Durango Leiðin þangað.

Við Elli og Kristín mágkona erum komin til Durango í Norður Mexico.  Hér er kaldara en í Mazatlán, svo við klæddum okkur betur.  Kristín fór meira að segja í ullarpeysu. 

07-IMG_1441

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Jaime eiginmaður Kristínar ók okkur á rútubílastöðina.  Það tekur um þrjá og hálfan tíma að aka þesa fallegu en hrikalegu leið. 

08-IMG_1442

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ferðbúin. 

09-IMG_1443

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo að fara í rútuna.  Milli Mazatlán og Durango er klukkutíma munur á tíma, við lögðum af stað kl. átta um morgunin.  

10-IMG_1444

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég er ekki viss, en ég held að rútur séu aðalferðamátinn hér innanlands. Við fengum brauðsamloku og vatn afhent við inngang, rútan er búin öllum þægindum, svo sem eins og tölvuneti, leikjum fyrir börnin og bíómyndum.  KLósett er líka í rútunni. 

11-IMG_1448

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Í fyrstu var ekið gegnum láglendi og lággróður.  

12-IMG_1450

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo fór landslagið að hækka en mjúkar hæðir grónar tóku við.

13-IMG_1455

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og svo hækkaði landslagið ennþá meira. Á leiðinni eru um 30 göng og álíkamargar brýr.

14-IMG_1460

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Á einum stað stoppaði rútan og þessar skelleggu konur komu upp í og buðu faregum upp á ilmandi kökur og tortíur með osti.  

15-IMG_1462

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og nú vorum við komin upp í fjöllinn sem eru bæði há og þröngir dalir á milli, allt gróið.  

16-IMG_1464

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta gífurlega fallega tré vakti áhuga minn,börkurinn brúngljáandi og tréð svo fagurskapað og skar sig algjörlega úr allri flórunni.

17-IMG_1465

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Víða voru tafir vegna vegaframkvæmda, en nú er landslagið heldur betur farið að verða risavaxið.

 

18-IMG_1466

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Minnir mig dálítið á Copper Canyon, sem við heimsóttum fyrir 20 árum.

19-IMG_1467

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og ég giska á að við séum komin í yfir 2000 metra hæð yfir sjávarmáli.

20-IMG_1471

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ef ykkur finnst þessi brú ógnvænleg, bíðið þá bara, og ég segi nú bara ég er þakklát Samúel vini mínum í Austurríki fyrir að lækna mig af bæði flughræðslu og lofthræðslu. 

21-IMG_1472

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og hér erum við að tala um alvöru fjöll. 

22-IMG_1473

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Allt í einu finnst mér hraðbrautin milli Austurríkir og Ítalíu ekkert svo hrikaleg. smile

 

Þetta er nefnilega hæsta "susopension Brigde í heimi.  Baluarte brúin.  

https://www.youtube.com/watch?v=3u1ay-o2HBw

 Ein af tíu hættulegustu brúm í heimi.

23-IMG_1476

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sumstaðar á leiðinn hafa framsæknir athafnamenn komið sér fyrir og selja bæði ávexti og safa til ferðalanga.

 

24-IMG_1477

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Því auðvitað verða menn þyrstir á svona langri leið og hættulegri.

25-IMG_1482

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ógnarháir klettar rísa eins og tröll upp úr gróðrinum, eða eins og fornir kastalar í Evrópu.

26-IMG_1483

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En svo fórum við loks að lækka flugið eða götuna. 

27-IMG_1484

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og þá tóku við akrar, býli og breytt val á trjám, meira fururtré og svo kaktusar.

28-IMG_1485

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

En samt ennþá brýr og göng.

29-IMG_1492

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hross og nautgripir sá engar kindur.  En við ókum fram hjá nokkrum búgörðum. 

30-IMG_1494

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Er ekki alveg viss um að svona húsnæði myndi henta í íslenskum sveitum.  

32-IMG_1502

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessi vegur minnir mig nú á vegaslóða sem við ferðafélagarnir út áhaldahúsinu fórum í fyrra cool

33-IMG_1503

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég bý í sveit, á aeuðfé á beit og Sællegar kýr út á túni.  

34-IMG_1509

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og ekki skortir timbrið,þótt trumpinn saumi að þeim, geta þeir allavega haldið á sér hita í verstu kuldaköstum.

36-IMG_1515

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og hér erum við komin til Durango, erum að innrita okkur á hótelið, skjálfandi úr kulda, kappklædd og gott að komast inn.

Durango er í 1880 metra hæð frá sjávarmáli.  árið 2010 var fjöldi íbúa 518.267.  

Hér er margt að skoða og munum við fara í vettvangsskoðun á eftir.  Hér á torginu sem við erum við er Catrethreal De Durango.  Glæsileg kirkja og eldgömu.

37-IMG_1519

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo sannarlega fallegt hús.

39-IMG_1524

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Fengum okkur kvöldmat á hótelinu, og fórum svo á rölt um bæinn, þetta er gamall og fallegur bær.

40-IMG_1526

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér erum við í anddyrinu og eins og sjá má kappklæddar tilbúnar á borgarrölt. 

En ekki meira að sinni.  Eigið góða rest af deginum.  

.....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 47
  • Frá upphafi: 2020783

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband