Svona ýmislegt á léttum nótum.

Þetta er bara ég. og ég get sagt ykkur að þegar ég er farin að vera með kjaft og skít, þá er eitthvað mikið að.  Og það er einmitt nákvæmlega það sem er, og ég er ekki ein um að finnast það.  Öll lygin, yfirdrepskapurinn kjaftæðið og bullið, ofan á rosalega sorglegar fréttir af flóttafólki sem er að farast, fólki sem er drepið saklaust af ribböldum og morðingjum sem hefur orsakað að ég slekk á fréttum, og reyndar ekki i fyrsta sinn, þá er komið nóg.

En ég ætla að vera skemmtileg núna smile

Hér fyrir nokkrum dögum komu hér tvær yndælar stúlkur á ferðalagi og litu við í kúlunni. 

IMG_3765

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þetta voru ungar stúlkur frá Bandaríkjunum, En ekki svona dæmigerðir bandaríkjamenn sem halda að naflinn sé í USU.  Heldur stúlkur sem voru vel lesnar og áhugasamar um land og þjóð. 

Þær höfðu ætlað að fara í sumarfrí  til austurstrandar BNA, en þær eru í skóla í New York í fjármálageiranum, eru komnar með vinnu í Wallstreet í sumar.  En sáu svo að það var ódýrara að fljúga með WOW arir til Íslanda og breyttu ferðinni og komu til Íslands.

Það var virkilega gaman að spjalla við þessar flottu stelpur, þær eru reyndar ættaðar frá Kína, foreldranir innflytjendur þaðan.  En þær spurðu mikið. M.a. höfðu þær heyrt að allir Íslendingar væru bæði skrifandi og lesandi. Það þótti þeim merkilegt.  Þær ræddu líka um fornsögurnar og höfðu lesið sér til m.a. hafði önnur þeirra lesið bækling um Íslanda þar sem sagt var að aðal frasi Íslendingar væri; þetta reddast.  Og þeim fannst þetta frábært og jákvætt.  Það er voðalega fallegt og gefandi að fá svona heimsóknir frá öllum stöðum á jörðinni, en svo sannarlega hafa slæðst hingað margir ferðamenn frá hinum ýmsu stöðum á jörðinni.  Þær tóku myndir og ætla að senda mér þær svo þá get ég sett inn betri myndir af þessum frábæru stelpum.

 

Í fyrra dag útskrifaðist elsku Alejandra mín úr menntaskólanum á Ísafirði með láði.  Hún fékk þrenn verðlaun fyrir besta árandur í Íslensku, Ensku og erlendu tungumáli.

IMG_3775

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Stelpan okkar, og hún fékk sem sagt þrenn verðlaun.  Og hún saumaði búninginn sinn sjálf.

IMG_3777

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það gekk ekki þrautarlaust að fá hana inn í samfélagið ég endaði á að skrifa dómsmálaréðherra bréf þegar hún var um 14 ára, þá var hún búin að fá endalaus hótunarbréf um að þurfa að yfirgefa landið.  Ég skrifaði Rögnu Árnadóttur og sagði að þetta væri farið að hafa varanleg áhrif á barnið, því hún þekkti ekkert annað land sem heimaland en Ísland.  Og Ragna greip til ráðstafana sem dugðu, þökk sé henni.

Og svo fékk hún íslenskan ríkirborgararétt sem betur fer.  Því hér er glæsileg ung kona á ferð sem er jafnvel meiri Íslendingur en margir aðrir. Segi og skrifa.

IMG_3791

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Glæsilegur hópur, en því miður misstum við þetta unga og hæfileikaríka fólk frá okkur þau fara í háskólann og jafnvel erlendis, og geta svo ekki snúið heim, því hér vantar allt til að þau fái vinnu við hæfi.  Og nú er þessi .... nei ég ætla ekki að vera orðljót en menntamálaráðherra búin að koma því svoleiðis fyrir að börnin okkar þurfa að fara ári fyrr að heiman.  Því hann er fyrst og fremst að hugsa um A. kostnaðinn, B. að krakkarnir í elítunni geti sem fyrst farið út á vinnumarkaðinn þ.e. börnin sem tilheyra hans elítu. 

IMG_3815

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er ekki bara Alejandra og foreldrar hennar sem komu hingað um árið, heldur líka móðurbróðir hennar sem á hér íslenska fjöldkyldu og hann Rolando Díaz er kvæntur íslenskri konu og á hér tvö börn þau Isobel og Ísaac, sem eru líka barnabörnin mín smile Flókið.. nei þar sem er hjartapláss þar er alltaf rúm fyrir fleiri.

IMG_3816

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Þessi mynd er algjörlega óborganlega fyrir þá sem þekkja manninn minn hahaha.. Þarna eru þeir grallaraspóarnir Pablo Díaz, Wlli, frændinn frá El Salvador og svo Rolando. 

IMG_3817

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér eru tveir stoltir afar með fallegur stelpuna okkar, já þeir eru reyndar að rifna úr monti. Annar er að vísu titlaður pabbi og hinn afi.  smile

IMG_3818

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og mamma Ísobel þessi elska og duglega kona. 

IMG_3825

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og frændi sem ég því miður man ekki nafnið á, kom alla leið frá El Salvador til að vera viðstaddur þessa hátíð.

IMG_3847

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já svo sannarlega gleðidagur fyrir okkur öll, fjölsylduna.

IMG_3853

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér býður hún gestina velkomna og að gjöra svo vel.

IMG_3858

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Samstúdínur, flottar ungar konur á leið út í lífið.

IMG_3869

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já ég sagði það.. grallaraspóar, annar talar mest íslensku hinn bara spænsku, en það hefur aldrei háð þeim eða verið tungumálaerfiðleikar á þessum bænum.  Tveir algjörlega toppnáungar sitt frá hvorri heimsálfunni, en ná algjörlega vel saman.

IMG_3867

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Já ég veit hálfétin kaka, en ég bara fattaði ekki fyrr að taka mynd af henni tongue-out

IMG_3851

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hér eru svo bræður mínir í góðum fíling Gunni og Daddi. 

IMG_3862

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Og blessuð börnin létu sig ekki vanta.

IMG_3827

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Verð sennilega myrt fyrir þessa mynd, en hér erum við systur í góðum fíling og Sigga tendadóttir. Á góðri stund.

IMG_3836

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Talandi um hund og kött, glæsileg tilþrif hjá Lottu minni og París skilur ekki neitt í neinu hahahahah

IMG_3872

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Svo þarf ég endilega að grobba mig af fallegu blómunum mínum sem eru nú til sölu.

IMG_3873

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ég er alveg viss um að þið sjáið ekki glæsilegri blóm.

 

IMG_3875

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Það er svo margt til hjá mér í ár elskurnar.

IMG_3876

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Bara að koma og skoða.  Ef ég er ekki upp á lóð, er ég sennilega niður í kúlu, eða að þvælast, lofa að reyna að muna eftir að hafa símann við höndina. Bara fyrir ykkur. 

IMG_3881

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Eigið annars góðan dag á morgun og alla hina.  En hér er ég og get ekki annað, því ég er algjörlega húkkt á þessa blómasölu, og sér í lagi uppeldið og sáninguna og fjölgunina.  kiss  Sumarið er nefnilega komið.  

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Höfundur

Ásthildur Cesil Þórðardóttir
Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Tónlistarspilari

Ásthildur Cesil - Dagdraumar
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • 2f19c636fb68b249555c5fa250d3e103--russian-image-jellyfish
  • engill-angel
  • jolatre
  • 20171002 121526
  • gasometers-vienna-7[5]

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 34
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband