en þó rýs reykur upp úr öllum strompum hér.  Menn kynda húsin sín mest með timbri.  Hér er gasið búið fyrir nokkrum dögum og gasmaðurinn lætur ekki sjá sig, veit ekki hvaða kæruleysi það er, þau ætla að skipta um fyrirtæki, til að fá betri þjónustu.  En við höfum bjargað þessu við með að kynda ofninn í kjallaranum með timbri á kvöldin og svo er hér varmaskiptir sem er þó aðallega notaður á veturna. 

Ég horfi yfir hæðirnar skógi vaxnar, þar vaxa margar tegundir af trjám, víða standa upp úr laufskóginum greintré og furur, sem setja grænan svip á skógin hér og þar.  En ég er viss um að þegar lauftrén fara að bruma verður fallegt hér um að litast.  Hér er mikið af aldintrjám, eplum, kirsuberjum, plómum, og mörgum fleirum.  Svo eru hér víða bæðí beykitré, eikartré, birki reynir og margar fleiri tegundir.

Hér upp á hæðinni er ekki mikil umferð, vegurinn liggur eins og langur mjór ormur í hlykkjum upp hæðina með húsin á báðar hliðar, það er 30 km hraði, því allt er svo þröngt og sumstaðar erfitt að mætast.  Mér líkar þetta samt vel.

Hestarnir eru farnir að venjast mér og fara prógrammið sitt rétt og vel flestir, stundum eru þeir þó latari en áðúr, eða duglegri, og þá hrósa ég þeim og gef þeim brauð.  Þau eru eins ólík og þau eru mörg. 

Bjarki er að fá fleiri hross að heiman, þau eru fyrir utan Köln, og fara þeir hann og Peter þjóðverjinn sem býr hér og gengur í járningaskólann með honun að sækja hrossin. 

Bára mín er í skólanum í dag, þau teymið hennar fá að skera upp í dag, og svo fara þau yfir prófið á morgun, það er fyrsta prófið af fimm lokaprófum sem hún þarf að þreyta núna í janúar, sem er auðvitað ástæðan fyrir því að ég er hér til að hjálpa til með börn og dýr, og reyna að vera til aðstoðar, ekki minnst er að elda staðgóðan mat. Ég er búin að vera tvisvar með grjónagraut og hann er svo sannarlega algjört góðgæti á þessu heimili, meira að segja þjóðverjinn og austurríkismaðurinn segja að hann sé hið mesta lostæti.  

Ég keypti áðan nautakjöt sem var tilgreynt sem gúllaskjöt, ég ætla að búa til gúllassúpu í kvöld. 

 

Í fyrri nótt skein þessi elska svo inn um gluggann minn að ég vaknaði og lét mig hafa það að fara fram úr til að taka af honum mynd.

IMG_8875

 

Svaka flottur máni gamli.

IMG_8876

 

Stelpurnar mínar. 

Sú stærsta og sú minnsta.

IMG_8878

Þær eru að skemmta sér vel.

IMG_8880

Hér má sjá hæðirnar sem ég er að tala um.  Og svo hátt niður, þessi hún eru hinu meginn við mig.

IMG_8881

 

IMG_8882

Þessa tók ég núna rétt áðan.  Í dag er dálítill rigningarúði, en ef verðrið verður betra á morgun ætla ég að taka myndavélina með mér í hesthúsin og taka nokkrar myndir af ökrunum, kring um Mattersburg.

En ég hugsa að ég ætli bara að leggja mig smá stund, áður en ég sæki stelpurnar mínar.  En þær þurfa að sækjast kl. 4.  svo ég hef nægan tíma.

Eigið góðan dag elskurnar. 

Svona til gaman af því að ég er með innkaupalistan hérna hjá mér.

Þrjár paprikur í bréfi1 evra

brauð 1/2 en frekar stórt 1.60

gúrka  0.99

goudaostur 700 gr 5.49

Kiwi 1 kg. 1.29

gulrætur 1 kg. 1.39

nautaflesk tæpt kíló 6.72

Heyrumst. Smile


Myndir og fleira frá Austurríki.

Mánudagur og ég beið eftir því að heyra af fundinum á Austurvelli, kveikti á fréttum kl. þrjú og bjóst jafnvel beinni útsendingu eðá að fréttamenn væru á staðnum smá stund, en ónei, það var bara rætt um mótmæli út í heimi sem fyrsta frétt, skoðaði síðan Bylgjuna og fór á Útvarp Sögu, en ég get svarið það annað hvort var enginn á Austurvellinum, eða það hefur ríkt fréttabann á þessum viðburði, sem maður myndi halda að skipti máli fyrir fólkið í landinu ? Hvort sem það er mun koma í ljós, en aðallega á blogginu og spjallinu.  Það virðist vera svo að fjölmiðlar séu í spennitreyju stjórnvalda og annara ráðamanna.  Hvar er stoltið og viljinn til að upplýsta almenning!!!!! Say no more.

En eins og ég sagði kom vinkona mín Christína Gobbi frá Vín og gisti hjá okkur á laugardaginn.  Við áttum yndislega stund um kvöldið með rauðvíni og spjalli. 

IMG_8758

Christína kom með eðalrauðvín frá pabba sínum, en hann er ítalskur og á fullt af eðalrauðvíni.

Christína brought fine redwine from her father, en he is italien and has got a lot of finest redwine.

IMG_8761

Og það var eldað rauðvínslegið lambalæri sem ég hafði komið með að heiman.  Smakkaðist mjög vel þó ég segi sjálf frá, enda búið að "hanga" í hálfan mánuð og liggja í rauðvínsmarineringu í þrjá daga.

We had lambmeat from Iceland, wich I brougt from home, and had put it in Redwine marinering for some days.  

IMG_8757

Hanna Sól sæt og fín.

IMG_8764

Morgunverður og Christina að spila við Hönnu Sól Svartapétur.

Breakfast and Christina playing Black Peter with Hanna Sól.

IMG_8765

And Christina draws Plack Peter LoL

IMG_8766

And Hanna Sól Draw it back. 

IMG_8771Heart

Þegar ég var "SVONA LÍTIL" segir hún og segist eiga þrjú börn tvær stelpur og strák, þau bíði bara þangað til hún er orðin nógu stór til að giftast og eiga þau.

Í dag sagði hún að þegar hún var svona lítil var hún á rosastóru skipi í Afríku og þá sá hún ljón, en varð ekkert hrædd við það, af því að hún réði alveg við það. 

When I was so little, she says often.  She says she has two girls and a boy, but they wait untill she is old enough to have them. 

IMG_8772

Christina, Bára, Ásthildur og Trölli.

IMG_8773

Hanna Sól teiknar mynd af Christina.  Christina er listamaður og vinnur mikið með börnum á Krakkasafninu í Vín.  Hún starfar einnig sjálfstætt í sínu eigin stúdíói.

Hanna Sól Draws að painting of Christina, Christina is an artist and works also at the Kinder museum i Viena.She also workt at her own studio at her own art.

IMG_8774

Samloka Tounge

IMG_8776

Ferðabíllinn hennar Christinu, hún ætlar að ferðast með honum um Ísland næsta sumar, en hún hefur oft komið þangað og elskar Ísland.

Christinas traweling car, she is bringing it to Iceland next summer and trawel about the country, she has often visited us, but now she has her own car, and its a car like mine.  Good car. Heart

IMG_8777

She has got að conviniant little apartment in the back of the car, who three people can stay in, and she is bringing some friends with her. And she will also come to Isafjordur to meet me.Heart

IMG_8780

Here is the kitchen.

IMG_8781

Sleeping cabinet, every thing needed is in this apartment of hers.  It even came with a toilet, but she didn´t want that in such a small cabin.

IMG_8782

Hanna Sól and Christina they are good friends, and Hanna Sól gave her the painting she had made.

IMG_8784

Congratulation with your car Christina Heart

IMG_8786

Bára og Ásthildur á svölunum segja bless þegar við leggjum af stað í hesthúsið.

Bára and Ásthildur say good bye when we go to the stables.

IMG_8787

Komin í hesthúsin, það var sól og yndislegt veður í gær um 15°hiti.

At the stables in sunny and beautiful day 15° c.

IMG_8789

Hestarnir í sólinni að borða mat.  Báras horses having að wonderful time.

IMG_8791

Bjarki var ákveðín í að Christina færi á bak.  Bjarki vas desited that Christina should go on a horse.

IMG_8793

And he knew who to pick. The beautiful Björt.

IMG_8794

Nú kemur alvaran.  Christina hefur ekki farið bak í átta ár, og þá aðeins einu sinni, svo hún var dálítið nervus.

Christina has not been on að horsa for 8 years and then only once so she was a little nervous.

IMG_8795

But Bjarki is a good teacher, and he knew how to help her.

IMG_8797

He started first, to let her see that everything was allright.

IMG_8803

Thithening the belt, so it would not go waisted.  Það þarf að festa gjörðina svo hún skekkist ekki.

IMG_8808

Við vorum ekkert búin að gleyma prinessunni, hún fylgdist með og hér er hún algjört letidýr. LoL

IMG_8809

Beautiful horse and að beautiful woman.Heart

IMG_8814

She learned fast, that's becouse she is an artist sayed Bjarki, they are so sencetive.

IMG_8820

Það skiptir nefnilega að sameinast hrossinu og finna tilfinningar þess og vita að þau vilja gera allt fyrir mann.  It matters to feel the horse and knowe that it's ready to do things for you.  To be one with the horse.

IMG_8824

Með vönum knapa er Björt eins og hugur manns, það er frábært að vinna með slíkum hrossum.

Hér fer Bjarki með hana krossgang.

IMG_8827

Hann lét hana líka tölta, og hún er svo flott.

IMG_8832

Viljug er hún líka, eins og hugur manns.

IMG_8835

I´m sure that this beautiful horse is for sale if somebody is interested.  But she wont go sheap, she is að beauti in every senxe of that word.

IMG_8840

We back home welcomed by my daugther and grandchild. Heart And Buppsy of course.

IMG_8846

Amma ég þarf hjálpardekkinn mín.  Grandmother I need the helping wheels. 

IMG_8847

Hanna Sól þarf ekki slík, hún hjólar eins og herforingi, og við héldum að vorið væri komið, íkornarnir eru að vakna og blómin að gægjast út.  En í morgun var frost, svo eitthvað hefur dáið af snemmbærum plöntum.

IMG_8849

Hanna Sól köttur og hundur.

IMG_8853

Ásthildur spældi þessi egg alveg sjálf, svo dugleg.

IMG_8854

Og svo má horfa á smá video áður en maður fer að bursta tennur og fara að sofa.

IMG_8856

Við fengum annan næturgest í gær, Súsan er þýsk alþýðukona, sem vinnur við athvarf fyrir fíkla.  Hún á hest og af því að það er dýrt að leigja stable þá fær hún að vinna á mánudagsmorgnum við Hofið því þá á hún frí frá vinnunni fram að hádegi, en af því hún býr í  Vín er langt fyrir hana að  fara svo henni var boðið að gista hér í nótt til að auðvelda henni að gera það sem þurfti að gera fyrir hádegi í dag.  Þessi hundur hennar er undan grískri tík sem var villt.  En þessi er voða ljúf.  En henni er samt alltaf kalt hér í Austurríki af því að genin hennar eru Grísk.

IMG_8857

Hún er líka búin að spara og spara til að komast til Íslands, hér skoðar hún myndabók frá okkar fallega landi.  Hana hlakkar mikið til að komast til okkar.  Vona að hún eigi góða ferð.

IMG_8860

Man því miður ekki lengur hvað tíkin heitir, en hún fór afar varlega í að kynnast kettlingunum.

IMG_8861

Best að fara að öllu með gát hér!!!

IMG_8862

Horfast í augu grámyglur tvær, sú skal vera músin sem mælir, kötturinn sem sig skælir og skrýmslið sem skína lætur í tennurnar. LoL

IMG_8863

Sú litla var lasin í dag svo við þurftum að sækja hana í leikskólann, þegar hún kom heim var hún öll hin hressasta.

IMG_8864

Hún fór út með kisu.

 

Jæja þetta er nú meiri maraþon sýningin. Þið fyrirgefið enskuna mína, en ég lofaði Christinu að setja smá ensku inn á milli, svo hún gæti lesið, og svo hef ég komist að því að ég á marga útlenskumælandi vini  sem kíkja hér við, svo ég þarf að fara að setja inn meiri slettur svo þau geti fylgst betur með.  Það er sannarlega gaman að heyra að margir fylgjast með mér og mínum bæðí í Þýskalandi Austurríki, Englandi og fleiri löndum. 

Aufwiedersehen Heart


Næsta síða »

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Jan. 2011
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (26.6.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 2023333

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband